1
Lærðu meira vinur! Vefnám er ný fræðsluleið hjá IÐUNNI þar sem kennslan fer alfarið fram með myndskeiðum á vefnum. Skráning á vefnámskeið fer fram í tölvupósti. idan@idan.is Kynntu þér fleiri möguleika og námskeið á vefnum okkar.
idan.is
Þjónusta Fræðslusetur Námskeið Námssamningar Edurmenntun Fyrirtækjaþjónusta Fræðsla Hæfnismat Raunfærnimat
Við förum á þínum hraða Vatnagarður 20, 104 Reykjavík
2
590 6400 idan@idan.is www.idan.is
AFS OG ARGENTÍNA
UPPSKRIFT
KOBE BRYANT
UM MIG
4 6 9 10 Ritstjórn Selma Özkan
LEIÐARI
Umbrot og hönnun Nú er þetta loksins á enda og gaman að sjá afrakstur mikillar vinnu þar sem margt hefur gengið á og mikið hefur reynt á þolrifin. En það sem ég tek úr þessu er mikill lærdómur og þá ekki síst það að þurfa að hugsa allt upp á nýtt og tileinka sér nýjar aðferðir og vinnulag þegar samkomubannið skall á. Efnistök tímaritsins mín koma annars vegar frá áhuga mínum á íþróttum en ég fjalla um einn af mínum uppáhalds körfuboltaleikmönnum, Kobe Bryant
sem féll frá fyrr á þessu ári. Hins vegar fjalla ég um reynslu mína sem skiptinemi í Argentínu en árið sem ég dvaldi þar er einn af hápunktum lífs míns hingað til. Ég vona að þið njótið! Ég vil þakka kennurunum fyrir kennsluna, leiðsagnirnar, ráðgjöf og síðast en ekki síst ómetanlegu hvatninguna sem þurfti til að halda sér við efnið þegar maður sat aleinn heima að reyna að halda sér að verki við verkefnavinnuna. Ást og friður!
Selma Özkan
Nemendamynd Ljósmyndadeildin
Forsíða Axel Emin Özkan
Útgefandi
3
Upplýsingatækniskólinn
4
Ég heiti Selma Özkan og er fædd 2. janúar árið 2000. Ég er fædd í Reykjavík og hef búið í Hlíðunum allt mitt líf en á samt uppruna að rekja til Tyrklands en pabbi minn kemur þaðan, nánar tiltekið frá Istanbul. Ég á tvo bræður, einn eldri og einn yngri og eru þeir bara ansi fínir bræður, verð ég að segja. Eftir að ég kláraði Hlíðskóla fór ég í Fjölbrauta– skólann við Ármúla og eftir einn vetur þar fór ég í skiptinám til Argentínu í eitt ár, sem var mögnuð reynsla þar sem ég lærði margt um mismunandi menningarheima, kynntist fullt af frábæru fólki og komst að þvi að ég get bara gert alls konar sem ég hélt að ég gæti ekki gert.
Eftir að ég kom heim frá Argentínu ákvað ég að bóklegt nám væri ekki fyrir mig og sótti um í Upplýsingatækniskólanum og sé alls ekki eftir því. Ég hef alltaf haft gaman af því að teikna og fykta í þessum týpísku forritum og ég talaði oft um það þegar ég var yngri að verða grafískur hönnuður og flytja til New York til að vinna. Hver veit nema það muni gerast einn daginn, lífið er rétt svo að byrja! Það sem tekur við eftir skólann er að klára stúdentinn og svo stefni ég á LHÍ eða fara erlendis í háskóla.
5
Kobe Bryant 1978-2020 Kobe Bryant f. 23.08.1978 – 26.01.2020. Kobe Bean Bryant var fæddur 23. ágúst 1978 í Philadelphiu í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum. Hann var sonur fyrrverandi NBA leikmannsins Joe Bryant og Pamelu Cox Bryant. Kobe var yngstur í þriggja systkinahópi en hann átti tvær eldri systur Sharia og Shaya. Kobe sýndi fljótt hæfileika á körfuboltavellinum sem ungur drengur og unglingur. Á lokaári sínu í menntaskóla var hann valinn besti leikmaður menntakólakörfuboltans í Bandaríkjunum og hóf atvinnumannaferilinn strax í kjölfarið er hann fór til liðs við Los Angeles Lakers. Þetta var árið 1996 en hann spilaði með liðinu allan sinn atvinnumannaferil eða til til ársins 2016. Kobe var giftur Vanessu Bryant og eignuðust þau fjórar dætur: Natalia (f. 2003), Gianna (f. 2006), Bianka (f. 2016) og Capri (f. 2019). Kobe spilaði með landsliði Bandaríkjanna frá 2007 til 2012 og vann hann gull með liðinu á Ólympíuleikunum 2008 og 2012.
Los Angeles Lakers
6
Kobe Bryant lék 20 leiktímabil með Los Angeles Lakers frá 1996 – 2016 og er hann talinn meðal bestu leikmanna allra tíma í NBA. Á þessum 20 ára ferli hlaut hann margar viðurkenningar, var meðal annars valinn verðmætasti leikmaðurinn (e. most valuable player) árið 2008. Kobe varð tvívegis stigameistari NBA deildarinnar, var 18 sinnum valinn í All-Star lið deildarinnar og varð fimm sinnum NBA meistari með liði sínu.
Kobe er fjórði sigahæsti leikmaðurinn í sögu NBA.
Mamba Kobe kallaði sjálfan sig „Black Mamba“ en það viðurnefni tók hann sér til að aðgreina körfuboltamanninn Kobe Bryant frá einstaklingnum og manneskjunni Kobe Bryant. Viðurnefnið var innblásið persónu sem kom fram í kvikmynd Quentin Tarantino, Kill Bill. Í myndinni vísar mamba snákurinn til banvæns morðingja og talaði Kobe oft um að er hann hann spilaði körfubolta væri Mamba en utan vallar væri hann Kobe. Á þennan máta notaði hann gælunafnið til að aðgreina sitt persónulega líf frá því lífi sem hann átti innan vallar.
Mamba mentality Árið 2017 hóf Kobe Bryant samstarf með Nike og þar sem sett var á stofn unglingakörfuboltadeild í Los Angeles og var hún kölluð Mamba deildin. Deildin veitir hundruðum krakka frían aðgang að körfuboltaíþróttinni. Kobe Bryant var umhugað að innræta ungum körfuboltakrökkum jákvætt hugarfar sem hann kallaði „mamba hugarfar“ (e. Mamba Mentality) og sagði að Mamba hugarfar snýst um að æfa mikið, gera meira en næsti maður og treysta svo á þann árangur sem unnist hefur af allri vinnunni er kemur að því að framkvæma. Án þess að læra, undirbúa og æfa, lætur þú afreksturinn skapa örlög þín.
ÞYRLUSLYSIÐ Þann 26. janúar síðastliðinn voru þau Kobe, Gianna, dóttir Kobe og átta öðrir í þyrlu á leið til leiks sem Gigi og liðsfélagar hennar voru að fara að spila öðrum enda Los Angeles borgar Á leiðinni rakst þyrlan utan í fjallshlíð, sem rekja má til lélegs skyggnis sem varð til þess að þyrlan hrapaði til jarðar með þeim afleiðingum að allir 9 farþegar þyrlunnar létust. Kobe Bryant og dóttir hans Gianna létust, þrír liðsfélagar Giönnu ásamt foreldrum einnar stúlkunnar, aðstoðarþjálfari stúlknanna og flugstjóri þyrlunnar létust einnig. Þann 24. febrúar 2020 var haldin afhöfn fyrir að fagna lífi Kobe og Giönnu í Los Angeles Lakershöllinni þar sem vinir, fjölskylda og aðdáendur komu saman. Þar á meðal voru Michael Jordan og Shaq O’Neil sem eru þekktir körfuboltamenn sem spiluðu með Kobe og voru góðir vinir Kobe. Aðdáendur Kobes byrjuðu að safnast saman fyrir framan höllina höllina viku fyrir athöfnina til að votta goðsögninni virðingu sínu, sem
og fjölskyldu hans sem og öðrum þeim sem fórust í þyrluslysinu.
Meze er hlýlegur og notalegur veitingastaður á besta stað í miðborg Reykjavíkur. Okkar áhersla er Tyrknesk matargerð og frá nágrannalöndum þar í kring, ferskt hráefni og þjónusta með bros á vör.
Laugavegur 42 • 101 Reykjavík • 571 1088 • www.meze.is
7
Gianna Bryant Gianna Maria-Onore Bryant var fædd 1. maí 2006, í Orange County, Kalifornía, Banaríkjunum og var næst elsta dóttir Kobe og Vanessu Bryant. Hún var alltaf kölluð Gigi af fjölskyldu og vinum. Hún gekk í Harbor Day skólanum í Kaliforníu og spilaði með körfuboltaliði skólans sem pabbi hennar þjálfaði. Henni gekk vel í skóla og fékk góðar einkunnir, var forseti stúdentaráðs skólans, elskaði að hjálpa og kenna fólki í kringum sig. Hún var mikil íþróttakona, var góð í fimleikum, fótbolta, hafnarbolta, dansi og körfubolta. Hana dreymdi um að feta í fótspor föður síns og verða atvinnukona í körfubolta, og spila í atvinnudeildinni WNBA, eða NBA deild kvenna. Margir töldu að Gigi gæti orðið ein af bestu körfuboltakonum í WNBA þegar þar af kæmi. Gigi lést í slysi þann 26. janúar 2020 þá aðeins 13 ára gömul.
8
Mynd: Katrín Ása
Acai bowl Hollur og góður morgunmatur, einfaldlegur að borða á ferðinni!
Innihald
- frosin jarðaber - frosin brómber - hálfur banani - möndlumjólk - klakar
Toppur
- brómber - jarðaber - bláber - haframjöl - kókosflögur
9
AFS Rosario Buenos aires
AFS eru óháð hagsmunasamtök sem hafa það að markmið að tengja saman menningarheima með því að senda skiptinema út um allan heim. Samtökin samanstanda að mestu leiti af af sjálfboðaliðum en einnig af örfáum sem fá greitt fyrir störf sín. Þau eru skiptinemasamtök sem senda skiptinema út um allan heim og taka líka við nemum. AFS eru þriðju stærstu sjálfboðaliðasamtök í heimi á eftir Rauða Krossinum og Amnesty International. En aðeins um sögu AFS. Samtökin voru stofnuð árið 1914 í fyrri heimstyrjöldinni af bandarískum sjálfboðaliðum sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Frakklands, undir hatti American Field Service en þaðan kemur nafnið AFS. Á íslensku eru samtökin kölluð Alþjóðleg fræðsla og samskipti. Sjúkraflutningamennirnir vildu auka kynni fólks á mismundandi menningarheimum og trúðu því að fólk myndi seint fara í stríð við fólk og þjóð sem það þekkti. Og með því að senda ungt fólk í skiptinám til annarra menningarheima verður til annað heimili. Fyrstu skiptinemar AFS voru sendir út í heim árið 1947 og í fyrsta sinn frá Íslandi 1957 til Bandaríkjanna.
Vinsælustu löndin í skiptinám
10
Argentína og að fótboltinn væri mjög mikilvægur þar í landi. Þar sem ég elska Messi og hef litið upp til hans lengi taldi ég spennandi að fá að búa í landinu hans. Ég grínaðist oft við mömmu og sagði að það yrði geðveikt að fá fjölskyldu í Rosario og fá að spila með liðinu sem Messi spilaði fyrst með. Í byrjun júlí fékk ég svo loks tölvupóst um að það væri búið að finna fyrir mig fjölskyldu. Þau bjuggu á stað sem kallaðist Granadero Baigorria sem vildi svo skemmtilega til að að úthverfi í Rosarioborg, er eins og Kópavogur er gagnvart Reykjavík. Þetta var mikill gleðidagur, ég væri á leið á æskulóðir Messi. Mér leist vel á fjölskylduna en á heimilinu bjuggu hjón með dóttur sína sem var ári yngri og hundur en auk þess áttu þau 3 önnur börn sem voru flutt að heiman.
Veronica (mamma), Claudio (pabbi) og Josefina (dóttir) og ég.
Árið 2017 fór ég sem skipitnemi til Argentínu. Ég fóri til borgar sem heitir Rosario sem er um 300 km frá Buenos Aires höfuðborg Argentínu. Ástæðan fyrir því að ég vildi fara sem skiptinemi er að mamma hafði farið sem skiptinemi til Los Angeles, Bandaríkjana á mínum aldri og talaði alltaf vel um þá reynslu sína. Áhuginn jókst svo þegar ég sat í lífsleiknitíma um miðjan október á fyrsta árinu mínu í menntó þegar haldin var kynning frá AFS að ég tók þá ákvörðun að skiptinám væri eitthvað sem mig langaði að gera. Í framhaldi fór ég á kynningarfund hjá AFS þar sem ég fékk frekari upplýsingar. Í upphafi vissi ég ekkert hvert mig langaði að fara, vissi samt að mig langaði að fara eins langt í burtu frá Íslandi og ég gæti. Á kynningarfundinum hitti ég strák sem hafði farið til Argentínu og talaði svo fallega um landið og hvatti mig til þess að sækja um að fara þangað. Ég ræddi þennan möguleika við foreldra mína, þau sögðu mér að senda inn umsókn og sjá hvað kæmi út úr því. Um þremur vikum síðar fékk ég tölvupóst um að ég væri komin með pláss til Argentínu og nú yrði ég bara að bíða þar til fundin yrði fjölskylda fyrir mig. Ég vissi ekki mikið um Argentínu en það sem ég vissi var að Lionel Messi væri frá borginni Rosario í Argentínu
Alfreð Finnbogason Fæddur 1. febrúar 1989. Allir vita hver Alfreð er en hann spilar með íslenska landsliðinu í fótbolta. Hann tók einnig þátt í heimsmeistaramótinu með íslenska liðinu og var fyrstur Íslendinga til þess að skora mark í keppninni en hann skoraði fyrsta markið á móti Argentínu. Alfreð fór sem skiptinemi með AFS til eyjunnar Sardaníu á Ítalíu árið 2006 til 2007.
11
Ævintýrið
Ævintýrið mitt byrjaði um miðjan ágúst 2017, en ferðalagið til Argentínu tók tvo daga. Ég ferðaðist með einum öðrum skiptinema frá Íslandi og byrjuðuðum við á því að millilenda í níu tíma í New York og þaðan tók við níu tíma flug til Buenos Aires þar sem við hittum alla skiptinemana sem væru að fara að dvelja í Argentínu. Smám saman var okkur öllum komið í mismunandi rútur sem óku okkur til þeirra borgar sem við áttum að dvelja í næstu 11 mánuði. Rútuferðin frá Buenos Aires til Rosario tók um 4 klukkutíma og þegar á leiðarenda var komið var klukkan 1 eftir miðnætti. Ég var svo stressuð að hitta fjölskylduna mína í fyrsta sinn, þau kunnu litla ensku fyrir utan dótturina og ég kunni enga spænsku. En þau tóku mjög vel á móti mér og ég varð strax rólegri. Fyrstu dagarnir mínir fóru aðallega í að kynnast fjölskyldunni og þau að sýna mér umhverfið. Viku síðar hófst skólinn en ég vissi að ég færi í sama skóla og systir mín en við myndum samt ekki vera á sama ári. Það var mjög vandræðalegt að mæta í skólann en ég mætti með AFS tengiliðinum mínum sem hjálpaði mér að finna út úr því í hvaða bekk ég væri í og sagði mér einmitt frá því að ég þyrfti að vera í SKÓLABÚNING. Meðan hún talar við skólastjórann þá er ég umkringd fullt af krökkum sem voru að reyna að tala við mig og kynna mig fyrir nýja bekknum mínum svo fór að tengiliðurinn skildi mig eina eftir. Mér leið eins og væri aftur orðin sex ára að byrja í nýjum skóla. Fyrstu vikurnar í nýja skólanum voru rosalega erfiðar því enginn í bekknum mínum talaðu ensku nema tveir nemendur sem kunnu smáveigis. Annars var mikið talað með google translate í símanum og ég var alltaf með mikinn hausverk eftir skóladagana.
12
Þar sem ég hafði æft fótbolta á Íslandi og fjölskyldan vissa hve mikinn áhuga ég hafði á fótbolta voru þau svo hjálpsöm og fundu fótboltafélag í hverfinu fyrir mig sem ég gæti æft sem var alveg frábært. Fyrstu mánuðirnir voru virkilega erfiðir, sérstaklega vegna þess að ég skildi ekki krakkana og náði ekki að kynnast neinum almennilega. En eftir rúmlega þrjá mánuði af skiptináminu þá var ég byrjuð að finna mig í umhverfinu, í fótboltanum og byrjuð að eignast vini í skólanum og þegar árið var á enda hafði ég kynnst fólki sem ég tel vera mínir bestu vinir í dag. Það var margt frábrugðið því sem ég átti að venjast að heiman. Til að mynda voru jólin alls ekki eins og ég var vön. Argentínumenn halda ekkert mikið upp á jólin fyrir utan að stórfjölskyldan kemur saman, borðar góðan mat og horfir á flugelda saman. Í desember og fram í mars er sumarfrí í Argentínu og fór ég nokkrum dögum eftir 18 ára afmælið mitt í janúar, með fjölskyldunni minni til til Úrúgvæ sem eiga landamæri við Argentínu. Þar eyddum við mamma, pabbi og tvær systur mína 10 dögum að ferðast um og vera á ströndinni. Janúar er heitasti mánuðurinn á árinum og það fer hitinn í 40° auk þess sem rakinn er mikill. Í þessum hita eru fótboltaæfingar ekki leyfðar svo við eyddum mestum okkar tíma við sundlaugina í bakgarðinum. Þegar skólinn byrjaði aftur í mars var ennþá mjög heitt og ég þurfti alltaf að taka með mér föt til skiptanna til að fara í þegar ég kom í skólann að hafa verið klukkutíma í strætó í öllum hitanum.
Reynslan Allt var allt öðru vísi en ég bjóst við og ég fékk mikið menningarsjokk í upphafi. Í Argentínu er mikil stéttskipting og hægt er að sjá mjög greinilega eru fátækir og hverjir eru ríkir og svo þá í miðjunni. Eftir að hafa verið þarna í nokkurn tíma áttaði ég mig á því hvað við Íslendingar höfum það gott. Til að mynda þurfum við ekki að hugsa mikið um hvað við notum af vatni eða rafmagni, vera seint úti á kvöldin, passa upp á dótið sitt að því verði ekki stolið osfrv. Og voru hlutir tengdir þessu sem helst saknaði eins og íslenska vatnið, frelsi að koma og fara, ís, hiti í húsum, langar sturtur og heitt vatn sem ekki klárast. En að sama skapi var líka áhugavert að sjá hve margt líkt er með Íslendingum og Argentínumönnum eins og að fjölskyldan skiptir miklu máli, vinátta og væntumþykju á milli fólks og ekki má gleyma ástríðunni fyrir fótbolta.
Er ekki að koma sumar? mikið af flottum vörum á tilboði hjá okkur.
Select bolti Stærð: 5
kr. 3.745
kr. 7.490
Nike Mercurial Vapor Elite Takkaskór
kr. 19.794
kr. 32.990
G-Form Pro-S Legghlífar
kr. 12.990
13
Hverfisgata 32 • 101 Reykjavík 552 1110 • www.spyrna.is • spyrna@spyrna.is
Hápunktar ársins Það er margt að minnast frá þessu lærdómsríka ári og er einn hápunkturinn þegar ég og systir mín fengum að fara til Buenos Aires til að fara á tónlistarhátíðina Loolapalooza en þar komu fram fullt af mínu uppáhalds tónlistarmönnum eins og Khalid, Mac Miller, Chance the Rapper, Zara Larsson og svo vildi svo skemmtilega til að íslenska hljómsveitin Kaleo kom einnig fram á hátíðinni.
Annar hápunktur ársins var í júní 2018 og heimsmeistaramótið í fótbolta var handan við hornið. Eins og við vitum var fyrsti leikur Argentínu við litla Ísland. Argentínumenn fannst þau vera mjög heppin með mótherja og talað var um að þeir myndu vinna 12–0 eða þar um bil. Þetta yrði algjört rúst, Ísland átti ekki séns. Ég sagði fólki bara að hafa sig hæg, það gæti allt gert. Á leikdaginn fékk ég að bjóða til mín vinum til að horfa á leikinn með mér. Ég grét af stolti meðan þjóðsöngurinn var leikinn. Leikurinn var rússabanareið af tilfinningum. Ég grét af sorg þegar Argentína skoraði en ég held að ég hafi aldrei verið jafn glöð og þegar Hannes varði vítið frá Messi. En svo var skemmtilegast að koma í skólann daginn eftir leikinn með íslenska fánann á bakinu og fá að monta mig smá að því að litla Ísland hafi gert jafntefli við Argentínu með því að verja víti frá Messi.
14
Kynntu þér rétt þinn
Þjónusta - Kjaramál - Lífeyrismál - Sjúkrastóður - Orlofssjóður - Fræðslustyrkir
Grafía stéttarfélag er eitt af aðildarfélögum Rafiðnaðarsambands Íslands. Ávinningur sameingarinnar verður mikill fyrir félagsmenn Grafíu.
15
Stórhöfða 31 ■ 3. hæð ■ 110 Reykjavík ■ 552 8755 ■ www.grafia.is ■ grafia@grafia.is
Þín verk í okkar höndum Skemmuvegi 4, blá gata
16
200 Kópavogi ■ 540 1800 ■ litlaprent@litlaprent.is Opið virka daga: 8:00 - 16:00
■