Skip to main content

Embla - Eydís Ómarsdóttir

Page 1

Grafísk miðlun

Haust 2021

3. tlb. 10. árg.


Símenntun frá fyrSta degi... Prent- og miðlunar greinar eru skapandi og þróast hratt!

Framsækni

Til að ná árangri

skiptir máli að bæta við þekkingu frá Fyrsta degi.

Virðing Fjarnám er í boði á öllum námskeiðum þar sem verklegrar kennslu er ekki krafist og boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval veFnámskeiða sem styrkja Fólk í starfi.

Fagmennska

Námskeið og fræðsla skráðu þig NúNa! www.idaN.is Vatnagarðar 20

104 Reykjavík

idan@idan.is

S: 590-6400


Efnisyfirlit 4–5

6–9 Götulist

Kynning

Vidtal vid Ásu 10–13

Vidtal vid Krusher 14

Leiðari

Ritstjórn Eydís Hjaltalín Ómarsdóttir

Prentun Upplýsingartækni­ skólinn

Þetta gat ég og þetta hafðist, útkskrifuð og gerði mitt fyrsta tímarit. Hér ætla ég að fjalla um götulist í Reykjavík ásamt viðtali við Ásu hljóðheilara og endum á viðtali við listamanninn og graffarann Krusher.

Forsíða Eydís Hjaltalín Ómarsdóttir

Letur Univers 45 light, Univers 55 Roman, Univers 65 Bold

Efnið er valið út frá áhugamálum um list og hljóðheilun. Vonandi mun ykkur finnast upplifunin að lesa tímaritið fræðandi og jafnvel kveiki á smá forvitni með vott af innblæstri. Ég vil þakka stuðninginn frá kennurum þá sérstaklega Svanhvíti, Helgu einnig yndislegu foreldrum mínum, væri ekki stödd að gera þetta verkefni og útskrifast án halds og trausts frá ykkur. Takk fyrir ykkur. Afar þakklát fyrir fólkið í mínu lífi, þið vitið hver þið eruð.

Útgefandi Tækniskólinn Nemamynd Þóra Margrét


Eydís Hjaltalín


Eydís Hjaltalín Ómarsdóttir heiti ég, fædd 8 júní 1991 sem gerir mig þrítuga á þessu ári fyrir þá einstaklinga sem rötuðu hingað inná mitt fyrsta tímarit, verið kærlega velkomin! Hef alla tíð búið í Hafnarfirði, fyrir utan eitt ár í Ox­ ford, Englandi þegar ég var 16 ára og flutti þangað með foreldrum mínum sem rötuðu þangað í nám og master. Er ættuð frá Keflavík og á þar mjög stóra fjölskyldu. Sem mig finnst ég afar heppin og rík að eiga að. Hvatvísi, létt ringulreið, lítill sem enginn filter en að mestu leyti ljúf eru orð sem ég myndi nota til að lýsa mér sjálfri ásamt að ég er skapstór, hress og listræn. Áhugamál mín eru sem dæmi teikna, dansa, hugsa um plönturnar mínar og upplifa, læra nýja hluti og vera með kisanum mínum honum Vin. Á það til að safna hlutum og á marga hluti sem hafa til­ finningalegt gildi fyrir mig. Svosem steina, gömul bréf, trédrumba, plöntur og eitt skiptið á göngu með móður minni fann ég hryggjalið úr hval og stóðst ekki mótið að skilja gripinn eftir svo ég tók hann með og er hann til sýnis á pallinum fyrir

utan bústað foreldra minna. Þetta lýsir hvatvísinni og ringulreiðinni sem býr innra með mér sem mig er samt búið að takast að beisla niður og nota á listrænan og skapandi hátt. Eftir langt ferðalag fer nú fer nú loks að líða að lokum og útskrift nálgast auðfluga. Spennandi og krefjandi tímar er búið að vera þemað seinustu mánuði. Mín námsleið byrjaði 2012 þar sem ég fór í áhugasviðgreiningu og eina sem kom útur því var grafísk miðlun, svo eðlilega ákvað ég að gefa því tækifæri. Skráði mig í nám og fann mig vel í þessu námi. En lífið tók yfir og mig var ekki ætlað að útskrifast strax. Fór að vinna, síðan annað nám hjá Mímir og fór svolítið að leita af sjálfri mér. Eftir góða og langa sjálfskoðun var ég tilbúin að ljúka náminu 2019. Sagði öruggi skrifstofustarfi og hóf nám að nýju. Fylltist strax af innblæstri og fann hvað ég hafi saknað þess að vera í skóla. Eftir þetta nám tekur við jafnvel áframhaldandi nám í ljósmyndaranum eða prentsmiðnum, kannski fer ég út fyrir land­ steinanna. Við skulum sjá hvað setur.


Sýn inní heim götulistar

Það sem götulist gerir fyrir umhverfið og

t

í sk

a

g ug

menninguna er ómetanlegt, en það virðist gleymast hvað það gefur borginni og íbúum hennar mikið fallegt og örvandi til að upplifa í daglegu lífi. Afhverju geta ekki fleiri tómlegir gráir veggir verið skreyttir með fallegri list. Síðan gefur þetta tækifæri fyrir listamenn að fá að nota svona stóran striga undir verkið sitt. Meistaraverk verða til, nýjar og ímyndunaraflið fær að fara sýnar eigin leiðir og skapa. Graffití og götulist er tiltölulega ungt listform sem spratt upp út frá unglingamenningu í Bandaríkjunum. Tjáningarform þetta hefur ávallt verið litið hornauga. Ekki er langt síðan farið var að flokka það sem listgrein og menningarlegt verðmæti.

y Re

ur

ík

av

j

k

Texti eftir Eydísi Hjaltalín

Saga götulistar byggist að miklu leyti á persónulegum ljósmyndasöfnum sem listamennirnir hafa tekið af verkunum sínum. Ef ekki væri fyrir þessar myndir hefði þekkingin glatast, enda vara verk af þessu tagi ekki lengi. Þau eru annaðhvort eru þau hreinsuð í burtu eða það er málað yfir þau. Á síðastliðnum árum hafa vinsældir graffití og götulistar aukist gífurlega meðal almennings, en verk margra götulistamanna prýða nú veggi í galleríum og á listsöfnum, þau seljast á mikið fé á uppboðum. Þrátt fyrir þessi góðu viðbrögð má enn heyra neikvæðar raddir sem telja þetta listform frekar flokkast undir skemmdarverk en listaverk. Þó svo að listgrein þessi hafi að mestu leiti falist í því að mála myndi á veggi með úðabrúsum, sem flokkast undir


á Íslandi og USA skemmdarverk, eru þeir til sem beita öðrum, mun umhverfisvænni leiðum við gerð svipaðra verka. Það sem er ólíkt með þessari gerð verka er að þau vara ekki að eilífu en geta haft sömu sjónrænu áhrifin og hefðbundin götulist

Veggjakrotlist er þegar texti og myndir eru teiknaðir eða úðamálaðir á veggi og fleti, venju-

lega í þéttbýli, opinberum stöðum og venjulega án leyfis. Hugmyndin um að teikna orð og myndir á veggi er ekki nútímaleg og má rekja til Forn-Grikklands og Rómaveldis. En graffití listin eins og við þekkjum hana fæddist í New York á áttunda áratugnum, þegar fólk byrjaði að nota úðamálningu til að skilja eftir einstaka merki


Graffití sitt á opinberu rými hvers konar. Veggjakrot hefur margar gerðir, allt frá stílfærðu grafísku myndmáli sem kallast villtur stíll til djarflega fagurfræðilegra dulmáls, almennt þekktur sem merki og einstök fyrir hvern listamann.

Stíll, einkenni og takmarkanir Götulist og graffití eru tvö hugtök sem haldast oft í hendur. Bæði listformin gerast á opinberum vettvangi. Hins vegar er götulist, sem flokkur listrænnar framleiðslu, miklu víðtækara auðkenni með tilliti til skorts á einkennandi takmörkunum á stíl og miðli. Til samanburðar er graffití-list samtímans frekar þröng í auðkenningu sinni, miðast við hugmyndina um að merkja og leggja áherslu á textabyggða fagurfræði. Götulist nær á sama tíma til margs konar miðla, allt frá stensils til myndbandsvörpunar. Þótt það sé nokkuð takmarkað hvað varðar flokkun, er nútímalegt graffití búið til í miklu úrvali stíla og tækni. Aðal graffitíformið er merkið. Merki, í einföldu máli, eru nöfn einstakra listamanna sem úðamálaðir eða stensilaðir á opinbera fleti á mjög stílfærðan hátt. Tengt merkjum og merkingum er Throw-Up, vandað merki sem venjulega er með meira litafbrigði og flókna hönnun. Þar sem merkingar eru oftast framkvæmdar á eignum sem ekki eru í eigu listamannsins er það stundum talið skemmdarverk. Hins vegar er listin að taka upp pláss sem er tæknilega „ótakmörkuð“ leið til að kanna hugtök um stigveldi, eignarhald og skapandi frelsi. Það kemur því ekki á óvart að graffití í samtímanum er oftast tengt réttindalausum svörtum borgarbúum Ameríku.

Veggjakrot í Bandaríkjunum Samtíma graffití hófst, að því er virðist, í Fíladelfíu í dögun sjöunda áratugarins. Sagnfræðingar nefna oft dauða hins virta texti tekinn bandaríska frá http://hdl.handle.net/1946/1179og djasssaxófónleikara myndir ogfrátónskálds safni google.


Charlie Parker sem hvata að útbreiðslu nútíma graffití er bandaríski Parker, kallaður „Yardbird“ eða „Bird“ lést árið 1955. Sama ár byrjaði graffití að birtast í New York. York-borg sem ber orðin „Bird Lives“. Þessi þróun er talin fyrsta endur­ tekningin á skipulögðu afdráttarlausu graffití í New York. Það var hins vegar ekki á annan áratug sem graffití byrjaði að blómstra á götum NYC Um 1970–71 færðist miðstöð graffití-menningar frá Fíladelfíu til New York borgar. Í aðallega svört­ um hverfum eins og Washington Heights, tóku graffití listamenn að skapa sér nafn og byggja upp listamannahóp. Listamenn eins og TAKI 183 og Tracy 168 fóru að öðlast frægð fyrir tíðar ólöglegar merkingar. Með því að nota merkingarsamkomu­ lag þar sem nafnorð þeirra sameinaði götuheiti sitt við gælunafn sitt, „sprengdu“ þessir listamenn neðanjarðarlestir með merki sínu og létu lestina dreifa verkum sínum um borgina. Á áttunda ára­ tugnum var sviðsmynd New York borgar drottnuð af goðsagnakenndri áhöfn með yfir 500 meðlim­ um sem innihéldu nöfn eins og Blade, Cope 2, T Kid 170, Cap, Juice 177 og Dan Plasma.

Götulist eftir bæjarfélögum HFJ / GBR

RVK / KÓP

BRH / GRV

7

26

17

3

10

9

Texti frá https://blog.singulart.com/en/2018/08/09/graffiti/ og myndi frá google

Á Íslandi

HEFURU HEYRT þETTA? frá árunum

1966

til

1987

var út-

sending sjónvarps bönnuð alla fimmtudaga til að hvetja fólk að fara út og blanda geði við fólkið.


Viðtal við Krushr

Afhverju valdi ég viðtal við Krushr? Hann er skapandi, listrænn og gull af manni. Vinir, fyrrum sambýlingar Fullkominn morgunn fyrir Krushr? Að vakna með brúsa í hendinni... Hvenær byrjaðiru að graffa? Árið 2003 byrjaði ég að graffa.

Zone Out 2017

Hvað kveikti áhugann að byrja graffa? Það voru Suðurbæjarlaugs undirgöngin í hfj, ég labbaði alltaf í gegnum þau þegar ég var yngri og elskaði veggina þar... Litríkt og geggjað. Mikið graff mikið gaman. Þar voru graffarar sem kölluðu sig Kyte og Crek ..bara svona til að segja eitthvað. En svo var ég líka spurður hvort ég vildi ekki byrja að graffa? Haa hvað er það? Svona sem þú spreyjar à veggi og þá var ekkert aftur snúið. Byrjaði að graffa án þess að vita nákvæmlega hvað það var. Átt þú þitt svæði? Uu nei reyndar ekki en ég er langmest í 220 Hafnarfirði. Ætli ég eigi ekki bara HFJ... Hvað graffaru mest?

Skull Kitty 2021

Kisur, og taggið mitt Krushr en ég graffa líka hauskúpur, teiknimyndafígúrur og krúið mitt NFC (no fukcing clue) og svo bara það sem mér dettur í hug. Telur þú vera lækningamátt í götulist? Já heldur betur ,mér líður allavega alltaf fáránlega vel þegar ég sé flotta götulist, en svo líður mér ennþá betur ef set upp sjálfur einhverja flotta götulist. Mjög góð tilfinning!! Hver er uppáhalds listamaðurinn þinn? Ceser87. Áttu drauma um að graffa byggingu sem er erfitt að nálgast? Nei reyndar ekki en bara einhverja stóra byggingu, stóran vegg. En það væri samt gaman að graffa Perluna... Texti eftir Eydísi h. og myndir eru fengnar úr safni Krushr.

Daði Freyr 2021


Viðtal við Ásu markþjálfa og hljóðheilara

Afhverju valdi ég Ásu í viðtal?

Ég tók viðtal við Ásu því mér fannst hún svo áhugaverð, með rafmagnaða orku og aðdráttar­ afl. Ég hitti hana fyrst þegar ég fór með móður minni á örnámskeiðskvöld hjá Hlín og Sálarlist, en vinkonurnar Ása og Kristín Berta deila rými á 2. hæð í Firði þar sem fyrirtæki þeirra beggja fá að blómstra. Ása með Hlín sem heldur utan um markþjálfun og hljóðheilun og Kristín Berta með Sálarlist (salarlist.is) sem heldur utan um meðferðarvinnu og listsköpun. Þetta kvöld hét Innsæismandala og gongslökun. Ótrúlega falleg stund sem samanstóð af góðmennum konuhóp sem sat í hring og deildi bæði hugsunum og til­ finningum varðandi innsæið. Málað var mandölu í flæði út frá ákveðinni aðferð sem Kristín Berta leiddi og endað síðan í gongslökun sem Ása leiddi. Falleg, gefandi og endurnærandi upplif­ un, en það var út frá þess­ um atburði sem mig langaði að tala við hana, fá viðtal í leiðinni og deila hugsanlega með ykkur smá göldrum. Þetta viðtal er sagt í fyrstu persónu eins og þið séuð að hlusta á Ásu tala við ykkur. Hver er Áshildur Hlín? Síðan ég varð móðir hef ég svolítið skilgreint mig þannig, sem móðir eða mamma, þó svo ég gæti alveg skilgreint mig á annan hátt og geri auðvitað að parti til eftir aðstæðum hverju sinni. Móðurhlut­ verkið hefur bæði verið svo stórt hlutverk í mínu lífi síðustu 16 árin sem og ríkur þáttur í mínu eðli ef svo má segja, að ég tengi einfaldlega mjög sterkt við þetta hlutverk. Ég er fjögurra barna móðir og eiginkona, og segi stundum að ég beri því sjálfkrafa allskyns fleiri titla og verkefni á mínum herðum eins og aðrir foreldrar: Skutla, laga, græja, gera, plástra, hlusta, elda, þrífa osfrv. Þess fyrir utan er ég dóttir, systir og vinkona, menntuð sem

grunnskólakennari, alþjóðlega vottaður markþjálfi, með diplómu á mastersstigi í jákvæðri sálfræði og hef að auki ýmist annað nám héðan og þaðan uppi í erminni. Í grunninn má líka segja að ég sé sál sem bý yfir afar ríkri frelsis- og sjálfstæðisþörf, komin hingað til að stúdera sjálfsþekkingu og vellíðan ofan í kjölinn og vil miðla af mér áfram í þeim efnum. Hvernig er fullkominn morgunn fyrir Áshildi? Frábær spurning, ég held að ég hafi nefninlega frekar einfaldar þarfir í þessu samhengi. Það sem kom fyrst upp í hugann hljómar kannski pínu óspennandi, en er það samt ekki að mínu mati. Það er bara þetta einfalda í lífinu sem er ekki alltaf svo einfalt samt: Að vakna endur­ nærð eftir 8 tíma svefn, stíga fram múr rúminu niður á nýskúrað gólf, koma fram og það er enginn þvottur í þvottakörfunni, allt er á sínum stað. Ég fæ mér glænýtt, ristað súrdeigsbrauð og á notalega stund með tebollanum mínum yfir blaðalestri. Fer jafnvel út í heitapott og hugleiði í smástund fyrir úti­ morgunsturtuna á brakandi ferskum og heið­ skírum morgni – auðvitað er blár himinn og sól á mínum fullkomna morgni. Þetta væri æðisleg byrjun. Eiga svo kannski 1–2 frábær einkasamtöl í markþjálfun fram að hádegi. Þá væri ég mjög góð! Hvað er Hlín? Það er fyrirtæki sem ég stofnaði fyrst utan um markþjálfunina hjá mér, en ég lærði markþjálfun fyrir 6 árum síðan og langaði að búa til einhvern „front“ á þá starfsemi hjá mér. Ég ákvað að nota millinafnið mitt sem er Hlín. Bæði af því það er lítið notað, ég á þetta langa nafn Áshildur Hlín en er yfirleitt bara kölluð Ása, og líka af því að mér þykir vænt um það og vil leyfa því að vera stærri partur af lífi mínu. Vinkona mín bjó svo til lógóið, Mynd: af Áshildi Hlín


Hefur hljóðheilun lækningarmátt Miðað við allt sem ég hef bæði heyrt og lært í minni vinnu á því sviði, sérstaklega með gongin, þá er vel hægt að fullyrða svo. Til mín hefur komið kona sem var skyndilega laus við 10 ára krónískan verk eftir gongslökun, maður sem þjáðist af Park­ inson veiki kom furðu lostinn og spyr hvað þetta hafi nú verið, réttir fram útrétta kyrra hendi og vill vita meira. Fyrrverandi hermaðurinn sem sagðist alls ekki vera andlega þenkjandi en hvíslaði því að mér í óspurðum fréttum að hann hafi séð engla og fundið dásamlegan frið í hjarta. Konan sem sagðist loksins ná að anda djúpt því eitthvað hafi náð að smella í lungunum á henni, konunni sem leið eins og hún hafi verið skoluð að innan, konan sem horfðist í augu við og tókst á við djúpan og gamlan tilfinn­ ingasársauka sem birtist í gongslökun. Maðurinn sem hefur rannsakað hjartað á al­ þjóðavettvangi í fleiri áratugi og segist enginn nýgræðingur í þessum efnum, en tilkynnti mér að gongið hafi framkallað eitthvað stórfenglegt innra með honum sem hann hafi ekki upplifað áður. Maðurinn sem sagðist hafa upplifað svo sterka vellíðanartilfinningu að hún hlyti að komast nálægt því að nefnast alsæla. Konan sem tengdi við látna dóttur sína og fann dýrmætan frið í hjarta, konan sem öðlaðist hugarfrið um stund sem hún hafði aldrei upplifað áður. Þetta eru bara nokkur dæmi um það sem ég hef sjálf orðið vitni að. Stundum eru áhrifin skammvinn, endast aðeins um ákveðinn tíma en eru með áhrifum sínum búin að gefa dýrmæt fyrirheit um að hægt sé að hafa áhrif á eigin líðan og fá því breytt sem við viljum fá breytt. Ég tek það fram að ég hef líka heyrt frásagnir af erfiðum hlutum og vanlíðan sem mér þótti erfitt að hlusta á til að byrja með, viljandi helst aðeins kalla fram það góða og fallega. En lífinu er nú þannig háttað að stundum þarf að klífa erfið fjöll á leið að göfugum. Ég er orðin mun slakari hvað þetta varðar og bið fólk þess vegna um að mæta með opinn

huga og smá forvitni í farteskinu gagnvart því sem birtist þeim í tímum. Ég er ekki að gefa mig út fyrir lækningar, ég hef hvorki til þess menntun né réttindi. En þegar maður hefur heyrt hundruðir frásagna af allskyns ólikum upplifunum í gegnum slökun og hljóð­ heilun fara efasemdaraddirnar að víkja í huga manns fyrir einhverju öðru, ég held við getum kallað það sem í staðinn kemur von. Og vonin er svo ótrúlega dýrmæt. Eitthvað er augljóslega að gerast og það er bara engin leið að neita því. Mað­ ur getur einfaldlega ekki annað en trúað þessu fólki og auðvitað er þetta ekki heldur neitt nýtt á nálinni. Við erum ein­ faldlega að vinna með tíðni og orku. Hljóðheilun hefur ver­ ið notuð á einn eða annan veg í gegnum aldirnar til að losa um orku sem hefur staðnað á einhverj­ um stað í líkamskerfinu okkar. Svo stutta svarið er: Já, en ég ætla ekki að fara út í lífeðlisfræði­ legar útskýringar á því þó ég eigi þær nokkrar til og fólk getur vel lesið sér til um. Mér finnst að þetta sé eitthvað sem fólk verður að vilja prófa að upplifa sjálft. Síðast en ekki síst er líka eitt lykilatriði í þessu samhengi, en ég myndi segja að hljóðheilun ein og sér hefði kannski ekkert rosalega sterkan lækningamátt ef ekki kæmi til ásetningur eða vilji fólks. Fólk tekur þátt í að skapa áhrifin með því að beita eigin hugsun og tilfinningum í þessu samhengi. Hljóðheilun er þannig samsköpun, hún er samspil viðtakanda, hljóðfæra og þess sem spilar. Ég hef séð mjög sterk áhrif birtast með einbeittri sjálfsvinnu í forgrunn. Hvernig hefur hljóðheilun breytt þínu lífi? Já, það er góð spurning. Þetta er ekki sagan þar sem ég varð sjálf fyrir miklum áhrifum og leiðist þannig inn í þessa vinnu. Stundum á mað­ ur þannig sögur, eitthvað gerist fyrir mann sem breytir lífi manns til batnaðar og maður vill miðla áfram. Markþjálfunin er svolítið þannig fyrir mig, Mynd: Gongin hennar Ásu


hún hefur breytt svo miklu fyrir mig persónulega að ég vil gjarnan miðla henni áfram. Hljóðheilunin togar í mig á annan hátt. Hún er einhvern veginn þannig að gongið hálfpartinn kallaði á mig, það er bara svo ótrúlega fallegt og með sterka og dularfulla nærveru. Mig langaði að eignast gong og ég vildi spila á það, en þurfti alveg að fara í gegnum spurningar eins og: má maður bara kaupa sér gong sí svona? Þarf ég ekki að vera jógi til margra ára og fá eitthvað vottorð frá einhverjum um að mega spila á þetta magnaða hljóðfæri? Þannig er það nú víst ekki þó ég telji mikilvægt að læra ákveðin undirstöðuatriði í tengslum við nálgun á gongið, ætli maður sér að nota það í tengslum við vinnu með fólki. En svo fór að einn daginn var hljóðfærið dularfulla komið í hús og ekkert annað í stöðunni en að hætta að dást að því úr fjarlægð og byrja að læra á það. Það hjálpar mér að hafa bakgrunn úr tónlist og því að hafa lært svæðanudd, en talað er um að líkaminn sé kortlagður á gonginu svo við spilun er maður vissulega að spila á hljóðfæri en einnig líkamann og orkusvið hans. Það sem hljóðheilun hefur kannski gert mest gert fyrir mig er að hljóðfær­ in eru nú ákveðin verkfæri sem ég nota til að vinna með fólki og mér finnst mjög gaman að vinna með þessi fallegu verkfæri. Hef meira að segja ferðast með þau til fimm landa og spilað fyrir fólk þar. Þau eru búin að breyta lífi mínu á þann hátt að ég er farin að vinna við þetta. Eins og áður sagði eru áhrifin sem ég hef heyrt fólk segja frá svo mögnuð og það er í raun vegna frásagna fólks sem ég held áfram, en ég er alveg efarsemdarmanneskja líka að parti til eins og svo margir og hef þurft að heyra margar frásagnir til að sannfærast um ákveðna hluti. Frá fólki finn ég drifkraftinn fyrir þessari vinnu. Geymir gongið galdra? Mér finnst þetta geggjuð spurning! GGG – geym­ ir gongið galdra? Gaman að svara henni vegna þess að þá get ég aðeins talað um galdra og töfra, en fyrir mér er nauðsynlegt að trúa á smá mystík í heiminum. Að hafa vott af göldrum eða töfrum í lífinu, eitthvað sem ekki er alveg búið að útskýra í þaula – ennþá. Mér finnst það gefa

lífinu ákveðið gildi en á hinn bóginn er ég líka raungreinakennari í grunninn og veit að allt sem við köllum töfra eða galdra er bara annaðhvort falin eða óútskýrð eðlis- og efnafræði ef við rýn­ um niður í mólikúl og skammtafræði. Mér finnst bara gaman að hugsa um hlutina svona. Partur af mér hefur þörf fyrir að útskýra eitthvað í þessu samhengi, sem og ég geri, en annar partur af mér vill bara halda mystíkinni því það er svo skemmti­ legt að láta hluti koma sér á óvart. Það viðheldur líka okkar barnslegu trú að eitthvað spennandi geti gerst ef við trúum því nógu heitt, vitandi að það er hægt að útskýra þetta allt saman ef við förum ofan í saumana á því. Ég hvíli því þannig í þessari vinnu með gongin að þetta er flest allt útskýranlegt í heimi raungreinanna ef þörf er á, ekki síst með áframhaldandi rannsóknum á sviði skammtafræðinnar og áhrifa þeirrar tíðni sem við sendum frá hug okkar og hjarta á lífið í kringum okkur. Ég vel þó meðvitað að halda líka í galdrana fyrir þær sakir að mér finnst þeir gefa lífinu gildi.

Meiri upplýsingar á heimasíðu Áshildar: ashildur.is og á FB síðunni Hlín markþjálfun. Þér velkomið að óska eftir aðgangi að lokaða hópnum Hljóðheilun á FB, sem heldur utan um tímana í hljóðheilun.


ADHD Hver eru þín markmið? Markmið mín eru... já, þegar stórt er spurt? Ef við tölum til dæmis um vinnumarkmið, sem eru merkileg fyrir mig fyrir þær sakir að ég hef tals­ vert verið heimavinnandi síðustu árin en er nú að standa á eigin fótum í sjálfstæðum atvinnurekstri, þá á vinnan að birta það hver ég er í raun og veru og hvað ég vil helst af öllu starfa við og fá greitt fyrir. Að vera í draumastarfinu mínu. Markmið mitt er að starfa út frá mínum einstöku hæfileikum, menntun og reynslu, með mína einstöku styrk­ leika í fararbroddi. Að hjálpa fólki út frá mínum innsta kjarna, ég held að það sé langskilvirkasta og mest gefandi vinnan af hendi okkar allra ef við förum út í þá sálma. Svo eitt af mínum mark­ miðum er að geta unnið við það að vera ég ef við getum sagt sem svo, og ég vil auðvitað að sem flestir geri það sama sem líka vilja! Að sjálfsögðu, markmið mín snúa líka að því að hjálpa öðru fólki að stíga inn í, þekkja, elska og nýta eigin einstöku styrkleika og hæfileika, bæði okkur sjálfum og heiminum til góðs. Ég held að heimurinn verði einfaldlega aðeins betri fyrir vikið. Að geta lifað af því að vera þú, ekki þannig að þú reynir að vera einhver annar eða passa inn í eitthvað fyrir­ framgefið staðlað form. Þetta er klárlega eitt af þeim markmiðum sem ég hef fyrir sjálfa mig og það vill nú yfirleitt þannig til að þeir aðilar sem til mín leita eru áTexti höttunum eftir Eydísi Hjaltalín eftir og myndir einhverju eru fengnar svipuðu. úr safni Ásu. Yfirmarkmiðið er svo að lifa hamingjusömu og innihaldsríku lífi og spila vel úr því sem mér var gefið, njóta mín og vaxa í hverju skrefi, þetta er ekkert flókið. Gera sem mest úr því sem ég hef og rækta þá fjölskyldu og vini sem í kringum mig eru.

Ráðstefna í Hörpu um ADHD 1–2 desember Skráning

og nánari upplýSingar á mittadhd.iS

Meiri upplýsingar á heimasíðu Áshildar: ashildur.is og á FB síðunni Hlín markþjálfun. Þér velkomið að óska eftir aðgangi að lokaða hópnum Hljóðheilun á FB, sem heldur utan um tímana í hljóðheilun.

Taktu stjórn á þínum líðann! Kristalharpan hennar Ásu


Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett á Digraneshæð. Það er því óhætt að segja að prentsmiðjan hafi þá staðið fyllilega undir nafni.

Ekkert verk of smátt! Komdu með hugmyndina og við framkvæmum hana. Límmiðar, bækur, reikningar, bæklingar, símaskrár og eða fjölskyldu mynd á striga sem væri tilvalinn jólagjöf í ár! Hvað sem þig dettur í hug!

Við erum umhverfisvæn prentsmiðja og erum afar stolt að því að geta skartað Svansvottuninni. Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi 540 1800 | FAX: 540 1801 mánudaga - fimmtudaga : 8:00–16.00 föstudaga : 8:00–14:30 litlaprent@litlaprent.is litlaprent.is Kíktu til okkar!


Stéttarfélag, kjaramál og

námSStyrkir!

Grafía

Við Stöndum með þér Stórhöfða 31, 3.hæð | 110 Reykjavík Sími 552 8755 | grafia.is

lífeyriSmál áSamt

orlofSmálum.

3 mánuður fyrir full réttindi!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Eydís Ómarsdóttir by Tækniskólinn - Issuu