2. tbl. 10 árg.
Grafísk miðlun - Vor 2021
Embla | 1
Með fræðslu í fyrirrúmi
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík Sími 590 6400 idan@idan.is
Fræðsla - hæfnismat - endurmenntun - fyrirtækjaþjónusta
Iðan býður uppá fjölbreytta fræðslu www.idan.is 2 | Embla
Efnis yfirlit
Um mig 4-5 Franska keisaraættin
6-8
Frönsk súkkulaðikaka
9
Rússneska keisaraættin
10-14
Leiðari Þá er farið að líða á endan á þessu námi. Þetta er búið að vera mjög krefjandi en jafnframt skemmti legt og fjölbreytt, maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Hlakka til að halda á vinnumarkaðinn í þessu fagi og læra ennþá meira og blómstra. Í þessu tímariti mun ég kynna sjálfa mig og mína skólagöngu ásamt því að fara nánar í mitt áhugasvið. Ég skrifaði því greinar um Frönsku og Rússnesku keisaraættirnar, þar sem áhugi minn þar hefur lengi varað. Áhugi minn kviknaði á frönsku sögunni þegar ég fór til Frakklands með föður mínum þar sem hann var minn eigin leiðsögumaður. Meðfylgjandi er uppskrift af franskri súkkulaðiköku, enda er ég alveg kökusjúk. Þegar ég var yngri þá var uppáhalds teiknimyndin mín alltaf Anastasia og það hefur ekki breyst. Mér fannst alltaf eitthvað heillandi við hana og leið eins og það væri meira á bakvið hana. Þegar ég var orðin aðeins eldri þá komst ég að því að myndin væri byggð á sannsögulegum atburðum og það var eitthvað sem gerðist innra með mér sem ég get ekki lýst. Einhver þrá til að kynna mér söguna ennþá meira, svipuð tilfinning sem ég fæ þegar ég horfi á myndina. Þessi tilfinning er ólýsanleg og ég vona að ég nái að vekja þessa tilfinningu hjá þér, kæri lesandi.
Umbrot og hönnun Aníta Ýr Þórðardóttir Forsíða Aníta Ýr Þórðardóttir Greinarhöfundur Aníta Ýr Þórðardóttir Útgefandi/Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Vivaldi Italic Parisienne Ipsum Semi
Embla | 3
Aníta Ýr
4 | Embla
Um mig Aníta Ýr Þórðardóttir heiti ég og er 28 ára gömul, fædd og uppalin í Reykjavík og er lærður förðunar fræðingur. Ég hef áhuga á söng og ég hef alltaf verið syngjandi frá því að ég man eftir mér og ætla mér að gera meira í því. Ég hef einnig haft áhuga á innanhússhönnun og hef unun af því að gera heimilið mitt fallegt. Ég hef líka alltaf haft mikinn áhuga á sögu, frá því að ég var mjög ung þá var ég heilluð af seinni heimsstyrjöldinni. Faðir minn kveikti undir enn meiri söguþrá sem hefur ekki slökknað síðan. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni og er ég því stolt að vera dóttir föður míns þar sem ég fékk marga góða kosti frá honum. Ég elska líka að ferðast og upplifa nýja menningarheima en ég ætla mér að ferðast á alla þá staði sem ég heillast að og eiga sér djúpa sögu því að tilfinningin er alveg hreint ótrúleg og því get ég ekki beðið eftir að geta ferðast á ný. Ég hafði flosnað upp úr náminu sem ég var í árið 2012 þar sem ég upplifði að nám væri ekki fyrir mig og úr því fluttist ég til Þýskalands þar sem ég naut mín mjög vel. Eftir að ég kom aftur heim þá var ég frekar týnd og vissi ekkert hvað ég vildi
gera í lífinu og mér fannst ég vera stöðnuð svo ég ákvað að skrá mig til náms við Framhalds skólann í Mosfellsbæ til þess að efla sjálfa mig svo ég tók mér áfanga á borð við sögu, sálfræði og heimspeki. Þar fannst mér loksins að nám væri kannski eitthvað fyrir mig eftir allt saman og mér fór að ganga virkilega vel, þrátt fyrir að hafa lent í nokkrum hindrunum þá hélt ég alltaf ótrauð áfram og mig fór að þyrsta í að læra meira. Ég hef alltaf haft áhuga á hönnun og list, þá fór ég að kynna mér grafíska miðlun í Tækniskólanum og þar endaði ég og mér hefur gengið mjög vel þrátt fyrir heimsfaraldur sem gerir allt erfiðara, ásamt því að hafa lent á nokkrum veggjum, en nógu vel hefur mér gengið að það styttist óðum í útskrift. Aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér, hvað ég tek mér fyrir hendur og hvort ég mun halda á vit ævintýranna. Vinir mínir skipta mig miklu máli og það skiptir mig líka máli að vinir mínir geta litið upp til mín. Það er líka alltaf frekar erfitt að segja eitthvað um sjálfan sig og þess vegna bað ég vini mína að segja mér eitthvað um mig.
„Aníta er hress og kát og bros hennar birtir upp daginn, hún er eins og vítamín öllum í haginn“ „Aníta er harðdugleg, skemmtileg og traust vinkona vina sinna” „Brosið hennar er alltaf til staðar og hlátur hennar alltaf handan við hornið” „Traust og góð vinkona, góður félagsskapur, metnaðarfull og hörkudugleg” „Aníta er besta vinkona mín og mér þykir svo vænt um hana, hún er alltaf skemmtileg, jákvæð og dugleg“ „Þegar ég hugsa um Anítu þá sé ég alltaf brosið hennar og hláturinn eftir eðal aulabrandara“ „Aníta er fyndin, skemmtileg, flippuð og ein af sterkustu manneskjum sem ég þekki“ „Dugleg, falleg, ákveðin, listræn eru bara örfá lýsingarorð sem lýsa Anítu í réttu ljósi, dömur eins og hún finnast ekki á hverju strái“
Embla | 5
Franska keisaraættin Louis XVI var 15 ára og var næstur í röðinni til að taka við krúnunni. Hann var ekkert sérstaklega fágaður og hann hentaði ekki alveg krúnunni enda hafði hann ekki þá kosti sem konungur ætti að hafa og var mjög óundirbúinn í þetta hlutverk sem honum var ætlað. Marie Antoinette var 14 ára glaðlynd stúlka frá Austurríki, ljóshærð með stór blá augu. Hún var mikið fyrir tískuna og hafði hún góðan smekk fyrir fallegum klæðum og var þekkt fyrir að hafa háar hárgreiðslur sem tók margra klukkutíma að útbúa. Hún var kölluð Madame déficit því að hún eyddi um efni fram þrátt fyrir að fjárhagur landsins væri í molum. Hún hafði lítið vit á pólitík enda bara ung stúlka. Frönskukunnátta hennar var ekki til fyrirmyndar. Brúðhjónin höfðu ekki hist áður, enda þóttu slík brúðkaup eðlileg á þeim tíma. Hún kemur í þeirri von um að vinna nýja manninn sinn og fjölskylduna á sitt band.
Marie Antoinette
6 | Embla
Listamaður: Vigée Le Brun
Louis XVI
Listamaður: Antoine-François Callet
Hjónabandið var pólitísk ákvörðun tveggja fjöl skyldna, austurrísku konungsfjölskyldunnar og þeirrar frönsku, sú ákvörðun var tekin til þess að Frakkland og Austurríki yrðu ekki lengur óvinir heldur bandamenn. Brúðkaupið var haldið í Versöl um þann 16. maí árið 1768. Nýju brúðhjónunum var komið fyrir í rúminu þar sem þau áttu að helga hjónabandið, en Louis vildi ekki sofa hjá henni. Mikið var talað um af hverju þau hefðu ekki búið til nýjan erfingja á þessum sjö árum sem þau voru gift og því var Marie Antoinette kennt um það. Louis var hinsvegar með of þrönga forhúð og var víst dauðhræddur við að fara í aðgerð. Þegar aðgerðinni lauk loksins varð hún ófrísk og alls eignuðust þau fjögur börn.
Aðdragandi dauða þeirra Í mörg ár hafði fólkið í landinu búið við mikla fátækt á meðan fólkið í höllinni naut sín. Mikil hungursneyð var á meðal almúgans því að stjórn in í landinu var til skammar. Það var skortur á uppskeru á kornmeti svo að ekki var hægt að framleiða hveiti, sem var helsta matarafurð frakka og það stoppaði auðvitað við dyr hallarinnar. Það tók við mjög harður vetur og það varð skortur á öllu í landinu. Skattar hækkuðu, brauð kostaði mánaðarlaun og þá urðu óeirðir þar sem heimili og bakarí voru rænd. Almúginn hafði fengið rödd og það kom yfir lýsing um mannréttindi, þar sem allir áttu að vera jafnir og réttlæti samkvæmt sanngjörnum lög um og að fólkið í landinu átti forðann, í þessum skjölum var hvergi minnst á konunginn. Þúsundir manna gengu berserksgang að Versölum vopn aðir byssum og spjótum til þess að skrifað yrði undir þessa yfirlýsingu og konungur skrifaði undir
Ráðstefna í Hörpu 1.-2. maí 2021 Barist fyrir réttindum barna sem orðið hafa fyrir kynferðisbroti
hana samstundis. Á þessum tímapunkti átti Marie Antoinette að hafa sagt „leyfum þeim að borða kökur“ til þess að fólkið yrði ekki eins hungrað, en hún sagði þetta líklega ekki þar sem hún vissi lítið hvað var á seyði fyrir utan veggi hallarinnar. Daginn eftir komu saman um 20.000 manns fyrir utan höllina í mótmælaskyni. Fólkið heimtaði að konungur og drottning myndu flytja til Parísar til þess að þau myndu axla ábyrgð á stöðunni í landinu. Louis hikaði svo það reitti fólkið til mik illar reiði og fólk réðist á verðina og afhausaði þá og settu höfuðin á spjót. Fólkið leitaði að þeim í höllinni og brutust inn í herbergi drottningar innar og rifu rúmið allt í sundur og hefðu líklega aflimað drottninguna ef þeir hefðu fundið hana. Þau myndu aldrei sjá Versali aftur, eftir þessa flutninga var orðið ljóst að þau væru orðnir fangar í Parísarborg.
Versalir
Ný lög og lýðræði tóku gildi tveim árum seinna í maí 1791. Konungshjónin segjast vera hlynnt þessum nýju lögum og þá var konungur látinn skrifa undir lög sem takmörkuðu völd hans með hverri undirskrift á eftir annarri. Í júní 1791 klæða hjónin sig upp sem þjónar og reyndu að flýja til Austurríkis. Það gekk ekki upp þar sem þau voru stoppuð á leiðinni og beðin um vegabréf. Þau voru handtekin og farið var með þau aftur til Parísar. Fólkið í landinu missti algjörlega traustið á konungi sínum eftir þessi uppátæki. Margar leiðir voru notaðar á miðöldum til refs ing, á borð við hengingar, drekkingar, hálshöggvun og brennsla á báli. Með nýjum lögum í landinu þar sem allir áttu að vera jafnir þá var ákveðið að fella þær úr gildi, en í staðinn kom fallöxin. Með þeim hætti myndu allir deyja á sama hátt, óháð stétt eða stöðu. Fallöxinni var komið fyrir í miðri Parísarborg og fékk nafnið Girondins. Hún var talin fljótleg, áhrifarík leið sem átti að kallast sársaukalaus.
8 | Embla
Ljósmyndari: Ninara
Talið var að Marie Antoinette hafi verið í bréfa skiptum við fjölskyldu sína í Austurríki en þar af leiðandi bjuggust Frakkar við að Austurríki væri tilbúið í stríð. Frakkar að Austurríki, Frakkland missti marga menn á landamærunum, við það verða Prússar og Austurríkismenn bandamenn. Farið er að götum Parísar og þau tíðindi bárust bæjarblaðinu að það myndu hafa slæm áhrif ef einhver skaðar konung og drottningu. Þann 10. ágúst 1792 hafði þetta öfug áhrif þar sem 27.000 vopnaðir borgarbúar gerðu villimannlega árás á verðina þar sem 800 manns létu lífið úr báðum liðum. Þá flúði Louis til þingsins í von um öryggi en það var úti um konungsveldið og hann var sviptur titli sínum og franska lýðveldið varð til, en nýja lýðveldið gat þó ekki orðið til nema með dauða konungs. Þann 21. janúar 1793 fékk Lou is að kynnast Girondins og var hálshöggvin 38 ára að aldri. Níu mánuðum síðar hlaut drottning sömu örlög. Greinarhöfundur: Aníta Ýr Þórðardóttir
„Leyfum
Frönsk súkkulaðikaka
þeim að
Botn
Magn
Súkkulaðibráð
Magn
Sykur
2 dl
Suðusúkkulaði
150 g
Smjör
200 g
Smjör
70 g
Suðusúkkulaði
200 g
Síróp
2 msk.
Hveiti
1 dl
Egg
4 stk.
Aðferð botn Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi við 170°C í um 30 mínútur. Súkkulaðibráð 150 g suðusúkkulaði 70 g smjör 2 msk síróp Aðferð Látið hráefnin saman í pott og bræðið við lágan hita. Kælið bráðina lítillega og berið síðan á kökuna.
borða
köku r“
Aðferð súkkulaðibráð Látið hráefnin saman í pott og bræðið við lágan hita. Kælið bráðina lítillega og berið síðan á kök una.
Tekið saman af Gulur, rauður, grænn & salt.
Embla | 9
Rússneska keisaraættin
10 | Embla
Romanor fjölskyldan Nicholas II ólst upp í Alexander höllinni í Sankti Pétursborg með foreldrum ásamt systkinum sínum, hann myndi einn daginn taka við rík asta konungsveldi í Evrópu og eignast 1/6 af heiminum þrátt fyrir að hann skorti leið togahæfni. Hann tók oft slæmar ákvarðanir sem gerði það að verkum að hann var ekkert sérstaklega elskaður á meðal landsmanna. Faðir hans var mikill leiðtogi og honum þótti sonur sinn frekar kvenlegur og sá ekki mikið leiðtogaefni í honum. Alexandra var frá Þýskalandi og var hún barnabarn Viktoríu drottningar og þar sem móðir hennar og systir létust úr barnaveiki tók Viktoría hana að sér og ól hana upp. Hún var hennar uppáhald. Hún var alin upp líkt og Vikt oría sjálf, á mjög enskan hátt í anda Viktoríu tímabilsins. Dreyrasýki var sjúkdómur sem hafði komið frá Viktoríu drottningu og hafði borist til móður hennar og síðar til Alexöndru sjálfrar. Árið 1884 ferðaðist Alexandra 12 ára göm ul til Sankti Pétursborgar til þess að fara í brúðkaup. Þar kynntist hún 16 ára gömlum Nicholas. Innan nokkurra ára varð parið ást fangið þrátt fyrir að fjölskyldum þeirra fannst
þau ekki vera hið fullkomna par. Viktoríu fannst þetta alls ekki góð hugmynd þar sem henni fannst þetta frekar hættuleg krúna að taka, foreldrum Nicholas líkaði ekki vel við Þjóðverja og að þýsk kona myndi taka við krúnunni væri ekki góð hugmynd. Þau eignuðust fimm börn, fjórar dætur og einn son. Olga, Tatiana, Maria, Anastasia og Alexei. Alltaf kom hver stúlkan á fætur annarri og fólk var svekkt þar sem beðið var eftir karl kyns erfingja, Alexei kom svo á endanum en hann hafði fengið dreyrasýkina í vöggugjöf, og það þótti ekki nógu gott að erfinginn væri með slæmt blóð. Þau hjónin vildu sjálf ala upp börnin sín og Alexandra hafði þau öll á brjósti sem þótti sérkennilegt þar sem á þeim tíma var talið að þjónustufólkið ætti að taka það að sér.
Embla | 11
Aðdragandi dauða þeirra Grigori Rasputin var frá Serbíu, hann vann sér inn traust hjá keisarafjölskyldunni. Hann átti að hafa heilunarmátt og átti að hjálpa Alexei við að minnka verkina þegar það fór að blæða hjá honum að sökum dreyrarsýkinnar ásamt því að hann hjálpaði Alexöndru að komast yfir kvíðann sinn. Hann einangraði Alexöndru frá fólkinu og talið var að Rasputin hefði sín eigin pólitísku áform og notfærði sér aðstöðu sína innan fjölskyldunnar. Árið 1904 ákveður Nicholas að senda menn sína í stríð gegn Japan, til þess að reyna að stækka landið en það stríð tapaðist og sýndi það slæma leiðtogahæfni hans. Árið 1905 á torgi í Sankti Pétursborg ákvað fólk að mótmæla, meira en hundrað manns létu lífið og mörg hundruð særðust og eftir það var stofnað þing, kallað Duma. Í heimsstyrjöldinni þeirri fyrri átti Nicholas að stýra hernum en í stað þess leiddi hann herinn í baráttu sem varð til þess að milljónir manna létu lífið. Þeim skorti nauðsynlega skotvopn til að þeir gætu haldið baráttunni áfram, sem varð til þess að menn hættu í hernum. Heima ríkti mikil fátækt og konur þurftu að vinna öll störf burtu frá heimilum sínum á lélegu kaupi. Út frá þessu fékk Nicholas viðurnefnið Nicholas hinn blóðugi sem gerði það að verkum að fólkið í landinu missti traust á honum og enn á ný sýndi hann fram á slæma leiðtogahæfni sína. 8. mars árið 1917, á konudeginum, fóru kon ur í verkfall til þess að heimta meiri mat og að keisari myndi segja af sér. Í lok dagsins voru komnir 100.000 mótmælendur. Þingið átti ekki roð í mótmælendurna þrátt fyrir að hafa reynt að halda friðinn. Nicholas var ekki á landinu og tók þá Alexandra við stjórn á meðan og var hún undir áhrifum Rasputins sem var sagður hafa sínar eigin áætlanir.
12 | Embla
Þingmenn Duma grátbáðu Nicholas um að búa til þing sem fólkið gæti treyst á en í staðinn sendi hann herinn á mótmælendurna en þar sem hann misreiknaði aðstæður þá ákvað herinn að taka þátt í mótmælunum þrátt fyrir að mótmælendur væru mestmegnis konur. Eftir þetta neyddist Nicholas til að koma heim og á meðan ráðlagði þingið Alexöndru og börn unum að flýja höllina þar sem öryggi þeirra væri ógnað. Rafmagn og vatn var tekið af höllinni og fleira fólk var farið að bætast í fjöldann. Alexandra neitaði því að fara, því að börnin hennar voru veik og Nicholas ekki enn kominn heim. 15. mars 1917 eftir að Romanov ættin hafði ríkt í 300 ár, fékk Nicholas þau tíðindi að Duma hefði náð aftur völdum og að hann þyrfti að segja af sér. Þá tilnefndi hann bróðir sinn Mikael til að taka við krúnunni en hann neitaði því þann sama dag, og þau voru því seinasta keisaraættin
í heiminum. Þau ætluðu að leita sér hælis í Bret landi en ríkið vildi að Nicholas yrði handtekinn og honum yrði refsað. Þau voru handtekin innan hallarinnar og 21. mars var farið með þau í set ur Serbneska ríkisstjórans í Tobolsk í Rússlandi Devolts í Serbíu ásamt 40 manns, þjónum og fleirum. Eftir Októberbyltinguna vildi Lenin að réttað yrði yfir Nicholas. Síðan voru þau færð yfir í Ipatiev húsið í Yeka terinburg sem var kallað hús hins sérstaka til gangs. Þar var byggður tréveggur í kringum allt húsið svo að þau gætu ekki séð heiminn handan veggja hússins. 17. júlí árið 1918 ætlaði hvíti herinn, sem var mjög tryggur keisarafjölskyldunni, að koma og bjarga þeim en Bolsévikar urðu fyrri til og létu til skarar skríða. Fjölskyldan var vakin um miðja nótt í flýti og þeim var sagt að fara niður í kjallarann. Inn komu vopnaðir menn í herbergið og lesið var yfir þeim dauðarefsing. Eftir fyrstu skotárásina í reykmökk þá var fjölskyldan særð, öskrandi og grátandi í geðshræringu. Fjölskyldan hafði saum að gersemar frá kastalanum í fötin sín og sumar byssukúlurnar höfðu skotist til baka vegna þess. Að lokum var fjölskyldan stungin til bana eða skotin í höfuðið, árásin stóð yfir í 20 mínútur. Þegar þeir báru líkin út í skóg þá tóku þeir eftir því að tvær stúlknanna voru ennþá að reyna að berjast fyrir lífi sínu og því varð að stinga þær aftur. Áætlunin var að drepa þau öll samstundis, kveikja í þeim og jarða þau í skóginum þar nálægt, án þess að einhver myndi nokkurn tímann vita hvað hefði átt sér stað þennan örlagaríka dag. Þau voru afklædd og kveikt var í fötum þeirra og þeim var síðan hent ofan í námustokk sem var of grunnur, þau voru skilin þar eftir í þrjá daga þangað til ákveðið hafði verið hvernig ætti að losa sig við líkin. Reynt var að dýfa þeim ofan í sýru, brenna þau og svo þeim var komið fyrir í tveim mismunandi gröfum í þeirri von að það yrði nóg til þess að enginn myndi vita hvað hafði skeð.
Í sundfatnaði frá Talíu getur þér liðið vel Talia.is
Embla | 13
Anastasia og Anna Anderson
Greinarhöfundur: Aníta Ýr Þórðardóttir
Á fölskum forsendum Með tímanum hafa einhverjir komið fram og þóst vera annað hvort Alexei eða Anastasia, réttmætir erfingjar krúnunnar í þeim tilgangi að að hirða auð fjölskyldunnar sem geymdur var í bönkum í Sviss. Frægasta tilfellið var Anna Anderson, sem var pólsk kona að nafni Franziska Schanzkowska. Hún lét oft eins og hún væri geðveik enda hafði hún verið á geðspítala í Berlín í mörg ár, þar fullkom naði hún persónustuld Anastasiu. Ör voru á líkama hennar sem hún fullyrti að hefðu komið frá byssuskotunum og stungusárunum. Árið 1970 var máli hennar hinsvegar hafnað. Árið 1979 fundust leifar fjölskyldunnar, en því var hald ið leyndu. Árið 1990 var erfðaefni fjölskyldunnar borið saman við erfðaefni Önnu Anderson og þá kom í ljós að hún var ekki skyld Romanov fjölskyld unni. Einn stæðsti leyndardómur 20. aldarinnar var leystur.
Bein Romanov fjölskyldunnar
14 | Embla
Ljósmyndari: óþekktur
Saga fortíðarinnar heldur áfram Í Sankti Pétursborg, þann 17. júlí 1998 áður en þau voru jarðsett þá var erfðaefni tekið úr fjölskyldunni til að staðfesta auðkenni þeirra, því að ákveðið var að sættast við fortíðina. Það kom í ljós eftir að erfðefnin voru skoðuð að það vantaði Mariu og Alexei, þar sem þeim hafði ekki verið leyft að liggja í vígðri mold með fjölskyldunni sinni. Árið 2007 fundu fornleifafræðingar þau í ómerktri gröf. Líkamsleifarnar voru geymdar þangað til árið 2015 þegar þeim var komið til kirkjunnar til nánari rannsóknar. Árið 2018 voru líkin rannsökuð með nýrri tækni fyrir erfðaefni og staðfest að þau væru af Romanov ættinni. Árið 2018 var samþykkt að leyfa þeim að hvíla í friði með fjölskyldu sinni. En kirkjan vill rannsaka líkin enn frekar áður en þau verða jörðuð í grafhýsi í Dómkirkju Peter og Paul með restinni af fjölskyldunni. Sumir vilja meina að það sé meira á bak við töfina en sagt hefur verið.
Ljósmyndari: óþekktur
Gæði í þjónustunni gæði í prentun
Veldu umhverfisvænar leiðir. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er.
Hafðu samband og við skoðum málið með þér.
Opið virka daga 8:00–16.00
Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is
Embla | 15
| www.litlaprent.is
Ert þú að nýta réttindin þín?
Kjaramál Kjaramál
Lífeyrismál Lífeyrismál
Sjúkrasjóður Sjúkrasjóður
Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og Grafía sér um þín réttindi.
Orlofssjóður
Orlofssjóður
Fræðslustyrkir Fræðslustyrkir
Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar
www.grafia.is
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum 16 | Embla
GRAFÍA
Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík Sími 552 8755 Netfang grafia@grafia.is Veffang www.grafia.is