3. tbl. 9. árg. Grafísk miðlun Haust 2020
embla
1
AUKTU VÆGI ÞITT
Endurmenntun ætti að hefjast strax að loknu námi. Aukin menntun gefur þér forskot og fjölgar tækifærum á atvinnumarkaði
2
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | Netfang idan@idan.is | Veffang www.idan.is
Snorri Sturluson Snorri Sturluson
5 Erlingur 6
LEIÐARI Embla er tímarit sem hver nemandi á Fag braut Grafískrar Miðlunar í Tækniskólanum “úrvalsdeildinni” skilar við námslok. Þetta tímarit sameinar alla þá færni og kunnáttu á faginu sem við höfum lært á undanförnum árum. Ég get ekki sagt að þetta tímarit hafi verið unnið við kjöraðsæður. Heimsfaraldur hefur gert okkur skráveifu og orðið þess valdandi að við sátum heima, jafnvel í öðrum landshluta en kenn arar. En með hörkuna að leiðarljósi og mikilli vinnu,
blóð,svita og tárum, svo vitnað sé í eitthvað skáldlegt hafðist þetta. Eftir vægar ritstíflur og miklar hugarsveiflur á svefnlausum nóttum varð þetta tímarit að veru leika. Efnistök tímaritsins byggja á hlutum sem allir eru mér mjög kærir og þar að leiðandi er ykkur hleypt í minn hugarheim. Ég held að ég mæli fyrir munn okkar allra þegar ég segi að tilurð tímarits við áðurgreindar að stæður hafi þroskað okkar innri listamann. Góðar stundir.
10
LEVI’S
12
HRAFNAR Umbrot og hönnun Erlingur Freyr Thoroddsen. Hönnun forsíðu Erlingur Freyr Throddsen. Ljósmyndir Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Jón Helgi Pálmason, Unnur Karen Björnsdóttir, Wikimedia. Teikningar Erlingur Freyr Thoroddsen Texti um Levi’s Erlingur Freyr Thoroddsen Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Pappír UGI digi 130g/m2 UgI digi 250g/m2
3
4
Erlingur Freyr Thoroddsen Ég heiti Erlingur Freyr Thoroddsen, fæddur og uppalinn í Hlíðunum. Frá því að ég gat fyrst haldið á litum notaði ég þá til þess að tjá mig og það sem leynist í kollinum á mér. Mamma og Pabbi voru mjög dugleg að sýna mér landið þegar ég var lítill. Alltaf fann ég eitthvað stórkostlegt sem ég þurfti hreinlega að teikna eða mála. Oft gat ég ekki beðið eftir að komast út úr bílnum eingöngu til þess að teikna eitthvað sem ég sá á leiðinni. Hugarheimur norrænnar goðafræði hefur heill að mig alveg síðan afi minn heitinn og nafni kynnti fyrir mér þegar ég var rétt tæplega 6 ára gamall. Sögurnar af Þór, Frey og öllum þeim náttúruöflum sem búið er að holdgera hafa fylgt mér af mikilli ástríðu í gegnum ævina. Pabbi og mamma sögðu mér og tvíbura bróðir mínum Nirði sögur af fólkinu sem nam land á Íslandi og dáðu þessa guði alveg eins og við. Seinna tók ég til hendinni og kynnti mér Íslendingasögurnar flestar. Mér finnst ég alltaf geta lært eitthvað nýtt þegar ég les í Hávamálunum og Eddu Snorra Sturlusonar.
Ég er sífellt í leit að þekkingu sem hef fjöl breytt áhugamál. Ég hef áhuga á myndlist, kvik myndagerð, fatahönnun, ljósmyndun, prentun, fornleifafræði, sagnfræði og fornbókmenntum. Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt, læra nýja hluti og skilja þá betur. Þegar það kom að því að velja framhaldsnám eftir tíunda bekk vissi ég strax að ég vildi læra eitthvað sem myndi hjálpa mér að koma mínum hugmyndum á þrykk. Ég valdi nám í Grafískri miðlun vegna þess að það hljómaði spennandi. Þetta nám hefur sameinað svo mörg áhugamál mín í eitt fag. Ég verð ævin lega þakklátur að þeim kennurum sem hafa kennt mér og samnemendum mínum sem hafa unnið með mér síðastliðin ár. Ég hlakka mikið til að starfa við þetta fag í framtíðinni. Góðar stundir.
5
Snorri Sturluson (1179–1241) goðorðsmaður í Reykholti, sagnaritari og stjórnmálamaður, er einna nafnkunnastur Íslendinga fyrr og síðar. Rithöfundurinn og skáldið Snorri hélt til haga norrænni menningararfleifð og setti sterkan svip á samfélag sitt á þrettándu öld. Honum eru eignuð mörg af glæsilegustu bókmenntaverkum miðalda á Íslandi: Snorra–Edda, Heimskringla saga Noregs konunga og Egils saga. Snorri átti líka dramatíska ævi, og bæði hann og verk hans hafa orðið listamönnum óþrjótandi uppspretta nýrrar sköpunar. Saga Snorra Sturlusonar er til umfjöllunar á sérstakri sýningu á vegum Snorrastofu í Reykholti. Uppruni og æska Snorri Sturluson fæddist á bæ landnámskonunnar Auðar djúpúðgu, Hvammi í Dölum, árið 1179. Faðir hann var harðdrægur smáhöfðingi, Hvamm–Sturla og gengu af honum miklar sögur. Móðir hans, mun yngri bónda sínum, var Guðný Böðvarsdóttir af göfugum ættum höfðingja í Borgarfirði. Frændmenn hennar voru einmitt flæktir í miklar deilur um 1180 Deildartungumál, sem leiddu til þess að Snorri Sturluson var tekinn til fósturs í Odda á Rangárvöllum frá því hann var á þriðja ári. Fósturfaðir hans Jón Loftsson var helsti höfðingi landsins um langt árabil. Hann var af móðerni kominn af norsku konungsfjölskyldunni en afi hans í föðurætt var Sæmundur fróði Sigfússon, sem nam fræði sín suður í Evrópu og er talinn hafa ritað ágrip af ævum Noregskonunga á latínu. Í Odda var á tólftu öld haldinn skóli af Sæmundi og niðjum hans og í þann skóla er Snorri talinn hafa sótt klassíska menntun sem og lagt stund á þjóðleg fræði, ættvísi og lögspeki. Snorri sækir fram um Vesturland og víðar… Fyrir tilstyrk Oddaverja komst Snorri þegar á ungaaldri til áhrifa og valda á Suðurlandi sem og á Vesturlandi. Sæmundur Jónsson leiðtogi Oddaverja og Þórður eldri bróðir Snorra leituðu honum kvonfangs hjá Bersa Vermundarsyni
6
presti og höfðingja á Borg á Mýrum og fékk hann Herdísar einkadóttur hans og Hróðnýjar Þórðardóttur, sem reyndar var frilla Þórðar Snorra bróður. Ætlunin var að Snorri hæfi búskap á óðal inu Hvammi í Dölum en það fékkst ekki, ef til vill vegna andstöðu Sighvats annars bróður Snorra. Ungu hjónin bjuggu því fyrsta búskaparár sitt á Suðurlandi, en þegar Bersi tengdafaðir hans dó 1202 tók Snorri við búsforráðum og goðorði hans, Mýramannagoðorði. Á næstu árum safnaði hann að sér áhrif um og völdum á Vesturlandi, fékk hálft goðorð Lundarmanna, goðorð Stafhyltinga og Gilsbekk inga þannig að hann varð einhver áhrifamesti höfðingi landsins á næstu misserum. Sum þessara goðorða fékk hann fyrir tilstuðlan vinkvenna sinna, mæðgnanna Snælaugar Högnadóttur og Guðrúnar Hreinsdóttur. Guðrún var um árabil frilla Snorra og eignaðist með honum nokkur börn, en aðeins eitt þeirra komst á legg. Með Herdísi konu sinni eignaðist Snorri tvö börn sem upp komust, Hallberu og Jón sem kallaður var murtur. Árið 1206 skilur Herdís Bessadóttir við Snorra og hann flytur upp í Reyk
holt sem lá afar vel við samgöngum. Reykholt var á þekktum krossgötum milli landshluta og lá vel miðsvæðis herfræðilega. Þaðan spann Snorri Sturluson vef valda og áhrifa um land allt og út í heim. Fyrstu árin hefur Guðrún Hreinsdóttir frilla hans vísast búið með honum, og dóttir þeirra Ingibjörg var lengstum til heimilis í Reykholti. En Guðrún Hreinsdóttir hverfur samt fljótt úr sögu, líklegast látist á ungum aldri. Með öðrum konum eignaðist Snorri börn: Órækju með Þuríði Hallsdóttur og Þórdísi með ónefndri konu. Lögsögumaður í utanlandsferðum Hann var kjörinn lögsögumaður á alþingi 1215 og gegndi þeim starfa þar til hann hélt í sína fyrri utanlandsreisu 1218. Þar dvaldi hann meðal höfðingja, fyrst með Hákoni konungi og Skúla jarli í Túnsbergi. Veturinn 1219 fór hann til Gaut lands að heimsækja Áskel lögmann og Kristínu Nikulásdóttur aðalskonu. Þá fór hann aftur til Noregs, norður til Björgvinjar og Niðaróss, aftur á vit hirðarinnar. Honum tókst að koma í veg fyrir fyrirhugaðan hernað Norðmanna á
hendur Íslendingum og var sæmdur æðstu virðingu hirðar fyrst skutilsveinn og síðar lendur maður konungs. Þar með var Snorri orðinn einn af valdamestu mönnum norsku hirðarinnar. Um það hefur verið deilt hvort hann hafi lofað að koma landinu formlega undir Noregskonung í þessari ferð, en staðreyndin er sú að Noregskonungar höfðu allt frá landnámi seilst til áhrifa í landnámi norrænna manna og ráðið miklu í byggðum þeirra við Norður–Atlantshaf. Þegar Snorri Sturluson kom heim sumarið 1220 urðu fljótlega miklar viðsjár með honum og sunnlenskum höfðingjum af ætt Haukdæla. Samtímis var Sighvatur bróðir hans og synir Sig hvats í harðvítugri andstöðu við Snorra. Hann freistaði þess að semja allsherjarfrið við Þor vald Gissurarson Haukdælaforingja og á næstu misserum fékk Gissur Þorvaldsson Ingibjargar Snorradóttur, afráðið var að Þorvaldur og Snorri stofnuðu klaustur í Viðey, og sjálfur fékk Snorri ekkju Bjarnar Þorvaldssonar, Hallveigar Orms dóttur og hófu þau þegar búskap sinn saman og eignuðust börn..
Jólamatinn færðu í Kjöthöllinni Þú færð allt sem þú þarft í jólamatinn í Kjöthöllinni. Verið velkomin.
7
Skipholt 70 | sími 553-1270 | Háaleitisbraut 58-60 | sími 553-8844 | kjothollin.is
agnameistarinn Snorri Næstu þrjú árin 1220 til 1223, hafði Snorri Stafholt að höfuðbýli sínu, vísast meðan mikil uppbygging húsa og híbýla stóð yfir í Reykholti. Þar var reist mikið virki umhverfis hús og staðurinn efldur að mun sem kirkjumiðstöð og lærdómsmiðstöð. Á staðnum var samfélag lærðra manna, presta sem iðkuðu stunduðu tíðir og guðsþjónustu daglega og þjónuðu kirkjum og bænahúsum bænda í nágrenninu. Þá voru ótaldir þeir skrifarar og lærisveinar sem hljóta að hafa gengið til skrifarastarfa með og fyrir Snorra skáldbónda. „Á bók þessa lét ég rita…“, segir Snorri í einum formála Heimskringlu og gefur þannig til kynna að hann hafi lesið fyrir ritstýrt fremur en ritað sjálfur. Sama gefur hann til kynna tilaðmynda í Ólafs sögu Tryggvasonar þar sem alltíeinu segir í texta: „Það vil eg nú næst rita láta að segja frá íslenskum mönnum.“ Margir telja að bókmenntaverk eignuð Snorra Sturlusyni eigi það sameiginlegt að einkennast af fræðilegri vandvirkni miðað við ritunartíma sem og stíllegri kátínu og yfirburða þekkingu á menningararfinum, kvæðum og sögum úr munnlegri geymd og leikni við úrvinnslu heimilda. Það á við um Snorra Eddu; Skáldskaparmál, Gylfaginningu og Háttatal, Noregs konunga sögur (Heimskringlu) og Egils sögu. Sögusviðið er hvar vetna eiginlega allur heimurinn. Snorri átti við margan vanda að etja, öll börn hans gerðu einhvers konar uppreisn gegn honum, sum þeirra féllu frá á ungum aldri önnur voru honum öndverð löngum stundum. Sama á við um Sighvat bróður hans og syni hans, sem fóru hvað eftir annað gegn honum með herflokkum og ofbeldi. Snorri hafði komist til áhrifa með aðstoð Oddaverja og var eiginlega í flokki þeirra framan af æfi. En þegar á leið ævina hurfu þeir frá stuðningi við hann. Þótt Snorri þætti vera lævís stjórnmálamaður og leikinn rithöfundur fannst mönnum hann vera afleitur hermaður og var jafnvel sakaður um heigulshátt og hugleysi þegar átök stóðu fyrir dyrum. Hann var sumsé maður friðar og
8
undanhalds á tímum vopnaðrar aldar riddaratíma. Engu að síður var hann hríðum valdamesti maður landsins, af því hann nýtti alla aðra hæfileika þeim mun betur í hagnaðarskyni. Ísland lén Snorra Eftir harðvítug stjórnmálaátök á fjórða áratug þrettándu aldar fór Snorri aftur til Noregs árið 1237. En þá var gífurleg spenna milli Skúla hertoga Bárðarsonar sem löngum var valdamesti maður Noregs og Hákonar konungs Hákonarsonar. Snorri hafði allan tímann verið í vinfengi við Skúla og í þessari ferð treystist vinátta þeirra enn betur. Það er jafnvel ólíklegt að Snorri hafi hitt konung í þessari ferð, hann dvaldi í Niðarósi hjá Skúla. Áður en Snorri hvarf til Íslands aftur vígði Skúli hann leynilega sem jarl, væntanlega með það í huga að sjálfur yrði hann konungur í Noregi en hans maður, Snorri Sturluson, jarl á Íslandi. Hákon konungur bannaði Snorra og félögum hans Íslandsför, en Snorri á að hafa sagt: Út vil ek! Og
Mikilvægir viðburðir í lífi Snorra Sturlusonar Aldur
Atburður
Ár
3
Tekinn í fóstur
1182
23
Flytur í Reykholt
1206
23
Giftist Herdísi Bersadóttur
1202
36
Gerður Lögsögumaður
41 - 44
Egils saga og Heimskringla skrifaðar.
1220-1223
Myrtur af mönnum Gissurar-Hvíta
1240
41
58 61
Giftist Hallvegu Ormsdóttur
Deilir við Noregskonung
1215 1220
1237
Ljósm.: Zairon,wikimedia.org
fór til Íslands. Næstu mánuði var Skúli viðtekinn sem kon ungur á nokkrum þingum víðs vegar um Noreg. Kröfur hans til konungdóms kunna vel að hafa byggst á efnivið úr smiðju Snorra Sturlusonar, sagnfræðileg og ættfræðileg rök voru leidd að réttmæti kröfunnar um konungstignina. Þegar leið á veturinn 1240 höfðu Hákonarmenn betur og svo fór að Skúli var veginn 24. maí 1240. Fallið samsærið morðið Margt var líkt með þeim vinum, Snorra og Skúla, og örlög þeirra ofin saman. Sumarið 1241 voru blikur á lofti í lífi Snorra, hann missti Hallveigu konu sína í
júlí mánuði og varð honum mikið um fráfall hennar. Hákon konungur sendi bréf til Íslands með beiðni um að Snorri kæmi til Noregs og stæði konungi reikningsskil gerða sinna. Gissur Þorvaldsson og fleiri fyrrverandi tengdasynir fóru með flokkum að Snorra haustið 1241, flestir foringjar flokkanna voru afkomendur fóstra hans Jóns Loftssonar. Það má því segja að þeir sem skópu stjórnmálamanninn Snorra Sturluson og studdu hann til valda, Oddaverjar, hafi haft forystu um að binda endi á æfi hans. Gissur og kumpánar hans komu að Reykholti aðfaranótt 23. september og vógu skáldið. Snorri á að hafa minnt vegendur sína á sjötta boðorðið Þú skalt eigi morð fremja: Eigi skal höggva! Snorri Sturluson - stutt æviágrip (28.10.20) Sótt af www.snorrastofa.is/snorri-sturluson/
9
LEVI’S, GÆÐI Í TÆP 150 ÁR Saga Levi Strauss & Co. Það má segja með miklu öryggi að Levi’s galla buxur ættu að vera öllum kunnugar, ungum sem öldnum. Levi Strauss var fæddur 26 febrúar 1829 í Þýskalandi. Hann flutti til San Fransisco árið 1858 og fékk fyrirtækið Levi Strauss & Co skrásett með mág sínum og klæðskera Jacob Davis árið 1873. Markhópurinn þeirra voru námu verkamenn, kúrekar og skógarhöggsmenn sem þurftu góðan vinnufatnað. Það gátu Strauss og Davis boðið upp á. Frá fyrsta degi hafa verið koparhnappar á vösunum til styrktar. Auka vasi er hægra megin fyrir vasaúr hefur alltaf verið en í dag er hann lítið notaður. Árið 1886 kemur leðurmerkið fyrir ofan hægri til sögunnar. Myndin af hestunum sem bundnir eru í buxurnar er eitt frægasta kennimerki í tískusögunni. Hugsunin á bakvið myndina var nokkuð sjálfsögð á sínum tíma. Á þessum tíma var alls ekki sjálfgefið að fólk væri læst og að allir kynnu ensku. Þannig gátu teikningar höfðað til stærri markhóps Levi’s 501. Frægasta varan frá þessu merki eru klárlega Levi’s 501 gallabuxurnar sem hafa verið á mark aðinum í 110 ár. Þetta eru buxurnar sem að Levi’s höfðu verið að fullkomna í 30 ár. Buxurnar voru ekki þær sömu og þær sem höfðu verið gerðar fyrir námumenn í San Fransisco. Það var búið að fjarlægja festingarnar fyrir axlaböndin, setja lykkjur um mittið fyrir belti, nú voru tveir vasar að aftan og rauður miði merktur Levi’s saumaður í hægri rassvasann. Frá 1930 og til dagsins í dag hafa þær breyst
Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
lítillega. Í dag er búið að fjarlægja bronshnappana af rassvösunum vegna þess að þeir áttu til að skemma sessur og sæti, og aftari vasarnir hafa færst frá ytri lærum inná rassinn. Hvað gerir Levi’s svona Sérstakt merki? Levi’s buxur hafa lengi verið á markaðinum og búið er að prófa hvað virkar og hvað ekki í sambandi við endingu, gæði og þægindi. Það er ekki rennilás í klofinu vegna þess að rennilásinn bilar frekar heldur en hnapparnir sem eru á buxunum. Lengi hefur verið slagorð hjá Levi’s “Shrink to fit”. Þetta er alveg sönn orð. Þegar þú kaupir nýjar Levi’s 501 buxur sem aldrei hafa verið þvegnar munu þær mótast þinni lögun með tímanum. Minnka þar sem þær eiga að minnka og teygjast þar sem þær eiga að teygjast. Einnig dofnar liturinn í þeim eftir því hvernig þú berð þig. Ef að veskið er alltaf í hægri rass vasanum verður hægri rass vasinn ljósari þar sem veskið hefur verið. Þannig verða buxurnar persónulegar hverjum og einum. Saumarnir og tvinninn eru valdir sérstklega til endingar. Innri saumurinn er svo kallaður “mock- Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
10
felled inseam” sem þýðir að efnið er saumað saman í brot um sem halda buxunum betur saman.
vatni og jafnvel að þrengja þær við lærin þannig að skálmarnar voru út víkkaðar. Í kjölfar þess fóru í framleiðslu buxur sem búið var að aflita. Fólk gat nú nælt sér í buxur sem voru dökkbláar, skærbláar og ljósbláar á litinn. Þegar leið á níunda áratuginn voru Levi’s gallabuxur jafn sjálfsagður hlutur og einlitir sokkar í fataskáp fólks um allan heim. Þegar aldarmótin nálguðust féll sala á Levi’s buxum vegna harðar samkeppni. Aðrir aðilar buðu uppá gallabuxur úr gerviefni á lægra verði sem heillaði marga. Slíkar vörur kallast hraðtísku flíkur. Hraðstísku fatnaður er úr ódýrara eða svo kölluðu gerviefni. Þetta er efni sem þolir minna álag, framleitt við lélegar aðstæður í löndun eins og Taílandi og Víetnam af fólki á litlu sem engu kaupi. Þess vegna eru flíkur frá merkjum eins og Primark og H&M mun ódýrari en annars staðar. Í dag má finna Levi’s verslanir í flestum stór verslunum um allan heim. Árið 2019 var seinustu Levi’s verksmiðjunni í Bandaríkjunum lokað. Í dag eru buxurnar framleiddar í Japan. Ástæðan er sú að millurnar sem vefa gallaefnið eru í Japan og það sparast hellingur á því að flytja buxurnar milliliðalaust til landa.
Tískuflíkin Levi’s Levi’s gallabuxur urðu tískuflík þegar Elvis Presley var mættur í verkamannafötum frá Levi’s í Jail house Rock og þegar ofsatöffarar á borð við Marlon Brando, John Wayne og James Dean sáust á stóra sviðinu í 501 gallabuxum. Það varð allt verra en vitlaust. Fræg er sagan af því þegar Blúsinn og Country tónlistin eignuðust afkvæmið sem skýrt var Rokk. Rokkið og Levi’s hafa alltaf náð vel saman. Buxurnar urðu tákn frelsis og mótþróa eins og rokkið. Vinsældir jukust með árunum, svo mikið að verksmiðjur í Bandaríkjunum fjölguðu úr 16 í 63 frá árunum 1964-1974. Helstu breytingar á sjöunda áratug tuttugustu aldar var liturinn. Fólk tók upp á því að aflita buxurnar, sem voru eingöngu framleiddar dökkbláar, með klóri og Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
11
Ljósm.: Pxhere.com
HRAFNAR Í NÁTTÚRU ÍSLANDS Hrafninn, þessi stóri hröfnungur er eini innlendi fulltrúi ættar sinnar á Íslandi. Allir þekkja krumma sem er bæði elskaður og hataður af þjóðinni. Hann er stærstur allra spörfugla, sterklega byggður, með fremur langa og breiða fingraða vængi og fleyglaga stél. Hann er alsvartur, fullorðinn hrafn er með græna eða fjólubláa gljáandi slikju á höfði og að ofan, úfnar fjaðrir á hálsi og fiðraðar skálmar. Ungfugl er móskulegur og án gljáa. Flug hrafnsins er þróttmikið, vængjatökin djúp og hann flýgur beint og oft hátt og lætur sig svífa á þöndum vængjum. Lætur sig oft falla með aðfellda vængi og leikur alls kyns fluglistir. Hoppar gjarnan jafnfætis. Hrafnar eru félagslyndir og halda sig í hópum eða pörum.
þó helst fitu. Staðhættir Hrafninn er staðfugl og einn fárra fugla sem sjást á Miðhálendinu á veturna. Varpheimkynni hans eru um mikinn hluta norðurhvels jarðar en hann er þó orðinn fáséður víða þar sem þéttbýlast er. Hrafninn verpur í klettum, giljum og hraunum á láglendi, en er sjaldgæfur ofan 400 m hæðarlínu. Á Suðurlandsundirlendi og víðar verpa hrafnar á alls konar mannvirkjum: súrheysturnum, raf magnsmöstrum, auðum útihúsum o.fl., hafa einnig orpið í trjám. Hreiðrið er mikill laupur úr alls kyns drasli, gripabeinum, sprekum og gaddavír, fóðrað með ull og fjöðrum og er því valinn staður á syllu eða í skúta.
Fæða og fæðuhættir Krummi er alæta, etur hræ, úrgang, egg og unga, skordýr og ber, fangar jafnvel fullorðna fugla. Auðvelt er að hæna hrafna að með matgjöfum og eru þeir sólgnir í flest allt sem fyrir þá er borið,
12
Alemnnar Upplýsingar um hrafna. (01.11.2020). Sótt af www.fuglavefur.is/birdinfo.php?val=1&id=27
Krummavísur
Krummi svaf í klettagjá, kaldri vetrarnóttu á, ::verður margt að meini:: Fyrr en dagur fagur rann, freðið nefið dregur hann ::undan stórum steini.:: Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor ::svengd er metti mína.:: Ef að húsum heim ég fer heimafrakkur bannar mér ::seppi´ úr sorp að tína.:: Öll er þakin ísi jörð, ekki séð á holtabörð ::fleygir fuglar geta.:: En þó leiti út um mó, auða hvergi lítur tó; ::hvað á hrafn að éta.:: Á sér krummi ýfði stél, einnig brýndi gogginn vel, ::flaug úr fjallagjótum:: Lítur yfir byggð og bú á bænum fyrr en vakna hjú, ::veifar vængjum skjótum.:: Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá, ::fyrrum frár á velli.:: Krunk, krunk, nafnar, komið hér, krunk, krunk, því oss búin er ::krás á köldu svelli.:: - Jón Thoroddsen
Flíkur úr vetrarlínunni eru komnar í sölu á heimasíðunni 13 Skoðaðu úrvalið á www.ehwaz.net
Hrafnar í þjóðtrú
Hrafnar eru mjög gáfaðir
Í miðaldakveðskap og íslenskum fornsögum birtist hrafninn fyrst og fremst sem spáfugl og fyrirboði, og er í nánum tengslum við minnið um hræfuglinn. Hræfuglinn er þar einkum fugl vígvallarins, heillafugl vígamannsins á leið til or rustu. Fugl vígvallarins birtist ekki í þjóðsögum og sögnum, enda söguheimur þeirra gjörólíkur sagnaheimi eddukvæða og fornsagna. Hrafninn boðar fólki vissulega feigð í þjóðsögum, en hræfuglinn birtist þar ekki á föllnum vígamönnum, heldur mönnum sem farast af slysförum, svo og skepnum. Í íslenskum þjóðsögum er dregin upp fremur dökk mynd af hrafninum og er hann fyrst og fremst feigðarboði, en einnig hræfugl og heljar fugl. Í þjóðsögunum blandast saman ýmis minni tengd honum. Hrafnar Óðins skildu mál manna og guða og fluttu Óðni tíðindi, en minnið um fuglamál er ævafornt. Í íslenskum þjóðsögum eru það aftur á móti menn sem skilja hrafnamál. Það er athyglisvert að flestir eru þeir prestar sem sagðir eru framsýnir og forspáir og jafnvel taldir til einstakra galdramanna. Þar koma meðal annarra við sögu þeir séra Eiríkur í Vogsósum og séra Hálf dán á Felli og jafnvel sjálfur Sæmundur í Odda.
Þegar það kemur að gáfum þá eru hrafnar í flokki með simpösum og höfrungum. Lagt hafa verið flókin próf fyrir hrafninn og hefur hann staðið sig afskaplega vel í slíkum prófum. Þau sýna að hann hefur óvenju góða rökhugsun. Í náttúrunni hefur það komið fyrir að fuglinn hefur hent steinum í hausinn á fólki til þess að halda því frá hreiðrinu sínu, stolið fiski af mönnum sem dorga og þóst vera dauðir við lík annarra dýra til þess að hræða aðra frá hræinu svo þeir geti setið einir að góðgætinu. Ef hrafninn tekur eftir því að annar hrafn er að fylgjast með honum fela mat, þá á hann það til að þykjast fela matinn á einum stað en setur hann á annan svo hinn sjái ekki. En þar sem hinn hrafninn er ansi klókur líka þá virkar þetta bragð ekki alltaf hjá þeim. Hrafnar í Þjóðtrú. (05.11.20). Sótt af www.visindavefur.is/leit?q=hrafninn Hrafnar eru mjög gáfaðir. (11.11.20) Sótt af www.ruthoghrefna.wordpress.com/2013/10/29/ nokkrar-ahugaverdar-stadreyndir-um-hrafninn/
Hrafna-Flóki Flóki Vilgerðarson hét maður; hann var víkingur mikill. Hann fór að leita Garðarshólms og sigldi þar út er heitir Flókavarði; þar mætist Hörðaland og Rogaland. Hann fór fyrst til Hjaltlands og lá þar í Flókavogi. Þar týndist Geirhildur dóttir hans í Geirhildarvatni. Með Flóka var á skipi bóndi sá er Þórólfur hét, annar Herjólfur. Faxi hét suðureyskur maður er þar var á skipi. Flóki hafði hrafna þrjá með sér í haf, og er hann lét lausan hinn fyrsta fló sá aftur um stafn. Annar fló í loft upp og aftur til skips. Hinn þriðji fló fram um stafn í þá átt sem þeir fundið landið. Þeir komu austan að Horni og sigldu fyrir sunnan landið. En er þeir sigldu vestur um Reykjanes og upp lauk firðinum svo að þeir sáu Snæfellsnes þá ræddi Faxi um: „Þetta mun vera mikið land er vér höfum fundið, hér eru vatnföll stór.“ Síðan er það kallaður Faxaós.
14
UMHVERFIS VÆN PRENTUN FYRIR ALLA! Hjá Litlaprenti starfa prent arar með mikla fagþekkingu og fagmenntun til margra ára. Öflugur og fullkominn vélakostur skilar viðskipta vinum okkar vönduðu og góðu prentverki
LITLAPRENT
Nafnspjöld Dagatöl Rissblokkir Gormabækur Bæklingar
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | Opið virka daga: 8:00–16.00 | Netfang litlaprent@litlaprent.is | Veffang www.litlaprent.is
M
HV
ERFISME R
KI
U
Kiljubækur
Prentsmiðja
NÚ ER TÍMINN! MENNTUN ER MÁTTUR
GRAFÍA
Fræðslusjóður styrkir nám og tómstundanám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum sem þó ekki er starfstengt hjá félagsmanni. Auk þess veitir sjóðurinn ferðastyrki vegna náms erlendis. Greiðendur í sjóðinn eru félagsmenn Grafíu sem starfa í prent og auglýsingaiðnaði í samræmi við kjarasamninga SA og SÍA við Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heima síðunni okkar.
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
GRAFÍA
Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | veffang www.grafia.is