Grafísk miðlun
EMBLA
Haust 2020, 1. TBL. 9 ÁRG.
Endurmenntun í fjarnámi -hagnýtt nám fyrir þig
Sigríður Akureyri Sólrún Hólmavík
Allt um mynd– bandagerð: Að taka upp viðtöl
Fjarnám
Vinnuvélar frumnámskeið
Fjarnám
Nýjungar í skapandi samstarfi í Adobe Creative Cloud
Fjarnám
Autodesk Revit Architecture grunnnámskeið „Essentials“
Fjarnám
HÖNNUN: ANDREA SÍMONARDÓTTIR
Gunnar Patreksfjörður
Magga Vopnafjörður
Sindri Hafnarfjörður
Fjarnám
Hurðabúnaður
Endurmenntun fjölgar tækifærum þínum á atvinnumarkaði. IÐAN býður upp á fjölda þverfagleg námskeiða í fjarnámi. Skráning á námskeið fer fram www.idan.is
Vatnagarðar 20 104 Reykjavík
www.idan.is idan@idan.is
Sími 590 6400
MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020
Efnisyfirlit
4 Kynning um mig
6 Hátíð í bæ
hamingjustundir HAMINGJUSTUNDIR
vörur The most important thing is to enjoy your life – to be happy – it’s all that matters.” Audrey Hepburn
Það skiptir öllu máli, eins og leikkonan Audrey Hepburn orðaði það einu sinni. Hún hefur rétt fyrir sér, auðvitað, en það er ekki alltaf auðvelt. Núna fer þessu blessaða 2020 ári að ljúka og ég vona að þú getir litið til baka á líf þitt og horft á allar gleðistundirnar. Ég vona að þú hafir átt margar gleðistundir en við á Íslandi höfum eflaust mörg uppgötvað að flestar gleðistundirnar okkar eiga sér stað innan veggja heimilisins; að hluta til vegna þess að við neyðumst til þess sökum veðráttunnar og nú út af ástandinu í heiminum. Þetta þýðir að við dveljum mikið inni bróðurpartinn af árinu, því þá ekki að gera það besta úr tímanum þegar að myrkrið ræður ríkjum og hanna heimilin okkar til að gera þau sem þægilegust? Það er tilvalið að komast að því nákvæmlega á hvaða stað á heimilinu þú upplifir flestar hamingjustundir. Sumir gætu valið rúmið og allt sem því fylgir, aðrir fyllt baðkar með vínglasi á brúninni. Persónulega myndi ég velja borðstofuborðið. Þar ver ég mestum tíma með mínum nánustu og næ því besta úr samtölum um hápunkta dagsins - eða lífið almennt. Staðsetning þessa húsgagns, hvernig það lítur út, stólarnir sem valdir eru til að fylgja því getur hjálpað til við að fjölga hversdagslegum hamingjustundum. Efniviðurinn og þægindi húsgagnanna, en einnig diskarnir, glösin og hnífapörin, og ekki síst hljóðvist og lýsingu. Ástæðan fyrir því að skandinavísku þjóðirnar eru ár eftir ár efstar á lista yfir hamingjusamasta fólk heims er að við reynum að ná jafnvægi milli atvinnulífs og frítíma. Því að er ekkert betra en að sitja við matarborðið, borða opnar samlokur og hlæja upphátt.
8 Innlit inn á fallegt heimili í Vesturbænum
14 Viðtal Guðbjörg Káradóttir Keramik hönnuðurinn
Umbrot og hönnun Andrea Símonardóttir Hönnun forsíðu Andrea Símonardóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn
Það á við um alla, hvar sem við búum.
Prentun Upplýsingatækniskólinn
Að lokum langar mig þakka öllum þeim sem studdu við mig, gáfum mér sinn tíma hvort sem er fagleg ráðgjöf, andlegur stuðningur eða gafst mér hlátur inn í líf mitt á þessum síðustu 3 mánuðum. Önnin hefur verið einstakur og gefandi en jafnframt erfiður og sérstakur.
Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 55 Roman 9/13
MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020
Andrea Símonardóttir the on s ted i
an er w v e e ou’v y g thin y r ve ar.” e f “E dair f o A e id e rs org e e th o G 4 | embla
kynning KYNNING
Ég heiti Andrea og er kærasta dásemdar blikk meistarans, hans Gauta míns. Saman eigum við þrjú yndisleg börn. Við rekum stórheimilið okkar í miðdepli alheimsins - Kópavogi. Ég deili afmælisdeginum mínum með ekki ómerkara fólki en Tony Bennett og Mörthu Stewart - 3. ágúst. Ég heiti Andrea, ég er ljón. Og eins og sönnu ljóni sæmir er ég félagslynd, skapandi og hjartahlý. Ég hef allt mitt líf verið að skapa og hef unnið við grafíska miðlun/ prentiðnað á einhvern hátt í nær fjórtán ár. Eins og fylgir oft skapandi fólki þá er ég alltaf með þúsund bolta á lofti; aragrúa af hugmyndum og hundrað flipa opna í tölvunni. Það getur tekið tíma að komast í gang vegna skipulögðu óreiðunnar í huganum en þegar ég tek að mér verkefni og er tilbúin í verkefni gerast hlutirnir hratt. Ætli megi ekki lýsa hugarástandinu mínu flesta daga eins og það séu korter í jól. Ég á eftir að þrífa heimilið, kaupa jólagjöf fyrir manninn, pakka öllu inni, ekki búin að skreyta jólatréð og allt í glimmeri. En nóg um minn heillandi og skapandi huga. Allt í einu er komið að útskrift. Þannig týnist
tíminn, eins og Raggi Bjarna söng. Mín vegferð á þennan stað hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Ég hef verið stoppuð af margsinnis á þessari leið; barneignir, raunfærnismat Iðunnar, húsakaup, meiri barneignir og veikindi. Lífið, sjáið þið til! Lífið! En biðin og eftirvænting er þess virði. Það er afrek að vera komin hingað og ég er stolt og ánægð með sjálfa mig. Tíminn minn hér hefur verið mjög skemmtilegur, hópurinn samheldinn og kennararnir skemm tilegir og fagmenn fram í fingurgóma. Oft er auðveldara að flýja það sem hræðir mann í staðinn fyrir að taka áskoruninni. Ef maður tekur auðveldu leiðina missir maður oft af tækifærum og fegurðinni í kringum sig. Þegar ég fyllist þessari hræðslu, líkt og ég gerði þegar ég ákvað að taka skrefið að klára þetta nám, þá hef ég orð fasteignamógúlsins George Adair hugfast, og ég held að við höfum öll gott af því að fylgja þeim: “Everything you’ve ever wanted is on the other side of fear.” George Adair Takk fyrir mig.
embla | 5
Hátíð í bæ
Svart, föl antik bleikur og glimmer glitrandi er það sem sést nú í verslunum og ættu alllir að finna eithvað við hæfi.
1.
4.
6.
10.
8. 9.
3. 2.
13.
7.
11.
12. 5.
6 | embla
1. Húsgagnahöllin
Lene Serafina snjókarl 26 cm antik silfur
4.290,-
2. Húsgagnahöllin
Lene Bjerre Sella hnotubrjótur svartur 7×5,5×24 cm
5.990,-
3. Húsgagnahöllin
Lene Bjerre Nordic skrautkerti gull H10 cm
1.190,-
4. Húsgagnahöllin
Lene Bjerre Serafina bíll svartur 14x8x14 cm
4.290,-
5. Húsgagnahöllin
Broste kerti jólatré 10,5×12,5cm grátt
1.490,-
6. Húsgagnahöllin
Lene Bjerre Serafina jólatré 23 cm svart
3.790,-
7. FAKÓ
Jóla sokkur fjólublár/lilla l:46cm w:37cm
2.990,-
8. FAKÓ
Könglar í poka m/glimmer 5 stk stærri gerðin
1.395,-
9. FAKÓ
Kertastjaki Wilma, Brass finish, dia:9 h:9cm
1.300,-
10. FAKÓ
Jólaskraut upphengis köngull
11. FAKÓ
Stjarna 9 piont Brún/svört 45cm
1.295,-
12 FAKÓ
Jólabíll bjalla svartur 12,5cm
3.400,-
13. FAKÓ
Svartur jóla köngull upphengis grannur lengri
1.695,-
475,-
handgert, hver og einn einstakur.
Mávahlíð 16, opið virka daga kl. 13 –18
embla | 7
kervik.is
MYNDIR:. Hákon Davíð Björnsson 2020. Hús og híbýli, 2020
litatónar á Holtsgötunni
innlit INNLIT
TEXTI: María Erla Kjartansdóttir, 2020. Hús og híbýli, 2020
Notaleg stemning og náttúrulegir
Við kíktum í heimsókn í fallega, bjarta íbúð í Vestur bænum þar sem þau Hrafnhildur Ylfa Magnúsar dóttir, Guðjón Ólafsson og einn lítill bráðum þriggja ára Mikael Máni Guðjónsson búa. Íbúðin er ekki stór í sniðum en þegar maður gekk inn fann maður fyrir mikilli ró og góðu andrúmslofti. Hrafnhildur starfar sem flugfreyja og er dugleg að versla er lendis og fá munir héðan og þaðan úr heiminum að njóta sín á heimilinu. Hún var einmitt nýlent en lét það ekki stoppa sig í að fá okkur í heimsókn. Djasstónlist var á fóninum og dásamleg birta lék um íbúðina. Við fengum okkur kaffi og spjölluðum meðan Hákon ljósmyndari smellti af.
8 | embla
Gott skipulag og Portofino-garðurinn heillaði Íbúðin er 72 fermetrar og flutti fjölskyldan inn í nóvember 2017. „Þetta eru okkar fyrstu íbúðarkaup en við leigðum áður á Ásvallagötu af foreldrum Guðjóns. Þegar ég var lítil bjó ég á Ægissíðunni og þegar við fluttum aftur í Vesturbænum eftir að hafa búið við Elliðavatn hugsaði ég með mér að ég ætlaði aldrei að flytja héðan aftur, ég hef bara svo sterka tengingu við þetta hverfi og sérstaklega Ægissíðuna.“ Hrafnhildur segist ekki hafa verið yfir sig hrifin þegar þau komu að húsinu í fyrstu eftir þónokkra leit að réttu íbúðinni. „Ég vildi helst ekki skoða íbúðina en svo þegar við komum upp
„Svo eru það suðursvalirnar sem eru æðislegar á sumrin og ekki að ástæðulausu að íbúarnir á svæðinu kalla bakgarðinn Portofino enda verður algjör hitapottur hérna á sumrin.“
embla | 9
Notaleg stemning og náttúrulegir litatónar á Holtsgötunni
heillaðist ég algjörlega. Andrúmsloftið var svo gott og við fundum að þetta væri sú rétta. Hún virkar töluvert stærri en hún er, er með aukaher bergi og vel upp sett. Hugmyndin var að stækka meira við okkur, við vorum að horfa á kannski 90-100 fermetra íbúðir en eftir að við komum inn í þessa íbúð þá var ekki aftur snúið. Íbúðin var svo björt, praktísk og heillandi sem var góð tilbreyting frá mörgum gömlum íbúðum sem við höfðum skoðað í Vesturbænum. Svo eru það suðursvalirnar sem eru æðislegar á sumrin og ekki að ástæðulausu að íbúarnir á svæðinu kalla bakgarðinn Portofino enda verður algjör hitapottur hérna á sumrin.“ Sólin skín inn og maður getur rétt ímyndað sér hvað það verður heitt að sumri til. „Við keyptum íbúðina af Axel Kaaber sem er arkitekt og hann var búinn að gera nánast allt upp, færa eldhúsið inn í stofu sem áður hafði verið þar sem barnaherbergið er núna sem opnaði hana töluvert. Stofan er því algjör miðpunktur íbúðarinnar. Það er mikill kostur að geta verið með gesti í mat, verið að elda og spjallað saman á meðan. Frá fyrsta degi sáum við svo líka hvað nágrannarnir voru
„Ef ég yrði að fara mjög langt frá Vesturbænum í framtíðinni þá gæti ég hugsaði mér að flytja til Ítalíu á eldri árum,búa á einhverri geggjaðri vínekru, þar sem ég væri umkringd lavender-ökrum, fallegri náttúru… og kannski smá rauðvíni.”
10 | embla
vingjarnlegir en einn nágranninn eiginlega seldi okkur íbúðina strax daginn sem við komum að skoða. Hann stóð úti á svölunum í sumarblíðunni, dásamaði Holtsgötuna og Portofino-garðinn og hálfpartinn bauð okkur velkomin! Flestallar íbúðir sem við skoðuðum á sama svæði voru ekki upp á sitt besta þrátt fyrir að vera fallegar, en hér var búið að ganga frá öllum lausum endum,“ bætir hún við. Hrafnhildur og Guðjón þurftu því ekki að ráðast í neinar stórvægilegar framkvæmdir. Þau máluðu íbúðina og ákváðu að taka smá snúning á baðherberginu. „Góð vinkona mín, Sara Dögg innanhúsarkitekt mætti frá fyrsta degi og hjálpaði okkur meðal annars með litaval á gangin um, með baðherbergið og svefnherbergið okkar. Þar voru málin rædd í þaula, sérstaklega þegar kom að því að ákveða hvort við ættum að mála loftin dökk líka, í sama lit og veggirnir. Það var niðurstaðan í forstofunni og inni á baði - og við elskum það. Gangurinn sem tekur á móti manni er faðmandi, ef svo má að orði komast,“ segir hún og brosir, „þegar maður mætir heim fær maður þessa notalegu heimilislegu tilfinningu.
„Ég ferðast mikið, utan vinnu líka, og dreg ótrúlegustu hluti með mér heim og læt ferðalagið yfirleitt ekki stoppa mig að burðast með þunga hluti.“
Inni á baði settum við svo upp dökkt sturtugler frá Glerborg og fórum í „low budget” aðgerðir á gólfinu þar sem við dúkuðum einfaldlega yfir bláar flísar sem okkur fannst ekki nægilega fallegar. Dúkinn keyptum við í Parka fyrir slikk, létum flota yfir flísarnar og svo mætti þessi fíni dúkari og kláraði málið fyrir okkur. Ódýr lausn fyrir þá sem vilja breyta fyrir lítinn pening.“ Hrafnhildur segist lengi hafa verið hrifin af Victorian-flísastíl svo að svarthvítur dúkur í þeim anda varð fyrir valinu. „Við urðum svo reyndar fyrir því óhappi að það fór skyndilega að leka á bak við baðið sem leiddi til þess að það þurfti að brjóta upp flísarnar við baðkarið. Í stað þess að setja aftur sömu hvítu flísarnar á baðkarið þá ákváðum við að brjóta þetta aðeins upp með því að smella svörtum möttum flísum úr Flísabúðunni með svartri fúgu þar í staðinn og erum við mjög ánægð með útkomuna.“ Að ná fram réttu stemningunni Aðspurð segist Hrafnhildur ekki mikið að eltast við tískustrauma innanhússhönnunar og velur þá hluti sem henni þykir fallegir hverju sinni. „Ég er ekkert endilega að sækjast eftir því að
eiga þessar týpísku hönnunarvörur. Núna á óskalistanum er þó Vertigo-ljósið sem er selt í HAF Store, Flos 265-vegglampinn, Gubi chair við borðstofuborðið eða Hans Wegner-stólarnir í náttúrulegum lit. Rough Tabletop-borðstofuborðið í Norr11 væri mjög svo velkomið heim til mín og fallegt málverk.“ Hún segist einnig heillast mikið af marokkóskri hönnun í bland við New York-loft stíl og að einhverju leyti skandinavískum stíl. Gott flæði er í íbúðinni og mjúkir litatónar tengja rýmin vel saman. Hvaða litir skyldu heilla Hrafnhildi hvað mest? „Mér finnst náttúrulegir tónar í bland við grænt ótrúlega falleg samsetning. Hnotuviður finnst mér fallegur á móti því svarta og hvíta, hann kemur með þennan hlýleika inn á móti sem mér finnst skipta máli.“ Lýsing skiptir Hrafnhildi einnig miklu máli til að ná fram réttu stemningunni. „Það gladdi ljósameistarann mjög mikið að það væru dimmerar í íbúðinni,“ segir hún og hlær. „Lýsing getur algjörlega breytt stemningu eins og á kvöldin eða þegar maður er með matarboð að maður geti svolítið stjórnað stemningunni. Það að heildarmyndin sé falleg og að maður fái þessa tilfinningu að maður sé kominn heim. Sú tilfinning finnst mér myndast með góðri lýsingu og auðvitað með fallegum kertum, teppum og púðum.“ Er eitthvað sem þú hefur tilhneigingu til að kaupa meira af en annað? „Ómeðvitað safna ég kertum í fallegum krúsum eða stjökum. Ég sanka svo að mér allskyns skálum frá mismunandi löndum en þau kaup réttlæti ég yfirleitt með því að segja sjálfri mér að ég geti borið fram ólífur í þeim. Svo er ég með einhverja óútskýrða þörf fyrir því að kaupa skurðbretti í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Ég er líka ofboðslega hrifin af Frederik Bagger og hef verið að fá glösin frá honum í gjafir.“ Eins og áður sagði starfar Hrafnhildur sem flugfreyja og er dugleg að skanna búðir erlendis. Hvaða verslanir ætli séu í uppáhaldi? „Ég ferðast mikið, utan vinnu líka og dreg ótrúlegustu hluti með mér heim og læt ferðalagið yfirleitt ekki stoppa mig að burðast með þunga hluti. Ég til að mynda brasaðist heim með mottu og fjögur ljós frá Marokkó þegar ég fór þangað árið 2015, þá ólétt. Erlendis eru uppáhaldsbúðirnar West Elm, CB2, Zara Home og svo finnst mér æðislegt að ramba inn á einhverjar götur eða markaði þar
embla | 11
Notaleg stemning og náttúrulegir litatónar á Holtsgötunni
sem ég finn mér fallega muni sem skilja svo eftir sig góðar minningar. Verslunina Arket fer ég svo oftast í þegar ég heimsæki pabba til Gautaborgar. Hún er í algjöru uppáhaldi, þar er líka kaffihús sem aðrir fjölskyldumeðlimir, þar á meðal sá litli, geta dundað sér og bragðað á hollum og góðum mat í fallegu umhverfi á meðan maður fær að spóka sig um í búðinni.” Hérna heima segir hún Norr11, Magnolia og Söstrene Grene vera í mestu uppáhaldi. Ég verð svo að nefna Tekk/Habitat líka en þar keyptum við stofusófan okkar. Hann hefur fengið mikla athygli og stækkaði stofuna heilmikið þrátt fyrir að vera svona langur, græni stóllinn við sófann er líka þaðan.“ Sófaborð úr bandaríska sendiráðinu Þau Hrafnhildur og Guðjón hafa valið gaumgæfi lega þau húsgögn sem eru í íbúðinni og í bland er að finna eldri hluti sem þau hafa meðal annars fengið úr fjölskyldunni. Eru einhverjar skemmti legar sögur á bak við húsgögnin? „Þegar við fluttum inn þá vissi ég að ég vildi koníakslitaðan sófa. Eina sem mér fannst erfitt við það val var að ég var í miklum vandræðum með að finna sófaborð í stíl. Ég fékk sófaborð í heimlán frá hinum og þessum búðum en ég rakst svo loksins á borðið sem smellpassaði við sófann á Bland.is. Ég keypti það af strák í Grafarvoginum sem hafði keypt borðið á uppboði í bandaríska sendiráðinu. Þegar ég næ svo í það þá spyr hann mig af hverju ég hafði ákveðið að kaupa það og hvort þetta væri eitthvað flott merki. Það er það alls ekki held ég, en það smellpassaði inn hérna heima og við sófann. Rúmteppið mitt líka, það bar ég heim 13 ára gömul úr Zara Home í utanlandsferð með foreldrum mínum, það fylgir mér ennþá. Borðstofuborðið og grænu stólarnir koma svo frá ömmu Guðjóns, okkur þykir ótrúlega vænt um það sett. Þegar við fluttum inn þá var ég mjög upptekin af því að hafa allt í náttúrulegum tónum, gráum, svörtum í bland við hnotuvið. Ég var þess vegna ekki alveg viss með grænu stólana fyrst og ætluðum við alltaf að bólstra og breyta þeim – en ég sé ekki eftir því núna að hafa haldið þeim upprunalegum þar sem þeir hafa unnið á og setja meiri karakter á heimilið.“ Hrafnhildur hefur frá því hún man eftir sér viljað umkringja
12 | embla
sig fallegum hlutum en að hennar sögn hefur stíllinn breyst með árunum. „Á yngri árum vildi ég hafa allt hvítt og í frönskum rómantískum stíl. Ég er komin yfir í aðeins dekkri litatóna sem tóna vel á móti þessum náttúrulegu litum heima.“ Heimilið er persónulegt og setja fallegir smámunir skemmtilegan svip á íbúðina en Hrafnhildi þykir mikilvægt að fylgja eigin sannfæringu og stíl. Hvað ætli geri hús að heimili að hennar mati? „Ég hef persónulega ótrúlega gaman af því að koma inn á heimili og sjá hversu mismunandi fólk raðar upp formfögrum hlutum sem hafa einhverja sögu að segja. Ég áttaði mig líka á því þegar ég flutti inn að það þurfti ekki að kaupa allt nýtt og fannst mér heimilið mun persónulegra með því að halda í eitthvað af gömlu hlutunum sem fylgdu okkur og við jafnvel gerðum upp.“ Spurð hvaðan Hrafnhildur fái innblástur segist hún umkringd mikið af smekkfólki. „Einnig finnst mér ótrúlega gaman að koma inn á falleg hótel og veitingastaði. Ég tek líka eftir fallegum hlutum í bíómyndum eða þáttum, tímaritum, Pinterest og Instagram.“ Þykir þér mikilvægt að vera með plöntur og blóm á heimilinu? „Já, klárlega. Ég elska að hafa lifandi plöntur í kringum mig og ég er sífellt að kaupa nýjar plöntur og blóm. Eini gallinn er að ég er kannski ekki sú albesta í að halda þeim á lífi. Eucalyptus-greinar eru í miklu uppáhaldi ásamt Lavender, eitthvað sem getur notið sín eftir að greinarnar þorna. Orkídeur eru líka í miklu uppáhaldi og ég næ yfirleitt að halda þeim lengi á lífi,“ bætir hún við brosandi. Hvernig væri draumahúsið? Værirðu tilbúin að flytja úr Vesturbænum? „Draumurinn væri stórt hvítt einbýlishús í 101 Reykjavík, með frönskum stórum gluggum. Ég hef haft augastað á einu tilteknu húsi á Hólatorgi lengi vel og öðru á Öldu götu. Þar sem ég er alin upp við Elliðavatn væri hús við Elliðavatn og fallega náttúru eitthvað sem myndi heilla mig.
Jólin koma
upplifðu töfra jólanna í Höllinni ... heima
www.husgagnahollin.is embla | 13
Keramik hönnuðurinn Guðbjörg Káradóttir
Uppgötvaði öskuna óvart Meðal þess sem Guðbjörg hefur mikið verið að vinna með undanfarin ár er eldfjallaaska. „Ég er núna aðallega að vinna með postulín og bland af eldfjallaösku sem ég meðhöndla svo ég nái réttri áferð og lit sem er svona grátóna. Ég er búin að vinna mikið við að þróa aðferð til þess að búa til
þennan lit og þessa áferð. Ég þarf að vesenast dálítið með hana svo að ég fái nákvæmlega út komuna sem ég vil.“ Guðbjörg segir það hálfgerða tilviljun að hún hafi byrjað að vinna með ösku. „Ég var að vinna í allt öðruvísi verkefni fyrir Bláa lónið og var þá að vesenast með þessa eldfjallaösku. En af því að það er svo þröngt hjá mér og þetta svona subbulegt þá varð postulínið mitt dálítið skítugt af eldfjallaösku. Þannig að þetta var hálfgerð tilviljun, að það smitaðist af þessu verkefni yfir í postulínið. Þá ákvað ég að byrja að prófa að blanda þessu efni í postulínið og síðan er ég búin að vera að sækja ösku út um allt.“ Blaðamaður spyr Guðbjörgu hvar og hvernig hún finni ösku. „Ég fer með skóflu á hina ýmsu staði. Til dæmis í sumar fór ég hjá Kötlujökli, fékk ösku úr Grímsvötnum 2011, á Kirkjubæjarklaustri og síðan á Suðurnesjum.“ Eldfjallaaskan sé ekki ósvipuð öðrum efnum. „Hún er bara frekar lík öðrum keramikefnum. Ég er að vinna með alls konar efni og þarf að passa að mörg þeirra smitist ekki út í eitthvað sem þau eiga ekki að smitast út í. En svo er þetta bara svipað.“
MYNDIR: Rakel àsk Sigurðardóttir 2020, www.homofaberguide.com
Guðbjörg hefur um árabil fengist við kennslu sam hliða leirlistinni. „Ég er búin að vera keramiker síðan ég útskrifaðist úr keramikdeildinni í Mynd lista- og handíðaskólanum árið 1994. Ég byrjaði með verkstæði sem gekk ágætlega en svo leiddist ég út í kennslu hægt og rólega og fór að kenna námskeið með. Svo árið 2000 fór ég í kennaranám og fór að kenna meira en núna síðustu ár hef ég minnkað við mig kennslu og keramikið orðið meira aðalstarf.“ Hún segir kennsluna og leirlistina fara vel saman. „Ég er alltaf að kenna keramik þannig að það fer ágætlega saman. Mér finnst voðalega gaman að brjóta aðeins upp daginn með því að skreppa í skólann og það er auðvitað mjög gaman að kenna ungum og áhugasömum krökkum.“
Óvæntar litasamsetningar Guðbjörg sækir innblástur og hráefni víða. „Af því að ég er að vinna með efni úr jörðinni þá tengist það auðvitað náttúrunni okkar og það er dálítið eins og einn hlutur leiði mig í næsta hlut. Það sem heillar mig mest eru óvæntar litasamsetningar í náttúrunni en samt er ég ekki neitt mjög mikill „coloristi“ sjálf. Ég vinn mikið með grátóna og hvíttsvart en ég dáist að litunum í náttúrunni án þess að geta einhvern veginn fangað þá almennilega sjálf. Ég vildi að ég gæti það.“ Postulínsjólatrén hennar Guðbjargar eru einstaklega falleg og hátíðleg.
14 | embla
MYNDIR: www.kerrvk.is
TEXTI: Hjördís Erna Þorgeirsdóttir https://www.frettabladid.is/lifid/fer-me-skoflu-og-skir-eldfjallaosku/
viðtal VIÐTAL
Keramikerinn Guðbjörg Káradóttir kynntist og kolféll fyrir leirlistinni þegar hún var í lýðháskóla í Noregi á níunda áratugnum. Guðbjörg á fyrirtækið KER þar sem hún hefur meðal annars verið að vinna með eldfjallaösku.
Þarftu að prenta? – Litlaprent græjar þig Bæklingar
Stansar
Dagatöl
Gormabækur
Reikningar
Bréfsefni
Umslög
Nafnspjöld
Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi 540 1800 Opið virka daga : 8:00–16.00 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is
Kiljubækur
Rissblokkir
Prentun er okkar fag. Hjá Litlaprenti starfa prentarar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Öflugur og fullkom– inn vélakostur skilar viðskiptavinum okkar vönduðu og góðu prentverki. Litlaprent býður upp á uppsetn– ingu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum eða bókum og fjölbreytt úrval á frágangi prentverks.
embla | 15
GRAFÍA fjárfestir í þinni framtíð
HÖNNUN: ANDREA SÍMONARDÓTTIR
– Kynntu þér málið #fræðslusjóður
Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar. Stórhöfða 31, 110 Reykjavík 5400 100 | grafia@grafia.is www.grafia.is GRAFÍA er aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands - rafis.is
16 | embla
GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum