2. tbl. 10. árg.
Grafísk miðlun
haust 2021
Símenntun frá fyrsta degi...
IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í: • Bílgreinum • Bygginga- og mannvirkjagreinum • Málm- og véltæknigreinum • Prenttæknigreinum • Matvæla- og veitingagreinum Fjarnám er í boði á öllum námskeiðum þar sem verklegrar kennslu er ekki krafist og boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval vefnámskeiða sem styrkja fólk í starfi.
Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | Netfang idan@idan.is | Veffang www.idan.is
Grasrótarsena Reykjavíkur
6 Stuttar umfjallanir um grasrótar hljómsveitir og listamenn sem hafa gefið út tónlist á árinu
8 Supersport!
12 Viðtal við Bjarna Daníel
14 Leiðari Þá er komið að því, lokaverkefninu. Þetta hefur verið skemmtilegt og fróðlegt ferli ásamt nokkrum hikstum í vöku covid-faraldursins. Sem betur fer hef ég fengið að mestu leiti að fá að vera í skólanum að læra, þó oftast með grímuskyldu. Þetta nám hefur svo sannarlega verið áhugavert og góð reynsla fyrir ferilskránna. En þrátt fyrir að vera að útskrifast úr þessu núna þá byrjaði ég ekki hér. Ég var fyrst nokkrar annir á tölvubraut í sama skóla og fattaði svo að þessi braut sem var nánast hliðina á mér var mun áhugaverðari svo ég ákvað bara að skipta um braut og reyndist það frekar vel. En eftir þetta nám er stefnan út í hljóðtækni, nám sem ég hef mikið haft áhuga á að fara í þótt kannski meira tengt listgreinum. Sjáum til hvernig ég enda þar.
Embla Ritstjórn og texti Einar Karl Pétursson Útgefandi Tækniskólinn Umbrot og hönnun Einar Karl Prentun Tækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 pt. Pappír UPM digi 150g² UPM digi 250g²
3
Einar Karl Pétursson Ég heiti Einar Karl Pétursson og ég bý í Kópavogi. Ásamt því að vera í grafískri miðlun og allt sem tengist skóla þá hef ég alltaf reynt að eltast við listir hvort sem það er kvikmyndagerð eða tónlist eða eitthvað annað. Ég hef mest nýlega verið að skapa í báðum þessum listgreinum en hef kannski meira sótt í það að hlusta á tónlist. Frá því ég byrjaði í þessu námi í byrjun árs þá hef ég alltaf haft einhverja tónlist í gangi þegar ég er að vinna í einhverju verkefni. Ég hef fengið mikinn möguleika á að finna mér nýja tónlist sem ég gæti haft áhuga á og einnig fylgst með tónlistinni sem er að koma út í kringum mig. Mig langar einmitt mjög mikið að fjalla stutt um allar helstu íslensku plöturnar og lögin sem hafa komið út á árinu í
grasrótinni, eða allavega þær sem ég hlustaði á. Grasrótarsenan í Reykjavík, sem ég fjalla aðeins meira um hér á næstu síðum, er eitthvað sem ég hef haft mikinn áhuga á undanfarið út af tónleikahaldi og plötuútgáfum sem eru að birtast í mínum sjóndeildarhring ef svo má segja. Mér finnst líka einstaklingar mjög áhugaverðir svo ég laðast að persónulegri sköpun sem má kenna við grasrótina. En allt þetta verður fjallað um í þessu tímariti og þótt þetta sé jú í rauninni umbrots- og hönnunarbraut sem ég er að læra hjá þá setti ég kannski einum of mikinn metnað í textann. En að skrifa er einnig eitthvað sem ég hef tekið eftir að ég farinn að fá mun meiri áhuga fyrir. En engu að síður, njótið.
Hátíðni 2021. Ljósmynd: Brynjar Leó Hreiðarsson
Grasrótarsena Reykjavíkur Tónlistarsenan í Reykjavík er síbreytileg og tekur á sig nýja mynd við hvert tækifæri. Í gegnum árin hafa tónlistarmenn blómstrað í fagi sínu og ganga áhrif þeirra langt út fyrir borgarmörkin. Tónlistarmenn líkt og Bubbi, Björk, Sigur Rós og Mezzoforte, eru allt nöfn sem hafa látið til sín taka á alþjóðlegum vettvangi en spretta upprunalega úr grasrótinni. En hvaða nöfn munu lifa áfram í þeim hópi sem er starfandi í jarðveginum í dag. Hverjir munu falla í algleymi og hverjir munu blómstra? Það eru mikil tækifæri fyrir útrás hljómsveita og tónlistarfólks sem starfa í grasrótinni í dag en ekki endilega víst að þrátt fyrir áhrifin sem þau eru að hafa á senuna í dag að þau muni taka skrefið út. En þó er mikilvægt að draga þau fram í sviðsljósið til þess að minna á áhrifin og hvaðan við komum.
verið að eiga sér stað hér á höfuðborgarsvæðinu. Svona listrænar grasrótarhreyfingar eru oftast að vinna að því markmiði að búa til vettvang fyrir sjálfstætt listafólk til að skapa list án mikils fjármagns. Post-dreifing // DIT hugmyndafræðin
„Post-dreifing“ (óháð blaðadreifingarfyrirtækinu Póstdreifing) er hópur af ólíku listafólki sem starfar eftir DIT hugmyndafræðinni sem myndi útleggjast sem ‘Gerum það saman’. Áherslan á samvinnu hefur ollið því að á ekki nema fjórum árum hafa þau haft mun meiri áhrif á tónlistarsenu Reykjavíkur en þau hefðu annars náð hvert í sínu horni eins og venjan hefur verið. Hópurinn hefur þannig staðið að baki fjölda tónleika og viðburða þar sem hugmyndafræði samvinnunnar hefur látið ljós sitt skína. Stærstu viðburðir sem PostHvað er grasrót? dreifing hefur staðið að eru Hátíðni, tónlistarháEn hvað er grasrót? Grasrótarhreyfing tíð í litlu þorpi á norðurlandi sem heitir er eftir skilgreiningu, félagsskapur Borðeyri og Big party post club sem almennra einstaklinga sem vinna tók við af Hátíðni í Iðnó í Reykjavík sjálfstætt saman. Það eru misjafnvegna covid takmarkana sumarið ar grasrótarhreyfingar til og er þetta 2020. Aðsóknin á viðburði þeirra hefhugtak oft kennt við pólitísk samtök en ur verið vonum framar og eru þeir síég er að fjalla um listræna eða tónlistar- Kennimerki Post-dreifingar stækkandi. Samvinnuhugmyndafræðin grasrótarhreyfingu sem má segja að hefur gerir þeim kleift að halda utan um hátíðir
6
„Drullumall 1“
„Drullumall 2“
eins og þessar á faglegan hátt með gjörningum, varningssölu, matreiðslu og safe space rýmum þar sem fólk getur tekist á við slys og óhöpp með aðstoð sjálfboðaliða. Einnig hafa þau boðið upp á verksmiðjur þar sem listamenn deila reynslu sinni og styðja hvert annað í að taka fyrstu skrefin varðandi skipulag, undirbúning, umsóknarferli og fleira. Big party post club var tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna 2021 sem tónlistarviðburður ársins og hafa báðir viðburðir trekkt að aðdáendur og tónlistarfólk úr fjölda tónlistarstefna úr grasrótinni bæði hérlendis og erlendis. Drullumall Safnplöturnar „Drullumall“ 1, 2 og 3 gefnar út af Post-dreifingu hafa fengið saman óþekkta tón-
„Drullumall 3“
listarmenn til að gefa út lög og demo upptökur. Nafnið „Drullumall“ kemur frá því að þetta samansafn laga vill oft vera hrátt, tilraunakennt og ekki full úthugsað líkt og drullumall er. En þrátt fyrir nafngiftina má finna margt áhugavert í þessum lagasöfnum. Post-sessions Myndbandsverkefnið Post-sessions er án efa með metnaðarfyllri verkefnum sem Post-dreifing hefur tekið að sér. Í vöku heimsfaraldursins gerðu þau röð lifandi tónleika tekna upp og streymt gegnum netið. Inn á milli laga voru svo viðtalsbútar við hljómsveitirnar og var spyrillinn karakter með sjónvarp á hausnum. Þetta voru 16 myndbönd á bilinu júlí 2020 til júní 2021.
VIÐ LÖGUM
PÍPULAGNIR Hringdu í sérfræðing hjá okkur í síma
535 4567 pipulagnir@flaumur.is | flaumur.is
Stuttar umfjallanir um grasrótar hljómsveitir og listamenn sem hafa gefið út tónlist á árinu Í byrjun árs kom út platan „radio vatican ep“ eftir raftónlistargrúppuna sideproject sem samanstendur af Atla Finnssyni, Hjálmari Karlssyni og Örlygi Arnalds. Ég hafði heyrt smá annað eftir þessa hljómsveit en ég hlustaði á þessa í heild sinni með miklum áhuga. Tónlistin sem sveitin gerir hefur verið kennd við electro-punk en minnir mig á eitthvað sem Aphex Twin gæti hafa gert. Sérstaklega miðað við hvernig þeir nefna lögin sín. Hljómsveitin Skoffín (Jóhannes Bjarki Bjarkason, Auðunn Orri Sigurvinsson, Sævar Andri Sigurðarson og Bjarni Daníel) gaf einnig frá sér lag snemma á árinu sem heitir „Rottur“. Með laginu kom tónlistarmyndband á youtube rás hljómsveitarinnar leikstýrt af Snæfríði Sól Gunnarsdóttur. Skoffín hefur átt stóran þátt í tónlistarsenu Reykjavíkur undanfarin ár með pönk rokk tónlist sinni. Þeir hafa gefið frá sér tvær plötur, „Skoffín bjargar heiminum“ og „Skoffín hentar íslenskum aðstæðum“ og virðist vera sem svo að þeir séu að vinna að næstu plötu með þessu lagi á henni.
Dreymandi Hundur gaf út plötuna „af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?“ í apríl. Þar var heilmiklu pakkað saman í þriggja laga smáskífu. Tónlistin kennist sem experimental rhythm driven tónlist en notfærir sér aðallega loopaðar gítar upptökur með hröðum trommuslætti. Án efa ein af uppáhalds plötunum mínum frá því í ár. Hljómsveitin samanstendur af Argentínska tónlistarmanninum Diego Manatrizio betur þekktur sem Flaaryr og íslenska trommaranum Ægir eða R0613 sem hefur starfað með mörgum sveitum í gegnum tíðina eins og Laura Secord, Logn, Bagdad brothers og World Narcosis. Ægir gaf einnig frá sér raftónlistarplötu í júní í ár sem heitir „The Earth Grew Uncertain“.
„af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?“
„radio vatican ep“
sideproject live á Hátíðni 2021 Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.
8
„Rottur“
„The Earth Grew Uncertain“
Flaaryr, annar meðlimur dreymandi hunds, er einnig búinn að vera upptekinn þar sem hann gaf frá sér plötu í júní sem heitir „Warm Light and Entanglement“ og einnig live ambient plötu núna nýlega í september sem heitir „Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops“. Ég hef verið að hlusta Skoffín live á KEX Hostel, Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.
mikið á „Warm Light and Entanglement“ og er hún með svipuð stílbrigði og dreymandi hundur en kennist meira við stílinn sem Flaaryr stefnir í. Þessi plata er full af klikkuðum gítar-lúppum og melódíum og einnig raddupptökum sem innihalda áhugaverðar frásagnir um lífið og mannkynið.
„Warm Light and Entanglement“
draumkennda hljóðgervla. Söngkonan, Silla, sem trommar og syngur á sama tíma kemursterk inn með eftirminnilega texta með vel beittri rödd. Hljómsveitin hefur einnig verið dugleg að gefa út tónlistarmyndbönd á youtube rásinni þeirra „brussels sprouts intl” og er þar vel að merkja tónlistarmyndbandið „Vesturbæjar Beach” eftir Snæfríði Sól Gunnarsdóttur sem sýnir tvíeykið að skemmta sér um vesturbæinn eins og það sé hásumar þegar í raun er sígildi íslenski veturinn sem við þekkjum öll.
„Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops.“.
Math rock hljómsveitin Trailer Todd (Stirnir Kjartansson, Dagmar Ýr Eyþórsdóttir, Hlynur Sævarsson og Kormákur Logi Laufeyjarson Bergsson) gaf frá sér tónlistarmyndband í apríl leikstýrt af Erni Ómarssyni sem fór á youtube síðuna hjá post-dreifingu. Lagið heitir „Skjálfhent“ og myndbandið sýnir söngvara hljómsveitarinnar, Stirni, ganga í gegnum kómíska lífskrísu þar sem allar persónur myndbandsins eru leiknar af honum sjálfum. Hljómsveitin gaf einnig frá sér live plötu núna í september sem heitir „Live at Hátíðni (July, 2021)“ og inniheldur hún meðal annars lagið sem kom á youtube og önnur lög sem verða sennilega á næstu plötu þeirra. Hljómsveitin BSÍ (Sigurlaug Thorarensen og Julius Rothlaender), nefnd eftir umferðarmiðstöðinni BSÍ, gaf út sína fyrstu plötu í maí og heitir hún „Sometimes Depressed... But Always Antifascist“. Platan inniheldur uppreisnargjarna og/eða þunglynda popp tónlist sem kennist aðallega við bassa og trommur ásamt
Sigursveit Músíktilrauna í ár gáfu frá sér EP plötu þann 1. júní, aðeins meira en einum mánuði frá því að þau unnu Músíktilraunir sem var 29. maí. Hljómsveitin heitir Ólafur Kram (Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, Guðný Margrét Eyjólfs, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Eydís Egilsdóttir Kvaran, Sævar Andri Sigurðarson) og platan þeirra heitir „nefrennsli / kossaflens“. Það er gaman að segja frá nafninu þeirra, sem hljómar mjög sakleysislega, en er í raun „Mark Rufaló“ afturábak sem hljómar líkt leikaranum Mark Ruffalo. Platan sjálf inniheldur einnig frekar „nefrennsli / kossaflens“ uppreisnargjarna tónlist
Flaaryr, Live á Hátíðni 2021, Mynd eftir mig.
BSÍ, Live á Hátíðni 2021, Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.
„Live at Hátíðni (July, 2021)“
„Sometimes Depressed... But Always Antifascist“
9
með meiri áherslu á rokkið. Sungið er um marga hluti eins og gagnrýni á sambönd og karlmenn sem hrútskýra meðal annars. Platan inniheldur ríka tóna þar sem blandað er hljómborði, gítar, bassa, trommur og trompet fyrir eftirminnilega og mjög svo íslenska plötu. Sigursveit Músíktilrauna árið 2018, Ateria (Ása Önnu Ólafsdóttir, Eir Önnu Ólafs og Fönn Fannarsdóttir) gaf frá sér sína fyrstu plötu núna í október. Áður en þau gáfu út plötuna kom út lagið Afleiðingar sem síngull og tónlistarmyndband eftir Erni Ómarsson á youtube síðu þeirra. Platan heitir „and_vari“ og inniheldur ríka hljóðheima sem minna á eitthvað sem hljómsveitin Sigur Rós gæti hafað gert, nema með meiri áherslu á textaflutning. Fjallað er um margar, mögulega erfiðar tilfinningar sem bassa og selló leikarinn Eir hefur velt fyrir sér. Ásamt ríkum gítartónum og strengjaflutningi sem sett er saman í fólk-gothískt samhengi ungra tónlistarmanna má ekki missa af þessari upplifun. Hljómsveitin Dymbrá (Eir Önnu Ólafs, Nína Sólveig Andersen og Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir) sem Eir er einnig í, gaf frá sér smáskífuna „The Sea Around Us“ í september sem var samin fyrir stuttheimildarmynd sem heitir sama nafni og er um listakonuna Katrínu Þorvaldsdóttur. Þrátt fyrir að vera svokallað soundtrack þá
virkar þessi plata mjög vel ein og sér að mínu mati og gefur frá sér áhugaverða hljóðheima sem ekki allir vinna að. Ásamt yndislegri hljóðhönnun er notast við allskyns hljóðfæri eins og selló, fiðlu og flautu og margt fleira til að skapa ambíent nýklassísk lög. Popp söng-og-lagasmiðirnir K.óla (Katrín Helga Ólafsdóttir) og Salóme Katrín gáfu frá sér lag í september sem heitir „Heyra í þér”. Skemmtilegt lag sem minnir á mikilvægi vináttunnar. Búast má sennilega við plötu frá K.ólu miðað við þessa útgáfu en það er aldrei að vita. Hún hefur allavega gefið út tvær plötur á síðustu tveimur árum sem ég mæli án efa með að kíkja á. Hljómsveitin Milkhouse (Andrés Þór Þorvarðarson, Auðunn Orri Sigurvinsson, Katrín Helga Ólafsdóttir, Sævar Andri Sigurvinsson, Victor Karl Magnússon) sem K.óla er í gaf einnig frá sér lag í júlí sem heitir „Dagdraumar Vol. 7” og tónlistarmyndband á post-dreifingar youtube rásinni eftir Rakel Ýr Stefánsdóttir. Þessi hljómsveit gaf frá sér síðast plötu árið 2017 svo það er gaman að sjá hvort ný plata verður aðgengileg á næstunni.
„Heyra í þér“
„and_vari“
„The Sea Around Us“
Ólafur Kram, Live á Post-hús fundraiser Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson
10
„Dagdraumar Vol. 7“
Pönkhljómsveitin GRÓA (Karólína Einarsdóttir, Fríða Björg Pétursdóttir og Hrafnhildur Einarsdóttir) gáfu frá sér þeirra þriðju plötu í ágúst í STBY, Nigel, Live á Post-hús Fundraiser Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson
ár og virðist vera sem svo að þær halda sífellt áfram að bæta sig. Platan heitir „What I like to do“ og einkennist af eftirminnilegum bassalínum, klikkuðum trommuslátti og pönkuðum söng. Fjallað er um að gera hluti í uppreisnargirni og að gera almennt hluti sem er ekki búist við af manni. Án efa mest spennandi pönk hljómsveit landsins einmitt núna á góðri uppleið. Sennilega með nýjustu pönkhljómsveitum landsins aftur á móti, Sucks to be you, Nigel (Silja Rún, Krummi Uggason, Vigfús Þór Eiríksson og Ernir Ómarsson) gefa út sína fyrstu plötu þann 12. nóvember. Þegar ég skrifa þetta er hún í rauninni ekki komin út svo ég get svo sem ekki sagt margt nema út frá þeim skiptum sem ég hef séð þau spila í beinni
„What I like to do“
„Tína Blóm“
og get ég svo sannarlega sagt að ég er gríðarlega spenntur fyrir þessari útgáfu. Án efa viðburðaríkt ár fyrir grasrótarsenuna sem er bráðum að taka enda. Allar þessar plötur og lög hafa fylgt mér á árinu ásamt annarri tónlist sem hefur verið að koma út víðs vegar. Það má einmitt nefna svokölluðu bresku post-punk bylgjuna sem er að eiga sér stað um þessar mundir með hljómsveitir eins og black midi, Squid og Black Country, New Road meðal annars. Þessar hljómsveitir eru að gefa út bestu rokk tónlistina í mörg ár að mínu mati en það er ein íslensk hljómsveit sem mér finnst vera að setja stóran stimpil á rokkið sem ég er ekki búinn að fjalla um ennþá. Hún kemur allavega hér á næstu síðu. Hér fyrir neðan set ég töflu með allar útgáfurnar sem ég tala um í þessu blaði í röð útgáfu. Ég vona að eitthvað af þessu er áhugavert fyrir ykkur lesendur til að kíkja á því mér finnst alltaf gaman þegar fólk fylgist með tónlistinni sem er í kringum mann. Svo er alveg vel að merkja að það vantar örugglega tónlist úr þessari senu en ég þarf þá bara að finna hana.
Plata
Artist
Útgáfudagur
Tónlistarstefna
radio vatican ep Rottur (Single)
sideproject
31. janúar
Electro-Punk
Skoffín
12. mars
Indie Rock
Af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?
Dreymandi hundur
9. apríl
Experimental Rhythm Rock
Sometimes depressed... but always BSÍ antifascist
21. maí
Indie Pop
Warm Light and Entanglement
Flaaryr
18. júní
Experimental Math Rock
The Earth Grew Uncertain
Ægir
18. júní
Electronic
nefrennsli / kossaflens
Ólafur Kram
1. júlí
Indie Rock
Dagdraumar Vol. 7 (single)
Milkhouse
9. júlí
Indie Rock
What I like to do
GRÓA
The Sea Around Us
Dymbrá
3. september
Neo-Classical
Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops.
Flaaryr
3. september
Ambient Loops
tveir dagar
Supersport!
11. september
Indie Rock
Heyra í þér (single)
K.óla, Salóme Katrín
24. september
Indie Pop
Live at Hátíðni (July, 2021)
Trailer Todd
27. september
Math Rock
and_vari
Ateria
15. október
Avant Folk
Tína blóm
Sucks to be you, Nigel
12. nóvember
Punk
26. ágúst
Punk
11
! T R O P S R SUPE Ljósmyndarar óþekktir
Supersport! er bráðlega mest elskaðasta popp hljómsveit Reykjavíkur og samanstendur af þeim Bjarna Daníeli, Þóru Birgits Bernódusdóttur, Huga Kjartanssyni og Degi Reykdal Halldórssyni. Þau hafa starfað í þessari mynd síðan seinni hluta 2019 en hafa einnig unnið saman í öðrum verkefnum. Í raun myndaðist hljómsveitin út frá samvinnu þeirra Bjarna Daníels og Þóru Birgits þar sem þau spiluðu saman í hljómsveitinni Bagdad Brothers sem ekki er lengur starfandi. Supersport! hefur gefið frá sér eina smáskífu og nýlega eina breiðskífu. Smáskífan heitir því skemmtilega nafni Dog Run EP og inniheldur Indí-rokk hljóma með ljúfum falsettu söng. Góð byrjun fyrir hljómsveitina. Sveitin gaf frá sér sína fyrstu breiðskífu í september á árinu undir post-dreifingu ásamt japönsku plötufyrirtæki sem heitir „Gifted Records“. Platan heitir „tveir dagar“ og inniheldur 10 lög. Fyrir útgáfu gaf sveitin frá sér 4 tónlistarmyndbönd. Sem kvikmyndagerðarmaður og tónlistarmaður
12
„Dog Run EP“
þá finnst mér alltaf spennandi þegar þessir tveir heimar sameinast til að skapa eitthvað, hvort sem það eru tónlistarmyndbönd eða önnur verkefni. En tónlistarmyndbönd þeirra eru í röð útgáfu: Hring eftir Hring eftir Hjalta Nordal, opnunarlagið á plötunni birtist í VHS kenndum heimi þar sem meðlimir hljómsveitarinnar eru eins og einhverskonar djöflalegir stubbar (teletubbies) en söngvarinn, Bjarni Daníel, er þar syngjandi sólin. Þetta myndband sýnir hæfileika skaparanna í súrrealísku viðmóti ásamt skemmtilegu popplagi. Án efa mjög gott dæmi af því sem maður getur gert með grænum skjá og góðu ímyndunarafli. Song for my friend, June eftir Finn Kalda. Stílbrigðin eru einnig mjög einkennileg í þessu myndbandi þar sem við sjáum blöndu af listrænni myndbandsupptöku og animated teikningum sett ofan á hvort annað til að skapa meiri heim heldur en fyrra myndbandið. Lagið er um vin Bjarna Daníels, Junot
„tveir dagar“
og er þetta eina lagið sem hljómsveitin hefur gefið út á ensku en var það einmitt samið fyrir enskumælandi einstakling. Án efa með fallegri lögum um vinasambönd sem ég hef heyrt. Lag í partýi (Reykjavík!) eftir Erni Ómarsson (enn og aftur), skemmtilegt slasher myndband þar sem við sjáum alla meðlimi hljómsveitarinnar hrottalega myrta af dularfullri fígúru. Sennilega mest kvikmyndalegasta myndbandið af öllum sem gefin var út og, jú, það ógeðslegasta. Lagið sjálft inniheldur eftirminnileg gítar riff og texta um að tilheyra ekki borg ef maður á að njóta hennar aleinn. Uppí sófa eftir Vilhjálm Yngva Hjálmarsson eða susan_creamcheese. Þetta myndband er einnig mun meira vídeóverk heldur en hefðbundið myndband. Hér sjáum við hraðklippt safn af símaupptökum og efni sem Villi hefur tekið til sín. Þetta lag er einnig í rólegri kantinum svo myndbandið byggir ansi rólegt umhverfi fyrir mann. Lagið fjallar um það að vilja slappa af, taka það rólega og eyða deginum heima upp í sófa sem er tilfinning sem ég held við könnumst öll við. Restin af lögunum á plötunni eru einnig frábær og ég gæti talað um þau óralengi en ég mæli líka með að þið kæru lesendur hlustið sjálf. Ég myndi nú ekki tala svona mikið um eina plötu ef ég væri ekki gríðarlega hrifinn af henni. En hér á næstu síðu ætla að ég að spjalla aðeins við Bjarna Daníel söngvara Supersport um hljómsveitina og grasrótarsenuna í Reykjavík og margt annað. Það var mjög ánægjulegt að fá að spjalla við hann um þessa hluti og ég þakka honum fyrir tækifærið.
„Hring eftir hring“
ALLTAF Í BOLTANUM? AKTÍFA SELUR ÞÉR HÁGÆÐA SPORTVÖRUR Í ÁRMÚLA 18
„Song for my friend, June“
„Lag í partýi (Reykjavík!)“
Ármúli 18 | 104 Reykjavík 567 8888 | aktifa@aktifa.is |13aktifa.is
VIÐTAL VIÐ
BJARNA BJARNA DANÍEL DANÍEL Ljósmyndari ókunnugur
Ljósmyndari ókunnugur
Bjarni Daníel Þorvaldsson er söngvari og gítarleikari í hljómsveitunum Supersport! og Skoffín. Hann er 24 ára og starfar einnig sem dagskrárgerðarmaður á rás 2 og sem viðburðarskipuleggjandi hjá post-dreifingu. Hvernig varð Supersport til? Ég og Þóra höfðum verið í hljómsveitinni Bagdad Brothers og þegar það hætti þá kom það svolítið skyndilega upp og við ákváðum að vildum ekki hætta að semja tónlist saman. Það var held ég ekki liðin vika frá því Bagdad Brothers hætti þangað til við Þóra tókum fyrstu Supersport æfinguna og byrjuðum mjög snemma að semja lög eins og „En sama hvað...” og „Það er maður inní herberginu mínu”. Svo kom Dagur inn í þetta sem var með mér í fyrstu hljómsveitinni minni og hann hafði ekkert verið að tromma af neinu viti í mörg ár en hann hafði verið í Tucker Carlson‘s Jonestown Massacre og við létum okkur bara detta í hug að bjóða honum að vera með og svo passaði það bara geggjað vel. Svo kom Hugi inn í þetta aðeins seinna og já, það er stutta útgáfan. Geturðu talað um hvernig þú nálgast að skapa tónlist með öðru fólki? Já einmitt, það er mjög góð spurning, það er alveg gaman að semja lög einn, ég geri alveg mikið af því og fæ oft hugmyndir í einrúmi en mér finnst lang skemmtilegast að vinna tónlist með öðru fólki. Samstarf er eiginlega grundvallaratriði í allri minni framsetningu hingað til. Þannig þetta er alltaf eitthvað samtal á milli fólksins sem er að vinna saman. Venjulega kem ég kannski með hugmyndir inn á æfingu og við höfum stundum prufað að taka þá nálgun að gera akkúrat það sem ég var að hugsa en þá endar það oftast á bara að vera frekar óspennandi. Þannig það er bara það að leyfa þessu að vera samtal, ekki vera control freak á efnið sitt, heldur sleppa tökunum og leyfa fólkinu sem maður er að vinna með að móta það með sér.
14
Airwaves 2018, Mynd: Ian Young
Ef við tölum aðeins nánar um grasrótarmenninguna, sem ríkir í Reykjavík, hvað myndirðu segja að einkennir hana? Já ég vildi ég hefði meiri tíma til að tala um það, því ég lifi og hrærist algjörlega í því. Allt sem ég geri er að reyna að upphefja grasrótina hér. Mér fannst hún ekkert vera mjög spennandi fyrir nokkrum árum síðan, en síðan í kringum áramótin 2017, þá vorum við nokkur sem vorum búin að vera í gegnum öll menntaskólaárin að grúska geðveikt mikið, alltaf í einhverjum böndum, alltaf að gera eitthvað shit, og við vorum alltaf svo mikið hvert í sínu horni þannig að það kom eitthvað móment þegar að einhverjar MH týpur tóku sig til og skipulögðu einhverja svakalega tónleika í Stúdíó Granda (Jam House) í desember 2017. Þá voru allt í einu geðveikt mikið af böndum sem voru búin að vera einhvern veginn í sitthvoru horninu sem voru komin á sama staðinn í eitthvað rými þar sem var enginn utanaðkomandi aðili að sjá um það, við vorum bara ábyrg fyrir hvort öðru. Strax daginn eftir þá vorum við nokkur bara að drekka kaffi og ganga frá og eitthvað og við föttuðum að við þurfum að gera þetta, bara gera þetta alltaf. Það er svolítið hvernig Póstdreifing varð til. Hvernig nálgast þú að skipuleggja tónleika? Þegar maður er að halda tónleika, þá þarf maður aðallega að spyrja sig, af hverju maður er að gera það. En ég held að, það séu bara nokkur atriði sem maður verður líka að hafa í huga. Hvert er gildið fyrir þátttakendur og það þýðir þá bæði tónlistarfólk og gesti og líka bara mig skilurðu. En svona helsta sem ég hef um þetta að segja er að ef maður byrjar bara að gera þetta þá lærir maður af því þannig. Bara að gera. En við erum ekkert búin að læra þetta, við erum ennþá að gera helling af mistökum og svona. Það skiptir samt ekkert máli þó þú eigir ekki hljóðkerfi eða rými skilurðu, þú heldur bara tónleika úti, eða heima hjá ömmu þinni eða í æfingarhúsnæðinu þínu, það er alltaf einhver til í að taka á móti þér.
Persónuleg þjónusta
Persónuleg gæði Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu.
Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.
Opið virka daga : 8:00–16.00
FORVINNSLA
PRENTUN
FRÁGANGUR
Skemmuvegi 4, blá gata | 200 Kópavogi | Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is
STÉTTARFÉLAG GRAFÍSKRA MIÐLARA
Sæktu um styrk hjá okkur: • Kjaramál • Lífeyrismál • Sjúkrasjóður • Orlofssjóður • Fræðslustyrkir • og fleira
Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum
GRAFÍA
Grafía stéttarfélag varð nýlega eitt af aðildarfélögum Rafiðnaðarsambands Íslands. Ávinningur sameiningarinnar verður mikill fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar. www.grafia.is
Stórhöfða 31, 3. hæð | 110 Reykjavík | Sími 552 8755 | Netfang grafia@grafia.is | Veffang www.grafia.is