IÐAN
Hefuru hlustað á hlaðvörpin okkar ?
Augnablik í iðnaði
AF LÍFI IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfs— ferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.
Iðan býður upp á: • • • • • • • •
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík 590 6400 idan@idan.is www.idan.is
Fræðslusetur Námskeið Námssamningar Edurmenntun Fyrirtækjaþjónusta Fræðsla Hæfnismat Raunfærnimat
04
06
UM MIG
ÁLABORG
08 FLONKY
10
12
CARMEN
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
Nú fer þessari krefjandi og skemmtilegu önn senn að ljúka.. Mér langar að þakka mínum yndislegum kennurum fyrir skilning á meðgöngu minni á þessari önn. Kærasti minn, Arnar Ingi fær auðvitað líka mikið hrós fyrir að styðja við bakið á mér í gegnum námið. Einnig langar mér að þakka vinalegu konunum sem vinna í mötuneytinu fyrir ávallt hlýjar móttökur í kaffipásunum.
Umbrot og hönnun Gígja Sif Víðisdóttir Hönnun forsíðu Gígja Sif Víðisdóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun
Emblan er hluti af lokaverkefninu okkar og má segja að hún hefur verið skemmtilegasta verkefnið til þessa, vegna þess hversu mikið við höfum fengið að ráða ferðinni. Þess vegna er mín Embla í persónulegri kantinum.
Takk fyrir!
Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 55 Roman Magneto Bold
GÍGJA SIF
V Í Ð I S D Ó T T I R Ég heiti Gígja Sif og er Hafnarfirðingur í húð og hár. Fólki finnst það stundum óþolandi hvað ég lofsyng Hafnarfjörðinn mikið, en þar þykir mér bara best að vera. Ég á eina þriggja ára dóttir með kærastanum mínum og er önnur á leiðinni í júlí. Það er mikil tilhlökkun á okkar heimili fyrir því. Eftir að ég kláraði Flensborg, jólin 2013, var planið að fara í háskóla í Danmörku. Við fluttum til Álaborgar og hófum nám í Álaborgarháskóla. Þar kynntist ég áhuga mínum á hönnun. Brautin mín hét „Arkitekt og Design“ og var þetta iðnhönnunar verkfræði. Í skólanum notuðum við mikið Indesign og elskaði ég það. Skólinn einkennist af mikilli
hópavinnu, og var ég þá alltaf í hóp með dönum sem skrifuðu verkefnin okkar en ég setti þau upp í Indesign, því ekki var ég að fara skrifa góðan texta á dönsku. Svo þegar við fluttum aftur heim og ég kláraði fæðingarorlofið mitt fann ég þetta nám í Tækniskólanum og skráði mig. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í og viðurkenni að ég þekki þennan „bransa“ voða lítið. Mér hefur fundist gaman að læra, en það er bara alls ekki sjálfgefið. Ég hlakka til að kynnast iðngreininni betur eftir fæðingarorlofið, en ég stefni ekki neitt ákveðið, heldur leyfi ég hlutunum yfirleitt að koma í ljós.
Danmörk er oft þekkt fyrir að vera lífvæn leg, en þá hugsar f ó l k
yfirleitt u
m
Kaupmannahöfn í því samhengi. Nýlega hefur fjórða stærsta borg Danmerkur, Álaborg, komið sér á kortið og farið frá samdrætti yfir í að verða vinsæl háskólaborg sem nýlega var kosin hamingjusamasta borgin í Evrópu. Sjávarbakkinn er orðinn táknmynd Álaborgar sem menningarmiðstöð. Margar glæsilegar byggingar hafa sprottið þar upp eftir þekkta arki tekta, þar á meðal tónlistarhús hannað af Coop Himmelb(l)au, arkitektarmiðstöð sem var síðasta hönnun Jorn Utzon, sem var arkitekt á bak við óperuhúsið í Sydney. Ný bygging var byggð eftir Henning Larsen fyrir arkitekta- og verkfræðinema háskólans. Gömlum verksmiðjum víðsvegar um borgina hefur verið breytt í menningarstofnanir. Borgin hefur náð að halda í jarðbundna og iðnaðar yfirbragðið sem íbúar elska við borgina. Frá ryðguðu útliti nýju ljósastauranna til yfir borðs bygginganna, er arfleifðin sem iðnaðar höfn stöðugt sýnileg og líkir eftir bæði sjónum og steypuframleiðslunni, sem áður var ein stærsta atvinnugrein borgarinnar. Þetta er áberandi í nýbyggingu tónlistarhússins, sem vísar fagurfræðilega í átt að ölduhafi og líkir samtímis eftir lögun nágranna síns, Nordkraft, umbreyttu rafstöðvarinnar sem nú hýsir eitt af menningarmiðstöðvum borgarinnar. Öfugt við flestar borgir hefur Álaborg tekið frá nokkra af bestu stöðum við sjávarsíðuna fyrir vaxandi fjölda ungra íbúa. Nýbyggt stúdenta húsnæði er á víð og dreif á milli hinna nýju menningarstofnana. Þar sem borgin er langt í norðri frá Kaupmannahöfn, villborgin að laða ungt fólk og fjölskyldur, að er lykilatriði til að halda lífi í borginni. Einnig hefur verið mikil uppbygging á nýjum kaffiog veitingahúsum. Borgin hefur gert tilraunir og verkefni með íbúum borgarinnar, sem hjálpa þeim við að byggja upp borgina eftir þörfum fólksins.
6 / 16
Musikken hus
Nordkraft
Gott dæmi um þetta er gamli skemmti garðurinn, Karoline lund, sem var lokað árið 2011 en hefur verið almenningsrými síðan þá. Garðurinn gerir íbúum og hópum kleift að nota garðinn ókeypis fyrir viðburði og starfsemi, svo sem hátíðir, matarkofa, pop-up listviðburðir og fleira. Að leyfa garðinum að vera án strangrar áætlunar í nokkur ár hefur gert hann að vin fyrir fjölda fólks sem gefur þeim tilfinningu fyrir eignar haldi á staðnum. Allt þetta mun leiða til deili skipulags fyrir garðinn sem ráðið vinnur nú að í samvinnu við notendur. Eins og í mörgum Evrópulöndum hefur útjaður
Utzon center
Danmerkur orðið fyrir afiðnvæðingu og hefur því fækkað á mörgum svæðum. Þetta er sér staklega áberandi í norðvesturhluta landsins, þar sem Álaborg er. En með fólksfjölgun um 11,5% á síðustu tíu árum virðist Álaborg hafa fundið leið til að ögra þessu mynstri og festa sig í sessi sem menningarleg háskólaborg og áfangastaður ferðamanna. Þessu hefur verið náð með því að byggja stóran arkitektúr og með því að virkja íbúa í að þróa framtíð borgarinnar. Álaborg hefur sýnt að það er hægt að finna upp iðnaðarbæinn að nýju og gera hann að einum ánægjulegasta stað til að búa í.
NÝ LÍFSTÍLSVERSLUN HEFUR OPNAÐ Í FAXAFENI FULLT AF OPNUNARTILBOÐUM
15‑25% afsláttur
Faxafen 11 | 108 Reykjavík | Sími 599 8888
inni.is
FLONKY Flonky er leikur fyrir 20 ára og eldri, vegna þess að mikil bjórdrykkja er falin í leiknum. Leikurinn hentar vel fyrir alls konar skemmtanir, og skapar mikla stemningu þegar þörf er á. Flonky fer ört stækkandi og með hverju árinu sem líður líkist þetta íþrótt frekar en leik. En leikurinn á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Til að spila Flonky þarf 10 keppendur, 10 bjórdósir, dómara, bolta og stærri flösku. Í Flonky mætast tvö lið í einu. Liðin stilla sér andspænis hvort öðru með flösku í miðjunni, líkt og þekkist í kubb/víkingaspili. Svo skiptast liðin á að reyna
fella flöskuna með boltanum. Ef flaskan er felld, byrjar liðið að drekka bjórinn sinn, á meðan er hitt liðið að sækja boltann, rétta flöskuna við og koma sér í startholur. Þá kallar dómari „stopp“ og þarf þá hitt liðið að hætta að drekka. Ef liðið fellir dós, þarf dósareigandinn að klára bjórinn og opna sér svo nýjan. Þegar allt liðið hefur klárað sinn bjór þannig að hægt sé að hvolfa dósinni yfir höfuð sér án þess að það dropi úr honum í 3 sek. hefur liðið unnið. Ef dropi fellur úr dósinni þarf að opna nýjan bjór og halda áfram með leikinn.
8 / 16
Boltinn Boltinn er í grunninn tennisbolti sem er „teipaður“ með sterku gráu límbandi. Það gerir boltann örlítið óreglulegan og þungann. Heimsmeistaramótið í Flonky Davíð Sigurðsson og Alexander Sindrason hafa haldið Flonkímót seinustu 4 ár. Mikið er lagt í mótið enda hörkuduglegir strákar á ferð. Mikið af vinum þeirra úr Hafnarfirði mæta á mótið en auðvitað er öllum velkomið að taka þátt. Á mótinu keppa 14 lið og dregið er í riðla
kvöldið fyrir mót. Verðlaun eru gefin fyrir heims meistarana, bestu búningana og mikilvægasta leikmann mótsins. Seinustu tvö ár hefur mótið verið haldið á Flonkystöðum, rétt hjá Hellu. Mikill undirbúningur felst í mótinu, þar á meðal að gera hlöðu tilbúna fyrir ball og búa til bar fyrir þyrsta keppendur. Þeir hafa líka boðið upp á þjónustu frá RentATent, þar sem þeir tjalda, pumpa í dýnur og allur frágangur innifalinn svo keppendur þurfa ekki að hafa auka áhyggjur af gistingu og geta einbeitt sér að keppninni.
LEIKREGLUR Meðlimir liðsins þurfa að skiptast á að kasta boltanum, ekki má sami aðili kasta oftar en hinir.
Ekki má snerta dósina fyrr en boltinn hefur lent.
Eftir að sagt er „stopp“ þurfa allir meðlimir liðsins að vera hættir að drekka.
Aðili má ekki vera byrjaður að hlaupa á eftir boltanum/ flöskunni fyrr en boltinn er lentur.
Ekki má verja dósina sína frá boltanum með fótunum, að eins með höndunum.
Dómarinn dæmir.
9 / 16
Ef svindlað er á reglunum oftar en einu sinni, er liðið úr leik.
CARMEN Á HEIMSMEISTARAMÓTINU Í FLONKY
Við erum sex stelpur í vinahópnum Carmen. Ástæða nafnsins er mikill einkahúmor sem ekki þarf að fara betur út í. Við vorum saman í Flensborg, en þar lá leiðin okkar ekki saman strax. Það var ekki fyrr en við fórum saman á Þjóðhátíð eitt sumarið eftir að við útskrifuðumst og enduðum saman í húsi sem við kynntumst almennilega, og höfum tekið allar hátíðir mjög alvarlega síðan. Við erum mjög ýktar í öllu sem við gerum og höfum mjög gaman að því.
Carmen á Heimsmeistaramót Flonky Haldið hefur verið Heimsmeistaramót Flonky á hverju sumri seinustu 4 ár. Á mótinu er gefið verðlaun fyrir besta búninginn, leikmann mótsins og auðvitað heimsmeistarana. Við höfum alltaf tekið verðlaun fyrir besta búninginn með okkur heim og erum stoltar af því. Seinustu tvö sumur hefur mótið verið haldið á Flonkystöðum rétt hjá Hellu, mikil stemning myndast þar, þar er hlöðupartý haldið eftir mótið og fólk gistir í tjaldi eftir á. Svona eins og lítil útihátíð. Við látum okkur að sjálfsögðu ekki vanta á svoleiðis viðburð með öllum vinum okkar. Undibúningur fyrir mótið Árið 2021 ákváðum við hins vegar að setja
markmið okkar örlítið hærra og einblína á að vinna mótið, búningarnir áttu svo að vera aukaatriði. Við byrjuðum að æfa fyrir mótið í apríl og tókum æfingar á hverju fimmtudagskvöldi fram að móti. Æfingarnar voru teknar mjög alvar lega, þar fóru við yfir hver væri bestur að hlaupa eftir flöskunni og boltanum. Hvaða tækni væri best að kasta boltanum og hvernig væri best að þamba drykkinn. Við fórum yfir veikleika hjá hverriog einni, fórum yfir hvað mætti betur ganga, svona eins og hjá alvöru íþróttaliði. Tíu dögum fyrir mót, drukkum við sódavatn í dós á hverjum degi, oft tvisvar á dag til að verða betri í að þamba. Liðsandinn var frábær og vorum við orðnar spenntar fyrir mótinu enda höfðu miklar bætingar átt sér stað á öllum sviðum.
10 / 16
Carmen á Flonkymóti 2020 Fyrsta og eina hugmyndin okkar af búningavali var að vera pítsasendlar frá Domino’s. Sú hugmynd varð svo óvart mjög góð hjá okkur. Við fengum búninga frá Domino’s, og þá allan vinnugallann þeirra sem gerði þetta mjög skemmtilegt. Mótið er alltaf haldið á laugardegi og höfum við vanið okkur á að fara í bústað daginn áður. Þar fylgjumst við með þegar dregið er í riðla og hitum okkur upp fyrir stóra daginn. Lokaæfingin er svo tekin í búningum rétt áður en leiðinni er haldið á mótið.
komin með einhverjar hjartsláttartruflanir (mjög dramatískt). Þá þurfti ein úr hópnum að hlaupa í skarðið. Þessu höfðum við ekki gert ráð fyrir og varð þetta stressandi fyrir okkar hóp en þarna vorum við komnar með hóp af stuðningsmönnum sem hvatti okkur áfram. Við unnum leikinn og vorum þá komnar í úrslit. Í úrslitum keppum við við Saumaklúbbinn Guðbrand. Þeir hafa alltaf unnið mótið enda með góðar skyttur og hlaupara. Áður en leikurinn byrjaði veit ég að þeir voru ekki hræddir við þennan leik, þeir voru ekki hræddir við þetta kvendrifna lið í Domino’s búningunum. En svo byrjaði leikurinn og við komum þeim svo sannarlega á óvart og varð þetta mjög spennandi leikur. Þarna má segja að allir á mótinu hafi haldið með okkur og var kallað „MEGAVIKA” úr stúkunni. En besta skyttan úr Saumaklúbbnum hittir svo í dós hjá okkur sem varð okkar dauðans dyr. Við vorum samt mjög ánægðar með okkar frammistöðu á mótinu þótt það hefði verið gaman að vinna þennan leik þá gekk bara allt annað svo vel upp hjá okkur að það var ekki hægt að biðja um meira. Á hlöðuballinu unnum við að sjálf sögðu búningana, svo við fórum ekki tómhentar heim og bíðum spenntari en aldrei fyrr eftir næsta móti.
Mótið
Carmen á Flonkymóti 2021
11 / 16
Við höfðum aftur samband við Domino’s og báðum um brauðstangir, 100 stk. til þess að gefa á mótinu. Það fengum við í gegn og sóttum þær á Selfossi á leiðinni á mótið. Þegar við mætum á mótið vorum við mættar sem pizzasendlar með brauðstangir fyrir alla, mikil stemning hafði myndast. Mótið byrjaði og okkur gekk vel. Komum fólki á óvart, við vorum einbeittar, með góða liðsheild og almennt hvetjandi við hver aðra. Það er mjög mikilvægt því þótt við komum þarna til að vinna var alltaf númer 1, 2 og 3 að hafa gaman. Við komumst í undanúrslit. Boltasækjarinn okkar gengur með púlsúr á sér og sér að hún er
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
Elín R. Sigurðardóttir er menntaður snyrti fræðingur, en hún er miklu meir en það. Elín býr í Hafnarfirði og hefur búið frá ungum aldri. Hún er næst elst af fjórum systkinum og gerir hún fátt án systur sinnar, Olgu. Þær sinna áhugamálunum sínum saman, sem er langhlaup, ásamt því að vera í sama vinahópnum. Elín kynntist manninum sínum, Víði Stefáns syni, ung og eignuðust þau dóttir þegar Elín var aðeins 19 ára gömul. Í kjölfarið kom lítill strákur í heiminn ári seinna. Núna á hún þrjú börn, fjögur barnabörn og annað barnabarn á leiðinni. Elín eða Ella eins og hún er oft kölluð, lærði snyrtifræðina í Óðinsvé í Danmörku. Snyrtif ræðin var kláruð árið 1990 en 10 árum seinna opnaði hún sína eigin snyrtistofu, Snyrtistofan Björt. Ella hefur rekið stofuna í 22 ár, og er nóg að gera hjá henni. Hlaupin og áhugamálin Ella og Olga hafa hlaupið mörg þúsund kílómetra saman. Þær fara á þrjár hlaupaæfingar í viku með Skokkhóp Hauka og hafa verið valdnar sem íþróttamenn hópsins saman, því ekki var hægt að velja á milli þeirra því eins og hefur komið fram að þær eru mjög samtaka í öllu. Þær hafa tvisvar sinnum klárað að hlaupa
Laugaveginn með frábærum árangri, farið til Edinborgar, Munchen og Amsterdam og hlaupið maraþon þar, sem eru tæpir 42,2 kílómetri. Tekið 30 kílómetra á Madeira í miklum hita. Einnig hafa þær farið í svokallað þriggja landa hlaup, þar sem er hlaupið og komið við í Swiss, Þýskalandi og Austurríki á leiðinni. Langhlaup getur verið mikið álag á líkamann og er þá mikilvægt að æfa vel og rétt fyrir svona löng hlaup. Þær hafa góðan þjálfara sem hjálpar þeim að æfa fyrir hlaup og eftir hlaupin, því mikilvægt er að „hlaupa sig niður“ eftir löng og erfið hlaup. Þær byrja mörgum mánuðum áður að æfa fyrir mara þon og þá eru sér stakar æfingar ef hlaupa á utanvegar. Ás amt hlaupum stundar Ella cross fit, gönguskíði og skíði. Frístundir Eftir að börnin fluttu að heiman hefur Ella einnig lagt mikla áherslu á að ferðast á mismunandi staði í Evrópu og fer hún iðulega með Víði í ferðir þar sem flogið er á meginlandið og keyrt á áhugaverða staði. Gististaðir eru þá ekki ákveðnir fyrirfram,heldur láta þau ferðalagið bara ráðast. Ella er líka mjög góður kokkur. Hún á erfitt með að bjóða upp á „bara“ súpu og brauð þegar fólk kemur í mat til hennar, þá yfirleitt hendir
12 / 16
VERNDUM MERINA STÖÐVUM BLÓÐMERAHALD! Skokkhópurinn
Ljósm. Þóra Hrönn
Velvild vill bjóða þér að koma á ráðstefnu sína í Hörpu, 1.–2. maí. Fjallað verður um blóðmerahald á Íslandi. Skráning er hafin á netfanginu
verndummerina @gmail.com
Ella og Olga að klára Laugarveginn
hún í dýrindis veislu með öllu tilheyrandi. Ella er afskaplega gestrisinn og er yfirleitt eitthvað góðgæti til að snæða á þegar komið er í heimsókn. Ellu líður hvergi betur en í faðmi fjölskyldunar og hefur hún ásamt Víði því fjárfest í sumarbústað til þess að geta haft fjölskylduna nærri sér í frí
stundum. Fyrir utan allt annað er Ella yndisleg mamma og amma. Hún er dugleg að skipuleggja afþreyingu til að gera með fjölskyldunni og/eða bjóða í mat til sín ásamt því að vera alltaf til staðar fyrir alla.
Ella og fjölskylda
MARAÞON Maraþon er langhlaup, 42,195 km á lengd og er kennt við borgina Maraþon í Grikklandi. Boðberi nokkur er sagður hafa hlaupið með skilaboð um sigur í bardaganum við Maraþon frá þeirri borg til Aþenu. Sagan segir að hann hafi ekkert stansað á leiðinni og hafi látist um leið og hann skilaði af sér boðunum. Maraþon eru oft hlaupin um borgir og taka oft mjög margir þátt í hverju hlaupi. Þá eru oft boðið upp á önnur hlaup með, til dæmis hálfmaraþon, þar sem hlaupinn er 21,1 km auk þess sem stundum er fjórðungur vegalengdar hlaupinn. Meðal frægustu maraþonhlaupa heims eru þau sem fara fram í New York, London og Boston.
14 / 16
PRENTUÐ VERK ERU
SKEMMTILEGRI
FORVINNSLA
ÞÍN PRENTSMIÐJA SÍÐAN
FORVINNSLA Forvinnsla
PRENTUN
FORVINNSLA
PRENTUN Prentun
FRÁGANGUR
PRENTUN
FRÁGANGUR Frágangur
1967
KJARAMÁL
•
LÍFEYRISMÁL
•
SJÚKRASJÓÐUR
•
ORLOFSSJÓÐUR
• FRÆÐSLUSTYRKIR
ÞEKKIR ÞÚ ÞÍN RÉTTINDI? ÞÍN KJARAMÁL SKIPTA MÁLI
Það getur skipt sköpum að vera í réttu stéttarfélagi. Grafía sér um þín kjaramál. Kynntu þér þín réttindi á heimasíðunni okkar
www.grafia.is
Stórhöfði 31, 110 Reykjavík Sími: 540 0100 Opnunartímar Mán. – Fimt. 8.00–16.00 Föst. 8.00–15.00