Skip to main content

Embla - Embla Náttsól Ólafsdóttir

Page 1


Ekki verða eftir í fortíðinni, menntaðu þig fyrir framtíðina

Þjónusta

• Fræðslusetur

• Námskeið

• Námssamningar

• Endurmenntun

• Fyrirtækjaþjónusta

• Fræðsla

• Hæfnismat

• Raunfærnimat

Símenntun frá fyrsta degi sem IÐAN sér um Prent-og miðlunargreinar eru skapandi og þróast hratt. Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi eftir að námi lýkur. IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu. Í prent- og miðlunargreinum eru endalausir möguleikar. Vertu með.

Iðan – fræðslusetur.Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík Sími 590 6400. Netfang idan@idan.is Veffang www.idan.is

Leiðari

Nú er komið að því að kynna hluta af lokaverkefninu í grafískri miðlun, Embla sem er tímarit hver nemandi skrifar, hannar og brýtur um. síðan eru þessi tímarit sameinuð í eitt stórt verk sem sýnir alla færnina sem við höfum lært í náminu.

Í Emblunni minni fer ég yfir uppáhalds tónlistarhátíðina mína, eldamennsku, tækni, kvikmyndir og ketti.

Námið okkar í grafískri miðlun er nú að ljúka en náminu mínu er en ekki lokið og ég ætla að klára stúdentsprófið mitt áður en ég fer annaðhvort á vinnumarkaðinn eða áfram í háskóla.

Þessi hópur er skemmtilegur og fyndinn, og eftir allar minningarnar sem við höfum myndað mun mér finnast mjög erfitt að kveðja þennan yndislega hóp.

Umbrot og hönnun: Embla Náttsól Ólafsdóttir

Hönnun á forsíðu: Embla Náttsól Ólafsdóttir

Ljósmyndir: Nemendur á seinni önn, Unsplash, Google,

Texti: Embla Náttsól Ólafsóttir.

Leturgerðir:Agency FB, Univers 65 bold, Univers 55

Roman, Univers 45 Light.

Útgefandi: Upplýsingatækniskólinn.

Pappír: G-print smooth 130gr, G-print smooth 170gr.

Embla Náttsól

Ég heiti Embla Náttsól Ólafsdóttir og er fædd 3. apríl 2008. Ég eyddi stórum hluta æsku minnar í Árbænum en flutti til Mosfellsbæjar þegar ég var tíu ára. Þar hef ég búið síðan og kláraði grunnskólanám mitt vorið 2024.

Eftir útskrift tók ég mér tíma til að skoða ýmsar listrænar námsleiðir.

Ég velti fyrir mér bæði myndlist og grafískri hönnun, en fannst að þær brautir sem ég kynnti mér buðu ekki upp á næglegan fjölbreytileika. Að lokum fann ég grafíska miðlun sem hentaði mér betur, þar sem hún sameinar skapandi vinnu og fjölbreyttar aðferðir sem höfðuðu til mín.

Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á listum af ýmsu tagi. Mér hefur oft fundist auðveldara að tjá mig í gegnum listina mína en með orðum. Hvort sem það er með teikningum, málverkum eða tónlist, þá finnst mér það vera skýrasta leiðin til að sýna hvernig mér líður og hvað ég er að hugsa.

Auk þess hef ég mikinn áhuga á teiknimyndablöðum og teiknimyndum.

Mér finnst sérstaklega spennandi að fylgjast með því hvernig slík verk eru unnin, allt frá hugmyndavinnu til lokaútgáfu.

Það hefur aukið áhuga minn á skapandi greinum ogstyrkt löngun mína til að vinna við eitthvað sem tengist list og hönnun í framtíðinni.

Ljósmyndari Sveinn Hartvig Ingólfsson

Þekktir listamenn sem hafa tekið þátt í Aldrei.

Bubbi morteins

Monsters and men

Friðrik Dór

Pollapönk

Páll Óskar

PrinsPóló

Bríet

Emmsjé Gauti

Laddi

Gus Gus

FM Belfast

Aron Can

Jói pé og Króli

Úlfur Úlfur

Una Torfa

Inspector Spacetime

Apparat

Birnir

Hipsumhaps

Dr Gunni

Mammút

Hatari

ALDREI FÓR ÉG SUÐUR

Aldrei fór ég suður er rokk tónlistarhátíð haldinn á Ísafirði yfir páskahelgi og kom upprunalega frá hugmynd sem Muggi og Mugison fengu 2003 eftir að það var komið ósanngjarnlega fram við Mugison sem var að spila á tónleikum og þeim datt í hug að stofna tónlistarhátíð þar sem komið fram við alla listamennina eins og allir fengu sömu 20-25 mínútur uppi á sviðinu.

Ásamt því að það er ókeypis fyrir alla til að koma og horfa á tónleikana og af því það er flogið svo sjaldan til Ísafjarðar um páskana myndu aðeins alvöru aðdáendur tónlistar koma á hátíðina.

Allar þessar hugmyndir voru skrifaðar niður á servíettu og þeir sýndu Ragga Kjartanssyni þetta og á aðeins einu kvöldi fékk hann tuttugu atriði til að koma fram á þessari

fyrstu hátíð sem var haldin í Sindraberg verksmiðjunni og næstu tveimur árum eftir það í Edinborgarhúsinu, síðan á Ásgeirsbakka og KNH skemmunni og nú er hún haldinn í Kampa frystihúsinu þar sem þeir hafa byggt svið og eru með matar og drykkja sölu.

Hátíðin dregur að sér fleirra og fleirra fólk árlega og er orðinn eitt af stærstu tónlistarviðburðum ársins og hefur meira að segja verið í beinu streymi árlega hjá Rúv síðan í covid.

Hátíðinni er stjórnað með hjálp rokkstjóra og allskonar fólki sem kemur saman til að láta þessa frábæru hátíð gerast enda segja þeir að „maður gerir ekki rassgat einn“.

Aldrei varningur

Af því þessir tónleikar eru með ókeypis aðgang býður Aldrei upp á allskonar varning skreyttan með nafni hátíðarinnar og sjómanninum í lit sem breytist árlega.

Varningurinn er öðruvísi á hverju ári og það hefur verið boðið upp á páskaegg, jólakúlur, vettlinga, tímabundin húðflúr, eyrnalokka og límmiða ásamt öðru skemmtilegu góssi en það eru alltaf húfurnar, peysurnar og bolirnir sem snúa aftur í Aldrei búðina ár eftir ár.

Einfaldaðu veisluna

Stundum getur reynst erfitt að finna eitthvað hentugt til að bjóða gestum upp á í veislum, sérstaklega þegar taka þarf tillit til mismunandi smekkja og aðstæðna. Margir vilja bjóða upp á eitthvað sem er bæði einfalt í undirbúningi og höfðar til sem flestra, án þess að þurfa að eyða of miklum tíma eða fyrirhöfn í eldhúsinu. Því getur verið gagnlegt að hafa nokkrar traustar og klassískar uppskriftir við höndina sem auðvelt er að grípa til þegar tilefni gefst.

Íslenskar pönnukökur

 3 dl hveiti

 1 msk sykur

 1/2 tsk lyftiduft

 5 dl mjólk

 2 egg

 1/2 tsk vanillu dropar

 30 gr brætt smjör

Aðferð

1. Setjið þurrefnin saman í skál og hellið 3 dl af mjólk saman og hrærið saman í kekkjalaust deig.

2. Bætið við eggjunum eitt í einu og hrær ið vel.

3. Helltu restinni af mjólkinni, vanilludrop unum og smjörinu í blönduna og hrærið saman.

4. Hellið þunnu lagi af deiginu á pönnuna og snúið pönnukökunni þegar hún er farin að þorna á yfirborðinu.

5. Berið fram með þeyttum rjóma sykri eða sultu.

Ljósmyndari M-Draa

Heitur Brauðréttur

 1stk Ragnars rúllutertubrauð fínt

 400gr aspas í dós ,skorið. (Mæli með frá Ora)

 250 gr skinka í bréfi

 300gr sveppa smurostur

 2-3 matskeiðar af majónesi

 Handfylli af rifnum osti

 Papriku krydd

Ljósmynd frá Tertugallerý

Rice krispie kökur 20-25stk

 75gr ósaltað smjör

 150 gr suðusúkkulaði

 6 msk sýróp

 12 dl af Rice krispies

Aðferð

 Blandið öllum hráefnum nema rice krispies og bræðið það saman,takið pottinn af hitanum og hellið síðan rice krispies í pottinn og hrærið þangað til Rice krispies er alveg þakið með súkkulaði blöndunni.

 Setjið 1-2 msk af blöndunni í kökumót og skreytið skemmtilega með súkkulaði, smarties eða öðru nammi.

Aðferð

1. Afþíðið brauðið alveg í einn til tvo klukkutíma, helst þangað til það er í stofuhita. Hitaðu ofn í 190 gráður á blæstri.

2. Skerið skinkuna í teninga og hellið helminginum af vatninu úr aspas dósinni.

3. Hitaðu smurostinn í potti og blandið aspasinum og skinkunni hægt við ostinn þangað til blandan er heitt og mjúk.

4. Fletjið út brauðið varlega á bökunarplötu með bökunarpappír smyrjið aspas og smur osta blöndunni á brauðið þangað til allt brauðið er hulið og rúllið brauðinu upp.

5. Smyrjið majónesi yfir toppinn á rúllunni og dreifið rifna ostinum á majónesið ásamt Papriku kryddi eftir smekk.

6. Setjið brauðrétt í ofn í 20-25 mínútur eða þangað til það er gullinbrúnt.

Ljósmynd frá Eldhúsperlur

Ljósmynd frá v

Alþjóðlega geimstöðin

Alþjóðlega Geimstöðin eða á ensku, the Inter

Mars flakkarar

Coraline

Kvikmyndin Coraline er stop-motion teiknimynd leikstýrð af Henry Selick og framleidd af LAIKA. Hún kom út árið 2009 og er byggð á samnefndri bók eftir Neil Gaiman sem kom út árið 2002.

Myndin hefur vakið mikla athygli fyrir einstakann stíl sinn sem myndar dökka en heillandi stemningu.

Myndin er sérstaklega þekkt fyrir ótrúleg handgerð smáatriði. Notuð voru um 130 mismunandi sett og yfir 15 þúsund mismunandi andlit á brúðunum til að skapa svipbrigði. Þetta gefur myndinni mjög lifandi og raunverulegt yfirbragð þrátt fyrir að vera teiknimynd. Framleiðslan var einnig mjög tímafrek; hún tók næstum fjögur ár í heildina, þar af um tvö ár í forframleiðslu og um 18 mánuði í sjálfar upptökurnar. Þetta sýnir hversu mikil vinna og nákvæmni liggur að baki hverri einustu senu.

Saga

Coraline Jones, forvitna og ævintýragjarna unga stúlku sem flytur með foreldrum sínum í gamalt hús sem kallast Bleika höllin. Húsið er skipt í nokkrar íbúðir þar sem búa ýmsir sérkennilegir nágrannar, til dæmis herra Bobinski sem býr á efstu hæð og fyrrverandi óperusöngkonur sem búa í kjallaranum. Coraline kynnist einnig nágranna strák sem reynir að hjálpa henni og verða þau vinir.

Foreldrar Coraline eru hins vegar mjög upptekin í vinnum sínum og hafa lítinn tíma fyrir hana, sem veldur því að henni leiðist og hún leitar að ævintýrum. Dag einn finnur hún dularfulla hurð í húsinu sem leiðir hana inn í annan heim. Í þeim heimi virðist allt vera fullkomið: „hin móðirin“ og „hinn faðirinn“ eru umhyggjusamari, maturinn betri og umhverfið meira spennandi. Hins vegar er einn óhugnanlegur galli – allir í þessum heimi eru með tölur í stað augna. Fljótlega kemur í ljós að þessi fullkomni heimur er blekking. Hin móðirin, sem einnig er kölluð

Beldam, reynir að lokka Coraline til að vera hjá sér að eilífu með því skilyrði að hún láti sauma tölur í augun sín. Þetta sýnir dökka hlið sögunnar og hvernig eitthvað sem virð ist fullkomið getur í raun verið hættulegt. Coraline þarf því að sýna mikið hugrekki og klókindi til að sleppa úr þessum gildrum og bjarga bæði sjálfri sér og öðrum börn um sem hafa lent í sama hættu. Í gegnum söguna lærir hún að meta raunverulegt líf sitt og foreldra sína, þrátt fyrir að það sé ekki fullkomið.

Að lokum

Í heildina er Coraline ekki bara spennandi og sjónrænt falleg mynd heldur einnig saga með dýpri merkingu. Hún fjallar um hug rekki, sjálfstæði og mikilvægi þess að meta það sem maður hefur í raunveruleikanum, jafnvel þó að það sé ekki alltaf eins og maður óskar sér.

Ljósmyndari Sirena Velena

Maine coon

Að maine coon kettir eru ekki fullvaxna fyrir en þeir eru fjögura ára. Læðurnar eru í kringum 5-7 kg og fressarnir eru í kringum 8-11kg, venjulegur heimilisköttur er aðeins 3-6kg Ljósmyndari Emilly Anna Schelvis

Maine coon kettir eru eitt af stærstu og vinsælustu kattartegundum í heiminum, þekktastir fyrir

stærð sína, langa feld stóru loppur og blíðann og vingjarnlegann persónuleika sem gera þá frábæra fyrir fjölskyldur.

Maine Coon kettir eru gáfaðir og leiknir, en þeir eru einnig þolinmóðir og rólegir, sem gerir þá auðvelt að temja og ala upp. Þeir elska að vera í félagsskap fólks og geta jafnvel lært að taka þátt í leikjum með hundum eða fylgja eiganda sínum um húsið.

Þrátt fyrir stóra stærð eru Maine Coon kettir blíður og virðast alltaf vita hvenær á að vera rólegur. Þeir þurfa reglulegt burstun á feldinum vegna loðins sem getur flækst auðveldlega, en það er lítill vandi miðað við það gleðilega félag sem þeir bjóða. Þeir eru sannarlega blíðu risar í kattar heiminum.

Þessir kettir hafa verið myndaðir og skráðir í meira en hundrað ár fyrst í fréttarblaði árið 1861 en tegundinn var nær útdauð í kringum 1950 en sprakk í vinsældum í kringum 1960 til 1970 og síðan þá hefur fengist gríðarlegu vinsældum.

Uppruni tegundundinnar er aðeins að hluta til þekkt með eina sögu sem segir að tegundin á uppruna hjá breskum skipstjóra Charles Coon sem var sagður eiga langhærða ketti, en sannleikurinn er sá að fyrsti Maine Coon Köttinn var blendingur af Norskum skógarketti og óþekktum og útdauðum heimiliskattar tegund sem kom líklegast frá víkingum

Maine coon eru mjög langlífa meðað við stærð en áætluð lífstíð fyrir Maine Coon er 12-15 ár en getur verið allt að 16-18 ár með góðri umönnun og heilbrigðum lífsstíl, en þeir þurfa reglulegar skoðanir hjá dýralæknir vegna þess að þeir geta verið næmir fyrir ákveðnum erfðasjúkdómum eins og hjarta og nýrna vandamálum þannig mikilvægt er að hafa eftirlit yfir heilsu þeirra.

Sturluð staðreynd!

Að árið 2010 var maine coon köttur sem hét Stewie sem mældist frá nefi til enda skotts ótrulega 123cm! En venjulegir maine coon kettir mællast í kringum

Vissir þú?

LITLAPRENT & MIÐAPRENT

SKEMMUVEGUR 4 - 200 KÓP.

Faglegar prentlausnir

Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu.

Skemmuvegi 4, blá gata 200 Kópavogi Sími 540 1800 Netfang litlaprent@litlaprent.is Veffang www.prent.is Opið virka daga : 8:00–16.00

Styrkur við nám og störf

Að vera í rétta stéttarfélaginu skiptir máli. Kjaramál eru mikilvæg í lífi hvers launþega og skipta Grafía því miklu máli enda sjáum við um þau. leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameiningarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu.

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook