GRAFÍSK MIÐLUN ︱VOR 2021 ︱6. TBL. 10. ÁRG.
EMBLA
Embla︱1
Fagmennska til framtíðar IÐAN sinnir símenntun starfsmanna á flestum sviðum atvinnulífsins. Boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval vefnámskeiða sem styrkja fólk í starfi.
Sími 590 6400 idan@idan.is www.idan.is Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
6
Smoothies Einfaldar uppskriftir
8
„Það er draumur að vera með dáta“ Brot úr sögunni
10
Hvar, Króatía Ferðalög
Artemisia Gentileschi
14
List
Leiðari Nú er loks farið að vora. Í mínum huga er vorið tákn nýs upphafs og vonar og á það svo sannarlega við í þetta skiptið. Námi okkar lýkur og nýir tímar taka við. Þessi önn hefur verið litrík fyrir margar sakir og þá sérstaklega fyrir tilstilli COVID-19 faraldursins, sem h efur komið miklu umróti á líf fólks um allan heim. K ennt var bæði í staðnámi og fjarnámi sem var krefjandi en um leið lærdómsríkt. Dýrmætast fannst mér að kynnast b ekkjarsystkinum og kennurum þegar staðnám hófst á ný. Maður gleymir því n efnilega stundum í heimsfaraldri hvað samskipti og tengsl eru m ikilvæg. Því er þakklæti mér efst í huga þegar við stöndum frammi fyrir útskriftinni og ég bíð spennt eftir sumrinu. Ég þakka fyrir mig og óska þér, kæri lesandi, gleðilegs vors.
Umbrot og hönnun Jana Katrín Magnúsdóttir Hönnun forsíðu Jana Katrín Magnúsdóttir Ljósmynd á forsíðu Kristófer Bjarmi Schram Ljósmynd á síðu Kristófer Bjarmi Schram Ljósmyndir á innsíðum Bls. 6: LYFE Fuel, Unsplash Bls. 9: Ljósmyndari óþekktur Útgefandi og prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 47 Condensed Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13
4 ︱Embla
en nóg um mig... É
g heiti Jana Katrín og er 22 ára gömul. Ég fæddist einn sumarmorgun í ágúst í Kaupmannahöfn en flutti ung á Ránargötu í Reykjavík þar sem ég ólst upp. Ég átti fallega æsku í Vesturbænum og fann allt frá upp hafi fyrir mikilli löngun til að skapa. Á veggjum íbúðarinnar á Ránargötunni héngu eftir mig myndir og málverk og voru hvers kyns listasýningar settar á stokk fyrir vini og vandamenn. Öll blöð og bækur voru yfirfullar af kroti og fígúruteikningum og fengu ærslaleikir barnanna í götunni oftar en ekki að víkja fyrir þeirri sterku sköpunarþörf sem búið hefur innra með mér síðan. Þegar ég var ellefu ára gömul flutti ég með foreldrum mínum í Kjósina í Hvalfirði. Í Kjósinni var mikið um einsemd og lærði ég með tímanum að njóta þagnarinnar og þess sem hún hafði upp á að bjóða. Ég deildi heimili mínu í Kjósinni með foreldrum mínum, tveimur köttum og tveimur æðarfuglum sem gerðu sig heimakomna eitt sumarið. Það var því í nógu að snúast þó börnin væru fá í nágrenninu. Ég minnist Kjósarinnar með miklum hlýhug og nýti hvert tækifæri sem gefst til þess að komast í tæri við fjallgarðinn, hafið og fjörðinn sem er mér svo kær. Þegar ég hafði slitið barnsskónum var förinni heitið í Menntaskólann í Reykjavík þar sem ég stundaði nám í tvö og hálft ár. Þar eignaðist ég vini fyrir lífstíð en ég fann fljótt að bóknámið var ekki að svala sköpunarþörfinni og ég þráði að læra meira um hin ýmsu áhugamál sem áttu hug minn allan. Ég skipti því yfir í Menntaskólann við Hamrahlíð.
Þar gat ég sniðið námið betur að eigin hugðarefnum og lauk ég stúdentsprófi með áherslu á tungumál og listasögu vorið 2019. Ég hugsaði lengi vel hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og ég vissi að ég yrði að finna mér starfsvettvang sem byði upp á fjölbreytt og skapandi verkefni. Og það var einn daginn sem ég áttaði mig á því að leiðin hefur raunar alltaf legið að grafíkinni þar sem mörg helstu áhugamála minna koma saman. Ég hóf því nám við Tækniskólann haustið 2019. Í náminu lærði ég grunninn að grafískri miðlun, m.a. uppsetningu texta, myndvinnslu, týpógrafíu og hönnun. Allt er þetta kunnátta sem ég veit að mun nýtast mér vel í áframhaldandi námi og starfi síðar meir. Nú þegar útskrift er í höfn hyggst ég flytja aftur til Danmerkur, tuttugu og tveimur árum eftir að ég fór þaðan. Ég vonast til þess að geta skapað mikið í næstu verkefnum sem lífið gefur mér og ég bíð með eftirvæntingu eftir framhaldinu.
Embla︱5
einfaldar smoothie uppskriftir
mangó & banana smoothie
3
það sem til þarf:
1 stór banani 2 dl frosið mangó 1 msk vanilluprótein 200 ml haframjólk
blanda þar til mjúkt.
1
avókadó & banana smoothie
það sem til þarf:
1 stór frosinn banani 1/2 þroskað avókadó 1 msk vanilluprótein 1 lúkufylli spínat 200 ml möndlumjólk
blanda þar til mjúkt.
2
hindberja & kaffi smoothie
6 ︱Embla
engifer & grænkáls smoothie
4
það sem til þarf:
2 dl frosið mangó 1 lúkufylli grænkál 1 msk engifer 1 msk hlynsýróp 1 banani 200 ml möndlumjólk
blanda þar til mjúkt.
það sem til þarf:
1 stór banani 1 msk kakó 1 espressóskot 1 msk hnetusmjör 2 dl frosin hindber 200 ml haframjólk
Góður dagur byrjar að morgni.
blanda þar til mjúkt.
− íslenskur málsháttur.
spínat & ananas 5 smoothie
banana & kaffi smoothie
6
það sem til þarf:
það sem til þarf:
1 stór banani 2 dl frosinn ananas 1 lúkufylli spínat 200 ml kókosmjólk
blanda þar til mjúkt.
1 frosinn banani 1 msk súkkulaðiprótein 1 msk hunang 150 ml espressó 200 ml möndlumjólk
blanda þar til mjúkt.
FISH & CHIPS 1.990 kr. 10:00−21:00 alla virka daga Bíldshöfði 18, 110 Reykjavík • www.sjavarhusid.is • Sími 551 9552
Þ
egar orðið ástandið er nefnt nú á tímum má ætla að umræðuefnið sé hin óvenjulega staða sem myndast hefur í kjölfar COVID-19 faraldursins sem herjað hefur á heimsbyggðina nú í hálft annað ár. En sé hugtakið skoðað í sögulegu samhengi birtast aðrar niðurstöður, en hugtakið var mikið notað á meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð á Íslandi og hafði skírskotun í þau áhrif sem erlendir hermenn höfðu á íslenskar konur. Ástin sveif yfir vötnum og ástarsambönd voru tíð á meðal íslenskra kvenna og bandarískra hermanna. Átta mánuðum eftir formlegt upphaf seinni heims styrjaldarinnar, nánar tiltekið þann 10. maí 1940, var Ísland hernumið af Bretum. Þann dag var íslensku lögreglunni tilkynnt að bresk herskip höfðu lagst að bryggju í Reykjavík og var ástæða aukins herafla sú að lega landsins var talin heldur óheppileg ef Ísland færi í hendur Þjóðverja á meðan á stríðinu stæði. Bandaríski herinn fylgdi fast á hæla þess breska og lagði landfestar við Ísland sumarið 1941. Hermenn á Íslandi voru þá orðnir um 50.000 talsins og olli það miklu umróti í íslensku samfélagi. Strax við komu Breta hófst mikil uppbygging, þ.á.m. vegagerð, uppbygging flugvalla og í kjölfarið auknir atvinnumöguleikar. Eftir komu Bandaríkjahers fór einnig að gæta bandarískra áhrifa í samfélaginu en fólk fór meira út á lífið, áður ókunnir tónar djassins bárust frá veitingastöðum og kaffihúsum og Coca-Cola var kynnt fyrir landanum árið 1942. Þó andstaða við herinn hafi verið lítið áberandi var almúginn hvattur til þess að hafa takmörkuð afskipti af honum og að Íslendingum bæri að forðast öll tengsl til að sýna fram á föðurlandsást sína. Mörgum þótti það því ógna þjóðerni Íslendinga þegar íslenskar konur hófu að renna hýru auga til hermannanna.
„Það er draumur að vera með dáta“
„Smitandi þjóðfélagssjúkdómur“ Daginn eftir hernámið, þann 11. maí árið 1940 fóru að berast fregnir af því í stærstu dagblöðum landsins að íslenskar stúlkur hefðu gerst heldur nærgöngular við hina erlendu hermenn. Töldu æðstu ráðamenn þjóðarinnar að grípa þyrfti strax til aðgerða til að „stemma stigu við ósiðsömu háttalagi“ kvenna og taldist hver sú stúlka, sem hafði samskipti við hermann, af óþjóðalýð komin. Úr varð að mynduð var svokölluð ástandsnefnd, en í henni sátu þrír karlmenn. Eftir mánaðalanga vinnu skiluðu meðlimir nefndarinnar af sér viðamikilli skýrslu þar sem kom fram að lögreglan hefði undir höndum upplýsingar um 500−1000 konur sem allar áttu að hafa átt í nánum samskiptum við hernámsliðið. Konurnar, sem flestar voru á táningsaldri, máttu líða ofsóknir á opin-
8 ︱Embla
Hannes Pálsson, Ljósmyn
ndasafn Reykjavíkur
berum vettvangi í kjölfar útgáfu skýrslunnar og í sumum tilfellum algjöra útskúfun. Voru þær sumar hverjar sendar á vinnuhæli í Borgarfirði ef liggja þóttu til grundvallar haldbærar vísbendingar um að þær „stunduðu Kanann“. Seint var athæfi sem þessu gleymt og má finna heimildir um að þessar konur höfðu margar hverjar á sér smánarblett ævina út sem gat jafnvel haft áhrif á afkomendur þeirra líka. Heyra mátti háværar gagnrýnisraddir í samfélaginu vegna skýrslunnar, sem öll var unnin upp úr gögnum lögreglu. Í henni var ekki gerður greinarmunur á þeim konum sem höfðu trúlofast eða gifst hermönnum og þeim sem stunduðu vændi. Í kjölfarið hóf herliðið eigin rannsókn og leiddi hún af sér mun mildari niðurstöður. Telur sagnfræðiprófessorinn Þór Whitehead þessar persónunjósnir íslensku lögreglunnar vera þær umfangsmestu frá upphafi lýðveldisins. Ástandsbörn „Oft mega börn bera brigsli foreldra,“ segir í gömlum ís lenskum málshætti og endurspeglaðist það vel á á runum eftir stríð í íslensku samfélagi. Þau börn, sem fæddust e rlendum hermanni og íslenskri móður, máttu mörg hver líða mikla fordóma og mismunun strax frá fæðingu og ólust upp í samfélagi sem að mörgu leyti hafnaði tilvist þeirra. Helstu þjóðernissinnar íslensku þjóðarinnar töldu ástandið sem myndast hafði vera raunverulegt þjóðfélags mein sem ógnaði íslensku arfleifðinni. Þegar rýnt er í opinberar tölur er hins vegar ekki hægt að færa rök fyrir fjölgun
óskilgetinna barna á meðan á stríðinu stóð á Íslandi. Þó virðast „ástandsbörn“ hafa upplifað uppvaxtarár sín á mis munandi hátt. Mörg þeirra lýstu grófu einelti af hálfu barna og fullorðinna á meðan önnur minntust h amingjusamrar æsku og töldu uppruna sinn ekki hafa haft áhrif á uppvaxtarárin. Gætu margar breytur haft áhrif á ólíkt viðhorf þessara barna og má þar nefna húðlit, þjóðfélagsstétt, bakland og fleira. Með tímanum varð viðvera hersins hluti af íslensku samfélagi og opinber andstaða varð minna áberandi hérlendis. Íslensk börn „ástandsins“ uxu úr grasi og hafa mörg þeirra haft mikla þörf fyrir að leita uppruna síns erlendis. Tókst mörgum þeirra að hafa uppi á feðrum sínum og ættingjum á meðan önnur uppskáru ekki árangur erfiðis síns. Koma hersins hafði óneitanlega mikil áhrif hérlendis og hafði sína kosti og ókosti. Efnahagur landsins batnaði og atvinnutækifærum fjölgaði. Þrátt fyrir batnandi hag í samfélaginu vegna veru hersins voru hleypidómar og ótti við hið óþekkta ríkjandi í samfélaginu og lýsti það sér meðal annars í framkomu landans við konur samfélagsins og sam skipta þeirra við herinn. Árið 2006 fóru síðustu hermennirnir af landi brott, 66 árum eftir að fyrstu herskipin lögðust að bryggju í Reykjavík. Þó margir líti á hernámið sem myrkan tíma í sögu þjóðar verður því ekki neitað að það er hluti af sögu landsins okkar og átti þátt í að móta samfélagið að því sem það er í dag.
Kleppjárnsreykir & ungmennaeftirlitið Í kjölfar stofnunar ungmennaeftirlits á vegum lögreglukonunnar Jóhönnu Knudsen var vinnuhælinu Kleppjárnsreykjum komið á laggirnar í Reykholtsdal í Borgarfirði í nóvember 1942. Voru stúlkur allt niður í tólf ára gamlar sendar þangað í refsiskyni fyrir að hafa átt vingott við hermenn. Var tilgangur heimilisins að kenna þeim sem þar dvöldu hreinlæti, reglusemi og góða vinnusiði. Á Kleppjárnsreykjum voru stúlkurnar sendar í viðamikla læknisrannsókn og þær látnar taka greindarpróf. Ef stúlkurnar fóru ekki eftir fyrirmælum á meðan á dvöl stóð voru þær sendar niður í örlitla gluggalausa klefa, þar sem þær máttu dúsa í allt að einn til tvo sólarhringa. Í kjölfar hugmyndafræðilegrar togstreitu milli ungmennaeftirlitsins og Barnaverndarnefndar var ákveðið að loka Kleppjárnsreykjaheimilinu í október 1943, tæpu ári eftir stofnun þess. Jóhanna Knudsen barðist áfram ötullega fyrir því að stofnunin yrði endurvakin en vegna áðurnefndra árekstra milli hagsmunaaðila varð svo ekki. Úr varð loks að allt vald var tekið af ungmennaeftirlitinu 1944 og Jóhönnu Knudsen var sagt upp störfum hjá lögreglunni ári síðar.
Embla︱9
Eyjan Hvar er staðsett í miðju Dalmatíuhéraði í Króatíu og er lengsta eyja landsins. Eyjan er þekkt fyrir túrkísblá höf og fallega lavender akra og er einn sólríkasti staður í Evrópu. Eyjan teygir sig 68 kílómetra í suðaustur og má þar finna mörg áhugaverð þorp, en þeirra þekktast er bærinn Hvar, á suðvesturströnd eyjunnar. Í október 2018 lagði ég leið mína til Króatíu og dvaldi í níu daga á þessari fallegu eyju við
Adríahafið. Svo sterk varð upplifun mín af fegurð hennar að hugur minn reikar í sífellu til eyjarinnar með sínu hlýja loftslagi, rólega yfirbragði og heillandi menningu. Nú þegar við sjáum fyrir endann á heims faraldrinum má ætla að margir fari að huga að ferðalögum til fjarlægra landa. Á eyjunni Hvar og í nágrenni eru margir ógleymanlegir staðir sem gaman er að heimsækja og hef ég tekið saman nokkra þeirra.
Nicolas Jossi, Unsplash
ÓGLEYMANLEGIR STAÐIR Í HVAR 1 | Split
3 | Spanjola-virkið
Flestir sem halda til Hvar koma við í hafnarborginni Split á vesturströnd landsins og er hún önnur stærsta borg Króatíu. Ferðamannafjöldi í Split hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum og svíkur borgin engan sem hana heimsækja. Er hún þekkt fyrir fjölbreytt mannlíf, fallegan arkitektúr og góðan mat sem tilvalið er að njóta með útsýni út á hið íðilfagra Adríahaf.
Í grasi grónum hlíðum bæjarins má sjá glitta í vígalegt virki sem byggt var á tímum Feneyjaveldisins (e. Venetian Empire). Þegar Tyrkir hertóku eyjuna árið 1571 leituðu allir íbúar skjóls í virkinu á meðan ræningjarnir létu greipar sópa um eyjuna og skildu eftir sig mikla eyðileggingu. Spanjola-virkið stendur á toppi 100 metra hárrar hlíðar en gönguleiðin er aflíðandi og hentar hún flestum til göngu. Þegar að virkinu er komið er boðið upp á léttar veitingar og útsýnið þaðan lætur engan ósnortinn.
2 | Hvar Siglt er frá Split til Hvar nokkrum sinnum á dag, og þó oftar yfir helsta ferðamannatímann sem stendur frá júní og fram í september. Ferðin tekur tæpar tvær klukkustundir og er lagt við bryggju í bænum Hvar, sem er stærsti bær samnefndrar eyju með um 4,000 íbúa. Rústrauð þök og perluhvítir steinveggir einkenna byggingarlist Hvar og í bænum má víða finna góða v eitingastaði, verslanir og söfn. Sé horft út á Adríahafið nær kristaltær sjórinn svo langt sem augað eygir og auk þess má sjá hinar dásamlegu Paklenieyjar úti fyrir víkina.
4 | Stari Grad Á norðurströnd Hvar má finna bæinn Stari Grad, sem er einn elsti bær Evrópu. Stari Grad stendur á fallegri og g róskumikilli sléttu sem er hluti af heimsminjaskrá UNESCO. Kaffihús, veitingastaðir og verslanir teygja sig yfir steinlagðar göturnar og í höfninni liggur fjöldinn allur af litríkum smábátum og skútum. Hægt er að ganga upp hina fögru Glavica-hæð, sem er hæsti punktur Stari Grad, fyrir ógleymanlegt útsýni yfir bæinn, sléttuna og allt þar á milli.
Split Siglingarleið
Hvar
Sólbaðströnd
Spanjola
Bæir / borgir
Stari Grad Lavenderakrar
Svæði
Sveti Klement
Útsýnisstaðir
Vis Biševo
Embla︱11
FERÐAÁÆTLUN
ÁÆTLAÐUR TÍMI
Keflavík (KEF) − Kaupmannahöfn (CPH)
3 klst. 10 mín.
Kaupmannahöfn (CPH) − Split (SPU)
2 klst. 15 mín.
Split (SPU) − Hvar
1 klst. 40 mín.
5 | Lavenderakrarnir
7 | Vis
Það sem einkennir einnig hina áhugaverðu Hvar er mildur lavenderilmurinn sem hangir í loftinu. Ástæðan eru gríðar stórir, fjólulitaðir lavenderakrar sem teygja sig allt frá Stari Grad og yfir til bæjarins Hvar. Lavender blómstra frá maí og fram í júlí og þá er tilvalið að fara í skoðunarferð um viðamiklar slétturnar.
Vis er eyja sem liggur suðvestan við Hvar. Hún er 90 ferkílómetrar og búa þar um 3.600 manns yfir vetrartímann. Helstu auðlindir hinnar fögru Vis er vínyrkja, fiskveiði og ferðamannaiðnaður. Eyjan er afskekktari heldur en Hvar og er sérlega gaman að leigja sér smábát og sigla um svæðið og jafnvel stinga sér til sunds.
6 | Sveti Klement
8 | Biševo
Sveti Klement er stærsta eyja Pakleni-eyjaklasans, rúmlega fimm ferkílómetrar að stærð. Landslagið er gróskumikið og framandi og göngustígar teygja sig þvert yfir eyjuna. Þar er tilvalið að stinga sér til sunds, halda í stuttar gönguferðir eða fá sér kvöldmat á veitingastaðnum Dionis og fylgjast með sólinni setjast yfir kyrrum haffletinum.
Krúnudjásn Adríahafsins má finna á eyjunni Biševo, sem liggur fimm kílómetra suðaustur af Vis. Um er að ræða falinn helli, Medvedina Spilja, sem aðeins er a ðgengilegur á l itlum hraðbát í lágsævi. Vegna hvítrar s andbreiðu á sjávarbotni og sólskins sem flæðir inn um op í hvelfingu hellisins fyllist hellirinn af fagurblárri birtu í þrjár klukkustundir á dag.
Magnús B. Magússon, 2018
12 ︱Embla
HVAR Í MYNDUM
Marcus Löfvenberg, Unsplash
Oliver Ash, Unsplash
Oliver Sjöstrom, Unsplash
Marcus Löfvenberg, Unsplash
LANGAR ÞIG Í FRÍ? PLANAÐU FERÐALAGIÐ MEÐ OKKUR
BRÍETARTÚN 6, 105 REYKJAVÍK 772 5500 TRAVIS@TRAVIS.IS Magnús B. Magússon, 2018
TRAVISFERDIR
Artemisia Gentileschi Síðar giftist Artemisia málaranum Pierantonio Stiattesti og settust þau að í Flórens þar sem hún öðlaðist viðurkenningu og virðingu sem listmálari og gat séð sér og fjölskyldu sinni farborða með verkum sínum. En listin var ekki einungis lifibrauð Artemisiu heldur einnig hennar tól til tjáningar.
14 ︱Embla
Pensillinn var hennar eina vopn til þess að vekja athygli á því ofbeldi sem hún hafði mátt sæta og endurspeglast það vel í listaverkinu Júdith drepur Hólófernes. Þrátt fyrir að innblásturinn sé sígild saga úr gamla testamentinu er nánast ómögulegt að slíta verkið frá persónulegri reynslu Artemisiu. Hún fer ekki leynt með tilvísunina í eigið líf heldur gæðir persónurnar lífi með andliti sínu og nauðgara síns. Í verkinu er grimmd, ofsi og togstreita − og um leið svarar Artemisia Gentileschi fyrir sig og tekur völdin í eigin hendur á ný.
Júdith afhöfðar Hólófernes, Artemisia Gentileschi.
Þegar Artemisia var nítján ára gömul réði faðir hennar fjölskylduvin, málarann Agostino Tassi, til að kenna henni fjarvíddarteikningu. Á meðan á kennslunni stóð var Artemisiu nauðgað af lærimeistara sínum og þegar málið kom upp steig faðir hennar fram og lagði fram kæru gegn vini sínum. Var slík kæra ekki algeng á þeim tíma. Dómsmeðferðin tók sjö mánuði og vakti mikla athygli og umtal almennings. Artemisia sótti gegn ofbeldismanni sínum af hugrekki og sannfæringu og breytti aldrei vitnisburði sínum, þrátt fyrir ítrekaðar pyntingar í dómssal. Var Agostino dæmdur en hlaut ekki þungan dóm og var sleppt skömmu síðar.
Texti unninn úr hlaðvarpi Melkorku Gunborgar Briansdóttur, 2018.
Artemisia Gentileschi fæddist árið 1593 í Rómarborg. Faðir hennar, Orazio Gentileschi, var málari og fór hún ung að læra málaralist hjá honum. Fyrsta þekkta verkið hennar er Súsanna og öldungarnir (1610) sem lengi vel var kennt við föður hennar. Að auki málaði hún þekkta senu úr Biblíunni, Júdith afhöfðar Hólófernes (1612−1620), sem er hennar þekktasta verk í dag. Í verkinu má sjá hina sterkbyggðu Júdith bera sverð að hálsi Hólófernesar, sem blæðir út. Örvænting skín úr augum hans og má sjá reiði og hamsleysi í andlitsdráttum hennar.
Þarftu að prenta?
Litlaprent býður upp á alhliða umhverfisvæna prentþjónustu fyrir öll tilefni.
Opið mánudaga til fimmtudaga: 08:00 – 16.00 Opið föstudaga: 08:00 − 14:30 Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi litlaprent@litlaprent.is 540 1800
Góð kjör − betri framtíð Kjaramál • Fræðslusjóðir • Námsstyrkir Sjúkrasjóðir • Orlofshús • Tómstundanám Ferðastyrkir • Endurmenntun • Lífeyrismál
Kynntu þér réttindi þín
www.grafia.is
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík − 540 0100 − grafia@grafia.is GRAFÍA er aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands − rafis.is