Skip to main content

Embla - Sveinn Hartvig Ingólfsson

Page 1


EKKi VERA RISAEÐLA

Náðu betri færni

Prent og miðlunargreinar eru skapandi og þróast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi eftir að námi lýkur.

IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn IÐAN býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.

Við hjálpum þér að:

• læra nýja færni

• fá reynslu metna

• komast lengra í starfi

Leiðari

Emblan er nú tilbúin og ég er afar ánægður með útkomuna. Verkefnið reyndist krefjandi og á köflum talsvert átak, en á sama tíma var það einstaklega skemmtilegt og lærdómsríkt. Í gegnum vinnuferlið hef ég öðlast reynslu og aukinn skilning. Ég er bæði sáttur og stoltur af eigin frammistöðu. þetta er Almennilegt nördablað sem fjallar um fjölbreytt viðfangsefni. Það sameinar afþreyingu og fróðleik á þann hátt að það vekur forvitni og heldur athygli lesandans, auk þess

4.

Um mig

6.

Dungeon crawler Carl

8. Run Lola run

Umrot

Sveinn Hartvig Ingólfsson

Útgefandi

Uplýsingatækniskólinn

að veita mér sjálfum mikla ánægju við vinnslu þess. Í blaðinu verður meðal annars fjallað um hina vinsælu bók Dungeon Crawler Carl, þar sem við skoðum ævintýri, persónur og vináttu. Einnig verður tekin fyrir þýska kvikmyndina Run Lola Run, þar sem greind verða þemu hennar, uppbygging og áhrif. Að auki leyfum við ímyndunaraflinu að njóta sín og setjum okkur í spor ferðalanga í ólíkum heimum, allt frá uppvakningaheimi til sögulegrar Rómar.

9. Uppvakningar

12.

Buster Keaton

14. Gladiatores

Letur

Unisvers 45 light - 9 /13 pt

Universe 55 roman - 9 /13 pt

Sveinn Hartvig Ingólfsson

Um miG

Ég er fæddur 29. desember 2005 í Reykjavík en ég ólst upp á Kirkjubæjarklaustri og stundaði nám í Kirkjubæjarskóla og æfði þar íþróttir mest alla barnæsku mín. Ég flutti síðan til Reykjavíkur árið 2019 klárað níunda og tíunda bekk í Réttarholtsskóla. Ég ákvað síðan að skrá mig í Tækniskólann í ljósmyndun og byrjaði þar árið 2021. Ég útskrifaðist úr ljósmyndun árið 2024 og stuttu eftir kláraði ég líka stúdentsprófið. Eftir stúdentspróf var ég ekki viss hvað ég ætlaði að gera. Fór út á vinnumarkaðinn í smá tíma og vinn á leikskóla. En haustið 2025 skráði ég mig í grafíska miðlun. Ég hef mikinn áhuga á öllu sem tengist sköpun til dæmis myndum, list, sögum, hönnun og öllu því sem er myndrænt. Þessi áhugi hefur veitt mér innblástur og gleði síðan ég man eftir mér. Ég hef alltaf verið listrænn og nýt þess að tjá mínar hugsanir og tilfinningar á skapandi hátt. Ég hef helst gaman af teiknimyndum, bíómyndum og ljósmyndum.

Dungeon Crawler Carl

Dungeon Crawler Carl er vísindaskáldsögu-, fantasíu- og gamanbók eftir Matt Dinniman, bandarískan rithöfund.

Dungeon Crawler Carl er þekktasta verk hans. Bókin hefur selst í yfir sex milljónum eintaka, sem kemur ekki á óvart. Sagan virkar nefnilega á margan hátt eins og tölvuleikur sem gerist í litríkum og óútreiknanlegum heimi þar sem maður veit aldrei hvað gerist næst. Persónurnar fá uppfærslur, nýja eiginleika og vopn, og margt í sögunni minnir á tölvuleik. Það er því líklegt að lesendur fá sömu tilfinningar og spennu eins og þeir sem spila tölvuleiki og nýir möguleikar koma í ljós.

Hvað er bókin um Bókin fjallar um Carl, 27 ára vélvirkja. Í upphafi sögunnar segir hann (bein tilvitnun) Carl er þó ekki einn í þessu ævintýri. Með honum er Princess Donut, persneskur köttur sem tilheyrði fyrrverandi kærustu hans. Donut er margverðlaunaður sýningarköttur. Þau tvö lenda saman í hættulegu ævintýri þar sem þau þurfa að lifa af og takast á við ýmsar áskoranir þegar geimverur tæma jörðina af auðlindum hennar. Þær umbreyta síðan plánetunni í risastóra dýflissu eða völundarhús sem virkar eins og sjónvarpsleikur, stýrt af fremur óviðeigandi gervigreind sem hefur fóta girnd á háu stigi.

Í þessum leik hitta þau margar skemmtilegar og furðulegar verur og ná fljótlega tökum á leiknum og reglum hans.

Dýflissan

Dýflissan er uppbyggð eins og tölvuleikur eða raunveruleikasjónvarp. Allt er gert til þess að fá

þeir geta, jafnvel þó þeir vilji það ekki. Því fleiri áhorfendur sem fylgjast með, því meiri líkur hefur einstaklingurinn á að lifa af og komast á næsta borð.

Artwork © Luciano Fleitas • Used with permission

af öllum skrímslunum á hverri hæð og það er ekki gott að hita einn slíkan einn síns liðs. Í raun er vonlaust að sigra þá nema í samfloti með öðrum ,,crawlers.”

Þegar keppandi eða „crawler” fer inn til stjórans eða hittir slíkt skrímsli heyrist rödd segja eða réttara sagt æpa á mjög dramatískan hátt: ,,Stjóra bardagi (Boss battle).” Allt

frosnar og það birtist mynd af stjóranum og þeim sem hann er að berjast gegn. Síðan þegar kynningunni er lokið þá fer tíminn aftur á eðlilegan hraða og bardaginn hefst. Stjórar verða mjög fljótlega ekkert mál fyrir Carl og Donut þau berjast við þá og sigra þá eins og enginn sé morgundagurin. Þau meðal annars rústa safnara eða ,,horder.” Safnarinn er risa vaxin kona sem ælir út ógeðslegum risapöddum á fyrstu hæðinni.

Uppfærslur og hæfileikar Á leiðinni fær Carl margar uppfærslur og nýja hæfileika sem hjálpa honum að komast áfram og eflast sem leikmaður. Meðal annars fær hann stálhönd sem hann getur kallað fram, mjög sterka fætur sem geta nánast mulið allt sem á vegi hans verður og verður einnig óvenju góður sprengjusérfræðingur, þótt hann hafi ekki haft slíka kunnáttu áður.

EINBEITTU

þér að því sem þú elskar

Ný upplifun í hverjum sopa vandlega samsett blanda af gæðaávöxtum sem tryggir jafnvægi milli ferskleika og náttúrulegs bragðs. Drykkurinn er hannaður með það að markmiði að veita stöðuga orku og ánægjulega upplifun, þar sem hver dropi endurspeglar gæði og hreinleika.

RUN LOLA RUN

Hvað myndir þú gera ef þú hefðir einfaldlega bara 20 mínútur til þess að hlaupa og bjarka manneskju sem þú elskar svo heit að ekkert mun stoppaði ekki einu sinni dauðinn. Í kvikmyndinni Run Lola run fylgjumst við við með sjónarhorni Lolu ungrar konu sem hlaupa um berlin að reyna í örvatningu að breyta örlögum ástin hennar sem er að fara leggja líf sitt í voða. Með hraða tónlist sem hættir aldrei og geðveikt hraðar klippur sem fá þig til að halda niðri í þér andanum og með endurtökum lætur myndin spyrja getur eitt lítið tilvik breytt öllu hjá lífinu hjá fólki.

Lola býr yfir yfirnáttúrulegum hæfileika til að gefa frá sér svo kröftugt öskur að hlutir úr gleri brotna.

„What happened to you? Did you run here?“

• Rauða hárið

• blái bolurinn

• grænu buxurnar

• gerir Lolu að ógleymanlegri persónu

Franka Potente

Franka Potente

Potente að

Franka Potente hún

Franka mikið að að hún þurfti að hún þurfti

Hljóp svo mikið

Potente hún

Hljóp svo mikið að hún þurfti að

hætta að reykja

Hljóp svo mikið reykja

Hljóp svo mikið að hún þurfti að hætta að reykja þurfti hún að þurfti svo

Franka Hljóp Potente mikið að hætta að að hún þurfti að svo hætta reykja

Franka Potente að þurfti svo hætta að reykja að hætta að reykja

Run Lola Run: Uppruni Árið 1998 var frábært ár í kvikmyndaheiminum. Í maí kom Indiana Jones and the Raiders of the Lost Ark í bíó, en 20. ágúst sama ár kom Run Lola Run, sem sýndi allt aðra en ekki síður spennandi hlið kvikmyndalistarinnar. Myndin er leikstýrð af þýska kvikmyndagerða manninum Tom Tykwer, sem fæddist árið 1965 í Wuppertal. Hann ólst upp með Super 8 myndavél í hendinni og hafði mikinn áhuga á kvikmyndum frá unga aldri. Með vinum sínum gerði hann stutt myndir og þróaði snemma sinn eigin stíl, og ein af fyrri hugmyndum hans minnti á Run Lola Run, þar sem sama augnablikið er sýnt á mismunandi vegu. Einn daginn sá hann mynd af konu með rautt hár á hlaupum, sem kveikti hugmyndina, og hann settist niður og skrifaði handritið að Run Lola Run.

Uppvakningar – Hinar ódauðu verur

Þegar við heyrum orðið zombies eða uppvakningar, ímyndum við okkur hægar, ódauðar mannlegar verur sem hafa risið upp frá dauðum. Þær hafa enga eigin vitund og ráðast á allt sem hreyfist, oft til að drepa eða éta fólk.

Uppruni nútíma uppvakninga í kvikmyndum

Þessi mynd af uppvakningum er sú staðalímynd sem við þekkjum í dag í kvikmyndum og tölvuleikjum. Hún varð sérstaklega vinsæl og mótaðist mikið eftir bíómyndinni Night of the Living Dead, sem hjálpaði til við að skapa nútíma hugmyndina um zombies eins og við þekkjum hana í dag.

George A. Romero og byltingin í zombie-kvikmyndum

Bíómyndin kom út árið 1968 og var leikstýrt af George A. Romero. Þetta var ein af fyrstu

kvikmyndum hans á ferlinum. Það reyndist erfitt að taka upp myndina vegna fjárskorts, en hún kostaði aðeins um 100.000 dollara, sem var mjög lítið fyrir kvikmynd á þessum tíma.

Á bak við tjöldin

Myndin var tekin upp á svarthvíta filmu til að spara peninga. Það hentaði einnig vel þar sem það gerir myndina dekkri og bjó til drungalegri stemningu í gegnum alla myndina. Mikið af senum og atriðum voru óskipulögð eða spunnin á staðnum. Blóðið sem sést í myndinni var til dæmis gert úr sýrópi og tökurnar fóru fram á yfirgefnum stöðum.

Barátta um líf í yfirgefnu húsi

Kvikmyndin fjallar um hóp einstaklinga sem festast í húsi sem er yfirgefið og umkringt uppvakningum. Þau eru hrædd og ósammála og ná ekki að vinna saman til að finna lausn áður en það er um seinan.

Ben Barbra Harry Tom
Hvernig

Ég Myndi Lifa af Uppvakningaheimsendi

Ímyndaðu þér að vakna einn morgun og heimurinn er ekki lengur sá sami og hann var. Göturnar eru tómar og ekkert heyrist nema stunur og hæg skref uppvakninga sem ganga um borgina. Uppvakningafaraldur hefur skollið á í Reykjavík og samfélagið er hrunið. Þú horfir út um gluggan og sérð ekkert nema hópa af sjúskuðu fólki haltrandi um allt. Allt sem einu sinni var eðlilegt er horfið og óvissan ræður ríkjum. Þú ert einn, ringlaður og hræddur en enn á lífi. Hér ætla ég að skrifa niður það sem ég myndi gera ef ég þyrfti að takast á við slíkar aðstæður og reyna að lifa af í heimi þar sem uppvakningar hafa tekið yfir.

Strax með forskot

Ég á heima í blokk svo ég er í góðum málum með pláss og rými. Það er líka góður staður til að fylgjast með ef svo óheppilega vill til að uppvakningarnir finni mig. Það eru líka tvær útgönguleiðir sem hægt er að nota.

Fyrstu skref

Það allra fyrsta sem ég myndi gera væri að fara upp á efstu hæð og fylla svalirnar af ílátum og safna regnvatni. Ef vatnið klárast þá er ég með nóg af vatni. Síðan myndi ég einhvern veginn redda mér barefli og fara út að ná í eins mikið af dósamat og ég get borið. Ég myndi líka reyna styrkja útihurðir í blokkinni svo að uppvakningar gætu ekki komist of auðveldlega inn.

Einnig hylja glugga með spýtum svo þeir sjá ekki inn.

Besta verkfærið

Nauðsynjar

Viðgerðarsett fyrir gleraugu væri líka mikilvægt, því ég er frekar gagnslaus án þeirra.

Talstöð væri líka góð til að hafa samband við aðra eftirlifendur. Ég myndi líka reyna að safna hlutum eins og vasaljósi, rafhlöðum, hlýjum fötum og sjúkrakassa ef ég fyndi slíkan og lyf.

„Þú heiðrar hina látnu með því að halda áfram, jafnvel þegar þú ert hræddur.“

Farartæki

Vopn

Það er ekki gott að vera of hávær, því uppvakningar gætu mögulega laðast að háværum hljóðum. Þess vegna væri best að forðast hávær vopn eins og byssur eða eitthvað sambærilegt nema það sé algjörlega nauðsynlegt. Byssur eru síðasti kostur! Betra væri að redda sér boga eða öðru hljóðlátu vopni sem dregur ekki eins mikla athygli.

Mynd: Freepik

Ég myndi redda mér kúbeini, bæði sem gott barefli og til þess að opna hurðir og annars konar hindranir. Einnig væri gott að redda sér fræðslubók um jurtir á Íslandi, þannig get ég aflað mér upplýsinga um hvað má borða og hvað þær geta gert.

Að geta ferðast um staði á hljóðlátan og öruggan hátt skiptir gríðarlega miklu máli þegar uppvakningar hafa tekið yfir heiminn. Þess vegna er hjól eða annars konar farartæki frábært. En það væri enn betra ef ég fyndi hest, því eldsneyti fyrir bíla gæti verið erfitt að fá og það er líka miklu svalara að fara um á hesti.

Að kanna svæði

Það er gott að vita hvar er öruggt að vera. Ég myndi kanna nágrenni blokkarinnar og

svo smátt og smátt allt höfuðborgarsvæðið og merkja staði sem best er að forðast, sérstaklega fjölmenn svæði eins og miðbæinn.

Síðan myndi ég búa til aðra staði sem yrðu þá til vara sem ég gæti flúið til ef allt verður morandi í blokkinni.

Langtímaáætlun

Ef uppvakningarplágan varir lengi sem hún

mun ef til vill gera þyrfti ég að hugsa fram í tímann. Ég myndi finna stað sem væri hægt að rækta mat og vera með skeppnur. Kannski væri gott að flytja úr borginni finna afskektan stað þar sem enginn er og þvi meiri líkur á að lifa af.

Myndir Nauðsynlegur varningur Tékk

Sjúkrakassi

Hjól

Mynd: Freepik eftir Kues 1

Buster Keaton

Hljóðláti trúðurinn: Buster Keaton og galdurinn í þöglu myndunum

Joseph Frank Keaton, betur þekktur sem

Buster Keaton, er einn þekktasti kvikmyndagerðarmaður hljóðlausa kvikmyndatímans.

Hann fékk áhorfendur til að springa úr hlátri með skrítnum töktum sínum og halda niðri andanum af spennu þegar hann framkvæmdi rosaleg áhættuatriði sem gætu látið hvern sem er fá gæsahúð. Hann er talinn einn hugrakasti, fyndnasti og frumlegasti leikari síns tíma. Keaton gerði margar af þekktustu kvikmyndum tímabilsins, og verk hans hafa veitt mörgum kvikmyndagerðarmönnum innblástur, jafnvel enn þann dag í dag. Hvaðan kom hann og hvað er það sem gerir myndirnar hans svona eftirminnilegar?

Frá Vaudeville til stjörnu:

Æskuár Buster Keaton

Buster Keaton fæddist 4. október 1895. Hann var sonur Joe Keaton og Myra Keaton, tveggja leikara sem ferðuðust um með Vaudeville-sýningum. Á sama tíma ferðaðist annar frægur maður, Harry Houdini, sem síðar varð þekktur sem einn mesti töframaður allra tíma. Foreldrar Buster fannst tilvalið að litli strákurinn tæki

fram með foreldrum sínum í sýningu sem þau kölluðu The Three Keatons. Í sýningunum köstuðu foreldrar hans honum stundum hátt upp í loft eða ýttu honum til að skapa fyndnar aðstæður sem fengu áhorfendur til að hlæja.

Þegar Buster varð níu ára byrjaði hann að taka meiri ábyrgð. Hann bókaði til dæmis hótelherbergi og sá um ýmis skipulagsmál á meðan foreldrar hans voru uppteknir, auk þess að hjálpa til við að skrifa efni fyrir sýningarnar.

Á táningsárum sínum, þegar foreldrar hans tóku pásu frá ferðalögum sínum, ákvað hinn ungi Buster að taka leiklistina alvarlega og fór að vinna meira faglega á sviði

Leiklist og áhættuatriði:

þátt í sýningunum, og hann var aðeins fjögurra ára gamall þegar hann kom fyrst

Buster Keaton á skjánum Síðar hitti hann gamanleikarann Roscoe Arbuckle eða Fatty, sem hann var ekki mjög hrifinn af. Arbuckle var tengdur kvikmyndaverinu Keystone Studios og fékk Buster til að vinna með sér í kvikmyndum. Ferill Keatons þar var þó stuttur því Heimsstyrjöldin fyrri rauf feril hans tímabundið. Hann gekk í herinn og var sendur til Frakklands eftir stutta herþjálfun. Eftir stríðið, 29. apríl 1919, var hann leystur frá herþjónustu og sneri aftur til Bandaríkjanna, þar sem hann hóf aftur feril sinn í kvikmyndum sem átti eftir að gera hann að einni stærstu stjörnu þöglu myndanna.

Hvað gerir myndir Keatons ógleymanlegar?

Buster brosti aldrei framan í myndavélar, þar sem hann taldi að það gerði atriðin fyndnari og áhrifameiri. Hann framkvæmdi öll áhættuatriði sjálfur og sagði kvikmyndateyminu að stöðva ekki myndavélina nema þegar hann hefði lokið atriðinu eða væri látinn. Hann tók heldur aldrei sama atriðið aftur. Ef atriði heppnaðist ekki eins og til var ætlast, var það einfaldlega klippt út úr myndinni, og hann fann upp á nýju sniðugu áhættuatriði sem þau tóku upp.

Buster Keaton lést árið 1966 eftir langan og farsælan feril sem hefur haft áhrif á kvikmyndagerð enn þann dag í dag.

Eitt sem var einkennandi hjá Buster Keaton var hatturinn hans. ,,Porkie pie hat” en sá hattur rekur uppruna sinn til sjöunda áratugar 19. aldar og var hann hannaður fyrir konur. Buster Keaton var oft með þess háttar hatt og þegar maður sér hattinn hugsar maður um hann Keaton.

Myndirnar sem hann hefur meðal annars gert eru Hershöfðinginn (The General), sem kom út árið 1926. Hún fjallar um lestarstjóra sem er hafnað af hernum vegna starfs síns. Þegar hermenn úr her Norðurríkjanna stela lestinni hans eltir hann hana uppi og reynir að ná henni aftur.

Sherlock hinn yngri (Sherlock Jr.) frá árinu 1924 fjallar um mann sem vinnur í kvikmyndahúsi en dreymir um að verða leynilögreglumaður og leysa ráðgátur. Það vill svo skemmtilega til að ósk hans rætast.

STÍGÐU FYRSTA SKREFIÐ

Spor er göngufélag sem vill hvetja fjölskyldur og aðra til að prófa göngu.

Við höldum alls konar viðburði fyrir alla sem vilja taka þátt

Skráðu þig við tökum vel á móti þér

GLADIATORES

Ímyndaðu þér að sitja á köldu steinsæti. Fyrir framan þig blasir við gríðarstór sa ndvöllur og allt í kringum þig eru þétt setnar stúkur, fullar af fólki ekki ólíkt fótboltaleik nútímans. Andrúmsloftið er rafmagnað. Völlurinn lyktar af blóði og svita. Þú heyrir ekkert nema ærandi gleðihróp og skerandi sársaukavein og jörðin nötrar út af ærandi hávaða. Þú ert staddur í Róm þar sem aðal töffararnir eru menn sem berjast upp á líf og dauða og voru kallaðir Gladiatores sem er latína og þýðir ,,þeir sem berjast með sverði.”

Á vellinum standa stórir, vel vaxnir menn, saddir af kjöti og mjólk. Þeir og kljást í hringleikahúsinu með litla sem enga vörn en vel vopnaðir til bardaga þar sem dauðinn er aldrei langt undan. það að vera gladiator í raun og veru?

Uppruni skylmingaleikanna

Fyrstu opinberu skylmingaleikarnir voru haldnir

um 150 árum fyrir Krist. Elstu skráðu leikarnir

má þó rekja til ársins 264 f.Kr. þegar tveir bræður héldu leika til að minnast föður síns. Upphaflega voru slíkir leikar hluti af jarðarfararsiðum, en síðar fóru þeir að þjóna öðrum tilgangi. Keisarar notuðu leikana til að sýna auð sinn og völd og einnig til að skemmta og jafnvel glepja almenning

Bygging Colosseum og fyrstu stórleikarnir

Keisarinn Vespasian, sem ríkti frá 69 til 79 e.Kr. hóf byggingu hins fræga Colosseum árið 72 e.Kr.

Hann lifði þó ekki nógu lengi til að sjá það full klárað. Fyrstu leikarnir í hinu nýja Colosseum voru haldnir árið 80 e.Kr. af keisara Titus sem var sonur Vespasíans. Hann hélt þá mikla hátíð og leikarnir stóðu yfir í 100 daga.

MUNKURINN TELEMACHUS

Leikarnir voru svo vinsælir og áhorfendur gátu orðið svo trylltir að þegar munkur einn að nafni heilagur Telemachus reyndi að stoppa leikana með því að fara inn á leikvöllinn þá var hann stunginn af bardagamanni og síðan grýttur til dauða af hinum tryllta lýð sem horfðu af æsingi á leikana.

Mynd: Freepik

ÁHYGGJULAUSIR VIÐSKIPTAVINIR

SÍÐAN 1967

Við getum tekið að okkur hvaða prentverki sem er. Hafðu samband og við skoðum þetta saman.

Sveinn Hartvig Ingólfsson

Prentun er menntun

Það er afar mikilvægt að vera í réttu stéttarfélagi. Kjaramál eru meðal mikilvægustu þátta í lífi launafólks og eru eitt af þeim sviðum sem Grafía sinnir.

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameiningarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu.

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is

Sveinn Hartvig
Ingólfsson

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook