Skip to main content

Embla

Page 1

Fróðleiksbrunnur

Vefnám er ný fræðsluleið hjá IÐUNNI þar sem kennslan fer alfarið fram með myndskeiðum á vefnum. Skráning á vefnámskeið fer fram á sama hátt og skráning á önnur námskeið og að skráningu lokinni opnast fyrir aðgang að viðkomandi námskeiði á mínum síðum þátttakanda.

Vefnámskeið er yfirleitt opið 30 daga frá skráningu og innan þess tíma geta þátttakendur ráðið sínum námshraða. Aðstoð vegna vefnámskeiða veitir IÐAN í tölvupóstinum idan@idan.is.

Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík Sími 590 6400 Netfang idan@idan.is Veffang www.idan.is


Leiðari

Umbrot og texti: Bergdís Norðdahl Ljósmyndir:

Í öllum verkefnalýsingum stendur að ekki sé tekið við verkefnum sem unnin eru alfarið utan kennslustunda. En einn góðan föstudag í mars, rétt áður en vinnsla þessa blaðs hófst, var tilkynnt að samkomubann hæfist aðfaranótt mánudagsins og að öllum framhalds- og háskólum yrði lokað, þar með talið Tækni­skóla­ num. En kennslu var ekki hætt heldur færðist hún alfarið yfir á netið og kennslustundir fóru fram gegnum fjarfundabúnað. Upphaflega stóð til að banninu lyki um miðjan apríl, rétt eftir páska, en þegar þetta er skrifað eru líkur að það verði framlengt þar sem Covid-19 faraldurinn er enn í hægum vexti hérlendis.

Bergdís Norðdahl

Hver er ég?

4

Flugljósmyndun 6

Eldgos 10

Berlínarsaga 14

Eggert Norðdahl Forsíðumynd: Séð niður Landveg, Bergdís Norðdahl Prófarkarlestur: Eggert Norðdahl


4


Hver er ég? Ég heiti Bergdís Norðdahl Ég er uppalin í Hafnarfirði og bý þar ennþá. Ég byrjaði í Engidalsskóla, fór síðan í Setbergs­skóla, síðan í Flensborgarskólann þar sem ég kláraði fjölmiðlatækni, kom síðan við í sagnfræði í HÍ en skipti yfir í ljósmyndun í Tækniskólanum. Eftir viðkomu í Starfsendurhæfingu Hafnar­fjarðar er ég komin aftur í Tækni­

skólann, nú í grafíska miðlun og vonast til að útskrifast eftir samkomubann. Ég byrjaði að taka ljósmyndir af alvöru haustið 2005 en fékk síðan „alvöru“ mynda­ vél vorið eftir. Síðan hafa bæst við fleiri mynda­vélar og myndasafnið stækkað. Það að fanga og varðveita augnablik mun alltaf verða partur af mínu lífi.

5 ◄ Ljósmynd: Ljósmyndadeild Tækniskólans


Flugljósmyndun

6

Finnsk F-18 Hornet fer í loftið á Keflavíkurflugvelli í tenglum við Iceland Air Meet 2014


Ljósmyndun snýst um að fanga augnablik. En þegar viðfangsefnið flýgur fram hjá þér á yfir 400 kílómetra hraða á klukkustund er það aðeins erfiðara. Til að ná sem bestum árangri þarf æfingu auk hæfilegrar þekkingar, bæði á ljós­ myndun og búnaði, en einnig af viðfangs­ efninu. Þá þarf ákveðna útsjónarsemi, t.d að reikna út bestu staðsetningarnar fyrir mismunandi vélar. Fyrir stórar vélar er gott að hafa smá fjarlægð en fyrir litlar vélar er betra að vera nær. Síðan er hraði þeirra, þyngd og afköst breytileg, og þá þarf að áætla lengd flugbrautar fyrir flugtök og lendingar til að finna bestu staðsetninguna fyrir glæsi­legasta sjónarhornið.

Kanadísk CF-188 Hornet tekur þátt í flugsýningu í Reykjavík

BORGARLÍNA? OF LÍTIÐ? OF SEINT? Ráðstefna í Hörpu 2.–3. maí 2020 Skráning er hafin sbu2020.is

Samgöngustofa


Airbus A330-300 þota WOW air í flugtaki

C-47 „þristurinn“ í lágflugi við Sandskeið

Airbus A350-900 í flugprófunum á Keflavíkurflugvelli

Consolitated PBY-5A Catalina á flugsýningu í Reykjavík

Boeing 737 MAX þota Icelandair lendir á Reykjavíkurflugvelli

Pitts S-2B listflugvél,ásamt tvemur öðrum vélum, myndar reykjarský á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli

Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli

Junkers Ju52 í lendingu á Reykjavíkurflugvelli

8


Dönsk C-130 Herkúles í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli

Dornier 328 flugvél Ernis ekur í hlað LS-8-18 sviffluga Svifflugfélags íslands á Geitamelsflugvelli

Reynsla hjálpar mikið. Hvar eru bestu staðirnir, hvar er líklegt að flugvélarnar aki, hvernig er vindáttin, hver er staðan á vellinum, eru framkvæmdir. Allt þetta hefur áhrif. En góð tengsl hjálpa líka, ef von á óvenjulegri umferð, en einnig samfélagsmiðlar geyma nytsam­legar upplýsingar um ferðalög sjald­gæfra véla. Mikill munur er á mynda þotur og skrúfu­ vélar þar sem of hraður lokunarhraði getur fryst loft­skrúfur (stóra viftan sem knýr vélina áfram) þannig að það lítur út fyrir að skrúfan sé stopp og vélin sé að hrapa. Þotur aftur á móti nota þotu­hreyfla (öflugir blásarar sem blása vélina áfram) sem nær ómögulegt er að frysta með venjulegri mynda­vél þar sem snúningshraðinn er mikill. Þannig er hægt að hafa meiri lokunar­ hraða við myndatökur á þotum, það minnkar líkurnar að myndin verði hreyfð. Þegar verið er að fylgja vél eftir sem flýgur fram ­hjá er gott að undirbúa sig með því að áætla hreyfi­svið og standa pínu útskeift með annan fótinn stöðugan fyrir upphafið en hinn fótinn fyrir endirinn og síðan snúa mittinu og færa þungann rólega á milli fóta. Þannig aukast líkurnar á óhreyfðum myndum þar sem þú ert í jafn­vægi allan tímann. Gott dæmi um svoleiðis fylgd sést á bílamyndunum hérna til hægri. Gott jafnvægi á mynda­vélinni er nauðsyn líka. Mikilvægt er að hafa myndavélina stillta á „AI servo“ en ekki „one shot“ svo hún geti fókusað stöðugt í staðin fyrir að endurfókusa fyrir hverja mynd. Þegar mikið er í gangi er alltaf gott að vera með auka batterí, full hlaðin að sjálfsögu, og auka minniskort, tóm. Ljósmyndarar hafa farið í langa leiðangra og gleymt rafhlöðum sínum heima og þurft að nota vasamyndvélar.

Á flugsýningum eru ekki einungis loftför. Stundum eru sportbílar fengnir til að keppa við flugvélar og þyrlur. Síðast keppti Lamborg­hini Huracan við þyrlu, en áður hafði Ford GT keppt with listflugvél.

9


Eldgos

10

Upphaf Grímsvatnagossins 2011 séð frá Hellisheiði


ELDSTÖÐ

UPPHAF

ENDIR

TEGUND

VEI*

Holuhraun/Bárðarbunga

29. ágúst 2014

27. febrúar 2015

Hawaiian

0

Grímsvötn

21. maí 2011

28. maí 2011

Plinian

4

Fimmvörðuháls

20. mars 2010

12. apríl 2010

Strombolian

1

Eyjafjallajökull

14. apríl 2010

23. júní 2010

Vulcanian

4

*Volcanic Explosivity Index, mælikvarði yfir magn gosefna

Grímsvatnagosið 2011 séð frá Þórisvatni

Laugardagurinn 21. maí 2011 gleymist seint. Dagurinn byrjaði snemma á því að ég útskrifað­ ist sem stúdent frá Flensborgarskólanum. Síðdegis var síðan haldin vegleg útskriftarveisla heima í stofu. Þegar vel var liðið á veisluna komu sjöfréttir:

klukkan 9 um morguninn. Um sólarhring eftir að dagurinn byrjaði hjá mér. Þetta var þó ekki fyrsti eldgosaleiðangur okkar feðgina því árið áður höfðum við myndað bæði gosið á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli sjálfum.

Eldgos var að hefjast í Grímsvötnum! Þar sem bæði ég og faðir minn erum miklir eld­ fjalla­­áhuga­menn og ljós­myndarar var leið­angur undir­búinn meðan síðustu gestirnir kvöddu. Síðan var lagt af stað austur og norð-vestanátt var ríkjandi var stefnan sett upp Þjórsárdal. En þar sem skýjabakki lá yfir svæðinu var staldrað við í góðu yfirlæti á Hótel Hraun­eyjum. Klukkan 5 um nóttina hafði rofað til og var þá haldið upp á Sprengisand að Þórisvatni en þar sem við vorum á venjulegum fólksbíl var ekki treystandi að halda lengra norður. En eftir klukkan 7 fór vindurinn að snúa sér og því var haldið í bæinn þar sem ég kom heim um Eyjafjallajökull séð frá Ingólfsfjalli 17. apríl 2010 Eldgosið á Fimmvörðuhálsið að kveldi 26. mars 2010

Fimmvörðuháls undir lok goss 7. apríl 2010. Þarna sést hraunfossinn frægi Mynd: Eggert Norðdahl


Berlínarsaga Twitch.tv er vinsæl streymisíða, mest með tölvuleiki en þó er hægt að finna allt mögulegt í beinni útsendingu, t.d. matargerð, ferðalög, spjallþætti og jafnvel alvöru íþrótta­leiki. Twitch ráðstefnan TwitchCon er ekki nýtt fyrir­bæri, hún hefur verið haldin á vestur­strönd Bandaríkjanna í fjölda ára. En fyrsta Twitchcon Europe var haldin í Berlín skömmu fyrir páska 2019. Ég ákvað að taka þátt. Dagurinn byrjaði snemma á fimmtudags­ morgni með flugi frá Keflavík til Tegelflugvallar í Berlín, og þangað var ég komin um miðjan dag. En síð­degis var friðurinn úti þegar brunabjallan á hótelinu glumdi og á eftir fylgdi heimsókn slökkviliðs og lögreglu. Daginn eftir, á föstu­ deginum fór ég og sótti aðgöngu­passann í ráðstefnu­höllina og hitti þar aðra streymara (e. streamer) sem ég kannaðist við og þegar líða tók á há­degi og góður hópur hafði myndast hélt hópurinn inn í miðbæinn í leit að hádegismat. Þar fannst fínn veitinga­staður með Pétri Pan þema og var maturinn góður. Eftir matinn var síðan haldið að Branden­borgar­hliðinu gegnum gamla miðbæinn, minnisvarðann um hel­förina sem og að leifum að Berlínar­múrsins,

12

þar sem safnið „Topo­graphy of Terror“ stendur, en þar stóðu höfuðstöðvar SS á árum áður og þar var fræðst um stjórn Nasista. Að því loknu var ferðinni heitið upp á „Alexanders­platz“ þar sem alvöru þýskt bjórhús er að finna. Þetta var 12 km göngutúr sam­kvæmt skrefamæli. Ráðstefnan var haldin á laugar‑ og sunnu­ degi og var gott úrval fyrirlestra, boðið var upp á „Speedrun“ svæði þar sem keppt var í að klára leiki á sem skemmstum tíma, hægt var að spjalla við vinsæla streymara í eigin persónu auk þess sem fjölmörg fyrirtæki sýndu nýjustu tækni og leiki. Eftir strembna helgi fór mánu­ dagur­inn í að pakka saman og flaug ég heim síðdegis.


Allt í leikjavélina! AMD Ryzen 7 3700X

48.997 kr.

Gigabyte RX 5600 XT

59.997 kr.

Örgjörvi Smáralind Sími: 577 5588

www.orgjorvi.is


Mannlíf

14

Hluta árs 2019 myndaði ég fyrir Fjarðarpóstinn í Hafnarfirði, en blaðið heitir nú Hafnfirðingur. Hér má sjá smá brot af því helsta.


Lítið fyrirtæki Stórt hjarta

Litlaprent

Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi Sími 540 1800 | FAX: 540 1801 Opið virka daga : 8:00–16.00 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is


Rafmögnuð samstaða

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar. www.grafia.is

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA

Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík Sími 552 8755 grafia@grafia.is www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla by Tækniskólinn - Issuu