Grafísk miðlun
5. tbl. 11. árg.
Vor 2022
Efnisyfirlit
Leiðari
Kynning
5
Ekki bara ein nál og einn lokkur
6
Roller Derby
8
Bergamo
Síðastliðin tvö (og hálft) ár hafa verið bæði krefjandi og lærdómsrík. Ég byrjaði í grunnnámi í janúar 2020 – fyrir Covid og ólétt af mínu fyrsta barni, og útskrifast af sérsviði núna í maí 2022 – eftir Covid og með næstum því tveggja ára barn. Þetta er ágætis mælieining á rússíbanareiðina sem þessi tvö ár eru búin að vera, en ég kem sterkari út úr henni með fullt af nýrri og hagnýtri þekkingu. Það sem stendur upp úr sl. tvö ár var Ítalíuferðin þar sem við heimsóttum þrjár borgir, skóla og fullt af söfnum í Norður-Ítalíu á tveimur vikum. Skemmtilegasta verkefnið var án efa þetta tímarit þar sem ég fékk að skrifa og brjóta um allt það sem mér finnst áhugavert, og svo að fá þann heiður að setja saman Askinn, sameiginlegt tímarit útskriftarnemenda í grafískri miðlun.
12
Ég vona að þið njótið lestursins!
Umbrot og hönnun Gabríella Sif Beck Ritstjórn Gabríella Sif Beck Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light / 55 Roman Myriad Variable Concept Rattani Pappír Digi Finesse Silk 170g Digi Finesse Silk 130g
3
4
GABRÍELLA Ég heiti Gabríella og er 29 ára gömul, fædd á Egilsstöðum og uppalin í Vesturbænum en bý núna í Breiðholtinu með næstum tveggja ára syni mínum og maka.
og ég sökkti mér 13 ára í html og css til að gera síðuna eins kúl og mögulegt var – en fór svo að huga að öðru með tíð og tíma. Það var ekki fyrr en á fullorðinsárum þegar ég byrjaði að æfa íþróttina roller derby að kappi og skráði mig í auglýsinganefnd þar, að ég byrjaði aftur að hanna. Ég var með fullt af hugmyndum en fannst ég ekki hafa alla kunnáttuna sem þurfti til að ná að framkvæma þær eins og ég vildi. Einnig komst ég að því að þetta væri mögulega eitthvað sem ég hefði áhuga á að starfa við. Það var þá sem ég fór að skoða nám í grafískri miðlun og er glöð að ég tók þá ákvörðun, enda hef ég lært helling, kynnst frábæru fólki og m.a. farið í æðislega námsferð til Ítalíu á meðan náminu stóð.
Ég byrjaði að fikta í myndvinnsluforritum þegar ég var 11 ára. Þetta var á tímum bloggsíðnanna folk.is og blog.central þar sem hægt var að hlaða inn eigin banner efst á síðuna. Innan skamms var ég komin í svaka (ólaunaðan) business við að búa til bannera handa öðrum krökkum auk undirskriftarbannera og jólakorta fyrir notendur Gæludýraspjallsins. Á unglingsárunum var ég að sjálfsögðu á samfélagsmiðlinum Myspace þar sem hægt var að forrita útlit síðunnar sjálfur upp að vissu marki
5
EKKI BARA
EIN NÁL OG EINN LOKKUR Viðtal við gatara Diljá Sigurðardóttir er 28 ára kona úr Reykjavík sem finnst gaman að hjólaskauta, krosssauma og ganga á fjöll – en einnig er hún ein af þeim örfáu sem teljast sem viðurkenndir gatarar á Íslandi. Diljá er nýbúin að opna sína eigin götunarstofu á Íslenzku Húðflúrsstofunni.
Hvað kom til að þú ákvaðst að læra götun?
götunin sjálf og síðan reksturinn í kringum hana og það geta verið áskoranir á báðum sviðum. Ég sé líka ennþá um alla stofuna svo ég þarf að gæta jafnvægis þar á milli. Ein mesta áskorunin hjá mér hefur verið að bera virðingu fyrir tímanum mínum og vinnu. Sem sjálfstætt starfandi einstaklingur sé ég sjálf um verðlagningu og jafnvel þó ég hafi alltaf viljað vera sanngjörn fékk ég oft í upphafi samviskubit á að rukka fólk fullt verð fyrir þjónustuna mína. Ég þurfti að minna mig á það að götun er ekki bara ein nál og einn lokkur heldur allur aðbúnaður, tæki og tól, reynslan mín, viðmót og þekking og allt hitt sem við kemur götuninni.
Ég er félagsfræðingur að mennt en eftir að námi lauk hafði ég ekki hugmynd hvað ég vildi starfa við, hvaða hillu ég tilheyrði. Eftir að hafa prófað nokkur störf rakst ég á auglýsingu þar sem uppáhalds tattústofan mín var að leita að manneskju í móttökuna. Ákvað að slá til og varð þar svona „shop mama“, sá um pantanir, kaffið, birgðastöðu, móttökuna, samfélagsmiðlana etc. Ég tók eftir mikilli eftirspurn eftir götun og fannst leiðinlegt að vera sífellt að vísa fólki frá. Stofan var fyrir minn tíma með góðan gatara og einn daginn vaknaði sú hugmynd að hún myndi kenna mér götun. Hver finnst þér vera mesta áskorunin í starfinu?
En hvað er það skemmtilegasta við starfið? Úff, það er svo margt! Eitt það skemmtilegasta við starfið sé að sjá fólk spennt og ánægt með
Mitt starf er ótrúlega fjölþætt, það er auðvitað
6
nýja gatið sitt. Eðli starfsins er slíkt að ég er ekki að gera eitthvað sem fólki finnst þægilegt svo ég geri mitt besta til að láta fólki líða vel í gegnum götunarferlið, það er alltaf gaman þegar það skilar sér í minna stressi hjá einstaklingnum og ánægjulegri reynslu. Mætir þú einhverjum fordómum vegna starfsins? Já og nei. Mörgum finnst það töff. En ég hef líka verið spurð hvort ég sé ekki að eyðileggja líkama fólks, hvort ég gati „virkilega“ þessa og hina líkamsparta, ég hef lent í ýmsum hallærislegum BDSM athugasemdum (t.d. hvort ég hljóti ekki að vera sadisti af því ég sé gatari) og ég fengið til mín karlkyns viðskiptavini (sem betur fer örsjaldan!) sem hafa sýnt starfinu mínu mikla vanvirðingu með því að ýja að því að ég sé að gera eitthvað kynferðislegt við þá þó ég sé bara að gata á þeim eyrað.
Kvár – Hagsmunasamtök kynsegin fólks
Ertu með einhver framtíðarplön varðandi starfsemina? Já, heldur betur! Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan ég byrjaði að gata og ég stolt af því hvert ég er komin, en mig langar sífellt að gera betur með því að auka vöruúrvalið, sækja ráðstefnur og fleira. Ég hef byggt starfsemina upp frá grunni og hef aldrei fengið lán fyrir einu eða neinu. Vöxtur fyrirtækisins er því hægur en stöðugur, mig langar til dæmis að geta boðið viðskiptavinum mínum upp á skartgripi úr ekta gulli en aðrir hlutir hafa forgang sem stendur og hitt kemur bara með tíð og tíma. Íslenzka Húðflúrstofan er staðsett á Ingólfsstræti 3. Opið er í götun hjá Diljá alla virka daga frá 12–18 og á laugardögum eftir pöntunum en hægt er að panta tíma hjá henni á www.icelandtattoo.is. Texti: Gabríella Sif Beck Ljósmyndir: Diljá Sigurðardóttur
JÖFN FRAMTÍÐ FYRIR ÖLL KYN
meðal fyrirlesara verða
Kvár – Hagsmunasamtök kynsegin fólks kvar-samtok
Blær Jörgensen Formaður Kvár
Jón Jónsson Félags- og jafnréttisráðherra
Skráning á www.kvar.is
Lára Dagmarsdóttir Sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu
ÍÞRÓTTIN MENNINGIN SAGAN
8
stýra hvor öðrum. Þá er algengt að nota bak, rass eða brjóstkassa til að blokka andstæðinginn.
Íþróttin roller derby er stunduð út um allan heim og meðal annars á Íslandi. Margir gætu kannast við nafnið úr þáttum eða kvikmyndum, aðrir koma af fjöllum. Er bolti? Kylfa? Línuskautar? Í langflestum deildum er íþróttin spiluð eftir reglum Women’s Flat Track Derby Association (WFTDA) og kunna reglurnar að virðast flóknar í fyrstu, en það þarf ekki nema einn leik til þess að skilja og heillast af þessari spennandi og hörkulegu – en strategísku – íþrótt og öllu samfélaginu í kringum hana.
Blockerar úr báðum liðum þurfa að mynda svokallað pack sem þýðir að þeir mega ekki dreifast of mikið um brautina. Því er ekki hjá því komist að það sé mikil snerting og óreiða, en skipulögð þó. Packið er skilgreint þar sem flestir blockerar eru saman innan 3 metra frá hvorum öðrum. Packið getur þó teygst þannig að blocker má fara 3 metra frá packinu, og sá næsti 3 metra frá honum, og koll af kolli. Ef það verður ekkert pack eftir með þessum hætti eða öðrum kallar dómarinn hins vegar villu á þá sem skemmdu packið.
Íþróttin Roller derby er hröð snertiíþrótt sem spiluð er á hjólaskautum og fer fram á flatri sporöskjulaga braut innanhúss. Fimm eru inn á úr hvoru liði í einu, einn jammer (sókn) og fjórir blockerar (vörn). Jammerinn er með stjörnu á hjálminum og er þannig hægt að greina hann frá öðrum keppendum. Hlutverk hans er að skora stig með því að hringa blockera andstæða liðsins, en fyrir hvern blocker sem hann hringar fæst eitt stig – því fleiri hringir, því fleiri stig. Hlutverk blockeranna er hins vegar að koma í veg fyrir að jammer andstæðingsins nái að hringa sig, en einnig að aðstoða sinn eigin jammer að komast fram úr andstæðingunum. Einn blocker í hvoru liði er með línu á hjálminum sínum og kallast pivot. Hann einn má skipta um hlutverk við jammerinn í miðjum leik.
Packið
Ljósmyndari: Richard Lafortune
Tímastjórnun Snerting
Hver leikur er einn klukkutími að lengd og skiptist niður í tvo 30 mínútna hálfleiki. Hver hálfleikur skiptist svo upp í fjöldann allan af jömmum (e. jams) sem geta að hámarki orðið 2 mínútna löng, en sá jammer sem er fyrstur til þess að komast út úr packinu fær rétt til þess að stjórna því. Þá fær hann stöðuna lead jammer og getur endað jammið þegar hann vill (innan tveggja mínútna) með því að slá höndum á mjaðmir. Þetta getur hann gert til þess að takmarka stigafjölda hins jammersins, en líka til þess að stjórna því að nýtt jam byrji á meðan einhver úr andstæða liðinu situr ennþá í villuboxinu – hafi einhver brotið af sér í fyrra jammi.
Þrátt fyrir að íþróttin hafi orð á sér fyrir mikil hörkulegheit er það þó mýta að það sé leyfilegt að gefa olnbogaskot, fella og jafnvel kýla aðra leikmenn. Hins vegar má gefa svokölluð hits með öxlum, upphandleggjum og lærum – en að gefa hit með fæti fyrir neðan hné eða handlegg fyrir neðan olnboga er ávísun á villu og jafnvel brottrekstur. Algengt er að blockerar úr sama liði myndi nokkurs konar mannlegan vegg á brautinni til þess að koma í veg fyrir að jammer andstæðingsins komist fram úr þeim. Þeir sem eru saman í liði mega nota framhandleggi til að styðja sig við og/eða
9
BÚNAÐUR
Menningin Það er þekkt innan íþróttarinnar að spilarar og jafnvel dómarar velji sér önnur nöfn til að nota á brautinni. Þetta er gert í þeim tilgangi að búa til svokallað „alter-ego“ þar sem það er í lagi að skauta fast á aðra manneskju eða gefa henni harkalegt hit. Þá eru nöfnin oft hnyttin og/eða með tilvísun í dægurmenningu, t.d. Biceptual, Hermione Danger og Scald Eagle. Oft eru númerin líka tilvísun í menningu, sögu eða almennan nördisma, en það er t.a.m. nánast alltaf einn í hverri deild númer 42.
Roller derby íþróttin er spiluð í hjóla skautum – ekki línuskautum, heldur þessum gömlu góðu með fjórum dekkjum og tástoppara að framan. Þar sem íþróttin er frekar harkaleg er einnig nauðsynlegt að vera með hjálm, olnbogahlífar, hnéhlífar og úlnliðs hlífar. Þá er líka skylda að vera með munnvörn, en hún verndar tennur og dempar auk þess höfuðhögg.
Roller derby samfélagið er þekkt fyrir að vera opið og inklúsíft. Mikið af hinsegin fólki, þ.á.m. trans fólki, finnur sig í íþróttinni auk fólks sem hefur ekki fundið sig í öðrum íþróttum af mörgum mismunandi ástæðum. WFTDA er með sterkar siðareglur þar sem kemur skýrt fram að fordómar eru ekki liðnir innan íþróttarinnar. Einnig hefur hreyfingin frá upphafi verið kennd við DIY (do it yourself) og því geta allir átt hlutverk jafnvel þó það sé ekki á skautum. Þrátt fyrir að berjast harkalega á brautinni eru allir vinir í eftirpartíinu og til er stórt samfélag roller derby spilara í heiminum þar sem fólk getur kíkt á æfingu hvar sem er, tekið þátt í leikjum erlendis sem dómarar, brautarteymi eða sjálfboðaliði og jafnvel fengið fría gistingu. Saga roller derby á Íslandi
stofnfundur Hjólaskautafélagsins, sem þá hét Roller Derby Ísland, haldinn í sumarlok árið 2011 en spennan var svo mikil að fyrsta æfing var haldin strax næsta dag.
Saga roller derby á Íslandi hófst þegar Guðný Jónsdóttir kynntist íþróttinni í Bandaríkjunum árið 2009 þar sem hún byrjaði að æfa með Atlanta Roller Girls og varð þar til derby-sjálf hennar, Ice Sickle. Þegar sá fyrir heimför kviknaði sá draumur að taka íþróttina upp hér á Íslandi svo Ice þyrfti ekki að leggja skautana sem hún hafði tekið ástfóstri við á hilluna, enda íþróttin nánast með öllu óþekkt hér á landi á þeim tíma. Kallaði Ice því saman hóp áhugasamra kvenna sem hóf þá vinnu að koma upp íslenskri roller derby deild og var
Starfið fór hægt af stað, enda hvergi hægt að nálgast almennilega skauta og hlífar hér á landi. Ekki var heldur hlaupið að því að finna hér góða æfingaaðstöðu þar sem fullkomið reynsluleysi olli áhyggjum innan íþróttafélaga um áhrif búnaðarins á gólfin. Fyrst um sinn æfðu því sumar liðskonur á línuskautum og flakkaði hópurinn á
10
milli bílakjallara, GoKart hallar og ýmissa misheppilegra sala á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Félagskonur æfðu skautafærni undir leiðsögn félaga sinna erlendis yfir internetið, lásu sér til um reglur og framgang leiksins og sóttu ráðstefnur, æfingabúðir og mót út fyrir landsteinana.
heimsmeistarakeppninni í Englandi árið 2018, þar sem aftur voru spilaðir fjórir leikir en í þetta sinn náðist fyrsti landsliðssigur Íslendinga í roller derby, gegn Kosta Ríka. Viðurkennd íþrótt og eigið húsnæði Árið 2018 varð roller derby loks viðurkennd íþrótt af Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) eftir nokkuð tímafrekt umsóknarferli þar sem íþróttin fékk meðal annars íslenskt nafn, hjólaskautaat. Þar með fékk Hjólaskautafélagið sömuleiðis inngöngu í Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) undir nafninu Hjólaskautafélagið. Síðar sama ár, fékk deildin svokallaða „apprentice“ stöðu innan hinna alþjóðlegu félagasamtaka Women’s Flat Track Derby Association (WFTDA) en fagnaði þeim merka áfanga að vera orðinn fullgildur meðlimur snemma árs 2019.
Ragnarök og Team Iceland Þegar nokkrar reyndar derbykonur sneru aftur að utan árið 2013 má segja að hjólin hafi farið að rúlla af alvöru og þjálfunin orðin töluvert markvissari. Æfingabúðir með þekktum, erlendum gestaþjálfurum urðu fastur liður í vetrarstarfinu og þreytt voru lágmarkshæfnipróf (e. minimum skills) sem gerði skautara keppnisfæra. Árið 2014 var ferðaliðið Ragnarök stofnað og haldið var til Finnlands þar sem fyrstu tveir útileikirnir voru spilaðir og síðar sama ár fyrsti heimaleikurinn gegn gestaliði frá Frakklandi.
Síðla árs 2020 varð svo annar stór draumur að veruleika þegar félagið gerði samning við Reykjavíkurborg um afnot af gömlu verkstæði uppi á Höfða. Þetta var í fyrsta sinn sem félaginu bauðst að vera með sitt eigið húsnæði og hófst þá mikil vinna og fjáröflun til að koma verkstæðinu í stand sem æfinga- og félagshúsnæði. Þetta tókst og úr varð Hjólaskautahöllin á Sævarhöfða 33 þar sem félagið æfir og heldur viðburði, m.a. opið skautagólf fyrir almenning á laugardögum.
Árin sem fylgdu safnaði liðið fleiri heimaleikjum í reynslubankann og haustið 2016 var stofnað landslið Íslands fyrir Evrópumótið í Belgíu. Liðið samanstóð aðallega af liðskonum Ragnaraka, en einnig nokkrum sem æfa með erlendum liðum úti í heimi. Á Evrópumótinu voru spilaðir fjórir leikir á einni helgi og kom liðið heim með ómetanlega reynslu og metnað fyrir komandi tímum. Heimaleikir urðu í kjölfarið tíðari, byrjað var að halda þríhöfðamót og landsliðið tók svo þátt í
NÖFN OG NÚMER ÚR ROLLER DERBY Á ÍSLANDI Nafn
Númer
Staða
Veni Vidi Vicious
47
Jammer
LOUD Mary
194 dB
Blocker
Ice Sickle
32°
Pivot
Peaches n’ Scream
666
Blocker
Binary Demon
1101
Blocker
Grim Creeper
383
Blocker / Varafyrirliði
Texti af www.rollerderby.is eftir Gabríellu Sif Beck og Lenu M. Aradóttur.
Ljósmyndir: Joe Mac, Richard Lafortune og Gabríella Sif Beck
11
Borgin Bergamo er staðsett einungis um 40 kílómetra norður af stórborginni Mílanó og 30 kílómetra frá landamærum Sviss við rætur ítölsku Alpanna. Íbúafjöldi borgarinnar er á par við Reykjavík eða um 120.000 manns, og er hún laus við fjöldaferðamennsku á borð við nágrannaborgirnar Mílanó og Flórens þannig að íbúarnir virðast mun tilbúnari og opnari
fyrir að taka á móti gestum. Þrátt fyrir nálægð borgarinnar við Mílanó er Bergamo lítt þekkt og oft horft framhjá henni þegar ferðalög til Ítalíu eru skipulögð. Beint flug er frá Keflavík til Mílanó og ferðin þaðan tekur einungis tæpan klukkutíma með lest og kostar lítið. Hér eru nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að gera skoða í og í kringum Bergamo yfir eina helgi.
Città alta – efri bærinn
Miðbærinn
Bergamo skiptist í neðri bæ og efri bæ sem bygg ist á sjö hæðum. Efri bærinn kallast Città alta á ítölsku og er elsti hluti borgarinnar. Í kringum bæinn er varnarveggur frá miðöldum sem nú er á heimsminjaskrá UNESCO. Í efri bænum má m.a. finna dómkirkju, upprunalega verslunargötu þar sem haldið hefur verið í miðaldasjarmann (t.d. með því að leyfa aðeins handgerð útskorin skilti) auk fjölda frábærra veitingastaða. Hægt er að komast þangað með því að labba upp langan þröngan steinstiga, með strætó eða með kláf. Skemmtilegast er að taka kláfinn – Funicolare – sem var byggður 1953 og er þarna enn í sinni upprunalegu mynd. Frábært útsýni er frá endum veggjarins og yfir alla borgina, nálæg fjöll og á góðum degi má sjá alla leiðina til Mílanó. Þar er tilvalið að setjast niður um kvöld, njóta útsýnisins og horfa á sólina setjast.
Miðbær Bergamo er í neðri bænum (Città bassa) þar sem flestir íbúar borgarinnar búa. Þar er að finna alla almenna þjónustu en líka aðal verslunargötu bæjarins. Hún er göngugata og inniheldur allar helstu búðir eins og Zöru, Mango, Sephora og fleira fyrir þá sem vilja versla. Í sömu götu er að finna ráðhús Bergamo og mörg hugguleg kaffihús þar sem hægt er að sitja úti og fá sér cappucchino og croissant, eða espresso og bacio sem er lítil krúttleg kaka og þýðir koss. Söfn Á rigningardegi væri hægt að heimsækja myndlista safnið Accademia Carrara þar sem finna má ítalska myndlist frá 15. öld og fram á 19. öld. Þar eru t.a.m. verk eftir nöfn eins og Botticelli, Rafael og Bellini. Safnið er ekki of stórt en gefur góða yfirsýn yfir ítalska myndlist frá þessum tíma. Fyrir þá sem hafa fengið sinn málverkaskammt
12
af Maríu Mey og Jesú þá er náttúruvísindasafn í Città alta – Museo di Scienze Naturali „E. Caffi“. Safnið hentar börnum jafnt sem fullorðnum og hægt er að sjá ýmis steingervinga og bein sem fundist hafa á svæðinu eins og mammúta- og risaeðlubein.
Á að fara að byggja?
Dagsferð til Lago d’Iseo Stöðuvatnið Lago d’Iseo er nefnt eftir bænum Iseo sem það stendur við en bærinn tilheyrir nágrannabæ Bergamo, Brescia. Vatnið er með þeim stærstu á Ítalíu og í því má finna stærstu eyju í stöðuvatni í Evrópu, Monte Isola sem gæti gróflega þýðst sem Fjallaeyja. Hægt er taka litla ferju frá Iseo yfir í eyjuna og labba þar um eða leigja hjól. Litlir bæir með þröngum öngstrætum eru allt umhverfis eyjuna og efst upp á toppi fjallsins er kastali. Andrúmsloftið er rólegt og nánast ekkert pláss fyrir bíla þannig að íbúarnir notast nær einungis við vespur. Í góðu veðri er huggulegt að sitja úti á veitingastað við vatnið, fylgjast með smábátunum, horfa á bæinn og fjöllin hinum megin við vatnið og borða lókal mat með góðu rauðvíni. Þá er lífið svo sannarlega ljúft. Freyðivínsmökkun Rétt fyrir utan Bergamo má finna höfuðstöðvar og vínekrur ítalska fjölskyldufyrirtækisins Ferghettina sem framleiðir ítölsku kampavínstegundina Franciacorta. Franciacorta dregur nafn sitt af landsvæðinu sem vínberin eru ræktuð á í kringum Lago d’Iseo, en þar má finna yfir 200 hektara af vín-
Strik býður upp á » Faglega ráðgjöf » Hönnun nýbygginga » Innanhúshönnun » Nýja hönnun eldri bygginga » Landslagsarkítektúr og margt fleira.
pantone Pantone 7490 U Pantone 7537 U
Komdu í heimsókn
Geirsgötu 10 101 Reykjavík w w w. s t r i k a r k . i s @strikarkitektastofa
CMYK Græni C: 58% M:24% Y:66% K:7% Grái C: 34% M: 22% Y: 26% K:4%
Borða þar sem heimamenn borða
ekrum þar sem aðallega eru ræktaðar tegundirnar Chardonnay og Pinot Noir. Ferghettina eru þekkt fyrir kassalaga flöskubotna sem ekki eru einungis gerðir upp á flott útlit heldur hafa líka með framleiðsluferli vínsins að gera. Í vínsmökkuninni er farið yfir allt framleiðsluferli og sýnt hvernig það á sér stað. Í lokin er svo sest niður og boðið upp á smökkun mismunandi freyðivína með kexi og ostum.
Langbest og ódýrast er að borða á stöðum þar sem Ítalir borða sjálfir. Það er fullt af veitingastöðum í Città alta, en langflestir eru miklir túristastaðir. Einn vinsæll staður meðal heimamanna í Città alta heitir Il Circolino og býður m.a. upp á hefðbundinn „Bergamesco“ mat, en það er m.a. polenta og pasta sem kallast casoncelli alla Bergamasca. Pastað er fyllt með osti og beikoni eða salami og með smjör- og salvíusósu. Einnig er hægt að fá svipaðan pastarétt grænmetisútgáfu, þá fylltan með osti, sem heitir scarpinocc. Í neðri bænum er staður sem heitir Da Giuliana og býður einnig upp á hefðbundinn mat frá Bergamo. Staðurinn er það „lókal“ að matseðillinn er handskrifaður á ítölsku og því gott að hafa einhvern sem getur þýtt – eða þá bara taka sénsinn. Í hádeginu kosta tveir réttir á mann og rauðvín 12 evrur. Geri aðrir betur.
Fótboltaleikur Heimaliðið í Bergamo er hið fræga Atalanta sem keppir í A-deild Ítalíu, en liðið keppti einnig í Meistaradeild Evrópu í fyrra og gekk nokkuð vel. Íbúarnir eru stoltir af liðinu sínu og hanga stuðningsmerki Atalanta inni á hinum ýmsu börum og veitingastöðum bæjarins. Þeir eru með flottan heimavöll og tilvalið væri að skella sér á leik þegar upp á það býðst, klæða sig í blátt og svart og taka þátt í fagnaðarlátunum.
Lago d’Iseo
Víntunnur hjá Ferghettina
Pizzur í Città Alta
Texti og ljósmyndir: Gabríella Sif Beck
14
RVINNSLA
RENTUN
VIÐ KOMUM HUGMYNDINNI Á BLAÐ Á UMHVERFISVÆNAN HÁTT
FORVINNSLA FORVINNSLA
PRENTUN
PRENTUN PRENTUN
FRÁGANGUR
FRÁGANGUR
Fyrir okkur er ekkert verkefni of stórt – Við veitum alhliða þjónustu þegar kemur að prenti. FRÁGANGUR
Prentsmiðjan okkar hefur verið starfandi í 55 ár. Það sem byrjaði með trukkprentvél í sumarbústað er nú í 2.000 fm húsnæði og státar í dag af einum fullkomnasta og fjölbreyttasta tækjakosti allra prentsmiðja á landinu. Við erum stolt af því að vera Svansvottuð prentsmiðja og höfum umhverfisvernd ávallt að leiðarljósi við prentun og frágang. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er.
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ SKOÐUM MÁLIÐ MEÐ ÞÉR
FRÁGANGUR
SKEMMUVEGI 4, BLÁ GATA | 200 KÓPAVOGI SÍMI 540 1800 | OPIÐ VIRKA DAGA 8:00–16:00 LITLAPRENT@LITLAPRENT.IS
WWW.LITLAPRENT.IS
VIÐ STYÐJUM ÞIG Þú þarft ekki að stoppa hér! Vissir þú að auk þess að standa vörð um þinn rétt á vinnumarkaði í prentog miðlunargreinum, höldum við úti frábærum fræðslusjóði, veitum styrki til starfstengds náms og ferða á fagtengdar sýningar? Atvinnugreinin okkar er í sífelldri þróun og möguleikarnir næstum endalausir. Vertu með og opnaðu fyrir þann möguleika að bæta við þig þekkingu annað hvort hér heima eða erlendis.
Kynntu þér málið á
www.grafia.is Grafía er stéttarfélag sérsniðið fyrir prent- og miðlunargreinar. Við höldum utan um réttindi þín á vinnu markaði, kjarasamninga, lífeyrismál, endur menntun, lögfræðiaðstoð og orlofsmál. Grafía er hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands, RAFÍS.
Við erum hér fyrir þig –
Þú getur gerst félagi í dag. Grafía
Stórhöfði 31, 3. hæð
110 Reykjavík
Sími: 552 8755
grafia@grafia.is