Skip to main content

ASKUR - Haust 2020

Page 1

2. tbl. 9. árg.

Grafísk miðlun Haust 2020

ASKUR


Endurmenntun í fjarnámi -hagnýtt nám fyrir þig

Sigríður Akureyri Sólrún Hólmavík

Allt um mynd– bandagerð: Að taka upp viðtöl

Fjarnám

Vinnuvélar frumnámskeið

Fjarnám

Nýjungar í skapandi samstarfi í Adobe Creative Cloud

Fjarnám

Autodesk Revit Architecture grunnnámskeið „Essentials“

Fjarnám

HÖNNUN: ANDREA SÍMONARDÓTTIR

Gunnar Patreksfjörður

Magga Vopnafjörður

Sindri Hafnarfjörður

Fjarnám

Hurðabúnaður

Endurmenntun fjölgar tækifærum þínum á atvinnumarkaði. IÐAN býður upp á fjölda þverfagleg námskeiða í fjarnámi. Skráning á námskeið fer fram www.idan.is

Vatnagarðar 20 104 Reykjavík

www.idan.is idan@idan.is

Sími 590 6400


Loksin ins s, loksin ins s! LOKSINS, LOKSINS!

Þá er komið að því að stíga síðustu skrefin í átt að útskrift. Námið hefur verið krefjandi, fjölbreytt, fræðandi og síðast en ekki síst skemmtilegt og er það með blendnum tilfinningum sem við töltum síðustu metrana. Við höfum lært svo ótrúlega margt og þrátt fyrir óvænta heimsókn COVID-19, sem mætti með hamagangi, setti allt á hliðina og breytti náminu okkar í fjarnám, þá komumst við í gegnum þetta og stöndum nú hér sem stoltir og reyndari einstaklingar. Þetta hefði þó aldrei gengið nema með aðstoð kennaranna okkar sem stóðu við bakið á okkur eins og hetjur og eiga þeir allir kraftmikið lófatak skilið.

Ritstjórn Andrea Símonardóttir Brynjar Emil Friðriksson Erlingur Freyr Thoroddsen Geir Marinó Önnuson Hörður Helgi Hallgrímsson Laura A. Salinas Moreno María Björt Ármannsdóttir Sigrún Rakel Ólafsdóttir Samsetning tímarits Hörður Helgi Hallgrimsson Hönnun forsíðu Erlingur Freyr Thoroddsen Nemamyndir Unnur Karen Björnsdóttir Jón Helgi Pálmason Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 light – 9 pt. Univers 55 roman – 9/13 pt. Univers 65 bold – 9/13 pt. Pappír UPM digi 130 g/m2 UPM digi 250 g/m2

Askur er síðasta verkefnið í náminu og merkir hann ákveðin tímamót í okkar lífi. Við erum að yfirgefa verndar væng kennaranna og halda af stað út í atvinnulífið. Öll erum við ennþá frekar blaut á bakið eyrun en þó með fullt af verkfærum í farteskinu sem munu koma að góðum notum. Askurinn er hópverkefni og hefur okkur þótt gott að geta tekið þessi síðustu skref í sameiningu. Hérna fær hver og einn að skína sínu bjartasta og sýna hvað í honum býr. Við vonum að þú lesandi góður, hafir jafn gaman af því að fletta í gegnum Askinn eins og við höfðum af að setja hann saman. Takk fyrir og góða skemmtun!


4 Kynning 6 Hátíð í bæ 8 Innlit

14 16 18 20 22 23

Kynning Sean Connery Twin Peaks Kraftwerk Heimskautsgerðið Raufarhöfn

24 26 30 32

Kynning Snorri Sturluson LEVI´S Hrafnar í náttúru Íslands

GEIR MARINÓ ÖNNUSON

ERLINGUR FREYR THORODDSEN

BRYNJAR EMIL FRIÐRIKSSON

ANDREA SÍMONARDÓTTIR

EFNISYFIRLIT efnisyfirlit

34 36 41 43

Kynning Indie Games Donald Glover Kanye West


54 Kynning 56 Útlendingar á Íslandi 61 Viðtal 62 Rene Margritte

MARÍA BJÖRT ÁRMANNSDÓTTIR

SIGRÚN RAKEL ÓLAFSDÓTTIR

LAURA A. SALINAS MORENO

HÖRÐUR HELGI HALLGRÍMSSON Kynning Vestmannaeyjar Heimaeyjargosið Þjóðhátíð Vestmannaeyja 50 Náttúra Suðurlands 52 Náttúra Vestfjarða 44 46 48 49

64 Kynning 66 Saga dansins frá upphafi 69 Dans sagan mín 70 Gylfi og María 72 Kristinn og Lilja

74 76 78 80 82

Kynning Hljóðkirkjan Draugar fortíðar Halloween Fjölnir Gíslason


Andrea Símon onaardóttttiir

4 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


ted an w

er v e ’ve u .” o r y a e g in ff o th ai r d y e d r ve si ge A r r o e E e “ oth G e th is on

kynn nnin ing g KYNNING

Ég heiti Andrea Símonardóttir og er kærasta dásemdar blikkmeistarans, hans Gauta míns. Saman eigum við þrjú yndisleg börn. Við rekum stórheimilið okkar í miðdepli alheimsins - Kópavogi. Ég deili afmælisdeginum mínum með ekki ómerkara fólki en Tony Bennett og Mörthu Stewart - 3. ágúst. Ég er ljón og eins og sönnu ljóni sæmir er ég félagslynd, skapandi og hjartahlý. Ég hef allt mitt líf verið að skapa og hef unnið við grafíska miðlun/prentiðnað á einhvern hátt í nær fjórtán ár. Eins og fylgir oft skapandi fólki þá er ég alltaf með þúsund bolta á lofti; aragrúa af hugmyndum og hundrað flipa opna í tölvunni. Það getur tekið tíma að komast í gang vegna skipulögðu óreiðunnar í huganum en þegar ég tek að mér verkefni og er tilbúin í verkefni gerast hlutirnir hratt. Ætli megi ekki lýsa hugarástandinu mínu flesta daga eins og það séu korter í jól. Ég á eftir að þrífa heimilið og elda matinn, kaupa jólagjöf fyrir manninn, pakka öllu inni, ekki búin að skreyta jólatréð og allt í glimmeri. En nóg um minn heillandi og skapandi huga. Allt í einu er komið að útskrift. Þannig týnist tíminn,

eins og Raggi Bjarna söng. Mín vegferð á þennan stað hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Ég hef verið stoppuð af margsinnis á þessari leið; barneignir, raunfærnismat Iðunnar, húsakaup, meiri barneignir og veikindi. Lífið, sjáið þið til! Lífið! En biðin og eftirvænting er þess virði. Það er afrek að vera komin hingað og ég er stolt og ánægð með sjálfa mig. Tíminn minn hér hefur verið mjög skemmtilegur, hópurinn samheldinn og kennararnir skemmtilegir og fagmenn fram í fingurgóma. Oft er auðveldara að flýja það sem hræðir mann í staðinn fyrir að taka áskoruninni. Ef maður tekur auðveldu leiðina missir maður oft af tækifærum og fegurðinni í kringum sig. Þegar ég fyllist þessari hræðslu, líkt og ég gerði þegar ég ákvað að taka skrefið að klára þetta nám, þá hef ég orð fasteignamógúlsins George Adair hugfast, og ég held að við höfum öll gott af því að fylgja þeim: “Everything you’ve ever wanted is on the other side of fear.” George Adair Takk fyrir mig.

Askur | 5


Hátíð í bæ

Svart, föl antik bleikur og glimmer glitrandi er það sem sést nú í verslunum og ættu alllir að finna eithvað við hæfi.

1.

4.

6.

10.

8. 9.

3. 2.

13.

7.

11.

12. 5.

6 | Askur


1. Húsgagnahöllin

Lene Serafina snjókarl 26 cm antik silfur

4.290,-

2. Húsgagnahöllin

Lene Bjerre Sella hnotubrjótur svartur 7×5,5×24 cm

5.990,-

3. Húsgagnahöllin

Lene Bjerre Nordic skrautkerti gull H10 cm

1.190,-

4. Húsgagnahöllin

Lene Bjerre Serafina bíll svartur 14x8x14 cm

4.290,-

5. Húsgagnahöllin

Broste kerti jólatré 10,5×12,5cm grátt

1.490,-

6. Húsgagnahöllin

Lene Bjerre Serafina jólatré 23 cm svart

3.790,-

7. FAKÓ

Jóla sokkur fjólublár/lilla l:46cm w:37cm

2.990,-

8. FAKÓ

Könglar í poka m/glimmer 5 stk stærri gerðin

1.395,-

9. FAKÓ

Kertastjaki Wilma, Brass finish, dia:9 h:9cm

1.300,-

10. FAKÓ

Jólaskraut upphengis köngull

11. FAKÓ

Stjarna 9 piont Brún/svört 45cm

1.295,-

12 FAKÓ

Jólabíll bjalla svartur 12,5cm

3.400,-

13. FAKÓ

Svartur jóla köngull upphengis grannur lengri

1.695,-

475,-

handgert, hver og einn einstakur.

Mávahlíð 16, opið virka daga kl. 13 –18

embla | 7

Askur | 7 kervik.is


MYNDIR:. Hákon Davíð Björnsson 2020. Hús og híbýli, 2020

litatónar á Holtsgötunn nnii

inn in n l i t INNLIT

TEXTI: María Erla Kjartansdóttir, 2020. Hús og híbýli, 2020

Notaleg stemnin ing g og náttttú úrulegir

Við kíktum í heimsókn í fallega, bjarta íbúð í Vestur­ bænum þar sem þau Hrafnhildur Ylfa Magnúsar­ dóttir, Guðjón Ólafsson og einn lítill bráðum þriggja ára Mikael Máni Guðjónsson búa. Íbúðin er ekki stór í sniðum en þegar maður gekk inn fann maður fyrir mikilli ró og góðu andrúmslofti. Hrafnhildur starfar sem flugfreyja og er dugleg að versla er­ lendis og fá munir héðan og þaðan úr heiminum að njóta sín á heimilinu. Hún var einmitt nýlent en lét það ekki stoppa sig í að fá okkur í heimsókn. Djasstónlist var á fóninum og dásamleg birta lék um íbúðina. Við fengum okkur kaffi og spjölluðum meðan Hákon ljósmyndari smellti af.

8 | Askur

Gott skipulag og Portofino-garðurinn heillaði Íbúðin er 72 fermetrar og flutti fjölskyldan inn í nóvember 2017. „Þetta eru okkar fyrstu íbúðarkaup en við leigðum áður á Ásvallagötu af foreldrum Guðjóns. Þegar ég var lítil bjó ég á Ægissíðunni og þegar við fluttum aftur í Vesturbænum eftir að hafa búið við Elliðavatn hugsaði ég með mér að ég ætlaði aldrei að flytja héðan aftur, ég hef bara svo sterka tengingu við þetta hverfi og sérstaklega Ægissíðuna.“ Hrafnhildur segist ekki hafa verið yfir sig hrifin þegar þau komu að húsinu í fyrstu eftir þónokkra leit að réttu íbúðinni. „Ég vildi helst ekki skoða íbúðina en svo þegar við komum upp


„Svo eru það suðursvalirnar sem eru æðislegar á sumrin og ekki að ástæðulausu að íbúarnir á svæðinu kalla bakgarðinn Portofino enda verður algjör hitapottur hérna á sumrin.“

Askur | 9


Notaleg stemnin ing g og náttttú úrulegir litatónar á Holtsgötunn nnii

heillaðist ég algjörlega. Andrúmsloftið var svo gott og við fundum að þetta væri sú rétta. Hún virkar töluvert stærri en hún er, er með aukaherbergi og vel upp sett. Hugmyndin var að stækka meira við okkur, við vorum að horfa á kannski 90-100 fermetra íbúðir en eftir að við komum inn í þessa íbúð þá var ekki aftur snúið. Íbúðin var svo björt, praktísk og heillandi sem var góð tilbreyting frá mörgum gömlum íbúðum sem við höfðum skoðað í Vesturbænum. Svo eru það suðursvalirnar sem eru æðislegar á sumrin og ekki að ástæðulausu að íbúarnir á svæðinu kalla bakgarðinn Portofino enda verður algjör hitapottur hérna á sumrin.“ Sólin skín inn og maður getur rétt ímyndað sér hvað það verður heitt að sumri til. „Við keyptum íbúðina af Axel Kaaber sem er arkitekt og hann var búinn að gera nánast allt upp, færa eldhúsið inn í stofu sem áður hafði verið þar sem barnaherbergið er núna sem opnaði hana töluvert. Stofan er því algjör miðpunktur íbúðarinnar. Það er mikill kostur að geta verið með gesti í mat, verið að elda og spjallað saman á meðan. Frá fyrsta degi sáum við svo líka hvað nágrannarnir voru

„Ef ég yrði að fara mjög langt frá Vesturbænum í framtíðinni þá gæti ég hugsaði mér að flytja til Ítalíu á eldri árum,búa á einhverri geggjaðri vínekru, þar sem ég væri umkringd lavender-ökrum, fallegri náttúru… og kannski smá rauðvíni.”

10 | Askur

vingjarnlegir en einn nágranninn eiginlega seldi okkur íbúðina strax daginn sem við komum að skoða. Hann stóð úti á svölunum í sumarblíðunni, dásamaði Holtsgötuna og Portofino-garðinn og hálfpartinn bauð okkur velkomin! Flestallar íbúðir sem við skoðuðum á sama svæði voru ekki upp á sitt besta þrátt fyrir að vera fallegar, en hér var búið að ganga frá öllum lausum endum,“ bætir hún við. Hrafnhildur og Guðjón þurftu því ekki að ráðast í neinar stórvægilegar framkvæmdir. Þau máluðu íbúðina og ákváðu að taka smá snúning á baðherberginu. „Góð vinkona mín, Sara Dögg innanhúsarkitekt mætti frá fyrsta degi og hjálpaði okkur meðal annars með litaval á ganginum, með baðherbergið og svefnherbergið okkar. Þar voru málin rædd í þaula, sérstaklega þegar kom að því að ákveða hvort við ættum að mála loftin dökk líka, í sama lit og veggirnir. Það var niðurstaðan í forstofunni og inni á baði - og við elskum það. Gangurinn sem tekur á móti manni er faðmandi, ef svo má að orði komast,“ segir hún og brosir, „þegar maður mætir heim fær maður þessa notalegu heimilislegu tilfinningu.


„Ég ferðast mikið, utan vinnu líka, og dreg ótrúlegustu hluti með mér heim og læt ferðalagið yfirleitt ekki stoppa mig að burðast með þunga hluti.“

Inni á baði settum við svo upp dökkt sturtugler frá Glerborg og fórum í „low budget” aðgerðir á gólfinu þar sem við dúkuðum einfaldlega yfir bláar flísar sem okkur fannst ekki nægilega fallegar. Dúkinn keyptum við í Parka fyrir slikk, létum flota yfir flísarnar og svo mætti þessi fíni dúkari og kláraði málið fyrir okkur. Ódýr lausn fyrir þá sem vilja breyta fyrir lítinn pening.“ Hrafnhildur segist lengi hafa verið hrifin af Victorian-flísastíl svo að svarthvítur dúkur í þeim anda varð fyrir valinu. „Við urðum svo reyndar fyrir því óhappi að það fór skyndilega að leka á bak við baðið sem leiddi til þess að það þurfti að brjóta upp flísarnar við baðkarið. Í stað þess að setja aftur sömu hvítu flísarnar á baðkarið þá ákváðum við að brjóta þetta aðeins upp með því að smella svörtum möttum flísum úr Flísabúðunni með svartri fúgu þar í staðinn og erum við mjög ánægð með útkomuna.“ Að ná fram réttu stemningunni Aðspurð segist Hrafnhildur ekki mikið að eltast við tískustrauma innanhússhönnunar og velur þá hluti sem henni þykir fallegir hverju sinni. „Ég er ekkert endilega að sækjast eftir því að

eiga þessar týpísku hönnunarvörur. Núna á óskalistanum er þó Vertigo-ljósið sem er selt í HAF Store, Flos 265-vegglampinn, Gubi chair við borðstofuborðið eða Hans Wegner-stólarnir í náttúrulegum lit. Rough Tabletop-borðstofuborðið í Norr11 væri mjög svo velkomið heim til mín og fallegt málverk.“ Hún segist einnig heillast mikið af marokkóskri hönnun í bland við New York-loft stíl og að einhverju leyti skandinavískum stíl. Gott flæði er í íbúðinni og mjúkir litatónar tengja rýmin vel saman. Hvaða litir skyldu heilla Hrafnhildi hvað mest? „Mér finnst náttúrulegir tónar í bland við grænt ótrúlega falleg samsetning. Hnotuviður finnst mér fallegur á móti því svarta og hvíta, hann kemur með þennan hlýleika inn á móti sem mér finnst skipta máli.“ Lýsing skiptir Hrafnhildi einnig miklu máli til að ná fram réttu stemningunni. „Það gladdi ljósameistarann mjög mikið að það væru dimmerar í íbúðinni,“ segir hún og hlær. „Lýsing getur algjörlega breytt stemningu eins og á kvöldin eða þegar maður er með matarboð að maður geti svolítið stjórnað stemningunni. Það að heildarmyndin sé falleg og að maður fái þessa tilfinningu að maður sé kominn heim. Sú tilfinning finnst mér myndast með góðri lýsingu og auðvitað með fallegum kertum, teppum og púðum.“ Er eitthvað sem þú hefur tilhneigingu til að kaupa meira af en annað? „Ómeðvitað safna ég kertum í fallegum krúsum eða stjökum. Ég sanka svo að mér allskyns skálum frá mismunandi löndum en þau kaup réttlæti ég yfirleitt með því að segja sjálfri mér að ég geti borið fram ólífur í þeim. Svo er ég með einhverja óútskýrða þörf fyrir því að kaupa skurðbretti í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Ég er líka ofboðslega hrifin af Frederik Bagger og hef verið að fá glösin frá honum í gjafir.“ Eins og áður sagði starfar Hrafnhildur sem flugfreyja og er dugleg að skanna búðir erlendis. Hvaða verslanir ætli séu í uppáhaldi? „Ég ferðast mikið, utan vinnu líka og dreg ótrúlegustu hluti með mér heim og læt ferðalagið yfirleitt ekki stoppa mig að burðast með þunga hluti. Ég til að mynda brasaðist heim með mottu og fjögur ljós frá Marokkó þegar ég fór þangað árið 2015, þá ólétt. Erlendis eru uppáhaldsbúðirnar West Elm, CB2, Zara Home og svo finnst mér æðislegt að ramba inn á einhverjar götur eða markaði þar

Askur | 11


Notaleg stemnin ing g og náttttú úrulegir litatónar á Holtsgötunn nnii

sem ég finn mér fallega muni sem skilja svo eftir sig góðar minningar. Verslunina Arket fer ég svo oftast í þegar ég heimsæki pabba til Gautaborgar. Hún er í algjöru uppáhaldi, þar er líka kaffihús sem aðrir fjölskyldumeðlimir, þar á meðal sá litli, geta dundað sér og bragðað á hollum og góðum mat í fallegu umhverfi á meðan maður fær að spóka sig um í búðinni.” Hérna heima segir hún Norr11, Magnolia og Söstrene Grene vera í mestu uppáhaldi. Ég verð svo að nefna Tekk/Habitat líka en þar keyptum við stofusófan okkar. Hann hefur fengið mikla athygli og stækkaði stofuna heilmikið þrátt fyrir að vera svona langur, græni stóllinn við sófann er líka þaðan.“ Sófaborð úr bandaríska sendiráðinu Þau Hrafnhildur og Guðjón hafa valið gaumgæfi­ lega þau húsgögn sem eru í íbúðinni og í bland er að finna eldri hluti sem þau hafa meðal annars fengið úr fjölskyldunni. Eru einhverjar skemmti­ legar sögur á bak við húsgögnin? „Þegar við fluttum inn þá vissi ég að ég vildi koníakslitaðan sófa. Eina sem mér fannst erfitt við það val var að ég var í miklum vandræðum með að finna sófaborð í stíl. Ég fékk sófaborð í heimlán frá hinum og þessum búðum en ég rakst svo loksins á borðið sem smellpassaði við sófann á Bland.is. Ég keypti það af strák í Grafarvoginum sem hafði keypt borðið á uppboði í bandaríska sendiráðinu. Þegar ég næ svo í það þá spyr hann mig af hverju ég hafði ákveðið að kaupa það og hvort þetta væri eitthvað flott merki. Það er það alls ekki held ég, en það smellpassaði inn hérna heima og við sófann. Rúmteppið mitt líka, það bar ég heim 13 ára gömul úr Zara Home í utanlandsferð með foreldrum mínum, það fylgir mér ennþá. Borðstofuborðið og grænu stólarnir koma svo frá ömmu Guðjóns, okkur þykir ótrúlega vænt um það sett. Þegar við fluttum inn þá var ég mjög upptekin af því að hafa allt í náttúrulegum tónum, gráum, svörtum í bland við hnotuvið. Ég var þess vegna ekki alveg viss með grænu stólana fyrst og ætluðum við alltaf að bólstra og breyta þeim – en ég sé ekki eftir því núna að hafa haldið þeim upprunalegum þar sem þeir hafa unnið á og setja meiri karakter á heimilið.“ Hrafnhildur hefur frá því hún man eftir sér viljað umkringja

12 | Askur


sig fallegum hlutum en að hennar sögn hefur stíllinn breyst með árunum. „Á yngri árum vildi ég hafa allt hvítt og í frönskum rómantískum stíl. Ég er komin yfir í aðeins dekkri litatóna sem tóna vel á móti þessum náttúrulegu litum heima.“ Heimilið er persónulegt og setja fallegir smámunir skemmtilegan svip á íbúðina en Hrafnhildi þykir mikilvægt að fylgja eigin sannfæringu og stíl. Hvað ætli geri hús að heimili að hennar mati? „Ég hef persónulega ótrúlega gaman af því að koma inn á heimili og sjá hversu mismunandi fólk raðar upp formfögrum hlutum sem hafa einhverja sögu að segja. Ég áttaði mig líka á því þegar ég flutti inn að það þurfti ekki að kaupa allt nýtt og fannst mér heimilið mun persónulegra með því að halda í eitthvað af gömlu hlutunum sem fylgdu okkur og við jafnvel gerðum upp.“ Spurð hvaðan Hrafnhildur fái innblástur segist hún umkringd mikið af smekkfólki. „Einnig finnst mér ótrúlega gaman að koma inn á falleg hótel og veitingastaði. Ég tek líka eftir fallegum hlutum í bíómyndum eða þáttum, tímaritum, Pinterest og Instagram.“ Þykir þér mikilvægt að vera með plöntur og blóm á heimilinu? „Já, klárlega. Ég elska að hafa lifandi plöntur í kringum mig og ég er sífellt að kaupa nýjar plöntur og blóm. Eini gallinn er að ég er kannski ekki sú albesta í að halda þeim á lífi. Eucalyptus­greinar eru í miklu uppáhaldi ásamt Lavender, eitthvað sem getur notið sín eftir að greinarnar þorna. Orkídeur eru líka í miklu uppáhaldi og ég næ yfirleitt að halda þeim lengi á lífi,“ bætir hún við brosandi. Hvernig væri draumahúsið? Værirðu tilbúin að flytja úr Vesturbænum? „Draumurinn væri stórt hvítt einbýlishús í 101 Reykjavík, með frönskum stórum gluggum. Ég hef haft augastað á einu tilteknu húsi á Hólatorgi lengi vel og öðru á Öldu­ götu. Þar sem ég er alin upp við Elliðavatn væri hús við Elliðavatn og fallega náttúru eitthvað sem myndi heilla mig.

Jólin koma

upplifðu töfra jólanna í Höllinni ... heima

www.husgagnahollin.is Askur | 13


Brynjar Emil Friðrikss sson on

14 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


nnin ing gG KYNkyNnn IN

il a f .” y o t l t a e r are d g o h ed y eve i w nn e h e c a .K os h F an T n c “ h ly Jo b a er s i m

Nafn mitt er Brynjar Emil Friðriksson, fæddur 29. september árið 1978. Ég er uppalinn í Reykja­ nesbæ þar sem ég hef búið alla mína ævi. Frá unga aldri hef ég haft mikinn áhuga fyrir allskyns listsköpun. Frá því ég man eftir mér hef ég verið hugfanginn af tónlist sem og skáld­ sögum, arkitektúr, kvikmyndum og grafík. Allt frá því ég fór að kynna mér námið í grafískri

miðlun hefur fagið heillað mig. Fyrir um 12 árum síðan byrjaði ég í fjarnámi þar sem ég kláraði grunnnámið að mestu. Síðan hefur sú hugsun sótt á mig í ríkara mæli að taka skrefið til fulls. Þá fyrir einu og hálfu ári síðan sagði ég starfi mínu lausu og hóf nám við Tækniskólann á sérsviði í grafískri miðlun. Þetta er ákvörðun sem ég er mjög sáttur við í dag.

Askur | 15


SEAN CONNERY 1920-1930 Skoski stórleikarinn Sean Connery lést þann 31. október 2020, níræður að aldri. Hann var fyrstur manna til að leika njósnara hennar hátignar James Bond á hvíta tjaldinu. Connery á áratuga langan feril að baki en auk þess að túlka Bond í alls sjö kvikmyndum lék hann auk þess í myndum á borð við Indiana Jones and the Last Crusade og Hunt for Red October. Hann fékk einu sinni Óskarsverðlaunin, fyrir besta leik í aukahlutverki í myndinni The Untouchables árið 1988. Fjöldi annarra verðlauna féll Connery í skaut á löngum ferli. Fyrstu æviárin Thomas Sean Connery fæddist í verkamanna­ hverfinu Fountainbrigde í Edinborg 25. ágúst 1930. Fjölskyldan var kaþólsk og bjó við mikla fátækt, faðir hans ættaður frá Írlandi og móðir hans rakti ættir sínar til skosku eyjarinnar Skye. Sean Connery átti bróður Neil að nafni, átta árum yngri, sem starfaði lengst af sem múrari en lék í einnig í nokkrum kvikmyndum. Connery hefur lýst því hvernig hann gerði sér ekki endilega grein fyrir í æsku sinni að fjölskyldan byggi við kröpp kjör, „okkur skorti ekkert, og höfðum svo sem engan samanburð heldur,” sagði hann þegar hann tók við verðlaunum bandarísku kvik­ myndastofnunarinnar (AFI) fyrir ævilangt framlag sitt til kvikmyndanna árið 2006. Skólagöngu Connerys lauk þegar hann var þrettán ára, þá gerðist hann mjólkurpóstur þangað til hann gekk til liðs við konunglega breska sjóherinn þremur árum síðar. Hann fékk magasár og yfirgaf herinn þegar hann var nítján. Meðan hann var á sjónum lét hann húðflúra á sig orðin „Mamma og pabbi” og „Skotland að eilífu”. Eftir að Connery sneri aftur til Edinborgar stundaði hann ýmis störf, þar á meðal sá hann um að lakka líkkistur hjá útfararstofu í borginni.

16 | Askur

Kvikmyndaferillinn Connery stundaði líkamsrækt af kappi og tók þátt í keppninni Hr. Alheimur sem opnaði honum dyr inn í heim kvikmyndanna. Fyrsta myndin sem hann lék í var Lilacs in the Spring frá 1954 en nafns hans er hvergi getið þar. Fyrsta aðalhlutverk Connerys var í Another Time, Another Place frá 1958 þar sem hann lék á móti stórstjörnunni Lönu Turner. Eftir að hann varð fyrir valinu til að leika njósnara hennar hátignar James Bond í kvikmyndinni Dr. No sem frumsýnd var árið 1962 var Hollywood­björninn unninn. Sean Connery hefur leikið í ótal stórmyndum á löngum ferli og hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum fyrir frammistöðu sína. Seinast kom hann fram sem þulur í heimildamyndinni Ever to Excel árið 2012. Fjölskyldumálin Connery var tvígiftur. Hann kvæntist áströlsku leikkonunni Diane Cilento árið 1962 en þau skildu 1973 eftir stormasamt hjónaband. Þau eiga einn son, Jason sem fetaði í fótspor föður síns á leiklistarbrautinni. Tveimur árum eftir skilnaðinn við Diane gekk Connery að eiga frönsku listakonuna Micheline Roquebrune. Hann var aðlaður árið 2000 og var harður stuðningsmaður sjálfstæðis Skotlands. Connery bjó á Spáni og Bahamaeyjum undan­ farin ár í sjálfskipaðri útlegð vegna þungrar skattbyrði í heimalandinu. Sean Connery hlaut friðsælt andlát í svefni á heimili sínu á Bahamaeyjum aðfaranótt 31. október. Markús Þ. Þórhallsson, Hallgrímur Indriðason, Sunna Valgerðardóttir. (2020, 31.10). Sean Connery látinn. Ríkisútvarpið. Sótt af ruv.is


10 stigahæstu myndir Sean Connery skv. IMDb: Nr.

Titill

Ár

1.

Indiana Jones and the Last Crusade

1989

Professor Henry Jones

8,2

2.

The Untouchables

1987

Jim Malone

7.9

3.

The Hill

1965

Joe Roberts

7.9

4.

The Longest Day

1962

Pvt. Flanagan

7.8

5.

The Man Who Would Be King

1975

Daniel Dravot

7.8

6.

Goldfinger

1964

James Bond

7.7

7.

The Name of the Rose

1986

William von Baskerville

7.7

8.

The Hunt for Red October

1990

Marko Ramius

7.6

9.

The Rock

1996

John Patrick Mason

7.4

1977

Maj. Gen. Urquhart

7.4

10. A Bridge Too Far

Hlutverk

Einkunn

Ljósmynd: Djamilla Rosa Cochran

Alhliða hársnyrting fyrir dömur og herra. Nú getur þú einnig bókað tíma með appinu Noona. Sjáumst hress!

Tjarnabraut 24 260 Reykjanesbæ 421 7100


Í Tvídröngum er sakleysið ógeðslegt Sjónvarpsþættirnir Twin Peaks, eða í vel heppnaðri íslenskri þýðingu: Tvídrangar frá árinu 1990 eru sérstakir fyrir margar sakir. Þeir koma úr smiðju leikstjórans David Lynch sem af mörgum er talinn einn áhrifamesti kvikmyndagerðarmaður samtímans. Hann er sannkallaður ó-tör (auteur) eða höfundur verksins í víðasta skilningi, og handbragðsins gætir langt út fyrir leikstjórn eða handrit. Fortíðardaður Í Tvídröngum snerti David Lynch alla fleti verksins og brá sér jafnvel í hlutverk sögupersónu á einum stað. Þættirnir mörkuðu sannarlega vatnaskil þegar þeir voru fyrst sýndir, enda var hinn frumlegi David Lynch óhræddur við að feta ótroðnar slóðir og ákvað því, í fyrsta sinn í sjónvarpssögunni, að slá saman sjónvarpsþáttaformum. Þættirnir dönsuðu á milli hryllings og gaman, drama, sápuóperu og súrrealískrar tilraunamennsku í kvikmyndagerð svo að úr varð kokteill sem varla var hægt að horfa á, en á sama tíma algjörlega ómögulegt að slíta sig frá. Eitt helsta einkenni þáttanna var afgerandi andrúmsloft sem þekktist hvergi annars staðar, en Lynch lék sér að því, líkt og í öðrum verkum, að daðra við fortíðina, og undir sterkum áhrifum frá bandarískri smábæjarmenningu sjötta og sjöunda áratugarins, sem voru einmitt hans eigin uppvaxtarár. Það er síðan gaman að horfa á

18 | Askur

þættina á seinni tímum og sjá að samtímaáhrifin voru líka sterk, og smekkur og stíll tíunda áratugarins er afskaplega augljós að auki. Og á löngum köflum voru þættirnir draumi líkastir, eða öllu heldur martröð. Lynch, sem er menntaður myndlistarmaður, notar liti og form á hátt sem fáir í bransanum geta leikið eftir. Táknfræði litanna er líkt og heill karakter sem heimsækir söguna aftur og aftur. Hver man ekki eftir rauða brunabílnum í upphafi kvikmyndarinnar Blue velvet. Þessi rauði bíll sem var svo óþægilegur, þó að hann væri ekki einu sinni í útkalli, þar sem hann keyrði löturhægt í gegnum hlýlegt bandarískt úthverfi. Garðslangan sem lúrði á grasflötinni á sólríkum degi, sofandi snákur, feigð. Kaflaskil í sjónvarpssögunni Það liggur alltaf eitthvað að baki hjá Lynch, og yfirleitt er það óhreint. Sakleysið verður hættulegt, jafnvel ógeðslegt. Táknin eru alls staðar og jafnvel háralitur fólks getur orðið að táknmynd fyrr innrætið. Ljóshærðar persónur Lynch eru yfirleitt í aðalhlutverkum og með bjartara og hreinna eðli en hinar dökkhærðu meðleikkonur þeirra. Sem er kannski dálítið hallærislegt og margnotað af öllum frá Disneyframleiðendum til Spaugstofugengisins. En látum það vera. Inn


Kaffi og kirsuberjabaka er í miklu uppáhaldi hjá Dale Cooper, aðalpersónu Tvídranga.

í Twin Peaks blönduna setti Lynch síðan þekkt minni úr poppkúltúr, og jafnvel poppstjörnur á borð við Chris Isaak fengu sinn sess í þáttunum. Það eru til margar lærðar ritgerðir og vafalaust misgóðar um notkun David Lynch á kvenpersónum. Flestar konurnar eru staðalmyndir kvenlegra gilda: saklausar jómfrúr með ljóst hár, tálkvendi, þær eru dauðar og heilagar eða gamlar og krumpaðar, svo að við látum Bectdel prófið alveg eiga sig í þessari umfjöllun. En útkoman varð þrátt fyrir allt svo afgerandi verk, svo eftirminnilegt, og svo fersk úrvinnsla á þeim straumum sem áttu sér stað í kvikmyndum og poppi á þessum tíma, að David Lynch skrifaði sig inn í sjónvarpssöguna og lagði ekki undir sig eina blaðsíðu heldur heilan kafla, og skrifaði þar að auki formálann.

við landið, en íslenski kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson kom að framleiðslu gömlu þáttanna. Sjötti þáttur fyrstu þáttaraðar byrjar á þá leið að aðalpersónan, Dale Cooper, er vansvefta vegna háreysti og söngs drukkinna Íslendinga sem syngja Þingvallasöng hástöfum. Er það síst til að minnka furðutilfinningu íslenskra áhorfenda við áhorfið. Í framhaldinu koma atriði þar sem Íslendingar eiga að koma við sögu, en þar eru þó ekki íslenskir leikarar á ferð. Nína Richter. (2017, 9.6). Í Tvídröngum er sakleysið ógeðslegt. Ríkisútvarpið. Sótt af ruv.is

Ljósmynd: Chris Saunders

Allt sjónvarp sem við sjáum í dag er undir áhrifum frá Twin Peaks, fullyrti einn kennarinn minn úr Kvikmyndaskólanum fyrir nokkrum árum síðan. Og ég held að það sé rétt hjá henni. Þættirnir breyttu öllu. Þeir mörkuðu slóða sem margir fylgdu eftir, og höfðu áhrif út í fleiri form en bara sjónvarps- og kvikmyndagerð. Bókmenntir urðu líka fyrir áhrifum frá þessum tilraunum með blönduð form. Hefðu sögurnar um galdrastrákinn Harry Potter orðið til ef ekki hefði verið fyrir Tvídranga sem sögðu okkur að núna væri vel hægt að segja fjölskyldusögu, fantasíu, hryllingssögu og þroskasögu í einu og sama verkinu, sem var skrifað fyrir börn? Hvað með morðgátu-grínþættina Desperate Housewifes, ég myndi ekki vilja þurfa að verja það að áhrifin frá Twin Peaks væru ekki til staðar þar á bæ. Fyrir utan þá staðreynd að sjálfur Kyle McLachlan, leikarinn sem fór með aðalhlutverkið í Twin Peaks, var einmitt þar í aukahlutverki. Íslendingar og Tvídrangar Þættirnir eiga stóran aðdáendahóp hér á landi og að auki hefur verið stofnaður íslenskur aðdáendaklúbbur . Tvídrangar eiga skýra tengingu

David Lynch

Askur | 19


Einskonar kraftaverk… • Sum tónlist er sífersk og sígild, sama hversu mikið elli kelling ber á henni • Hin þýska Kraftwerk breytti þannig tónlistarsögunni á áttunda áratugnum • Einungis Bítlarnir hafa valdið jafnmiklum straumhvörfum

Merkilegt hvað sum dægurtónlist heldur áfram að koma manni í opna skjöldu, já fær hárin hreinlega til að rísa þegar maður heyrir hana. Og skiptir þá engu þótt maður hafi heyrt hana hundrað sinnum áður. Þetta er víst það sem orðið „sígilt“ á að lýsa; það sem skapað var í fyrndinni nær enn að hafa sterk áhrif á samtímahlustendur og er enn jafn leitandi og áhrifaríkt og það var daginn sem það kom út. Þessar pælingar hafa verið í gangi að undanförnu hjá mér hvað þýsku sveitina Kraftwerk varðar en ég hef verið á bólakafi í verkum þeirrar eðlu sveitar síðustu vikur og á vart til orð til að lýsa snilldinni. Svona skeið hef ég tekið reglulega

20 | Askur

með þessari hljómsveit og alltaf er ég jafngapandi. Já lesandi góður… þetta bara varð að komast út! Gangskör Ég veit ekki alveg af hverju ég datt inn í þetta núna. Þetta gerist venjulega fremur tilviljanakennt þegar maður fer svona á bólakaf í ákveðin bönd. Ég hef samt haft hálfgert samviskubit í garð plötunnar Computer World (1981) en það er sú plata Kraftwerk sem ég hef hvað minnst hlustað á!? (ófyrirgefanlegt, ég veit). Alltént, nú skyldi gangskör gerð. Á sínum tíma, þegar ég var að dýfa tám sem


víðast – og af nokkru offorsi eiginlega – í allra handa dægurtónlist, las ég viðtal við Kraftwerk í Melody Maker. Þetta var í tengslum við endurhljóðblöndunarplötuna The Mix sem kom út 1991. Ég hafði þá engan veginn gert mér grein fyrir því hversu ótrúlega áhrifarík þessi sveit hafði verið hvað samtímapopp áhrærði. Hlutverk hennar sem brautryðjandi í tölvutónlist verður seint ofmetið. Heilu tónlistarstefnunum var hrundið af stað fyrir tilstilli hennar – stundum fleiri en einni í einu og sama laginu. Hipphopp, teknó, hústónlist, „industrial“, nýrómantík; öll þessi fyrirbæri eiga allt sitt meira og minna undir Kraftwerk. Biblían Eftir að hafa lesið þetta viðtal í Biblíunni minni pikkaði ég upp Trans-Europe Express og Man Machine fyrir slikk í plötubúðinni Þrumunni á Laugaveginum. Ég man þegar fyrstu tónarnir frá „Europe Endless“ hófu að óma í litla herberginu mínu í Árbænum. Mér fannst þetta dálítið einkennilegt (ég var mestmegnis að hlusta á hávaðanýbylgju og pönk á þessum tíma) en það var eitthvað þarna sem ég hreifst af. Ég og bróðir minn kær hlustuðum svo endalaust á þessar plötur og hann tók fljótlega fram úr mér í Kraftwerkáhuganum. Hann hefur mikið mært Computer World og nú er ég kominn á þá

skoðun að hún sé hápunkturinn á ferli sveitarinnar. Skoðum þetta aðeins: Autobahn (1974) bar með sér tímamót en platan sem heild er ójöfn. Sama má segja um Radio Activity (1975). Trans-Europe Express er fyrsta meistaraverkið en ég viðurkenni að lög eins og „The Hall of Mirrors“ eru í það tilgerðarlegasta. Man Machine er sannarlega mögnuð en nánast of poppuð og dálítið hrá; það er enn verið að slípa dæmið til. En öllum vopnum er svo glæsilega safnað saman á Computer World (1981). Bara upphafstónar titillagsins senda þægilega höggbylgju í magann á manni. Algerlega ótrúlegt! Eftir þessa plötu missti Kraftwerk svo eiginlega fótanna, Techno-Pop, platan sem átti að koma í kjölfarið, tafðist óheyrilega vegna sívaxandi fullkomnunaráráttu, þekkt minni í sögu okkar helstu poppsnillinga (Brian Wilson t.d.). Það er eitthvað skringilegt við það að helstu arkitektar alls þess sem var nýtt í popptónlist lifi í dag á fornri frægð, hvort heldur sem er á tónleikum eða í hljóðversvinnu. Eigum við ekki bara að segja að Ralf, Florian og þeir allir hafi bara klárað kvótann hratt og vel og séu því skuldlausir að þessu leytinu til? Arnar Eggert Thoroddsen. (2011, 11. 08). Einskonar kraftaverk… Morgunblaðið. Sótt af arnareggert.is Ljósmynd: Peter Boettcher

Umfjöllun um Kraftwerk í Vísi frá 1981 Tölvuvætt kraftaverk Frumherjarnir í tölvurokki, þýska hljómsveitin Kraftwerk, sendi á dögunum frá sér plötuna „Computer-World“ eða „Tölvu-Heimur“. Þetta er fyrsta plata Þjóðverjanna í hartnær þrjú ár eða frá því „Man Machine“ fékkst keypt fyrir sanngjarnt verð árið 1978. Þá fussuðu flestir við tölvutónlist og margir óskuðu sér þess að slík tónlist mætti aldrei þrífast. Önnur varð raunin. Á síðustu tólf mánuðum eða svo hefur tölvurokk eða rafeindadiskó (mér er sama hvað það er kallað) náð gífurlegri útbreiðslu og einkanlega hafa Bretar stutt við bakið á þessari tegund tónlistar. Rokkáhrif eru að sönnu miklu meiri hjá bresku tölvurokkurunum en Kraftwerk og vasatölvurnar eru ekki jafn áberandi! Ein af fyrstu bresku hljómsveitunum sem gekkst undir áhrif frá Kraftwerk var Human League en síðan hafa þær fyllt tuginn og vel það. Þeir segja að þetta sé framtíðin!?

Askur | 21


Heimskautsgerðið á raufarHöfn

Heimskautsgerðið er sprottið upp úr vangaveltum Erlings Thoroddsen um hvernig hægt er að virkja endalausa víðáttu, þar sem ekkert skyggir á sjóndeildarhringinn, heimskautsbirtuna og miðnætursólina. Inn í þessum vangaveltum kom hugmyndin að nota dvergatal Völuspár og Snorra Eddu og dusta rykið af fornum sagnaheimi og færa til nútíðar. Utan um þennan hugarheim rís Heimskautsgerðið á Melrakkaási við Raufarhöfn. Haukur Halldórsson listamaður tók þátt í hugmyndavinnu með Erlingi, gerði skissur og líkan sem stuðst er við. Heimskautsgerðið er um 50 metrar í þvermál, 6 metra há hlið vísa til höfuðáttanna. Í miðju hringsins er 10 metra há súla á fjórum stöplum, sem áform eru uppi um að skarti kristaltoppi sem brýtur sólarljósið og varpar geislum sólar um allt Gerðið. Fjórir skúlptúrar eru inní Gerðinu hvert með sínu sniði. Pólstjörnubendir sem vísar á Pólstjörnuna. Hásæti sólar þar sem birtan í ákveðinni stöðu boðar sumarkomu. Geislakór er rými á milli hárra stöpla þar sem hægt verður að setjast niður, tæma hugann og endurnýja orku sína. Altari elds og vatns sem virkjar frumkraftana. Inni Gerðinu verður árhringur dverga, steinar sem hver um sig tákna ákveðinn dverg. Þessir dvergar eru alls 72 talsins og er getið í íslenskum fornbókmenntum. Með þeim fjölda á hver dvergur sitt „vik” í árinu, ef miðað er við 5 daga viku. Með því að tengja nöfn dverganna við árstíðir,

22 | Askur

eins og til dæmis nafnið Vetrarfaðir á fyrsta vetrardag þá ganga nöfnin upp eftir því hvar í árinu þeir lenda sem myndar 72 vikur. Árhringur dverga er þannig orðinn einskonar almanak, þar sem hver dvergur ræður 5 dögum. Til dæmis Várkaldur í viku vors, Bjartur í viku sumars þegar nætur eru bjartar og Dvalinn í haustviku þegar allt leggst í dvala fyrir veturinn. Enginn hefur getað útskýrt tilurð eða hlutverk dverganna í Völuspá nema þeirra Austra, Vestra, Norðra og Suðra, sem halda uppi himninum. Í hugmyndafræði Heimskautsgerðisins hefur öllum dvergum verið gefið hlutverk og þeir verið persónugerðir. Þannig er hægt að tengja dvergana við afmælisdaga og mynda tengsl við þá. Dvergarnir eru svo hluti af tímabilum goðanna sem eru gömlu mánuðirnir. Þegar á árið er litið sést að það eru 6 dvergar sem tilheyra hverjum (gamla) mánuði og hver mánuður tilheyrir ákveðnu goði. Hliðin, Austri, Vestri, Norðri og Suðri, á milli stöplanna vísa mót höfuðáttunum, þannig að miðnætursólin sést frá suðurhliði gegnum miðsúlu og norðurhlið, á sama hátt og sólarupprás sést frá vesturhliði í gegn um miðsúlu og austurhlið. Samspil ljóss og skugga sýnir eyktamörkin. Nánari upplýsingar um hugmyndafræði Heimskautsgerðisins er að finna á heimasíðunni www. heimskautsgerdi.is. Heimskautsgerðið er 50 km frá Kópaskeri, 54 km frá Þórhöfn og 154 km frá Húsavík. Markaðsstofa Norðurlands. Heimskautagerði. Sótt af www. https://www.northiceland.is


Raufarhöfn Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er Heimskautsgerðið, stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður. Útgerð hefur ávallt verið undirstöðuatvinnuvegur á Raufarhöfn og á síldarárunum var hér ein mesta uppskipunarhöfn landsins og iðandi mannlíf. Nú ríkir meiri kyrrð yfir þorpinu og þar er gott að dvelja um hríð, fara í gönguferðir, veiði, siglingar og njóta miðnætursólarinnar. Umgjörð kaupstaðarins er einstaklega falleg. Höfnin liggur í skjóli Raufarhafnarhöfða og yfir henni vakir falleg kirkja, byggð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar árið 1927 Melrakkaslétta er kunn fyrir hlunnindi, fiskveiðar, fjörubeit, æðarvarp, eggjatöku, og gjöful veiðivötn. Þarna er einstök náttúrufegurð á vorin og sumarkvöldum og fjölskrúðugt fuglalíf. Af Rauðanúp er stórkostlegt útsýni og návígi við fuglalífið í dröngunum Karli og Kerlingu. Nyrst á sléttunni er Hraunhafnartangi, nyrsti hluti Íslands. Þar er Þorgeirsdys sem talin er vera haugur fornhetjunnar hugprúðu, Þorgeirs Hávarssonar, en frá vígi hans í frækilegum bardaga segir í Fóstbræðrasögu Á Raufarhöfn er öll grunnþjónusta heilsugæsla, apótek, matvöruverslun, banki, pósthús, sundlaug, heilsurækt, tjaldstæði, bifreiðaverkstæði, sjálfsali fyrir eldsneyti, hótel, gistiheimili, og kaffihús. Á hverju ári eru haldnir menningardagar sem enda á Hrútadögum, fyrsta laugardag í október. Mikið er um að vera í þorpinu þessa daga og gaman að koma og upplifa menningu íbúa á þennan hátt. Markaðsstofa Norðurlands. Raufarhöfn. Sótt af www. https://www.northiceland.is

Taktu þitt pláss! Ráðstefna í Hörpu 1.– 2. desember 2020


Erlin ing gur Freyr Thorodd dds sen

24 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


nnin ing gG KYNkyNnn IN

r” u g ö ey r f r a F er r v u ð g a in á l r íðin E l H “

Ég heiti Erlingur Freyr Thoroddsen, fæddur og uppalinn í Hlíðunum. Frá því að ég gat fyrst haldið á litum notaði ég þá til þess að tjá mig og það sem leynist í kollinum á mér. Mamma og Pabbi voru mjög dugleg að sýna mér landið þegar ég var lítill. Alltaf fann ég eitthvað stórkostlegt sem ég þurfti hreinlega að teikna eða mála. Oft gat ég ekki beðið eftir að komast út úr bílnum eingöngu til þess að teikna eitthvað sem ég sá á leiðinni. Hugarheimur norrænnar goðafræði hefur heill­ að mig alveg síðan afi minn heitinn og nafni kynnti fyrir mér þegar ég var rétt tæplega 6 ára gamall. Sögurnar af Þór, Frey og öllum þeim náttúru­ öflum sem búið er að holdgera hafa fylgt mér af mikilli ástríðu í gegnum ævina. Pabbi og mamma sögðu mér og tvíbura bróðir mínum Nirði sögur af fólkinu sem nam land á Íslandi og dáðu þessa guði alveg eins og við. Seinna tók ég til hendinni og kynnti mér Íslendingasögurnar flestar. Mér

finnst ég alltaf geta lært eitthvað nýtt þegar ég les í Hávamálunum og Eddu Snorra Sturlusonar. Ég er sífellt í leit að þekkingu sem hef fjöl­ breytt áhugamál. Ég hef áhuga á myndlist, kvik­ myndagerð, fatahönnun, ljósmyndun, prentun, fornleifafræði, sagnfræði og fornbókmenntum. Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt , læra nýja hluti og skilja þá betur. Þegar það kom að því að velja framhaldsnám eftir tíunda bekk vissi ég strax að ég vildi læra eitthvað sem myndi hjálpa mér að koma mínum hugmyndum á þrykk. Ég valdi nám í Grafískri miðlun vegna þess að það hljómaði spennandi. Þetta nám hefur sameinað svo mörg áhugamál mín í eitt fag. Ég verð ævin­ lega þakklátur að þeim kennurum sem hafa kennt mér og samnemendum mínum sem hafa unnið með mér síðastliðin ár. Ég hlakka mikið til að starfa við þetta fag í framtíðinni. Góðar stundir.

Askur | 25


Snorri Sturluson (1179–1241) goðorðsmaður í Reykholti, sagnaritari og stjórnmálamaður, er einna nafnkunnastur Íslendinga fyrr og síðar. Rithöfundurinn og skáldið Snorri hélt til haga norrænni menningararfleifð og setti sterkan svip á samfélag sitt á þrettándu öld. Honum eru eignuð mörg af glæsilegustu bókmenntaverkum miðalda á Íslandi: Snorra–Edda, Heimskringla saga Noregs konunga og Egils saga. Snorri átti líka dramatíska ævi, og bæði hann og verk hans hafa orðið listamönnum óþrjótandi uppspretta nýrrar sköpunar. Saga Snorra Sturlusonar er til umfjöllunar á sérstakri sýningu á vegum Snorrastofu í Reykholti. Uppruni og æska Snorri Sturluson fæddist á bæ landnámskonunnar Auðar djúpúðgu, Hvammi í Dölum, árið 1179. Faðir hann var harðdrægur smáhöfðingi, Hvamm–Sturla og gengu af honum miklar sögur. Móðir hans, mun yngri bónda sínum, var Guðný Böðvarsdóttir af göfugum ættum höfðingja í Borgarfirði. Frændmenn hennar voru einmitt flæktir í miklar deilur um 1180 Deildartungumál, sem leiddu til þess að Snorri Sturluson var tekinn til fósturs í Odda á Rangárvöllum frá því hann var á þriðja ári. Fósturfaðir hans Jón Loftsson var helsti höfðingi landsins um langt árabil. Hann var af móðerni kominn af norsku konungsfjölskyldunni en afi hans í föðurætt var Sæmundur fróði Sigfússon, sem nam fræði sín suður í Evrópu og er talinn hafa ritað ágrip af ævum Noregskonunga á latínu. Í Odda var á tólftu öld haldinn skóli af Sæmundi og niðjum hans og í þann skóla er Snorri talinn hafa sótt klassíska menntun sem og lagt stund á þjóðleg fræði, ættvísi og lögspeki. Snorri sækir fram um Vesturland og víðar… Fyrir tilstyrk Oddaverja komst Snorri þegar á ungaaldri til áhrifa og valda á Suðurlandi sem og á Vesturlandi. Sæmundur Jónsson leiðtogi Oddaverja og Þórður eldri bróðir Snorra leituðu honum kvonfangs hjá Bersa Vermundarsyni

26 | Askur

presti og höfðingja á Borg á Mýrum og fékk hann Herdísar einkadóttur hans og Hróðnýjar Þórðardóttur, sem reyndar var frilla Þórðar Snorra­ bróður. Ætlunin var að Snorri hæfi búskap á óðal­ inu Hvammi í Dölum en það fékkst ekki, ef til vill vegna andstöðu Sighvats annars bróður Snorra. Ungu hjónin bjuggu því fyrsta búskaparár sitt á Suðurlandi, en þegar Bersi tengdafaðir hans dó 1202 tók Snorri við búsforráðum og goðorði hans, Mýramannagoðorði. Á næstu árum safnaði hann að sér áhrif­ um og völdum á Vesturlandi, fékk hálft goðorð Lundarmanna, goðorð Stafhyltinga og Gilsbekk­ inga þannig að hann varð einhver áhrifamesti höfðingi landsins á næstu misserum. Sum þessara goðorða fékk hann fyrir tilstuðlan vinkvenna sinna, mæðgnanna Snælaugar Högnadóttur og Guðrúnar Hreinsdóttur. Guðrún var um árabil frilla Snorra og eignaðist með honum nokkur börn, en aðeins eitt þeirra komst á legg. Með Herdísi konu sinni eignaðist Snorri tvö börn sem upp komust, Hallberu og Jón sem kallaður var murtur. Árið 1206 skilur Herdís Bessadóttir við Snorra og hann flytur upp í


Reykholt sem lá afar vel við samgöngum. Reyk­ holt var á þekktum krossgötum milli landshluta og lá vel miðsvæðis herfræðilega. Þaðan spann Snorri Sturluson vef valda og áhrifa um land allt og út í heim. Fyrstu árin hefur Guðrún Hreinsdóttir frilla hans vísast búið með honum, og dóttir þeirra Ingibjörg var lengstum til heimilis í Reykholti. En Guðrún Hreinsdóttir hverfur samt fljótt úr sögu, líklegast látist á ungum aldri. Með öðrum konum eignaðist Snorri börn: Órækju með Þuríði Hallsdóttur og Þórdísi með ónefndri konu. Lögsögumaður í utanlandsferðum Hann var kjörinn lögsögumaður á alþingi 1215 og gegndi þeim starfa þar til hann hélt í sína fyrri utanlandsreisu 1218. Þar dvaldi hann meðal höfðingja, fyrst með Hákoni konungi og Skúla jarli í Túnsbergi. Veturinn 1219 fór hann til Gaut­ lands að heimsækja Áskel lögmann og Kristínu Nikulásdóttur aðalskonu. Þá fór hann aftur til Noregs, norður til Björgvinjar og Niðaróss, aftur á vit hirðarinnar. Honum tókst að koma í veg fyrir fyrirhugaðan hernað Norðmanna á

hendur Íslendingum og var sæmdur æðstu virðingu hirðar fyrst skutilsveinn og síðar lendur maður konungs. Þar með var Snorri orðinn einn af valdamestu mönnum norsku hirðarinnar. Um það hefur verið deilt hvort hann hafi lofað að koma landinu formlega undir Noregskonung í þessari ferð, en staðreyndin er sú að Noregskonungar höfðu allt frá landnámi seilst til áhrifa í landnámi norrænna manna og ráðið miklu í byggðum þeirra við Norður–Atlantshaf. Þegar Snorri Sturluson kom heim sumarið 1220 urðu fljótlega miklar viðsjár með honum og sunnlenskum höfðingjum af ætt Haukdæla. Samtímis var Sighvatur bróðir hans og synir Sig­ hvats í harðvítugri andstöðu við Snorra. Hann freistaði þess að semja allsherjarfrið við Þor­ vald Gissurarson Haukdælaforingja og á næstu misserum fékk Gissur Þorvaldsson Ingibjargar Snorradóttur, afráðið var að Þorvaldur og Snorri stofnuðu klaustur í Viðey, og sjálfur fékk Snorri ekkju Bjarnar Þorvaldssonar, Hallveigar Orms­ dóttur og hófu þau þegar búskap sinn saman og eignuðust börn.

Jólamatinn færðu í Kjöthöllinni Þú færð allt sem þú þarft í jólamatinn í Kjöthöllinni. Verið velkomin.

2 Askur | 27 Skipholt 70 | sími 553-1270 | Háaleitisbraut 58-60 | sími 553-8844 | kjothollin.is


agnameistarinn Snorri Næstu þrjú árin 1220 til 1223, hafði Snorri Stafholt að höfuðbýli sínu, vísast meðan mikil uppbygging húsa og híbýla stóð yfir í Reykholti. Þar var reist mikið virki umhverfis hús og staðurinn efldur að mun sem kirkjumiðstöð og lærdómsmiðstöð. Á staðnum var samfélag lærðra manna, presta sem iðkuðu stunduðu tíðir og guðsþjónustu daglega og þjónuðu kirkjum og bænahúsum bænda í nágrenninu. Þá voru ótaldir þeir skrifarar og lærisveinar sem hljóta að hafa gengið til skrifarastarfa með og fyrir Snorra skáldbónda. „Á bók þessa lét ég rita…“, segir Snorri í einum formála Heimskringlu og gefur þannig til kynna að hann hafi lesið fyrir ritstýrt fremur en ritað sjálfur. Sama gefur hann til kynna tilaðmynda í Ólafs sögu Tryggvasonar þar sem alltíeinu segir í texta: „Það vil eg nú næst rita láta að segja frá íslenskum mönnum.“ Margir telja að bókmenntaverk eignuð Snorra Sturlusyni eigi það sameiginlegt að einkennast af fræðilegri vandvirkni miðað við ritunartíma sem og stíllegri kátínu og yfirburða þekkingu á menningararfinum, kvæðum og sögum úr munnlegri geymd og leikni við úrvinnslu heimilda. Það á við um Snorra Eddu; Skáldskaparmál, Gylfaginningu og Háttatal, Noregs konunga sögur (Heimskringlu) og Egils sögu. Sögusviðið er hvar­ vetna eiginlega allur heimurinn. Snorri átti við margan vanda að etja, öll börn hans gerðu einhvers konar uppreisn gegn honum, sum þeirra féllu frá á ungum aldri önnur voru honum öndverð löngum stundum. Sama á við um Sighvat bróður hans og syni hans, sem fóru hvað eftir annað gegn honum með herflokkum og ofbeldi. Snorri hafði komist til áhrifa með aðstoð Oddaverja og var eiginlega í flokki þeirra framan af æfi. En þegar á leið ævina hurfu þeir frá stuðningi við hann. Þótt Snorri þætti vera lævís stjórnmálamaður og leikinn rithöfundur fannst mönnum hann vera afleitur hermaður og var jafnvel sakaður um heigulshátt og hugleysi þegar átök stóðu fyrir dyrum. Hann var sumsé maður friðar og

28 | Askur

undanhalds á tímum vopnaðrar aldar riddaratíma. Engu að síður var hann hríðum valdamesti maður landsins, af því hann nýtti alla aðra hæfileika þeim mun betur í hagnaðarskyni. Ísland lén Snorra Eftir harðvítug stjórnmálaátök á fjórða áratug þrettándu aldar fór Snorri aftur til Noregs árið 1237. En þá var gífurleg spenna milli Skúla hertoga Bárðarsonar sem löngum var valdamesti maður Noregs og Hákonar konungs Hákonarsonar. Snorri hafði allan tímann verið í vinfengi við Skúla og í þessari ferð treystist vinátta þeirra enn betur. Það er jafnvel ólíklegt að Snorri hafi hitt konung í þessari ferð, hann dvaldi í Niðarósi hjá Skúla. Áður en Snorri hvarf til Íslands aftur vígði Skúli hann leynilega sem jarl, væntanlega með það í huga að sjálfur yrði hann konungur í Noregi en hans maður, Snorri Sturluson, jarl á Íslandi. Hákon konungur bannaði Snorra og félögum hans

Mikilvægir viðburðir í lífi Snorra Sturlusonar Aldur

Atburður

3

Tekinn í fóstur

23

Flytur í Reykholt

Ár

1182

Giftist Herdísi Bersadóttur

1202

36

Gerður Lögsögumaður

1215

41 - 44

Egils saga og Heimskringla skrifaðar.

1220-1223

Myrtur af mönnum Gissurar-Hvíta

1240

23

41

58 61

Giftist Hallvegu Ormsdóttur

Deilir við Noregskonung

1206 1220

1237


Ljósm.: Zairon,wikimedia.org

Íslandsför, en Snorri á að hafa sagt: Út vil ek! Og fór til Íslands. Næstu mánuði var Skúli viðtekinn sem kon­ ungur á nokkrum þingum víðs vegar um Noreg. Kröfur hans til konungdóms kunna vel að hafa byggst á efnivið úr smiðju Snorra Sturlusonar, sagnfræðileg og ættfræðileg rök voru leidd að réttmæti kröfunnar um konungstignina. Þegar leið á veturinn 1240 höfðu Hákonarmenn betur og svo fór að Skúli var veginn 24. maí 1240. Fallið samsærið morðið Margt var líkt með þeim vinum, Snorra og Skúla, og örlög þeirra ofin saman. Sum arið 1241 voru

blikur á lofti í lífi Snorra, hann missti Hallveigu konu sína í júlí mánuði og varð honum mikið um fráfall hennar. Hákon konungur sendi bréf til Íslands með beiðni um að Snorri kæmi til Noregs og stæði konungi reikningsskil gerða sinna. Gissur Þorvaldsson og fleiri fyrrverandi tengdasynir fóru með flokkum að Snorra haustið 1241, flestir foringjar flokkanna voru afkomendur fóstra hans Jóns Loftssonar. Það má því segja að þeir sem skópu stjórnmálamanninn Snorra Sturluson og studdu hann til valda, Oddaverjar, hafi haft forystu um að binda endi á æfi hans. Gissur og kumpánar hans komu að Reykholti aðfaranótt 23. september og vógu skáldið. Snorri á að hafa minnt vegendur sína á sjötta boðorðið Þú skalt eigi morð fremja: Eigi skal höggva! Snorri Sturluson ­ stutt æviágrip (28.10.20) Sótt af www.snorrastofa.is/snorri­sturluson/

Askur | 29


LEVI’S, GÆÐI Í TÆP 150 ÁR Saga Levi Strauss & Co. Það má segja með miklu öryggi að Levi’s galla­ buxur ættu að vera öllum kunnugar, ungum sem öldnum. Levi Strauss var fæddur 26 febrúar 1829 í Þýskalandi. Hann flutti til San Fransisco árið 1858 og fékk fyrirtækið Levi Strauss & Co skrásett með mág sínum og klæðskera Jacob Davis árið 1873. Markhópurinn þeirra voru námu verkamenn, kúrekar og skógarhöggsmenn sem þurftu góðan vinnufatnað. Það gátu Strauss og Davis boðið upp á. Frá fyrsta degi hafa verið koparhnappar á vösunum til styrktar. Auka vasi er hægra megin fyrir vasaúr hefur alltaf verið en í dag er hann lítið notaður. Árið 1886 kemur leðurmerkið fyrir ofan hægri til sögunnar. Myndin af hestunum sem bundnir eru í buxurnar er eitt frægasta kennimerki í tískusögunni. Hugsunin á bakvið myndina var nokkuð sjálfsögð á sínum tíma. Á þessum tíma var alls ekki sjálfgefið að fólk væri læst og að allir kynnu ensku. Þannig gátu teikningar höfðað til stærri markhóps Levi’s 501. Frægasta varan frá þessu merki eru klárlega Levi’s 501 gallabuxurnar sem hafa verið á mark­ aðinum í 110 ár. Þetta eru buxurnar sem að Levi’s höfðu verið að fullkomna í 30 ár. Buxurnar voru ekki þær sömu og þær sem höfðu verið gerðar fyrir námumenn í San Fransisco. Það var búið að fjarlægja festingarnar fyrir axlaböndin, setja lykkjur um mittið fyrir belti, nú voru tveir vasar að aftan og rauður miði merktur Levi’s saumaður í hægri rassvasann. Frá 1930 og til dagsins í dag hafa þær breyst

Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

lítillega. Í dag er búið að fjarlægja bronshnappana af rassvösunum vegna þess að þeir áttu til að skemma sessur og sæti, og aftari vasarnir hafa færst frá ytri lærum inná rassinn. Hvað gerir Levi’s svona Sérstakt merki? Levi’s buxur hafa lengi verið á markaðinum og búið er að prófa hvað virkar og hvað ekki í sambandi við endingu, gæði og þægindi. Það er ekki rennilás í klofinu vegna þess að rennilásinn bilar frekar heldur en hnapparnir sem eru á buxunum. Lengi hefur verið slagorð hjá Levi’s “Shrink to fit”. Þetta er alveg sönn orð. Þegar þú kaupir nýjar Levi’s 501 buxur sem aldrei hafa verið þvegnar munu þær mótast þinni lögun með tímanum. Minnka þar sem þær eiga að minnka og teygjast þar sem þær eiga að teygjast. Einnig dofnar liturinn í þeim eftir því hvernig þú berð þig. Ef að veskið er alltaf í hægri rass vasanum verður hægri rass vasinn ljósari þar sem veskið hefur verið. Þannig verða buxurnar persónulegar hverjum og einum. Saumarnir og tvinninn eru valdir sérstklega til endingar. Innri saumurinn er svo kallaður “mock­ Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

30 | Askur


felled inseam” sem þýðir að efnið er saumað saman í brot­ um sem halda buxunum betur saman.

vatni og jafnvel að þrengja þær við lærin þannig að skálmarnar voru út víkkaðar. Í kjölfar þess fóru í framleiðslu buxur sem búið var að aflita. Fólk gat nú nælt sér í buxur sem voru dökkbláar, skærbláar og ljósbláar á litinn. Þegar leið á níunda áratuginn voru Levi’s gallabuxur jafn sjálfsagður hlutur og einlitir sokkar í fataskáp fólks um allan heim. Þegar aldarmótin nálguðust féll sala á Levi’s buxum vegna harðar samkeppni. Aðrir aðilar buðu uppá gallabuxur úr gerviefni á lægra verði sem heillaði marga. Slíkar vörur kallast hraðtísku flíkur. Hraðstísku fatnaður er úr ódýrara eða svo kölluðu gerviefni. Þetta er efni sem þolir minna álag, framleitt við lélegar aðstæður í löndun eins og Taílandi og Víetnam af fólki á litlu sem engu kaupi. Þess vegna eru flíkur frá merkjum eins og Primark og H&M mun ódýrari en annars staðar. Í dag má finna Levi’s verslanir í flestum stór­ verslunum um allan heim. Árið 2019 var seinustu Levi’s verksmiðjunni í Bandaríkjunum lokað. Í dag eru buxurnar framleiddar í Japan. Ástæðan er sú að millurnar sem vefa gallaefnið eru í Japan og það sparast hellingur á því að flytja buxurnar milliliðalaust til landa.

Tískuflíkin Levi’s Levi’s gallabuxur urðu tískuflík þegar Elvis Presley var mættur í verkamannafötum frá Levi’s í Jail­ house Rock og þegar ofsatöffarar á borð við Marlon Brando, John Wayne og James Dean sáust á stóra sviðinu í 501 gallabuxum. Það varð allt verra en vitlaust. Fræg er sagan af því þegar Blúsinn og Country tónlistin eignuðust afkvæmið sem skýrt var Rokk. Rokkið og Levi’s hafa alltaf náð vel saman. Buxurnar urðu tákn frelsis og mótþróa eins og rokkið. Vinsældir jukust með árunum, svo mikið að verksmiðjur í Bandaríkjunum fjölguðu úr 16 í 63 frá árunum 1964­1974. Helstu breytingar á sjöunda áratug tuttugustu aldar var liturinn. Fólk tók upp á því að aflita buxurnar, sem voru eingöngu framleiddar dökkbláar, með klóri og Ljósm.: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Askur | 31


Ljósm.: Pxhere.com

HRAFNAR Í NÁTTÚRU ÍSLANDS Staðhættir

Hrafninn, þessi stóri hröfnungur er eini innlendi fulltrúi ættar sinnar á Íslandi. Allir þekkja krumma sem er bæði elskaður og hataður af þjóðinni. Hann er stærstur allra spörfugla, sterklega byggður, með fremur langa og breiða fingraða vængi og fleyglaga stél. Hann er alsvartur, fullorðinn hrafn er með græna gljáandi slikju á höfði og að ofan, úfnar fjaðrir á hálsi og fiðraðar skálmar. Flug hrafnsins er þróttmikið, vængjatökin djúp og hann flýgur beint og oft hátt og lætur sig svífa á þöndum vængjum. Lætur sig oft falla með aðfellda vængi og leikur alls kyns fluglistir. Hoppar gjarnan jafnfætis. Hrafnar eru félagslyndir og halda sig í hópum eða pörum.

Hrafninn er staðfugl og einn fárra fugla sem sjást á Miðhálendinu á veturna. Varpheimkynni hans eru um mikinn hluta norðurhvels jarðar en hann er þó orðinn fáséður víða þar sem þéttbýlast er. Hrafninn verpur í klettum, giljum og hraunum á láglendi, en er sjaldgæfur ofan 400 m hæðarlínu. Á Suðurlandsundirlendi og víðar verpa hrafnar á alls konar mannvirkjum: súrheysturnum, raf­ magnsmöstrum, auðum útihúsum o.fl., hafa einnig orpið í trjám. Hreiðrið er mikill laupur úr alls kyns drasli, gripabeinum, sprekum og gaddavír, fóðrað með ull og fjöðrum og er því valinn staður á syllu eða í skúta.

Fæða og fæðuhættir

Alemnnar Upplýsingar um hrafna. (01.11.2020).

Krummi er alæta, etur hræ, úrgang, egg og unga, skordýr og ber, fangar jafnvel fullorðna fugla. Auðvelt er að hæna hrafna að með matgjöfum og eru þeir sólgnir í flest allt sem fyrir þá er borið, þó helst fitu.

Sótt af www.fuglavefur.is/birdinfo.php?val=1&id=27


Hrafnar í þjóðtrú

Hrafnar eru mjög gáfaðir

Í miðaldakveðskap og íslenskum fornsögum birtist hrafninn fyrst og fremst sem spáfugl og fyrirboði, og er í nánum tengslum við minnið um hræfuglinn. Hræfuglinn er þar einkum fugl vígvallarins, heillafugl vígamannsins á leið til or­ rustu. Fugl vígvallarins birtist ekki í þjóðsögum og sögnum, enda söguheimur þeirra gjörólíkur sagnaheimi eddukvæða og fornsagna. Hrafninn boðar fólki vissulega feigð í þjóðsögum, en hræfuglinn birtist þar ekki á föllnum vígamönnum, heldur mönnum sem farast af slysförum, svo og skepnum. Í íslenskum þjóðsögum er dregin upp fremur dökk mynd af hrafninum og er hann fyrst og fremst feigðarboði, en einnig hræfugl og heljar­ fugl. Í þjóðsögunum blandast saman ýmis minni tengd honum. Hrafnar Óðins skildu mál manna og guða og fluttu Óðni tíðindi, en minnið um fuglamál er ævafornt. Í íslenskum þjóðsögum eru það aftur á móti menn sem skilja hrafnamál. Það er athyglisvert að flestir eru þeir prestar sem sagðir eru framsýnir og forspáir og jafnvel taldir til einstakra galdramanna. Þar koma meðal annarra við sögu þeir séra Eiríkur í Vogsósum og séra Hálf­ dán á Felli og jafnvel sjálfur Sæmundur í Odda.

Þegar það kemur að gáfum þá eru hrafnar í flokki með simpösum og höfrungum. Lagt hafa verið flókin próf fyrir hrafninn og hefur hann staðið sig afskaplega vel í slíkum prófum. Þau sýna að hann hefur óvenju góða rökhugsun. Í náttúrunni hefur það komið fyrir að fuglinn hefur hent steinum í hausinn á fólki til þess að halda því frá hreiðrinu sínu, stolið fiski af mönnum sem dorga og þóst vera dauðir við lík annarra dýra til þess að hræða aðra frá hræinu svo þeir geti setið einir að góðgætinu. Ef hrafninn tekur eftir því að annar hrafn er að fylgjast með honum fela mat, þá á hann það til að þykjast fela matinn á einum stað en setur hann á annan svo hinn sjái ekki. En þar sem hinn hrafninn er ansi klókur líka þá virkar þetta bragð ekki alltaf hjá þeim. Hrafnar í Þjóðtrú. (05.11.20). Sótt af www.visindavefur.is/leit?q=hrafninn Hrafnar eru mjög gáfaðir. (11.11.20) Sótt af www.ruthoghrefna.wordpress.com/2013/10/29/ nokkrar-ahugaverdar-stadreyndir-um-hrafninn/

Hrafna-Flóki Flóki Vilgerðarson hét maður; hann var víkingur mikill. Hann fór að leita Garðarshólms og sigldi þar út er heitir Flókavarði; þar mætist Hörðaland og Rogaland. Hann fór fyrst til Hjaltlands og lá þar í Flókavogi. Þar týndist Geirhildur dóttir hans í Geirhildarvatni. Með Flóka var á skipi bóndi sá er Þórólfur hét, annar Herjólfur. Faxi hét suðureyskur maður er þar var á skipi. Flóki hafði hrafna þrjá með sér í haf, og er hann lét lausan hinn fyrsta fló sá aftur um stafn. Annar fló í loft upp og aftur til skips. Hinn þriðji fló fram um stafn í þá átt sem þeir fundið landið. Þeir komu austan að Horni og sigldu fyrir sunnan landið. En er þeir sigldu vestur um Reykjanes og upp lauk firðinum svo að þeir sáu Snæfellsnes þá ræddi Faxi um: „Þetta mun vera mikið land er vér höfum fundið, hér eru vatnföll stór.“ Síðan er það kallaður Faxaós.

Askur | 33


Geir Marin inóó Önn nnu uson

34 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


kynn nnin ing g KYNNING

st a dd re a tt Þe

Ég heiti Geir Marinó Önnuson, fæddur þann 19. desember árið 2002, uppalinn í Kópavogi og enn að stækka í Breiðholtinnu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að teikna og hef ennþá stafla af myndum síðan í leikskóla. Tónlist er mikill partur í lífi mínu því ég er yfirleitt að hlusta á eitthvað sama hvað frá Elton John til Sabaton eða frá rappi til metals. Ég trúi að góð tónlist sé læknandi og góð fyrir sálina sama hvern þig líkar við.

Ég er enn ekki alveg viss um hvernig ég kom mér í þetta nám en ég vissi að ég vildi gera eitthvað til að klóra þennan listakláða inn í mér. Þegar ég prófaði hönnun á leið í stúdentinn þá fannst mér að ég ætti að prófa eitthvað nýtt. Því ég er enn bara 17 ára og hef ekki mikla reynslu utan skólans þannig ég hef enga góða sögu um leiðangurinn minn í gegn um lífið. Ég veit að ég hef mikla ástríðu fyrir list og hönnun.

Askur | 35


Indie Games Indí (indie) tölvuleikur er tölvuleikur sem venju– lega er búinn til af einstaklingum eða minni þróunarteymum án fjárhagslegs og tæknilegs stuðnings stórs leikjaútgefanda, öfugt við flesta „AAA“ (þrefalda-A) leiki. Vegna sjálfstæðis og þróunarfrelsis beinast indie leikir oft að nýsköpun, tilraunakenndri spilamennsku og áhættu sem venjulega er ekki veitt í AAA leikjum og geta kannað miðilinn til að framleiða einstaka reynslu í leikjum. Hugtakið „indie leikur“ sjálft er byggt á svipuðum hugtökum eins og sjálfstæð kvikmynd og sjálfstæð tónlist, þar sem hugtakið er oft tengt sjálfsútgáfu og sjálfstæði frá helstu vinnustofum eða dreifingaraðilum. Hins vegar, eins og bæði með indímyndir og tónlist, er engin nákvæm, almennt viðurkennd skilgreining á því hvað telst sem „indie leikur“ fyrir utan að falla langt

36 | Askur

utan marka AAA tölvuleikjaþróunar og stórra útgefenda. Önnur leið til að meta leik sem indie er að skoða þróunarlið hans þar sem indie leikir eru þróaðir af einstaklingum, litlum teymum eða litlum sjálfstæðum fyrirtækjum sem oft eru sérstaklega mynduð til að þróa einn tiltekinn leik. Venjulega eru indie leikir minni en almennir titlar. Framleiðendur Indie-leikja eru almennt ekki studdir fjárhagslega af tölvuleikjaútgefendum, sem eru áhættufælnir og kjósa „stórfjárhagsleiki“. Þess í stað hafa forritarar af indíleikjum venjulega minni fjárhagsáætlanir, venjulega frá persónulegum sjóðum eða með hópfjármögnun. Vegna þess að leikjahönnuðir eru sjálfstæðir hafa þeir ekki ráðandi hagsmuni eða skapandi takmarkanir, og þurfa ekki samþykki útgefanda, eins og almennir leikjahönnuðir gera venjulega. Hönnunar ákvarðanir eru þannig ekki heldur takmarkaðar af fjárhagsáætlun fyrirtækis.


Áhrif Indie tölvuleikja Indie leikir eru viðurkenndir fyrir að hjálpa til við að búa til eða endurlífga tölvuleikja stefnur, færa nýjar hugmyndir í annaðhvort stöðnuð leikhugmyndir eða skapa alveg nýja reynslu. Stækkun “rougelikes” og hack and slash leikja með fjölbreytt úrval af svokallaðra “rogue-lites” sem viðhalda roguelike formúlunni og “permadeath” reglunum leið beint frá indie leikjum. Leikir eins og Binding of isaac (2011) og Spelunky (2008) eru fyrirmyndar “rougelikes” leikir gert af einum manni.

Metroidvania er önnur tegund af leikjum sem var dauð í góðan tíma en svo endurfædd af indie verktökum. Hollow knight (2017), The Messenger (2018), Shantae and the pirate’s curse (2014) og Steamworld dig 2 (2017) eru allt frábærir leikir sem endurskilgreina þessa klassíska leiki sem þeir eru byggðir upp úr.

Metroidvania er undirflokkur hasarævintýra tölvuleikja. Hugtakið er samanlagt af leikjaseríunni Metroid og Castlevania. Metroidvania leikir nota leikjahönnun og “mechanics” sem eru svipaðir leikjum úr þessum tveimur seríum.

GóGó Bílaleiga

Jólin eru nærri því komin!!! Tilboð gildir til 1. janúar

ÁN LITA

1/2 síðu auglísing 20% af öllum bílum RASTI í desember í tilefni um jólinn 100%

7

60%

Askur | 37 80% Blikavellir 3, 235 Keflavíkurvöllur • Þorragötu 7, 105 Reykjavík


Hollow Knight var þróaður og gefinn út af Team Cherry og kom út árið 2017. Þróun var að hluta fjármögnuð með Kickstarter hópfjármögnunarherferð og safnaði yfir 5.673.210 kr. í lok árs 2014. Hollow Knight fékk góðar viðtökur af gagnrýnendum og hefur selst í yfir 2,8 milljónum eintökum.

Ari Gibson: Hann rak áður hreyfimynda– stofuna Mechanical Apple og hefur unnið að ótal kvikmyndum, leikjum og tónlistarmyndböndum. Hann gerði grafíkina í leiknum. William Pellen: Hann hefur hannað og smíðað leiki í mörg ár. Hann hefur elskað leiki síðan pabbi hans fann vængstígvélin fyrir hann í Zelda 2 og vill endurskapa þá upplifun af ævintýrum og spennu fyrir annað fólk. Hann forritaði Hollow knight.

Hollow knight er 2D Metroidvania sem fylgir nafnlausum riddara þar sem þeir fara um plága-smitað ríki byggt af ýmsum skordýrum, þekkt sem Hallownest. Riddarinn verður að ferðast um Hallownest, berjast við pöddur og opna nýja hæfileika til að komast áfram, þar sem þeir afhjúpa leyndardóma konungsríkisins.

Christofer Larkin gerði tónlistina fyrir hollow knight og það mætti segja að tónlistin segir söguna. Sagan byrjar með mjúkum píanótónum sem bergmála Hollow Knight þemað og þegar spilarinn kannar frekar, koma yfirgnæfandi symphóníur sem fyllir spila– rann af undri.

Team cherry er liðið á bakvið Hollow Knight þeir eru Ari Gibson með gullfallegu teikningarnar sínar, William Pellen sem hannaði leikinn og seinna kom Jack vine sem forritaði leikinn.

38 | Askur

8


Góðir indie leikir Þó Hollow knight er meðal eitt af uppáhalds leikjum mínum eru aðrir góðir indie leikir. Super Meat Boy kemur til huga sem byrjaði sem lítill leikur á netinu sem fékk svo mikla athygli að Nintendo og Microsoft borguðu skaparanum (Edmund Mcmillen) að gera nýjan leik fyrir leikjatölvurnar þeirra. Super Meat Boy vann til nokkurra verðlauna og hefur verið nefndur einn besti tölvuleikur allra tíma. Gagnrýnendur lofuðu stjórn leiksins, grafíkina, tónlistina og krefjandi spilun. Spilamennskan einkennist af fíngerðri hreyfingu og tímasetningu þar sem leikmaðurinn hleypur og hoppar í gegnum yfir 300 hættuleg borð meðan hann forðast hindranir. Leikurinn fær mikinn innblástur frá sígilda leik Shigeru Miyamoto, Super Mario Bros. Leikurinn seldist í yfir milljón eintökum fyrir janúar 2012 og hóf feril Edmund Mcmillen í tölvuleikjabransanum. Framhaldsleikur, Super Meat Boy Forever, er í þróun.

Shovel Knight er 2D platformer sem var gefin út af yacht club games, hönnuðurinn Nick Wozniak fullyrti að hugmyndin að leiknum byrjaði sem „eins og brandarasamtal yfir hádegismatinn sem varð of alvarlegt.“ Liðið hafði þegar ætlað að gera leik í stíl við NES klassíkina Legend of Zelda II: The Adventure of Link. Þeir héldu fljótt að þessi ráðstöfun myndi henta betur í leik þeirra fyrir skóflu öfugt við sverð og hugmyndin um Shovel Knight fæddist. Leikurinn var tilkynntur 17. mars 2013 samhliða því að Kickstarter herferð hófst til að fjármagna þróun, með lágmarksfjármögnunar– markmið 10 milljónir kr. Leikurinn var upphaflega áætlaður til útgáfu í september 2013, en honum var seinkað til snemma árs 2014. Eftir ýmsar frekari tafir tilkynntu Yacht Club Games að leikurinn yrði gefinn út 26. júní 2014. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda, unnið til ýmissa verðlauna og er talinn einn besti tölvuleikur allra tíma.

Minecraft er 3D sandkassaleikur sem hefur engin sérstök markmið og gerir leikmönnum mikið frelsi í vali á því hvernig þeir spila leikinn. Þróaður af Mojang Studios. Leikurinn var upphaflega búinn til af Markus “Notch” Persson á Java forritunarmálinu. Það er klikkað að hugsa að Notch hafði búið til lítið demo eina helgi og það myndi enda með að vera mest seldi tölvuleikur allra tíma. 200 milljónir eintaka seld og 126 milljónir virka notenda mánaðarlega frá og með 2020. Minecraft er orðin það stór leikur að hann fer alls ekki framhjá neinum, hann er talinn frægasti leikur allra tíma. Árhif Minecrafts á nútíma dægurmenningu, sérstaklega í tölvuleikjum, er mjög greinileg.


40 | Askur

10


Donald Childish Glover Gambino Þýðing: Geir Marinó | 2020,18.11 | Donald Glover | Sótt af www.wikipedia.org

Donald McKinley Glover Jr. (fæddur 25. september 1983) er bandarískur leikari, söngvari, rappari, grínisti, handritshöfundur, framleiðandi og leikstjóri. Hann semur tónlist undir sviðsnafninu Childish Gambino og stundum sem plötusnúður undir nafninu mcDJ. Eftir að hafa unnið við Derrick Comedy meðan hann stundaði nám við New York háskóla var Glover ráðinn 23 ára að aldri af Tina Fey sem rithöfundur fyrir NBC sitcom 30 Rock. Hann varð síðar frægur fyrir að leika háskólanemann Troy Barnes í NBC þáttunum Community frá 2009 til 2013. Síðan 2016 leikur Glover í FX seríunni Atlanta sem hann bjó til og stýrir af og til. Fyrir störf sín við Atlanta vann Glover ýmsar viðurkenningar, þar á meðal tvö Primetime Emmy verðlaun og tvö Golden Globe verðlaun. Í kvikmyndaheiminum hefur Glover komið fram í fjölda vel heppnaðra kvikmynda, þar á meðal yfirnáttúrulega hryllinginn The Lazarus Effect (2015), gamanmyndina Magic Mike XXL (2015), vísindaskáldskapnum The Martian (2015), ofurhetjumyndin Spider- Man: Homecoming (2017), þar sem hann lék Aaron Davis, og geim-vestræna kvikmyndin Solo: A Star Wars Story (2018), þar sem hann lék ungan Lando Calrissian. Glover lék í og framleiddi sína eigin stuttmynd Guava Island (2019). Hann talaði fyrir Simba í endurgerð Disney-myndarinnar The Lion King

Í kjölfar nokkurra sjálfstæðra útgáfuplata og mixtapes samdi Glover við Glassnote Records árið 2011. Hann sendi frá sér sína fyrstu stúdíóplötu, Camp, 15. nóvember 2011. Önnur stúdíóplata hans, Because the Internet, kom út 10. desember 2013 og platan hlaut Grammy tilnefningu sem besta rappplata.. Þriðja plata Glover, „Awaken, My Love!“, Kom út 2. desember 2016 og lagið „Redbone“ náði fyrsta sæti á Billboard Hot 100 og skilaði honum að lokum fyrstu Grammy verðlaununum. Í maí 2018 sendi Glover frá sér lagið og tónlistarmyndbandið „This Is America“ sem lenti í fyrsta sæti á Hot 100. Lagið hlaut fjögur Grammy verðlaun við athöfnina 2019: Record of the Year, Song of the Year, Best Rap/Sung Performance and Best Music Video. Hinn 22. mars 2020 sendi hann frá sér sína fjórðu stúdíóplötu 3.15.20. Í júlí 2013 skráði Gambino sig til að búa til tónlistarþátt fyrir FX sem ber titilinn Atlanta, röð sem frumsýnd var 6. september 2016 og sem hann leikur í, skrifar og framkvæmir. Þar af leiðandi ákvað hann að draga úr starfi sínu fyrir NBC og kom aðeins fram í fimm þáttum af fimmta þáttaröð Community, sem er í 13 þáttum. Hlutverk hans var skert til að vinna meira að tónlistarferlinum. Árið 2017 var Glover með á árlegum Time 100 lista yfir áhrifamestu menn í heimi.

Askur | 41


THE LIFE OF THE LIFE OF THE LIFE OF THE LIFE OF THE LIFE OF THE LIFE OF

PABLO PABLO PABLO PABLO PABLO PABLO

THE LIFE OF

PABLO WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE WHICH / ONE

42 | Askur

12


Kanye West

STÖNDUM

SAMAN

Þýðing: Geir Marinó | 2020,18.11 | Kanye west | Sótt af www.wikipedia.org

Kanye Omari West (fæddur 8. júní 1977) er bandarískur rappari, hljóm– plötuframleiðandi og fatahönnuður. West fæddist í Atlanta og ólst upp í Chicago og var fyrst þekktur sem framleiðandi Roc-A-Fella Records snemma um 2. áratug og framleiddi smáskífur fyrir nokkra fræga listamenn. West ætlaði sér að stunda sólóferil sem rappari og sendi frá sér frumútgáfu sína The College Dropout árið 2004 sem náði fram gagnrýnum og fjárhagslegum árangri og stofnaði plötufyrirtækið GOOD Music.

1. og 2. desember

2020 í Hörpu

West er einn mest seldi tónlistarmaður heims, með meira en 20 milljónir platna og 140 milljónir smáskífa seldar um allan heim. Alls hefur hann unnið til 21 Grammy verðlauna sem gerir hann að einum verðlaunaða listamanni allra tíma. Meðal annarra verðlauna hans eru Billboard Artist Achievement Award, sameiginleg met, þrjú Brit verðlaun fyrir besta alþjóðlega karlkyns einleikara og Michael Jackson Video Vanguard verðlaunin. Sex af plötum hans hafa verið með á lista yfir 500 bestu plötur allra tíma hjá Rolling Stone; sömu útgáfu útnefndi hann einn af 100 stærstu lagahöfundum allra tíma. West er bundinn handhafi flestra platna (fjórar) í efsta sæti árlegrar skoðanakönnunar Pazz & Jop. Tímaritið Time útnefndi hann einn af 100 áhrifamestu mönnum heims 2005 og 2015. Tónlistarferill West er skilgreindur með tíðum stílbreytingum og mismunandi tónlistaraðferðum. Næstu árin frá frumraun sinni hefur West bæði tónlistarlega og lýrískt tekið tilraunir sífellt til að búa til framsækna hip hop tónlist og viðhalda aðgengilegri popp stefnu. Hann hefur kynnt nýja tónlistarþætti og óhefðbundna viðmiðunarpunkta með hverri plötu. Yfirlýsingar West og líf utan tónlistar hafa fengið verulega athygli fjölmiðla. Hann hefur verið tíður uppspretta deilna vegna framkomu sinnar á verðlaunasýningum, á samfélagsmiðlum og í öðrum opinberum stillingum, svo og fyrir ummæli sín um tónlistar- og tískuiðnað, stjórnmál Bandaríkjanna og kynþátt. Árið 2020 rak hann misheppnaða sjálfstæða forsetaherferð sem beitti sér fyrir stöðugum lífsanda. Kristin trú hans, svo og hjónaband hans við sjónvarpsstjörnuna Kim Kardashian, hafa einnig vakið athygli fjölmiðla. Sem fatahönnuður hefur hann unnið með Nike, Louis Vuitton og A.P.C. á bæði fatnað og skófatnað og hafa áberandi mest skilað Yeezy samstarfi við Adidas frá og með árinu 2013. Hann er stofnandi og yfirmaður skapandi innihaldsfyrirtækisins DONDA.

Kauptu miða á

stöndumsaman.is


Hörður Helgi Hall llg grimss sson on

44 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


kynn nnin ing g KYNNING

is th e in r a oth we b ; e than rs e t v i tan n r u o p s s” i u m i th in of re o s t i r m yson a e T s p s e er ap asse r v r h i a r n e u pe d eG e t l i u th “W e at N e, b th s r s e v s, i t uni c a ef s o of th

Hörður Helgi heiti ég en flestir kalla mig Hödda. Ég er 27 ára gamall fæddur og uppalinn á paradísareyju sem ber nafnið Heimaey. Já ég er eyjapeyji sem villtist í borg óttans! Allt frá því að ég man eftir mér ætlaði ég mér að verða kokkur og starfaði lengi við það en eftir örlagaríkt sumar 2014 brann ég yfir og neistinn fyrir matargerð hvarf. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera, allt í einu var draumurinn horfinn sem ég hafði haft frá barnæsku. Ég prófaði ýmis nám en ekkert hentaði mér og fór ég því á hinn almenna vinnumarkað þar sem ég starfaði við allt frá sjómennsku yfir í að vera rekstrarstjóri á litlum hverfisbar og hverfisbúð. Seint á árinu 2018, eftir gott spjall við bróðir

minn, ákvað ég að prófa eitt nám til viðbótar og sjá hvort ég myndi finna mig í því og varð grafísk miðlun fyrir valinu. En hann hafði sjálfur útskrifast úr því námi 2017 og hafði ekkert nema gott um það að segja. Ég hóf svo nám í janúar 2019 og sá strax að þarna var eitthvað sem ég hefði svo sannarlega gaman að. Ég lærði í grunninn vefsíðu kóðun, myndvinnslu, umbrot og hönnun. Ég hugsaði með mér að núna væri ég loksins á réttri braut og viti menn það er korter í útskrift! Leiðin að útskriftinni hefur samt ekki verið auðveld og hafa margar hindranir staðið í vegi fyrir mínum með erfiðisvinnu og miklum fórnum er þetta að detta í hús.

Askur | 45


Vestmannaeyjar Vestmannaeyjar eru eyjaklasi suður af Íslandi. Þær samanstanda af 15 eyjum og 30 skerjum og dröngum. Heimaey er eina byggða eyjan allt árið um kring. Elstu heimildir um Vestmannaeyjar eru í Land­ námu, sem segja frá Ingólfi Arnarsyni, fyrsta land­ námsmanni Íslands. Þegar hann kom til landsins dvaldist hann einn vetur á Ingólfshöfða. Á ferð sinni í leit að öndvegissúlum sínum fann hann bæ Hjörleifs, fósturbróður síns, og var hann þar nýlátinn. Úti af Hjörleifshöfða sá hann báta með hinum írsku þrælum Hjörleifs en bátarnir stefndu að eyjaklasa suður af Landeyjum. Eyjarnar voru þá nefndar eftir þrælunum en Írar voru kallaðir Vestmenn á þessum tíma. Ingólfur elti þrælana uppi og drap þá og eru mörg örnefni á eyjunum gefin eftir þeim, til dæmis er Helgafell nefnt eftir Helga sem var veginn þar og Dufþekja í Heima­ kletti er nefnd eftir Dufþaki, sem sagður er hafa stokkið þar niður til þess að komast hjá því að falla fyrir sverði Ingólfs. Fyrsti landnámsmaður eyjanna er sagður vera

Herjólfur Bárðarson, en hann bjó í Herjólfsdal. Föst búseta í Vestmannaeyjum hófst seint á land­ námsöld, um 920, en eins og segir í Sturlubók „var þar veiðistöð og lítil veturseta eða engin“ fyrir þann tíma. Fram á miðja 12. öld voru eyjarnar í eign bænda. Rétt eftir árið 1400 komust Vestmannaeyjar í einkaeign Noregskonungs og síðar Danakonungs. Eyjarnar voru sérstakt lén og ríktu þar jafnvel önnur lög en á Íslandi. Vestmannaeyjar voru í konungseign út allar miðaldir til ársins 1874 og voru þær alla tíð stærsta tekjulind krúnunnar. Íbúafjöldi Vestmannaeyja hefur tekið þrjár stórar dýfur í gegnum aldirnar. Fyrst var um helmingsfækkun að ræða þegar um þrjú hundruð manns voru numin á brott í Tyrkjaráninu árið 1627. Öðru sinni var vegið að eyjaskeggjum í ungbarnadauðanum á 18. öld. Svo var það á 20. öldinni í Heimaeyjargosinu árið 1973 þegar á meira en 6 mánaða skeiði bjuggu eingöngu um 200 manns á Heimaey, en þegar gosið hófst voru þeir um 5.100. Nú er bæjarbúar um 4.300. Markaðsstofa Suðurlands. (e.d). Vestmannaeyjabær. Sótt af www.south.is/is/south/town/vestmannaeyjar­westman­islands

46 | Askur


Afþreying Eldheimar

Volcano ATV

Eldheimar er gosminjasýning. Sýningin miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973, sem án efa telst til stærstu náttúruhamfara Íslandssögunnar. Skyggnst er inn í mannlífið og umhverfið í Vestmannaeyjum fyrir gos og hvernig náttúruhamfarirnar 1973 gripu inn í samfélagið og líf fólksins.

Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna um söguslóðir Vestmannaeyja á skemmtilegum fjórhjólum. Fjórhjólin eru sjálfskipt og auðveld í akstri og þarf því enga sérstaka reynslu á þau. Öll fjórhjólin eru 2ja manna og þarf ökumaður að hafa meðferðis gilt ökuskírteini, farþegar aftan á fjórhjólunum þurfa að vera 6 ára eða eldri.

Sagnheimar - byggðasafn

Vestmannaeyjar Boat tours

Sagnheimar eru nýtt safn sem byggir á gömlum merg byggðasafnsins. Margmiðlun er nýtt í viðbót við safnmuni til að segja einstaka sögu Vestmannaeyja, má þar nefna: Heimaeyjargosið 1973 Tyrkjaránið 1627 Sjávarútvegur

Njóttu þess að sigla í kringum Heimaey í Vestmannaeyjum og fá náttúruna og söguna okkar beint í æð. Siglingin tekur um 1,5 tíma og á meðan á henni stendur segjum við ykkur frá sögu Vestmannaeyja, um gosið okkar, skemmtisögur úr Eyjum og fleira.

Vertu helvíti flottur um jólin Kölski sér til þess að þú og þínir verða flottir um jólin

GJAFA

Kíktu til okkar og fáðu sér­ saumuð jakkaföt á frábæru verði Gjafabréfin og gjafakassinn eru tilvalin í jólapakkann

BRÉF

Upphæð

Handhafi F.H. Kölska

Þetta gja

fabréf gild

ir eingön

Gildir til:

gu fyrir han

dhafa þes

s.

KOLSKI@KOLSKI.IS | SÍMI 766 6555 | KOLSKI.IS | ÁRMÚLA 40 | 108 REYKJAVÍK


Heimaeyjargosið Heimaeyjargosið hófst 23. janúar 1973 og var því lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi. Giftusamlegri björgun á fólki og stórum hluta af eignum er minnst þegar gosið er rifjað upp. Þó að nú á 21. öldinni rísi upp kyn­ slóð, sem ekki upplifði atburðina örlagaríku, eru þeir þó greyptir í hjörtu Eyjamanna. Minning­ arnar lifa og munu fara frá manni til manns. Þannig hefur gosið grópað huga Eyjamanna og er eitt af því sem gerir íbúa Heimaeyjar einstaka. Öfugt við bjartsýni Eyjamanna í byrjun ársins 1973 voru jarðfræðingar ekki bjartsýnir varðandi hið nýja eldgos. Fyrstu dagana var gosið dæmigert sprungugos. Sprungurnar voru 1600 metra langar og röðuðu sér þar 30­ 40 gígar. Hraunflygsur sáust þeytast upp í 600 metra hæð og hraunkúlur flugu að minnsta kosti 2500 metra upp í loftið. Stundum rigndi glóandi flygsum í svo miklu magni og svo títt á ytri veggi eldfjallsins að ýmsir héldu að um hraunstrauma væri að ræða. Hraunkvikan leitaði út í sjó og kom það sér vel fyrir byggðina og innsiglinguna. En það var aðeins fyrstu dagana. Ekki leist mönnum á

blikuna í byrjun febrúar þegar neðansjávar sprunga opnaðist við hafnarmynnið. Frá 4.­20. febrúar var höfninni lokað og umferð bönnuð. Höfnin lokaðist þó ekki en hraunstraumurinn reyndi aftur á taugar manna með straumi í hafnarmynnið frá 9. mars. Þá hafði hraunkælingin sitt að segja. Í lok febrúar safnaðist hraun saman norðan við gígmynnið. Varnargarðar höfðu verið byggðir til varnar bænum og höfninni. Hraunið tók að streyma í tungu frá gígmynninu og ógnaði varnargörðunum. Ekki var hægt að dæla á hrauntunguna sökum þess að vegalengdin frá sjó var of mikil. Þess vegna gerðist það aðfaranótt 18. mars að varnar­ garðurinn brast með þeim afleiðingum að 10 hús fóru undir. Næstu daga fóru enn fleiri hús undir hraun. Verst var áhlaup 300 metra breiðrar tungu fimmtudagskvöldið 22. mars sem fór yfir 70 hús og stöðvaðist niðri á Heimagötu. Ótrúlegt fyrirbæri varð til í marsmánuði, Flakkarinn. Þetta fyrirbæri, risavaxinn hraunklettur, brotnaði úr eld­ keilunni og flaut ofan á hrauninu í átt að höfninni. Flakkarinn, svokallaði, nam staðar áður en hann olli allt of miklum usla. Heimaslóð. (e.d). Heimaeyjargosið. Sótt af http://www.heimaslod.is Myndir eftir Sigurgeir Jónasson

Goslokahátíðin er hátíðleg haldin fyrstu helgina í júlí. Þá er goslokanna á Heimaey minnst með ýmsum hætti, svo sem harmoníkuleik og öðru skralli í krónum í Skvísusundi og Skipasandi. Þessi hátíð er minni í sniðum en Þjóðhátíðin, en mun nánari og fjölskylduvænni. Gamlir Eyjamenn snúa aftur frá meginlandinu til þess að endurnýja gömul kynni, og viðstöðulausri dagskrá er haldið uppi víða um bæinn með málverkasýningum, leikrænum tilburðum og öðrum listrænum gjörningum. Gjarnan eru listaverk vígð á goslokahátíðinni og þau þá annaðhvort gefin bænum eða sýnd tímabundið.

48 | Askur


Þjóðhátíð Vestmannaeyja Fyrsta þjóðhátíðin

Þjóðhátíð eins og við þekkjum hana

Fyrsta Þjóðhátíðin var haldin sunnudaginn 2. ágúst árið 1874 í Herjólfsdal. Þá mættu í dalinn um 400 manns um hádegisbilið, reistu tjöld við suðurhlið tjarnarinnar og hlóðu veisluborð úr torfi og grjóti vestan við tjaldbúðirnar. Það sjást enn leifar af því nálægt hringtorginu. Tjöldin og Herjólfsdys voru prýdd fánum og borðum.

Í dag er þjóðhátíðin í Eyjum stór og mikil hátíð þar sem ÍBV ­ íþróttafélag byggir upp ævintýralega smáborg í Herjólfsdal sem hverfur svo nánast sporlaust fjórum dögum síðar. Þar er boðið upp á tónlistarveislu þar sem vinsælustu hljómsveitir landsins hverju sinni stíga á stokk og gleðja hátíð­ argesti allan sólarhringinn. Flugeldasýning, brenna á Fjósakletti og brekkusöngur er meðal þess sem boðið er upp á. Hin sérstæðu hvítu hústjöld setja líka sterkan svip sinn á dalinn þar sem heimamenn setja upp tjöldin sín á skipulagðan hátt þar sem að hver röð tjalda myndar götu og hvert tjald hefur númer eða nafn. Þar hafast menn við í gegnum allar tegundir veðurs og næra sig á lunda og kjötsúpu. Þar er oft á tíðum dvalið fram í dagrenningu við gítarspil og söng.

Þorsteinn Jónsson flutti minni konungsins, og var eftir það hleypt af 9 fallbyssuskotum, sem bergmáluðu vel í fjöllunum í kring. Að því loknu flutti séra Brynjólfur Jónsson minni Íslands og Þorsteinn Jónsson flutti minni Jóns Sigurðssonar. Borðað var vel og kaffi drukkið, og upp frá því hófst dansleikur undir berum himni með söng og tralli, sem stóð fram undir miðnætti. Ölvun var að sögn viðstaddra lítil, og allt fór vel fram. Eftir þessa þjóðhátíð var hún haldin nokkrum sinnum í viðbót, en þá yfirleitt um miðjan ágúst. Um 1901 hafði hátíðarhaldið þróast á þá leið að kappróður var orðinn einn dagskrárliða. Eftir kappróðurinn var gengin skrúðganga inn í dalinn og hann skreyttur. Flutt var minni konungs, Íslands og Vestmannaeyja, og hófust þá íþróttaviðburðir: glíma, kapphlaup, og fleira. Síðar um kvöld voru kaffiveitingar og sódavatn á boðstólum í tjöldunum, en áfengi stóð ekki til boða. Frá þeirri Þjóðhátíð hefur hún verið haldin nánast óslitið.

Þjóðhátíðarlagið Á hverju ári er sérstakt lag samið til þess að vera einkennislag Þjóðhátíðarinnar það árið. Þessi hefð hefur haldist frá árinu 1933. Oddgeir Kristjánsson samdi lögin fyrstu áratugina en eftir fráfall hans hafa margir komið að því að semja lögin. Mikil eftirvænting er í bæjarbúum og áhugamönnum fyrir afhjúpun lagsins ár hvert. Misjafnar skoðanir eru á lögunum, en flestir eru sammála um ágæti laganna, sérstaklega eftir verslunarmannahelgina.

Heimaslóð. (e.d). Þjóðhátíð. Sótt af http://www.heimaslod.is Myndir eftir Sigurgeir Jónasson og af http://www.heimaslod.is

Askur | 49


Náttúra Suðurlands Seljalandsfoss Seljalandsfoss er fremsti foss Seljalandsár sem á upptök sín uppi á Hamragarða- og Seljalandsheiði. Fossinn er 65 m. á hæð, fellur fram af fornum sjávarhömrum. Hægt er að ganga í kringum Seljalandsfoss og virða hann fyrir sér frá öllum sjónarhornum. Leiðin getur orðið ansi blaut en þó er alltaf þurrt þegar á bak við fossinn er komið. Beljandi vatnsniðurinn og regnboginn sem ljómar í vatnsflókunum þegar sólin skín á fossinn skapa ógleymanlega upplifun Gljúfrabúi Gljúfrabúi, sem er um 40 metra hár, er í landi eyðijarðarinnar Hamragarða sem Skógræktarfélag Rangæinga fékk að gjöf árið 1962 og er nú í eigu Rangárþings eystra. Ákveðin dulúð er yfir fossinum þar sem hann fellur ofan í djúpa gjá en framan við fossinn er mikill hamraveggur úr móbergi sem lokar fossinn af svo aðeins sést rétt efst í hann. Skógafoss Skógafoss (60m) er talinn meðal fegurstu fossa landsins. Í Skógaá, ofan Skógafoss, eru a.m.k. 20 aðrir fossar, margir fallegir, og það er auðgengt með fram ánni og gljúfrum hennar, hægt er að ganga inn smá gljúfur alveg að hylnum undir fossinum. Skógafoss og áin fyrir ofan og neðan eru friðlýst sem náttúruvætti. Þrasi Þórólfsson var landnámsmaður að Skógum. Hann nam land milli Jökulsár og Kaldaklofsár og var sagður fróður og forn í lund. Jökulsárlón Fyrir 1950 rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km leið til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón myndast. Meðalrennsli árinnar er 250-300 m³/sek. og stórir ísjakar brotna af jökuljaðrinum og eru þeir á floti á vatninu. Lónið er feikidjúpt, a.m.k. 190 m. Áin styttist stöðugt vegna brimrofs og árið 1998 var hún varla meira en 500 m. Farvegur árinnar grefst stöðugt niður, þannig að það gætir sjávarfalla í lóninu. Það þýðir einfaldlega, að hlýrra vatn streymir inn í það á flóði og ísinn bráðnar mun hraðar en fyrrum. Gönguleiðir. (e.d). Seljalandsfoss Sótt af https://www.gonguleidir.is/listing/seljalandsfoss/ Markaðsstofa Suðurlands. Sótt af https://www.south.is Myndir sóttar af https://www.pxfuel.com

50 | Askur


Fjaðrárgljúfur Fjaðrárgljúfur er stórbrotið og hrikalegt, um 100 metra djúpt og um tveir kílómetrar að lengd. Gljúfrið er veggbratt, örlítið hlykkjótt og þröngt. Berggrunnurinn í Fjaðrárgljúfri er að mestu móberg frá kuldaskeiðum ísaldar og telst um tveggja milljóna ára gamalt. Fjaðrá á upptök sín í Geirlandshrauni og fellur fram af heiðarbrúninni í þessu mikilfenglega gljúfri þar til hún skilar sér niður í Skaftá. Fjaðrá er bergvatnsá og ljóst er að hún hefur breyst mikið í tímans rás. Í dag er Fjaðrá oftast frekar vatnslítil og því geta göngumenn hæglega kosið að ganga inn gljúfrið en þá þarf að vaða ánna alloft, innst í gljúfrinu eru fossar svo ganga þarf sömu leið til baka. Flestir velja að ganga eftir göngustíg uppi á gljúfurbarminum og njóta um leið útsýnisins yfir gljúfrið. Fjaðrárgljúfur er á náttúruminjaskrá.

Myndun Fjaðrárgljúfurs Talið er að Fjaðrárgljúfur hafi myndast við lok síðasta jökulskeiðs eða fyrir um níu þúsund árum. Þegar jökullinn hörfaði myndaðist lón í dalnum á bak við bergþröskuld en af­ rennslisvatn úr lóninu rann þar sem nú er Fjaðrárgljúfur. Jökulár frá jaðri jökulsins báru fram mikið af seti í lónið en áin sem rann frá því gróf sig niður í þröskuldinn og ofan í móbergið framan við hann. Þegar vatnsfallið var sem stærst var það öflugt við gljúfurgröftinn. Að því kom að stöðuvatnið fylltist af framburði jökulvatnanna og afl árinnar dvínaði. Þegar stöðuvatnið var orðið fullt hóf áin að grafa sig í setlögin sem hún hafði áður skilið eftir sig í dalnum. Malarhjallar beggja vegna í dalnum segja til um upphaflegu hæð og staðsetningu stöðuvatnsins og djúp rás í móberginu ber þögult vitni um afl náttúrunnar. Örnefnið Fjaðrá hefur oft vafist fyrir mönnum en telja sumir að hér hafi eitt sinn verið fjörður og hafi áin borið nafnið Fjarðará í upphafi.

Askur | 51


Náttúra Vestfjarða Dynjandi Dynjandi er mestur fossa á Vestfjörðum. Hann má finna í Dynjandisvogi fyrir botni Arnarfjarðar. Fossinn og umhverfi hans var friðlýst sem náttúru­ vætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða. Dynjandi er í ánni Dynjandi sem rennur ofan af Dynjandisheiði. Hún á upptök sín í nokkrum vötnum á heiðinni sem liggur í jaðri hálendis­ svæðis Glámu. Glámusvæðið einkennist af jökulruðningum og dældum sem smávötn hafa safnast í. Dynjandi fellur niður u.þ.b. 100 metra hátt og bungumyndað berg. Fossastiginn hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög. Fossberarnir eru hraunlögin en millilögin hefur áin grópað undan þeim. Fossarnir í Dynjanda eru sex. Efst er Fjallfoss, þá Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss. Mynd eftir Diego Delso

52 | Askur

Markaðsstofa Vestfjarða. (ed). Dynjandi Sótt af https://www.westfjords.is/is/westfjords/place/dynjandi


EINSTÖK MATARUPPLIFUN Rauðisandur Rauðisandur er 10 kílómetra löng strandlengja sem einkennist af fallega lituðum rauðum sandi. Liturinn getur verið allt frá því að vera gulur, rauður og allt að því svartur, þetta fer allt eftir birtunni. Sandurinn fær þennan rauða lit líklegast vegna skeljabrota frá Hörpudiskskeljum.

Einsi og hans kokkalið hafa mikla unun af sinni sérhæfingu sem er að töfra fram ljúffenga og framandi rétti

Undirlendið er fremur mjótt og upp frá því rísa fjöll með bröttum hlíðum og háum hömrum. Allmikið sjávarlón, Bæjarvaðall, sker sveitina í sundur og út frá því liggur langt og mjótt lón til vesturs, en framan við það er rif úr rauðgulum skeljasandi og er nokkuð víst að sveitin dregur nafn af sandinum. Tilvalið er að koma á Rauðasand á háfjöru og rölta um sandinn og týna sér í víðáttunni og njóta útsýnisins. Rauðisandur býður upp á frábært útsýni að Snæfellsnesi og þar fær jökullinn að njóta sýn í góðu veðri. Við mælum einnig með því að stoppa á kaffihúsinu!

Markaðsstofa Vestfjarða. (ed). Rauðasandur Sótt af https://www.westfjords.is/is/westfjords/place/raudasandur Myndir eftir Mats Wibe Lund

Askur | 53 Vestmannabraut 28 | 900 Vestmannaeyjar | s 481 1514 | einsikaldi.is


Laura A. Salin inaas Moreno

54 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


kynn nnin ing g KYNNING

ve. a r b e B g thin o N

e. . c s n k e is ri e r p e ho ex l a e e T ak t o tu C i t o s l u ub Pa s can

Hola, ég heiti Laura A. Salinas Moreno og er 26 ára útskriftarnemi í grafískri miðlun. Ég fæddist í Kólumbíu en ólst upp í Kosta Ríka. Ég flutti hingað þegar ég var 11 ára og er búin að búa á Íslandi í 15 ár. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólinn við Hamrahlíð árið 2015. Er einstæð móðir þriggja ára drengs. Það hefur gengið mjög vel að vera móðir, vera í fullu nám og vinna með skóla. Ég hef alla tíð haft áhuga á listum, hönnun og skrautskrift. Á þessum fjórum önnum hef ég lært

mjög margt; að vinna sjálfstætt og geta unnið með öðrum nemendum svo nokkur dæmi séu nefnd. Uppáhalds forritið mitt er Adobe Illustrator og mér finnst gaman að hanna lógó eða grafík og gera “collage pieces”. Oft þegar ég sé logo eða auglýsingar þá fæ og margar hugmyndir hvað sé hægt að breyta og gera betur. Á næstunni stefni ég að sækja um áfram­ haldandi nám í Listaháskóla Íslands og einnig taka sveinsprófi eftir háskóla.

Askur | 55


56 | Askur


Það er nú einu sinni að koma

JÓL

139.995 Philips 55“ UHD Smart TV Android 6 verslanir um allt land ǀ Sími: 569 1500 ǀ Alla virka dagar: 10-18 | 57 Askur


Útlendingar á Íslandi Árið 2019 voru 50.272 útlendingar skráðir hér á landi og þessi tala er að hækka með tímanum samkvæmt heimild “Fréttablaðsins”. Það er stundum spurt: af hverju er fólk að flytja til Íslands? Það eru ýmsar ástæður sem geta legið að baki fólks sem þurfa að taka erfiða ákvörðun að yfirgefa land sitt og búa í nýju landi. Til dæmis koma margir útlendingar hingað í leit að betra lífi með von um að fá vinnu.

Texti.: kjarnin & Laura Salinas

Önnur ástæða fyrir að fólk flýr landið sitt er stríð í þriðja heiminum sem getur haft mjög sterk áhrif á fátækt fólk. Stundum er enginn valmöguleiki að snúa aftur heldur þarf fólk að treysta á aðstoð frá öðrum löndum eins og Íslandi. Íslendingar hafa tekið á móti flóttamenn frá 13 löndum: Ungverja­ landi, Júgóslavíu, Víetnam, Póllandi, Krajina, Kosovo, Kólumbíu, Írak, Afganistan, Simbabve, Úganda, Kamerún og Sýrlandi. Anna Wojtynska Anna Wojtynska er doktor í mannfræði frá Háskóla Íslands en hún kom fyrst til Íslands árið 1996 og henni var spurt: hvernig er það að vera innflytjandi á Íslandi. Hún segir í því samhengi að sjálfsmynd fólks sé mismunandi, enda aðlagist

58 | Askur

fólk með ólíkum hætti og jafnframt séu aðstæður ólíkar. Hún bendir á að augljóslega líti Pólverjar, sem búið hafa lengi hér á landi, á sig í fyrsta lagi sem Pólverja en einnig sem Íslendinga. „Fyrir suma er mikilvægt að halda í þessa sjálfsmynd. Fyrir börn er þetta aftur á móti flóknara. Stundum eru foreldrarnir bæði Íslendingar og Pólverjar,“ segir hún. Þá falli þau jafnvel milli þessara tveggja heima og geti börnin litið á sig sem bæði Íslendinga og Pólverja. „Við lifum á tímum þar sem fjölbreytileikanum er fagnað. Það er því ákveðinn kostur þegar fólk er með ólíkan bakgrunn. Það er þó erfiðara fyrir Pólverja að viðurkenna þjóðerni sitt á Íslandi þegar hlutirnir eru orðnir þannig að þeir vinna í láglaunavinnu. Ef samfélagið verður mjög stéttaskipt – jafnvel eftir þjóðerni – þá erum við komin á mjög slæman stað,“ segir hún.

Mynd.: Anna Shvets úr Pexels

DIVERSITY DIVERSITY


Talar þú íslensku?

Stundum fólk hefur lítinn áhuga að læra íslensku þó svo að hafa búið á Íslandi í 10-15 ár og talar ekki enn tungumálið, þótt það skilji hana kannski þokkalega. Langflestir útlendingar sem koma til Íslands eru hér til að vinna og hafa enga tíma til að læra íslensku. Mikill meirihluti íslendingar kunna ensku og finnst þá sumum útlendingum það léttara að tala á ensku þar sem enskan er allsstaðar.

Íslenska er lykill að þátttöku í íslensku samfélagi. Mikilvægt er að einstaklingar af erlendum uppruna læri íslensku frá grunni og sé ófeiminn að tala íslensku. Tungumálið er mikilvægasta tækið sem útlendingar geta nýtt sér til þess að verða að virkum þátttakendum í samfélaginu og sæta jafnréttis. Einnig er það mikilvægt til tjá sig, skriflega og munnlega, í námi, starfi, félagslífi og einkalífi. Jafnframt er íslenskukennsla mjög mikilvæg fyrir börn sem eru með íslensku sem annað tungumál. Styrkja þarf menntakerfið fyrir börn af erlendum uppruna með því að auka íslenskukennslu. Það er einnig mjög mikilvægt að börn fái kennslu á sínu móðurmáli svo þau tapi ekki þeirra rætum, og geti haft betri samband við fólk frá sama landi; eins og til dæmis það er alltaf gaman að sjá þegar börn fara í heimsókn til ömmu og afa og geta talað við þau á móðurmálinu.

Umsóknir um vernd 2020 Karlar

Konur

Drengir

Stúlkur

Samtals

Venesúela

47

35

13

7

102

Írak

34

12

16

17

79

Palestína

58

7

8

3

76

Sýrland

23

7

7

14

51

Nígería

8

11

6

7

32

Afghanistan 17

2

2

4

27

Íran

10

5

-

-

15

Kólumbía

3

4

-

-

7

Upplýsingar fegnar af vef utl.is

Ríkisfang

Askur | 59


Mynd.:Jimmy Salinas

María Jiménez 60 | Askur


Hver er María Jimenéz? er leikkona, áhrifavaldur á samfélagsmiðlum, og “plus size” fyrirsæta bæði á Íslandi og á alþjóðavísu. María flutti hingað til Íslands frá Kólumbíu fyrir 15 árum. Foreldrar hennar eru bæði frá Kólumbíu, en stjúpfaðir hennar frá Íslandi.

Viðtal Hvaðan ertu? Plato Magdalena, Colombia. Kláraðir þú skólanum?

María stundaði nám í leiklist og kvikmyndagerð við Kvikmyndaskóla Íslands og útskrifaðist sem leikkona árið 2014.

Já, ég útskrifaðist úr leiklist og kvikmyndagerð frá kvikmyndaskóla Íslands.

Texti.: Laura Salinas

Hvað er best við að búa á Íslandi? María hefur starfað sem “plus size” fyrirsæta í mörg ár. Hún segir frá sorglegri sögu sinni þegar hún var ung stúlka í Kólumbíu og lenti í einelti. Fitufordómar virðast vera algengir í samfélaginu og þá sérstaklega í Kólumbíu. María segir að hún hafi verið í yfirvigt síðan hún var krakki og að hún hafi haft lítið sjálfstraust. Þá hafi hún látið neikvæða gagnrýni hafa áhrif á sjálfsmynd sína, líðan, heilsu og lífsgæði. María hefur vakið mikla athygli í samfélaginu síðan hún flutti til Íslands og lærði hún að elska sjálfan sig. Síðustu ár hefur María haldið ráðstefnur í erlendum fjölmiðlum eins og CNN,Independent,Caracol og fl. Megináherslurnar í ráðstefnum hennar eru; að hjálpa konum að styrkja sjálfsmynd sína, að forðast það að láta neikvæða gagnrýni hafa áhrif á þær og byggja upp sjálfstraust sitt.

Tjáningarfrelsið gerir þér það kleift að vera þú sjálfur, sem er mikilvægur þáttur hvers og eins til þroska og vaxtar í leik og starfi. Þegar þér auðnast frelsið til að vera þú sjálfur, ertu laus við fordóma, viðmið og gildi sem gerir þér mögulegt að blómstra í lífinu. Loks má ekki gleyma hinni stórbrotnu náttúru Íslands sem gerir landið einstakt og færir okkur frið og ró.

Móttó hennar Maríu er: “Fegurð kemur í öllum stærðum og gerðum. Það er kominn tími til þess að hætta að flokka eftir stærð og stereótýpur. Stelpur eiga að vera ánægðar í eigin skinni”.

Ef þú gætir breytt eitthvað á Íslandi hvað myndi það vera?

Hvaða ráð myndir þú gefa ungt fólk frá erlendu uppruna? Ég myndi segja að reyna hanga með Íslendingum til að læra þeirra siði og læra betur tungumálið. Einnig myndi ég segja þeim að Íslendingar séu pínu lokaðir og gefa þurfi þeim smá tíma til að kynnast. Íslendingar kann að meta þegar útlendingar hafa áhuga að tala íslensku.

Ég er mjög ánægð með hvernig hlutirnir eru á Íslandi en matarsóun mætti kannski minnka, alltof mikið af matarsóun hérna.

Askur | 61


“The mind loves the unknown. It loves images whose meaning is unknown, since the meaning of the mind itself is unknown.” ― Rene Magritte

62 | Askur


RÁÐSTEFNA Í HÖRPU 1. DES – 2. DES

Rene Margritte

FRÍTT INN

Texti.: Laura Salinas

René François Ghislain Magritte er einn þekktasti súrrealistinn belgísk listamaður sem fæddist 21. nóvember árið 1898. Hann var elstur af þremur bræðrum. Margritte ólst upp í ríkri fjölskyldu en þegar hann var 13 ára þá breyttist lífið hans eftir mamma hans framdi sjálfsmorð árið 1912. Hans leið til að komast í gegnum þessa erfiðleika var í gegnum myndlist. Árið 1922 giftist Magritte konu sinni Georgette Berger sem hann hafði kynnst sem barn. Árið 1916-1918 tók Margritte ákvörðun að yfirgefa Brussels, og fara til Frakklands að læra myndlist í “Académie Royale des Beaux-Arts” og var þar í tvö ár. Hann var ósáttur með verkið sitt og vildi breiðari sjónarhorn. Málverkin frá þessum tíma voru undir áhrifum Fútúrismans með tilbrigðum við Kúbisma, en mörg verka hans á þessu tímabili eru nektarmyndir af konum. Með tímanum breyttist hans stíll og hann sker sig úr öðrum listamenn á þeim tíma.

JAFNRÉTTI

Mikilvægt verk: „The Menaced Assassin,“ 1927 „The Treachery Images,“ 1928-29 „The Key of Dreams,“ 1930 „Mannleg skilyrði,“ 1934 „Ekki að endurskapa,“ 1937

kynjanna

NÁNARI UPPLÝSINGAR Á AFRAMKONUR.IS

Mynd.: unsplash.com

Askur | 63


Sigrún Rakel Ólafsdóttttiir

64 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


kynn nnin ing g KYNNING

ess. l e tim s e. i g a r e no ht g s u a r.” h e v “La e on or a ti f in e g ar ney s s i Ima D ea m alt r d W d n A

Ég heiti Sigrún Rakel Ólafsdóttir, fædd þann 7.júlí 2002, uppalin í Kópavogi. Alveg síðan ég var krakki i hef ég alltaf haft mikinn áhuga á sam­ kvæmisdansi. Ég er sú fyrsta til að úitskrifast úr menntaskóla í Grafísk Miðlun í fjölskyldunni minni. Grafísk Miðlun var ekki mitt fyrsta val en þegar ég var á grunnbrautinni fann ég köllunina enda þótti mér tímarnir mjög áhugaverðir og fann mig í þeim. Þegar ég sótti um nám við Tækniskólann eftir grunnskóla stefndi ég á að fara í ljósmyndun. Eftir rúmar tvær annir af grunnnáminu fann ég að mig langaði frekar að læra Grafíska Miðlun. Þá ákvað ég að sækja um í sérbrautina í grafísk Miðlun önn seinna. Ég fann að mig langaði að fara í grafísk miðlun eftir að ég fór í tíma hjá Brynhildi Björnsdóttir og Svanhvíti Stellu Ólafsdóttir.

Alla mína ævi hef ég verið að æfa samkvæmis­ dans með fjöldskyldunni minni enda er hún öll viðriðin dans. Ég og frænka mín byrjuðum saman í dansi þegar við vorum þriggja ára. Ég hef mikinn áhuga á listverkum og föndri. Síðan ég var lítil hef ég átt auðvelt með að hlusta á tónlist sama hvort tónlistin er erfið eða létt hef ég alltaf fundið taktin í laginu. Í dansi er mjög gott að hafa tóneyra enda hef ég altlaf elskað alla tónlist og hlusta mikið á alla tónlist. Draumurinn minn eftir nám í tækniskólanum er að fara í nám til Bretlands í skóla sem heitir University of the Arts London (UAL). Ég ætla í nám þar fá BA gráðu í grafískri miðlun. Eftir námið sé ég fyrir mér að stofna mitt eigið fyrirtæki.

Askur | 65


Saga dansins frá upphafi Hugtakið „samkvæmisdansar“ er dregið af orðinu bolti sem aftur kemur frá latneska orðinu ballare sem þýðir „að dansa“ (ballroom er stór salur sérstaklega hannaður fyrir slíka dansa). Fyrr á tímum var samkvæmisdans félagslegur dans fyrir forréttindafólk og skildi eftir sig þjóðdans fyrir lægri stéttir. Byrjunin á nútímadans

19.öld Myndir.: Myndasafn Afa Níels

Texti.: Wikipedia, ballroom dancing

Fyrsta opinbera þekkingin á fyrstu samkvæmis­ dönsunum var skráð undir lok 16. aldar þegar Jehan Tabourot, birti árið 1588 Orchésographie sína, rannsókn á frönskum endurreisnarsam­ félagsdans seint á 16. öld. Meðal dansanna sem lýst var voru hátíðlegir basse danse, líflegri branle, pavane og galliarde sem Shakespeare kallaði „cinq tempóið“ þar sem það var gert úr fimm þrepum. Árið 1650 var Minuet, upphaflega bændadans Poitou, kynntur til Parísar og dansaður við lagið Jean–Bapt­ iste Lully og dansaður fyrst af konungi Louis XIV opinber­ lega. Minuet drottnaði yfir danssalnum á þeim tíma eða þar til í lok 18. aldar. Undir síðari hluta 16. ald­ ar stofnaði Louis XIV „Aca­ démie Royale de Musique et de Danse“, þar sem sér­ stakar reglur um framkvæmd hvers dans og „fimm stöður“ fótanna voru mótaðar í fyrsta skipti af meðlimum Acadé­ mie. Það endaði með klofningi milli balletts og ballroom þegar atvinnudansarar birtust í ballettunum og ballettarnir yfirgáfu salinn og fóru á sviðið.

Valsinn með nútímalegri aðferð festi rætur í Eng­ landi um 1812, árið 1819 skrifaði Carl Maria von Weber Invitation to the Dance, sem merkti upphaf valsformsins. Dansleiknum var upphaflega mætt með gífurlegri andstöðu vegna yfirburðar óviðeigandi tjáningar í tengslum við lokað hald, þó að afstaðan mildaðist smám saman. Á fjórða ára­

66 | Askur

tug síðustu aldar komu fram nokkrir nýjir dansar í danssalnum, þar á meðal polka, mazurka og Skottís. Í millitíðinni kom fram sterk tilhneiging til að fella öll „skrautleg“ skref sem höfðu fundið sér stað í Quadrilles og öðrum dönsum inn í aðra dansa. Snemma á 20. öldinni Nútíma samkvæmisdans á rætur sínar að rekja frá því snemma á 20. öld, þegar nokkrir mismun­ andi hlutir gerðust meira og minna á sama tíma. Sú fyrsta var hreyfing frá raðar dönsum í átt að dönsum þar sem pörin hreyfðu sig sjálfstætt en þetta hafði valsinn þegar gert. Önnur var bylgja dægurtónlist, svo sem djass. Þar sem dans er að miklu leyti bundinn við tónlist leiddi þetta til þess að nýir dansar voru fundnir upp. Það var mikið um dansgeð á tímabilinu 1910–1930. Þriðji atburðurinn var samstillt átak til að breyta dönsum í dans sem hægt var að kenna breiðari hóp dans almenningi í Bandaríkjunum og Evrópu. Hér voru Vernon og Irene Castle mikilvægir og kynslóð enskra dansara árið 1920, þar á meðal Josephine Bradley og Victor Silvester. Þessir sérfræðingar greindu, kóðuðu, gáfu út og kenndu fjölda staðlaðra dansa. Það var nauðsynlegt, ef vinsæll dans átti að blómstra, fyrir dansara að hafa nokkrar grunnhreyfingar, þá gætu þeir fram­ kvæmt með hvaða dansfélaga sem þeir höfðu. Hér höfðu risastóru samtökin í Ameríku, Arthur Murray og einnig dansfélögin í Englandi, svo sem Imperial Society of Teachers of Dancing, mikil áhrif. Að lokum gerðist margt af þessu á tímabili heimsstyrjaldarinnar og áhrif slíkra átaka við upplausn eldri samfélagssiða voru töluverð. Seinna, á þriðja áratug síðustu aldar, höfðu dansararnir Fred Astaire og Ginger Rogers


áhrif með dans sínum í sjónvarpinu á hvers konar dans í Bandaríkjunum og víðar. Þrátt fyrir að báðir leikararnir hafi átt aðskilda ferla í kvikmyndum, hafa kvikmyndaðir dansar þeirra saman, sem komu fram í myndinni Kastalanum, náð táknrænni stöðu. Stór hluti af verkum Astaire og Rogers var sýndur sem félagslegur dans, þó að sýningarnar væru mjög oft dansaðar (oft af Astaire eða Her­ mes Pan) og sviðsettar og æfðar nákvæmlega.

Keppnisdans Keppnir, stundum nefnt danssport til að byrja með, eru allt frá heimsmeistarakeppnum sem stjórnað er af Alþjóðadansráðinu (WDC), til minna háþróaðra danskeppna fyrir mismunandi hæfnis­ stig. Flestum keppnum er skipt í atvinnumanna og áhugamenn keppnir. Alþjóðlega ólympíunefnd­ in viðurkennir nú samkvæmisdans en það er í gegnum annað nýrra samband, World DanceSport Federation (WDSF), en þar má hvert land senda einn til tvo fulltrúa á heimsmeistaramót. Hins vegar virðist ólíklegt að dans verði með á Ólympíu­ leikunum, sérstaklega í ljósi þeirra viðleitni til að fækka íþróttum sem taka þátt á Ólympíuleikunum. Danssport Fyrsta óopinbera heimsmeistarakeppnin fór fram árið 1909, en fyrsta opinbera heimsmeistara­ keppnin var kynnt árið 1932 af Olive Ripman í Astoria Ballroom, London. Dancesport var fyrst sent út í sjónvarpi árið 1960.

Vantar þig jólagjöf?

Kitchenaid hrærivél 185 inniheldur: Þeytara Hrærara Hnoðara Stóra skál Litla skál Hveitibraut

Askur | 67 Síðumúla 2–4, 108 Reykjavík ● s.520–7900 ● www.rafland.is


Keppnir

Hugtakið danssport á við um alþjóðlegan stíl sem og amerískan stíl. Það nær yfir eftirfarandi flokka: International Standard: Waltz, Tango, Vienn­ ese Waltz, Slow Foxtrot & Quickstep International Latin: Cha Cha, Rumba, Samba, Paso Doble & Jive American Smooth: Waltz, Tango, Foxtrot, Viennese Waltz American Rhythm: Cha Cha, Rumba, East Coast Swing, West Coast Swing, Bolero & Samba

Það er mikið af danskeppnum út um allan heim árlega. Þær eru allt frá hinum þekkta Blackpool Dance Festival, viðburði opnum öllum, til keppna sem eingöngu eru gerðar fyrir háskólanema, svo sem þá sem Inter Varsity Dance Association í Bretlandi stendur fyrir. Áhugamannakeppnir fela oft í sér atburði sem flokka dansara eftir aldri, reynslu eða báðu. Til dæmis gætu viðburðir flokkað unga dansara eftir aldri, svo sem: juvenile (<12 ára), junior (12–16 ára) og youth (16–19 ára). Keppnir eru oft á tíðum fyrir mismunandi aldurshópa eins og: undir 21 ára aldri, fullorðnum, eldri I (eldri en 35 ára), eldri II (eldri en 45 ára), eldri III (yfir 55 ára) og eldri IV (yfir 65 ára). Keppendur geta einnig verið flokkaðir eft­ ir reynslustigi, með flokkum eins og byrjendur, nýliði eða lengra komin, fyrir áhugamenn eða atvinnumenn. Einnig tekur þessi flokkaskipting mið að því hversu margir dansar eru dansaðir hverju sinni, þar sem byrjendur flytja einn dans og þeir á áhugamannastigi fimm dansa. Í sumum keppnum er þetta flokkað í einkunnir frá A til E, þar sem „A“ jafngildir áhugamannastigi og „E“ samsvarar „Byrjendastigi“.

Adam & Karen Reeve

Adam og Karen Reeve eru landsliðsþjálfarar í sam­ kvæmisdansi á Íslandi. Þau hafa verið landsliðsþjálfara á Íslandi síðan 2009. Adam er fæddur og uppalin í Ástralíu og byrjaði að dansa 6 ára gamall 1978. Hann lærði hjá mömmu sinni og pabba sem voru danskennarar í Sydney í Ástralíu. Karen byrjaði í dansi hér á Íslandi 1987 þá 6 ára. Þau áttu sína ferla þar til þau hittust árið 1998 þegar þau byrjuðu að dansa saman. 22. Júní 2003 urðu þau svo heimsmeistarar í 10 dönsum í Tokýó. Síðan þau fluttu heim hafa þau þjálfað nánast alla keppnisdansara á Íslandi, en einnig er Karen dómari í hinum virta þætti Allir geta dansað og Adam er listrænn stjórnandi.

68 | Askur


Dans sagan mín

Ég byrjaði að dansa í dansskólanum hjá ömmu minni og afa þegar ég var 3 ára. Þau kenndu þá hjá ÍR. Ég byrjaði að dansa við frænku mína sem er jafngömul og ég. Við höfum alltaf verið mjög nánar því við nær ólumst upp saman. Svo þegar ég var 7 ára þá stofnuðu mamma og pabbi dansdeild innan HK með Ömmu, afa og frænku minni sem er systir mömmu. Við erum enn með þessa dansdeild starfrækta núna 11 árum síðar.

Þegar frænka mín fékk herra þegar hún var 4 ára þá byrjaði ég að dansa við stelpu í rúmt ár. Hún var hjartveik en við áttum mjög góðan tíma saman, og ég var ekki tilbúin að dansa við strák strax. Eins og sagt var áður eru ballet og samkvæmisdansar skyldir eða eins og systur. Ég æfði ballet þar til ég þurfti að velja á milli sökum tíma og svo ég gæti orðið betri dansari en ballet hjálpaði mér rosalega mikið svo seinna í dansinum Þegar ég var á 6 ári byrjaði ég að dansa við strák sem heitir Gabríel. Hann varð minn besti vinur og dönsuðu við saman með góðum árangri þar til ég varð 11 ára. Við ferðuðumst til London til að taka danstíma og keppa og áttum við mjög góðan danstíma saman. Þegar við urðum 11 ára þá flutti hann til Noregs.

Hálfu ári seinna kom strákur sem heitir Óliver og spurði mig hvort ég væri til í að dansa við sig. Við hófum að dansa saman og dönsuðum saman í um eitt ár. Þá var ég búin að ákveða að taka mér smá pásu. Ég vildi einbeita mér að náminu mínu og Óliver hætti í dansi. Þarna ákveð ég að ég ætlaði að breyta um aðalfag og fara í grafíska miðlun sem ég elska í dag. Ég fíla þetta mjög vel og hlakka til að læra meira og fara vinna við áhugamálið mitt í framtíðinni.

Myndir.: Myndasafninu mínu

Þá byrjaði ég að dansa við strák sem heitir Adrian. Við Adrian áttum mjög góðan danstíma saman og vorum við rosalega góðir vinir. Við ferðuðumst út um allan heim til að dansa fyrir landið okkar. Við komumst í landsliðið þegar ég var nýorðin 13 ára og var ég í landsliðinu þar til ég hætti þegar ég var 17 ára. Ég ferðaðist t.d. til Bratislava, London, Holland, Parísar og fullt af stöðum til að keppa í dansi. Ásamt því að keppa hér heima líka. Við urðum Íslandsmeistarar í okkar aldursflokki og

þegar við fórum í frjálst þá urðum við yfirleitt í öðru til þriðja sæti. Þegar við vorum 15 ára þá ákváðum við að hætta að dansa saman en ég varð mjög leið yfir því þar sem við vorum á leið á heimsmeistaramótið í Par­ ís, bara viku seinna. Ég átti erfiðan tíma þar sem ég og Adrian vildum ekki hætta dansa saman en mamma hans var ákveðin í að hún vildi leita að annarri dömu fyrir Adrian. En með góðri hjálp frá mömmu, pabba, afa og ömmu komst ég í gegnum þetta með mikilli þrautseigja. Afa mínum datt í hug að ég færi með mömmu minni og yngri systur á heimsmeistaramótið sem haldið var í París og að ég mundi taka með mér myndavélina hans til að taka myndir og þannig að ég hefði eitthvað að gera. Ég gerði það og átti frábæra ferð með þeim. Ég fann mig með myndavélina og fann að mig langaði að læra meira. Ég fór að taka fullt af myndum á danskeppnum og er bara nokkuð góð í því þar sem ég hef líka dansað sjálf og veit hvenær það á að taka góðu myndirnar.

Askur | 69


Gylfi

&

María

S. Hvað eruð þið gömul?

S. Hver er besti hluturinn við að keppa?

Við erum bæði 18 ára.

G. Spennan og gleðin er það besta við það. M. Krafturinn sem maður upplifir við að dansa á gólfinu og gera það sem maður elskar. Einnig að keppa á stórmótum er frábært að fá að upplifa að dansa við hliðina á bestu dönsurum heims og upplifa að fá að dansa við lifandi tónlist.

S. Hvenær byrjuðu þið að dansa? G. Ég byrjaði þegar ég var 6 ára eða árið 2008. M. Ég hef æft dans frá því ég man eftir mér, ég byrjaði að æfa þegar ég var 3–4 ára gömul.

S. Hversu lengi hafið þið dansað saman? Við höfum verið að dansa sam­ an í 6 ár eða síðan júní 2014.

S. Segið mér í hvaða skóla eruð þið og hvað langar ykkur að verða þegar þið verðið „stór“? G. Ég er í Versló (Verslunarskóli Íslands) og langar að verða fjár­ málaverkfræðingur. M. Ég er í Fjölbraut askóla Suðurnesja. Ég hef ekki alveg ákveðið hvaða nám ég ætla í eftir fjölbrautaskól­ ann. Síðan mun ég örugglega verða einnig dans­ kennari þegar ég verð eldri.

S. Hvað gerir þið fyrir keppni til að undir­ búa ykkur? G. Borða góðan mat, hlusta á tónlist, hita upp og komast í gírinn andlega. M. Við æfum rosa vel fyrir keppnir og fáum okkur góðan og orkumikinn mat. Síðan hugsar maður sér hvert markmiðið er fyrir keppnina.

S. Hvað gerir þú til að róa fiðrildin áður en þú keppir? G. Finnst best að hlusta á tónlist. M. Ég reyni bara að róa mig niður með því að anda og ekki stressa mig yfir keppninni.

S. Hvað borðar þú daginn fyrir keppni? G. Reyni oftast að borða pasta daginn fyrir keppni. M. Það er bara mjög mismunandi, en ég reyni að borða mat með mikilli orku. Stundum fæ ég mér pasta og kjöt.

S. Hver þjálfar ykkur á Íslandi? S. Eruð þið að vinna eða í skóla? Við er ekki að vinna þar sem við er í skóla og á fullu að æfa, en stundum erum við að kenna yngri krökkum í dansinum.

Adam og Karen eru aðal þjálfararnir okkur og þjálfa þau okkur hér á Íslandi.

S. En hver þjálfar ykkur erlendis?

Við æfum 6–7 daga vikunnar.

Við erum með marga og fjölbreytta kennara er­ lendis. Til dæmis Anne, Richard, Andrew og Ali­ son.

S. Hvaða dansa æfið þið?

S. Hafið þið oft farið í æfingabúðir?

Við æfum ballroom dansa, sem er Wals, Tango, Vínar vals, Foxtrot og Quickstep

Við höfum farið 4 sinnum í æfingabúðir í Bourn­ mouth. En reynum að fara á hverju ári.

S. Hver er uppáhaldsdansinn ykkar?

S. Hvað er framtíðarmarkmið ykkar í dansinum?

S. Hvað æfið þið oft í viku?

Uppáhaldsdansinn okkar er Foxtrot.

Stefnan er sett á heimsmeistaratitilinn í PRO og að verða professional ballroom champions.

70 | Askur


S. Hvað gerið þið annað en að dansa til að halda ykkur í formi fyrir æfingar og keppnir?

S. Eruð þið kærustupar?

G. Aðallega bara í skólanum og hitta vini. M. Ég geri styrktaræfingar sem hjálpa dansinum. Ég hugsa mikið um stöðuna mína, hvernig ég stend. Síðan þarf maður að vera duglegur að teygja líka til að koma í veg fyrir meiðsli og auka sveigjanleikann í dansinum.

S. Hvernig tæklið þið „lífið“ í gegnum dansinn?

S. Hittið þið sálfræðinga eða aðra sér­ fræðinga til að halda ykkur á tánum? G. Nei, fer bara stundum til sjúkraþjálfara M. Ég hef ekki farið til sálfræðinga, en ég er hjá kírópraktor til þess að halda líkamanum við.

S. Hvers vegna ? G. til þess að flýta fyrir því að jafna mig á meiðsl­ um sem ég verð fyrir. M. Því mér var alltaf illt í bakinu.

Nei, við erum bara mjög góðir vinir.

G. Reyni að halda þessu svolítið í sundur frá hvort öðru, þegar ég er á æfingum þá er ég með hugann við það en þegar ég er ekki á æfingum þá reyni ég bara að hafa hugann við það sem ég er að gera. M. Lífið snýst um skólann, dansinn, fjölskylduna, vinina og hvíld. Maður fléttar öllu saman og passar upp á að allt fái sitt pláss.

S. Hvað hefur dansinn kennt ykkur á lífið? G. Aginn er það sem dansinn hefur kennt mér hvað mest. M. Hann hefur kennt manni mikið. Maður er búin að læra fullt af fínhreyfingum, rökhugsun, þolin­ mæði og umburðarlyndi.

Gylfi Már & María Tinna

Askur | 71


Kristinn

S. Hvað eruð þið gömul?

&

Lilja

K. 19 ára L. 18 ára

una. Sigur er svo alltaf bónus L. Dansa fyrir áhorfendurna og dansa við góða tónlist.

S. Hvenær byrjuðu þið að dansa?

S. Hvað gerir þið fyrir keppni til að undir­ búa ykkur?

K. Ég byrjaði að dansa þegar ég var 11 ára L. Ég byrjaði 2010, þá 8 ára.

Æfum vel, nærumst vel og sofum vel! Svo tökum við alltaf smá hugleiðslu til að undirbúa hugann undir keppnina og koma honum á réttan stað.

S. Hversu lengi hafið þið dansað saman?

S. Hvað gerir þú til að róa fiðrildin áður en þú keppir?

Við byrjuðum að dansa saman sumarið 2016 þannig í 4 ár

K. Við erum í raun búin að gera alla vinnuna áður en við keppum, þegar við komum á keppnina þá erum við bara að fara að njóta og hafa gaman og fiðrildin mega alveg vera í maganum þau gera mann bara enn þá betri! L. Mér finnst gott að sjá fyrir mig keppnina og vera búin að ímynda mér keppnisgólfið.

S. Segið mér í hvaða skóla eruð þið og hvað langar ykkur að verða þegar þið verðið „stór“? Við erum bæði útskrifuð úr Menntaskóla. Kristinn útskrif­ aðist úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fyrir tæplega ári og Lilja úr Menntaskóla við Sund. Draumurinn er auðvit að að verða atvinnudansarar þegar við eldumst.

S. Eruð þið að vinna eða í skóla? Við erum bæði að vinna. Kristinn er að vinna sem bílstjóri hjá Aha.is og Lilja vinnur hjá Heilsuleik­ skólanum Fífusalir.

S. Hvað borðar þú daginn fyrir keppni? K. Reyni að innbyrða mikið af kolvetnum, svo líka prótein og fitu og muna að drekka mikið vatn og taka vítamín og steinefni L. Ég passa mig að fá nóg af kolvetnum og prót­ eini, t.d. hafragraut í morgunmat, kjúkling og salat í hádeginu, ávextir með flatköku sem millimál og pasta í kvöldmat. Einnig passa ég að drekka nóg af vatni.

S. Hver þjálfar ykkur á íslandi? Adam og Karen Reeve

S. Hvað æfið þið oft í viku? 5­6 sinnum, reynum að taka allavega einn frí dag í viku til að hlaða batteríin.

S. En hver þjálfar ykkur erlendis?

S. Hvaða dansa æfið þið?

S. Hafið þið oft farið í æfingabúðir?

Við æfum Latin dansa. Sem sagt, Samba, Cha Cha, Rumba, Paso doble og Jive.

Oft hér á Íslandi en bara nokkrum sinnum úti

S. Hver er uppáhaldsdansinn ykkar? Rumba 100%

S. Hver er besti hluturinn við að keppa? K. Ég myndi segja tilfinningin þegar þér finnst öll erfiða vinnan sem þú ert búin að leggja á þig skilar sér á gólfinu og þú ert ánægður með frammistöð­

72 | Askur

Barbara Mccoll

S. Hvað er framtíðarmarkmið ykkar í dansinum? Að ná að verða eins góður dansari og ég get orðið, svo er alltaf stóri draumurinn að vinna Blackpool.


S. Hvað gerið þið annað en að dansa til að halda ykkur í formi fyrir æfingar og keppnir? Gerum styrktaræfingar bæði heima og í ræktinni, við pössum okkur einnig að teygja vel.

S. Hittið þið sálfræðinga eða aðra sér­ fræðinga til að halda ykkur á tánum? Nei ekki eins og er en höfum gert það áður

S. Hvers vegna ? Svo við gætum rætt vandamálin okkar við sér­ fræðing og hann hjálpað okkur að komast yfir vandann og gera okkur að sterkari einstaklingum fyrir þessa íþrótt.

S. Eruð þið kærustupar? Já!

S. Hvernig tæklið þið „lífið“ í gegnum dansinn? Við skipuleggjum mjög vel dansæfingarnar og vinnu, einnig pössum við að hitta vini okkar reglu­ lega og eiga smá stund með hvort öðru fyrir utan æfingar.

Þú getur fundið öll tilboðin á www.brimogbretti.is

S. Hvað hefur dansinn kennt ykkur á lífið? Hann hefur kennt okkur alveg helling, vera agaður, skipulagður, duglegur og fyrst og fremst að þú færð út úr því sem þú setur inn í það sem þýðir að ef að þú gefur þig allan í eitthvað þá færðu það til baka! Aga, sjálfbærni, stundvísi og svo margt fleira. Kristinn Þór og Lilja Rún

Tilboðin eru af öllum vörum Gildir til 25.12.20

Askur | 73


María Björt Árman ann nsdóttttiir

74 | Askur MYNDIR:. Unnur Karen Björnsdóttir og Jón Helgi Pálmason, Tækniskólinn, 2020


kynn nnin ing g KYNNING

ou y ll t ti i e Fa k

Ég heiti María Björt Ármannsdóttir og er fædd og að mestu uppalin í Eyjafirði. Ég er sveitastelpa og sem barn sótti ég mikið í sköpun. Ef ég var ekki að syngja nýja frumsamda lagið mitt, þá var ég að safna hlutum í plastpoka til þess að föndra úr eða monta mig á einhverju snilldar listaverki sem ég hafði búið til. Þessi ást á sköpun hefur fylgt mér inn í fullorðinsárin og sæki ég ennþá mikið í að skapa, það er því ekkert skrítið að ég hafi rambað inn á grafíska miðlun þar sem það er mjög skapandi nám. Ég hef komið inn á margar greinar sköpunar og finnst ekkert skemmtilegra en að bæta í reynslu­ bankann og læra eitthvað nýtt. Ég er söngkona í 2 hljómsveitum, hef hannað leikmyndir og búninga fyrir leiksýningar, ég smíða silfurskartgripi og tek ljósmyndir, ég hef líka mjög gaman af því að sauma föt og hef gert mikið af því í gegnum árin, þá mest á sjálfa mig. Ég hef unnið mikið með áhugaleikfélögum höfuðborgarsvæðisins bæði sem leikkona en einnig sem höfundur, leikstjóri og útlitshönnuður. Þetta er fullkomin vettvangur til þess að fá útrás fyrir sköpunargleðina og kemur sífellt á óvart.

m

t! i e ak

Gangandi inn í námið vissi ég ekki alveg við hverju ég átti að búast. Ég kannaðist við einhverjar greinar en vefhönnun var það sem ég kveið hvað mest, ég er ekki mikið tæknigúrú og trúði því ekki að ég mynd geta skilið neitt af því sem þurfti til þess að kóða vefsíður. Það kom mér því mjög skemmtilega á óvart hvað mér þótti þetta gaman og var þetta með skemmtilegri áföngum námsins. Námið í grafískri miðlun nærir listaspíruna og opnar nýjan heim sköpunar, þetta er fullkomið fyrir alla sem hafa einhvern áhuga á hönnun og mæli ég eindregið með þessu. Draumurinn er auðvitað sá að geta unnið við það sem ég elska, hver vill það ekki? Ég vona að ég fái tækifæri til þess í framtíðinni. Eftir nám í grafískri miðlun opnast nýjar dyr sem bjóða upp á endalausa möguleika, hvort sem það er áframhaldandi nám eða atvinna. Ég er svo stolt af sjálfri mér fyrir að hafa tekið skrefið og farið í þetta nám og hlakka til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Askur | 75


Hljóðkirkjan er hlaðvarpsamsteypa sem tengir saman og heldur utan um þau hlaðvörp sem hún vinnur og aðrir vinna í samstarfi við hana. Þannig styðja hlaðvörpin hvort við annað og gera hlustendur eins þáttar meðvitaða um hina. Hljóðkirkjan er stofnuð af bræðrunum Baldri og Snæbirni „Bibba“ Ragnarsonum og fór formlega af stað í byrjun maí 2020. Þá bættust tvö ný hlaðvörp við þau tvö sem fyrir voru, síðan hafa tvö í viðbót bæst við þannig að nú eru sex hlaðvörp undir hatti Hljóðkirkjunnar. Bræðurnir höfðu báðir verið með hugmyndir um einhvers konar hlaðvarpssamsteypu, þó í sitt hvoru lagi en eins og með svo margt ákváðu þeir að fara í þetta í sameiningu, það lá beint við, Baldur með upptökumál og tæknina og Bibbi með texta og ímyndarmál. Hlaðvörpin sem Hljóðkirkjan framleiðir eru: Á mánudögum er Dómsdagur, elsta hlaðvarpið undir hatti Hljóðkirkjunnar. Þar spjalla Baldur Ragnarsson, Haukur Viðar Alfreðsson og Birna Pétursdóttir um og gefa stjörnur, ýmsu sem venjulega þykir ekki ástæða til að gefa stjörnur. Á þriðjudögum er það Kokkaflakk í eyrun þar sem Ólafur Örn Ólafsson framreiðslumeistari spjallar við fólk um mat og matarmenningu.

76 | Askur

Á miðvikudögum eru Draugar fortíðar. Baldur og Flosi Þorgeirsson, sagnfræðingur með meiru, draga fram einhvern atburð úr fortíðinni, Flosi sviðsetur atburðinn og svo spjalla þeir um eftirköst hans og fara þá gjarnan um víðan völl. Á fimmtudögum er Snæbjörn talar við fólk sem er akkúrat það. Bibbi býður áhugaverðu fólki heim í stofu og rekur úr því garnirnar. Á föstudögum eru svo tvö hljóðvörp. Annars vegar Besta platan þar sem Bibbi og Dr. Arnar Eggert Thoroddsen ræða um bestu plötu tónlistarmanna, að mati Bibba, með Baldur á hliðarlínunni til að halda þeim við efnið. Hins vegar er það hinn goðsagnakenndi spurningarþáttur Nei hættu nú alveg, þar sem Vilhelm Anton Jónsson spyr spurninga og liðstjórarnir Anna Svava Knútsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson reyna ásamt gestum að svara eftir bestu getu. Stefnan Hljóðkirkjunnar er að bæta við fleiri hlaðvörpum þegar fram í sækir en þó gæta þess að spenna bogann ekki of hátt svona fyrst í stað. Stefnan er á stærri og fjölbreyttari dagskrá og þá gjarnan með fleiri konum við stjórnvölin.


breyttvidhorf.is

Askur | 77


Ljósm.: Baldur Ragnarsson

DRAUGAR FORTÍÐAR Eitt vinsælasta hlaðvarp landsins í dag er Draugar fortíðar sem er eitt af sex hlaðvörpum sem Hljóðkirkjan heldur úti. Umsjónarmenn eru þeir Flosi Þorgeirsson og Baldur Ragnarsson og voru þeir meira en til í að mæta í smá spjall. Segið aðeins frá ykkur sjálfum

B: Ég heiti Baldur og er 36 ára, fæddist á Húsavík en bjó á Laugum framan af en flutti svo til Húsavíkur. Ég er tónlistarmaður fyrst og fremst en í seinni tíð líka upptökumaður. Já og bara svona listamaður, hef verið að leika og gera hitt og þetta. Hef einblínt svolítið á að gera sem allra minnst af því sem mér finnst leiðinlegt. F: Sama hér, mikið til. Ég heiti Flosi Þorgeirsson og fæddist 16. febrúar 1968, í Reykjavík en er meira og minna alinn upp í Kópavogi. Hef búið í Stykkishólmi, á Húsavík og í Danmörku. Ég er bæði sagnfræði- og sjúkraliðamenntaður en tónlistin er nú uppáhaldið. Hvernig lágu leiðir saman?

F: Í gegnum Bibba, er það ekki? B: Jú, í gegnum Bibba bróðir minn árið 2003. Höfum verið töluvert í sambandi síðan og gert mjög margt saman. Hvaðan kom hugmyndin að hlaðvarpinu og hvaðan kemur nafnið?

einhvers kona hlaðvarp. F: Já ég er ofsalega hrifinn af þessu formati. B: Ég er búinn að þekkja Flosa svo lengi að ég veit að hann er einn af okkar allra bestu sögumönnum þannig að fyrir mér var þetta dauðafæri. F: Já fólk var að nefna það við mig að ég ætti að fara í útvarpið með þessa rödd. Ég prófaði að fara í útvarpið, var þar með þætti 2017 en mér finnst hlaðvarpið að mörgu leyti skemmtilegra format. B: Við þekkjumst það vel að við vitum vel um kosti og galla hvors annars og ég veit að ég gæti alls ekki gert svona hlaðvarp einn og Flosi jafnvel enn síður. F: Bara alls ekki. B: En við getum hins vegar gert þetta mjög vel tveir. F: Það er mjög gott að hafa tvo menn með mismunandi hæfileika. B: En ég beið líka með að heyra í þér með að byrja með þetta þangað til ég var búinn æfa mig það mikið að ég væri orðinn góður í að taka upp. Ég tók eitt og hálft ár í að taka upp Dómsdag áður en ég hringdi í þig. Maður verður að vita hvað maður er að gera. F: Ég kunni ekkert á tæknihliðina, ætlaði bara að taka eitthvað upp á símann minn. Þú tókst alveg fyrir það. B: Það hefði verið hryllilegt, þú með þessa rödd, tekinn upp á síma hefði bara hljómað eins og Gosi í gömlu teiknimyndinni.

B: Nafnið kom eiginlega á rauntíma í fyrsta þættinum. Ég man að ég sagði Fortíðardraugar og þú sagðir Draugar fortíðar. Við svona fundum út úr þessu. F: Brillíant nafn. B: Flosi var búinn að lýsa yfir áhuga á að gera

78 | Askur

Hvers konar hlaðvarp er Draugar fortíðar?

B: Þetta er sagnfræðihlaðvarp gert af alúð, vitneskju og menntun í bland við kæruleysi, lífshamingju og lífsleiða. Þetta keyrir svolitið á langri vináttu.


F: Ég átti ekki von á spjallið okkar tæki svona mikið pláss. Margir hafa kommentað á að það sé mikilvægt fyrir kemistríið í þáttunum. B: Við áttuðum okkur ekki á að þetta væri ekki normið en svona höfum við bara alltaf talað saman. Fyrir utan þessa fyrstu viku sem við þekktumst þar sem ég var skíthræddur við hann og fannst hann alltof góður á bassa. F: Það er mikil saga í Draugum fortíðar. Björn Blöndal vinur minn sagði að þetta væri svona Vera Illuga mætir Tvíhöfða. Koma vinsældir hlaðvarpsins ykkur á óvart?

B: Ég ætla að segja nei. En þær hafa vaxið hraðar en ég átti von á. Ég er búinn að þekkja Flosa það lengi að ég vissi hvað hann væri að fara að gera. Svo það komi fram er Flosi mjög þunglyndur svo þetta gat verið spurning um dagsformið en í ljós kom að dagsformið skiptir ekki máli þegar búið er að ýta á rec. F: Það er ekkert víst að það haldist. Sérstaklega núna yfir dimmustu vetrarmánuðina. En þetta kom mér á óvart enda á ég aldrei von á því að neitt gangi vel. B: Við reyndum eitthvað að leikstýra þessu í byrjun, stytta spjallið áður en við fórum í efni þáttarins en svo sáum við að það var líka mikilvægt F: Leyfum þessu bara að vera eins og það er. Hvað er skemmtilegast við að vinna með Baldri/Flosa?

F: Þetta er vandræðaleg spurning því að tveir íslenskir karlmenn mega ekki tala vel hvor um annan á meðan þeir eru í sama herbergi. Það hefur verið bannað allt frá þjóðveldisöld. B: Ég var náttúrlega ekki uppi á þeirri öld þannig að ég á auðvelt með þetta. Það skemmtilegasta við að vinna með Flosa er að hann er svo ofboðslega fróður og sögumannseðlið í honum er svo hryllilega sterkt. Í bland við hversu óskaplega mannlegur hann er. F: Mér finnst gott að hafa Baldur hérna af því hann er fyndinn sem ég er alls ekki. Hann er hnyttinn, fljótur að koma með sniðug tilsvör. Maður sér það í umræðuhópnum að fólk er að pikka upp svona „catch phrases“ sem flestar koma frá honum. B: Ef það er fyndið þá er það oft ég en ef það er

mannlegur harmur og eftirsjá er það yfirleitt Flosi. F: Samstarfið er alla vega með miklum ágætum. B: Mér finnst gaman að heyra fólk sem hefur brennandi áhuga á einhverju tala um það, alla vega þegar það gerir það svona vel. F: Það hjálpar að þú hefur áhuga á flestum hlutum. Þannig að þér virðist aldrei leiðast. Hvað var það við hlaðvarpsformatið sem heillaði ykkur?

F: Það er þessi afslappaða stemming. Fólk hefur talað um að því finnist við vera orðnir nokkurs konar heimilsvinir sem koma í heimsókn í hverri viku og segja þeim frá einhverjum spennandi viðburði. B: Þetta verður persónulegra. F: Já útvarp er stífara og meira gamaldags. B: Þar þarf þátturinn að fylgja ákveðnum reglum og enda akkúrat þarna af því annar er að byrja. Mér finnst líka frábært að hver sem er getur gert hvað sem er. Og allir þeir sem hlusta á hlaðvarp hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að gera það. Þú þarft að finna þetta tiltekna hlaðvarp í tækinu þínu og velja að hlusta á það. F: Og fólk sem er kannski ekki nógu vel máli farið til að fá vinnu við dagskrárgerð í útvarpi en hefur brennandi áhuga á viðfangsefninu getur gert hlaðvarp. B: Brennandi áhugi skiptir miklu meira máli gott málfar. Hvaða verkefni eruð þið að vinna fyrir utan Drauga fortíðar?

B: Ég kem að öllum öðrum hlaðvörpum Hljóðkirkjunnar, mismikið þó. Svo eru það aðallega þessar hljómsveitir sem nú liggja í dvala eins og allt gott, Ljótu hálfvitarnir og Skálmöld. Svo bara tilfallandi verkefni sem yfirleitt tengjast tónlist eða upptökum. F: Ég er bara að basla við að halda mér vakandi og hafa sæmilegan áhuga á því sem er í kringum mig. Svo er ég að taka upp sólóplötu sem er mjög gaman. Það er svona gamall draumur sem er að verða að veruleika. Ég er líka farinn að starfa sem sjúkraliði eftir margra ára hlé. Svo er ég bara að reyna að hafa gaman af lífinu sem í mínu tilfelli er fullt starf.

Askur | 79


Halloween og meira Halloween

Ljósm.: Ninna Karla Katrínardóttir

Ninna Karla Katrínardóttir er 35 ára, fædd og uppalin á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann á Laugarvatni en hefur búið í Reykjavík síðan. Nú býr hún ásamt dætrum sínum tveimur í Laugardalnum. Ninna er sjálfmenntuð í förðun og hefur náð góðum tökum á special effects förðun. Í október síðastliðnum birti hún eitt myndband á dag þar sem hún sýndi mismunandi Hrekkjavökuförðun og vakti það verðskuldaða athygli.

80 | Askur


Hvaðan kom hugmyndin að verkefninu?

Einhver fleiri svona verkefni í bígerð?

Mig langar að ná lengra í makeup heiminum og taldi þetta góða byrjun til að koma mér á framfæri.

Já, ég ætla að henda mér strax í annað verkefni og gera jóladagatal núna í desember. Ertu að vinna að einhverjum núna?

Af hverju Halloween? Aðallega af því að mér finnst gaman að gera makeup look sem eru „óvenjuleg“ og finnst virkilega gaman að prófa mig áfram með latex og special effects makeup.

Ég er komin í samstarf við Ofsa glimmer, en með því að kaupa umhverfisvænt glimmer frá þeim styrkjum við útgáfu námsefnis um forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi. Ég ætla að flétta saman þessu verkefni við jóladagatalið mitt.

Hvaða bakgrunn hefur þú í sminki? Ég byrjaði að hafa áhuga á því fyrir um 5 árum síðan, fór í framhaldi af því að sjá um förðun í flestum verkefnum Hugleiks, áhugaleikfélags sem ég er í, og hef svo horft á ótal förðunarmyndbönd og prófað mig áfram endalaust.

Áttu önnur áhugamál? Það er fyrst og fremst hljómsveitin mín, Ekkert, en þar er ég söngkona. Við vorum að gefa út nýtt lag, Heima, sem ég mæli með að allir hlusti á. Hvert stefnir þú með sminkferilinn?

Á hvaða platformi birtirðu myndirnar? Ég birti myndbönd á Tiktok og deildi svo bæði myndum og myndböndum á Instagram og Facebook.

Draumurinn er að safna mér fyrir námi í förðun og special effects förðun og helst að fá starf við þetta í kvikmyndum, leikhúsi og/eða víðar.

Hvar fær maður það sem þarf í svona smink á Íslandi? Fyrir svona special effects verkefni mæli ég með Leikhúsbúðinni, leiklist.is. Þar eru að mínu mati allra bestu efnin sem þarf.

Ekki láta jóladagatalið hennar Ninnu framhjá þér fara. Hægt verður að fylgjast mér því á Instagram en þar er einnig hægt að skoða Halloween verkefnið sem

hún vann í október.

@ninnakarla

Askur | 81


Fjölnir Gíslason Fjölnir Gíslason er 32 ára gamall leikari með fleiru. Hann fæddist í Keflavík og bjó þar fyrstu tvö ár ævi sinnar en flutti þá til Borgarfjarðar og þaðan til Akraness 15 ára gamall, þar sem hann stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Til Reykjavíkur flutti hann 24 ára gamall og fjórum árum seinna til Kaupmannahafnar, til að elta drauminn um leiklistarnám, en er nú aftur fluttur heim til Íslands Leiklistarnám í Danmörku Fjölnir stundaði þriggja ára nám í svokölluðu „Method acting“ í CISPA leiklistarskólanum í Kaupmannahöfn en segir að í rauninni sé það lítið frábrugðið öðru leiklistarnámi, þetta snúist allt um mismunandi leiðir að sama markmiði, að búa til leiklist. Hann segir suma leikara aðhyllast tilteknar aðferðir við að skapa leikhús en mikilvægast sé að leikaranum líði vel með þá aðferð sem hann vinnur með, að hún veiti honum það sjálfstraust sem hann þarf til að skila sínu hlutverki trúverðuglega. Að hans mati fer það eftir hverju verkefni hvaða nálgun hentar best og stundum sé það ekki sú augljósa. Til dæmis nýtist trúðaleikur ótrúlega víða þótt það sé alls ekki endilega sýnilegt áhorfendanum þar sem hann byggir svo mikið á tímasetningum, að gefa og taka fókus, sem er grundvallaratriði í leiklist.

Ljósm.: Constantin Gindele

Mörg járn í eldinum

82 | Askur

Fjölnir er þó ekki einungis leikari. Hann er líka menntaður rafvirki og hefur starfað sem ljósahönnuður við leiksýningar. Hann heldur einnig úti hlaðvarpinu Já, ok á RUV+ ásamt vini sínum, Villa Neto, og hafa þeir framleitt einn þátt á viku í rúmt ár, alls vel á áttunda tug þátta. Hann


vinnur um þessar mundir með leikhópnum 10 fingur að sýningunni Stúlkan sem stöðvaði heiminn í Borgarleikhúsinu en verkið verður frumsýnt um leið og Covid leyfir. Jafnframt er hann að leikstýra leikhópnum Frúardegi í Menntaskólanum í Reykjavík í frumsömdu verki. Inn á milli hefur hann svo leikið smærri hlutverk í sjónvarpsþáttum og bíómyndum. Hann segir að það sé gaman hvernig öll reynsla og menntun sem hann hefur aflað sér nýtist einhvern veginn í þeim verkefnum sem hann tekur þátt í en vill ekki meina að það sé vegna meðfæddra skipulagshæfileika sem það gangi upp að hafa svona mörg járn í eldinum, það hafi meira verið fyrir heppni. Oft hafi litið út fyrir að verkefni mundu rekast á en alltaf slyppi það fyrir horn. Þar hafi Covid hjálpað, það hafi sett margt á pásu þegar í óefni stefndi.

Það er ýmislegt í bígerð hjá Fjölni, hann er með hugmynd að nýju hlaðvarpi, hann er að skrifa leikrit, hann langar að stofna hljómsveit og nokkur hlutverk í sjónvarpsþáttum eru í farvatninu þegar ástandið leyfir. Hann segir að það þýði ekkert að svekkja sig á því sem maður ræður ekki við og segist heldur vilja einblína á það jákvæða. Það að fá að vinna við hlaðvarp á RUV+ og í leiksýningu í Borgarleikhúsinu séu forréttindi sem hann sé þakklátur fyrir og taki ekki sem sjálfgefnu. Það að vera sjálfstætt starfandi listamaður sé aldrei auðvelt og allra síst á tímum Covid en það þýði ekki að láta það stoppa sig, hann lifi samkvæmt mottóinu að eina ástæðan fyrir því hlutirnir gangi ekki upp er af því maður gefst upp sjálfur.

Ármúli 18 | 104 rvk | 567 8888 | info@jogamantra.is | jogamantra.is

Ekki gefast upp

Frábær jólatilboð! Alla daga í desember

Opnunartímar Opið frá kl.10 – 19 alla virka daga Opið frá kl.11 – 18 um helgar

Askur | 83


þakkarorð ÞAKKARORÐ

Eftir langan og erfiðan tíma höfum við loksins komist á leiðarenda. Ferðin í gegnum sérnámið hefur ekki verið átakalaus en hún hefur verið reynslurík og munum við seint gleyma öllu því frábæra fólki sem við höfum fengið að kynnast. Eins og fram hefur komið hefur ekki verið auðvelt að ganga í gegnum þetta ferli því eins og flestir hafa kannski fundið fyrir að þá hefur COVID-19 verið á sveimi og hrekkt alla heimsbyggðina eins og óþekkur jólasveinn, jólasveinninn Kórónusníkir. Hamagangurinn í Kórónusníki olli því að breyta þurfti náminu okkar í fjarnám um óákveðin tíma. Þetta setti svolítið strik í reikninginn fyrir okkur því hluti af náminu okkar er verklegt og erfitt að vinna í gegnum tölvuskjáinn. Allir kennarar settu sig þó í stellingar og gerðu allt til þess að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Þeir létu þetta ekki stoppa sig og tóku upp nýjar kennsluaðferðir. Þau stóðu sig eins og algjör ofurmenni og með þeirra aðstoð höfum við komist alla þessa leið. Eftir allt þetta húllumhæ erum við uppgefin en þakklát fyrir reynsluna. Við myndum ekki standa hér í dag ef það væri ekki fyrir stuðninginn sem við veittum hvort öðru og kennarana sem stóðu eins og klettur við bakið á okkur. Hérna skilja þó leiðir, einhverjir fara í áframhaldandi nám, sumir út á vinnumarkaðinn og aðrir stefna á að ferðast um ótroðnar slóðir. Það er þó alveg sama hvert við höldum og hvar við endum, við tókum öll okkar fyrstu skref hér. Þetta örlagaríka ár Kórónusníkis hefur kennt okkur að láta ekkert stoppa okkur því það er alltaf hægt að finna nýjar leiðir til þess að leysa vandamál og ekkert kemur í veg fyrir sköpunarkraftinn sem býr innra með okkur. Við viljum því þakka öllum þeim sem áttu hlut í því að móta okkur og gera okkur að þessum lausnamiðuðu miðlurum sem við erum í dag. Við tökum opnum örmum á móti því sem mun móta okkur áfram því það er alveg sama hversu gamall maður verður maður hættir aldrei að læra. Framtíðin er björt, fortíðin hlykkjótt og þakklætið er óendanlegt. Takk kærlega fyrir okkur! Árgangur haustannar 2020 Andrea Símonardóttir Brynjar Emil Friðriksson Erlingur Freyr Thoroddsen Geir Marinó Önnuson Hörður Helgi Hallgrímsson Laura A. Salinas Moreno María Björt Ármannsdóttir Sigrún Rakel Ólafsdóttir


sérstakar ÞAKKIR þakkir SÉRSTAKAR

Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA


Leynist hjá þér óútgefin bók? Vantar þig uppsetningu á nafnspjöldum, bæklingum, reikningum eða umbrot á blöðum og bókum? Við prentum það fyrir þig og sjáum um allan frágang

PRENTUN

FRÁGANGUR

HÖNNUN: GEIR MARINÓ

FORVINNSLA

Skemmuvegi 4, Blá Gata, 200 Kópavogi

Sími: 540 1800

litlaprent@litlaprent.is

litlaprent.is


GRAFÍA fjárfestir í þinni framtíð

HÖNNUN: ANDREA SÍMONARDÓTTIR

– Kynntu þér málið #fræðslusjóður

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar. Stórhöfða 31, 110 Reykjavík 5400 100 | grafia@grafia.is www.grafia.is GRAFÍA er aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands - rafis.is

GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
ASKUR - Haust 2020 by Tækniskólinn - Issuu