tímarit sem ég hef unnið að sem lokaverkefni í grafískri miðlun við Tækniskólann.
Verkefnið byggir á áhugamálum mínum og því sem ég hef lært á námsferlinum. Í vinnunni hef ég fengið tækifæri til að þróa minn eigin stíl, prófa nýjar hugmyndir og setja þær fram á skapandi hátt.
Ferlið hefur verið bæði krefjandi og skemmtilegt, en um leið mjög lærdómsríkt. Ég er þakklátur fyrir stuðninginn og leiðsögnina sem ég hef fengið frá kennurunum mínum, sem hafa átt stóran þátt í því að þetta verkefni varð að veruleika.
Ég er stoltur af niðurstöðunni og vona að þið njótið þess að skoða Emblu.
Textagerð, Umbrot og hönnun
Bladvin Þór Högnason
Prentun og útgefandi
Upplýsingaskólinn
„Baldvin Þór Högnason“
Ég heiti Baldvin og er fæddur 6. október 2008. Ég er nemandi í Tækniskólanum þar sem ég legg stund á sérsvið grafíska miðlun og skapandi fag.
Ég hef mikinn áhuga á grafískri hönnun og finnst skemmtilegt að vinna með liti, letur og uppsetningu til að skapa sterka og faglega heildarmynd. Ég er metnaðarfullur og leitast við að bæta mig stöðugt og þróa minn eigin stíl í hönnun.
Í framtíðinni stefni ég á að halda áfram í námi eftir Tækniskólann og flytja til Bretlands. Þar langar mig að fara í háskóla og læra meira um grafíska hönnun og skapandi greinar. Markmið mitt er að þróa færni mína enn frekar, fá meiri reynslu og byggja upp feril sem grafískur hönnuður.
The Kid Laroi
The Kid Laroi er ástralskur rappari og söngvari sem hefur náð miklum vinsældum á alþjóðavísu. Hann fæddist árið 2003 í Sydney í Ástralíu og byrjaði ungur að hafa áhuga á tónlist. Hann ólst upp við tónlist og byrjaði snemma að semja lög og taka upp tónlist.
Ungur listamaður
The Kid Laroi, sem heitir réttu nafni Charlton Kenneth Jeffrey Howard, er enn mjög ungur miðað við hversu miklum árangri hann hefur náð. Hann fæddist árið 2003 og varð þekktur tónlistarmaður á unglingsaldri. Þetta sýnir hversu hratt tónlist getur dreifst í dag með hjálp internetsins og streymisveitna.
Vinátta við Juice WRLD
Ferill hans tók mikinn kipp þegar hann kynntist rapparanum Juice WRLD. Þeir urðu vinir og Juice WRLD hjálpaði honum að fá meiri athygli í tónlistarheiminum. Eftir það fór tónlist Laroi að dreifast hratt á internetinu og fleiri fóru að hlusta á lögin hans.
Tónlistarstíll og framtíð
Tónlist The Kid Laroi blandar saman rapptónlist og popptónlist sem gerir hana aðgengilega fyrir breiðan hóp hlustenda. Lögin hans fjalla oft um tilfinningar, sambönd og lífið sem ungur einstaklingur.
The Kid Laroi er talinn einn af efnilegustu
tónlistarmönnum sinnar kynslóðar og heldur áfram að gefa út ný lög sem ná vinsældum á streymisveitum eins og Spotify og YouTube.
Tónlistariðnaður og upptökuver
Í dag er tónlistariðnaðurinn mjög tengdur stafrænum miðlum þar sem streymisveitur eins og Spotify og YouTube hafa gert listamönnum kleift að ná alþjóðlegri dreifingu án þess að treysta eingöngu á hefðbundna útgáfufyrirtæki. The Kid Laroi vinnur með stórum record labels og faglegum upptökuverum þar sem lögin hans eru þróuð með aðstoð framleiðenda, lagahöfunda og hljóðtækni.
Í upptökuveri er lögð mikil áhersla á hljóðvinnslu, mixing og mastering til að tryggja að hvert lag hljómi sem best á öllum tækjum. Þar eru einnig oft gerðar tilraunir með nýjar hugmyndir, hljóð og stíl áður en lög eru gefin út. Þetta sýnir hvernig nútíma tónlist er ekki bara sköpun listamannsins sjálfs, heldur samvinnuverkefni margra sérfræðinga.
11:20–16:30
Komdu við hjá okkur og fáðu góða þjónustu í rólegu og þægilegu umhverfi.
ChildRvk
Árið 2017 stofnuðu fjórir vinir – Benedikt Andrason, Sigurður Ýmir, Pétur Kiernan og Jóhann Kristófer – merkið Child. Verkefnið hófst sem sameiginleg hugmynd og sköpunarvettvangur þar sem þeir unnu saman að því að þróa merkið og byggja upp sitt eigið sjónarhorn á hönnun og menningu.
Leiðir skilja
Eftir nokkur ár af nánu samstarfi fóru leiðir þeirra að skiljast þar sem hver og einn leitaði í sínar eigin áttir og verkefni. Þrátt fyrir það lifði andinn frá Child áfram í verkum þeirra. Benedikt opnaði verslun og veitingastaðinn Nebraska, þar sem hönnun og upplifun fara saman. Pétur stofnaði íþróttafatamerkið Metta Sport og lagði áherslu á hreyfingu og lífsstíl. Sigurður starfaði sem 3D hönnuður og þróaði sjónrænar lausnir, á meðan Jóhann Kristófer skapaði sjónvarpsþættina Æði og gaf út tónlist sem vakti athygli.
Nýtt upphaf
„Í fyrra kynntumst við Benedikt Halla, sem á og rekur merkið Coppermine. Við ákváðum að vinna saman að samstarfsverkefninu Child x Coppermine, sem fékk mjög góðar viðtökur “
Child vaknar aftur
Eftir velgengni samstarfsins kviknaði áhuginn
á Child á ný. Síðan þá hefur verkefnið fengið nýtt líf og nýja stefnu, þar sem unnið er áfram með upprunalegu hugmyndirnar en jafnframt þróaðar nýjar. Child er því ekki lengur bara minning um liðna tíma, heldur lifandi vettvangur sem heldur áfram að vaxa og mótast með hverju nýju skrefi.
Víkingur Reykjavík
Víkingur Reykjavík er eitt af þekktustu fótboltaliðum Íslands. Félagið var stofnað árið 1908 og hefur því mjög langa sögu í íslenskum íþróttum.
Á síðustu árum hefur Víkingur Reykjavík náð mjög góðum árangri í íslenska boltanum.
Liðið hefur unnið Íslandsmeistaratitla og bikarmeistaratitla og hefur einnig tekið þátt í evrópskum keppnum.
Fótbolti er mjög vinsæl íþrótt á Íslandi og mörg félög hafa sterkan stuðning frá samfélaginu.
Víkingur Reykjavík er eitt af þeim liðum sem hafa byggt upp sterka liðsheild og góðan leikstíl sem hefur skilað góðum árangri.
Íþróttafélög eins og Víkingur Reykjavík skipta miklu máli fyrir samfélagið þar sem þau
gefa ungu fólki tækifæri til að æfa íþróttir, vinna saman í liði og bæta bæði líkamlega og andlega heilsu
Heimavöllur Víkings er Víkingsvöllur í Fossvogi, þar sem liðið spilar sína heimaleiki og stuðningsmenn safnast saman til að hvetja liðið áfram. Stuðningsmenn Víkings eru þekktir fyrir mikinn eldmóð og skapa oft frábæra stemningu á leikjum.
Félagið leggur einnig mikla áherslu á uppeldisstarf og hefur alið upp marga hæfileikaríka leikmenn sem hafa farið í atvinnumennsku bæði á Íslandi og erlendis. Með góðu skipulagi, sterkri þjálfun og metnaði hefur Víkingur
Reykjavík fest sig í sessi sem eitt af fremstu liðum landsins.
Heimatreyjur Víkinga
Heimatreyjur Víkinga eru mjög mikilvægur hluti af sjálfsmynd liðsins. Treyjan er það sem leikmenn klæðast í leikjum á heimavelli og hún táknar bæði sögu félagsins og tengsl þess við stuðningsmenn. Víkingur hefur lengi spilað í treyjum sem eru í svörtum og rauðum litum, og þeir litir hafa orðið einkennandi fyrir liðið í íslenskum fótbolta.
Hönnun heimatreyjunnar hefur breyst aðeins með árunum, en litirnir haldast alltaf þeir sömu. Oft er treyjan svört með rauðum röndum eða mynstri, sem gefur henni bæði klassískt og nútímalegt útlit. Svarti liturinn er yfirleitt grunnurinn, en rauði liturinn er notaður til að gera treyjuna meira áberandi og líflega. Þetta hjálpar líka leikmönnum að skera sig úr á vellinum.
Litirnir hafa líka ákveðna merkingu. Svartur táknar styrk, aga og ákveðni. Hann gefur til kynna að liðið sé skipulagt og erfitt að sigra. Rauður táknar hins vegar orku, baráttu og ástríðu. Hann sýnir vilja leikmanna til að leggja allt í leikinn og gefast ekki upp. Þegar þessir tveir litir eru sameinaðir, myndast sterk ímynd sem passar vel við keppnisanda liðsins.
Fyrir stuðningsmenn er treyjan líka tákn um samstöðu og stolti. Þegar fólk klæðist treyju Víkinga sýnir það stuðning við liðið og verður hluti af samfélaginu í kringum það. Þannig eru heimatreyjurnar ekki bara fatnaður, heldur mikilvægur hluti af menningu og sögu félagsins.
Starbucks á Íslandi
Alþjóðlega kaffikeðjan Starbucks hefur loksins hafið starfsemi á Íslandi, þó í takmarkaðri mynd miðað við önnur lönd.
Undanfarin ár hefur keðjan opnað staði í miðborg Reykjavíkur og í samstarfi við hótel, sem markar tímamót í íslenskri kaffimenningu
þar sem lengi var talið ólíklegt að fyrirtækið myndi hasla sér völl á markaðnum. Meðal annars er Starbucks að finna á Hafnartorgi og á Laugavegi, þar sem bæði ferðamenn og heimamenn geta nálgast vörur keðjunnar.
Starbucks í samstarfi við hótel
Einnig er Starbucks staðsett inni á Berjaya Reykjavík Natura Hotel, þar sem boðið er upp á úrval drykkja undir merkjum Starbucks, þó í einfaldari mynd en þekkist víða erlendis.
Slíkt samstarf er algeng leið fyrir alþjóðleg vörumerki til að prófa sig áfram á minni mörkuðum.
en almennt opna staðirnir snemma á morgnana, um klukkan 7:00–8:00, og eru opnir fram á kvöld, oft til klukkan 18:00–20:00 á virkum dögum, en með styttri opnunartíma um helgar.
Takmörkuð en vaxandi nærvera
Þrátt fyrir þessa þróun er nærvera Starbucks á Íslandi enn tiltölulega lítil og
ekki sambærileg við það sem þekkist í stærri borgum, þar sem keðjan rekur fjölda sjálfstæðra kaffihúsa. Þetta endurspeglar bæði smæð markaðarins og sterka stöðu íslenskra kaffihúsa sem halda áfram að móta kaffimenningu landsins.
Kaffitegund Koffín
Starbucks Blonde Roast
Espresso Roast
180–270 mg (per bolli)
60–80 mg (per skot)
Decaf 2–15 mg (per bolli)
Hey! Vissir þú?
Adopt Me
Hvað er Adopt Me?
Adopt Me er einn þekktasti leikurinn á Roblox og flestir sem spila Roblox hafa prófað hann allavega einu sinni. Í leiknum getur maður ættleitt gæludýr, séð um þau og verslað við aðra leikmenn. Það byrjar frekar einfalt, en svo festist maður fljótt í því að reyna að fá
Af hverju er leikurinn svona vinsæll?
Það sem gerir Adopt Me svona vinsælan er að það er alltaf eitthvað að gera. Það koma reglulega ný dýr, event og uppfærslur sem gera leikinn spennandi aftur og aftur. Maður fær líka ákveðna „tilfinningu” þegar maður fær eitthvað sjaldgæft eða nær að tradea sig upp. Margir spila líka með vinum sínum, sem gerir þetta meira félagslegt.
Samstarf við McDonald’s
Leikurinn hefur meira að segja farið út fyrir Roblox. Það var samstarf við McDonald’s þar sem Adopt Me var kynnt í tengslum við Happy Meal. Það sýnir hversu stór leikurinn er orðinn – hann er ekki bara leikur lengur heldur eitthvað sem fyrirtæki vilja tengja sig við, alveg eins og með vinsæl vörumerki.
Áhrif á leikmenn
Adopt Me getur verið mjög skemmtilegur og gefur fólki eitthvað að gera með vinum sínum. En á sama tíma geta sumir eytt mjög miklum tíma í leiknum og jafnvel peningum til að fá betri gæludýr. Þess vegna er gott að hafa smá jafnvægi og muna að þetta er bara leikur.