

Þrjár flugur í einu höggi!
GRAFÍSK MIÐLUN
prentsmíð, prentun, bókband
Skapandi hönnun og tækni
Það nýjasta sem er að gerast í prent- og miðlunargreinum er að sérsviðin grafísk miðlun, prentun og bókband hafa verið sameinuð undir sérsviðið grafísk miðlun. Í dag gerir atvinnulífið þá kröfu að nemendur fái góða yfirsýn í náminu og geti tekið að sér fjölbreytt störf á sviði upplýsingagreina í framtíðinni.
Með tilkomu nýrrar námskrár læra nemendur að hanna og setja fram efni fyrir prent-, net- og skjá miðla, ásamt því að kynnast öllu vinnsluferli á prentgripum. Í verkefnum námsins er m.a. unnið með hreyfimyndagerð, vefvinnslu, grafíska vinnslu, myndvinnslu, umbrot, tæknilegan frágang, prentun og bókband. Nemendur læra að vinna alla verkþætti, þar á meðal lokafrágang, prentun og bókband.
Leiðari
Embla er lokaverkefni mitt í grafískri miðlun og prenti. Í blaðinu sameina ég það sem hefur veitt mér innblástur á síðustu árum: tónlist, andrúmsloft, sögur og myndheima. Efnið er ólíkt að formi, en tengist allt löngun minni til að skapa eitthvað persónulegt, sjónrænt og lifandi.

Umbrot og hönnun: Emilía Guðnadóttir
Hönnun forsíðu: Emilía Guðnadóttir
Ljósmyndir: Emilía Guðnadóttir, Hakdo, Yongho Choi, Daijiro Yoshimura
Listaverk: Tae Eun Jang Útgefandi: Upplýsingatækniskólinn



Hæ, ég heiti Emilía. Hver er ég? Hér eru nokkur svör sem ég fékk frá þessari spurningu.
Minningar mínar móta skilning minn á sjálfum mér og hver ég er, jafnvel þó að tíminn taki völdin og breyti því af og til. Fólk mun aldrei sjá fyrir sér sömu manneskjuna og sér mig í ólíku ljósi frá mínu eigin sjónarhorni. En ég vona að það sem er mest einkennandi sé að ég reyni alltaf mitt besta.

legum andstæðum, þar sem rólegar melódí ur og dramatískari hljómagangar skiptast á.
Viðtal við Hakdo
Hvenær áttaðir þú þig fyrst á því að tónlist gæti tjáð eitthvað fyrir þig sem orð gátu ekki?
„Ég sökkti mér á kaf í tilfinningaheim klassískrar tónlistar þegar ég lærði á píanó frá unga aldri. Sú hugmynd að hljóð eitt og sér gæti haft svo sterk áhrif á hjarta hlustanda snart mig djúpt og veitti mér innblástur til að semja tónlist sem gæti snert aðra á sama hátt.
Á grunnskólaaldri hóf ég tilraunir mínar með tónlist og reyndi að tjá þær á píanóinu. Í framhaldsskóla fór ég að skrifa þær niður sem nótur og smám saman þróaðist minn eigin tónsmíðastíll.
gleði að tónlist mín nái nú til hlustenda um heim allan.“
Verk þín virðast oft mjög persónuleg og tilfinningalega heiðarleg. Er einhver hluti af þér sem þér finnst koma skýrast fram í tónlistinni þinni?
„Ég upplifi tilfinningar gjarnan á djúpan og næman hátt og tel að sá þáttur í fari mínu endurspeglist í tónlist minni.
Þegar ég sem um ástina reyni ég að tjá yfirþyrmandi og óumflýjanlega tilfinningu án þess að halda aftur af neinu.
Þegar ég tjái sorg eða reiði reyni ég að umbreyta þeirri næmni í hljóð á eins heiðarlegan hátt og mögulegt er.
Markmið mitt er að halda áfram að
Texti: Emilía og Hakdo
Þýðing: Hildur Ólafsdóttir Myndir: Hakdo



enn frekar á listrænni sjálfmynd minni og deila henni með breiðari hópi hlustenda.“
Þú hefur sagt að þú hafir nýlega fengið áhuga á hljómsveitartónsmíðum. Hvað hefur það opnað fyrir þig sköpunarlega?
„Þó að ég telji tónsmíðar fyrir einleik á píanó fullkomnar og fallegar í sjálfu sér, tel ég að sum verk geti fengið meiri tjáningu og orðið stórbrotnari þegar þau eru útsett fyrir hljómsveit. Með því að nýta hinn ríka og fjölbreytta hljóðheim hljómsveitarinnar finnst mér ég geta miðlað þeim tilfinningum og skilaboðum sem ég vil koma á framfæri á mun víðfeðmari

Að svo stöddu er ég ekki í aðstöðu til að taka upp tónlist mína með lifandi hljómsveit og vinn því með sýndarhljóðfæri. Ég vonast þó til að geta fljótlega útsett einhver af eldri verkum
mínum fyrir hljómsveit eða skapað ný verk sérstaklega fyrir það form.
Sama laglína getur hljómað gjörólík eftir því hvort hún er flutt sem píanóeinleikur eða í hljómsveitarútsetningu og sú umbreyting finnst mér mjög heillandi.“

SUMARIÐ



Verið velkomin að skoða nýju blómalínu okkar hjá Ljósbrot til að fagna sumarsins!
1598

Texti:EmilíaogCitygodok Þýðing:HildurÓlafsdóttir Myndir:YonghoChoi

Citygodok er tónlistarmaður frá Seúl sem gefur út tónlist í gegnum stafræna miðla. Í opinberum kynningum kemur fram að hann hafi gefið út lög á borð við „Hotels on the Moon“ og „Blue Lemonade“. Verk hans tengjast bæði melódískum og tilraunakenndum stílum þar sem hann vinnur með ólíkar hljóðmyndir og stemningar.
Spjall við Citygodok
Geturðu sagt örstutt um sjálfan þig?
„Halló, ég er Citygodok frá Seúl. Ég sem lög, syng og tek einnig upp og klippi mín eigin tónlistarmyndbönd. Meðal laga minna er Blue Lemonade, Hotels on the Moon og nýjasta lagið mitt, Dream Car, en tónlistarmyndbandið við það var tekið upp í London.“
Þegar þú ert að semja eitthvað nýtt, hvað er það sem kemur yfirleitt fyrst: stemning, laglína, texti eða eitthvað annað?
„Af þessum þremur þáttum legg ég mesta áherslu á andrúmsloftið. Listamennirnir sem hafa áhrif á mig hafa gjarnan skapað lög sem glata ekki gildi sínu með tímanum; tónlist þeirra er tímalaus. Slík tónlist býr yfir ákveðnum krafti og í hvert skipti sem ég hlusta á hana finnst mér eins og ég sé fluttur yfir í annan heim. Þar sem ég hef alltaf kunnað að meta þennan eiginleika mikils endurspeglast hann eðlilega í minni eigin sköpun. Undanfarið hef ég einbeitt mér meira
að textunum. Ég hef áttað mig á því að textar gegna einnig mikilvægu hlutverki við að leiða hlustandann í þennan sama heim. Ég bý núna í London og nota ensku í daglegu lífi en hef gert mér grein fyrir því að tungumálið sem getur best miðað heiminum sem ég vil tjá er móðurmál mitt, kóreska. Í fyrri verkum mínum samdi ég suma texta á ensku en núna vinn ég á kóresku og reyni að tjá mig á nýjan hátt sem fer út fyrir hefðbundinn ramma textagerðar í kóreskri tónlist.“
Verkin þín hafa ákveðinn andblæ – hvers konar tilfinningu eða heim hefur þú mestan áhuga á að skapa með tónlistinni þinni?
„Ég er svolítið feiminn að tala um það, en ástæðan fyrir því að ég byrjaði að semja lög stafar af aðdáun minni á kvikmyndum. Að vissu leyti byrjaði þetta sem eins konar virðingarvottur til kvikmyndanna sem ég dáist að. Eftir að hafa horft á kvikmynd samdi ég lag næstum eins og gagnrýni og ímyndaði mér það sem hluta af tónlistinni í myndinni. Til dæmis man ég eftir því að hafa slökkt á hljóðinu í eftirminnilegu atriði og samið tónlist sem mér fannst passa við þá senu. Ég sem tónlist með þeirri von að hlustendur upplifi frelsi og losni úr hömlum í gegnum tónlistina með það á tilfinningunni að þeir séu orðnir aðalpersónur kvikmyndar.“
Þegar einhver gefur sér tíma til að hlusta á tónlistina þína, hvað vonar þú að sitji eftir hjá viðkomandi?
„Ég vil bjóða þeim sem hlusta á tónlist mína upp á athvarf þar sem þeir geta losað hömlur og fundið fyrir frelsi. Þegar öllu er á botninn hvolft vona ég að verða listamaður sem miðlar í gegnum lagasmíð sína gildum sem eru tímalaus og óbreytanleg. Mín von er sú að ég og hlustendur mínir finnum fyrir frelsistilfinningunni í gegnum tónlist mína og að bergmál frelsisins sitji eftir, þrátt fyrir að tónlistinni ljúki.“
„Takk fyrir vel ígrundaðar spurningar, ég kann vel að meta þær.“





itla prinsins eru hjarta bókarinnar og sýna að með tíma og umhyggju verða tengsl milli tveggja aðila einstök. Þegar kemur að kveðjustund segir refurinn: „Maður sér rétt með hjartanu; hið mikilvæga er ósýni legt augunum“ og minnir á að við berum ábyrgð á þeim sem við tengjumst.
Sorgin í sólsetrinu
Eitt áhrifamesta augnablik bókarinnar er þegar litli prinsinn segist hafa horft á sólina setjast fjörutíu og fjórum sinnum á einum degi. Hann bætir því við að maður leiti í sólsetrið þegar manni líður illa. Þögn hans þegar hann er spurður út í sorgina minnir okk ur á að tilfinningar er ekki alltaf hægt að færa í orð, stundum þarf einfaldlega að kunna að hlusta á hið ósagða.
Í gegnum söguna mætast sjónarhorn barns og full orðins. Fullorðnir einblína á tölur og stöðu en barnið sér það sem skiptir máli. Litli prinsinn minnir á að hið mikilvægasta er oft ósýnilegt og að við sjáum það best með hjartanu.

Árið 1993 uppgötvuðu japanskir stjörnufræðingar smástirni sem fékk síðar heitið 46610 Bésixdouze.
Nafnið er snjall orðaleikur þar sem talan 46610 í tugakerfi samsvarar einmitt B612 í sextándakerfi, til heiðurs plánetu litla prinsins. Þetta litla smástirni


er um 2 km í þvermál og svífur um geiminn sem raunveruleg áminning um skáldskaparheim litla prinsins. Með góðu stjörnukíki við dimmar, skýlausar aðstæður er hægt að greina smástirnið sem daufan ljósblett á næturhimninum.
Texti: Emilía og Hildur Myndir: Antoine De Saint-exupéry
Tónlist Toshifumi Hinata er róleg, opin og full af andrúmslofti. Þótt hún sé án orða skapar hún skýran tilfinningaheim. Í verkum hans er ákveðin kyrrð sem situr eftir hjá hlustandanum og skilur eftir sig tilfinningu fyrir ró og huggun.
Toshifumi er fæddur árið 1955 23. Febrúar í
Tókýó Japan og eftir útskrift úr menntaskóla árið 1973 fór hann til Englands og Vann um tíma hjá mótorhjólafyrirtæki í Farnham í Surrey. Hann byrjaði tvem árum seinna ferðarlag sitt í tónlist árið 1975 þegar hann flutti til Bandaríkjanna og hóf nám í Collage í Ashland í Wisconsin. Þar spilaði hann á hljómborð í staðbundinni blúshljómsveit. Ári seinna 1976
skipti hann um skóla yfir til Berklee Collage of Music í Boston til að beina huganum alveg að námi í tónlist. Ágúst 1978 hlaut hann alþjóðlegan námsstyrk frá University of Minesota Duluth og skipti yfir í tónlistardeild UMD. Þar var hann næstu fjögur ár að læra klassískan píanóleik, tónfræði, tónsmíðar, hljómsveitarútsetningar og kom einnig fram á tónleikum og með hljómsveit. Eftir útskrift árið 1982 hóf hann störf sem tónlistarmaður í Minesota og haldið áfram að gefa út sólóplötur
Toshifumi Hinata er eitt af þeim tónskáldum sem virðast móta tónlist eins og rými: mjúka, hugleiðandi og ótrúlega sjónræna – án þess að nota myndir. Hann fæddist árið 1955 í Tókýó í Japan og hóf snemma nám í klassískum píanóleik og tónsmíðum. Síðar leitaði hann sér frekari menntunar í Bandaríkjunum, meðal annars við Berklee College of Music, þar sem hann þróaði öfluga tækni og djúpan skilning á því hvernig hljóð
geta skapað bæði tilfinningar og sögu. Þegar hann sneri aftur til Japans hóf hann feril sem átti eftir að gera hann að einu áhrifamesta tónskáldi sinnar kynslóðar.
Hinata er þekktur fyrir einstakan stíl þar sem hann sameinar klassíska tónlist, rólega píanótónlist og mjúka hljóðmyndun úr synthum og strengjum. Verk hans bera oft með sér ró og hugleiðandi kyrrð sem býður hlustandanum inn í heim sem er bæði innri og ytri – heim þar sem tíminn virðist hægja á sér og augnablikin verða nánast stöðug. Það er eins og hann tali beint til hlustandans án orða og láti tónlistina segja söguna.
Little Rascal – いたずら天使 Árið 1990 gaf Hinata út plötuna „いたずら天 使“ og titillagið fangar fullkomlega einkenni tónlistar hans: blöndu af sakleysi, leikgleði og mildri melankólíu. „Little Rascal“ er lag sem getur vakið minningar úr bernsku án þess að vera einhæft eða of nostalgískt. Píanóhljómar renna yfir eins og morgunljós á vatni, strengir bæta við dýpt og synthar skapa rými fyrir hugann til að svífa. Lagið minnir hlustandann á undur og sakleysi sem við berum enn innra með okkur, jafnvel þegar lífið reynist flókið. Þetta er tónlist sem gefur rými fyrir íhugun og nærveru og hentar einstaklega vel í grafísk miðlunarverkefni þar sem draumkennd stemning er í forgrunni.
Hinata sem listamaður
Toshifumi Hinata hefur aldrei einbeitt sér eingöngu að því að skapa tónlist sem hljómar; hann vill að tónlistin sé upplifun. Hann hefur oft talað um að hann vilji semja tónlist sem „tekur hlustandann burt frá hávaða heimsins“, þar sem hvert hljóð skapar rými og hvert hlé segir sögu. Þetta er tónlist sem lifir í kyrrðinni, kallar á innri upplifun hlustandans og einmitt þess vegna hafa verk hans haft áhrif á fólk um allan heim.



10 MÍN Á DAG KEMUR HVERFINU Í LAG
Sýndu hverfinu þínu stuðning og skráðu gönguna fyrir stig!
Örstutt spjall við Toshifumi
Hinata
Hvað birtist yfirleitt fyrst þegar þú byrjar að semja — laglína, litur, sena eða tilfinning?
„Yfirleitt tilfinning.“
Tónlistin þín getur verið mjög sjónræn þótt hún sé án orða. Sérðu fyrir þér myndir eða rými á meðan þú semur?
„Stundum ímynda ég mér manneskju sem hlustar á eða upplifir verkið í ákveðnu umhverfi.“
Þegar einhver hefur eytt tíma með tónlistinni þinni, hvað vonarðu að sitji eftir hjá þeim?
„Huggun og ró.“

Texti: Emilía og Toshifumi Hinata
Þýðing: Hildur Ólafsdóttir
Myndir: Daijiro Yoshimura ( 写真 )
Með því að skrá þínar mínútur hjálpar þú þínu hverfi að sigra stigatöflula!!
Ég byrjaði í tónskóla fimm ára og fór þar í gegnum forskólanám áður en ég hóf nám í píanóleik. Árið 2019 lauk ég grunnprófi í tónfræðigreinum og ári síðar grunnprófi í píanóleik. Árin 2022–2023 lauk ég miðprófi í tónfræðigreinum og tók þátt í árlegu leikskólaverkefni tónskólans sem var flutt bæði í skólanum og á Barnamenningarhátíð í Hörpu. Á sama tíma tók ég einnig þátt í Upptaktinum.
Upptakturinn er tónsköpunarverkefni fyrir börn og ungmenni í 5.–10. bekk. Ég hafði hugsað um að senda inn verk í um þrjú ár en alltaf hætt við. Árið 2023 ákvað ég loksins að slá til þar sem það var síðasta tækifærið mitt til að taka þátt. Af 75 innsendum verkum voru 13 valin til áframhaldandi vinnu og mitt verk var eitt þeirra.
Þetta var skemmtileg og lærdómsrík reynsla, þó að ég hafi ekki alltaf haft öll svör á reiðum höndum í viðtali við RÚV, til dæmis þegar ég sagði ranglega hvenær ég byrjaði að æfa á píanó. Enn er hægt að horfa á upptöku frá Upptaktinum þar sem verk mitt er flutt.
Árið 2024 fékk ég tækifæri til að koma fram á stóra sviðinu í Eldborg í Hörpu þegar haldið var upp á 60 ára afmæli tónskólans. Það var stór stund og mikil upplifun.

Ári síðar, 12. apríl, lauk ég loks miðprófi í píanóleik eftir mikla æfingu, undirbúning og kvíða. Það var mikilvægur áfangi á minni tónlistarvegferð.
Lykill Nafn Nóta
G-lykill G4
F-lykill F3
C-lykill C4
Horfðu á flutning verksins í Uptaktinum

Hlustaðu á upprunalegu útgáfu verksins áður en það var útsett fyrir Uptaktinn!




Skemmuvegi 4, blá gata • 200 Kópavogi • Sími 540 1800 Netfang litlaprent@litlaprent.is • Veffang www.prent.is Opið virka daga : 8:00–16.00
GRAFÍA
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
Þjónusta
› Kjaramál
› Lífeyrismál
› Sjúkrasjóður
› Orlofssjóður
› Fræðslustyrkir
Það skiptir máli að vera í réttu stéttarfélagi. Grafía stendur vörð um kjaramál launafólks og er til staðar fyrir þig.
Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameiningarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu.
PRENTUN ER MENNTUN
Stórhöfða
