Hulda Ólafía
Efnis yfirlit
Um mig
• 4-5
Art Noveau
• 6-9
Pre Raphaelite
• 10-14
Ég heiti Hulda Ólafía Sigurðardóttir. Fædd 10 febrúar 2003
Ég er búin að útskrifa Borgarholtsskóli og fékk stúdentspróf þar en mig langar að gera meira í eitt af uppáhalds kennslum mínum frá fyrrverandi skóla. Ég er fyrst og fremst listakona og ég elska að skapa list, sama hvers konar list það er, hvort sem það er að skrifa sögur, teikna og auðvitað grafíska hönnun.
Ég sótti innblástur frá Lora Lamm, Gere Arntz og Lotte Reiniger fyrir notkun þeirra á skuggamyndum og neikvæðu rými.ger fyrir notkun þeirra á skuggamyndum og neikvæðu rými.
Mér finnst skemmtilegast að hanna lógó, veggspjöld, bókakápur og vörur. Ég vinn hægt og rólega og kannski ekki einu sinni í skref-fyrir-skref leiðbeiningum, en ég er samt að vinna og reyna mitt besta.
Art nouveau er listastefna sem varð vinsæl á árunum 1890 til 1910. Hún hófst sem viðbrögð við fjölbreytni, söguhyggju og fræðimennsku.
Hugtakið Art Nouveau var fyrst notað á níunda áratug 19. aldar og þýðir „ný list“ á frönsku.
Það eru varla beinar línur í Art Nouveau, það er vegna einkennist af sveigðum, ósamhverfum og flæðandi línum innblásnum af náttúrulegum formum eins og blómum, vínviði og skordýrum.. Hún sótti einnig innblástur frá japanskri list.
Art Nouveau var mest notað í innanhússhönnun, grafíklist, húsgögnum, glerlist, textíl, keramik, skartgripum, fatnaði og málmvinnu. Listahreyfingin breiddist út um alla Evrópu og Norður-Ameríku
Art Nouveau varð minna vinsælt eftir að Titanic sökk og sérstaklega fyrri heimsstyrjöldina. Þótt hún hafi verið örlítið endurvakin í psychadelic list á sjöunda áratugnum.
Alfons Maria Mucha, líka þekktur sem Alphonse Mucha, var tékkneskur listmálari, teiknari og grafískur listamaður.
Hann var víða þekktur fyrir stílhrein og skreytanlegt leikhús plakat, sérstaklega þau eftir Sarah Bernhardt. Hann teiknaði myndskreytingar, auglýsingar, skreytingar og hönnun sem urðu meðal þekktustu mynda þess tíma.
Hulda Ólafía
bræðralag
Róttækur og áhrifamikill hópur ungra breskra listamanna sem stofnaður var árið 1848 og stefndi að því að umbreyta listinni með því að tileinka sér sterka liti, flókna samsetningu og nákvæmar, raunsæ smáatriði innblásnar af ítalskri list fyrir tíma Rafaels.
Þeir hvöttu til mikilla smáatriða, bjartra lita, flókinna samsetninga og einlægrar „sannleika við náttúruna“, innblásin af ítalskri list fyrir endurreisnartímann. Verk þeirra fjalla oft um siðferðileg, bókmenntaleg eða trúarleg þemu.
Bræðralag forrafaelíta var stofnað af enskum listmálurum, skáldum og list gagnrýnendum: William Holman Hunt, John Everett Millais, Dante Gabriel Rossetti, William Michael Rossetti, James Collinson, Frederic George Stephens og Thomas Woolner. Meðal síðari fylgjenda meginreglna Bræðralagsins voru Edward Burne-Jones og John William Waterhouse.
Konurnar sem sjást oft á þessum málverkum eru kraftmiklar og/eða freistandi. Þetta endurspeglast einnig í andlitsdrætti kvennanna, þar sem andlit þeirra eru sterk og kögruð frekar en mjúk og kringlótt, sem var hugsjón fegurðar á þeim tíma.
Ástarboðberi er vatnslitamálverk eftir Marie Spartali Stillman frá árinu 1885. Það sýnir konu fyrir framan glugga sem fær ástarboðskap frá fugli.
Útsaumur á blinduðum Kúpido er tákn fyrir ófyrirsjáanleika og falda áhættu sem fylgir því
að verða ástfanginn. Mikil táknfræði hér tengist ástinni og einnig Afródítu eða rómverska nafni hennar Venus. Eins og rauðu rósirnar, dúfan og sonur hennar Kúpido.
Eitt málverk eftir for-rafaelítanna vakti mikla deilur, þar á meðal gagnrýni frá Charles Dickens.
Það heitir Kristur í húsi foreldra sinna eftir
John Everett Millais, málað á árunum 1849 til 1850. Málverkið gerist á verkstæði þar sem Jesús er sýndur í bernsku sinni þar sem móðir
María huggar hann. Málverkið hefur einnig mikla táknræna þýðingu sem tengist Kristi og framtíð hans.
Reiðin var knúin áfram af stéttarhyggju og gyðingahatri fyrir að sýna á raunhæfan hátt fátæka gyðingafjölskyldu sem fátæka gyðingafjölskyldu.
Það var talið guðlast því það sýnir helgar trúarlegar persónur sem fólk sem samfélagið leit niður á. María mey í þessari málverki er
byggð á mágkonu listmálarans og Charles Dickens sagði að listamaðurinn hefði látið Maríu mey líta út eins og ljótan alkóhólista og Jesú eins og rauðhærðan vesaling.
Í grundvallaratriðum urðu þeir reiðir yfir því að fátækir gyðingar voru sýndir á raunhæfan hátt sem fátækir. Og á skítugu, raunhæfu verkstæði með ryki.
Þetta truflar for-rafaelítana ekki því ein af mörgum hvötum stofnenda hópsins var að ögra almenningi.
Listahreyfingin skapaði einnig listamannakjólinn, sem mest var klæddur af módelum ef listamaðurinn var að skapa list sem staðsett var á miðöldum.
Kjólinn er miklu lausari og einfaldari í smáatriðum miðað við þrönga og skreytta tískuna á þeim tíma.
Með tímanum fóru sumar konur loks að klæða sig í svipaðan föt í almennastaðir.
Hulda Ólafía Sigurðardóttir
Frú Lilith er olíumálverk eftir Dante Gabriel
Rossetti. Hann notaði ástkonu sína Fanny
Cornforth og málaði það síðan upp á nýtt með einni af módelum sínum, Alexu Wilding.
Það er áhugavert að sjá að margar aðal kvenpersónur eru með sítt og frjálslegt hár.
Hárið er oft notað sem tákn um kynþokka þeirra og freistandi fegurð eða hversu óheftar
þessar konur eru.
Samkvæmt gyðinga goðsögnum er Lilith fyrsta eiginkona Adams en er mun þekktari
sem öflugur freistari og barnamorðingi.
Hvernig Lilith varð til virðist eiga rætur sínar í kvenfyrirlitningu því forn rit gerðu fyrstu konuna að illgjörnum djöfli sem ekki
ætti að treysta og einnig var sagt að fyrsta synd hennar væri að hlýða ekki eiginmanni sínum, Adam. Hins vegar, á undanförnum árum, hafa margir femínistar endurheimt hana sem femínískt tákn með því að nota óhlýðni hennar gegn Adam og Guði sem óhlýðni við feðraveldið.
Hulda Ólafía
Hulda