Skip to main content

Embla - Gunnar Karl Jóhannesson

Page 1

Grafísk miðlun | haust 2023 | 2. tbl. 12 árg.


Iðan AD

Við viljum bjóða þér

upp á fjölbreytt námskeið • Byggingar- og mannvirkjagreinar • Bílagreinar • Matvæla- og veitingagreinar • Prent- og miðlunargreinar • Málm- og véltæknigreinar • Tölvunámskeið Fræðslusetrið Iðan veitir fólki með ólíkan bakgrunn tækifæri til að efla hæfni sýna í atvinnulífinu og í áhugamálum. Hafðu samband í síma 590 6400 eða kynntu þér þjónustu okkar nánar með því að kíkja inn á www.idan.is

Opnunartímar 9:00 - 16:00 MÁN-FIM 9:00 - 14:00 FÖSTUDAGA

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | idan(hjá)idan.is | www.idan.is


LEIÐARI Útskrift úr framhaldsskóla er stórkostlegur árangur sem markar hámark margra ára vinnu, vígslu og persónulegs þroska. Þessi mikilvægi áfangi táknar ekki aðeins öflun tæknilegrar þekkingar heldur einnig þróun nauðsynlegrar lífskunnáttu, seiglu og þrautseigju. Leiðin að útskrift er oft mikill rússíbani áskorana og sigra, að komast í gegnum það getur vakið djúpar tilfinningar um árangur og áhuga sem getur mótað líf manns á mjög jákvæðan hátt. Árangurstilfinningin sem fylgir því að útskrifast úr menntaskóla er óviðjafnanleg. Þegar þú gengur yfir sviðið til að taka á móti prófskírteini þínu, skolast bylgja afreks yfir þig. Námstímar seint á kvöldin, yfirstíga fræðilegar hindranir og myndun varanlegrar vináttu, allt stuðlar að upplifun sem skilgreinir þetta tímabil lífsins. Þetta afrek verður grunnur til að byggja framtíðarárangur á, sem gefur áþreifanlega áminningu um að vinnusemi og ákveðni skilar óumdeilanlegum árangri.

Handan akademísks sviðs veitir útskrift menntaskóla nýfundið sjálfstraust sem virkar sem hvati til að takast á við framtíðaráskoranir. Hæfni til að setja og ná markmiðum verður hluti af sjálfsmynd þinni og ýtir undir trú á getu þína. Þetta sjálfstraust nær út fyrir skólastofuna og hefur áhrif á persónuleg og fagleg viðleitni. Hvort sem þú ert að sækjast eftir æðri menntun, fara út á vinnumarkaðinn eða skoða ýmis tækifæri, þá verður sjálfstraustið sem fæst með útskrift úr framhaldsskóla mjög nauðsinleg. Áhrif þess að útskrifast úr tækniskólanum ná langt út fyrir athöfnina og blaðið sem berast. Þetta er umbreytandi upplifun sem mótar karakter, vekur traust og opnar dyr til framtíðar sem er rík af möguleikum. Vopnaðir lærdómnum og sjálfstraustinu sem þeir öðlast, fara útskriftarnemar í ferðalag sjálfsuppgötvunar og árangurs, búnir til að sigla um margbreytileika lífsins með seiglu og festu. Að útskrifast úr menntaskóla er ekki bara fræðilegt afrek; þetta er athafnasiður sem leggur grunninn að fullnægjandi og farsælli framtíð.

Umbrot og hönnun Gunnar Karl Jóhannesson Hönnun forsíðu Gunnar Karl Jóhannesson Samsett og löguð með Adobe Photoshop Módel til innblásturs: Olga Axelsdóttir

Nemenda kynning

4

Heilsa og hreyfing

6

Rally íslandsmótið 2023

8

Svefn

14

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Pappír Kápa 170 g/m² Innsíður 115 g/m² Letur Universe 45 Light 13/16 & 9/13 Universe 55 Roman 9/13 & 8/11 & 28/34 Universe 57 Condensed 12/16 Universe 65 Bold 8/11 & 9/13


Heil og sæl! Gunnar Karl heiti ég og fæddist í Reykjavík árið 1996. Ég flutti til Þýskalands á aldamótunum og tengi æsku mína þangað. Ég flutti þó aftur til Íslands fimm árum seinna og hef að mestu leiti búið þar síðan. Ég hef verið mikið á flakki eftir að ég kláraði grunnskólann, bjó um skeið í Bretlandi, Írlandi og Kína og unnið við mikinn fjölda af allskonar störfum og flakkað á milli atvinnulífs og skóla. Mér hefur alltaf þótt gaman að búa til hluti, teikna eða smíða, það færði mig í nám í Tækniskólanum í Reykjavík og varð grafísk miðlun fyrir valinu. Það hjálpaði mér gríðarlega að ég var þegar búinn að taka stutt netnámskeið í Adobe Illustrator, svo ég kunni á mikið af tólunum og var búinn að nota þau mikið áður. Það hjálpaði mér líka með að vita nákvæmlega í hverju námið fólst eða hvernig vinnulagið, ég gat þá nokkurn veginn stólað á að námið væri skemmtilegt. Það er ekkert leyndarmál að mér hefur aldrei gengið vel í skóla þannig að þetta var mjög mikilvægt að negla áður en ég fór í námið. Samhliða öllu öðru hef ég einbeitt mér mikið af iðkun í rallý keppnum, bæði hér- og erlendis. Grafíska miðlunin er búin að hjálpa mér gríðarlega mikið í sportinu. Ég hef náð að skera mig vel út úr hópi rallýökumanna á Íslandi með því að kunna að hanna útlit, gert kennimerki og vinna með liti og prentgripi. Ég hef heilfilmað marga keppnisbíla, skeytt saman myndum í plaköt og auglýsingar og gert vefsíðu utan um rallý ferilinn minn auk fleiru. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég ætla að vinna við eftir námið en það sem er fremst í mínum huga er að komast í fleiri rallkeppnir erlendis, læra meira á aksturstækni og getað síðan starfað tengt þessu sporti í framtíðinni. Auðvitað stefnir maður alltaf á að verða atvinnuökumaður, en hvað er að því að hafa eitthvað annað til vara?


Mynd: Auðbjörg Helga


Hversu mikilvægt er að hreyfa sig? Félagsleg og læknisfræðileg áhersla hefur lengi verið á óneitanlega jákvæð áhrif hreyfingar á líkamlega heilsu, en rannsóknir hafa sýnt að hún hefur veruleg áhrif á andlega heilsu og hreyfing virtist vera verndandi gegn þróun þunglyndis, óháð aldri, kyni og búsetu. Það hefur lengi verið viðurkennt að líkamleg áreynsla og hóflegur lífsstíll stuðlar að bættri heilsu og langlífi Regluleg hreyfing er mikilvæg. Hreyfing er ekki aðeins mikilvæg til að koma í veg fyrir marga sjúkdóma heldur byggir hún einnig upp styrk til að takast á við hversdagsleg verkefni og stuðlar að betri svefni og hvíld. Við vitum öll að hreyfing er öflugt vopn gegn streitu. Kröftug hreyfing er vissulega góð fyrir heils-

una en getur líka valdið miklu álagi á líkamann. Þess vegna er mikilvægt að huga að öðrum þáttum, eins og nægri hvíld, svefni og góðri næringu, sem geta unnið gegn auknu álagi við þátttöku í keppnisíþróttum eða kröftugri hreyfingu. Menningarsaga Vesturlandabúa sýnir sömu afstöðu, þó hún byggi á reynslu kynslóða frekar en vísindum nútímans. Eftir því sem líf okkar verður auðveldara verða þessar hversdagslegu staðreyndir augljósari. Að afla tekna verður áreynslulausara með hverjum degi og krefst minni fyrirhafnar. Með þyngdaraukningu, hreyfingarleysi og næringarskorti versnar heilsan, lífsgæði minnka og þunglyndi eykst.

Mynd: www.pexels.com


Hvernig hreyfingu er mælt með? Mælt er með öflugri hreyfingu í 20–30 mínútur fyrir heilbrigða einstaklinga að minnsta kosti tvisvar í viku. Þannig er hægt að viðhalda og bæta úthald, vöðvastyrk, liðleika, jafnvægi og beinheilsu. Auk hreyfingar í daglegu lífi er sérstaklega gagnlegt að stunda styrktarþjálfun, svo sem í líkamsræktarstöð, til að viðhalda eða bæta vöðvastyrk og beinþéttni. Jafnframt er gott að þjálfa þol, samhæfingu, jafnvægi og liðleika, svo sem með almennri leikfimi, sundi, dansi og göngu á ójöfnu undirlagi. Notaðu þjónustu t.d. íþróttafélaga, þjónustumiðstöðva og heilsugæslustöðva þar sem því verður við komið. Ekki setja rusl í líkamann sem nýtist ekki til æfinga, keppni og bata. Markmið góðrar næringar er að tryggja að líkaminn hafi næga orku fyrir hreyfingu, leiki og aukaæfingar. Einnig þarf að huga að bata eftir allt álagið. Ef þú ert í röð hjá Dunkin Donuts ertu á röngum stað.

Farðu lengra með nýju

skónum frá

Ármúli 18 ○ Sími 567 8888 ○ Stílsport.is


íslandsmótið árið 2023 sagt frá sjónarhorni Íslandsmeistarans Þvílíka tímabilið maður! Nú er farið að líða á veturinn og eftir aðeins nokkra daga. fer fram lokahóf AKÍS í Gólfskálanum á Akranesi. Því finnst mér við hæfi, á meðan lítið er að frétta frá okkur Ísaki Guðjónssyni og GK Mótorsport liðinu, að rýna í vel í rallý tímabilið sem lauk í september. Mynd: Sæmundur Erlendsson

Setjum fram aðstæður eins og þær voru hjá okkur í byrjun maí. Á þessum tíma erum við Ísak ásamt föður mínum Jóhannesi Gunnarssyni búnir að vera mikið að hugsa um það hvað við ætlum að gera á þessu rallý tímabili, mig langaði ekki að hætta persónulega eftir að hafa áttað mig á því hvað ég hef í raun gaman að því að stunda þetta sport en aftur á móti vildi ég ekki fara á bílnum hans pabba enn eitt árið. Ef við færum í þetta þá væri það án fjárhagslegar aðstoðar foreldra minna, mér fannst það grundvallar atriði og í raun löngu kominn tími til. Þó að það væri ekki bíll til staðar þá vorum við Ísak samt búnir að vinna undirbúnings vinnuna með styrktaraðilum okkar fyrir tímabilið og það eina sem átti eftir að gera í raun var að skrifa undir samningana. Það var þó ekki hægt fyrr en við vorum komnir með keppn-

isbíl og gátum lofað að fara heilt tímabil í topp slagnum. Það sem ég persónulega var búinn að eyða mínum tíma í þetta vorið var skólasókn í Tækniskólanum í Reykjavík og að smíða rallýcross bíl fyrir hana systur mína, Eydísi Önnu, en hún var að hefja sinn feril í mótorsporti þetta sumar. Rúmri viku fyrir tímabilið kom bíll á sölu á netið sem við, og líklega fáir aðrir voru að búast við. Halldór Vilberg, eigandi Subaru Impreza bíls með 6 strokka mótor sem við Ísak fengum lánaðan í tvær keppnir árið á undan var allt í einu kominn á sölu, og það bara rúmri viku fyrir fyrstu keppni. Þetta var alveg upplagt fyrir okkur Ísak til að stökkva á, ég reyni nú oftast að taka ekki mikið af skyndiákvörðum en þetta var of fullkomið til að láta það fram hjá sér fara, og endaði með að vera mjög


góð fjárfesting. Við náttúrulega vissum hvað við vorum að fara út í þegar við keyptum þennan bíl, ég sjálfur sá til þess að koma honum í sem næst keppnishæfu ástandi áður en ég skilaði honum og þakkaði fyrir lánið í fyrra. Eina óvissan var að vegna þess að við keyrðum hann ekki sjálfir í síðustu keppni fyrra sumars þá vissum við ekki fullkomlega akstursstandið á bílnum en vorum samt vongóðir eftir að hafa skipt um nokkra hluti sem við vissum að voru orðnir þreyttir eftir síðasta tímabil. Við hefðum að sjálfsögðu viljað prufukeyra bílinn en þar sem tíminn var afar naumur og ég þurfti að heilfilma bílinn aftur var ákveðið að sleppa því fyrir fyrstu keppni íslandsmeistaramótsins í rally 2023.

Umferð 1, Orkurally í Keflavík. Fyrsta umferðin fór að vanda fram á suðurnesjunum með tveggja daga keppni sem byrjaði með innanbæjar leiðum í keflavík sem voru að miklum hluta eknar á malbiki og svo þremur ferðum um Djúpavatnsleið. Skráningin var ansi góð í þetta rall og vissum við að við þurfum að vera algerlega með á nótunum ef við ætluðum að stefna á sigur. Sérstaklega vegna þess að við, eða öllu heldur ég sem ökumaður hef aldrei fundist ég mjög sterkur á þessum innanbæjar leiðum í Keflavík, þær eru lúmskar, mjög breytilegur og slíta bílnum mikið. Þar að auki krefjast þær að maður hætti akstrinum varlega, það er létt að missa einbeitingu í smá stund og rekast utan í kannt. Það er svipað og við könnumst við á „venjulegri” malar sérleið, eini munurinn er sá að það vantar allt flæði, eða er það erfiðara að finna flæði, bæði við akstur á bílnum og í leiðarnótum. Verkið okkar varð þó mun léttara eftir fyrstu leið þar sem tvær áhafnir urðu frá að hverfa úr topp slagnum strax á fyrstu metrunum, Sigurður Bragi og Valgarður, ásamt Skafti og Sigurjón. Nokkrum sérleiðum síðar urðu Sigurður Arnar og Bergþóra einnig frá að hverfa, sem setti okkur í góða stöðu þar sem við vorum þá í raun orðnir

r ey n s l u mesta áhöfn keppninnar. Við náðum að keyra fyrsta dag þessarar keppni vel en tókum þó eftir því að það væri ekki allt með felldu í fjöðrunarbúnaði bílsins. Þrátt fyrir það náðum við að keyra mjög þétta ferð allan daginn sem þýddi að við vorum komnir með 48 sekúndna forystu inn í dag tvö. Bilunin reyndist vera demparinn hægra megin að aftan og var vandamálið að hann var allur fullur af drullu og vatni og var ekki að þjappast eðlilega saman. Ég hef þó nokkra reynslu af því að vera í dempara vandræðum í þessu ralli og var ljóst að aksturinn um djúpavatn myndi vera gríðarlega krefjandi þar sem við þurfum að passa bílinn og að brjóta ekki eitthvað meira að aftan en líka að keyra hratt af því að við vissum ekki hvað aðrir keppendur myndu gera á þessum þremur ferðum um þessa löngu Djúpavatnsleið. Á fyrstu ferð um Djúpavatnið um fyrri part seinni keppnisdags náðum við mjög góðri ferð og náðum við að rúmlega tvöfalda forskotið okkar eftir aðeins eina bunu af þrem, en það var líka af því að Jóhann og Heiða, sem voru í öðru sæti lentu í veseni og duttu niður í 4 sæti. Eftir þessa ferð var öll pressa svo gott sem farin af okkur og gátum við spilað vel á stöðuna, spöruðum bílinn aðeins á annarri ferð um djúpavatn og tókum svo vel á því á þeirri þriðju, sem var einnig ofurleiðni í rallinu. Ofur Leið er sú sérleið í hverju ralli sem gefur auka stig til íslandsmeistara, 3 stig fyrir hraðasta tíma, 2 fyrir næstbesta og 1 stig fyrir þriðja sætið á leiðinni. Hraður og jafnframt mistaka laus akstur skilaði okkur í mark í fyrsta sæti og með besta tíman á ofurleiðinni sem þýddi fullt hús stiga.


Umferð 2, Miðsumarsrally. Eftir sigur í fyrstu keppninni vorum við mjög vongóðir, því að næstu tvær keppnir á dagatalinu eru þær keppnir þar sem við Ísak erum hvað sterkastir. Það þurfti þó að eiga við fjöðrunina áður en við gátum andað rólega og var strax farið í að fjarlægja demparana undan bílnum og taka þá í sundur og þrífa. Demparar í rallýbíl eru öðruvísi en þeir sem finnast í fólksbílum, þessir eru mun sterkari, dýrari og eru þar að auki sundurteknanlegir. Það kom snemma í ljós hvert vandamálið var, demparinn hægra megin að aftan leit ansi illa út. Hann var fullur af drullu og vatni sem hafði gersamlega eyðilagt legu stykkið sem rennur upp og niður botn stykkið af demparanum. Heppnin var með okkur, en framleiðandinn átti aukahlutinn sem okkur vantaði á lager hjá sér úti í bretlandi og fengum við hann senda rakleitt til íslands. Ekki var mikið mál að setja Proflex fjöðrunina saman og hjálpuðu einnig Mckinstry Motorsport okkur að þrífa innvolsið og setja nýja olíu og gas í hana. Við Ísak mættum í Miðsumarsrallið svolítið kokhraustir og ákváðum að leiðarskoða ekki sérleiðina um uxahryggi fyrir keppni, þetta er leið sem breytist mjög lítið milli ára þannig að við ákváðum að spara smá tíma. Eftir á að hyggja var þetta klárlega röng ákvörðun og var mjög skrítið að keyra Uxahryggina í keppninni og það er nokkuð ljóst að við munum ekki sleppa því að leiðarskoða aftur í náinni framtíð.

Keppnin byrjaði snemma morguns, við Ísak mættir á Olís subaru bílnum og einnig pabbi minn Jóhannes Gunnarsson ásamt Björgvin Benediktssyni á Mitsubishi Lancer Evo X. Ég hef verið með þann bíl í láni hjá gamla síðastliðin ár og nú loksins kominn tími til að kallinn fékk að nota bílinn sinn í keppni. Þetta var mjög einfalt rally aðeins tvær leiðir keyrðar í báðar áttir, Kaldidalur og fyrrnefnda Uxahryggja leið. Það er ekki margt athugunarvert sem gerðist hjá okkur í þessari keppni, Pabbi og Bjöggi skemmtu sér vel og bættu í ferðina með hverri leið og við Ísak keyrðum nákvæmlega eftir plani án þess að glíma við neinar bilanir eða óvæntar uppákomur. Við enduðum á því að sigra þetta rall með rúmum ellefu mínútum og komum frá þessari keppni með fullt hús stiga líkt og þeirri fyrri.


Umferð 3, Ljómarally í Skagafirði.

Rallið á Skagafirði fór fram í lok júlí og um var að ræða annað frekar einfalt rally. Byrjað var á tveimur ferðum upp og niður hinn sögufræga Mælifellsdal og endað svo með einni ferð fram og til baka yfir Vesturdal. Ísak og ég héldum áfram þar sem frá var horfið og unnum fyrstu ferð upp dalinn en það var á annarri ferð þar sem heppnin var ekki með okkur. Við fórum inn í eina beygjun a nákvæmlega eins og ég hafði planað það en fórum við það yfir einn jarðfastan stein, hann var ekki beittur en við það að keyra á hann tókst mér að skemma dekkið að innanverðu. Já það er rétt, það sást lítið sem ekki neitt á dekkinu að utanverðu en þegar það var affelgað eftir keppni kom í ljós sprunga eftir innri hlið dekksins að innanverðu. Hvort að þetta sé galli í dekki eða eitthvað með notkun þess að gera er erfitt að segja en það sem var víst er að það þurfi að skipta um það inn á miðri sérleið. Það tók okkur allt of langan tíma að skipta um dekkið, það var einfaldlega út af því að það var ekki æft nógu mikið á nýja tjakkinn. Hann var keyptur í því skyni að hann myndi flýta fyrir dekkjaskiptum en það er ekki nóg að gera bara eins með nýja tjakkinn heldur að æfa sig að nota hann undir öllum kringumstæðum og kipptum við því líka í lag fyrir næstu keppnir á eftir. Þetta þýddi samt að við töpuðum allt í allt 3,5 mínútu á dekkjaskiptunum og komumst við af stað beint á eftir annarri áhöfn. Sú áhöfn hleypti okkur ekki fram úr, eflaust vegna reynslu eða gáleysis, en þetta þýddi náttúrulega að í staðinn fyrir að keyra okkar ferð og taka þá til baka eina mínútu eða svo af hröðustu keppinautunum þá töpuðum við annarri mínútu

ofan á það sem við töpuðum á því að skipta um dekkið. Ég verð að viðurkenna að ég varð bara hreinlega mjög reiður við þau sem töfðu okkur en það sem mér fannst verst er að það var aldrei beðist afsökunnar, ég get alveg skilið að nýliðar kveiki ekki kannski alveg á perunni, sérstaklega á svona erfiðri sérleið eins og Mælifellsdalurinn. Það má þó alveg segja sorry. Ég man sjálfur eftir Rally Reykjavík 2014 þegar ég var að keppa og mig minnti að ég hafi verið í 5 sæti á þeim tíma og á eftir mér var ræstur Henning Ólafsson, þáverandi Íslandsmeistari. Ég var meðvitaður að hann væri talsvert hraðari en ég þannig að ég var alltaf með augun í speglinum og vildi alls ekki fara að tefja hann ef hann myndi ná mér. Sem hann svo gerði og þá hleypti ég honum líka rakleiðis framhjá. Ég lít fram hjá þessu í þetta skiptið og að sjálfsögðu er ekkert slæmt á milli okkar en ég vona innilega að í framtíðinni geri þau ekki slík mistök og nýti sér þessa reynslu til að læra af þessu. Rallið var þó ekki búið, „þetta er ekki búið fyrr en það er búið” eins og oft er sagt. Á næstu leiðum settum við í flug gírinn og fórum að saxa á forskot þeirra Skafta og Daníels sem sátu í fyrsta sæti. Þeir voru þó alltaf að bæta í hraðan og áttu ennþá inni um tuttugu sekúndur í forystu þegar komið var að leiðunum um Vesturdal. Þar Kom þó upp bilun í bíl þeirra og hættu þeir keppni stuttu eftir að hafa farið yfir á og fengið vatn inn á mótorinn. Það leiddi til þess að við tókum enn og aftur fullt hús stiga úr þessari umferð og vorum þá komnir í mjög þæginlega stöðu í íslandsmótinu.


Umferð 4, Rally Reykjavík. Stærsta keppni ársins var næst og þá gafst okkur tækifæri að jafna loksins met Rúnars Jónssonar og Jóns Ragnarssonar sem hefur staðið í um tuttugu ár. Það að verða fjórfaldir meistarar í rally yfir heildina, og að ná þeim öllum í röð hefur bara tekist einu sinni áður og við Ísak stefnuðum á að jafna þetta met með sigri í Rally Reykjavík. Keppnin byrjaði vel fyrir okkur, við settum ágæta tíma á fyrstu leiðum en það var ljóst frá fyrstu sérleið að þeir félagar Jósef Heimir og Gunnar Eyþórsson voru orðnir þreyttir á að vera fyrir aftan og juku hraðan töluvert frá fyrri keppni. Með mistaka lausum akstri náðum við að byggja upp smá forskot þó en það var ekki nema 41 sekúnda, þannig að við gátum ekkert farið að slá slöku við. Degi eitt lauk innan bæjar hjá Smáralindinni, dagarnir og vikurnar fyrir keppnina fór að miklu leyti í að auglýsa svokallaða Glaðheima leið, staðsett í göngufæri frá Smáralindinni. Við í liðinu létum prenta fyrir okkur 250 plaköt sem við dreifðum allt um borgina. Ég verð að segja að sú vinna var ansi tímafrek en á sama tíma mjög góð í reynslubankan en ef ég myndi gera eitthvað svona aftur myndi ég fara að því á aðeins hagkvæmari hátt. Þetta myndi ég samt segja að hafi heldur betur borgað sig af því að það voru heldur betur heill haugur af fólki sem kom að skoða bílana bæði á sérleiðinni og í þjónustu hléinu. Þetta var að sjálfsögðu ekki bara okkur að þakka heldur líka þeim sem sáu um keppnina og að auglýsa hana og einnig öðrum keppendum sem gerðu allt sitt besta við að dreifa auglýsingum um rallið sem víðast. Það var virkilega gaman að sjá alla vinna svona vel saman að einu markmiði og að sjá hvað afköstin geta verið mikil, að fá slíkan fjölda af áhorfendum ætti að mínu mati að vera normið í rally á Íslandi en ekki undantekningin. Þá að degi tvö og voru keyrðar leiðir sem liggja yfir snæfellsjökul, prestahraun og Berserkjahraun. Við hófum daginn eins og við skildum við það deginum áður og byggðum á forskotið jafnt og þétt með því að taka nokkrar sekúndur af Jósef og Gunnari hér og þar. Við lentum þó í því á leið níu að það brotnaði fram öxull á miðri leið, við náðum þó þökk driflæsingarinnar að klára leiðina og töpuðum við ekki svo miklum tíma með bílinn aðeins með drif á þremur hjólum. Það var þó ekki þjónustu hlé fyrr en eftir tíundu leið þannig að við þurfum líka að keyra næstu leið ennþá með brotinn fram öxul. Þá vorum við búnir að ná að finna út hvað væri bilað þannig að þegar við lögðum af stað inn á leið tíu gat ég farið örlítið greiðar yfir vitandi hvernig bíllinn myndi hegða sér, einnig hjálpaði okkur að leiðin var að miklu leyti niður í móti svo að grip út úr beygjum var ekki eins mikilvægt og enduðum við á að tapa bara 10 sekúndum á þessari bilun. Í þjónustuhléi var skipt um öxul með góðri hjálp þjónustumanna, og ekki bara úr okkar liði heldur komu fleiri að og þakka ég þeim kærlega fyrir hjálpina.


Ert þú að hámarka tryggingapakkann þinn? Seinni hluti annars dags gekk rosalega vel, við Ísak kusum að fara á nýjan gang af dekkjum, gerð sem við höfum aldrei prófað áður og með mun mýkri gúmmí blöndu en við erum vanir að nota. Við kusum að nota þau á leiðunum sem eftir voru á þessum degi vegna þess hve stuttar þær voru, þannig að ef þær hefðu reynst slæmur kostur hefðum við alltaf getað svissað þeim út ef svo færi...

Við vinnum náið saman og finnum réttu kjörin fyrir þig og þína. Svo virðist sem þessi grein er of löng fyrir blaðið. En ekki örvænta, hægt er að vita meira um rallý tímabilið 2023 á vefslóðinni gunnarkarlrallydriver.com og sjá hvernig restin af Rally Reykjavík fór sem og seinasta umferðin. Einnig er hægt að fara í gegn um QR kóðan hérna að neðan.

Staðan að loknu Íslandsmótinu: Keppni nr:

#1

#2

#3

#4

#5

stig

Gunnar & Ísak

23

23

23

33

23

125

Birgir & Daníel

16

0

0

23.5

8

47.5

Jóhann & Heiða

12

16

0

0

15

43

Hlöðver & Jón

4

12

10

15

0

41

Agnar & Valgarður

0

6

0

12

12

30

Borgartún 27 | 105 Reykjavík | 123 4009 | www.bjork.is


Hvenær er best að fara að sofa? Mörg okkar þekkja þann slæma vana að fara of seint að sofa. Við viljum horfa á einn sjónvarpsþátt í viðbót, klára einn tölvuleik, lesa meira í spennandi bók eða finnst við vera að missa af einhverju á samfélagsmiðlum eða fréttamiðlum. Við vitum að þetta er ekki hollt og við vitum að við verðum í slæmum málum daginn eftir. Það er því vel þess virði að reyna að snúa hlutunum við. Það er mikilvægt að íhuga ótvíræða kosti þess að fara snemma að sofa, eins og að líða betur og gera meira daginn eftir. Það er líka gagnlegt að skoða hvers vegna

við förum svona seint að sofa og hvenær er of seint fyrir okkur miðað við hvenær við þurfum að vakna. Ef við erum að gera eitthvað sérstaklega skemmtilegt og spennandi svona seint er spurning að skoða hvort við getum frekar dreift því yfir daginn eða tekið lengri tíma í það um helgar? Hvenær best er að fara að sofa er mismunandi eftir einstaklingum en kannanir sýna að 7–8 tíma svefn sé það sem flestir þurfa til að geta starfað með fullri orku daginn eftir. Langvarandi svefnleysi getur breyst í svefnvandamál.

Svefnvandamál og hvernig er hægt að meðhöndla þau? Ef svefnvandamál eru viðvarandi þarf að leita sér aðstoðar fagaðila. Ef einstaklingur telur sig vera að glíma við óeðlilegar eða langvarandi svefntruflanir er nauðsynlegt að leita betur að rót vandans. Hann getur verið margvíslegur: áhyggjur, streita, verkir, aukaverkanir lyfja, kvillar eins og kæfisvefn og fótaóeirð og fleira. Það er eðlilegt að ræða slík einkenni og fá ráðleggingar frá heilbrigðisstarfsfólki. Ýmsar slökunaraðferðir geta bæði hjálpað okkur að sofna á kvöldin og auðveldað okkur að sofna aftur þegar við vöknum á nóttunni.

Ef við látum gremjuna vegna svefnleysis ná yfirhöndinni geta streituhormón fljótt truflað getu okkar til að sofna. Regluleg hreyfing yfir daginn getur bætt svefngæði. Hins vegar ætti að forðast erfiða hreyfingu innan þriggja klukkustunda frá svefni þar sem það getur truflað góðan nætursvefn. Að hreyfa sig reglulega og á svipuðum tíma dags er gott fyrir líkamsklukkuna.

Mynd: Hamza Bounaim


> Bæklingar > Dagatöl > Bækur > Tímarit

Láttu okkur sjá um

ALLT SAMAN! Opnunartímar: Mánudaga til fimmtudaga: 8:00- 16:00 Föstudaga: 8:00- 14:30

FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

Skemmuvegi 4, blá gata | 200 Kópavogi | Sími 540 1800 litlaprent@litlaprent.is | Litlaprent.is


Grafía AD

Settu þig á efsta þrep. • • •

Kjaramál Lífeyrismál Sjúkrasjóður

• • •

Orlofssjóður Fræðslustyrkur Hugbúnaðarstyrkur

RSÍ - RAFIÐNAÐARSAMBAND ÍSLANDS OG GRAFÍA er eitt af aðildarfélögum sambandsins frá 1. október 2019 Rafiðnaðarsamband Íslands er landssamband stéttarfélaga rafiðnaðar fólks. Sambandið er starfsgreinasamband sem í eru allir launþegar sem starfa í rafiðngreinum, hvort sem þeir hafa löggilt sveinspróf eða ekki. Allur félagslegur rekstur er í höndum sambandsins ásamt umsjón eigna, sjóða og gerð kjarasamninga. Kynntu þér réttindi þín og fáðu upplýsingar inn á heimasíðu okkar grafia.is

Stórhöfði 31, 3. hæð | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | grafia@grafia.is | www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Gunnar Karl Jóhannesson by Tækniskólinn - Issuu