Skip to main content

Embla - Agnes Lilja Jóakimsdóttir

Page 1

1. tbl. 10. árg.

Grafísk miðlun

Vor 2021

| EMBLA

E MBLA

1


GJÖRBREYTT FRÆÐSLUFRAMBOÐ

Youtube örfræðsla Námssamningar

Námskeið

Heimsókn í fyrirtæki

Hlaðvörp Endurmenntun Opnunartími mán.–fim. 9:00–16:00 fös. 9:00–16:00 Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík idan@idan.is | idan.is | 590 6400


Leiðari

Embla er lokaverkefnið okkar sem ein­staklingar, sem er svo partur af einu og stærra lokaverkefni, tímaritinu Ask. Í Emblunni minni tók ég saman nokkra hluti sem eru partur af mínu víða áhugasviði! Það er mikil vinna lögð í þetta tímarit sem ég vona að skíni í gegn og að þú kæri lesandi njótir lestursins. Gleðilegt sumar!

Umbrot og hönnun Agnes Lilja Jóakimsdóttir Hönnun forsíðu Agnes Lilja Jóakimsdóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Ljósmynd á kynningarsíðu Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír UPM digi 150 g/m² UMP digi 170 g/m²

04 Um mig 06 Vistvænar vörur 08 Letterpress 10 Dásamleg súkkulaðikaka 12 Sylvía Haukdal 14 Náttúrulaugar

| EMBLA

Nú er komið að lokum og útskrift fram­undan. Námið hefur verið fjölbreytt, krefjandi og skemmt­ilegt. Grafísk miðlun opnar ótal dyr og býður upp á mörg tækifæri.

3


4

| EMBLA


AGNES LILJA

Agnes Lilja heiti ég, fædd í Reykjavík árið 1997 en alin upp á Húsavík frá fimm ára aldri og það má því segja að stælar borgar­barns­ins hafi fylgt mér frá fæðingu. Í grunnskóla var textílmennt í uppáhaldi og ég var farin að skoða hönnun snemma, meira en ég gerði mér grein fyrir. Hafði mjög sterka skoðun á litum og það komst sko enginn upp með að klæða mig í bleikt, þó svo að sá litur fari ekkert í taugarnar á mér í dag. Heima við litaði ég, saumaði og breytti herberginu mínu u.þ.b. einu sinni í viku. Það má því segja það tímaspursmál hvenær ég myndi skrá mig í hönnunartengt nám.

| EMBLA

Ég úskrifaðist með stúdentspróf frá Framhaldsskólanum á Húsavík 2018 en fyrir það staldraði ég við í Verkmenntaskólanum á Akureyri í hárgreiðslunámi þar sem litafræði og teikning voru áfangar fyrir mig, restin, ekki svo mikið. Því lá leið mín suður yfir heiðar því mér fannst ekkert henta á öllu Norðurlandi. Þar fann ég grafíska miðlun. Ég er svo ótrúlega þakklát og ánægð að hafa skellt mér í þetta nám og sinnt því með sóma. En nú er þessum kafla lífsins að ljúka og ég spennt fyrir því að sjá hvaða dyr þetta opnar og hvað framtíðin ber í skauti sér!

5


VISTVÆNAR VÖRUR Á HVERT HEIMILI

Stálrör + bursti Stálrörin frá Hestia koma fjögur saman með þrifabursta og poka til að geyma þau í. Hægt að fá þau bæði bogin og bein.

Uppþvottabursti

Uppþvottaburstinn hjá okkur er plastlaus og því betri fyrir umhverfið. Þegar gamli hausinn er orðinn ljótur tekur þú hann einfaldlega af og skiptir.

Límband Límbandið hentar í hvað sem er og er endurvinnanlegt. Það er gert úr Tesa pappír sem er einstaklega slitsterkt. Rúllan er 50 m x 5 cm og er brún á litinn. Taupoki Stílhreinn og rúmgóður taupoki úr lífrænum bómul. Hentar frábærlega við fjölbreyttar aðstæður, allt frá skreppi í búðina yfir í sundferðina. Pokinn er ómerktur.

Vatnsflaska 550 ml drykkjarflaska úr gleri. Tappinn er úr bambus og slitsterkur sílíkon hólkur utan um flöskuna. Netapoki Netapoki með 18 kílóa burðarþol. Hentar fullkomlega í búðarferðina, sundið, á ströndina eða bara hvert sem er. Fæst með tveimur höldum eða einu sem er t.d. hægt að slengja yfir öxlina. Bómullarskífur 12 stk.

| EMBLA

Handgerðar bómullarskífur úr Þingeyjarsveit, heimabyggð Vistvænu Búðarinnar, heklaðar af Járnbrá. Henta vel til að hreinsa andlit og taka af farða dagsins. Má þvo í 95°C.

6

Uppþvottasápa LoofCo uppþvottasápustykkið er góður valkostur fyrir þá sem vilja hætta að nota sápu úr plastbrúsa. Gott fyrir umhverfið og öflugt á fitu.

Ljósmyndir og texti: Vistvaena.is


VerÐskrá Stálrör + bursti.............................................................. 600 kr. Uppþvottabursti............................................................ 790 kr. Límband........................................................................ 890 kr. Taupoki.......................................................................1.896 kr. Vatnsflaska................................................................. 3.190 kr. Netapoki.................................................................... 2.390 kr. Bómullarskífur............................................................ 2.190 kr. Uppþvottasápa.............................................................. 860 kr. Afhverju að skipta út plaströrunum? „Samkvæmt bandarískri rannsókn kom fram að um 500 milljón sogrör séu notuð á hverjum degi í Bandaríkjunum einum og sér. Talið er að um 8,3 milljarðar plaströra mengi strendur heimsins. Átta milljón tonn af plasti renna til sjávar ár hvert og eru sogrör skaðlegt hlutfall af því.“

Vistvæna búðin | Sunnuhlíð 12 | 603 Akureyri | Opið virka daga frá 12:00–18:00 | Opið laugardaga frá 12:00–15:00

RÁÐSTEFNA

Skráðu þig hér!

FYRIRLESARAR Stefán Pálsson Katrín Jónsdóttir

FORELDRAJAFNRÉTTIS

Verður haldin í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi 1.–2. maí. Hátíðarmálsverður 2. maí kl 18.00 í Silfurbergi. Mikilvæg atriði sem nauðsynlegt er að breyta: ~ ~ ~ ~ ~

Dómarar fái heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Stuðla að sem mestri umgengni við báða foreldra. Börn geti átt tvö lögheimili og dvalið á þeim báðum. Meðlagsgreiðslukerfið verði endurskoðað frá grunni. Kostnaður við umgengni verði sameiginlegur.


press

Ljósm.: Erik Mclean

Ljósm.: Fabio Samtaniello Bruun

LETTER

Upphaf letterpress prentunar má rekja til áranna í kringum árið 1450. Á þessum árum var letterpress prentun aðal prentaðferðin sem var notuð en hún skipti höfuðmáli í samskiptum fólks og var notuð í a.m.k. 500 ár. Bækur voru gefnar út með þessum hætti en í dag er frekar litið á þessa aðferð sem listform. Hugmyndafræðin á bakvið letterpress er ein sú elsta í heiminum en hana má rekja til Kína allt aftur til ársins 175 eftir Krist. Síðar meir tók þessi aðferð að flytjast til fleiri landa eins og Tyrklands, Kóreu, Japan, um alla Asíu og Evrópu.

Það var svo á 14. öld sem Johann Gutenberg fann upp vél sem hægt var að nota í letterpress. Hans markmið var að gefa út bækur fyrir al­menning en þegar þarna er komið við sögu voru stafir skornir úr við og litur settur á. Viðarstöfunum mátti alls ekki þrykkja í pappírinn svo sæist, en með því var einfaldlega verið að skemma letrið. Þetta var eins og gefur að skilja töluvert tímafrek vinna. Gutenberg vildi gera ferlið einfaldara og skilvirkara og það gerði hann með því að finna upp á nýrri aðferð til að útbúa stafina sem notaðir voru í prentunina. Gutenberg fór að nota blýstafi en til að byrja með þarf að útbúa stafina sem voru notaðir í prentun­ina. Fyrst þurfti að móta og þjala stafina úr stáli, þeir voru síðan notaðir til að pressa ofan í mýkri málm, eir í þessu tilfelli. Eir búturinn var síðan notaður sem mót en í það var hellt blýblöndu. Stafurinn var þá tilbúinn og hægt að nota hann í prentunina. Í nútíma letterpress prentun er aðferðin orðin enn önnur. Pólýmer prentklisjur hafa tekið við en þær hafa meiri herslu og bjóða upp á að grafíkinni sé þrykkt djúpt í þykkan og mjúkan pappír.

8

Ljósm.: helloimnik

| EMBLA

Blýstafir komu í stað viðarstafa og á þessum tíma­punkti varð prent­pressan til. Með tímanum þróuðust svo aðferðir sem gáfu betri gæði og meiri hraða í framleiðslu. Offset­prentun sem er aðal prentaðferð dagsins í dag kom fyrst fram árið 1875 en það var Robert Barclay sem átti þá hug­mynd. Árið 1904 kom I. W. Rubel með frekari upp­færslu á þeirri aðferð.


Þessi aðferð byggir á svokallaðri stimpilprentun. Þegar prenta á með letterpress þarf að byrja á því að raða upp stöfum og merkjum sem eiga að koma fram á prent­gripnum í svokallaðan haka. Myndir sem áttu að vera í prentinu eru kallaðar klisjur, en til þess að búa þær til var 2 mm magnesíum plata þakin ljós­næmu efni, filma síðan lögð ofan á og lýst. Þegar prentlit er síðan smurt á plötuna er einungis hluti þess sem flyst á milli. Klisjum og letri er síðan raðað í prentmót og notað til prentunar. Prentliturinn sem var notaður í slíka prentun er sambærilegur og prentliturinn sem notaður er í offsetprentun en það er olíuprentlitur sem inniheldur litarefni og bindiefni. Prentmótinu er komið fyrir í prentvélinni og prentlitnum smurt á með völsum í vél. Vélin sér síðan um að þrykkja því í pappírinn. Í nútíma prentsmiðjum

er ekki mikið um að olíuprentlitir séu notaðir í prentun, í staðinn er notaður jurtaprentlitur sem er einnig betri fyrir umhverfið. Þessi aðferð er hins vegar ekki gallalaus frekar en annað. Það er frekar vandmeðfarið að nota þverendaletur í slíka prentun. Til þess að komast upp með að nota slíkt letur þarf að vanda valið vel og nota „klassískt“ letur og gæta þess að þverendarnir glatist ekki í prentuninni. Til þess að prentliturinn komi sem best út og í sem mestum gæðum þarf að passa vel að hann sé rétt borinn á og að prentmótinu sé vel þrýst í pappírinn. Í letterpressprentuninni þótti það gæðamerki að prentliturinn þekti vel án þess að það sæist hæðarmunur á pappírnum. Í dag er áherslan hins vegar orðin aðeins önnur og nú er krafan um að hæðarmunur sé til staðar á pappírnum orðin meiri.

Texti: Agnes Lilja Jóakimsdóttir

Hvernig virkar letterpress?

Ljósm.: Bruno Martins

Ástríða fyrir grafískri áferð og þeirri dýpt sem prentaðferðin gefur skilar sér í margskonar fallegum prentgripum svo sem nafnspjöldum, merkimiðum, boðskortum, glasamottum og svo lengi mætti telja. Einnig hanna þær og framleiða eigin vörulínu þar sem áhersla er lögð á gleði og leik í texta og grafík.

| EMBLA

Auk þess að bjóða upp á alhliða grafíska hönnun hefur stofan sérhæft sig í Letterpress prentun, aldargamalli prentaðferð með nútíma tvisti.

Ljósmyndir og texti: Letterpress Reykjavík

Reykjavík Letterpress er hönnunarstofa stofnuð haustið 2010 af grafísku hönnuðunum Hildi Sigurðardóttur og Ólöfu Birnu Garðarsdóttur. Í dag er stofan rekin af Ólöfu og Birnu Einarsdóttur sem einnig er eigandi.

9


10

| EMBLA


Dásamleg súkkulaðikaka með súkkulaði og karamellukremi

Innihaldsefni

Aðferð

Súkkulaðibotnar

Súkkulaðibotnar

600 g sykur 315 g hveiti 115 g kakó 2 ¼ tsk. matarsódi 2 ¼ tsk. lyftiduft 1 ½ tsk. salt 3 egg 165 ml olía 330 ml mjólk 330 ml heitt vatn 3 tsk. vanilludropar

1. Byrjum á því að hita ofninn 175°c blástur. 2. Setjum hráefnin í hrærivélaskál og hrærum saman. 3. Þegar við höfum hrært öllum þurrefnum saman bætum við eggjum, olíu, heitu vatni, mjólk og vanilludropum saman við og hrærum þar til allt hefur blandast vel saman. 4. Næst penslum við þrjú 20 cm bökunarform með olíu og setjum bökunarpappír í botninn og penslum svo aftur yfir pappírinn með olíu. 5. Svo fara botnarnir inn í ofn við 175°c (blástur) í um það bil 25 mínútur eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni. 6. Þegar botnarnir koma úr ofninum losum við hliðarnar á forminu og hvolfum úr þeim á bökunarpappír eða kæligrind.

Smjörkrem 1 kg smjör við stofuhita 1 kg flórsykur 7 msk. rjómi, má vera mjólk 2 tsk. vanilludropar

Smjörkrem

Súkkulaðikrem með karamellu

Súkkulaðikrem með karamellu

150 g suðusúkkulaði með karamellu og salti, brætt 100 g karamellukurl 250 g smjörkrem

1. Við byrjum á því að bræða súkkulaði yfir vatnsbaði, leyfum því síðan að kólna örlítið. 2. Næst setjum við smjörkrem (250 g) í hrærivélaskál og þeytum brædda súkkulaðinu saman við kremið. 3. Að lokum hrærum við karamellukurlinu saman við.

1. Við byrjum á því að þeyta smjör þar til það verður létt og ljóst. 2. Næst bætum við flórsykri, rjóma og vanilludropum saman við og þeytum þar til kremið er orðið vel ljóst og dúnmjúkt.

Samsetning

Ljósmyndir og texti: sylviahaukdal.is Sprinkles fæst í Bake me a wish Ísland

| EMBLA

1. Við byrjum á því að setja smá smjörkrem á platta eða disk sem kakan á að fara á og setjum síðan fyrsta botninn ofan á. 2. Síðan fer súkkulaðikrem ofan á og næsti botn ofan á kremið. 3. Setjum aftur súkkulaðikrem ofan á botn númer tvö og setjum síðasta botninn ofan á. 4. Næst setjum við kökuna inn í kæli og leyfum kreminu að stífna aðeins. 5. Þegar kremið hefur stífnað á kökunni setjum við þunnt lag af smjörkremi utan um alla kökuna og setjum hana síðan aftur í kæli. Með því að gera þetta komum við í veg fyrir að fá mylsnu í kremið. 6. Síðan setjum við aftur krem utan um kökuna og skreytum að vild.

11


VIDTAL Sylvía Haukdal

Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir er fædd og uppalin á Húsavík. Hún hefur tekið að sér mörg verkefnin í gegnum tíðina en nú er hennar helsta verkefni að færa gleði í veislur með fallegum kökum og bakkelsi. Auk þess heldur hún úti vefsíðunni sylviahaukdal.is og hefur framleitt þættina „Bakað með Sylvíu Haukdal“ sem eru aðgengilegir á Stöð 2 maraþon. Við fengum hana til okkar í smá viðtal til að forvitnast um hvað hún er að gera í dag. Fullt nafn: Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir. Við hvað starfar þú? Eigandi Bake me a wish. Hvar stundaðir þú nám? Ég kláraði stúdentspróf á Íslandi og fór svo í Le cordon bleu í London og lærði Pastry chef. Hvað ertu að gera í dag? Er eigandi Bake me a wish, starfa þar við rekstur og að baka. Svo vinn ég líka aðeins á samfélagsmiðlum.

Ljósmynd: Sylvía Haukdal

Hvað er best við að vera sinn yfirmaður? Ahh ég veit það ekki, ég ræð svolítið hvernig ég raða upp verkefnum og hvað það er sem ég vil selja í búðinni. Eins bara hvert ég vil fara með fyrirtækið. Það er líka kostur að velja hvaða fólki maður kýs að vinna með því það er svo mikilvægt að starfsandinn sé góður á vinnustaðnum.

Hvað finnst þér skemmtilegast að baka? Úff það er svo margt, fer svolítið eftir því í hvernig stuði ég er. Ég elska að gera stórar kökur eins og brúðartertur en svo elska ég líka að baka heima með stelpunum mínum þar sem við gerum oft vöfflur, muffins, snúða eða skúffuköku. Hvaðan kemur áhuginn?

| EMBLA

Ég hef alltaf haft áhuga á því að gera eitthvað í höndunum og elskaði að föndra og baka með mömmu í eldhúsinu á Húsavík. Ég byrjaði fyrst í fatahönnun, smám saman fór ég að baka meira og prófa mig áfram með allskonar skraut og fann hversu vel það höfðaði til mín.

12

Hvað er verst við að vera sinn yfirmaður? Það er sennilega ábyrgðin, það er mjög erfitt að leyfa sér að slaka á og hugsa ekki um vinnunna. Hvar líður þér best? Í eldhúsinu með fjölskylduna mína í kringum mig og í vinnunni. Það er svo mikilvægt að líða vel í vinnunni líka. Önnur áhugamál? Ég elska útiveru og ferðalög með fjölskyldunni. Svo auðvitað bara baksturinn hann er alltaf mjög ofarlega.


Bragðtegundir • • • • • • • •

Jarðarberja Súkkulaði Vanillu Vanillu (sykurlaus) Myntu og súkkulaði Toblerone Kökudeig Oreo

• • • • •

Mangó Sítrónu Kirsuberja Ananas Jarðarberja

KÚLÍS ÍSBÚÐ

KÖKUR ÚR BAKE ME A WISH

Ljósmyndir: Sylvía Haukdal

Vegan bragðtegundir

Kúlís ísbúð

Opnunartími

Kúlis_isbud

Virka daga frá kl. 11–22. Helgar frá kl. 14–22.

Kúlís ísbúð | Faxafen 11 | 108 Reykjavík sími 599 8888 | Kulis@kulis.is | Kulis.is


Pottarnir á Hauganesi

Seljavallalaug

Ljósmynd: Sól Stefánsdóttir

Ljósmynd: Karen Helenudóttir

Staðsetning

| EMBLA

Ljósmynd: Sól Stefánsdóttir

Fosslaug

Ljósmynd: Sól Stefánsdóttir

Gjald

Heydalur

Vestfirðir

1.000 kr.

Seljavallalaug

Suðurland

0 kr.

Fosslaug

Norðurland

0 kr.

Norðurland

1.000 kr.

Pottarnir á

14

Pottarnir á Hauganesi

Hauganesi

Heydalur

Ljósmynd: Heiða Norðkvist


Nafnspjöld

Dagatöl

Rissblokkir

Gormabækur

Bæklinga

Kiljubækur

FORVINNSLA FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

PRENTUN FORVINNSLA

PRENTUN

FRÁGANGUR

FRÁGANGUR FORVINNSLA

PRENTUN

LITLAPRENT

VIÐ PRENTUM

FRÁGANGUR

Skemmuvegur 4, blá gata 200 Kópavogur 540 1800 litlaprent@litlaprent.is

Opið alla virka daga frá 8:00 – 16:00


Vertu hluti af hópnum Kjaramál eru okkar mál. Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stór atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA

Stórhöfða 32, 3. hæð, 110 Reykjavík Sími 552 8755 | grafia@grafia.is | grafia.is

Hjá Grafíu getur þú einnig sótt um: • Fræðslusjóði • Ferðastyrki • Orlofshús • ... og fleira


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook