Skip to main content

Embla

Page 1

Grafísk miðlun

13.tbl

9.árg

Vor 2020

EMBLA

EMBLA • 1


IÐAN kemur til þín MARGVÍSLEG NÁMSKEIÐ Í BOÐI FYRIR ALLA

» Raunfærnismat » Endurmenntun » Fyrirtækjaþjónusta » Námskeið

» Fræðslusetur » Hæfnismat » Fræðsla » Vefnám » Símenntun

Aðstoð vegna vefnámskeiða veitir IÐAN í tölvupóstinum idan@idan.is. Vatnagörðum 20 • 104 Reykjavík • S: 590-6400 • www.idan.is


Efnisyfirlit

• 5. Kynningaropna • 6. Oreo Ostakaka

LOKSINS! Þetta er önnin sem gleymist ekki. Kaldur, langur og erfiður vetur er lokið. Loksins! Að stunda fullt nám,vera með fjölskyldu sem þarf að sinna og vera í náminu, þá þarf maður fleiri klukkustundir í sólarhring. Samkomubann skall á í miðri önn, stað þess að labba út í kuldanum snemma morgnanna í skólann, þá opnaði maður tölvuna og talaði við kennara og nemendur gegnum teams.

• 8. Fæða guðanna • 11. Djúsi Kokteilar • 13. Að blanda kokteil • 14. Stjörnumerki

Hversu fullkomin er tæknin í dag. Við létum ástandið ekki trufla önnina og heldum áfram við að vinna í verkefum og klára þetta. “Þetta reddast” Eftir marga fjarkennslu fundi langa vinnutíma er þessu lokið. Ég vil þakka kennurum fyrir frábæran vetur og þolinmæðina. Takk fyrir mig! Embla Ritstjórn: Vaka Dögg Björnsdóttir Umbrot og hönnun: Vaka Dögg Björnsdóttir Nemendamynd: Ljósmyndadeild Útgefandi: Upplýsingatækniskólinn


4 • EMBLA


V V Ég heiti Vaka Dögg Björnsdóttir, fædd þann 1. mars árið 1985 hér í Reykjavík. Hér ólst ég upp, en bjó um tíma á Patreksfirði, sem og í Njarðvík. Ég á eina dóttur, Sveinbjörgu Láru 9 ára, og hefur móðurhlutverkið verið mitt aðalstarf síðan hún fæddist. Ég er ein þeirra sem lauk aldrei framhaldsnámi strax á eftir grunnskóla, svo eftir nokkur ár sem heimavinnandi húsmóðir fór mig að langa til þess að ljúka því og geta í framhaldinu aukið við mig menntun. Mér tókst það markmið með hjálp náms – og starfsendurhæfingu Janus. Þar lærði ég meðal annars að byggja sjálfa mig upp og öðlast það sjálfstraust sem þarf til þess að takast á við framhaldsnám.

Eftir að tíma mínum hjá Janus lauk skráði ég mig í áframhaldandi nám og hef ekki litið um öxl síðan. Þetta er búið að vera bæði langur og strangur vegur en vel þess virði. Ég hef alltaf haft áhuga á hönnun og sköpun af ýmsu tagi og ákvað því að elta það áhugamál mitt, en til þess þurfti ég að fara út fyrir þæginda­ rammann. Það sem að heillar mig hvað mest við grafíska miðlun er þessi þunna lína milli óreiðu og skipulags, húmors og alvarleika. Þessi tími sem ég hef varið í námið hefur verið bæði erfiður og krefjandi en umfram allt lær­ dómsríkur, skapandi og skemmtilegur. Ég vil því segja við alla þá sem eru að hugsa um að feta sömu braut og ég, það er aldrei of seint að ljúka námi!


Oreo ostakakan sem allir elska 1 pakki Royal vanillubúðingur

1 bolli mjólk 1 tsk vanilludropar 1 peli rjómi (2,5 dl.) 200 g rjómaostur 1 bolli flórsykur 24 oreo kexkökur

Myljið niður oreo kexpakka ca 1 og hálfan pakka og setjið í form. Bræðið smjör í potti og hellið yfir kex­blönduna og þjappið kexinu svolítið saman með fingrunum. Hálf þeytið rjómann og setjið rjómaostinn, van­ illudropana og flórsykurinn rólega saman við. Setjið Royal búðinga mix í skál og setjið 5 msk af kaldri mjólk saman við og hrærið og setjið í ískáp í um 5 –10 mínútur. Blandið svo búðingnum saman við blönduna og hrærið varlega saman, leggið svo blöndu­na yfir kexbotninn. Takið restina af Oreo kexinu og setjið fallega ofan á kökuna, æðislegt að bræða hvítt súkku­laði yfir. Geymið kökuna í frysti og takið hana út úr frysti um klukkustund áður en hún er borin fram.

Royal búðingurinn hefur slegið í gegn hér á landi. Og hefur verið sá allra vinsælasti eftir­réttum ís­lendinga og er

6 • EMBLA

einnig mikið notaður í bakstri.


Vissir þú að OREO kexið er eitt þekktasta fyrirbæri í ver­öldinni því allir þekkja eftirlætiskex jarðar­búa. OREO er til í þeirri mynd sem við öll þekkjum, svart og hvítt, en er nú einnig til sveipað mjúku og gómsætu mjólkursúkkulaði og meira fr­eistandi en nokkru sinni fyrr. Þær eru freisting sem vert er að falla fyrir! þetta ástæla snarl hefur verið í framleiðslu síðan árið 1912. Og þær eru VEGAN !

Þú færð allt fyrir jólin hjá okkur

Stjarnan er sérverslun með vandaðar gjafavörur og jólaskraut fyrir heimilið. Við tökum vel á móti ykkur!

Stjarnan ◊ Faxafen 11 ◊ 108 Reykjavík ◊ 588 8899 ◊ stjarnan@stjarnan.is


Súkkulaði fæða guðanna Súkkulaðis hefur verið neytt allt frá því um 1.900 f. Kr. Lengst af hefur það verið í drykkjar­formi, en fyrirrennarar okkar nutu drykkjarins alla jafna í tengslum við einhvers konar athafnir og siði. Kakóbaunin, sem er undir­staða súkkulaðis, hef­ur síðan gegnt margþættu hlutverki t.d. í fél­ agslegu samhengi og við trúariðkun; hún kemur við sögu læknisfræðinnar og er ein af breytum hagkerfisins en umfram allt er hún tengd mat­ reiðslu.

Texti: Vaka Dögg Björnsdóttir

Kakó – fæða guðanna Theobroma Cacao er heiti nytja­plöntunnar sem ber kakó­ávöxtinn, en nafnið þýðir matur guðanna. Kakó er upprunnið í Ame­­­ríku og var fyrst og fremst notað í Mesóameríku og Suður-Ameríku. Nýtingin var umfangsmeiri í Mesóameríku en ekki er vitað hvaða land­svæði var þungamiðja ræktunar á plöntunni. Mayar sem ríktu í suður­ hluta Mexíkó og Mið-Ameríku 350–800 e.Kr og Astekar er réðu ríkjum Mesóameríku þar til um 1521, eru þeir þjóðflokkar sem eru mest áberandi þegar litið er yfir sögu súkkulaðis. Báðir þessir menningarhópar eiga goðsagnir um uppruna kakó baunarinnar og svipar þeim saman; þar er greint frá því að hún hafi verið gjöf guða sem héldu til í fjalli þar sem öll fæða væri upprunnin. Froða Í goðsögnum Maya var það síðan kakóguðinn Hanahpú sem boðaði aðferðir til þess að vinna

8 • EMBLA

kakó. Mayar uppgötvuðu að með því að mala baun­irnar með vatni varð til rammur drykkur sem veitti ánægju, þeir voru þannig fyrstir til að vinna súkkulaði úr kakóbaunum. Drykkurinn var fram­ leiddur með sérstöku verk­lagi en vökvanum var hellt úr einu íláti í annað, úr hæð, niður í annað ílát. Þessari aðferð var beitt til þess að ná fram fr­oðu­ kennd, sem var ákjósanleg til neyslu drykkj­arins. Froðu­kennd áferðin er talin eftir­sóknarverð við neyslu súkkulaðis enn þann dag í dag, en froða í formi rjóma eða sykurpúða þykir mörgum ómissandi þegar lagað er heitt súkkulaði. Drykkurinn Súkkulaðidrykkir voru gerðir á ólíkan máta eftir þjóðflokkum og tíð, en hefð var fyrir því að bragð­bæta þá með ýmsum hætti, meðal annars með vanillu og hinum ýmsu krydd­tegundum. Miklar hefðir voru í kringum drykkinn, sem var til að mynda sérstaklega ætlaður efri stétt Asteka þar sem venjan var að neyta drykkjarins eftir veisluhöld. Drykkurinn var þá borinn fram í þar til gerð­um bollum úr hýði graskerja. Konungbornir ein­­­staklingar og gestir þeirra neyttu dr­ykkjarins í fínlega skreyttum leirkerjum, sem ílát til kakódrykkju. Hefð var fyrir því að láta ílát með kakódrykknum fylgja látnum í gröfina, sem veganesti inní framhaldslífið. Þá voru það einungis karlmenn, eldra fólk og konungborið sem mátti neyta dr­ykkjarins sem var álitinn stöðutákn. Kakó kom jafnframt við sögu í athöfnum eins


og skírnar – og brúðkaupsveislum, en auk þess komu kakóbaunir við sögu í náttúrulækningum sem græðandi og fyrirbyggjandi lyf. Þá hafa fundist listar um margs konar not súkkulaðis í lækningaskyni: en það átti til dæmis að vera heilsubætandi, kynorkuaukandi, hóstastillandi, orkugefandi og hitalækkandi. Greinilegt er að kakóbaunir þóttu afar verð­ mætar, en þær voru á ákveðnu tímabili notaðar sem gjaldmiðill. Á tímabilinu 1492–1832 lögðu Spánverjar undir sig stóran hluta Ameríku og þar með Mesóameríku.

Brussel, búðirnar þar selja meira en 800 tonn af súkkulaði á ári hverju. Rannsóknir sýna að dökkt súkkulaði getur haft jákvæð áhrif á heilsu fólks. Einnig er talið að dökkt súkkulaði veiti betra minni og skarpari athygli með því að auka blóð­ flæði til heilans. Vísindamenn hafa teflt fram þeirri kenningu að dökkt súkkulaði geti hjálpað fólki.

Ekta heitt súkkulaði 2 dl vatn 5 msk kakó

Dökkt súkkulaði hollara Með landvinningunum kom súkkulaði fyrst til Evrópu og varð fljótt vinsælt og Spánverjar bragðbættu þó drykkinn öðruvísi en fyrirrennarar þeirra, til dæmis með sykri og hunangi til þess að vinna gegn biturleika baunarinnar. Fyrstu súkkulaðiverksmiðjurnar risu í Evrópu um 1728, en upphaflega voru notaðar frum­stæðar að­ferðir við framleiðsluna. Í kringum 1875 kom mjólkursúkkulaðið fyrst fram og árið 1900 byrjaði Milton Hershey, fyrstur manna, fjöldaframleiðslu á súkkulaði. Frá þeim tímapunkti hefur súkkulaði svo þr­óast í margar áttir, þar á meðal í hinar ýmsu teg­undir súkkulaðistykkja og sælgætis Hvergi í heiminum er selt eins mikið af súkku­laði og á flugvellinum í

60 g sykur 1 dl vatn 1 l mjólk 15 g smjör 0,5 tsk salt 1 peli rjómi Hitið 2 dl af vatni að suðu. Hrærið saman kakó og sykur með 1 dl af vatni og hrærið saman við sjóðandi vökvann og hitið að suðu, hrærið frá botni. Hellið mjólkinni saman við og sjóðið í 2 – 3 mín. Bætið smjöri og salti út í.


Stjörnuspá fyrir sumarið Hrútur 11. mars – 19. Apríl

Vog 23. september – 22. Október

Það getur verið til bóta að nálgast verkefni úr nýrri átt, þegar gömlu aðferðirnar eru hættar að duga. Treystu því að þú fáir þínu þínu framgengt. Lukkudagur: Miðvikudagur Happatölur: 6, 14, 25

Slúður og rangfærslur um þig eða vinnuna þína eru pirrandi, en ekki láta það eyðileggja fyrir mikilvægum samningaviðræðum. Lukkudagur: Sunnudagur Happatölur: 20, 31, 44

Naut 20. apríl – 20. Maí

Sporðdreki 23. október – 21. Nóvember

Þú mátt eiga von á því að vinur þinn leiti til þín í vandræðum sínum. Oft fer mikill tími í áhyggjur hjá þér, en taktu eftir að þær breyta engu. Lukkudagur: Mánudagur Happatölur: 3, 45, 60

Þú hefur verið að fresta því að tala um viðkvæmt málefni en þú verður að finna hugrekkið til að segja það sem þarf að segja. Þú mátt ekki vera ofvarfærin/n. Lukkudagur: Föstudagur Happatölur: 34, 62, 77

Tvíburar 21. maí – 21. Júní Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Þeir draumar eiga alveg rétt á sér. Einhver hælir þér í hástert. Lukkudagur: Fimmtudagur Happatölur: 11, 31, 51

Bogmaður 22. nóvember – 21. Desember Þú verður að velja af kostgæfni skuldbindingar þínar við heimili og fjölskyldu og passa að vera ekki að fórna þér um of og láta það bitna á heilsunni þinni. Lukkudagur: Miðvikudagur Happatölur: 4, 5, 19

Krabbi 22. júní – 22. Júlí Það verður lokauppgjör í fjölskyldunni - flækjur leysast fyrr en varir. Komdu þér út í náttúruna og borðaðu hollara en þú hefur gert síðustu vikur. Lukkudagur: Laugardagur Happatölur: 9, 15, 22

Steingeit 22. desember – 19. Janúar

Ljón 23. júlí – 22. Ágúst

Vatnsberi 20. janúar – 18. Febrúar

Reynið að fegra í kringum ykkur því þægilegt umhverfi hvetur til betri vinnubragða og góðra afkasta. Ekki gefast upp þó á móti blási. Lukkudagur: Mánudagur Happatölur: 10, 30, 69

Það er ekki hægt að fresta lengur umræðum um hversu mikið þú átt að styðja þína nánustu. Sumir gætu undrað sig á því að það séu takmörk fyrir örlæti þínu en þeir verða bara að horfast í augu við staðreyndir. Lukkudagur: Fimmtudagur Happatölur: 55, 66, 80

Meyja 23. ágúst – 22 .september Ekki hræðast það, að víkka sjóndeildarhringinn þinn, þó margir séu þér ekki endilega sammála. Kannaðu ný lönd og kynnstu nýju fólki ef þig langar það. Lukkudagur: Þriðjudagur Happatölur: 16, 39, 40

10 • EMBLA

Þú vilt alltaf vera þar sem hlutirnir gerast en það er ákveðin þáttur í lífi þínu sem þarfnast athygli svo það er best að þú fylgist vel með. Lukkudagur: Sunnudagur Happatölur: 15, 67, 72

Fiskar 19. febrúar–20. Mars Þú ert móttækilegri nú en áður fyrir gylliboðum en þú þarft að gæta þess að hafa báðar fætur á jörðinni og vega og meta hvert einasta tækifæri sem verður á vegi þínum. Lukkudagur: Laugardagur Happatölur: 7, 13, 29


Stjörnumerki Allri himinhvelfingunni er skipt í 88 hluta sem við nefnum stjörnumerki. Hvert stjörnumerki er myndað af litlum stj­ örnuhópi. Frá jörðu séð sýnast stjörnurnar í hverju merki tiltölulega ná­lægt hver annarrien í raun tengjast þær yfirleitt ekkert inn­byrðis og er fjarlægðin milli þeirra mjög mismunandi. Mörg stjörnumerki eru ævaforn. Flestar menningarþjóðir virðast hafa búið sér til stjörnumerki út frá upp­röðun stjarnanna á himninum. Það að ímynda sér verur á himninum á líklega rætur að rekja til bænda og stjörnu­ fræðinga sem höfðu af því hagnýtt gildi. Megintilgangur me­rkjanna var að segja hvaða stjörnur voru hvar á hverjum tíma. Bændur til forna notuðu me­rkin til þess að vita hvenær skyldi sá og hvenær taka ætti afraksturinn upp.

Fyrsta stjörnuspáin er sögð hafa litið dag­sins ljós fyrir um 2.400 árum. Í kringum 1920 myndaðist hefð fyrir st­jörnu­­spám í dagblöðum út frá sólar­merkjum. Stjörnuspekin Stjörnuspekin talar um Sólina og Tunglið sem plánetur og tekur einnig Plútó með inn í mynd­ina. Innri plánetur eru Sól, Tungl, Merkúr, Venus og Mars. Þær ferðast hratt á milli merkja og hafa því áhrif á okkur dagsdaglega, hvað varðar skap og venjur.Ytri plánetur eru Júpiter, Satúrnus, Neptúnus, Úranus og Plútó. Þær hreyfa sig hægt á milli merkja, á eins til fimmtán ára fresti. Stjörnukortið sýnir hvar þessar plánetur voru staðsettar á ferð sinni um Sólina, séð frá jörðu á nákvæmlega þeim tíma sem við fæðumst.

Stjörnumerki

Mánuður

Pláneta

Einkennis Litur

Vatnsberi

20.janúar – 18.febrúar

Úraníum

Himinblár

Fiskar

19.febrúar – 20.mars

Neptúnus

Sægrænn

Hrútur

21.mars –19.april

Mars

Rauður

Naut

20.april – 20.maí

Venus

Blár

Tvíburi

21.maí – 21.júni

Merkúr

Gulur

Krabbi

22.júni – 22.júli

Tungl

Grár

Ljón

23.júli – 22.ágúst

Sól

Appelsínurauður

Meyja

23.ágúst – 22.september

Merkúr

Brúnn, grænn

Vog

23.september – 22.október

Venus

Ljósblár

Sporðdreki

23.október – 21.nóvember

Plútó

Dökkrauður

Bogamaður

22.nóovember – 21.desember

Júpíter

Túrkís, tópas

Steingeit

22.desember – 19.janúar

Satrúnus

Svartur, dökkblár

EMBLA • 11


Djúsi sumarkokteilar Brómberja Moscow Mule

Sex on the Beach

1 skot (30 cl) vodka 5 brómber (+ fleiri til að skreyta með) Safi úr ¼ lime Klakar Engiferbjór Mynta (sem skraut, má sleppa)

2 cl vodka 2 cl ferskjulíkjör 2 cl appelsínusafi 2 cl trönuberjasafi Allt hrist og borið fram í kokteilglasi.

Whisky Sour Setjið vodka og brómber í koparbolla, kremjið brómberin ofan í bollanum. Kreystið lime út í og fyllið bollan af klökum, hellið engiferbjór yfir. Skreytið með bróm­berjum og myntu

6 cl bourbon Safi úr ½ sítrónu 1 tsk. flórsykur Allt hrist saman ásamt klaka, hellt í viskíglas og skreytt með kirsuberi. Einnig má gera drykkinn líflegri með því að toppa með örlitlu sódavatni.

Mojito 3 cl ljóst romm 2 tsk. hrásykur ½ lime 10 mintulauf Sódavatn

Cosmopolitan

Mintulauf og lime skorið niður í báta, kreist og kramið saman ásamt sykri í glasi. Romm og klaka bætt út í og hrært vel saman. Sóda­­vatn eftir smekk.

4 cl vodka 2 cl Cointreau eða Triple Sec 6 cl trönuberjasafi 1 cl limesafi Hrist ásamt klaka og framreitt í kældu kokteilglasi. Skreytið ef vill með appelsínusneið.

Pina Colada 6 cl ljóst romm 9 cl ananassafi 3 cl kókoshnetu-cream Allt sett í blandara með klaka og blandað vel. Skreytið með ananas ef vill.

» Til þess að kokteilar njóti sín í fullnustu er best að bera þá fram í glösum sem henta hverjum fyrir sig.

12 • EMBLA

Viskí getur verið ótrúlega gott að nota í allskonar kokteila


Að blanda kokteil Sá mikilvægasti er sjússmælir en til þess að drykkurinn takist sem best er nauðsýnlegt að mæla rétt það sem á að fara í hann. Því næst kemur kokteilhristari eða raf­magns­­ blandari. Kokteilar sem eru blandaðir í raf­ magnsblandara ve­rða mýkri og loftkenndari en þeir sem eru hristir. Annað gott er að nota klaka­sigti til þess að skilja klakann frá þegar hellt er í glös. Sítrónupressa, barskeið og að sjálfsögðu, upp­takari, tappatogari, góður hnífur og skurða­bretti til að skera niður ávextina. Siðast en ekki síst glasamottur eða litlar ser­ víettur. Ekki má heldur gley­ma drykkjastráum og hræri­pinnum. Til þess að kokteilar njóti sín í fulln­ustu er best að bera þá fram í glös­um sem henta hverjum fyrir sig. Það kemur fyrir að ekki er til rétta áfengið sem á að fara í drykkinn. Stundum má bjarga sér með því að nota annað í staðinn. Til dæmis má nota vodka ef ekki er til tequila. Ef ekki er til Triple Sec má nota Cointreau eða Grand Marnier í staðinn. Útkoman verður þín útgáfa af drykknum.

PLAST MENGAR HVAÐ GETUM VIÐ GERT? Ráðstefna um plast og mengun. 1 – 2 maí í Hörpu Reykjavík

EMBLA • 13


Hvað segir stjörnumerkið þitt ? Steingeitin er...

Ljónið er...

alvarleg, athugul, dugleg, eftirtektarsöm, er með fullkomnunarþörf, fullorðinsleg, hjálpsöm, metnaðargjörn, raunsæ og vandvirk.

athafnasamt, einlægt, fyrirferðamikið, heiðarlegt, kraftmikið, lifandi, listrænt, opið, ráðríkt, sjálfstætt, skapandi, stjórnsamt, tygglynt og þrjóskt

Vatnsberinn er...

Meyjan er...

dulur, félagslyndur, forvitinn, fróðleiksfús, frum­ legur, hugsuður, pælari, rólegur, sjálfstæður, skyn­ samur, snillingur, vingjarnlegur og þrjóskur.

aðgætin, alvörugefin, dugleg, eftirtektarsöm, með fullkomnunarþörf, íhaldssöm, nákvæm, sam­viskusöm, skipulögð, skynsöm, vandvirk og vel gefin.

Fiskarnir eru... blíðir, fjölhæfir, fórnfúsir, hæfileikaríkir, klárir, listrænir, ljúfir, með sterkt ímyndunarafl, nær­gætnir, óútreiknanlegir, skapandi, skilningsríkir, til­finningaríkir, umburðarlyndir, við­ kvæmir,vin­gjarnlegir, víðsýnir og þægilegir.

Sporðdrekinn er... blíður, elskulegur, forvitinn, hugmyndaríkur, kraft­ mikill, næmur, ráðríkur, skapstór, til­finningaríkur, viljasterkur og þrjóskur.

Hrúturinn er...

Bogmaðurinn er...

athafnasamur, bráðþroska, duglegur, einlægur, fljótfær, framkvæmdaglaður, hreinskilinn, hvatvís, kappsfullur, kraftmikill, líflegur, orkumikill, sjálf­ stæður, skemmtilegur, stórtækur og uppát­ækjasamur.

einbeittur, félagslyndur, fjörkálfur, forvitinn, frjálsl­ egur, fróðleiksfús, íþróttaálfur, líflegur, orkubolti og ævintýragjarn

Nautið er... áreiðanlegt, blítt, duglegt, framkvæmdaglatt, frið­ samt, gæflynt, heimakært, hlédrægt, jarðbundið, með sterka einbeitingu, nautnabelgur, náttúrubarn, raunsætt, rólegt, skynsamt, trygglynt, varkárt, ver­ndandi, vingjarnlegt og þrjóskt. Tvíburinn er... bráðþroska í hugsun, félagslyndur, fjörugur, forvitinn, glaðlegur, glaðlyndur, hress, líflegur, málglaður, prakkari, skarpur, skemmtilegur og stríðinn.

Krabbinn er... góður, heimakær, hjálpsamur, hlédrægur, náttúru­ barn, samúðarfullur, samviskusamur, skapandi, tilfinningaríkur, traustur, útsjónasamur, varkár, verndandi og viðkvæmur.

ENGINN veit hvenær stjörnuspekin varð til, en það var fyrir mörg hundruð árum.

14 • EMBLA


Lítið fyrirtæki, stórt hjarta

Forvinnsla

Frágangur

Prentun umhverfisvæn Opið virka daga : 8:00–16.00

Litlaprent - alhliða prentsmiðja – Skemmuvegi 4, Blá Gata – 200 Kópavogi – Sími 540 1800 FAX: 540 1801 – Netfang litlaprent@litlaprent.is – www.litlaprent.is


KYNNTU ÞÉR RÉTT ÞINN HVAÐ GERIR GRAFÍA FYRIR MIG?

Grafía stéttarfélag hefur sameinast við Rafiðnaðarsambands Íslands. Ávinningur sameingarinnar verður mikill fyrir félagsmenn Grafíu.

» FRÆÐSLUSJÓÐUR » SJÚKRASJÓÐUR » FERÐASTYRKIR » NÁMSTYRKIR » ORLOFSHÚS

SKOÐAÐU MÁLIÐ Á www.grafia.is Stórhöfða 31 3. hæð – 110 Reykjavík Sími: 552 8755 – grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla by Tækniskólinn - Issuu