1
SÍMENNTUN FRÁ FYRSTA DEGI
Til að ná árangri skiptir máli að bæta við þekkingu frá fyrsta degi. IÐAN fylgir þér frá útskrift allan starfsferilinn og býður upp á símenntun með fjölbreyttum námskeiðum sem taka mið af breytingum og tækniþróun í faginu.
Vatnagarðar 20 104 Reykjavík idan@idan.is
590 6400
2
EFNISYFIRLIT
KYNNING
05
06 GRAFÍSK HÖNNUN SHOPLIFTER 08 10 ELDGOS INNANHÚS STRAUMAR 13 14 FERÐUMST INNANLANDS LEIÐARI Nú fer að líða að lokum á þessu frábæra jafnt sem krefjandi námi og styttist óðum í útskrift. Seinustu tvær annirnar á sérsviðinu hafa vægast sagt verið krefjandi sökum aðstæðna sem allir kannast við. Ég lét heimsfaraldur og lokanir í skólanum hins vegar ekki stoppa mig, heldur var allt sett á fullt og klára ég námið hér með stæl. Þetta tímarit er lokaverkefnið mitt í grafískri miðlun og í því fjalla ég meðal annars um hönnun, listakonuna Shoplifter, skemmtilega áfangastaði á Íslandi og gönguna mína að eldgosinu. Ég vona að þið hafið jafn gaman af þessu tímariti og ég gerði við gerð þess. Í lokin vil ég þakka öllum frábæru kennurunum mínum fyrir samveruna gegnum námið. Þetta er búið að vera skemmtilegt og lærdómsríkt ferli.
Takk fyrir mig
Umbrot og hönnun: Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir Hönnun forsíðu Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir Mynd á kynningaropnu Heiða Norðkvist Halldórsdóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír Innsíður 150 g/m² Kápa 170 g/m²
3
UÐRÚN RISTÍN ILHJÁLMSDÓTTIR Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir heiti ég og er ég 27 ára gömul, fædd árið 1994. Ég er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en hef þó verið á miklu flakki síðan ég var unglingur, eða alveg frá því að ég fór til Bandaríkjanna í skiptinám aðeins 17 ára gömul. Eftir að ég útskrifaðist sem stúdent frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum var ég eins og svo margir aðrir frekar týnd með hvað mig langaði að gera. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á list og alls kyns hönnun og stefndi alltaf á að fara í einhverskonar listrænt nám, en vissi þó aldrei hvað. Að finna mig og það sem mig virkilega langar að gera hefur verið smá ferli. Fór ég meðal annars í Reykjavík Makeup School þar sem ég útskrifaðist sem förðunarfræðingur. Hef
verið á ansi víðum sviðum vinnumarkaðsins, allt frá því að starfa sem þjónn og sölumaður yfir í að vinna á dekkjaverkstæði og í fiskvinnslu. Það var svo þegar ég fer á námskeið hjá Prómennt með kennslu á öllum Adobe forritunum sem ég læri aðeins inn á þetta fag og heyri af grafískri miðlun í fyrsta skiptið. Nú er hins vegar komið að loka sprettinum í þessu námi þar sem ég stefni á að útskrifast í maí. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt en krefjandi nám sem ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa skráð mig í. Eftir útskrift stefni ég á áframhaldandi nám og er ég viss um að þessi reynsla muni veita mér frábæran grunn fyrir það.
HVAÐ ER
GRAFÍSK HÖNNUN? Grafísk hönnun er listin, starfsgreinin og fræðigreinin sem sameinar myndir, liti, letur og hugmyndir í sjónræna framsetningu sem ætluð er að senda ákveðin skilaboð til samfélagsins með einhverju ákveðnu markmiði. Hún gerir þetta á fjölmargan hátt, hún flokkar og aðgreinir – greinir til dæmis eitt fyrirtæki, stofnun eða þjóð frá öðru. Hún upplýsir – segir okkur til dæmis á hvaða prógrammi við megum þvo peysuna okkar. Grafísk hönnun hefur einnig áhrif á tilfinningarnar okkar og hjálpar við að móta skoðun okkar á heiminum í kringum okkur. Hún er allt í kringum okkur, að útskýra, skreyta, auðkenna: leggja þýðingu á heiminn. Við sjáum grafíska hönnun út á götu í götuskiltum, í öllu sem við lesum, tímaritum og auglýsingum, lógóum og mynstrum í fatnaði okkar og meira segja þvottamerkin á bolum okkar.
Litur Litaval er sérstaklega mikilvægt þegar
Mikilvægir þættir grafískrar hönnunar
búið er til með línum. Til eru mismunandi gerðir forma eins og geometrísk, abstrakt og lífræn form, sem allt eru grunnþættir hönnunar.
Þeir grundvallar þættir sem notaðir eru til þess að mynda og móta alla list og hönnun og miðla sjónrænum skilaboðum hennar eru:
Strik
er einn helsti grund vallarþáttur hönnunar. Strik getur verið bogið, beint, þykkt, þunnt, tvívíddar, þrívíddar, hvað sem er í rauninni. Strik er einfaldlega skilgreint sem punktur á hreyfingu.
Áferð hönnunar vísar til þess hvernig til-
finning er að snerta hlutinn. Áferð getur verið á ýmsan máta til dæmis verið gróf, slétt, gljáandi, mjúk, hörð o.s.frv. Áferð er þáttur sem notaður er til að vekja athygli. Hægt er að bæta fleiri þáttum við eins og lögun, litum, myndum og gerðum.
6
kemur að því að vekja athygli þar sem mikil sálfræði liggur á bak við hvern og einn lit og hvaða tilfinningar þeir geta kallað fram. Það eru þrjú einkenni eða eiginleikar sem skilgreina liti: litbrigði- hvaða litur þetta er, gildi- hversu ljós eða dökkur liturinn er og mettun- hreinleiki litarins.
Leturfræði er listin að raða letri. Þessi þáttur er mjög mikilvægur þar sem leturgerðin getur haft mikil áhrif á skilaboð hönnunarinnar. Mismunandi stílbrigði, feitletrað, skáletrað og venjulegt, með mismunandi stærðum, litum og línu bilum getur haft gríðarleg áhrif á túlkunina sem hönnuðurinn er að reyna að segja.
Form er tvívíddar skilgreint svæði sem
Stærð
Einfaldlega átt við hversu lítið eða stórt eitthvað er. Í hönnun er stærð notuð sem vísbending um mikil vægi, einnig getur hún skapað sjónrænan áhuga á hönnun með því að nota andstæðar stærðir.
Rými er þá átt við þau svæði hönnunar-
innar sem skilin eru auð. Þessi svæði fela í sér hvaða fjarlægð sem er, milli, kringum, fyrir ofan eða fyrir neðan hönnunarþætti. Hönnuðir setja vísvitandi rými í hönnunina til þess að leggja áherslu á hluta hönnunarinnar.
Grafísk miðlun Grafísk miðlun er frekar nýtt starfsheiti þar sem starfsheitið hét áður fyrr prentsmiður. Grafísk miðlun eða grafísk vinnsla er orðið mjög vítt hugtak í dag, það nær yfir alla þá vinnslu sem þarf til að búa til prentað efni. Auðvitað er átt við prentun og frágang, en einnig er átt við alla þá vinnu sem á undan fer, t.d. skissugerð og hönnun, ljósmyndun og myndvinnslu, textagerð, vinnu við umbrot og prentsmíð, t.d. útbúa PDF-skrár og búa myndir undir prentun og útkeyrslu á próförkum og prentplötum. Grafísk miðlun er alls ekki ósvipað og grafísk hönnun. Helsti munurinn má segja sé sá að grafísk miðlun leggur meiri áherslu á alla tölvu vinnu og frágang, meðan grafísk hönnun leggur miklu meiri áherslu á hönnunina partinn. Auk þess sem hér á landi er grafísk hönnunin háskólanám en miðlunin framhaldsskólanám. Ég heyrði góða útskýringu á þessu tvennu þar
sem ef grafísk hönnun væri líkt við arkitektúr þá væri grafísk miðlun byggingarfræði. Vinnsluferli grafískrar miðlunar má Skipta upp í átta stig sem eru flokkuð í fjóra megin flokka. Fyrsti flokkurinn er verkhugmynd sem nær yfir áætlunargerð og hugmyndavinnu, hann felst í því að hugmynd fæðist og fær á sig vissa mynd og frumdrög að grafískri hönnun verður til. Næsta skref væri skapandi þáttur verksins, í honum tekur varan á sig form þar sem unnið er í myndum, texta og umbrot og útlit er uppsett. Þriðji þátturinn er prenntvinnsluferlið sem samanstendur af prentsmíði, prentun og svo frágangi, þetta ferli er fyrst og fremst framleiðsla í prentsmiðju og hefur þann tilgang að útfæra það sem hannað var á fyrri stigum. Lokastigið lýtur að dreifingu á hinum endanlega prentgrip. Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Heimildir: Bókin grafísk miðlun og g2.com Myndir: Unsplash
Allir viðskiptavinir sem geyma dekk á dekkjahótelinu okkar fá 15% afslátt af u mskiptu m
BREYTTUR OPNUNARTÍMI Sími: 4 8 1 152 3
Hásteinsvegi 23, 900 Vestmannaeyjum
MÁNUDAGA–FÖ STUDAGA 08 :00–18 :00
NÝ ÞJÓNUSTA
Mælum, forritum og endurstillum nema í dekkjum
7
SHOPLIFTER HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR Hrafnhildur Arnardóttir, fædd árið 1969 er einnig er þekkt sem Shoplifter. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi frá School of Visual Arts í New York. Listasköpun Hrafnhildar liggja á mörkum myndlistar, gjörninga og tísku. Verkin hennar eru að mestu skúlptúrar, veggverk og innsetningar úr ýmsum efnivið, sem fjalla jafnan um sjálfsmynd, fegurð, tísku og hégóma. Það er skemmtilegt að segja frá því hvernig listmannanafnið hennar Hrafnhildar varð til, en það var semsagt til útfrá algjörum miskilingi og tungumála mismuna. Hún var ný flutt til New York og kynnir sig sem Hrafnhildur, en þar sem þetta sterka íslenska nafn er ekki auðvelt fyrir bandaríkjumann að bera fram, tekur hann því sem „shoplifter“. Hún hafði mjög gaman af þessum misskilning og fer eftir þetta að kalla sig shoplifter. Undanfarin 15 ár hefur hún mestmegnis verið að gera verk úr hárum, þar sem hún vinnur bæði mér gervihár jafntsem ekta mannshár. Hefur verið að kanna notkun, tákngildi og listrænu möguleika hársins. Áhugi Hrafnhildar af hári byrjaði á unga aldri þegar hún fann af klippta fléttu af ömmu sinni í náttborðskúffunni hennar. Hún skoðaði fléttuna mikið sem barn, það var eitthvað flippað og fríkað við þetta, henni fannst hún bæði krípi en á sama tíma eitthvað fallegt við hana þar sem fléttan var einhverskonar minjagripur af ömmu hennar úr æsku. Hrafnhildi vill vekja þessar tvær andstæðu tilfinningar af fegurð og ógeðfeld, sem fólk á til með að hafa gagnvart hári.
Fólki finnst hár rosalega fallegt og flott þegar það tilheyrir líkamanum en um leið og það er dottir af er það orðið ógeðslegt og frekar krípí. Þegar fólk myndar sér skoðun á verkum hennar þarf það því svolítið að velja á milli hvort þeim þykir verkið krípí og frekar ógeðsleg eða fluffý og fá jafnvel þá tilfinningu að vilja snerta. Þrátt fyrir að hafa unnið með sömu skúlptúrana undanfarin 15 ár og jafnvel söm seríuna þá verða verkin aldrei alveg eins þar sem hún situr alltaf upp alveg nýtt verk í hvert sinn, leyfir rýminu á hverjum stað að ákveða hvernig verkið á að vera. Hrafnhildur er rosalega litrík og elskar að vinna með skæra og skemmtilega liti, hún trúir að litir séu sálrænt meðal og hjálpi til gegn depurð og skammdegisþunglyndi.
Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Myndir: Shoplifterart
8
9
ELDGOS Í GELDINGADÖLUM Eins þreyttur og maður er orðin af fréttum og almenni umfjöllun í þjóðfélaginu dag, virðist sem allt snúist bara um covid eða þetta blessaða eldgos. Sjálf er ég allavega orðin vel þreytt af þessu en á sama tíma megum við ekki gleyma því hversu ótrúlega magnað þetta eldgos er. Eins og svo margir aðrir hafa gert þá pakkaði ég í tösku, skellti mér í útiföt og gerði mér ferð upp að gosstöðvunum. Þetta var í rauninni önnur
Eldgosið Eldgosið er staðsett í Geldingadölum austan undir Fagradalsfjalli og hófst það að kvöldi 19. mars. Geldingadalir eru grunnir dalir austan undir Fagradalsfjalli, á Reykjanesskaganum. Geldingadalir draga nafn sitt af því þegar sauðfjárbændur heldu geldfé aðskildum frá ám með lömbum til að eyða ekki tíma og orku við að reyna mjólka þær ær.
ferðin mín upp að eldgosinu en upplifunin var samt sem áður allt önnur þar sem eldgosið er á stöðugri breytingu og það er aldrei eins. Þetta skiptið passaði ég mig á að hafa myndavélina mína meðferðis og hér til hliðar getið þið séð brot af þeim myndum sem ég tók. Ég mæli eindregið með því að allir þeir sem hafa færi á að ganga upp að eldgosinu, geri sér ferð þangað. Þetta er einfaldlega mögnuð upplifun í alla staði sem myndir og myndbönd ná aldrei að skila sér alveg.
Eldgosið myndaðist í kjölfar jarðskjálftahrinu sem stóð í meira en 3 vikur og er þetta fyrsta eldgosið á Reykjanesskaganum í 800 ár þegar Reykjaneseldar geisuðu, eru 6000 ár síðan gaus í Fagradalsfjalli. Eldgosið er flokkað sem dyngjugos en slíkt gos hefur ekki sést á Íslandi frá því um lok ísaldar og tegund hraunsins er helluhraun. Kvikan er frumstæð og kemur úr 17–20 kílómetra dýpi. Heimild: Wikipedia
10
Texti og myndir: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að það sé virkt eldgos á Reykjanesskaganum. Eldgosið er staðsett í Geldingadölum austan undir Fagradalsfjalli og hófst það 19. mars.
11
INNANHÚSSSTRAUMAR Nordal Spirit iron spegill, Húsgagnahöllin
DÖKKT OG DÁSAMLEGT
Óhætt að segja að minimalíski, skandinavíski stílinn hefur verið sá allra vinsælasti þegar kemur að innanhússstraumum undanfarin ár. Nú virðist sem hvítu húsgögnin séu að víkja fyrir dekkri tónum.
99.990,-
Riverdale Walton stóll, Húsgagnahöllin 179.990,-
Ittala lampi, Húsgagnahöllin Piero sófaborð, Snúran
78.990,-
277.800,-
KÚRVUR OG LÍFRÆN FORM
Hringir, sporöskjulaga form og almennt mjúkar línur hafa líklega ekki sést í jafnmiklu mæli síðan á sjöunda áratugnum. Hippastíllinn í bland við nútímalegri húsgögn þar sem mjúkar línur, hlýlegir litatónar, stórar plöntur, umfangsmikill textíll og náttúruleg efni taka völd.
New Wave Optic, Snúran 63.900,Paste hægindatóll, Snúran 247.800,-
Webbing sófaborð, Purkhús 58.890,-
Focus skenkur, Húsgagnahöllin 169.990,-
12
SUMAR
SPRENGJA Þú færð hlau pa fatnaðinn fyrir su marið hjá okku r Listaverk og plöntur
Stór og vígaleg listaverk hafa verið að aukast með tímanum inn í stofur og opin rými heimilanna. Búast má við að sjá stór og áberandi verk á öðru hverju heimili þar sem íslenskir listamenn fara að verða í auknum mæli. Einnig eru stórar sem smáar plöntur alltaf að aukast, sem er æði því plöntur gefa svo mikla hlýju og líf í rýmið.
FÁGAÐUR IÐNAÐARSTÍLL
Iðnaðarstíll hefur lengi verið vinsæll en nú má sjá töluvert fíngerðari og fágaðri útfærslu af stílnum. Hreinar og nútímalegar línur í bland við hrá efni og grófri áferð. Málmar hafa lengi verið vinsælir en nú fer steypa einnig að aukast gríðalega í vinsældum, þá sérstaklega sjónsteypu veggir í stórum opnum rýmum.
Verð nú 13.990,-
Verð áður 19.900,-
Verð nú 12 .990,Verð áður 24 .900,-
BAST, BAMBUS OG REYR
Náttúrulegur efniviður verður sýnilegri. Ofin handverk og áferð þar sem bambus og reyr kemur sterkt inn.
Wicker bast ljós, Purkhús
Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Heimild: Hús og Híbýli Myndir: Snúran | Purkhús og Húsgangahöllinn
64.890,-
Ármúli 18 | 104 Reykjavík www.mantra.is
13
Hvert ætlar þú í sumar? Ferðumst innanlands
Nú fer að styttast í sumarið og fólk fer að huga að sumarfríinu sínu. Út af aðstæðum þetta árið, þar sem heimsfaraldurinn Covid-19 hefur haft töluverð áhrif, verður sennilega lítið af utanlandsferðum í plönunum hjá fólki. Þetta sumarið er ég viss um að lang flestir Íslendingar verði miklu duglegri að ferðast innanlands og njóta fegurðarinnar og afþreyinga sem við höfum upp á að bjóða hér á landi. Margir hverjir eru farnir að bóka gistingar og sumarbústaði um land allt, meðan aðrir hugsast ætla elta sólina og eru að leigja sér, fellihýsi, húsbíla eða annan sambærilegan gisti máta.
Fyrir þá sem ekki eru búnir að huga að gistingum og eru að missa af úrvalinu þá er alltaf hægt að dusta rykið af tjaldinu sem leynist inn í geymslu. Þá er bara spurning hvert skal halda og hvaða skemmilegu afþreyingar eru í boði? Hér fyrir neðan hef ég tekið saman nokkra áhugaverða staði og afþreyingar um land allt sem gætu reynst þér vel þegar þú planar ferðalagið í sumar. Nú er bara að pakka í bílinn, setja upp sólgleraugun og njóta sumarsins hérlendis.
SUÐURLAND
AUSTURLAND
Friðheimar
Einstök matarupplifun í gróðurhúsi.
Höfn
Jöklaskoðun, Haukafell, humarhátíðin, Glacier World.
Vík
Reynisfjara, sólheimasandur, Dyrhóley.
Stuðlagil
Náttúruperla á Jökuldal á Fljótsdalshéraði.
Landmannalaugar
Náttúruperla upp á hálendi, mis krefjandi gönguleiðir.
Vök Baths
Heitar laugar sem standa á bökkum Urriðavatns.
Vatnajökull
Jöklaganga, jöklaklifur, snjósleðaferðir.
Fljótsdalshreppur
Fjlótsdalur, Hengifoss, Laugarfell, Hallormsstaður.
Vestmannaeyjar
Eldfell, eldheimar, ribsafari, lundaskoðun.
Náttúrulaugar
Laugarfell, Laugarvallalaug.
NORÐURLAND
VESTURLAND/FIRÐIR
Demantshringurinn
Goðafoss, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi og Húsavík.
Húsafell Giljaböð
Ferðir með leiðsögn í fullkomna hálendisslökun.
Hauganes
Heitir pottar á Hauganesi niður við sjó.
Rauðisandur
Einstaklega falleg rauð strönd.
GeoSea
Sjóböð í útjaðri Húsavíkur.
Ísafjörður
Tungudalur, Dokkan brugghús, Tjöruhúsið.
Bjórböðin
Brugghús, veitingastaður, bjórböð.
Fossar
Glymur,Hraunfossar, Kerlingafoss, Dynjandi.
Náttúrulaugar
Grettislaug, Stóragjá, Grjótugjá, Hólsgerðislaug.
Náttúrulaugar
Guðlaug, Landbrotalaug, Hörgshlíðarlaug, Snorralaug.
Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir | Mynd: Unsplash
14
ERUM STÆRRI EN ÞIG GRUNAR
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
PRENT
LITL A
FYLGJUM ÞÉR FRÁ BYRJUN TIL ENDA Skemmuvegi 4 • 200 Kópavogi litlaprent.is • litlaprent@litlaprent.is
540 1800
15
Við hugum að þínum réttindum – þinni vernd Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.
Kynntu þér rétt þinn fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
GRAFÍA
Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík Sími 552 8755 Netfang grafia@grafia.is Veffang www.grafia.is
16