GRAFÍSK MIÐLUN VOR 2021 1. TBL. 10. ÁRG.
Askur | A
Hvar sem er Hvenær sem er
Fræðslumolar Vefnámskeið Hlaðvörp
Símenntun gefur þér kost á betri tækifærum á atvinnumarkaði. IÐAN fræðslusetur býður upp á fjölda námskeiða fyrir fagfólk í iðnaði.
B | Askur
Vatnagarðar 20 104 Reykjavík
Sími 590 6400 idan@idan.is
www.idan.is
LEIÐARI Nú líður að lokum á þessu frábæra en jafnframt krefjandi námi og það sem þú, kæri lesandi, hefur í höndunum er lokaverkefnið okkar. Tímaritið Askur er samstarfsverkefni allra nem enda í grafískri miðlun og í því koma saman ólíkir persónuleikar með ólík áhugamál sem mynda hér eina heild. Tímaritið endurspeglar okkur sem einstaklinga og þá samheldni sem einkennt hefur hópinn í gegnum námið. Með handleiðslu frábærra kennara og góðri sam vinnu erum við komin á endastöð. Það er alltaf erfitt að kveðja, en tímamót eru af hinu góða og það verður gaman að fylgjast með hópnum blómstra í náinni framtíð. Kærar þakkir fyrir okkur og gleðilegt sumar. Fyrir hönd útskriftarnema, Agnes Lilja Jóakimsdóttir og Jana Katrín Magnúsdóttir
UMBROT OG HÖNNUN Nemendur vorannar 2021 SAMSETNING TÍMARITS Vildís Inga Salbergsdóttir Torfi Kristinn Ólafsson FORSÍÐA Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir NEMENDAMYNDIR Heiða Norðkvist Halldórsdóttir AUGLÝSING – IÐAN Vildís Inga Salbergsdóttir AUGLÝSING – LITLAPRENT Jana Katrín Magnúsdóttir AUGLÝSING – GRAFÍA Jana Katrín Magnúsdóttir ÚTGEFANDI Tækniskólinn PRENTUN Upplýsingatækniskólinn LETUR Í MEGINMÁLI Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 PAPPÍR UPM DiGi 130 g/m² UPM DiGi 250 g/m²
LEIÐARI Askur | 1
EFNISYFIRLIT AGNES LILJA JÓAKIMSDÓTTIR
4
Letterpress Sylvía Haukdal: Viðtal Dásamleg súkkulaðikaka Vistvænar vörur
ANÍTA ÝR ÞÓRÐARDÓTTIR
14
Rússneska keisaraættin Franska keisaraættin Frönsk súkkulaðikaka
GUÐRÚN KRISTÍN VILHJÁLMSDÓTTIR
22
Hvað er grafísk hönnun? Shoplifter Eldgos í Geldingadal Innanhússstraumar
HEIÐA NORÐKVIST HALLDÓRSDÓTTIR
30
Undir smásjánni: Kristín Sif Vinsælar gönguleiðir Sigríður skrifar: Saga mín um endometriosis Falleg gjafavara
ÍSABELLA ÆVARSDÓTTIR
40
Bókarkápur Saga bókarkápunnar Comic Sans
JANA KATRÍN MAGNÚSDÓTTIR Smoothies: Uppskriftir „Það er draumur að vera með dáta“ Ógleymanlegir staðir í Hvar Artemisia Gentileschi
2 | Askur
48
58
KRISTA EINARSDÓTTIR Tískan og hringrás Levi Strauss & Co. 66° norður
64
KRISTÍN SIF PÁLSDÓTTIR Árbær Er íslenski hesturinn smáhestur? Hver smíðaði fyrstu tölvuna?
72
ÓLÖF RUT GÍSLADÓTTIR Nike Hreyfing Guðmundur Eggert: Viðtal Dragmenning
80
SARA HANH HONG BUI Bátafólk Af eigin reynslu: Viðtal Lífið sem flóttamaður
86
SIGURÐUR EINAR JÓNSSON Í krafti fjöldans Sjálfvakinn bruni Viðtal við Sniper Aftur & aftur & aftur Bamboozled
96
TORFI KRISTINN ÓLAFSSON Lincoln in the Bardo Wassily Kandinsky Bauhaus Súrdeig
106
VILDÍS INGA SALBERGSDÓTTIR Hrund Guðmundsdóttir: Viðtal Andy Warhol Ásthildur og Kristín: Viðtal
Askur | 3
4 | Askur
AGNES LILJA Agnes Lilja heiti ég, fædd í Reykjavík árið 1997 en alin upp á Húsavík frá fimm ára aldri og það má því segja að stælar borgarbarnsins hafi fylgt mér frá fæðingu. Í grunnskóla var textílmennt í uppáhaldi og ég var farin að skoða hönnun snemma, meira en ég gerði mér grein fyrir. Hafði mjög sterka skoðun á litum og það komst sko enginn upp með að klæða mig í bleikt, þó svo að sá litur fari ekkert í taugarnar á mér í dag. Heima við litaði ég, saumaði og breytti herberginu mínu u.þ.b. einu sinni í viku. Það má því segja það tímaspursmál hvenær ég myndi skrá mig í hönnunartengt nám. Ég úskrifaðist með stúdentspróf frá Framhaldsskólanum á Húsavík 2018 en fyrir það staldraði ég við í Verkmenntaskólanum á Akureyri í hárgreiðslunámi þar sem litafræði og teikning voru áfangar fyrir mig, restin, ekki svo mikið. Því lá leið mín suður yfir heiðar því mér fannst ekkert henta á öllu Norðurlandi. Þar fann ég grafíska miðlun. Ég er svo ótrúlega þakklát og ánægð að hafa skellt mér í þetta nám og sinnt því með sóma. En nú er þessum kafla lífsins að ljúka og ég spennt fyrir því að sjá hvaða dyr þetta opnar og hvað framtíðin ber í skauti sér!
Askur | 5
press
Ljósm.: Erik Mclean
Ljósm.: Fabio Samtaniello Bruun
LETTER
Upphaf letterpress prentunar má rekja til áranna í kringum árið 1450. Á þessum árum var letterpress prentun aðal prentaðferðin sem var notuð en hún skipti höfuðmáli í samskiptum fólks og var notuð í a.m.k. 500 ár. Bækur voru gefnar út með þessum hætti en í dag er frekar litið á þessa aðferð sem listform. Hugmyndafræðin á bakvið letterpress er ein sú elsta í heiminum en hana má rekja til Kína allt aftur til ársins 175 eftir Krist. Síðar meir tók þessi aðferð að flytjast til fleiri landa eins og Tyrklands, Kóreu, Japan, um alla Asíu og Evrópu.
Það var svo á 14. öld sem Johann Gutenberg fann upp vél sem hægt var að nota í letterpress. Hans markmið var að gefa út bækur fyrir almenning en þegar þarna er komið við sögu voru stafir skornir úr við og litur settur á. Viðarstöfunum mátti alls ekki þrykkja í pappírinn svo sæist, en með því var einfaldlega verið að skemma letrið. Þetta var eins og gefur að skilja töluvert tímafrek vinna. Gutenberg vildi gera ferlið einfaldara og skilvirkara og það gerði hann með því að finna upp á nýrri aðferð til að útbúa stafina sem notaðir voru í prentunina. Gutenberg fór að nota blýstafi en til að byrja með þarf að útbúa stafina sem voru notaðir í prentunina. Fyrst þurfti að móta og þjala stafina úr stáli, þeir voru síðan notaðir til að pressa ofan í mýkri málm, eir í þessu tilfelli. Eir búturinn var síðan notaður sem mót en í það var hellt blýblöndu. Stafurinn var þá tilbúinn og hægt að nota hann í prentunina. Í nútíma letterpress prentun er aðferðin orðin enn önnur. Pólýmer prentklisjur hafa tekið við en þær hafa meiri herslu og bjóða upp á að grafíkinni sé þrykkt djúpt í þykkan og mjúkan pappír.
Ljósm.: helloimnik
Blýstafir komu í stað viðarstafa og á þessum tímapunkti varð prentpressan til. Með tímanum þróuðust svo aðferðir sem gáfu betri gæði og meiri hraða í framleiðslu. Offsetprentun sem er aðal prentaðferð dagsins í dag kom fyrst fram árið 1875 en það var Robert Barclay sem átti þá hugmynd. Árið 1904 kom I. W. Rubel með frekari uppfærslu á þeirri aðferð.
6 | Askur
Þessi aðferð byggir á svokallaðri stimpilprentun. Þegar prenta á með letterpress þarf að byrja á því að raða upp stöfum og merkjum sem eiga að koma fram á prentgripnum í svokallaðan haka. Myndir sem áttu að vera í prentinu eru kallaðar klisjur, en til þess að búa þær til var 2 mm magnesíum plata þakin ljósnæmu efni, filma síðan lögð ofan á og lýst. Þegar prentlit er síðan smurt á plötuna er einungis hluti þess sem flyst á milli. Klisjum og letri er síðan raðað í prentmót og notað til prentunar. Prentliturinn sem var notaður í slíka prentun er sambærilegur og prentliturinn sem notaður er í offsetprentun en það er olíuprentlitur sem inniheldur litarefni og bindiefni. Prentmótinu er komið fyrir í prentvélinni og prentlitnum smurt á með völsum í vél. Vélin sér síðan um að þrykkja því í pappírinn. Í nútíma prentsmiðjum
er ekki mikið um að olíuprentlitir séu notaðir í prentun, í staðinn er notaður jurtaprentlitur sem er einnig betri fyrir umhverfið. Þessi aðferð er hins vegar ekki gallalaus frekar en annað. Það er frekar vandmeðfarið að nota þverendaletur í slíka prentun. Til þess að komast upp með að nota slíkt letur þarf að vanda valið vel og nota „klassískt“ letur og gæta þess að þverendarnir glatist ekki í prentuninni. Til þess að prentliturinn komi sem best út og í sem mestum gæðum þarf að passa vel að hann sé rétt borinn á og að prentmótinu sé vel þrýst í pappírinn. Í letterpressprentuninni þótti það gæðamerki að prentliturinn þekti vel án þess að það sæist hæðarmunur á pappírnum. Í dag er áherslan hins vegar orðin aðeins önnur og nú er krafan um að hæðarmunur sé til staðar á pappírnum orðin meiri.
Texti: Agnes Lilja Jóakimsdóttir
Hvernig virkar letterpress?
Ljósm.: Bruno Martins
Auk þess að bjóða upp á alhliða grafíska hönnun hefur stofan sérhæft sig í Letterpress prentun, aldargamalli prentaðferð með nútíma tvisti. Ástríða fyrir grafískri áferð og þeirri dýpt sem prentaðferðin gefur skilar sér í margskonar fallegum prentgripum svo sem nafnspjöldum, merkimiðum, boðskortum, glasamottum og svo lengi mætti telja. Einnig hanna þær og framleiða eigin vörulínu þar sem áhersla er lögð á gleði og leik í texta og grafík.
Ljósmyndir og texti: Letterpress Reykjavík
Reykjavík Letterpress er hönnunarstofa stofnuð haustið 2010 af grafísku hönnuðunum Hildi Sigurðardóttur og Ólöfu Birnu Garðarsdóttur. Í dag er stofan rekin af Ólöfu og Birnu Einarsdóttur sem einnig er eigandi.
Askur | 7
VIDTAL Sylvía Haukdal
Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir er fædd og uppalin á Húsavík. Hún hefur tekið að sér mörg verkefnin í gegnum tíðina en nú er hennar helsta verkefni að færa gleði í veislur með fallegum kökum og bakkelsi. Auk þess heldur hún úti vefsíðunni sylviahaukdal.is og hefur framleitt þættina „Bakað með Sylvíu Haukdal“ sem eru aðgengilegir á Stöð 2 maraþon. Við fengum hana til okkar í smá viðtal til að forvitnast um hvað hún er að gera í dag. Fullt nafn: Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir. Við hvað starfar þú? Eigandi Bake me a wish. Hvar stundaðir þú nám? Ég kláraði stúdentspróf á Íslandi og fór svo í Le cordon bleu í London og lærði Pastry chef. Hvað ertu að gera í dag? Er eigandi Bake me a wish, starfa þar við rekstur og að baka. Svo vinn ég líka aðeins á samfélagsmiðlum.
Ljósmynd: Sylvía Haukdal
Hvað er best við að vera sinn yfirmaður? Ahh ég veit það ekki, ég ræð svolítið hvernig ég raða upp verkefnum og hvað það er sem ég vil selja í búðinni. Eins bara hvert ég vil fara með fyrirtækið. Það er líka kostur að velja hvaða fólki maður kýs að vinna með því það er svo mikilvægt að starfsandinn sé góður á vinnustaðnum.
Hvað finnst þér skemmtilegast að baka? Úff það er svo margt, fer svolítið eftir því í hvernig stuði ég er. Ég elska að gera stórar kökur eins og brúðartertur en svo elska ég líka að baka heima með stelpunum mínum þar sem við gerum oft vöfflur, muffins, snúða eða skúffuköku. Hvaðan kemur áhuginn? Ég hef alltaf haft áhuga á því að gera eitthvað í höndunum og elskaði að föndra og baka með mömmu í eldhúsinu á Húsavík. Ég byrjaði fyrst í fatahönnun, smám saman fór ég að baka meira og prófa mig áfram með allskonar skraut og fann hversu vel það höfðaði til mín.
8 | Askur
Hvað er verst við að vera sinn yfirmaður? Það er sennilega ábyrgðin, það er mjög erfitt að leyfa sér að slaka á og hugsa ekki um vinnunna. Hvar líður þér best? Í eldhúsinu með fjölskylduna mína í kringum mig og í vinnunni. Það er svo mikilvægt að líða vel í vinnunni líka. Önnur áhugamál? Ég elska útiveru og ferðalög með fjölskyldunni. Svo auðvitað bara baksturinn hann er alltaf mjög ofarlega.
Bragðtegundir • • • • • • • •
Jarðarberja Súkkulaði Vanillu Vanillu (sykurlaus) Myntu og súkkulaði Toblerone Kökudeig Oreo
• • • • •
Mangó Sítrónu Kirsuberja Ananas Jarðarberja
KÚLÍS ÍSBÚÐ
KÖKUR ÚR BAKE ME A WISH
Ljósmyndir: Sylvía Haukdal
Vegan bragðtegundir
Kúlís ísbúð
Opnunartími
Kúlis_isbud
Virka daga frá kl. 11–22. Helgar frá kl. 14–22.
Askur | 9
Kúlís ísbúð | Faxafen 11 | 108 Reykjavík sími 599 8888 | Kulis@kulis.is | Kulis.is
10 | Askur
Dásamleg súkkulaðikaka með súkkulaði og karamellukremi
Innihaldsefni
Aðferð
Súkkulaðibotnar
Súkkulaðibotnar
600 g sykur 315 g hveiti 115 g kakó 2 ¼ tsk. matarsódi 2 ¼ tsk. lyftiduft 1 ½ tsk. salt 3 egg 165 ml olía 330 ml mjólk 330 ml heitt vatn 3 tsk. vanilludropar
1. 2. 3.
4.
5. 6.
Smjörkrem
Byrjum á því að hita ofninn 175°c blástur. Setjum hráefnin í hrærivélaskál og hrærum saman. Þegar við höfum hrært öllum þurrefnum saman bætum við eggjum, olíu, heitu vatni, mjólk og vanilludropum saman við og hrærum þar til allt hefur blandast vel saman. Næst penslum við þrjú 20 cm bökunarform með olíu og setjum bökunarpappír í botninn og penslum svo aftur yfir pappírinn með olíu. Svo fara botnarnir inn í ofn við 175°c (blástur) í um það bil 25 mínútur eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni. Þegar botnarnir koma úr ofninum losum við hliðarnar á forminu og hvolfum úr þeim á bökunarpappír eða kæligrind.
1 kg smjör við stofuhita 1 kg flórsykur 7 msk. rjómi, má vera mjólk 2 tsk. vanilludropar
Smjörkrem
Súkkulaðikrem með karamellu
Súkkulaðikrem með karamellu
150 g suðusúkkulaði með karamellu og salti, brætt 100 g karamellukurl 250 g smjörkrem
1.
1. 2.
2. 3.
Við byrjum á því að þeyta smjör þar til það verður létt og ljóst. Næst bætum við flórsykri, rjóma og vanilludropum saman við og þeytum þar til kremið er orðið vel ljóst og dúnmjúkt.
Við byrjum á því að bræða súkkulaði yfir vatnsbaði, leyfum því síðan að kólna örlítið. Næst setjum við smjörkrem (250 g) í hrærivélaskál og þeytum brædda súkkulaðinu saman við kremið. Að lokum hrærum við karamellukurlinu saman við.
Samsetning 1. 2. 3. 4. 5.
6.
Við byrjum á því að setja smá smjörkrem á platta eða disk sem kakan á að fara á og setjum síðan fyrsta botninn ofan á. Síðan fer súkkulaðikrem ofan á og næsti botn ofan á kremið. Setjum aftur súkkulaðikrem ofan á botn númer tvö og setjum síðasta botninn ofan á. Næst setjum við kökuna inn í kæli og leyfum kreminu að stífna aðeins. Þegar kremið hefur stífnað á kökunni setjum við þunnt lag af smjörkremi utan um alla kökuna og setjum hana síðan aftur í kæli. Með því að gera þetta komum við í veg fyrir að fá mylsnu í kremið. Síðan setjum við aftur krem utan um kökuna og skreytum að vild.
Ljósmyndir og texti: sylviahaukdal.is Sprinkles fæst í Bake me a wish Ísland
Nafn | 11
VISTVÆNAR VÖRUR Á HVERT HEIMILI
Stálrör + bursti Stálrörin frá Hestia koma fjögur saman með þrifabursta og poka til að geyma þau í. Hægt að fá þau bæði bogin og bein.
Uppþvottabursti
Uppþvottaburstinn hjá okkur er plastlaus og því betri fyrir umhverfið. Þegar gamli hausinn er orðinn ljótur tekur þú hann einfaldlega af og skiptir.
Límband Límbandið hentar í hvað sem er og er endurvinnanlegt. Það er gert úr Tesa pappír sem er einstaklega slitsterkt. Rúllan er 50 m x 5 cm og er brún á litinn. Taupoki Stílhreinn og rúmgóður taupoki úr lífrænum bómul. Hentar frábærlega við fjölbreyttar aðstæður, allt frá skreppi í búðina yfir í sundferðina. Pokinn er ómerktur.
Vatnsflaska 550 ml drykkjarflaska úr gleri. Tappinn er úr bambus og slitsterkur sílíkon hólkur utan um flöskuna. Netapoki Netapoki með 18 kílóa burðarþol. Hentar fullkomlega í búðarferðina, sundið, á ströndina eða bara hvert sem er. Fæst með tveimur höldum eða einu sem er t.d. hægt að slengja yfir öxlina. Bómullarskífur 12 stk. Handgerðar bómullarskífur úr Þingeyjarsveit, heimabyggð Vistvænu Búðarinnar, heklaðar af Járnbrá. Henta vel til að hreinsa andlit og taka af farða dagsins. Má þvo í 95°C.
Uppþvottasápa LoofCo uppþvottasápustykkið er góður valkostur fyrir þá sem vilja hætta að nota sápu úr plastbrúsa. Gott fyrir umhverfið og öflugt á fitu.
12 | Askur Ljósmyndir og texti: Vistvaena.is
VerÐskrá Stálrör + bursti ............................................................. 600 kr. Uppþvottabursti ........................................................... 790 kr. Límband ....................................................................... 890 kr. Taupoki ......................................................................1.896 kr. Vatnsflaska................................................................ 3.190 kr. Netapoki ................................................................... 2.390 kr. Bómullarskífur........................................................... 2.190 kr. Uppþvottasápa ............................................................. 860 kr. Afhverju að skipta út plaströrunum? „Samkvæmt bandarískri rannsókn kom fram að um 500 milljón sogrör séu notuð á hverjum degi í Bandaríkjunum einum og sér. Talið er að um 8,3 milljarðar plaströra mengi strendur heimsins. Átta milljón tonn af plasti renna til sjávar ár hvert og eru sogrör skaðlegt hlutfall af því.“
Vistvæna búðin | Sunnuhlíð 12 | 603 Akureyri | Opið virka daga frá 12:00–18:00 | Opið laugardaga frá 12:00–15:00
RÁÐSTEFNA
Skráðu þig hér!
FYRIRLESARAR Stefán Pálsson Katrín Jónsdóttir
FORELDRAJAFNRÉTTIS
Verður haldin í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi 1.–2. maí. Hátíðarmálsverður 2. maí kl 18.00 í Silfurbergi. Mikilvæg atriði sem nauðsynlegt er að breyta: ~ ~ ~ ~ ~
Dómarar fái heimild til að dæma sameiginlega forsjá. Stuðla að sem mestri umgengni við báða foreldra. Börn geti átt tvö lögheimili og dvalið á þeim báðum. Meðlagsgreiðslukerfið verði endurskoðað frá grunni. Kostnaður við umgengni verði sameiginlegur.
Askur | 13
14 | Askur
ANÍTA ÝR Aníta Ýr Þórðardóttir heiti ég og er 28 ára gömul, fædd og uppalin í Reykjavík og er lærður förðunarfræðingur. Ég hef áhuga á söng og ég hef verið syngjandi frá því að ég man eftir mér. Ég hef einnig haft áhuga á hönnun og list, þar á meðal innanhússhönnun og hef unun af því að gera heimilið mitt fallegt. Ég hef líka alltaf haft mikinn áhuga á sögu, frá því að ég var mjög ung þá var ég heilluð af seinni heimsstyrjöldinni. Faðir minn kveikti undir enn meiri söguþrá sem hefur ekki slökknað síðan. Ég elska líka að ferðast og upplifa nýja menningarheima en ég ætla mér að ferðast á alla þá staði sem ég heillast að og eiga sér djúpa sögu því að tilfinningin er ólýsanleg og því get ég ekki beðið eftir að geta ferðast á ný. Ég hafði flosnað upp úr námi árið 2012 þar sem ég upplifði að nám væri ekki fyrir mig og úr því flutti ég til Þýskalands þar sem ég naut mín mjög vel. Eftir að ég kom aftur heim þá var ég frekar týnd og vissi ekkert hvað ég vildi gera í lífinu. Ég ákvað svo að skrá mig til náms við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ til þess að efla sjálfa mig og tók áfanga á borð við sögu, sálfræði og heimspeki. Þar fannst mér loksins að nám væri kannski eitthvað fyrir mig eftir allt saman. Hér endaði ég og mér hefur gengið mjög vel þrátt fyrir heimsfaraldur, ásamt því að hafa lent á nokkrum veggjum. En nógu vel hefur mér gengið að það styttist óðum í útskrift.
Askur | 15
Rússneska keisaraættin
16 | Askur
Romanor fjölskyldan Nicholas II ólst upp í Alexander höllinni í Sankti Pétursborg með foreldrum ásamt systkinum sínum, hann myndi einn daginn taka við rík asta konungsveldi í Evrópu og eignast 1/6 af heiminum þrátt fyrir að hann skorti leið togahæfni. Hann tók oft slæmar ákvarðanir sem gerði það að verkum að hann var ekkert sérstaklega elskaður á meðal landsmanna. Faðir hans var mikill leiðtogi og honum þótti sonur sinn frekar kvenlegur og sá ekki mikið leiðtogaefni í honum. Alexandra var frá Þýskalandi og var hún barnabarn Viktoríu drottningar og þar sem móðir hennar og systir létust úr barnaveiki tók Viktoría hana að sér og ól hana upp. Hún var hennar uppáhald. Hún var alin upp líkt og Viktoría sjálf, á mjög enskan hátt í anda Viktoríutímabilsins. Dreyrasýki var sjúkdóm ur sem hafði komið frá Viktoríu drottningu og hafði borist til móður hennar og síðar til Alexöndru sjálfrar. Viktoríu fannst hjónabandið alls ekki góð hugmynd þar sem henni fannst þetta frekar hættuleg krúna að taka. Foreldrum Nicholas líkaði ekki vel við Þjóðverja og að þýsk kona myndi taka við krúnunni væri ekki góð hugmynd.
Þau eignuðust fimm börn, fjórar dætur og einn son. Olga, Tatiana, Maria, Anastasia og Alexei. Alltaf kom hver stúlkan á fætur annarri og fólk var svekkt þar sem beðið var eftir karl kyns erfingja, Alexei kom svo á endanum en hann hafði fengið dreyrasýkina í vöggugjöf, og það þótti ekki nógu gott að erfinginn væri með slæmt blóð. Árið 1904 ákveður Nicholas að senda menn sína í stríð gegn Japan, til þess að reyna að stækka landið en það stríð tapaðist og árið 1905 á torgi í Sankti Pétursborg ákvað fólk að mótmæla, meira en hundrað manns létu lífið og mörg hundruð særðust. Í fyrri heims styrjöldinni átti Nicholas að stjórna hernum en í stað þess leiddi hann herinn í baráttu sem varð til þess að milljónir manna létu lífið. Þá skorti nauðsynlega skotvopn til að þeir gætu haldið baráttunni áfram, sem varð til þess að menn hættu í hernum. Heima ríkti mikil fátækt og konur þurftu að vinna öll störf burtu frá heimilum sínum á lélegu kaupi. Út frá þessu fékk Nicholas hlaut viðurnefnið Nicholas hinn blóðugi sem gerði það að verkum að fólkið í landinu missti traust á honum og þetta sýndi þetta fram á slæma leiðtogahæfni hans.
Askur | 17
Aðdragandi dauða þeirra 8. mars árið 1917, á konudeginum, fóru konur í verkfall til þess að heimta meiri mat og að keisari myndi segja af sér. Í lok dagsins voru komnir 100.000 mótmælendur. Þingið átti ekki roð í mótmælendurna þrátt fyrir að hafa reynt að halda friðinn. Nicholas var ekki á landinu og tók þá Alexandra við stjórn á meðan og var hún undir áhrifum Grigori Rasputins. Rasputin var maður frá Serbíu sem hafði unnið sér inn traust fjölskyldunnar vegna heilunarmátta sinna og notfærði sér það. Talið var að hann hefði sín eigin pólitísku áætlanir. Þann 15. mars 1917 eftir að Romanov ættin hafði ríkt í 300 ár, fékk Nicholas þau tíðindi að þingið hefði náð aftur völdum og að hann þyrfti að segja af sér, þau voru því seinasta keisara ættin í heiminum. Farið var með þau í Ipatiev hús ið í Yekaterinburg sem var kallað hús hins sérstaka tilgangs. Þar var byggður tréveggur í kringum allt húsið svo að þau gætu ekki séð heiminn handan veggja hússins. 17. júlí árið 1918 ætlaði hvíti herinn, sem var mjög tryggur keisarafjölskyldunni, að koma og bjarga þeim en Bolsévikar urðu fyrri til og létu til skarar skríða. Fjölskyldan var vakin um miðja nótt í flýti og þeim var sagt að fara niður í kjallarann. Inn komu vopnaðir menn í herbergið og lesið var yfir þeim dauðarefsing. Eftir fyrstu skotárásina í reykmökk þá var fjölskyldan særð, öskrandi og grátandi í geðshræringu. Fjölskyldan hafði saum að gersemar frá kastalanum í fötin sín og sumar byssukúlurnar höfðu skotist til baka vegna þess. Að lokum var fjölskyldan stungin til bana eða skotin í höfuðið, árásin stóð yfir í 20 mínútur. Þegar þeir báru líkin út í skóg þá tóku þeir eftir
því að tvær stúlknanna voru ennþá að reyna að berjast fyrir lífi sínu og því varð að stinga þær aftur. Áætlunin var að drepa þau öll samstundis, kveikja í þeim og jarða þau í skóginum þar nálægt, án þess að einhver myndi nokkurn tímann vita hvað hefði átt sér stað þennan örlagaríka dag. Þau voru afklædd og kveikt var í fötum þeirra og þeim var síðan hent ofan í námustokk sem var of grunnur, þau voru skilin þar eftir í þrjá daga þangað til ákveðið hafði verið hvernig ætti að losa sig við líkin. Reynt var að dýfa þeim ofan í sýru, brenna þau og svo þeim var komið fyrir í tveim mismunandi gröfum í þeirri von að það yrði nóg til þess að enginn myndi vita hvað hafði skeð.
Greinarhöfundur: Aníta Ýr Þórðardóttir
18 | Askur
Franska keisaraættin Louis XVI var 15 ára og var næstur í röðinni til að taka við krúnunni. Hann var ekkert sérstaklega fágaður og hann hentaði ekki alveg krúnunni enda hafði hann ekki þá kosti sem konungur ætti að hafa og var mjög óundirbúinn í þetta hlutverk sem honum var ætlað. Marie Antoinette var 14 ára glaðlynd stúlka frá Austurríki, ljóshærð með stór blá augu. Hún var mikið fyrir tískuna og hafði hún góðan smekk fyrir fallegum klæðum og var þekkt fyrir að hafa háar hárgreiðslur sem tók margra klukkutíma að útbúa. Hún var kölluð Madame déficit því að hún eyddi um efni fram þrátt fyrir að fjárhagur landsins væri í molum. Hjónabandið var pólitísk ákvörðun tveggja fjöl skyldna og sú ákvörðun var tekin til þess að Frakk land og Austurríki yrðu ekki lengur óvinir heldur bandamenn. Brúðkaupið var haldið í Versölum þann 16. maí árið 1768. Þau eignuðust fjögur börn.
Louis XVI
Listamaður: Antoine-François Callet
Í mörg ár hafði fólkið í landinu búið við mikla fátækt á meðan fólkið í höllinni naut sín. Mikil hungursneyð var á meðal almúgans því að stjórn in í landinu var til skammar. Það var skortur á uppskeru á kornmeti svo að ekki var hægt að framleiða hveiti, sem var helsta matarafurð frakka og það stoppaði auðvitað við dyr hallarinnar. Það tók við mjög harður vetur og það varð skortur á öllu í landinu. Skattar hækkuðu, brauð kostaði mánaðarlaun og þá urðu óeirðir þar sem heimili og bakarí voru rænd. Almúginn hafði fengið rödd og það kom yfir lýsing um mannréttindi, þar sem allir áttu að vera jafnir og réttlæti samkvæmt sanngjörnum lögum og að fólkið í landinu átti forðann, í þessum skjöl um var hvergi minnst á konunginn. Marie Antoinette
Listamaður: Vigée Le Brun
Askur | 19
Versalir
Þúsundir manna gengu berserksgang að Versölum vopnaðir byssum og spjótum til þess að skrifað yrði undir þessa yfirlýsingu og konungur skrifaði undir hana samstundis. Á þessum tímapunkti átti Marie Antoinette að hafa sagt „leyfum þeim að borða kökur“ til þess að fólkið yrði ekki eins hungrað, líklega sagði hún þetta ekki þar sem hún vissi lítið hvað var á seyði fyrir utan veggi hallarinnar. Daginn eftir komu saman um 20.000 manns fyrir utan höllina í mótmælaskyni. Fólkið heimtaði að konungur og drottning myndu flytja til Parísar til þess að þau myndu axla ábyrgð á stöðunni í landinu. Louis hikaði svo það reitti fólkið til mik illar reiði og fólk réðist á verðina og afhausaði þá og settu höfuðin á spjót. Fólkið leitaði að þeim í höllinni og brutust inn í herbergi drottningar innar og rifu rúmið allt í sundur og hefðu líklega aflimað drottninguna ef þeir hefðu fundið hana. Þau myndu aldrei sjá Versali aftur, eftir þessa flutninga var orðið ljóst að þau væru orðnir fangar í Parísarborg. Ný lög og lýðræði tóku gildi tveim árum seinna
Ljósmyndari: Ninara
í maí 1791. Konungshjónin segjast vera hlynnt þessum nýju lögum og konungur var látinn skrifa undir lög sem takmörkuðu völd hans með hverri undirskrift á eftir annarri. Margar leiðir voru notaðar á miðöldum til refs inga, á borð við hengingar, drekkingar og háls höggvun. Með nýjum lögum í landinu þar sem allir áttu að vera jafnir þá var ákveðið að fella þær úr gildi, en í staðinn kom fallöxin. Með þeim hætti myndu allir deyja á sama hátt, óháð stétt eða stöðu. Fallöxinni var komið fyrir í miðri Parísarborg og fékk nafnið Girondins. Hún var talin fljótleg, áhrifarík leið sem átti að kallast sársaukalaus. Þann 10. ágúst 1792, gerðu 27.000 vopnaðir borgarbúar, villimannlega árás á verðina þar sem 800 manns létust úr báðum liðum. Þá flúði Louis til þingsins í von um öryggi en það var úti um konungsveldið og hann var sviptur titli sínum og franska lýðveldið varð til, en nýja lýðveldið gat þó ekki orðið til nema með dauða konungs. Þann 21. janúar 1793 fékk Louis að kynnast Girondins og var hálshöggvin 38 ára að aldri. Níu mánuðum síðar hlaut drottning sömu örlög. Greinarhöfundur: Aníta Ýr Þórðardóttir
20 | Askur
„Leyfum
Frönsk súkkulaðikaka
þeim að
Botn
Magn
Súkkulaðibráð
Magn
Sykur
2 dl
Suðusúkkulaði
150 g
Smjör
200 g
Smjör
70 g
Suðusúkkulaði
200 g
Síróp
2 msk.
Hveiti
1 dl
Egg
4 stk.
Aðferð botn Þeytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi við 170°C í um 30 mínútur. Súkkulaðibráð 150 g suðusúkkulaði 70 g smjör 2 msk síróp Aðferð Látið hráefnin saman í pott og bræðið við lágan hita. Kælið bráðina lítillega og berið síðan á kökuna.
borða
köku r“
Aðferð súkkulaðibráð Látið hráefnin saman í pott og bræðið við lágan hita. Kælið bráðina lítillega og berið síðan á kökuna.
Tekið af Gulur, rauður, grænn & salt.
Askur | 21
22 | Askur
GUÐRÚN KRISTÍN Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir heiti ég og er ég 27 ára gömul, fædd árið 1994. Ég er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en hef þó verið á miklu flakki síðan ég var unglingur, eða alveg frá því að ég fór til Bandaríkjanna í skiptinám aðeins 17 ára gömul. Eftir að ég útskrifaðist sem stúdent frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum var ég eins og svo margir aðrir frekar týnd með hvað mig langaði að gera. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á list og alls kyns hönnun og stefndi alltaf á að fara í einhverskonar listrænt nám, en vissi þó aldrei hvað. Að finna mig og það sem mig virkilega langar að gera hefur verið smá ferli. Fór ég meðal annars í Reykjavík Makeup School þar sem ég útskrifaðist sem förðunarfræðingur. Hef verið á ansi víðum sviðum vinnumarkaðsins, allt frá því að starfa sem þjónn og sölumaður yfir í að vinna á dekkjaverkstæði og í fiskvinnslu. Það var svo þegar ég fór á námskeið hjá Prómennt með kennslu á öllum Adobe forritunum sem ég læri inn á þetta fag og heyri af grafískri miðlun í fyrsta skiptið. Nú er hins vegar komið að lokasprettinum í þessu námi þar sem ég stefni á að útskrifast í maí. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt en krefjandi nám sem ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa skráð mig í. Eftir útskrift stefni ég á áframhaldandi nám og er ég viss um að þessi reynsla muni veita mér frábæran grunn fyrir það.
Askur | 23
HVAÐ ER
GRAFÍSK HÖNNUN? Grafísk hönnun er listin, starfsgreinin og fræðigreinin sem sameinar myndir, liti, letur og hugmyndir í sjónræna framsetningu sem ætluð er að senda ákveðin skilaboð til samfélagsins með einhverju ákveðnu markmiði. Hún gerir þetta á fjölmargan hátt, hún flokkar og aðgreinir – greinir til dæmis eitt fyrirtæki, stofnun eða þjóð frá öðru. Hún upplýsir – segir okkur til dæmis á hvaða prógrammi við megum þvo peysuna okkar. Grafísk hönnun hefur einnig áhrif á tilfinningarnar okkar og hjálpar við að móta skoðun okkar á heiminum í kringum okkur. Hún er allt í kringum okkur, að útskýra, skreyta, auðkenna: leggja þýðingu á heiminn. Við sjáum grafíska hönnun út á götu í götuskiltum, í öllu sem við lesum, tímaritum og auglýsingum, lógóum og mynstrum í fatnaði okkar og meira segja þvottamerkin á bolum okkar.
Litur Litaval er sérstaklega mikilvægt þegar
Mikilvægir þættir grafískrar hönnunar
búið er til með línum. Til eru mismunandi gerðir forma eins og geometrísk, abstrakt og lífræn form, sem allt eru grunnþættir hönnunar.
Þeir grundvallar þættir sem notaðir eru til þess að mynda og móta alla list og hönnun og miðla sjónrænum skilaboðum hennar eru:
Strik
er einn helsti grund vallarþáttur hönnunar. Strik getur verið bogið, beint, þykkt, þunnt, tvívíddar, þrívíddar, hvað sem er í rauninni. Strik er einfaldlega skilgreint sem punktur á hreyfingu.
kemur að því að vekja athygli þar sem mikil sálfræði liggur á bak við hvern og einn lit og hvaða tilfinningar þeir geta kallað fram. Það eru þrjú einkenni eða eiginleikar sem skilgreina liti: litbrigði- hvaða litur þetta er, gildi- hversu ljós eða dökkur liturinn er og mettun- hreinleiki litarins.
Leturfræði er listin að raða letri. Þessi þáttur er mjög mikilvægur þar sem leturgerðin getur haft mikil áhrif á skilaboð hönnunarinnar. Mismunandi stílbrigði, feitletrað, skáletrað og venjulegt, með mismunandi stærðum, litum og línu bilum getur haft gríðarleg áhrif á túlkunina sem hönnuðurinn er að reyna að segja.
Form er tvívíddar skilgreint svæði sem
Stærð
Her er einfaldlega átt við hversu lítið eða stórt eitthvað er. Í hönnun er stærð notuð sem vísbending um mikilvægi, einnig getur hún skapað sjónrænan áhuga á hönnun með því að nota andstæðar stærðir.
Áferð hönnunar vísar til þess hvernig til- Rými Með rými er átt við þau svæði finning er að snerta hlutinn. Áferð getur verið á ýmsan máta til dæmis verið gróf, slétt, gljáandi, mjúk, hörð o.s.frv. Áferð er þáttur sem notaður er til að vekja athygli. Hægt er að bæta fleiri þáttum við eins og lögun, litum, myndum og gerðum. Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Heimildir: Bókin grafísk miðlun og g2.com Mynd: Unsplash
hönnunarinnar sem skilin eru auð. Þessi svæði fela í sér hvaða fjarlægð sem er, milli, kringum, fyrir ofan eða fyrir neðan hönnunarþætti. Hönnuðir setja vísvitandi rými í hönnunina til þess að leggja áherslu á hluta hönnunarinnar.
SHOPLIFTER HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR Hrafnhildur Arnardóttir, fædd árið 1969 er einnig er þekkt sem Shoplifter. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi frá School of Visual Arts í New York. Listasköpun Hrafnhildar liggja á mörkum myndlistar, gjörninga og tísku. Verkin hennar eru að mestu skúlptúrar, veggverk og innsetningar úr ýmsum efnivið, sem fjalla jafnan um sjálfsmynd, fegurð, tísku og hégóma. Það er skemmtilegt að segja frá því hvernig listmannanafnið hennar Hrafnhildar varð til, en það var semsagt til útfrá algjörum miskilingi og tungumála mismuna. Hún var ný flutt til New York og kynnir sig sem Hrafnhildur, en þar sem þetta sterka íslenska nafn er ekki auðvelt fyrir bandaríkjumann að bera fram, tekur hann því sem „shoplifter“. Hún hafði mjög gaman af þessum misskilning og fer eftir þetta að kalla sig shoplifter. Undanfarin 15 ár hefur hún mestmegnis verið að gera verk úr hárum, þar sem hún vinnur bæði mér gervihár jafntsem ekta mannshár. Hefur verið að kanna notkun, tákngildi og listrænu möguleika hársins. Áhugi Hrafnhildar af hári byrjaði á unga aldri þegar hún fann af klippta fléttu af ömmu sinni í náttborðskúffunni hennar. Hún skoðaði fléttuna mikið sem barn, það var eitthvað flippað og fríkað við þetta, henni fannst hún bæði krípi en á sama tíma eitthvað fallegt við hana þar sem fléttan var einhverskonar minjagripur af ömmu hennar úr æsku. Hrafnhildi vill vekja þessar tvær andstæðu tilfinningar af fegurð og ógeðfeld, sem fólk á til með að hafa gagnvart hári.
Fólki finnst hár rosalega fallegt og flott þegar það tilheyrir líkamanum en um leið og það er dottir af er það orðið ógeðslegt og frekar krípí. Þegar fólk myndar sér skoðun á verkum hennar þarf það því svolítið að velja á milli hvort þeim þykir verkið krípí og frekar ógeðsleg eða fluffý og fá jafnvel þá tilfinningu að vilja snerta. Þrátt fyrir að hafa unnið með sömu skúlptúrana undanfarin 15 ár og jafnvel söm seríuna þá verða verkin aldrei alveg eins þar sem hún situr alltaf upp alveg nýtt verk í hvert sinn, leyfir rýminu á hverjum stað að ákveða hvernig verkið á að vera. Hrafnhildur er rosalega litrík og elskar að vinna með skæra og skemmtilega liti, hún trúir að litir séu sálrænt meðal og hjálpi til gegn depurð og skammdegisþunglyndi.
Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Myndir: Shoplifterart
Askur | 25
ELDGOS Í GELDINGADÖLUM Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að það sé virkt eldgos á Reykjanesskaganum. Eldgosið er staðsett í Geldingadölum austan undir Fagradalsfjalli og hófst það 19. mars. Eins þreyttur og maður er orðin af fréttum og almenni umfjöllun í þjóðfélaginu dag, virðist sem allt snúist bara um covid eða þetta blessaða eldgos. Sjálf er ég allavega orðin vel þreytt af þessu en á sama tíma megum við ekki gleyma því hversu ótrúlega magnað þetta eldgos er. Eins og svo margir aðrir hafa gert þá pakkaði ég í tösku, skellti mér í útiföt og gerði mér ferð upp að gosstöðvunum. Þetta var í rauninni önnur
Texti og myndir: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir
Eldgosið Eldgosið er staðsett í Geldingadölum austan undir Fagradalsfjalli og hófst það að kvöldi 19. mars. Geldingadalir eru grunnir dalir austan undir Fagradals fjalli, á Reykjanesskaganum. Geldingadalir draga nafn sitt af því þegar sauðfjárbændur heldu geldfé aðskildum frá ám með lömbum til að eyða ekki tíma og orku við að reyna mjólka þær ær.
26 | Askur
ferðin mín upp að eldgosinu en upplifunin var samt sem áður allt önnur þar sem eldgosið er á stöðugri breytingu og það er aldrei eins. Þetta skiptið passaði ég mig á að hafa myndavélina mína meðferðis og hér til hliðar getið þið séð brot af þeim myndum sem ég tók. Ég mæli eindregið með því að allir þeir sem hafa færi á að ganga upp að eldgosinu, geri sér ferð þangað. Þetta er einfaldlega mögnuð upplifun í alla staði sem myndir og myndbönd ná aldrei að skila sér alveg.
Eldgosið myndaðist í kjölfar jarðskjálftahrinu sem stóð í meira en 3 vikur og er þetta fyrsta eldgosið á Reykjanesskaganum í 800 ár þegar Reykjaneseldar geisuðu, eru 6000 ár síðan gaus í Fagradalsfjalli. Eldgosið er flokkað sem dyngjugos en slíkt gos hefur ekki sést á Íslandi frá því um lok ísaldar og tegund hraunsins er helluhraun. Kvikan er frumstæð og kemur úr 17–20 kílómetra dýpi. Heimild: Wikipedia
Askur | 27
5
INNANHÚSSSTRAUMAR Nordal Spirit iron spegill, Húsgagnahöllin
DÖKKT OG DÁSAMLEGT
Óhætt að segja að minimalíski, skandinavíski stílinn hefur verið sá allra vinsælasti þegar kemur að innanhússstraumum undanfarin ár. Nú virðist sem hvítu húsgögnin séu að víkja fyrir dekkri tónum.
99.990,-
Riverdale Walton stóll, Húsgagnahöllin 179.990,-
Ittala lampi, Húsgagnahöllin Piero sófaborð, Snúran
78.990,-
277.800,-
KÚRVUR OG LÍFRÆN FORM
Hringir, sporöskjulaga form og almennt mjúkar línur hafa líklega ekki sést í jafnmiklu mæli síðan á sjöunda áratugnum. Hippastíllinn í bland við nútímalegri húsgögn þar sem mjúkar línur, hlýlegir litatónar, stórar plöntur, umfangsmikill textíll og náttúruleg efni taka völd.
New Wave Optic, Snúran 63.900,Paste hægindatóll, Snúran 247.800,-
Webbing sófaborð, Purkhús 58.890,-
Focus skenkur, Húsgagnahöllin 169.990,-
28 | Askur
SUMAR
SPRENGJA Þú færð hlau pa fatnaðinn fyrir su marið hjá okku r Listaverk og plöntur
Stór og vígaleg listaverk hafa verið að aukast með tímanum inn í stofur og opin rými heimilanna. Búast má við að sjá stór og áberandi verk á öðru hverju heimili þar sem íslenskir listamenn fara að verða í auknum mæli. Einnig eru stórar sem smáar plöntur alltaf að aukast, sem er æði því plöntur gefa svo mikla hlýju og líf í rýmið.
FÁGAÐUR IÐNAÐARSTÍLL
Iðnaðarstíll hefur lengi verið vinsæll en nú má sjá töluvert fíngerðari og fágaðri útfærslu af stílnum. Hreinar og nútímalegar línur í bland við hrá efni og grófri áferð. Málmar hafa lengi verið vinsælir en nú fer steypa einnig að aukast gríðalega í vinsældum, þá sérstaklega sjónsteypu veggir í stórum opnum rýmum.
Verð nú 13.990,-
Verð áður 19.900,-
Verð nú 12 .990,Verð áður 24 .900,-
BAST, BAMBUS OG REYR
Náttúrulegur efniviður verður sýnilegri. Ofin handverk og áferð þar sem bambus og reyr kemur sterkt inn.
Wicker bast ljós, Purkhús
Texti: Guðrún K. Vilhjálmsdóttir Heimild: Hús og Híbýli Myndir: Snúran | Purkhús og Húsgangahöllinn
64.890,-
Ármúli 18 | 104 Reykjavík www.mantra.is
Askur | 29
7
30 | Askur
HEIÐA NORÐKVIST Ég er 22 ára, fædd og uppalin í Reykjavík. Ég útskrifaðist árið 2018 sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og fór þaðan beinustu leið í Tækniskólann til þess að læra ljósmyndun. Í sameiginlega grunninum vakti grafísk miðlun áhuga minn en umbrot hefur alltaf heillað mig. Mér finnst gaman að vinna með liti, form og texta, sem er í raun allstaðar í kringum okkur. Ég er einnig með mjög sterkar skoðanir á litum og litasamsetningum ásamt týpógrafíu. Ég ákvað þó að klára ljósmyndun fyrst og útskrifaðist síðasta vor. Mér finnst skemmtilegast að mynda fólk, sérstaklega portrett og tískuljósmyndir en listræn ljósmyndun er eitthvað sem mig langar til að stúdera meira. Annars kallar mamma mig stundum íþróttaálf. Ég æfi crossfit, stunda fjallgöngur og elska alla útivist. Mér finnst einnig gaman að skrifa og þá sérstaklega ljóð. Hönnun og tíska hafa líka alltaf átt samastað í hjarta mínu. Fatastíllinn minn er blanda af töffara og skvísu en ég er mikill aðdáandi second hand búða. Ferðalög eru líka í uppáhaldi en ég er spenntust fyrir hálendinu þessa dagana. Í grunninn hef ég mjög vítt áhugasvið og langar til þess að læra meira og starfa á fjölbreyttu skapandi sviði í framtíðinni.
Askur | 31
UNDIR SMÁSJÁNNI:
Kristín Sif Útvarpskona á K100 næringaþjálfari ITS
&
Fullt nafn: Kristin Sif Björgvinsdóttir. Áhugamál: Svo margt! Box, crossfit, fríköfun, hestamennska, útvarp, mindset þjálfun og matur. Starfsheiti: Útvarpskona og þjálfari. Hvernig myndir þú lýsa þér í 5 orðum? Sterk, þrautseig, traust, heiðarleg og kærleiksrík. Hvernig er „hefðbundin” dagur í lífi þínu? Ég vakna snemma til að mæta í vinnuna á K100 þar sem ég er í útsendingu frá 6–10 fæ mér tvo kaffibolla og eftir það vinn ég sem næringarþjálfari fyrir ITS transformation sem er macros næringar prógram. Ég fæ mér oftast smá að borða meðan ég vinn við þetta og vigta allt og mæli. Lífskorna bolla með osti og kalkúnaskinku verður oftast fyrir valinu og smá hafragrautur. Eftir það þjálfa ég einn til tvo tíma og fer í einkatíma með boxþjálfara. Ég tek síðan styrktarprógrammið mitt um miðjan daginn og þegar ég er búin að því sæki ég kids og skutla í þeirra íþróttir og fer í búð eða annað sem þarf að gera. Fæ mér svo smá að borða. Ég pródúsera þáttinn á K100 svo að ég er yfir daginn að bóka viðmælendur og skipuleggja þattinn fyrir næsta dag. Seinnipart dags fer ég á hópæfingu/ keppnisæfingu i boxi og síðan er það heim að elda mat og gefa börnunum að borða ásamt því að láta þau lesa og læra heima. Síðan er það loks gæðastund með fólkinu mínu. Hverjar eru helstu fyrirmyndirnar þínar og af hverju? Malala er stór fyrirmynd af því að hún gafst ekki upp og hélt áfram að berjast fyrir því sem hún trúði á þó hún hafi verið skotin í höfuðið. Vigdís Finnboga af því að hún er geggjuð í alla staði og kærleiksrík og yndisleg.
32 | Askur
Ljósmynd: Hanna Andrésdóttir
Ertu með einhver markmið? Já hef alltaf að hafa langtíma og skammtíma markmið. Eitt markmið er að ná 20 bardögum, er komin í 14. Þetta var markmið fyrir 2020, væri gaman að ná því núna. Annars langar mig að vinna stórmót og verða hnefleikakona ársins 2021. Ég ætla líka að hlaupa í Hengill ultra 26 km og stefni á að ná mínum besta tíma í 10 km hlaupinu í Reykja víkur maraþoninu. Einnig vil ég ná að hugleiða á hverjum degi. Langtímamarkmiðin mín eru svo að keppa á Evrópumóti og aftur í crossfit masters, gera Ísland vaknar að vinsælasta útvarpsþætti landsins og ná að kafa niður á 30 metra. Hvað geriru til þess að hlaða batteríin? Fer í sveitina. Ég kem frá Borgarnesi og var alltaf svo í sveitinni á sumrin... Á hestbaki og endalaust úti. Elska það bara. Ef þú ættir að gefa 10 ára Kristínu einhver ráð, hver væru þau? Að vera ákveðin. Þú stjórnar bara þér og að gera það sem er erfitt gerir þig þrautseiga. Aldrei gefast upp.
HRAÐA SPURNINGAR Hvernig hefur crossfit haft áhrif á þig?
Hvar líður þér best?
Crossfit breytti öllu hjá mér, andlega og líkam lega. Ég var með mjög mikla minnimáttarkennd sem nú er nánast bara horfin. Ég hef mikla trú á sjálfri mér og minni getu núna, en passa mig þó að halda í auðmýktina. Mér finnst sérstaklega frábært að fólk leitar til mín með spurningar og spyr mig ráða. Mér finnst æðislegt að geta ráðlagt fólki varðandi hreyfingu og mataræði. Crossfit er líka svo mikill félagsskapur, hef eignast mína allra bestu vini þar.
Með fólkinu mínu. Hvað óttastu mest? Að vera ekki góð mamma. Í hvaða stjörnumerki ertu? Bogamaður. Hvað færðu þér þegar þú vilt gera vel við þig? Steik og bernaise.
Hvað þarf til að vera góður í hnefaleikum?
Hvað færðu þér í bragðaref?
Númer eitt tvö og þrjú er agi til að æfa sig mikið sjálfur fyrir utan tímana. Þetta er svo mikil tækni að það er nauðsynlegt að æfa sig.
Toblerone, hvítt súkkulaði og cookie dough . Hvað er ómissandi þessa dagana? Góða viðhorfið.
1.–2.maí ,íHörpu VIÐ ERUM VERA:
MARKMIÐ:
Ný samtök standa vörð um geð heilsu barna, allt frá upplýsinga öflun til miðlunar í formi nám
Geðrækt verður hluti af aðalnám skrá grunnskóla.
skeiða, fyrirlestra og námsefnis.
Sálfræðingar verða til staðar í öllum grunn og framhaldsskólum.
Skráning fer fram á: born.is/skraning og í appinu
Jafnt aðgengi barna að þjónustu alveg óháð fjárhag foreldra.
Skráðu þig í appinu
Askur | 33
Vinsælar gönguleiðir
ÞÓRSMÖRK
Laugavegur
Fimmvörðuháls
Vinsælasta lengri gönguleið landsins. Gengin á tveimur–fjórum dögum, oftast þó líklega á þremur til fjórum dögum. Lagt er af stað í Landmannalaugum og gengið suður hálendið í Þórsmörk eða Bása. Leiðin er alls rúmir 53 km og er því hófleg ganga á þessum tíma. Þegar Laugavegurinn er genginn í fyrsta skipti ætti að taka sér góðan tíma til að njóta ferðalagsins. Algengt er að skipta göngunni niður í fjórar eftirfarandi dagleiðir. Dagur 1. Landmannalaugar – Hrafntinnusker. 10,7 km og tekur um 4–6 klst. Hækkun ca. 460 m. Líklega sú dagleið sem mörgum reynist erfiðust en með mestu hækkunina. Dagur 2. Hrafntinnusker – Álftavatn. 11,4 km og tekur um 4–5 klst. Engin hækkun en ca. 500 m lækkun. Hér skiptast á svartir sandar, snjóskaflar, jökulleifar og litrík hverasvæði. Einnig birtist fyrsta áin sem þvera þarf. Dagur 3. Álftavatn – Emstrur. 12,4 km, tekur um 4–6 klst. Lítil heildarhækkkun. Nokkuð létt og þægileg leið en þarf að þvera þrjár ár á leiðinni. Dagur 4. Emstrur – Þórsmörk (Langidalur). 18,2 km og tekur um 6–8 klst. Hækkun ca. 120 m. Líklega fjölbreyttasta landslagið þó megi kannski segja slíkt hið sama um fyrsta daginn.
Er svæðið milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Leiðin er í heild um 26 km og ein af fallegri gönguleiðum landsins. Útsýnið sem blasir við þegar horft er yfir Bása, Almenninga og Þórsmörk er ólýsanlegt. Gangan hefst við tjaldsvæðið við Skógarfoss. Líklega einn af tignarlegri og fallegri fossum landsins þar sem hann fellur um 60 metra fram af bjargbrúninni. Alls eru rúmlega tuttugu fossar á leiðinni að göngubrúnni þar sem gengið er yfir Skógá. Frá Skógum upp að Fimmvörðuskála er um 6–7 klst. ganga. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1100 m hæð. Frá Fimmvörðuskála er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsnium. Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gos stöðvarnar og niður Bröttufönn. Af norðanverðum hálsinum, í góðu skyggni er ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og yfir Landmannaafrétt. Frá Bröttufönn er haldið um Heljarkamb og farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Búast má við að gangan taki í heild sinni um 10–12 klst.
Þórsmörk
34 | Askur
Ljósmynd: Pavel Karafiát
GLYMUR
skemmtileg gönguleið í Hvalfjarðarsveit Fossinn Glymur er 198 metrar á hæð og sá hæsti hér á landi. Hann er einungis aðgengilegur þeim sem eru fótgangandi og þarf að vera í nokkuð góðu formi til að komast að honum. Það tekur að meðaltali rúmar þrjár klukkustundir að labba að fossinum og til baka. Lækir, dökkir hellar, græn gljúfur og villt blóm munu leynast meðfram slóð inni og gera gönguna mjög eftirminnilega. Frá bílastæðunum innst í Botnsdal liggur stígur inn að Botnsá. Fyrst er farið niður í gegnum helli og svo er áin þveruð. Á sumrin má finna trjábol og vír sem hægt er að nýta til að komast yfir. Stígurinn liggur svo upp með ánni að austanverðu meðfram fossinum. Áin er þveruð aftur ofan við fossinn og þaðan liggur leiðin niður með ánni vestan megin og að bílastæðinu. Glymur
Ljósmynd: Heiða Norðkvist
Laugavegur
Fimmvörðuháls
Glymur
2 – mesta hækkun um 470 m
3 – hækkun um 1036 m
2 – hækkun 280 m
Vað
Nokkur, meðalerfið
Brú yfir Skógá
Botnsá þveruð 1–2x
Næsta þéttbýli
Selfoss/ Hvolsvöllur
Skógar
Akranes
Áætlunarferðir á sumrin
Rútur á Skóga og í Bása að sumarlagi og á Skóga að vetrarlagi.
Einkabíllinn
Fjölskyldan, lengri ferðir
Dagsferðir, fjallgöngur
Styttri ferðir
Erfiðleikastig
Samgöngur
Flokkur
Heimildir: Gonguleidir.is
Askur | 35
Sagan mín um endómetriosis
Sigríður Halla Magnúsdóttir skrifar Þegar ég greindist með endómetriosis var ég 38 ára gömul. Mér brá þegar ég heyrði þetta því það eina sem ég vissi um endómetriosis var ófrjósemi og blöðrur á eggjastokkum en hvorugt átti við mig, ég hef þó verið að glíma við ýmsa kvilla frá unglingsaldri án þess að fá nokkur svör við þeim. Frá því ég byrjaði á blæðingum hef ég fengið skelfilega túrverki frá baki og niður fætur, suma daga komst ég ekki fram úr rúminu vegna verkja og orkuleysið var algjört á meðan blæðingum stóð en það átti allt að vera eðlilegt, svo ég beit bara á jaxlinn. Verkirnir minnkuðu eftir að ég átti dóttur mína en fóru svo að versna og urðu enn verri en áður, ég skrifaði það á lágan sársaukaþröskuld og passaði upp á að skipuleggja dagana í kringum blæðingar þannig að ég gæti verið rúmliggjandi. Aftur löguðust verkirnir eftir að ég átti son minn en eins og áður aðeins í stuttan tíma og enn versnuðu þeir. Í ofanálag fór að bera á öðrum kvill um, ég var farin að fá mígrenisköst, svima, ógleði, meltingatruflanir, fæðuóþol, stingandi sársauka í mjaðmirnar, vondan hjartslátt, hárlos, óútskýran legt þyngdartap og mikið gróðurofnæmi. Ég var farin að ganga á milli lækna með þessi einkenni en fékk engin svör önnur en að ég væri með lágan sársaukaþröskuld, með vefjagigt og jafnvel svolítið hysterísk, ekki var ég sátt við þessar greiningar en hvað gat ég gert? Jú ég gaf læknum pásu frá mér og vann í kringum kvillana. Árin 2015 og 2016 var ástandið vægast sagt orðið skelfilegt, ég var verkjuð og máttlaus í 2 vikur í hverjum mánuði, ég þurfti að vera með auka föt í vinnunni því blæðingarnar voru svo miklar. Ég leitaði þá til kvensjúkdómalæknis því þetta væri farið að stjórna bæði heimili mínu og vinnu, hann
Ljósmynd: Sigríður Halla
Greiningarferlið tók 26 ár skoðaði mig og sá hnúta og stækkun á leginu. Legið var búið að tvöfaldast í stærð frá því ég var hjá honum síðast svo hann sagði að ég þyrfti að fara í legnám. Mikið var ég glöð, ég sá fram á sársaukalaust líf. Aðgerðin gekk vel, læknirinn sagði mér að hann hefði tekið legið, leghálsinn og eggjaleiðarana og að nú gæti ég farið að njóta lífsins betur og það var alveg rétt – í smá tíma. Aftur fór að bera á verkjum en í þetta skiptið drauga túrverkjum, þeir voru ekki það slæmir og ég hafði heyrt af því að fólk sem missir til dæmis handlegg finnur svona draugaverki, ég gat jú ekki verið með verki í leginu lengur því það var búið að taka það! Mígrenisköstin jukust, ofnæmið varð meira, svim inn jókst, meltingin var hræðileg, lið og vöðva verkir, ógleði, útbrot, bólur, bjúgur og bakverkir án útskýringa. Ég hlýt bara að vera svona ferlegur aumingi hugsaði ég og hélt áfram að bíta á jaxlinn með reglulegum veikindaleyfum og uppgjöf. Haustið 2018 fór ég að finna fyrir mæði, fór til læknis sem sagði að ég væri bara í lélegu formi. Hvað er að þegar kona tekur þessu sem eðlilegu svari? Árið 2019 gerði svo útslagið, ég fór að fá skelfilega krampa í hægri handlegg og var með gríðarlegan skjálfta, blánaði á fingrum og hafði enga stjórn á handleggnum. Ég gat ekki staðið
„Ég fór að fá skelfilega krampa í hægri handlegg, var með gríðarlegan skjálfta , blánaði á fingrum og hafði enga stjórn á handleggnum“
36 | Askur
„Ég var komin aftur á byrjunarreit, þau ætla ekki að hjálpa mér.“ upp úr sófanum og gengið inn í eldhús án þess að þurfa að halda mér í borð eða vegg til að ná andanum og bíða eftir að sviminn lagaðist svo ég leitaði aftur til læknis og fékk þá ventólin (sem virk aði ekki), röntgen mynd af lungum sýndi ekkert og segulómanir af hálsi, höfði og handlegg voru allar eðlilegar þannig að mér var vísað burt. Ég ákvað þá að fara til ofnæmislæknisins míns, hún greindi mig með asthma, gaf mér púst og of næmislyf sem gerðu svolítið gagn. Ég hélt áfram að „ofsækja” heimilislækna út af handleggnum og þau vísuðu mér á deild B7 á Landspítalanum. 13. janúar 2020 vakna ég um miðja nótt með mikla magaverki, ég fer fram í stofu því ég vildi ekki vekja manninn minn. Eftir tveggja tíma kvalir hringi ég í hann. Ég gat ekki setið, legið, staðið eða gengið. Hann kom fram og hringir á sjúkra húsið á Akranesi þar sem honum er sagt að gefa mér verkjalyf og hringja aftur ef ekkert lagast. Klukkutíma síðar hringir hann aftur og honum er sagt að koma með mig. Þar er ég sprautuð með verkjalyfjum og síðar morfíni en ekkert sló á verkina. Eftir hálfan sólahring og einhverjar morfín sprautur er ég orðin aðeins skárri og er send í myndatöku. Það eina sem sást á henni var lítil blaðra á öðrum eggjastokknum. Kvensjúkdóma læknir kemur til mín og spyr hvort þetta hafi verið vandamál hjá mér áður en ég hélt nú ekki. Eftir 18 tíma á spítalanum var ég orðin ágæt og send heim, en átti að koma aftur í skoðun því þeim fannst líklegt að það þyrfti að taka þessa blöðru. Viku eftir þetta örlagaríka verkjakast átti ég svo tíma á B7. Þegar ég kom þangað fékk ég að segja alla söguna mína, ég var enn mjög aum í kviðn um og sagði að sjálfsögðu líka frá þessu verkja kasti. Konan sem ég talaði við var dásamleg, hún sagði mér að hún ætlaði að byrja á að senda mig í blóðprufu og öndunarpróf og vinna sig svo út frá því. Þegar ég labbaði út hugsaði ég „loksins hlustar einhver á mig”. Viku síðar hringir annar læknir af deildinni í mig og segir að öll próf hafi verið eðlileg og að þau munu ekki fylgja mér eftir, ég spurði hvað ég ætti þá að gera? Hann sagði að ég þyrfti bara að
tala við heimilislækna (sem voru búnir að gefast upp á mér) en hann gæti kannski komið mér inn hjá taugalækni ef ég vildi og ég þáði það, lauk símtalinu og fór að skæla eins og smákrakki. Ég var komin aftur á byrjunarreit, þau ætla ekki að hjálpa mér. Við tók erfið vika, ég var orðin vön að þurfa að lifa með ýmsum verkjum og hafði alltaf fundið leið til að láta hlutina virka í kringum þá en nú sá ég enga leið í kringum þetta allt – þetta var orðið allt of mikið fyrir mig. Ég „googlaði” taugalækninn sem B7 bókaði mig hjá, hann er mjög reyndur á sviði heilsukvíða. Ég settist þá niður og fór að skipta listanum (já ég er með lista yfir kvillana) niður til að sjá hvort ég gæti hreinlega verið ímyndunarveik, jú það eru alveg einkenni sem ég get verið að ímynda mér þannig að kannski er það bara málið! 18. mars 2020 var komið að aðgerðinni til að taka blöðruna, ég var viðbúin því að það þyrfti kannski að taka eggjastokkinn. Þegar ég vaknaði kom læknirinn til mín og sagði mér að ástandið hafi verið slæmt. Eggjastokkurinn var illa farinn, hann var gróinn saman við ör eftir legnámið, blaðran leit út fyrir að vera með endometriosis og garnirnar voru flæktar allt í kringum eggjastokkinn og voru orðnar strekktar – það var sem sagt ástæða fyrir verkjakastinu eftir allt saman. Hún sendi sýni í ræktun og sagði mér að ég væri að auki með blóðfyllta blöðru á hinum eggjastokknum sem þyrfti að fylgjast vel með. Tveimur vikum eftir aðgerð hringir læknirinn í mig og segir að sýnið hafi greint endómetríósu, ég var mjög hissa því eins og ég skrifaði hér efst fannst mér einkennin ekki passa við mig – ég ákvað því að leita til google. HA? Ertu að grínast? Hvað er ég að lesa? Voru lamandi túrverkir ekki eðlilegir? Getur þetta verið útskýringin á orkuleysinu? Er ég ekki ímyndunarveik? Þvílíkar gleðifréttir! En bíddu, af hverju var þetta ekki greint fyrr? Hefði verið hægt að lina sársaukann? Af hverju er þetta að koma í ljós þegar ég er að nálgast fertugt? Hvað gerði ég rangt? Talaði ég ekki nógu skýrt? Var ég ekki nógu trúverðug? Öll skiptin sem ég hef
Askur | 37
farið út frá læknum niðurlægð með skottið á milli lappanna og hugsandi að ég þurfi bara að lifa með þessu. Ég er sár, líkamlegi sársaukinn var raunverulegur en það vildi enginn hjálpa mér, breytist það eitthvað núna? Getur endómetríósan ráðist á lungun mín án þess að það sjáist á röntgen mynd? Hvernig sést það þá? Er komið betur fram við mig ef ég er með staðfestan sjúkdóm? Er þetta allt tengt endometriosis?
Ég græt af gleði vegna þess að ég veit nú að ég er ekki ímyndunarveik en ég græt líka úr sorg. Á hvern getur kona treyst ef hún fær ekki stuðning lækna sem hún leitar til? Í bland við mikinn létti er ég einnig ráðþrota, þetta virðist vera mjög flókinn sjúkdómur og í sannleika sagt er ég komin með læknakvíða (ef það er orð), ég kvíði fyrir að þurfa að ganga skömmustuleg út frá lækninum því það er ekkert að mér.
LEITAÐI TIL ENDÓ-SÉRFRÆÐINGS Í RÚMENÍU Sögur annarra kvenna hvöttu Sigríði Höllu áfram en hana langar ólýsanlega mikið að ná bata. Eftir að hafa lent á fleiri veggjum hér á landi hafði Sigríður samband við einn færasta endó-sérfræðing Evrópu með von um að einhver möguleiki væri á fjar-greiningu. Dr. Mitroi gat ekki lofað neinu í gegnum tölvupóst en bað hana um að senda sér sjúkrasöguna og hin ýmsu gögn. Það tók Sigríði rúma 5 mánuði að safna gögnum. Læknirinn tilkynnti henni að það þyrfti að framkvæma aðgerð á eggjastokknum, fjarlægja samgróningana á blöðru og endaþarmi því þeir gætu í raun verið endómetríósa og einnig þyrfti að framkvæma aðgerð á þind. Sigríður átti bókaðan tíma í aðgerð í vor. Stuttu seinna, þegar hún hélt að heilsan gæti ekki orðið verri fór hún að hósta upp blóðugu slími. Hún hafði samband út og ákveðið að flýta aðgerðinni. Sigríður sótti um greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingum Íslands með hjálp heimilislæknis en Dr. Mitroi skrifaði einnig 4 blaðsíðna bréf sem útskýrði alvarleika veikindanna og mikilvægi þess að hún kæmist í þessa aðgerð sem fyrst. Umsókninni var synjað á þeim forsendum að meðferðin sé í boði hér á landi en gátu ekki svarað spurningunni um hvaða læknir gæti framkvæmt aðgerðina. Sigríður sagðist óska þess að hún hefði ekki þurft að fara í flókna aðgerð í miðjum heimsfaraldri og í ókunnugu landi til að eiga einhverja von um að ná andanum aftur, geta
farið í sturtu án þess að þurfa að hvíla sig og geta dregið djúpt andann án þess að hósta upp blóðugu slími en það var ekkert annað í boði. Sigríður segist ekki lengur geta treyst því að fá þá læknisþjónustu sem hún þarf á að halda hér á heima. Hún fékk ekki svar við því af hverju hún hefur ekki getað andað eðlilega síðan haustið 2018 fyrr en hún leitaði út fyrir landið. Sigríður og maðurinn hennar ákváðu að fara út á eigin vegum en aðgerðin var framkvæmd í miðjum heimsfaraldri þann 19. janúar á Provita spítalanum í Rúmeníu.
Eftir aðgerðina
Ljósmynd: Sigríður Halla
Hægt er að lesa um ferðalagið, aðgerðina og bataferli á bloggsíðu Sigríðar: www.siggaendo.wordpress.com
38 | Askur
Falleg gjafavara í úrvali 1.
2.
3.
4. 7.
5. 6.
10. 8.
9.
11.
1. Södahl rúmföt í common golden, Bast, 11.995 kr. // 2. The throne eyrnalokkar, Yeoman, 17.900 kr. // 3. Frenchie ílát, Purkhús, 4.990 kr. // 4. Keep Cup, Epal, 3.350 kr. // 5. Strá búnt (til í fleiri litum), Purkhús, 2.790 kr. // 6. Pond spegill, Epal, 42.000 kr. // 7. Hobnail kanna (til í mörgum litum), Purkhús, 18.890 kr. // 8. Flame vasi 23 cm (til í fleiri litum og stærðum), Bast, 16.995 kr. // 9. 70‘s keramik bollasett (6 stk.), Purkhús, 6.890 kr. // 10. VUELTA Borðlampi, Epal, 29.900 kr. // 11. Leo blómavasi, Purkhús, 11.990 kr.
Askur | 39
40 | Askur
ÍSABELLA Ég heiti Ísabella Ævarsdóttir og fæddist í Reykjavík árið 1999 og er hálf hafnfirsk. Ég kem úr mikilli listamannafjölskyldu, en fáir hafa gert list eða hönnun að atvinnu. Ég hef alltaf haft gaman af list og sem barn sat ég oft á gólfinu í herbergi mínu og teiknaði. Þegar ég var yngri langaði mig að vera frægur listmálari, en ég átti aðeins fjórar málningartúpur sem barn og var þá erfitt að mála með því úrvali þannig að áhugi minn á að mála dó við sjö ára aldur. Sá áhugi vaknaði til lífsins aftur eftir að ég flutti frá foreldrum mínum nítján ára og hafði frelsi til þess að versla fleiri málningartúpur. Mér langaði ekki lengur að verða listmálari heldur langaði mér að gera eitthvað annað með hönnun, en ég vissi ekki hvað. Ég byrjaði fyrst í fornámi á hönnunar- og nýsköpunarbraut í Tækniskólanum því að ég hafði heyrt að sú braut væri fín fyrir óákveðna listamenn. Þar kynntist ég grafískri hönnun, Photoshop, Indesign og öðrum forritum og það vakti áhuga minn. Að því námi loknu skráði ég mig í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina í sama skóla og seinna tók ég grafíska miðlun sem ég er að fara að útskrifast úr í vor. Þetta nám hefur komið mér á óvart. Ég vissi ekki hversu mikið þetta nám tengdi við mig og mér hlakkar til að sjá hvert það tekur mig. Framtíðarplön mín eru að útskrifast einhvern tímann úr Listaháskólanum í grafískri hönnun, helst fyrir þrítugt.
Askur | 41
Bókarkápur Bókarkápur er mikilvægar fyrir bækur þar sem þær vernda bækurnar fyrir hnjaski og eru að segja frá innihaldi bókarinnar. Góð bókarkápa getur sagt frá meiru en lýsingin á baki bókarinnar. Bókarkápan er oft það fyrsta sem fólk sér af bókinni og er því mikilvægt að búa til eins grípandi bókarkápu og hægt er. Oft geta bókarkápur auðveldað manni val á bókum. Þegar fólk verslar bækur rennur það yfir bókahillurnar og oftast er tekið eftir þeirri bók sem kallar mest til manns. Fólk hefur mis munandi skoðanir og mismunandi áhugamál og er því mikilvægt að búa til góðar bókarkápur sem lýsa þeim skoðunum og áhugamálum sem best svo að fólk finni réttu bókina fyrir sig. Til eru hönnuðir sem sérhæfa sig í að hanna bókarkápur og er það betri lausn að fá hönnuð til verkefnisins heldur en að gera bókarkápuna sjálfur. Einstaklingar geta hannað góða bókarkápu og selt margar bækur með þeirri hönnun, en bókarkápuhönnuðir eru fag menn og hafa þekkingu á því sem fólk vill kaupa.
Hönnuðir geta hannað kápur sem segja frá sögunni sem tengist á þeim blaðsíðum sem kápan er utan um. Til dæmis ef verið er að hanna kápu á vísindaskáldsögu passar ekki að setja vöðvastæltan mann, beran að ofan að kyssa fallega konu því það lýsir ekki bókinni. Sagan gæti verið um vöðvastæltan mann sem klæðir sig aldrei í peysu eða bol og kyssir hverja konuna á fætur annarri í geimnum, en það er ekki það sem fólk er að leita að þegar það er að leita að vísindaskáldsögu. Frekar hanna fagmenn kápu tengt tækni, geimnum eða fjarlægum plánetum, eitthvað sem á við um vísindaskáldsögur. Myndin á kápunni er ekki það eina sem skiptir máli, letrið skiptir líka máli. Ímyndaðu þér hryllingsögu. Á kápunni eru blóðslettur frá óheppnu fórnarlambi morðingja sögunnar, í bakgrunni er dimmur og óhugnanlegur skógur og í miðjunni stara köld augu djúpt inn í sál þína. Ímyndaði þér síðan titilinn, í Comic Sans letrinu. Röng leturgerð getur drepið stemninguna sem kápan gefur. Kápuhönnuðir vita hvaða letur passar við hvert þema og eru fagmenn í að finna rétt letur.
Hversu stóru hlutverki gegnir bókarkápa við kaup á bók? Gerð var könnun á vegum Books Smugglers þar sem 612 tóku þátt í könnuninni og voru þeir spurðir hvort bókarkápa hefði einhver áhrif þegar þau væru að versla sér bók. Þar kom fram að 20 manns segja að bókarkápa hafi ríkjandi hlutverk þegar þau versla sér bækur. Fram kemur að 294
Hlutverk
telja að bókarkápur gegni stóru hlutverki í vali á bók. Um 250 manns telja að bókarkápur skipti litlu máli og 33 manns telja að bókarkápur skipti engu máli. Eru 15 manns í könnunni hlutlaus. Þar sem könnunin segir er að bókarkápur gegna meðal áhuga hjá fólki þegar þau eru að versla sér bækur.
Fjöldi manns
Prósentuhlutfall
20
3%
Stóru hlutverki
294
48%
Litlu hlutverki
250
41%
Nánast engu hlutverki
33
5%
Annað
15
2%
Ríkjandi hlutverki
Ráðstefna um réttindi flóttamanna 1.–2. maí í Hörpu Skoðaðu nánar inn á harpa.is
Askur | 43
Saga bókarkápunnar Miðaldir Á miðöldunum var skinn af dýrum notað sem blaðsíður. Byrjað að varðveita bækur með því að binda þær inn í handgreypt eða upphleypt band, fílabein, silki eða leður ásamt því að skreyta þær með gimsteinum, útsaumi og gull og silfurþráðum. Var aðallega verið að vernda biblíur og heilaga texta fyrir hnjaski. Kápurnar gerðu bækurnar mjög þungar og því var ekki verið að ferðast mikið með þær milli staða. Oftast voru þær hafðar til skrauts
15.–18. öld Byrjað var á þessu tímabili að pressa viðarplötur milli tveggja efnis eða leðurbúta sem síðan var festar við bókina. Bækur voru oft keyptar án kápu og sá sem keypti bókina gat því látið binda kápu við hana og þá ráðið hvernig bókin ætti að líta út. Árið 1440 var pretvélin kynnt í Evrópu og með henni urðu bækur mun ódýrari og um leið voru bókarkápur ekki eins fallegar.
19. öldin Kápur voru byrjaðar að vera prentaðar á pappír og kiljur byrjuðu að vera vinsælar bókarkápur. Teiknaðar voru ýtarlegar myndir á kápurnar og prýddu manneskjur oft kápurnar. Bókarkápurnar voru að mestu gulleitar því þær voru búnar til úr ódýrri viðarkvoðu sem lituðu þær gular. Fólki leist ekki á gulu kápurnar og var þeim ekki vel tekið á þeim tíma. Næstu árin voru bókarkápur skreyttar með teikningum. Hönnuðir handteiknuðu myndir á kápurnar og einnig voru tímarit og kvikmyndaplaköt hönnuð í sama stíl.
Nútíminn Í byrjun 21. aldarinnar var byrjað að hanna bókarkápur sem myndu draga að sér fólk. Mikið er lagt í bókarkápurnar og eru þær oft eins og listaverk. Eru þær gerðar úr gæða pappír eða pappa svo listaverkið á kápunni fái að njóta síns til fulls. Er það komið í tísku að týpógrafía fylli út kápuna, þannig að aðeins texti er á kápunni. Bækur eftir fræga rithöfunda eru oft með nafn rithöfundarins í forgrunni. Ef gert er rétt getur týpógrafían komið vel út og dregur fólk að til að lesa hana.
44 | Askur
Comic Sans Ekki er til manneskja í heiminum sem ekki hefur heyrt um né séð leturgerðina Comic Sans. Comic Sans er heimsfræg leturgerð og fólk elskar að hata hana. Comic Sans er einfalt og læsilegt, eins og það sé fyrir börn. Kannski er það hannað fyrir börn, hver veit. Kannski ef þú lest lengra kemstu að því. Vincent Connare Comic Sans var hannað af Vincent Connare þegar hann starfaði hjá Microsoft. Vincent Connare er leturhönnuður sem fæddist í Boston í Massachusettsríki í Bandaríkjunum árið 1960. Hann stundaði nám í ljósmyndum og myndlist við New York Institute of Technology. Hann starfaði sem ljósmyndari hjá The Worcester Telegram, sem er dagblað frá Massachusetts og seinna vann hann sem leturhönnuður hjá Compu graphic með þáverandi kærustu sinni árið 1987. Connare umbreytti leturgerðarsafni þeirra úr ljós myndaformi yfir í starfræna notkun. Meðan hann
starfaði hjá Compugraphic vann hann við hönnun leturgerðanna Intellifont, TrueType og Ikarus. Árið 1993 byrjaði hann að starfa hjá Microsoft. Þar bjó hann til upprunalega prufubitmap, betur þekkt sem strikamynd. Einnig gerði hann TrueTypeleturgerðir til þess að prófa Tahoma letrið og útgáfu af Arialletri fyrir Microsoft WebTV. Með Microsoft Excel breytti Connare Windows Baltic MS Sansleturgerðunum og umbreytti sextánundakerfinu í tvíundakerfi. Hvernig Comic Sans varð til Árið 1994 var Connare látinn fá frumútgáfu af Microsoft Bob, en það var gagnvirkt myndasögu forrit fyrir börn. Í Microsoft Bob var lítill gulur hundur sem var skírður Rover sem birtist í byrjun. Rover var einskonar lukkudýr forritsins og hjálpaði fólki í gegnum forritið sjálft. Rover var með tal blöðru fyrir ofan sig og var textinn sem hundurinn sagði í Times New Romanletri. Connare fannst letrið ekki passa við myndasöguumhverfið og
Staðreyndir um Comic Sans • •
• • •
•
46 | Askur
Höfundurinn Vincent Connare hannaði einnig leturgerðirnar Trebuchet, Marlett, Magpie, og hluta af Webdings. Síðan 2009 hafa hollenskir útvarpsmenn haldið upp á Comic Sansdag fyrsta föstudag hvers júlímánaðar, þar sem þau hvetja fólk til að senda póst og skrifa skjöl með Comic Sans. Comic Sans er fáanlegt á 99,13% af Windowstölvum og 90,91% af Mactölvum. Aðeins 61% af Linux notendum hafa Comic Sans. Ef þú breytir letrinu á Skype messenger yfir í Comic Sans breytist broskall við hliðiná textareytnum í vanþóknalegan fýlukall. Samtökin „Bönnum Comic Sans" (e. Ban Comic Sans Movement) hafa safnað yfir 5,000 undirskriftum til þess að banna letrið alfarið. Connare hefur engan húmor fyrir fólki sem ekki líkar við Comic Sans. Hann sagði eitt sinn, ef þýtt á góða íslensku: „Fólk veit ekki hvers vegna það var búið til. Ef þau gerðu það myndu þau átta sig á því að það var það sem hönnunin snýst um, að hanna fyrir vöru með viðeigandi hönnun. Ekki Times New Roman. Þeir þurfa að draga höfuð sitt úr rassinum þeirra… þetta pirrar mig!“
ákvað því að búa til letur sem passaði. Letrið var aðalega búið til fyrir börn og var áætlað að letrið myndi vera notað í alls konar skemmtanir fyrir yngri kynslóðina, eins og teiknimyndir og myndasögur. Connare byrjaði að vinna í Macromedia Fontographer, sem er leturhönnunarforrit, og reyndi að fá innblástur af góðri leturgerð fyrir myndasögur með því að lesa myndasögur frá DC, Marvel og öðrum. Hann skoðaði letur gerðir mynda sagnanna og reyndi að líkja eftir handskriftarstíl þeirra. Letrið var ekki tilbúið þegar Microsoft Bob var formlega gefið út í ágúst árið 1995. Comic Sans var kynnt þegar Microsoft 95 Plus kom út og seinna var það eitt af kerfisletrum OEMútgáfunar af Windows 95. Myndasögukvikmyndaforritið 3D Movie Maker notaði einnig Comic Sans. Talið er að ástæða vinsældar Comic Sans sé að fyrir fólk sem ekki eru leturhönnuðir eða grafískir hönnuðir lítur letrið einfalt út og er ekki of flókið eða of fíngert og þannig hafi það breiðst svo hratt út. Af hverju er Comic Sans hatað? Fyrstu árin var algengt að fólk noti Comic Sans við skriftir. Fyrir fólk sem ekki vann við hönnun leit það einfalt og vel út. En árið 2002 stofnuðu tveir leturfræðingar samtök gegn Comic Sans, „Bönnum Comic Sans samtökin" (e. Ban Comic Sans Movement). Samtökin náðu athygli um allan heim og hönnuðir létu í sig heyra um ógleði þeirra á leturgerðinni. Samtökin urðu svo stór að Connare sjálfur þurfti lífvörð þegar hann flutti ræðu í Hönnunarsafni
Londons. Þrátt fyrir það finnst Connare fyndið hversu mikla athygli letrið hans hefur fengið og hvernig það hefur áhrif á fólk. Nokkrar rannsóknir sem gefnar voru út í byrjun 21. aldarinnar af ríkisháskólanum í Wichita (e. Wichita State University) í Kansasríki í Banda ríkjunum benda til að fólk skynji að leturgerðir hafi sérstakan persónuleika og að skynjun fólks snúist um þrjá meginþætti, fegurð, spennu og karlmennsku. Rannsóknir sýna einnig að fólk velji leturgerðir fyrir skjöl, bréf og ferilskrár sem eru læsilegar og fallegar frekar en háværar og spennandi leturgerðir. Sem sagt, fólk hatar Comic Sans vegna þess að það var upprunalega ætlað fyrir óformleg efni eins og myndasögur og þannig passar ekki fyrir mikilvæg skjöl. Yfirhönnuður Twitters tísti eitt sinn að fólk kvarti mest yfir flugfélögum á Twitter, síðan Comic Sans og eftir því Justin Bieber. Að Comic Sans sé á undan Justin Bieber á kvörtunarlista Twitters segir mikið um hversu mikið fólk hatar Comic Sans. Comic Sans jákvæðni Það er ekki eingöngu neikvæð umfjöllun um Comic Sans, því fylgir líka jákvæð umfjöllun. Til dæmis getur Comic Sans auðveldað lestur hjá lesblindum einstaklingum. Rannsókn sem gerð var í Princetonháskólanum árið 2010 bendir til þess að þegar notaðar eru erfiðar leturgerðir eins og Comic Sans við lærdóm sé líklegrtil að muna þær upplýsingar sem skrifaðar voru niður. Letrið má oft sjá í yngri deildum grunnskóla og á leikskólum. Fyrir byrjendur í lestri er letrið skemmtilegt, einfalt og læsilegt. Sama hvort fólk hatar eða elskar Comic Sans þá skal fólk muna eitt. Þetta er bara letur. Það er fullt af öðrum hlutum sem þið getið haft áhyggjur af.
„People who don‘t like Comic Sans don‘t know anything about design.“ Vincent Connare Askur | 47
48 | Askur
JANA KATRÍN Ég heiti Jana Katrín og er 22 ára gömul. Ég fæddist í Kaupmannahöfn en flutti ung á Ránargötu í Reykjavík þar sem ég ólst upp. Ég átti fallega æsku í Vesturbænum og fann allt frá upphafi fyrir mikilli löngun til að skapa. Á veggjum íbúðarinnar á Ránargötunni héngu eftir mig myndir og málverk og voru hvers kyns listasýningar settar á stokk fyrir vini og vandamenn. Öll blöð og bækur voru yfirfullar af teikningum og fengu ærslaleikir barnanna í götunni oftar en ekki að víkja fyrir þeirri sterku sköpunarþörf sem búið hefur innra með mér síðan. Þegar ég hafði slitið barnsskónum var förinni heitið í Menntaskólann í Reykjavík. Þar eignaðist ég vini fyrir lífstíð en fann fljótt að bóknámið svalaði ekki sköpunarþörfinni. Ég skipti því yfir í Menntaskólann við Hamrahlíð. Þar gat ég sniðið námið betur að eigin hugðarefnum og lauk ég stúdentsprófi með áherslu á tungumál og listasögu vorið 2019. Ég vissi að ég yrði að finna mér starfsvettvang sem byði upp á fjölbreytt og skapandi verkefni. Ég áttaði mig á að leiðin hefur raunar alltaf legið að grafíkinni þar sem mörg áhugamála minna koma saman og því hóf ég nám við Tækniskólann haustið 2019. Í náminu lærði ég grunninn að grafískri miðlun, kunnáttu sem ég veit að mun nýtast mér vel í áframhaldandi námi og starfi síðar meir.
Askur | 49
einfaldar smoothie uppskriftir
3
mangó & banana smoothie það sem til þarf: 1 stór banani 2 dl frosið mangó 1 msk vanilluprótein 200 ml haframjólk blanda þar til mjúkt.
1
avókadó & banana smoothie það sem til þarf: 1 stór frosinn banani 1/2 þroskað avókadó 1 msk vanilluprótein 1 lúkufylli spínat 200 ml möndlumjólk blanda þar til mjúkt.
2
hindberja & kaffi smoothie
4
engifer & grænkáls smoothie það sem til þarf: 2 dl frosið mangó 1 lúkufylli grænkál 1 msk engifer 1 msk hlynsýróp 1 banani 200 ml möndlumjólk blanda þar til mjúkt.
það sem til þarf: 1 stór banani 1 msk kakó 1 espressóskot 1 msk hnetusmjör 2 dl frosin hindber 200 ml haframjólk
Góður dagur byrjar að morgni.
blanda þar til mjúkt.
− íslenskur málsháttur.
5
spínat & ananas smoothie
6
banana & kaffi smoothie
það sem til þarf:
það sem til þarf:
1 stór banani 2 dl frosinn ananas 1 lúkufylli spínat 200 ml kókosmjólk
1 frosinn banani 1 msk súkkulaðiprótein 1 msk hunang 150 ml espressó 200 ml möndlumjólk
blanda þar til mjúkt.
blanda þar til mjúkt.
FISH & CHIPS 1.990 kr. 10:00−21:00 alla virka daga Bíldshöfði 18, 110 Reykjavík • www.sjavarhusid.is • Sími 551 9552
Askur | 51
Þ
egar orðið ástandið er nefnt nú á tímum má ætla að umræðuefnið sé hin óvenjulega staða sem myndast hefur í kjölfar COVID-19 faraldursins sem herjað hefur á heimsbyggðina nú í hálft annað ár. En sé hugtakið skoðað í sögulegu samhengi birtast aðrar niðurstöður, en hugtakið var mikið notað á meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð á Íslandi og hafði skírskotun í þau áhrif sem erlendir hermenn höfðu á íslenskar konur. Ástin sveif yfir vötnum og ástarsambönd voru tíð á meðal íslenskra kvenna og bandarískra hermanna. Átta mánuðum eftir formlegt upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar, nánar tiltekið þann 10. maí 1940, var Ísland hernumið af Bretum. Þann dag var íslensku lögreglunni tilkynnt að bresk herskip höfðu lagst að bryggju í Reykjavík og var ástæða aukins herafla sú að lega landsins var talin heldur óheppileg ef Ísland færi í hendur Þjóðverja á meðan á stríðinu stæði. Bandaríski herinn fylgdi fast á hæla þess breska og lagði landfestar við Ísland sumarið 1941. Hermenn á Íslandi voru þá orðnir um 50.000 talsins og olli það miklu umróti í íslensku samfélagi. Strax við komu Breta hófst mikil uppbygging, þ.á.m. vegagerð, uppbygging flugvalla og í kjölfarið auknir atvinnumöguleikar. Eftir komu Bandaríkjahers fór einnig að gæta bandarískra áhrifa í samfélaginu en fólk fór meira út á lífið, áður ókunnir tónar djassins bárust frá veitingastöðum og kaffihúsum og Coca-Cola var kynnt fyrir landanum árið 1942. Þó andstaða við herinn hafi verið lítið áberandi var almúginn hvattur til þess að hafa takmörkuð afskipti af honum og að Íslendingum bæri að forðast öll tengsl til að sýna fram á föðurlandsást sína. Mörgum þótti það því ógna þjóðerni Íslendinga þegar íslenskar konur hófu að renna hýru auga til hermannanna.
„Það er draumur að vera með dáta“
„Smitandi þjóðfélagssjúkdómur“ Daginn eftir hernámið, þann 11. maí árið 1940 fóru að berast fregnir af því í stærstu dagblöðum landsins að íslenskar stúlkur hefðu gerst heldur nærgöngular við hina erlendu hermenn. Töldu æðstu ráðamenn þjóðarinnar að grípa þyrfti strax til aðgerða til að „stemma stigu við ósiðsömu háttalagi“ kvenna og taldist hver sú stúlka, sem hafði samskipti við hermann, af óþjóðalýð komin. Úr varð að mynduð var svokölluð ástandsnefnd, en í henni sátu þrír karlmenn. Eftir mánaðalanga vinnu skiluðu meðlimir nefndarinnar af sér viðamikilli skýrslu þar sem kom fram að lögreglan hefði undir höndum upplýsingar um 500−1000 konur sem allar áttu að hafa átt í nánum samskiptum við hernámsliðið. Konurnar, sem flestar voru á táningsaldri, máttu líða ofsóknir á opin-
52 | Askur
Hannes Pálsson, Ljósmyndasafn Reykjavíkur
berum vettvangi í kjölfar útgáfu skýrslunnar og í sumum tilfellum algjöra útskúfun. Voru þær sumar hverjar sendar á vinnuhæli í Borgarfirði ef liggja þóttu til grundvallar haldbærar vísbendingar um að þær „stunduðu Kanann“. Seint var athæfi sem þessu gleymt og má finna heimildir um að þessar konur höfðu margar hverjar á sér smánarblett ævina út sem gat jafnvel haft áhrif á afkomendur þeirra líka. Heyra mátti háværar gagnrýnisraddir í samfélaginu vegna skýrslunnar, sem öll var unnin upp úr gögnum lögreglu. Í henni var ekki gerður greinarmunur á þeim konum sem höfðu trúlofast eða gifst hermönnum og þeim sem stunduðu vændi. Í kjölfarið hóf herliðið eigin rannsókn og leiddi hún af sér mun mildari niðurstöður. Telur sagnfræðiprófessorinn Þór Whitehead þessar persónunjósnir íslensku lögreglunnar vera þær umfangsmestu frá upphafi lýðveldisins. Ástandsbörn „Oft mega börn bera brigsli foreldra,“ segir í gömlum íslenskum málshætti og endurspeglaðist það vel á árunum eftir stríð í íslensku samfélagi. Þau börn, sem fæddust erlendum hermanni og íslenskri móður, máttu mörg hver líða mikla fordóma og mismunun strax frá fæðingu og ólust upp í samfélagi sem að mörgu leyti hafnaði tilvist þeirra. Helstu þjóðernissinnar íslensku þjóðarinnar töldu ástandið sem myndast hafði vera raunverulegt þjóðfélagsmein sem ógnaði íslensku arfleifðinni. Þegar rýnt er í opinberar tölur er hins vegar ekki hægt að færa rök fyrir fjölgun
óskilgetinna barna á meðan á stríðinu stóð á Íslandi. Þó virðast „ástandsbörn“ hafa upplifað uppvaxtarár sín á mismunandi hátt. Mörg þeirra lýstu grófu einelti af hálfu barna og fullorðinna á meðan önnur minntust hamingjusamrar æsku og töldu uppruna sinn ekki hafa haft áhrif á uppvaxtarárin. Gætu margar breytur haft áhrif á ólíkt viðhorf þessara barna og má þar nefna húðlit, þjóðfélagsstétt, bakland og fleira. Með tímanum varð viðvera hersins hluti af íslensku samfélagi og opinber andstaða varð minna áberandi hérlendis. Íslensk börn „ástandsins“ uxu úr grasi og hafa mörg þeirra haft mikla þörf fyrir að leita uppruna síns erlendis. Tókst mörgum þeirra að hafa uppi á feðrum sínum og ættingjum á meðan önnur uppskáru ekki árangur erfiðis síns. Koma hersins hafði óneitanlega mikil áhrif hérlendis og hafði sína kosti og ókosti. Efnahagur landsins batnaði og atvinnutækifærum fjölgaði. Þrátt fyrir batnandi hag í samfélaginu vegna veru hersins voru hleypidómar og ótti við hið óþekkta ríkjandi í samfélaginu og lýsti það sér meðal annars í framkomu landans við konur samfélagsins og samskipta þeirra við herinn. Árið 2006 fóru síðustu hermennirnir af landi brott, 66 árum eftir að fyrstu herskipin lögðust að bryggju í Reykjavík. Þó margir líti á hernámið sem myrkan tíma í sögu þjóðar verður því ekki neitað að það er hluti af sögu landsins okkar og átti þátt í að móta samfélagið að því sem það er í dag.
Kleppjárnsreykir & ungmennaeftirlitið Í kjölfar stofnunar ungmennaeftirlits á vegum lögreglukonunnar Jóhönnu Knudsen var vinnuhælinu Kleppjárnsreykjum komið á laggirnar í Reykholtsdal í Borgarfirði í nóvember 1942. Voru stúlkur allt niður í tólf ára gamlar sendar þangað í refsiskyni fyrir að hafa átt vingott við hermenn. Var tilgangur heimilisins að kenna þeim sem þar dvöldu hreinlæti, reglusemi og góða vinnusiði. Á Kleppjárnsreykjum voru stúlkurnar sendar í viðamikla læknisrannsókn og þær látnar taka greindarpróf. Ef stúlkurnar fóru ekki eftir fyrirmælum á meðan á dvöl stóð voru þær sendar niður í örlitla gluggalausa klefa, þar sem þær máttu dúsa í allt að einn til tvo sólarhringa. Í kjölfar hugmyndafræðilegrar togstreitu milli ungmennaeftirlitsins og Barnaverndarnefndar var ákveðið að loka Kleppjárnsreykjaheimilinu í október 1943, tæpu ári eftir stofnun þess. Jóhanna Knudsen barðist áfram ötullega fyrir því að stofnunin yrði endurvakin en vegna áðurnefndra árekstra milli hagsmunaaðila varð svo ekki. Úr varð loks að allt vald var tekið af ungmennaeftirlitinu 1944 og Jóhönnu Knudsen var sagt upp störfum hjá lögreglunni ári síðar.
Askur | 53
Eyjan Hvar er staðsett í miðju Dalmatíuhéraði í Króatíu og er lengsta eyja landsins. Eyjan er þekkt fyrir túrkísblá höf og fallega lavender akra og er einn sólríkasti staður í Evrópu. Eyjan teygir sig 68 kílómetra í suðaustur og má þar finna mörg áhugaverð þorp, en þeirra þekktast er bærinn Hvar, á suðvesturströnd eyjunnar. Í október 2018 lagði ég leið mína til Króatíu og dvaldi í níu daga á þessari fallegu eyju við
Nicolas Jossi, Unsplash
Adríahafið. Svo sterk varð upplifun mín af fegurð hennar að hugur minn reikar í sífellu til eyjarinnar með sínu hlýja loftslagi, rólega yfirbragði og heillandi menningu. Nú þegar við sjáum fyrir endann á heims faraldrinum má ætla að margir fari að huga að ferðalögum til fjarlægra landa. Á eyjunni Hvar og í nágrenni eru margir ógleymanlegir staðir sem gaman er að heimsækja og hef ég tekið saman nokkra þeirra.
ÓGLEYMANLEGIR STAÐIR Í HVAR 1 | Split
3 | Spanjola-virkið
Flestir sem halda til Hvar koma við í hafnarborginni Split á vesturströnd landsins og er hún önnur stærsta borg Króatíu. Ferðamannafjöldi í Split hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum og svíkur borgin engan sem hana heimsækja. Er hún þekkt fyrir fjölbreytt mannlíf, fallegan arkitektúr og góðan mat sem tilvalið er að njóta með útsýni út á hið íðilfagra Adríahaf.
Í grasi grónum hlíðum bæjarins má sjá glitta í vígalegt virki sem byggt var á tímum Feneyjaveldisins (e. Venetian Empire). Þegar Tyrkir hertóku eyjuna árið 1571 leituðu allir íbúar skjóls í virkinu á meðan ræningjarnir létu greipar sópa um eyjuna og skildu eftir sig mikla eyðileggingu. Spanjola-virkið stendur á toppi 100 metra hárrar hlíðar en gönguleiðin er aflíðandi og hentar hún flestum til göngu. Þegar að virkinu er komið er boðið upp á léttar veitingar og útsýnið þaðan lætur engan ósnortinn.
2 | Hvar Siglt er frá Split til Hvar nokkrum sinnum á dag, og þó oftar yfir helsta ferðamannatímann sem stendur frá júní og fram í september. Ferðin tekur tæpar tvær klukkustundir og er lagt við bryggju í bænum Hvar, sem er stærsti bær samnefndrar eyju með um 4,000 íbúa. Rústrauð þök og perluhvítir steinveggir einkenna byggingarlist Hvar og í bænum má víða finna góða veitingastaði, verslanir og söfn. Sé horft út á Adríahafið nær kristaltær sjórinn svo langt sem augað eygir og auk þess má sjá hinar dásamlegu Paklenieyjar úti fyrir víkina.
4 | Stari Grad Á norðurströnd Hvar má finna bæinn Stari Grad, sem er einn elsti bær Evrópu. Stari Grad stendur á fallegri og gróskumikilli sléttu sem er hluti af heimsminjaskrá UNESCO. Kaffihús, veitingastaðir og verslanir teygja sig yfir steinlagðar göturnar og í höfninni liggur fjöldinn allur af litríkum smábátum og skútum. Hægt er að ganga upp hina fögru Glavica-hæð, sem er hæsti punktur Stari Grad, fyrir ógleymanlegt útsýni yfir bæinn, sléttuna og allt þar á milli.
Split Hvar Siglingarleið
Spanjola
Sólbaðströnd
Stari Grad
Bæir / borgir Svæði Útsýnisstaðir
Lavenderakrar Sveti Klement Vis Biševo
FERÐAÁÆTLUN
ÁÆTLAÐUR TÍMI
Keflavík (KEF) − Kaupmannahöfn (CPH)
3 klst. 10 mín.
Kaupmannahöfn (CPH) − Split (SPU)
2 klst. 15 mín.
Split (SPU) − Hvar
1 klst. 40 mín.
5 | Lavenderakrarnir
7 | Vis
Það sem einkennir einnig hina áhugaverðu Hvar er mildur lavenderilmurinn sem hangir í loftinu. Ástæðan eru gríðar stórir, fjólulitaðir lavenderakrar sem teygja sig allt frá Stari Grad og yfir til bæjarins Hvar. Lavender blómstra frá maí og fram í júlí og þá er tilvalið að fara í skoðunarferð um viðamiklar slétturnar.
Vis er eyja sem liggur suðvestan við Hvar. Hún er 90 ferkílómetrar og búa þar um 3.600 manns yfir vetrartímann. Helstu auðlindir hinnar fögru Vis er vínyrkja, fiskveiði og ferðamannaiðnaður. Eyjan er afskekktari heldur en Hvar og er sérlega gaman að leigja sér smábát og sigla um svæðið og jafnvel stinga sér til sunds.
6 | Sveti Klement
8 | Biševo
Sveti Klement er stærsta eyja Paklenieyjaklasans, rúmlega fimm ferkílómetrar að stærð. Landslagið er gróskumikið og framandi og göngustígar teygja sig þvert yfir eyjuna. Þar er tilvalið að stinga sér til sunds, halda í stuttar gönguferðir eða fá sér kvöldmat á veitingastaðnum Dionis og fylgjast með sólinni setjast yfir kyrrum haffletinum.
Krúnudjásn Adríahafsins má finna á eyjunni Biševo, sem liggur fimm kílómetra suðaustur af Vis. Um er að ræða falinn helli, Medvedina Spilja, sem aðeins er aðgengilegur á litlum hraðbát í lágsævi. Vegna hvítrar sandbreiðu á sjávarbotni og sólskins sem flæðir inn um op í hvelfingu hellisins fyllist hellirinn af fagurblárri birtu í þrjár klukkustundir á dag.
56 | Askur
Magnús B. Magússon, 2018
Artemisia Gentileschi
Texti unninn úr hlaðvarpi Melkorku Gunborgar Briansdóttur, 2018.
Artemisia Gentileschi fæddist árið 1593 í Rómarborg. Faðir hennar, Orazio Gentileschi, var málari og fór hún ung að læra málaralist hjá honum. Fyrsta þekkta verkið hennar er Súsanna og öldungarnir (1610) sem lengi vel var kennt við föður hennar. Að auki málaði hún þekkta senu úr Biblíunni, Júdith afhöfðar Hólófernes (1612−1620), sem er hennar þekktasta verk í dag. Í verkinu má sjá hina sterkbyggðu Júdith bera sverð að hálsi Hólófernesar, sem blæðir út. Örvænting skín úr augum hans og má sjá reiði og hamsleysi í andlitsdráttum hennar.
Pensillinn var hennar eina vopn til þess að vekja athygli á því ofbeldi sem hún hafði mátt sæta og endurspeglast það vel í listaverkinu Júdith drepur Hólófernes. Þrátt fyrir að innblásturinn sé sígild saga úr gamla testamentinu er nánast ómögulegt að slíta verkið frá persónulegri reynslu Artemisiu. Hún fer ekki leynt með tilvísunina í eigið líf heldur gæðir persónurnar lífi með andliti sínu og nauðgara síns. Í verkinu er grimmd, ofsi og togstreita − og um leið svarar Artemisia Gentileschi fyrir sig og tekur völdin í eigin hendur á ný.
Júdith afhöfðar Hólófernes, Artemisia Gentileschi.
Þegar Artemisia var nítján ára gömul réði faðir hennar fjölskylduvin, málarann Agostino Tassi, til að kenna henni fjarvíddarteikningu. Á meðan á kennslunni stóð var Artemisiu nauðgað af lærimeistara sínum og þegar málið kom upp steig faðir hennar fram og lagði fram kæru gegn vini sínum. Var slík kæra ekki algeng á þeim tíma. Dómsmeðferðin tók sjö mánuði og vakti mikla athygli og umtal almennings. Artemisia sótti gegn ofbeldismanni sínum af hugrekki og sannfæringu og breytti aldrei vitnisburði sínum, þrátt fyrir ítrekaðar pyntingar í dómssal. Var Agostino dæmdur en hlaut ekki þungan dóm og var sleppt skömmu síðar. Síðar giftist Artemisia málaranum Pierantonio Stiattesti og settust þau að í Flórens þar sem hún öðlaðist viðurkenningu og virðingu sem listmálari og gat séð sér og fjölskyldu sinni farborða með verkum sínum. En listin var ekki einungis lifibrauð Artemisiu heldur einnig hennar tól til tjáningar.
Askur | 57
58 | Askur
KRISTA Ég fékk nafnið Krista frá foreldrum mínum, faðir minn er Einar, þannig að nafnið mitt er Krista Einarsdóttir. Reykjavík er minn fæðingar- og uppeldisstaður. Ég fæddist sem aldamótabarn, þann 25. janúar árið 2000. Ég er 21 ára gömul og get því keypt áfengi löglega í Bandaríkjunum. Þegar ég var yngri breyttist alltaf hvað mig langaði að gera þegar ég yrði stór og var alltaf að skipta um áhugamál. En áhugamál sem komu upp í æsku og fóru aldrei frá mér voru dans, söngur og listgreinar. Ný áhugamál sem ég fékk á seinni árum er heilsa, hreyfing, útivist, tíska og hönnun. Ég hef alla ævi verið búsett í Efra-Breiðholti, og var þar í leikskóla, grunnskóla og menntaskóla. Tækniskólinn var mitt fyrsta val þegar ég valdi skóla til að fara í en var lengi að finna út hvað ég vildi gera eftir grunnskóla, en ég ákvað bara að henda mér í grafíska miðlun í Tækniskólanum, bæði til þess að prófa og ég hafði áhuga á list og hönnun. Það var eftir tvær annir sem ég hætti í Tækniskólanum og fór í FB til að klára skólann, ég hélt ekki að ég myndi fara í Tækniskólann aftur en ég gerði það og ég sé ekki eftir því. Núna í dag, fjórum önnum seinna, er ég að útskrifast úr grafískri miðlun. Með sérsviði grafískrar miðlunar þá er ég að taka aukaáfanga í fjarnámi í FÁ, til þess að ljúka stúdentsprófi.
Askur | 59
Tískan og hringrás Frá því að flestir muna eftir sér hefur tískan verið á sífelldri hringrás. Klæðnaður áratuga koma fram á mismunandi tugum. Tískuhönnuðir leita aftur í tímann til inn blásturs, þannig leitar tískan oft í eldra efni. Saga og þekking Á söfnum um allan heim er hægt að rekja upp lýsingar um fatnað og aukahluti frá því hundruðum ára f.kr.. Saga og þekking á tísku frá upphafi skiptir máli fyrir fatahönnuði og áhrifafólk.
litir og mynstur voru vinsælir á þessum áratug. Það var þá sem hægt var að kaupa fatnað á hvaða verði sem er vegna nýrra gerviefna. Það var leitað aftur til 1950 fyrir stílsnið kvenna á þessum áratug, konur klæddust með glæsileika og frumlegheitum á daginn en á kvöldin fóru þær í frískandi stíl. Herrar klæddust daglega jakkafötum og voru með mikið úrval af jakkafötum.
1950–1959 Kynjamunur var sterkt fyrirbæri. Karla og kvenkyns fatnaður var ólíkur að því leyti að þau máttu ekki klæðast fatnaði frá hinu kyninu. Glæsileikinn og frumlegheitin hjá konum skipti máli og aukahlutir áttu að passa við heildarútlit. Karlar klæddust eðlilegri fatnaði, slepptu frumlegheitum og jakka fötum nema við hátíðaleg tækifæri. Á þessum áratug voru konur í kjólum og skyrtu settum að hnjám en klæddust magabelti innan við það og voru oftast í nylonsokkum. Karlar klæddust daglega þröngum buxum, stuttermabolum og stórum jökkum á þessum áratug. Vinnumenn og námumenn klæddust vinnufatnaði, sem voru gallabuxur. 1960–1969 Þetta var áratugurinn sem litir og mynstur komu til sögunnar, byrjun hippatímabilsins. Bæði kynin klæddust eðlilegri og frjálslegri fatnaði Tíska kvenna á þessum áratug býður upp á þrjá strauma frá áratugum á undan. Það er Mary Quant stílsniðið, geimaldaráhrifin og hippastíllinn. Karlar klæddust litum og mynstrum í hippastílnum. Áhrif hersins flæddi á stílsnið karla og klæddust þeir fatnaði í stíl við herinn. Rokkstjörnur komu á sviðið þennan áratug og viðhorf þeirra um nýtt stílsnið karla; leður, grafík bolir og mikið af litum. 1970–1979 Lítið um breytingar á þessum áratug, áfram haldandi litir og mynstur frá hippatímanum. Djarfir
60 | Askur
Ljósmyndari: Girl with red hat
Ljósmyndari: Alexander Naglestad
Áttundi áratugurinn var mikið um stærra því betra. Bæði kynin klæddust djörfum litum og mynstrum, svipað og sjöundi áratugurinn. Tímabil þetta var talað um „power dressing“. Konur og karlar klæddust íþróttafötum bæði sem daglegan fatnað og íþróttafatnað. Nýr stíll sem kallast „new romantic“, konur klæddust jökkum eða kjólum með axlabúðum, og aukahlutir voru stórir. „Women’s bodies were now shaping the clothes, rather than clothes shaping the body“.
Ljósmyndari: Chris Benson
1980–1989
Svipaður stíll var hjá konum og körlum á þessum áratug. 1990–1999 Kringum aldamót voru konur og karlar að klæðast gallabuxum fyrir allt og yfirstærðir af bæði peysum, bolum og buxum, og litir voru orðnir mildari.
Askur | 61
Levi Strauss & Co Saga Levi Strauss & Co Maður að nafni Levi Strauss og klæðskeri að nafni Jacob Davis hönnuðu fyrstu galla buxurnar úr gallaefnum og koparhnoðum. Levi var innflytjandi frá Bavaria „Bæjara land“ og kom til San Francisco í Ameríku til þess að opna þurrvörufyrirtæki á hápunkti gullna tímabils Kaliforníu. Hann tók eftir að vinnufólkið í kringum sig þurftu almennann vinnufatnað sem rifnaði ekki við einföldustu notkun. Þar sem hann og vinnufélagi, unnu við að gera vinnufatnað fyrir vinnufólk, þar urðu til almennar gallabuxur.
kúrekum, uppreisnarmönnum, forsetum, konum og körlum. Þessir einstaklingar klæddu sig ekki í Levis til að vinna, heldur lifðu þau í buxunum. Efnið sem Levi hannaði er eitt hreinasta efni sem getur komið við líkamann og formar líkama þinn á besta hátt. Í dag er Levi Strauss & Co mikið tískufyrirtæki, vintage er vinsælt, tímalaus fatnaður. Einnig er hægt að fá jakka, sokka, peysur og allskins aukahluti hjá Levi Strauss & Co
Það var árið 1852 sem Levi Strauss kom til San Francisco, og það var ekki fyrr en 21 ári seinna, árið 1873 sem hann fann upp á sterkum gallabuxum með vinnufélaga sínum Jacob Davis. Nafnið Levi Strauss & Co var tekið af nafni frumkvöðulsins Levi Strauss, Co merkir aukahlutir, og einnig auka frumkvöðuls að nafni Jacob Davis. Gallaklæðnaður byrjaði fyrst og fremst sem uppfinning fyrir vinnufólkið. Levis fatnaður var notaður af öllum frá námuverkamönnum,
Ljósmyndari: MNZ
62 | Askur
66° norður Í nær hundrað ár hefur 66° norður framleitt fatnað og aukahluti fyrir fólk á öllum aldri, með markmiði að gera leik og störf möguleg í krefjandi aðstæðum. 66° norður byrjaði sem sjóklæðagerð fyrir um 90 árum síðan, og var það mikilvægt að sjómenn þyrfti vinnufatnað sem myndi skíla fyrir kulda og vindi. Hans Kristjánsson gerðist ungur sjómaður og fékk hvatann til að stofna fyrstu sjóklæðagerð landsins eftir að fara til Noregs sumarið 1924, til þess að kynna sér hugmyndir um sjóklæðagerð. Þetta gat hann ekki án hjálpar Fiskifélags Íslands, þar sem þeir veittu Hans styrk. Hans kemur heim tilbúinn til undirbúnings sjóklæðagerðar á Suðureyri. Hann flutti til Reykjavíkur árið 1926 til þess að geta búið til sjóklæði fyrir alla landsmenn, þetta var til þess að geta dreift út vörum á auðveldan hátt til allra landshluta.
á þessum tímum var mikið fjölbreyttari en áður fyrr, og þess vegna fór sjóklæðagerðin að útbúa annað en sjóklæðnað. Það var kringum 1933 sem fyrirtækið var komin með yfir 34 starfsmenn, var byrjað að framleiða frakka, úlpur, kápur og vinnufatnað að breskri og norskri fyrirmynd í samstarfi við Vinnufatagerð Íslands auk sjó fatnaðar. Vörulínan breytist með þjóðinni 1940 kom herliðið til íslands, það var þá sem sjávarútvegurinn blómstraði, og efnahagur íslendinga tók annan kipp, þökk sé Marshallað stoðinni árið 1948. Bandaríski herinn var með fasta viðveru, síldveiðar hófust en blómstraði ekki fyrr en áratug seinna, stóriðja hófust og ferðamannalandið Íslands varð til í kringum 1990. Þótt sjóstakkurinn hafi í dag runnið sitt skeið þá eru afsprengi hans; sjóbuxurnar, anorakkarnir og jakkarnir enn í notkun dag og nótt á fiskimiðunum
Frá sjóstökkum yfir í vinnufatnað Sjóklæðagerðin var í fyrstu eingöngu að framleiða sjóstakka úr olíubornum striga, þetta voru um brotatímar í íslensku þjóðfélagi. Við hvert nýtt starf komu fyrirspurnir um nýjan vinnufatnað sem sérhæfir sig fyrir viðeigandi starf. Atvinna
Fatnaður sjóklæðagerðarinnar er í dag notaður af sjómönnum, verkafólki, björgunarsveitum, krökkum í útilegu eða bæjarvinnunni, útivistar görpum og pörum á leið á ball
Ljósmyndari: Óþekktur
Askur | 63
64 | Askur
KRISTÍN SIF Ég heiti Kristín Sif Pálsdóttir og er fædd 25. febrúar árið 1991 í Reykjavík. Ég ólst upp í Seljahverfi. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að teikna, mála og að taka ljósmyndir. Draumurinn hefur verið að vinna við eitthvað þar sem ég get verið skapandi á minn eigin hátt. Ég hóf nám mitt í Tækniskólanum árið 2007 þegar ég var 16 ára. Ég var í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina, en 2009 fór ég í langt námshlé. Ég sá það samt ekki fyrir mér sem námshlé og var viss um það að ég gæti ekki haldið áfram með námið. Í þessu hléi fór ég í meiri vinnu, flutti í nokkra mánuði til Liverpool og í janúar 2013 eignaðist ég frábæra litla stelpu. Ég þráði samt alltaf að komast lengra í náminu og hafði meiri og meiri trú á mér að ég gæti þetta núna. Þótt ég ætti erfitt með nám sem krakki og unglingur taldi ég að ég réði við þetta núna. Ég vann mig upp fyrst með því að prófa mig í námskeiðum. Frá 25–27 ára aldri prófaði ég ýmsar námsgreinar. Í því kynntist ég grafískri hönnun og fann þar að þar var eitthvað sem heillaði mig. Ég vildi strax læra meira og kynnast þessu nánar. Vorönnina 2019, tíu árum eftir að ég hætt í náminu í Tækniskólanum, var ég svo komin aftur í skólann í grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Nú eru tvö ár liðin síðan að ég hóf aftur nám og er mjög ánægð með að hafa staðið mig í þessu námi.
Askur | 65
ÁRBÆR Fyrstu heimildir um Árbæ Líklegt er að búskapur hafi byrjað í Elliðaárdalnum fljótlega eftir landnám. Árbærinn er þó fyrst nefndur í heimildum á 15. öld, en þess var heldur ekki að vænta um laklega meðaljörð að henni væri gefinn mikill gaumur. Í Árbæ bjó alla tíð óbreytt alþýðufólk sem stritaði myrkranna á milli fyrir brýnustu nauð þurftum, en átti strjálar ánægjustundir. Á 15. öld var jörðin í eigu Viðeyjarklausturs, hafði hugsanlega verið gefin þangað í sáluhjálparskyni. Við siðaskiptin 1550 runnu allar eigur klaustra til Danakonungs og var Árbær þar á meðal. Við eyjarklaustur mun hafa verið nokkuð harður lands drottinn, en nú versnaði ástandið því að Bessa staðavaldið íþyngdi leiguliðum sínum stórum meira en almennt gerðist. Um ábúendur, jörðina og bústofninn Fyrstu glöggu myndina af Árbæ og búendum hans er að finna í jarðabók Árna Magnússonar og Páls
66 | Askur
Vídalíns frá 1703–1707. Lýsing á jörðinni er gagn orð: „Tún meinlega grýtt og þýfð. Engi mjög lítið... Torfskurður til húsagjörðar nægur, en til eldiviðar tekur hann mjög að þverra.“ Tvíbýli var á bænum. Annar ábúandinn var með þrjár kýr, kvígu og tvo hesta. Hinn ábúandinn hafði einnig þrjár kýr, naut, kálf og einn hest. Hvorugur þeirra hafði sauðfé. Þrátt fyrir lítinn bústofn voru álögur á búend ur miklar. Landskuld, þ.e. leiga af jörðinni, var reiknuð út frá jarðardýrleika eins og almennt gerðist og greidd með fé á fæti eða fiski. Bú stofninn var einnig í konungseigu og greiddist leiga af honum í smjöri. Ofan á þetta bættust umtalsverðar vinnukvaðir: við sjóróðra frá Örfiris ey, veiðar í Elliðaánum, heyskap í Viðey, mótekju, hrístekju og fleira. Einnig bar landsetum að lána hross til ýmissa verka. Konungur hafði slegið eign sinni á laxveiði í Elliðaánum og lágu þung viðurlög við veiðiþjófnaði.
Upp úr aldamótunum 1800 fór konungur að selja jarðirnar við Elliðaár. Árið 1838 seldi hann Árbæ fyrir 270 ríkisdali. Til samanburðar má nefna að bærinn Ártún var seldur fyrir 210 rd., Kleppur fyrir 400 rd., Bústaðir fyrir 464 rd. og Elliðavatn fyrir 639 rd. Margrét og Eyleifur Árið 1881 fluttust að Árbæ hjónin Margrét Péturs dóttir og Eyleifur Einarsson. Fram að því höfðu ver ið tíð búsetuskipti á jörðinni, en nú varð breyting á því. Eyleifur bjó þar til dánardags árið 1907, en Margrét bjó áfram á bænum til 1935, er hún lést. Kristjana Eyleifsdóttir tók við búinu af móður sinni og bjó í Árbæ til 1948, en þá lagðist hann í eyði. Þau Margrét og Eyleifur byggðu upp bæinn og endurnýjuðu. Árið 1891 reif Eyleifur torfbað stofuna og reisti á grunni hennar hús sem var að mestu leyti úr timbri, hæð og ris, bárujárnsklætt. Þar var góð gestastofa með eldhúsi aftan til og baðstofu yfir. Árið 1911 lét Margrét reisa eina húslengju við norðurhlið baðstofunnar og hest hús þar norður af nokkrum árum seinna. Húsin standa hlið við hlið og snúa stafnar fram á hlað. Á þann hátt var húsaskipan gamla torfbæjarins haldið. Í núverandi mynd er Árbær á síðasta stigi í þróun íslenska torfbæjarins, nokkurs konar milli stigi frá torfbænum til timburhússins. Var það í samræmi við þróun mála á sunnanverðu landinu í lok 19. aldar.
Fjárhús og hesthús Tvö fjárhús voru austan við Árbæinn í tíð síðustu ábúenda. Veggir þeirra voru hlaðnir úr torfi og grjóti, bæði langveggir og gaflveggir. Þakgrind var úr rekaviði og reft yfir með torfi. Annað fjárhúsið hefur verið hlaðið upp að nýju og stendur nú við syðri stíginn að Árbænum. Hitt húsið stóð heldur ofar í túninu en er nú ekki sýnilegt. Hesthús, sömu gerðar og fjárhúsið, stendur í suðurjaðrinum á túni Árbæjar. Ekki er ljóst hvenær það var fyrst byggt. Árið 1991 hafði þak þess fallið og var það þá lagfært. Texti: www.borgarsogusafn.is Myndir úr einkaeign Borgasögusafns
Askur | 67
Er íslenski hesturinn smáhestur?
68 | Askur
Íslenski hesturinn
Íslenski hesturinn er eina hestakynið á Íslandi. Hann hefur ekki blandast öðrum hestakynjum og er því hreinræktaður. Íslendingar hafa alltaf kallað hann hest en ekki smáhest og sama málhefð er í öllum þeim rúmlega 30 löndum þar sem hann er haldinn. Víða erlendis er hefðin sú að eingöngu börn ríða smáhestum. Frá upphafi Íslandsbyggðar hefur hins vegar tíðkast að bæði fullorðnir og börn ríði íslenska hestinum enda var hann nauðsynlegur fararskjóti á veglausu landinu allt þar til vélknúin farartæki komu á 20. öldinni. Í dag er hann notaður af fullorðnum jafnt sem börnum í almennar út reiðar, hestaferðalög, í reiðskólum, fjölbreyttum keppnisíþróttum og sýningum í rúmlega 30 þjóð löndum. Það er því góð reynsla af því að bæði fullorðnir og börn ríði íslenska hestinum. Rannsóknir hafa líka staðfest að lífeðlisfræðilega ræður hann vel við að bera fullorðna knapa. Í raun hefur íslenski hesturinn verið ræktaður sérstaklega með það að markmiði að geta verið reiðskjóti fullorðinna. Allt frá því að farið var að nota stigskipta einkunnagjöf við mat á kynbótahrossum (1950) hafa gang tegundir þeirra, vilji og framganga verið metin í reið, þannig að ætla má að til framræktunar hafi verið valin þau hross sem hreyfa sig best undir knapa. Þeir eiginleikar hestsins sem styðja mest að hann verðskuldi að kallast hestur en ekki smáhestur eru einmitt hinir miklu reiðhestshæfi leikar sem hann býr yfir, fjölhæfni á gangi (fimm gangtegundir), hraðinn, krafturinn og úthaldið. Að þessu leyti stenst íslenski hesturinn samanburð við mörg erlend og stærri reiðhestakyn og hefur jafnvel meiri reiðhestshæfileika en þau. Það er þó hægt að færa ákveðin rök fyrir því út
Talið er að íslenski hesturinn hafi komið hingað til lands á landnámstímanum og hefur hann aðlagast náttúru og veðurfari á Íslandi mjög vel. Landnámsmenn komu með búfénað með sér frá Evrópu þar á meðal var úrval gæðinga. Hrossin sem landnámsmenn komu með sér voru af ýmsum uppruna þó aðallega germönskum. Heimildum ber ekki saman um hver uppruni íslenska hestsins er en talið er að hann eigi sameiginlegan uppruna með norska lynghestinum og eigi þau kyn ættir sínar að rekja til taminna hrossa í Mongólíu.
frá líkamsbyggingu og líffræðilegum eiginleikum íslenska hestsins að hann ætti að flokkast fremur sem smáhestur en hestur. Í fyrsta lagi er hann fremur smár, en víða erlendis er miðað við ákveðna hæð á herðar (147 cm) þegar skilið er á milli smá hesta og hesta. Meðalhæð íslenska hestakynsins hefur aukist umtalsvert frá upphafi skipulegs ræktunarstarfs um aldamótin 1900, en hún er núna um 141 cm, og stóðhestar eru að meðaltali stærri en hryssur. Það er einnig mikill breytileiki í stærðinni innan stofnsins og einhver hluti hans er hærri en 147 cm. Í öðru lagi eru margir lífeðlisfræðilegir eiginleikar svo sem fóðurþarfir, melting, efnaskipti og átgeta, sem greina á milli smáhesta og hesta. Til eru rannsóknir sem sýna að smáhestar hafa meiri hæfileika en hestar til að þrífast betur á trénisríku fóðri (grasi og heyi). Enn fremur hafa þeir oft heldur minni orkuþörf en hestar og eru gjarnan metnir vera þurftalitlir (e. easy keeper) og fitna margir auðveldlega (miklir fitusöfnunarhæfileikar). Samanborið við hesta ráða efnaskipti og melting smáhesta líka verr við mikið magn af einföldum kolvetnum í fóðri sem finnast í umtalsverðu magni í korni og kjarnfóðri. Það eru því rök bæði með og á móti því að kalla íslenska hestinn frekar hest en smáhest. Ákveðnir líffræðilegir og lífeðlisfræðilegir eiginleikar mæla á móti því að hann sé hestur en reiðhestshæfileikar, notkun og aldalöng málhefð mælir hins vegar með því að hann sé kallaður hestur. Þegar þetta er metið saman ættum við að halda okkur við að tala um íslenska hestinn sem hest en ekki smáhest. Texti: visindarvefur.is – Guðrún Stefánsdóttir Myndir: Studio REVOLT
Einnig kemur fram í heimildum að íslenski hesturinn sé skyldur „equus caballus scandinavicus“ hrossakyni sem var upp í Norður-Evrópu á meðan aðrir telja hann náskyldan breska smáhestinum Exmoor. Þrátt fyrir að íslenski hesturinn hafi verið að blönduðu kyni til að byrja hefur hann þróast síðan á 11. öld án blöndunar við aðra hestastofna og hefur hann því haldið ýmsum eiginleikum sem hafa tapast hjá öðrum hestakynum. Texti: Wikipedia síðan Íslenski hesturinn
Askur | 69
Hver smíðaði fyrstu tölvuna? Margir telja að bandaríska reiknivélin ENIAC hafi verið sú fyrsta sem stóð undir nafninu tölva. Hún var smíðuð við Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkjunum og var tekin í notkun árið 1946. Vinnslugeta hennar var á við lítinn vasareikni. Að baki því sem í dag heitir tölva liggur aldalöng þróun og ótal uppfinningar. Um aldir notuðu menn ýmis hjálpartæki við útreikninga, svo sem talnagrind og reiknistokk. Talnagrindin er upp fundin í Kína, reiknistokkurinn í Evrópu. Á 12. öld birtist hugmyndin um reikniforskrift í ritum Al‘Khwarizmi frá Úzbekistan sem skrifaði meðal annars útbreitt rit um reikning. Alþjóðaorðið um slíkar forskriftir, algorithm, er einmitt kennt við Al‘Khwarizmi. Reikniforskriftir eru formleg fyrirmæli um aðgerðir, nauðsynleg forsenda þess að tölvur verki rétt. Tveir 17. aldar menn eiga heiðurinn af því að smíða fyrstu sjálfvirku reiknivélarnar. Milli 1642 og 1644 smíðaði Frakkinn Blaise Pascal, sem var stærðfræðingur og heimspekingur, reiknivél til að aðstoða skattheimtumanninn föður hans við störf sín. Og Gottfried Wilhelm Leibniz, sem var rökfræðingur, stærðfræðingur og heimspekingur,
Sögulegar tölvur ENIAC fyrsta tölvan og reiknivél
setti saman aðra reiknivél árið 1673. Reiknivél Pascals var fær um að leggja saman, draga frá og margfalda, en vél Leibniz gat einnig fundið rót og hafið tölur upp í veldi. Árið 1833 hannar Bretinn Charles Babbage „greiningarvél“ sem var þó ekki smíðuð fyrr en árið 1991 í minningu hans. Babbage er þó nefndur faðir tölvunnar fyrir hönnun sína. Greiningarvélin gat tekið við skipunum af gataspjöldum og er sú hugmynd fengin úr vefstokkum þess tíma sem gátu lesið mynstur af pappaspjöldum með götum og unnið eftir þeim. Vélin gat einnig geymt gögn í minni þannig að hún hafði til að bera alla grunnþætti nútímatölvu. Árið 1890 vinnur Herman Hollerith keppni í Bandaríkjunum um vélar til aðstoðar við manntal sem gekk annars afar hægt. Hann átti síðar þátt að stofnun fyrirtækisins IBM. Árið 1904, stuttu eftir uppgötvun rafeindarinnar, hafði Bretinn Sir John Ambrose Fleming sótt um einkaleyfi á útvarpslampanum sem gerði mönnum kleift að stjórna rafstraumi. Síðan þá hafa reiknivélar unnið með rafmerki, en ekki eingöngu
Hugarnir á bakvið tölvurnar Háskóli Pennsylvaníu
Ár 1946
IBM 610
John Lentz
Kenbak-1
John Blankenbaker
1971
MITS
1974
Steve Wozniak, Steve Jobs og Rob Holt
1977
Adam Osborne
1981
Macintosh Division
1984
Altair 8800 Apple II Osborne 1 fyrsta fartölvan Macintosh 128K fyrsta Mac tölvan
70 | Askur
1948–1957
tannhjól og stangir líkt og áður hafði verið. Með þessu breyttist ekki sjálf rökvirknin, sömu aðgerðir eiga sér stað formlega, en lamparnir gerðu tölvurnar hraðvirkari og minni. – Sumir segja tölvu fyrst réttnefni eftir tilkomu útvarpslampans og nefna ENIAC (Electronic Numerical Integrator and Computer) fyrstu tölvuna. Hún var tekin í notkun árið 1946 í Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkjunum. Hún vó 30 tonn og þakti á annað hundrað fermetra en reiknigeta hennar var sambærileg við vasareikni grunnskólabarna. Árið 1947 á sér stað annar stórviðburður í tölvuþróun þegar fyrsti smárinn (e. transistor) er smíðaður á rannsóknarstofum Bell símafyrirtækisins í Bandaríkjunum. Smárinn hafði sömu virkni og lamparnir en var miklu smærri (hver smári millímetrar á kant en lamparnir sentímetrar) og hitnaði mun minna. Aftur urðu tölvur hraðvirkari og minni. 1958 eru rafrásir, smárar og aðrir íhlutir fyrst prentaðir á sílíkonflögu – örflögu. Enn smækkuðu tölvur og urðu hraðari. Um 1970 gátu menn prentað þúsundir smára og annarra íhluta á nokkurra fermillímetra flöt. 1971 bjó fyrirtækið Intel til fyrsta örgjörvann – örflögu sem sér einn um alla reikninga og rökvirkni tölvunnar. Í kjölfar hans fæddist einkatölvan, en fram að því höfðu tölvur fyrst og fremst verið eign skóla, banka og ríkisstofnana. Fyrsta einkatölvan var framleidd árið 1974 af litlu fyrirtæki sem hét MITS. Tölvan hét Altair og studdist við örgjörva frá Intel. Þessa tölvu og fleiri sem fylgdu í kjölfarið gátu tölvuáhugamenn keypt í hlutum og sett saman sjálfir. Fyrsta einkatölvan sem seld var samansett og tilbúin til notkunar var framleidd af tölvufyrirtækinu Apple og hét Apple II. Þetta var árið 1977. Text: visindavefur.is – Haukur Már Helgason
Mesta úrval landsins af myndavélum, linsum og aukahlutum. Smiðjuvegi 9 200 Kópavogur S: 487-4444 foto@foto.is
Askur | 71
Opið virka daga 10:00-19:00 Laugardaga 12:00-17:00
72 | Askur
ÓLÖF RUT Ég heiti Ólöf Rut Gísladóttir, fædd í Keflavík þann 8. október 1999 og er því 21 árs gömul. Ég hef alltaf haft áhuga á einhverskonar hönnun og list, þegar ég var yngri var ég alltaf með eitthvað í höndunum á leiðinni að föndra. Ég útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2018 af listnámsbraut og lauk stúdent á þremur árum. Mér fannst mjög gaman á listabraut vegna þess að þetta var eitthvað sem ég hafði áhuga á og vildi halda áfram að gera í framtíðinni. Ég var mikið að teikna og mála sem mér fannst gaman. Eftir útskrift frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja þá tók ég mér eitt ár í pásu og fór að vinna í vopnaleitinni á Keflavíkurflugvelli. Ástæðan var sú að ég vissi ekki hvað ég vildi læra. Á meðan ég var að vinna þá var ég að reyna að finna eitthvað sem mér myndi finnast skemmtilegt. Ég vissi að ég vildi eitthvað sem tengdist hönnun og sköpun. Þegar ég skoðaði grafíska miðlun þá leist mér mjög vel á það og ákvað í kjölfarið að skrá mig í það nám. Ég sé alls ekki eftir því í dag. Eftir útskrift langar mig að halda áfram í þessu námi og reyna komast erlendis í skóla. Þegar ég er ekki að stunda námið er ég í ræktinni, með fjölskyldu minni eða horfa á sjónvarpsþætti.
Askur | 73
SAGA NIKE Ljósmynd: Klim Musalimov
Nike er amerískt íþróttavörufyrirtæki sem sér um að hanna, þróa og framleiða íþróttavörur, skó, aukahluti og annars konar tæki. Þetta er stærsta fyrirtækið sem framleiðir svoleiðis vörur. Fyrirtækið var stofnað 1964 af Bill Bowerman og Phil Knight. Áður hét fyrirtækið Blue Ribbons Sports og var upprunalega skófyrirtæki en síðan var því breytt í Nike, Inc árið 1971. Fyrirtækið tekur nafnið sitt frá Grísku gyðjunni af sigri, Nike. Nike, áður þekkt sem Blue Ribbons Sports, var stofnað af íþróttakappanum Phil Knight og þjálfara hans Bill Bowerman árið 1964. Ári eftir voru þeir með fullmannað fyrirtæki og ári seinna opnuðu þeir fyrstu búðina sína í Californíu. Áður en þeir opnuðu búðirnar sínar vildi Phil Knight sjá hvort fólk myndi vilja kaupa gæða skó eins og önnur íþróttafyrirtæki voru að selja en á sanngjörnu verði. Hann fór þá að selja skó úr skottinu á bílnum sínum. Árið 1966 fór Bowerman með nýja hönnun af skóm til Tiger skófyrirtækisins. Þessir skór voru hannaðir fyrir hlaupara. Skórnir fengu góðar undirtektir og voru framleiddir ári seinna. Eftir mikla velgengni þeirra fór fyrirtækið Tiger að segja fólki frá því að Blue Ribbons Sports hafi verið að selja sína eigin útgáfu af sömu skóm og kölluðu þá „Nike‘‘. Árið 1971 slitu þau samstarfi og fengu að selja hvor sína eigin útgáfu af skónum. Eftir þennan skilnað breyttu þeir nafninu yfir í Nike. Skórnir sem voru gerðir í samstarfi við Tiger og „Waffle‘‘ skórnir sem Bowerman hannaði hjálpaði fyrirtækinu að koma sér á framfæri. Hugmyndin af „Waffle‘‘ hönnuninni kom upp hjá Bowerman þegar hann var að fá sér vöfflu í morgunmat á meðan hann hugsaði um hugmyndir um hvernig ætti að aug-
74 | Askur
lýsa hlaupaskó. Hann sá hvernig mynstrið var á vöfflunni og hugsaði hvernig það liti út öfugt. Fyrirtækið heldur alltaf áfram að stækka. Það sem hjálpaði fyrirtækinu að stækka á sínum tíma var „Just Do It‘‘ herferðin. Þessi herferð sýnir 80 ára Walter Stack hlaupa yfir Golden Gate Bridge. Lógó Nike lógóið er eitt þekktasta vörumerki heimsins í dag. Allir þekkja „The Swoosh‘‘. Þetta lógó var tekið upp árið 1971 þegar þeir breyttu nafninu í Nike. Grafíski hönnuðurinn Carolyn Davidson, stúdent í Portland University, hannaði þetta lógó. Það hafa verið litlar sem engar breytingar á þessu lógói. Það er til útgáfa af lógóinu sem er með The Swoosh og Nike saman. Bæði eru notuð í dag. Hönnun og litir Lógóið táknar vænginn í Grísku gyðjunni. Margir sjá mismunandi hluti þegar þeir sjá Nike lógóið. Það getur séð hlaupabraut lógóið er sett öfugt. Þegar lógóið var fyrst gefið út var það sett í marga liti til að standa út frá öðrum skófyrirtækjum. Vinsælasti liturinn var rauður. Í dag er lógóið algengast í svörtu og hvítu. Þar til ársins 1995 var notast við letrið Futura Bold. Kringum 1995 var nafnið hins vegar tekið af lógóinu og því einungis táknið sjálft notað. Ástæðan var sú að merkið var orðið það vinsælt að táknið dugaði, allir þekktu það. Íþróttavörur Nike er með fjölbreytt úrval af íþróttavörum. Fyrsta varan þeirra voru hlaupaskór og enn í dag er verið að framleiða skó en þeir hafa einnig ein-
blínt á íþróttafatnað og er með vörur fyrir flestar íþróttagreinar t.d. körfubolta, fótbolta, tennis, golf og ræktina. Nike Air Max er lína af skóm sem var fyrst gefin út árið 1987. Þeir eru enn framleiddir í dag og hönnunin er búin að þróast mikið með tímanum. Nike er í sífelldri vöruþróun og á hverju ári koma nýjar vörur, t.d. nýrri útgáfur af Nike Air Max. Nike er í samstarfi við marga fremstu íþróttamenn heims t.d. Tiger Woods, Michael Jordan, Lebron James. Tískan Fólk er ekki bara að nota Nike fötin sem íþróttaföt í dag. Í kringum 1980 voru Nike föt orðin hluti af hversdagslegri tísku hjá fólki, þá sérstaklega íþróttagallar, derhúfur og Air Jordan skór. Á ár-
unum 1990–2000 voru amerískir og evrópskir unglingar búnir að sameina þessa íþróttaskó, boli og íþróttabuxur við svokallaða götutísku, s.s. gallabuxur og pils. Í byrjun 20 aldar voru Nike körfuboltasokkar partur af hversdags fatastíl hjá ungu fólki. Í dag framleiðir Nike mikið af hversdagsfötum, margar tegundir af peysum, bolum, buxum og skóm. Nike er með mikið úrval af ræktarfötum og eru þau mjög vinsæl hjá fólki. Ef maður stígur inn í líkamsræktarstöð þá er að minnsta kosti önnur hver manneskja í Nike. Heimildir sóttar á thestreet.com. (History of Nike). Þýðing: Ólöf Rut.
Air Jordan Air Jordan er samstarf á milli Nike og körfuboltamannsins Michael Jordan. Árið 1984 kom nýr leikmaður inn í NBA, Michael Jordan. Frá fyrsta tímabili hans sást að hann var einstaklega hæfileikaríkur körfuboltamaður. Nike ákvað að taka áhættu með því að bjóða honum samning. Samningurinn gekk út á það að Jordan gæti hannað sína eigin línu af skóm, eitthvað sem örfáir einstaklingar höfðu gert áður. Nike sér alls ekki eftir þeirri ákvörðun í dag. Upprunalegu Air Jordan I skórnir voru framleiddir sérstaklega fyrir Jordan snemma á árinu 1984 og gefnir út seinna sama ár. Skórnir voru þeir klassísku með rauðri og svartri grafík. Fyrst voru þessir skór bannaðir af NBA fyrir að vera of litríkir. Á þessum tíma voru allir körfuboltaskór hvítir. Í hvert sinn sem Jordan spilaði í þessum skóm þá var hann sektaður af NBA en Nike borgaði sektina fyrir hann vegna þess að skórnir fengu svo mikla athygli út á sektirnar. Fyrstu 50.000 pörin af Air Jordan skónum seldust upp samstundis.
Á nokkurra ára fresti kom uppfærð hönnun af Air Jordans. Árið 1988 komu Air Jordan III út og klæddist Jordan þeim þegar hann vann troðslukeppni NBA sama ár. Air Jordan merkið hefur gefið út yfir 32 gerðir af skóm í dag, margar af þeim hafa verið gefnar aftur út vegna mikillar eftirspurnar. Lógó Upprunalegt lógó Air Jordan leit fyrst öðruvísi út en það gerir í dag. Það er þekkt í dag sem „OG logo‘‘ eða „Vængja lógó‘‘. Lógóið sýnir körfubolta með vængi sem teygja sig út til beggja hliða og Air Jordan skrifað fyrir ofan. Jumpman lógóið birtist á 3. útgáfu af Air Jordan árið 1987. Jumpman lógóið sýnir Jordan í loftinu á leiðinni að troða í körfu. Hann var í myndatöku fyrir skóna sína og þá var þessi mynd tekin af honum að troða. Honum leist svo vel á þessa mynd að hún varð að nýja lógóinu. Heimildir sóttar á brandastic.com. (Nike Air Jordan–Behind the brand). Þýðing: Ólöf Rut.
Askur | 75
Ljósmynd: Bruno Nascimento
Hreyfum okkur daglega Heilsa er mikilvæg. Að hreyfa sig reglulega, þótt það sé ekki nema bara 30 mín á hverjum degi, er mjög hollt fyrir líkamann. Það getur minnkað líkur á flestum langvinnum sjúkdómum og eykur líkur á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði. Hreyfing þarf ekki endilega að vera að mæta í ræktina og taka þunga og stóra æfingu heldur er nóg að kíkja út í smá göngutúr og fá ferskt loft í lungun. Regluleg en róleg hreyfing styrkir ónæmiskerfið, minnkar bólgur, lækkar estrógen- og insúlín magn í blóðinu og hjálpar til að viðhalda hæfilegri líkamsþyngd. Þetta eru allt þættir sem geta veitt vernd gegn krabbamein. Það hreyfa sig allir eitthvað á hverjum degi. Hreyfing er hugtak sem nær yfir nánast allt sem felur í sér hreyfingu eins og ferðast á milli staða gangandi, hjólandi eða gera ýmis heimilisverk. Heilsa er skilgreind sem líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan. Næring Góð næring er líka mikilvæg fyrir heilsuna. Til þess að hafa orku út allan daginn er mikilvægt að næra sig á hollum og næringarríkum mat. Ráðlagður dagskammtur af ávöxtum eru fimm á dag, fiskur tvisvar í viku, fituminni mjólkurvörur. Vatn er besti drykkurinn. Umhverfi Umhverfi getur haft áhrif á hreyfingu einstaklings. Þreyta, óöryggi eða áhugaleysi getur spilað inn í. Ef það er óöryggi er alltaf hægt að biðja um aðstoð. Panta tíma hjá einkaþjálfara og fá leiðsögn, fara með einhverjum sem þekkir umhverfið betur
76 | Askur
og alltaf er best að trúa á sjálfan sig. Ef það er þreyta þá er best að fá nægan svefn yfir nóttina og næringu yfir daginn. Ef það er áhugaleysi er gott að hafa félagsskap með sér til að hvetja sig áfram. Dagleg hreyfing Dagleg hreyfing er nauðsynlegt fyrir eðlilegan vöxt, þroska og andlega vellíðan. Hreyfing getur þjálfað hreyfifærni, bætt líkamshreysti og bætt sjálfstraust. Hreyfing ætti að vera eins fjölbreytt og mögulegt er til að efla sem flesta þætti líkamshreysti, þar á meðal afkastagetu lungna, hjarta, vöðvastyrk og liðleika. Kröftug hreyfing, sem reynir á beinin, er mikilvæg á kynþroskaskeiði fyrir beinmyndun og beinþéttni. Regluleg hreyfing er ekki aðeins mikilvægt til að minnka líkur á ýmsum sjúkdómum heldur hjálpar hún við andlegan styrk sem getur hjálpað við að takast við verkefni daglegs lífs. Það er gott fyrir fullorðna einstaklinga að stunda erfiða æfingu að minnsta kosti tvisvar í viku til að bæta þol, vöðvastyrk, liðleika og jafnvægi. Það er aldrei of seint að byrja hreyfa sig. Þegar komið er á efri ár er eðlilegt að smám saman dragi úr líkamlegri og andlegri getu. Regluleg hreyfing hægir á áhrifum og einkennum öldrunar og hjálpar fólki til að viðhalda getunni til að vera sjálfbjarga í daglegu lífi. Styrkþjálfun er sérstaklega gott fyrir eldra fólk. Það getur hjálpað að viðhalda hreyfifærni og stuðlað auknu gönguöryggi. Heimildir sóttar á landlaeknir.is. (Ráðleggingar um hreyfingu). Ólöf Rut tók saman.
VIÐTAL Nafn og aldur: Guðmundur Eggert Gíslason, 32 ára. Á hvaða líkamsræktarstöð vinnur þú á? World Class.
Hvort er mikilvægara – mataræði eða hreyfing? Mataræði og hreyfing skipta jafn miklu máli. Það skiptir jafn miklu máli að borða hollan mat og hreyfa sig. Það helst oft í hendur að hreyfa sig og borða hollan mat.
Hvenær byrjaði áhugi þinn á líkamsrækt? Áhugi minn á líkamsrækt byrjaði árið 2006 þegar ég skráði mig fyrst í þjálfun hjá einkaþjálfara. Af hverju skiptir hreyfing miklu máli?
Ertu með góðar byrjendaæfingar? Góðar byrjenda æfingar eru t.d. æfingar með eigin líkamsþyngd eins og armbeygjur, hnébeygjur, framstig og afturstig svo eitthvað sé nefnt.
Hreyfing skiptir máli því manni liður svo vel eftir á. Hvaða ráð ertu með til þeirra sem vilja að byrja hreyfa sig en vita ekki hvar á að byrja eða þora ekki? Það er gott að byrja á að afla sér upplýsinga t.d. á netinu og svo er gott að setja sig í samband við einkaþjálfara ef fólk vill fá nánari leiðsögn. Af hverju er svefn mikilvægur? Það er mikilvægt að hvílast vel til þess að líkaminn nái að hlaða batterýin eftir daginn.
Hvernig var á Covid tímunum þegar líkamsræktastöðvarnar voru lokaðar? Þá þurfti maður að passa að missa ekki niður æfingarútínuna og hugsa út fyrir kassann og sjá hvernig æfingar maður gæti gert heima eða úti. Ef líkamsræktarstöðvarnar loka aftur ertu með eitthvað ráð fyrir þá sem vilja halda áfram að hreyfa sig heima. Það er gott að halda rútínu og gera það að reglu og hreyfa sig heima alveg eins og maður væri að fara að hreyfa sig í líkamsræktarstöð.
Hvað er lágmarks tími fyrir góðan svefn? Ég myndi segja að ná 7–8 klukkutíma svefn væri góð regla.
Viðtalið tók Ólöf Rut Gísladóttir
Guðmundur Eggert Guðmundur Eggert Gíslason er einkaþjálfari hjá World Class. Hann er 32 ára og er fæddur og uppalinn í Keflavík. Í dag býr hann í Reykjavík með fjölskyldu sinni, unnustu og tveimur börnum. Guðmundur byrjaði að stunda líkamsrækt árið 2004 og hefur síðan stundað líkamsrækt reglulega sér til heilsubótar. Hann útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari í júní árið 2016 og sem ÍAK styrktarþjálfari ári seinna. Hann hefur mikinn áhuga á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og er sífellt að leita leiða til þess að auka þekkingu sína í þeim efnum. Guðmundur tekur að sér einkaþjálfun, paraþjálfun og fjarþjálfun. Áherslan er lögð á almenn hreysti og bætta líðan. Hann leggur áherslu á persónulega þjáflun fyrir byrjendur og lengra komna. Guðmundur Eggert – ÍAK einkaþjálfari/ÍAK styrktarþjáflari.
Askur | 77
Rupaul‘s Drag Race
Dragmenning Orðið drag var fyrst notað í leikhúsum yfir karl menn sem klæða sig upp í kvenmanns klæðnað og öfugt. Dragmenningin er því ótrúlegt en satt margra alda gömul. Þegar Shakespeare tímabilið var að ná sínum hápunkti, seint á 16. öld og byrj un 17. aldar, þá var sviðið ekki bara staður fyrir skemmtun. Þau höfðu sterk tengsl við kirkjuna og reglur um að karlmenn mættu bara ráða. Ef að leikrit var með kvenkyns hlutverk þá voru það karlmennirnir sem áttu að taka að sér þessi hlut verk svo sagan myndi ekki raskast. Orðið drag dregur merkingu sína frá því að þegar karlmenn voru í kvenkyns hlutverki þá drógu þeir kjólana eftir gólfunum. Leikarar sem leika kvenmann í hlutverki er ekki það sem við köllum drag í dag en það var byrjunin. Fljótlega byrjaði drag að vera leið fyrir karlmenn, oftast samkynhneigða, til að tjá sig og aðra hlið af sjálfum sér. Hægt og rólega með tímanum fór dragmenningin frekar að snúast um einstaklinginn og dragdrottn ingarnar byggðu fljótlega upp aðdáendahópa. Ein af stærstu dragstjörnunum snemma á 20. öld var Julian Eltinge. Hann var ein frægasta kvenna eftir herma síns tíma. Margir aðdáendur hans héldu að hann væri leikkona en ekki leikari að leika
78 | Askur
kvenmann. Julian byrjaði ungur að leika kvenmenn og þegar hann var 24 ára lék hann í fyrsta skipti á Broadway. Honum gekk vel þangað til að kreppan skall á árið 1930 en hann hélt samt áfram að koma fram á næturklúbbum. Sama ár og kreppan var í gangi var mikið af kynferðisofbeldi í gangi og það hafði neikvæð áhrif á dragmenninguna. Neðanjarðarklúbbar Neðanjarðarklúbbar spiluðu stórt hlutverk í að halda dragmenningunni uppi. Þar gátu t.d. sam kynhneigðir farið að skemmta sér, klætt sig upp sem kvenmenn og drukkið áfengi. Þetta magnað ist allt upp þegar áfengisbannið tók gildi árið 1920 og jókst þá eftirspurn eftir neðanjarðarklúbbum. Að vera samkynhneigður var ekki samþykkt á þessum tíma þannig að neðanjarðarklúbbarnir hjálpuðu einnig í því samhengi. Dragmenningin fór stækkandi á neðanjarðarklúbbunum og fékk sú menning viðurnefnið „The Pansy Craze‘‘. Þessi tími stóð frá 1950–1960 þangað lögreglan fór að handtaka fólk fyrir slík athæfi. Þetta stoppaði hins vegar ekki dragdrottningarnar, þær fóru að mót mæla og 6 árum seinna, árið 1966, voru margar opinberar dragdrottningar í Ameríku. Frægar dragdrottningar Fyrsta þekkta dragdrottningin í Ameríku var
Mother Flawles Sabrina. Hún var formaður LGBT samtakanna. LGBT stendur fyrir lesbian, gay, bisexual og transgender. Hún sá um margar keppnir tengdar drag og var oft handtekin fyrir mótmæli. Dragdrottningin Devine varð fræg árið 1972 fyrir aðalhlutverk í myndinni Pink Flamingos. Árið 1988 lék Devine í leikritinu Hairspray þar sem hún lék móðir Tracy. Nú er hefð að hafa karlmann í þessu hlutverki. John Travolta fór með hlutverkið í kvikmyndinni sem kom út árið 2007. Tim Curry lék fræga hlutverkið Dr. Frank n Furter í myndinni Rocky Horror árið 1975. Ein frægasta dragdrottningin í dag er Rupaul. Hann var án efa frægasta dragdrottningin í byrjun 21. aldar. Hann er söngvari, leikari, rithöfundur og einnig er hann með frægasta dragdrottninga keppnisþáttinn, Rupaul‘s Drag Race. Rupaul sam einaði dragmenninguna og poppmenninguna og árið 2017 var hann nefndur einn af hundrað áhrifamestu manneskjum heims hjá tímaritinu The Time.
RuPaul Rupaul Andre Charles er ein frægasta drag drottning í heimi. Hann er fæddur og uppalinn í San Diego en flutti svo til Atlanta til að læra list. Eftir námið fór hann til New York þar sem hann fór að láta til sín taka. Rupaul varð þekktur eftir að hann gaf út lagið Supermodel árið 1993. Í dag hefur hann gefið út ótal mörg lög og plötur. Einnig hefur hann leikið í myndum og gefið út bækur. Það mætti því segja að Rupaul hafi komið dragmenningu á hærri stall með áhrifum sínum í gegnum þættina sem hann stýrir, Rupaul‘s Drag Race. Spjallþátturinn hans The Rupaul Show er einnig fyrsti þátturinn til að hafa dragdrottningu sem þáttastjórnanda. Rupaul er giftur Georges Lebar og hafa þeir verið saman í 27 ár. Rupaul‘s Drag Race
Fjölskyldur Böll hjá dragdrottningum urðu vinsæl í kringum 1970. Þar komu allir saman til að skemmta sér en einnig voru dómarar sem dæmdu flottasta dragið og fólk gat unnið verðlaun fyrir. Fyrirbærið „dragmóðirin” kom út frá þessu, þar sem eldri drottningar taka að sér yngri dragdrottningar til að leiðbeina þeim. Eftir það getur móðirin ættleitt hana til sín og hjálpað henni og þar af leiðandi tekið upp sama eftirnafn. Dragmæður eru efstar í „húsinu‘‘ þeirra og sjá þá um alla fjölskylduna. Dragfjölskyldur urðu þekktar út frá myndinni Paris is Burning sem kom út árið 1990.
Rupaul‘s Drag Race er raunveruleikaþáttur þar sem dragdrottningar koma saman og keppast um titilinn „Dragdrottning Ameríku‘‘ eða „Americas next drag superstar‘‘. Rupaul er framleiðandi, kynnir, dómari og leiðbeinandi þáttarins. Ásamt Rupaul eru þau Michelle Visage, Ross Matthews og Carson Kressly dómarar. Fyrsta serían kom út árið 2009 og eru seríurnar í dag 13 talsins. Þessi keppni er góður stökkpallur fyrir ungar dragdrottningar til að koma sér á framfæri. Þátturinn nýtur mikilla vinsælda um allan heim. Árið 2016 vann Rupaul Emmy verðlaun fyrir frábæra frammistöðu sem kynnir. Heimildir sóttar á wikipedia.com. (Rupaul).
Heimildir sóttar á bbc.
Þýðing: Ólöf Rut
co.uk. (The fabulous history of drag). Þýðing: Ólöf Rut.
Trixie Mattel
Askur | 79
80 | Askur
SARA HANH Ég heiti Sara Hanh Hong Bui og er 21 árs gömul. Ég er frá Vietnam en er fædd og uppalin á Íslandi. Á þessum 21 árum hef ég alltaf búið í Grafarvoginum. Ég er útskriftarnemi í grafískri miðlun í Tækni skólanum og er einnig að ljúka við stúdentsprófið í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Áður en ég fór í Tækniskólann var ég að stunda nám í Borgarholtsskólanum og tók þá 2ja ára pásu frá náminu til þess að fara að vinna á hjúkrunarheimili og að gera neglur á aðra þar sem mamma er naglafræðingur og kenndi hún mér á þá tækni. Ég hef verið að vinna á hjúkrunarheimili síðan með skóla. Síðan ég man eftir mér hef ég verið með áhuga á list eins og að teikna, mála og ljósmyndun. Ég teiknaði og málaði mikið þegar ég var yngri en tæknin tók yfir það og er þá mikið í forritum en held samt í að skissa! Ég hef einnig gaman af því að elda, spila tölvuleiki, smíða og brennandi áhuga á flúrum. Það sem ég er að stefna á núna, er að klára námið og hugsanlega taka B.A. gráðuna í Bandaríkjunum. Annars eins og er þá er ég búin að fikta mikið í að hanna flúr fyrir bæði mig og aðra og ætla þá að byrja að flúra. Ég ætla að fylgja í fótspor mömmu minnar og er þá núna að vinna í að stofna eigið fyrirtæki til hliðar. Það verða spennandi tímar framundan og er ég þá mjög spennt að sjá hvert lífið tekur mig!
Askur | 81
Mynd 8.1
BÁTAFÓLK Víetnamskt bátafólk eða svokallaðir bátafólk er flóttafólk frá Víetnam. Fólkið flúði með bátum eða skipum eftir Víetnamska stríðið árið 1975. Um 1.5 milljón manns náðu að flýja landið en ferðin var þó erfið fyrir þau, 200.000–400.000 manns lifðu ferðina ekki af. Fólkið drukknaði, glímdi við veikindi, dó úr vökvaskorti, varð fyrir borði vegna þrengsla, lentu í slæmu veðri eða náðu jafnvel ekki til lands. Bátafólkið sigldi til þeirra landa sem voru næst þeim og voru helstu löndin Hong Kong, Malasía og Indónesía. Fólk var að flýja
Víetnam því það var svo fátækt eftir stríðið. Bátafólkið fékk að dvelja í þessum löndum í nokkur ár í flóttabúðum, þar til önnur lönd sáu sér fært að taka við þeim. Þessar ferðir kröfðust mikils hugrekkis því þær voru upp á líf og dauða. Löndin tóku síður vel á móti flóttafólki þegar leið á. Fólk fórnaði sér til þess að fá betra líf þótt það þyrfti að yfirgefa fjöl skyldur sínar í nokkur ár. Sumir hafa ekki enn sameinast fjölskyldu sinni enn þann dag í dag, en þó hafa tugir þúsunda Víetnama fundið nýtt heimili og lifa betra lífi. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui
Mynd 8.2
8 | EMBLA
82 | Askur
IN G I E AF U L S N Y E R VIÐTAL VIÐ
VIGGÓ HONG
Í dag er Viggó aðstoðarkokkur á Rikki Chan á Íslandi og á hann þrjár dætur. Hann fékk að fara aftur til Vietnams árið 1993 og hefur nú farið nokkrum sinnum heim síðan þá.
Viggó Hong Van Bui í Pillar Point
„Ég flúði árið 1986 frá fjölskyldunni minni úti í Vietnam til Hong Kong. Ég var aðeins 19 ára gamall að verða 20 ára þegar ég fór. Ég og 7 vinir mínir keyptum okkur bát og fórum. Eins og flestir á þessum aldri hefðu verið, var ég hræddur við að fara og fá ekki að sjá fjölskyld una mína aftur. Ég vissi ekki hvort ég myndi lifa eða deyja en ég gerði það sem ég þurfti að gera fyrir betra líf. Þegar við komum vorum við færðir yfir á Sham Shui Po flóttabúðir, mér leið eins og ég væri í fangelsi. Þrjú ár sem ég var þarna, vann ég sem sjálfboðaliði að skammta mat og fékk ekki að fara út úr svæðinu. Árið 1989 fékk ég að fara yfir í flóttabúðirnar Pillar Point, ég fekk vinnu sem aðstoðarkokkur og síðan var ég í iðnaðarvinnu. Ég kynntist síðan konu að nafni Ninna Truong í flóttabúðunum, við eignuðumst stelpu saman og fengum að fara til Íslands árið 1991“.
Ljósm.: Óþekktur
Viggó Hong Van Bui er fæddur árið 1966 og er frá Vietnam. Viggó er einn af bátafólkinu á myndinni. Ég fékk Viggó til að segja mér söguna sína sem flóttamaður.
Mynd 8.1: Bátafólk í Sham Shui Po, lokuðum flóttabúðum. Ljósm.: Sam Chan Mynd 8.2: Fóttamenn bíða eftir að fá að fara til Bretlands. Ljósm.: SCMP Pictures
Askur | 83
LÍFÍÐ SEM FLÓTTAMAÐUR Saga Ninnu
Flóttabúðir
Ninna Truong Minh Ngo er fædd árið 1970 og er frá Vietnam. Ninna er eigandi Amerísku Naglasnyrtistofunnar. Ninna á mann að nafni Viggó Hong Van Bui og eiga þau saman þrjár dætur, Helena Hue Thu Bui, Elín Nhung Hong Bui og Sara Hanh Hong Bui. Ninna á alls 5 systkini og búa þau 4 hér á Íslandi, einn úti í Vietnam og einn úti í Bretlandi.
Árið 1988 fór Ninna á bát með tveimur elstu bræðum sínum ásamt 48 manns til Hong Kong. Þegar þau komu til Hong Kong fóru þau í flóttabúðir sem heita Pillar Point. Í flótta búðunum, Pillar Point voru bara Víetnamar. Staðurinn var umkringdur gaddavírum og fólk sem var með vinnu þurfti skilriki til að komast inn og út úr staðnum en atvinnulausir voru bara inni í búðunum en fengu samt að borða þrisvar á dag og fengu líka föt til skiptana. Meðan hún var í Hong Kong fékk hún fyrst vinnu sem saumakona en síðar fékk hún starf í verksmiðju. Ninna var úti í Hong Kong alls í 3 ár og voru hún og Viggó 2 af 30 manna hópi sem fékk inngöngu til Íslands árið 1991.
Ég fór með bræðrum mínum þegar ég var 17 að verða 18 ára. Það var erfitt að kveðja mömmu og pabba því ég vissi ekki hversu langt væri þangað til að ég fái að sjá þau aftur.
Nýbúar í Norðri
Ljósm.: Óþekktur
Til Íslands Þegar Ninna kom til Íslands árið 1991 var hún að læra íslensku og hóf síðan starf hjá efnalauginni Hvíta húsið í Kringlunn i og fékk síðan starf hjá prentsmiðju R. Guðmundsson. Ninna fékk ekki greitt hjá prentsmiðjunni og fékk þá að hætta og vera á atvinnuleysisbótum. Ninna ákvað þá að flytja til Englands árið 1998 meðan hún var á atvinnuleysisbótum og læra að vera nagla fræðingur. Hún bjó þar í 7 mánuði og flutti síðan aftur til Íslands og vann hjá snyrtistofu Hönnu Kristínar Diðriksen í 2 mánuði áður enn hún opnaði stofuna sína, Ameríska nagla snyrtistofan. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui
10 | EMBLA
84 | Askur
UM AMERÍSKU NAGLASNYRTISTOFUNA Ameríska naglasnyrtistofan var stofnað árið 1999 og er staðsett á Engjateigi 17. Fyrirtækið er fjölskyldufyrirtæki og eru þær þá tvær sem vinna þar, eigandinn, Ninna Truong Minh Ngo og dóttir hennar Helena Hue Thu Bui. Nafn fyrirtækisins er til heiðurs kennara Ninnu í Englandi vegna þess að hann er frá Ameríku. Ameríska naglasnyrtistofan býður upp á handog fótsnyrtingu. Ninna tók þátt í keppninni Tískan í ásetningu gervinagla flokki og hlaut 1. sætið í þeim flokk árið 2000. Ninna leggur áherslu á að kúnnum líði vel og hefur þá farið að gera neglur á fólk á sjúkrahúsinu, hjúkrunarheimilum og í heimahúsi. Kúnnar hennar Ninnu eru sátt með þjónustuna og segja að þjónustan sé góð, hröð og traust. Ninna hefur þann kost að tengjast vel við kúnna sína og eru þá margir fastakúnnar sem hafa verið með Ninnu í allt að 22 ár og eru enn nýjir að bætast við í dag. Tekið saman af Söru Hanh Hong Bui
Ninna Truong Minh Ngo
Ljósm.: Helena Hue Thu Bui
SYSTKININ Systkinin eru alls sex en eru þau fjögur sem búa á Íslandi. Yngsti bróðir Ninnu, Róbert, kom árið 1994, árið 2001 kom Xuyen, elsta systir og næst var það Vu, elsti bróðir Ninnu til Íslands. Ninna og fjölskyldan hennar eru mjög dugleg og eiga alls fjögur fyrirtæki á Íslandi.
Askur | 85
86 | Askur
SIGURÐUR EINAR Ég heiti Sigurður Einar Jónsson og er fæddur árið 1993. Ólst upp í Garðabæ en bý í dag í gamla Vesturbæ ásamt kærustu og kisa. Leið mín að þessu námi er frekar óhefðbundin. Ég var í menntaskóla á árunum 2009–2012 en sagði mig úr náminu vegna þess að ég var engan veginn að tengja við það og fannst ég þurfa að prófa eitthvað annað. Eftir nokkur ár á vinnumarkaðinum fann ég að ég vildi sérhæfa mig. Ég skráði mig því til náms í grafískri miðlun hér í Tækniskólanum. Ég fékk áhuga á hönnun út frá því að skoða plötuumslög. Fannst áhugavert hvernig hægt er að túlka tilfinningar, andrúmsloft og tíðaranda með formum, litum og letri. Ég er hrifinn af allri bjögun og því sem er viljandi „illa“ gert, sérstaklega í tónlist og grafík. Ég er mjög ánægður með þetta nám og núna hlakkar manni bara til að koma sér fyrir í faginu, nema maður fari í áframhaldandi hönnunarnám. Takk fyrir mig.
Askur | 87
Hópþrýstingur er vanmetið afl sem getur valdið því að við veljum dómgreind, skoðanir eða hegðun hópsins fram yfir okkar eigin. Dr. Solomon Asch komst að þessari niðurstöðu í rannsókn sem hann gerði árið 1951. Í rannsókninni fékk hann 8 manns til sín undir því yfirskyni að um rannsókn á skynjun væri að ræða. Sjö voru leikarar sem svöruðu samkvæmt fyrirmælum læknisins. Áttundi maðurinn – sá sem raunverulega var viðfangsefni rannsóknarinnar – hafði ekki hugmynd um raunverulegan tilgang rannsóknarinnar. Dr. Solomon Asch var að rannsaka áhrif hópþrýstings á einstaklinga; fylgjum við eigin sannfæringu þótt hópurinn mæli gegn henni? Rannsóknin var einföld. Í hverri umferð fengu viðfangsefnin að sjá tvær myndir, A og B. Á mynd A var eitt lóðrétt strik og á mynd B voru þrjú strik, merkt 1, 2 og 3. Mennirnir áttu svo að svara hvert þriggja strikanna á mynd B væri jafnstórt strikinu á mynd A. Í upphafi svöruðu allir mennirnir rétt, enda augljóst hvaða strik væru jafnstór. Í þriðju umferð fóru leikararnir sjö að gefa vísvitandi röng svör – öll þau sömu. Áttundi maðurinn gerði slíkt hið sama. Þrátt fyrir að sannanir fyrir því gagnstæða væru beint fyrir framan hann. Hann fór gegn eigin dómgreind og samræmdi sig hópnum. Í annarri útgáfu af þessari rannsókn var einum leikaranna gert að svara rétt. Þá reyndist
88 | Askur
auðveldara fyrir áttunda manninn að fylgja eigin sannfæringu ef annar hafði svarað rétt á undan honum. Rannsóknin benti þannig til þess að það sé fólki erfiðara að fara gegn samhljóða hópi. Það er því mjög mikilvægt að láta skoðun sína í ljós ef maður tilheyrir hóp sem maður telur hafa rangt fyrir sér. Það getur þó verið varasamt ef hóphugsunin er sterk.
Það á ekki að vera hægt að svara þessu vitlaust
Hóphugsun Rannsókn Dr. Asch sýndi fram á að fólk á erfiðara með að hugsa og haga sér sjálfstætt í hópum. Hollusta við hópinn verður oft ofan á í baráttunni við dómgreind og getur leitt af sér skerta
ákvarðanatöku og siðferðislegan halla. Ef einhver mælir gegn skoðunum hópsins getur hann átt á hættu að vera lastaður og jafnvel útskúfaður. Fólk hættir því ekki á að andmæla hópnum af ótta við refsingar. Ef hópur fólks sameinast í ótta er hætta á hjarðhegðun. Hjarðhegðun er það fyrirbæri þegar fjöldi fólks hagar sér með sama hætti. Hún litast oft af því að einn hermir eftir öðrum í þeirri trú að sú hegðun sé skynsamlegri. Í stað þess að leitast sjálfur eftir svörum þá fylgir einn öðrum, og svo koll af kolli. Hjarðhegðun er sérstaklega áberandi þegar fjöldi fólks óttast sama hlutinn á sama tíma – líkt og hópur dýra á flótta undan rándýri. Það er gott að vera meðvitaður um þau áhrif sem hópamyndanir hafa á okkur. Skoðanir hópsins endurspegla oft ekki skoðanir einstaklingsins og bjögunin getur verið mikil. Hópur getur þannig á endanum sameiginlega tekið ákvarðanir sem enginn einstaklingur innan hópsins myndi taka. Texti: Sigurður Einar Jónsson | Mynd: Google (CC leyfi)
Hópsturlun Nornabrennurnar í Salem er eitt þekktasta dæmi hópsturlunar. Á 16. öld fengu tvær ungar stúlkur í smábænum Salem Village flogakast. Læknisfræði þessa tíma gat ekki útskýrt af hverju flogin stöfuðu. Stúlkurnar sjálfar staðhæfðu að yfirnáttúruleg öfl stæðu á bak við þetta og fljótlega eftir það greip um sig mikil hræðsla í bænum. Fleiri stúlkur fóru að fá flogaköst og konur í bænum voru ásakaðar um galdra. Efnt var til réttarhalda í flýti, allar konur sem lágu undir grun voru leiddar fyrir dómara og þær sem ekki játuðu á sig galdra voru teknar af lífi. Þær sem játuðu fengu hinsvegar að halda lífi, eins kaldhæðnislegt og það er. Alls voru 20 konur teknar af lífi áður en almenn skynsemi greip aftur um sig. Læknar nútímans hafa lagt fram ýmsar skýringar á flogaköstum stúlknanna, allt frá stressi til brauðmyglu.
Ný útivistarvöruverslun opnar í Ármúla 18 þann 8. júní. Í tilefni þess verðum við með fullt af flottum tilboðum og allt að 20% afslátt af völdum vörum dagana 8.−10. júní.
FACEBOOK.COM/TINDURUTIVIST
INSTAGRAM.COM/TINDURUTIVIST
Opnunartímar 7
TINDUR ÚTIVISTARVÖRUVERSLUN • ÁRMÚLI 18 • 104 RVK
| 89 Askur mán. til fös. 10:00−18:00
SÍMI 567 8888 • TINDUR@TINDUR.IS • WWW.TINDUR.IS
lau. & sun. 12:00−16:00
Sjálfvakinn bruni (e. spontaneous combustion)
Sjálfvakinn bruni er hið furðulega fyrirbæri þegar skyndilega kviknar í fólki án þess að augljós kveikjugjafi komi við sögu. Eldurinn er þá talin byrja inn í líkamanum og fólk brennur við svo mikinn hita að jafnvel bein brenna, þótt bruninn valdi aðeins bara smávægilegum skemmdum á húsgögnum. Hugtakið sjálfvakinn bruni (e. spontaneous combustion) kom fyrst fram árið 1746 í grein eftir Paul Rolli sem birt var í tímaritinu „Philosophical Transactions of the Royal Society“. Cornelia Zangari Bandi Tilefni greinarinnar var dularfullur dauðdagi ítalskrar greifynju. Í frásögn Rollis kemur fram að Cornelia Zangari Bandi, sem var á sjötugsaldri, hafi þótt sopinn góður og lét hún oft bera á líkama sinn kamferolíu með brandí út í til að lina verki sem hún þjáðist af. Þerna konunnar hafði komið inn í herbergi hennar til að vekja hana einn morguninn. Þegar þangað var komið var herbergið þakið sóti og öskuhrúga á miðju gólfinu. Ásamt öskunni voru tveir fótleggir fyrir neðan hné, þrír fingur og hluti af höfuðkúpu. Ljóst var að greifynjann hafði á einhvern hátt brunnið þótt aðrir hlutir eins og rúm og húsgögn í herberginu hefðu sloppið algjörlega. Þetta dularfulla fyrirbæri, sjálfvakinn bruni, hefur um aldir verið mönnum mikil ráðgáta. Til forna töldu menn þetta refsingu frá almættinu fyrir miklar syndir en á 18. og 19. öld var talið líklegast að fyrirbærið stafaði af drykkjuskap.
90 | Askur
Mannslíkaminn gæti þannig orðið svo mettaður af alkóhóli að hann ætti það á hættu að brenna til ösku af sjálfsdáðum. Nicole Millet Eftirmálin að dauða frú Nicole Millet lýsa þessum tilgátum um áfengismettun vel. Herra og frú Millet ráku krá og gistiheimili í Frakklandi árið 1725. Kvöld eitt vaknaði herra Millet við mikla brunalykt. Hann vakti gestina og sagði þeim að flýta sér niður á jarðhæðina. Þar komu þeir að jarðneskum leifum frú Millet. Hún var orðin að öskuhrúgu einni sem lá ofan á hægindastól, en á einhvern ótrúlegan hátt var hægindastólinn bara smávægilega skemmdur. Lögreglustjórinn sem kom á staðinn var ekki lengi að komast að niðurstöðu – herra Millet hafði myrt konu sína. Sem betur fer fyrir Millet var Claude-Nicolas Le Cât á staðnum. Sá var aðstoðarskurðlæknir og vakti hann athygli lögreglustjórans á því hversu mikinn eld þyrfti til að brenna mannslíkama til ösku. Næst spurði hann herra Millet hvort konan hans hefði verið drykkfelld. Millet sagðist ekki muna til þess að hún hefði farið allsgáð að sofa síðastliðin tuttugu ár. Við þetta svar var Le Cât sannfærður um að frú Millet hefði látist af völdum sjálfsvakins bruna. Irving Bentley Annað tilvik, dauði Irving Bentleys er nær okkur í tíma. Hann átti sér stað árið 1966 í NorðurPennsylvaníu í Bandaríkjunum. Don Gosnell var að taka stöðu af gasmælum bæjarins og var til
þess kominn í kjallara dr. Bentleys. Hann varð var við reyk og undarlega lykt og kom auga á öskuhrúgu sem lá í horni kjallarans. Fyrir ofan hrúguna var gat brennt í gegnum loftið. Gosnell hraðaði sér í kjölfarið upp í íbúð Bentleys, þar sem hann fann mannsfót inni á klósetti. Við þetta var Gosnell mjög brugðið og er hann sagður hafa hlaupið út úr húsinu og öskrað „Dr. Bentley er brunninn upp til agna!“. Þetta mál vakti sérstaka athygli slökkviliðsmanna og annarra sem voru vanir aðkomu að málum af þessum tagi. Fyrir utan hægri fótlegg Bentleys – ásamt inniskó sem hann hafði verið klæddur í – var nefnilega ekkert eftir af doktornum.
Fótleggur Bentleys ásamt holunni í gólfinu
Í máli Irving Bentleys gripu yfirvöld til þeirrar kenningar að dánarorsökin væri reykeitrun. Um það var fyrst skáldað einhvað á þá leið að gamli maðurinn hefði kveikt sér í pípu upp í rúmi og að hann hefði óvart kveikt í náttfötum sínum í leiðinni. Þá næst hafði hann staulast fram úr rúminu, dottið fram fyrir sig og orðið eldinum að bráð. Á þessari kenningu voru margir vankantar, til dæmis var pípan enn á statífi næst rúmi hins látna og því ómögulegt að hann hafi kveikt í sér með þeim hætti. Réttarlæknir úrskurðaði því að dánarorsök væri köfnun ásamt 90% bruna líkamans.
Þau dauðsföll sem kennd eru við sjálf vakinn bruna hafa viss sameiginleg einkenni. Líkami hins látna brennur til ösku☺– ásamt holdi og beinum – að undanskyldum hluta útlima og í ein staka tilfellum höfði. Húsgögn og aðrir nærliggjandi munir sleppa yfirleitt með litlar sem engar skemmdir og sama gildir um klæðnað hins látna. Ef við setjum hlutina í samhengi þá þarf líkbrennsluofn til dæmis að brenna í eina og hálfa klukkustund við 1200°C, en síðan í eina til tvær og hálfa klukkustund við tæpar 1000°C til þess að brenna mann eskju til ösku. Að því loknu þarf að mylja beinin í mortéli. Þess ber líka að geta að við húsbruna kemst hitinn í mesta lagi um 800°C. Hitinn sem myndast við sjálfvakinn bruna hlýtur því að vera gífurlegur, sér staklega í ljósi þess að mannshold er ekki sérlega eldfimt og mannsbein fara ekki að brenna til agna fyrr en um 1650°C. Ekki er vitað með vísu hversu algengur sjálfvakinn bruni er – læknar viðurkenna almennt ekki að sjálfvakinn bruni geti átt sér stað og líklegast er almenn tilhneiging til þess að hafa hljótt um slíka atburði – en fjöldi þekktra tilvika er á þriðja hundrað. Síðasta skráða tilfellið af þessu tagi er dauði Michael Faherty frá árinu 2010. Hinn 76 ára gamli Faherty fannst látinn í íbúð sinni í Galway. Hann lá á bakinu í stofunni, líkaminn brunninn upp til agna, en einungis lítilsháttar skemmdir á ná lægum húsgögnum. Talið var í fyrstu að kviknað hefði í honum út frá arineldi í stofunni en það var fljótlega útilokað og eftir rækilega rannsókn á málinu tilkynnti réttarlæknirinn Ciaran McLoughlin að at vikið hlyti að stafa af sjálfvöktum bruna en með þeim ummælum að „á því væru engar fulllnægjandi skýringar“. Texti: Sigurður Einar Jónsson / Ólafur Halldórsson Myndir: Unsplash & Google (CC leyfi)
Askur | 91
10 92 | Askur
ég er Velkominn í viðtal Sniper, mig langaði aðeins til að…
Hvaða rugl er í gangi hérna
Byrjum bara á byrjuninni, ef þú myndir segja okkur aðeins frá upphafinu? No comment
ekki Stefnur og straumar, hvaða skilgreiningar myndir þú segja að þinn stíll falli undir? Ég er ekki að fara að svara þessu
Hversu lengi hefur þú verið að mála? Eru fleiri listamenn í fjölskyldunni þinni? Já… lengi, amma
Hvar ertu uppalinn?
Það er ekki séns að ég svari þessu
að fara Ef við gefum okkur að þú sért uppalinn á Íslandi, hvernig hefur það haft áhrif á stílinn þinn?
Elska rúnir og víkínga hjálma og ….. ertu vangefinn? Haltu kjafti
Hvaða rugl var í gangi hér?
Nú hefur þú snert botninn nokkrum sinnum, ef þú værir til í að segja aðeins frá því? Hmm, er það samt? Hver var að segja það?
svara
Þegar þú leitar að vegg til að mála, hverju ertu helst að leita að? Þetta mun vera ein heimskasta spurning sem ég hef fengið á ævi minni Eru einhverjir aðrir miðlar þar sem þú færð útrás fyrir sköpunargáfunni? ….
Hver er uppáhalds DJin þinn? Geri ekki upp á milli DJa
þessu Lokaorð?
já Varstu búinn að leggja inn á mig mannstu?
Sigurður Einar Jónsson tók viðtalið Myndir úr einkasafni
Askur | 93 Hvaða rugl er í gangi hér?
aftur & aftur
Er þetta teiknað í síðustu viku eða árið 1980?
„Við lifum í svokallaðari retró– maníu, þar sem menn horfa stöðugt aftur til fortíðar og taka mið af öllu því sem nú þegar hefur verið gert þegar skapa á eitthvað nýtt“ – Þórður Ingi Jónsson Það er mikill kraftur fólginn í endurtekningu. Þetta hafa frambjóðendur, plötusnúðar og kennarar vitað í langan tíma. Lykillinn að náttúrulegri tilhneigingu eru tíðar endurtekningar og til þess að ná tökum á hæfileikum er mikilvægt að æfa sig – aftur og aftur og aftur. Heilinn á okkur vinnur stanslaust úr því stöðuga upplýsingaflæði sem til hans berst. Hann er lang orkufrekasta líffæri líkamans, telur aðeins 2% af líkamsþyngd en er ábyrgur fyrir 20% af orkunotkun okkar. Heilinn – í sparnaðarskyni – kann betur við hluti sem eru honum kunnugir, og það sem heilanum þínum líkar vel við líkar þér vel við. Hann myndar jákvæð tengsl við hluti sem hann þekkir og jákvæðari tengsl því betur sem við þekkjum þá. Þess vegna erum við t.d. líklegri til þess að trúa einhverju sem við höfum heyrt áður,
burtséð frá því hver sannleikurinn er. Heilinn kýs þannig endurtekið efni fram yfir nýjungar vegna þess að það er auðveldara að vinna úr því. Við finnum fyrir þessu þegar við erum t.d. að velja hvaða bíómynd við viljum horfa á hverju sinni. Við erum líklegri til þess að velja myndir með kunnulegu þema, því við þekkjum það og áhorfið verður fyrir vikið auðveldara. Þú heyrir t.a.m. nýtt lag í útvarpinu og finnst það leiðinlegt. Ef þú heyrir lagið nógu oft næstu vikur á eftir er líklegt að heilinn þinn myndi jákvæð tengsl við lagið og fari að finnast það betra, jafnvel gott. Fredric Jameson spáði því að í hinu póstmóderníska ástandi myndi menningin bera keim af fortíðarþrá og stælingum á eldra efni. Þetta hefur ræst, eins og sjá má á endurvakningu og vinsældum á fagurfræði síðustu áratuga í tónlist, kvikmyndum og tísku. Hugtakið fútúrískt á þannig ekki lengur við um hvernig við sjáum framtíðina, heldur vísar hugtakið til þess hvernig fólk á 20. öld leit á hana. Erum við kannski hætt við framtíðina? Með því að líta stöðugt til baka og endurvekja gamla framtíðarsýn erum við ásótt af framtíð sem aldrei kom. Texti: Sigurður Einar Jónsson / Þórður Ingi Jónsson
94 | Askur
bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled bamboozled Van Meegeren byrjaði upphaflega að falsa mál Þegar bandamenn fóru í gegnum málverkasafn verk eftir þekkta meistaramálara vegna þess að Hermans Göring eftir seinni heimsstyrjöld, fundu hans eigin verk fengu ekki það lof sem honum þeir rúmlega 1200 málverk. Eitt málverkanna fannst hann eiga skilið frá gagnrýnendum sam sem fannst þar var „Christ and Adulteress“– tímans. Hann aðhylltist náttúru og raunsæisstíl meistaraverk málarans Johannes Vermeers. á tímum þar sem avantgarde listhreyfingin var Í augum hollenskra yfirvalda var um föðurlands svik að ræða – hver hafði selt nasistum menningar ríkjandi. Í reiði sinni fór hann því að falsa verk eftir arfleið hollensku þjóðarinnar? þekkta listamenn í þeim tilgangi að niðurlægja Maður að nafni Hans Van Meegeren var í kjöl gagnrýnendur og sérfræðinga. farið handtekinn. Meegeren var ríkur maður, átti Frægðin sem Van Meegeren hafði vonast fasteignir og tvo næturklúbba. Eftir þrjár vikur eftir sem listmálari öðlaðist hann að lokum sem maðurinn sem lék á Göring. í fangelsi játaði Van Meegeren brot sitt – hann hafði selt Göring verkið. En málverkið reyndist ekki sú þjóðargersemi sem menn höfðu í upphafi Texti: Sigurður Einar Jónsson | Mynd: Google (CC leyfi) haldið – Van Meegeren hafði nefni lega sjálfur málað myndina. Falsanir Van Meegerens Hann játaði í kjölfarið að hafa málað Málverk Ár Kaupandi Kaupverð sex málverk með áletruðu nafni 1936 Boymans 4 millj. dollara Vermeers og selt þau fyrir sam The Supper at Emmaus tals 3.000.000 dollara (30 milljónir 1937 W. van der Vorm 1,6 millj. dollara dollara á núverandi gengi). Þetta Interior with Drinkers voru ótrúleg tíðindi og listfræðingar 1940 D.G. van Beuningen 3,25 millj.dollara stóðu á öndinni þar sem Vermeer The Head of Christ hafði lengi verið sú stjarna sem málaralist annarra var dæmd eftir. The Last Supper 1942 D.G. van Beuningen 7 millj. dollara The Blessing of Jacob
1942
W. van der Vorm
5,75 millj.dollara
Christ with the Adulteress
1942
Herman Göring
6,75 millj.dollara |
Askur 95
96 | Askur
TORFI KRISTINN Torfi Kristinn Ólafsson hér, 39 ára Hafnfirðingur. Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á tónlist og hún átt fastan stað í hjarta mér en með árunum hefur áhugi einnig vaknað á annarskonar list og menningu. Árið 2015 stóð ég tímamótum í lífi mínu þar sem ég áttaði mig á því að ég hafði verið á vinnumarkaði í 15 ár og var tími kominn til að breyta til. Þá fór ég að líta í kringum mig og kynna mér námsmöguleika, fór á ýmis námskeið þar sem meðal annars var einn gítar smíðaður, staldrað við í bakaranámi en nám í grafískri miðlun vakti áhuga og átti vinninginn. Það var svo haustið 2019 að ég hóf nám í grafískri miðlun við Tækniskólann. Strax frá fyrsta degi í náminu kviknaði áhugi á faginu og hefur hann aukist síðan. Tækifærin til að leyfa listrænum hæfileikum að njóta sín öðru hvoru hefur verið gefandi. Þegar litið er til baka þá hefur námið verið fjölbreytt og krefjandi en alltaf ánægjulegt og hafa kennarar og samnemendur átt stóran þátt í því. Nú þegar útskrift nálgast fyllist maður tilhlökkunar við að hefja nýjan kafla í lífinu.
Askur | 97
Lincoln in the Bardo Öðruvísi draugasaga
Febrúar árið 1862. Þrælastríð geisar milli Norður- og Suðurríkja Bandaríkjanna. William „Willie“ Lincoln, ellefu ára gamall sonur Abrahams Lincoln og eiginkonu hans, Mary Ann Lincoln, er með taugaveiki sem dregur hann til dauða. Hann er lagður til hvílu í grafhvelfingu í Oak Hill-kirkjugarðinum í Georgetown. Yfirkominn af sorg vitjar Abraham Lincoln líks ástkærs sonar síns, ófær um að sleppa takinu af drengnum. Þetta eru aðstæðurnar sem lesandinn gengur inn í nóttina örlagaríku í upphafi skáldsögu bandaríska rithöfundarins George Saunders, Lincoln in the Bardo, sem út kom á liðnu ári. Fyrir verkið hlaut Saunders bresku Man Booker-verðlaunin eftirsóttu. Lincoln in the Bardo er fyrsta skáldsaga höfundar en hann hafði þó áður getið sér gott orð á ritvellinum, aðallega fyrir tilraunakenndar smásögur. Öðruvísi draugar Lincoln in the Bardo er engin venjuleg draugasaga þar sem draugar ganga um litverptir milli svefns og vöku í tilbreytingasnauðri tilvist til eilífðarnóns. Hún hefur þó að geyma mörg stef og vísanir sem við þekkjum úr öðrum álíka sögum. Í bardó eru ákveðnar leikreglur og lögmál sem draugarnir þurfa að beygja sig undir. Í fræðum Búddista er mannshugurinn í hávegum hafður en þó eru honum settar skorður af umbúðunum sem hann hylja, þ.e. höfuðkúpunni. Í bardó er þessu ekki þannig farið þar sem heilinn er ekki takmarkaður af holdlegum líkama og því magnast allar tilfinningar upp og verða svo gott sem hömlulausar. Það mætti kannski líkja huga drauganna við kýr sem sletta úr klaufum að vori til þegar þær sleppa úr básum sínum. Skáldskapur og sagnfræði í eina sæng Á meðan Lincoln er að takast á við sonarmissinn standa hann og fylgismenn hans höllum fæti í baráttu sinni gegn aðskilnaðarsinnum í Suðurríkjunum. Það er því ekki bara sonarmissirinn sem ásækir forsetann heldur finnur hann fyrir ríkri ábyrgð gagnvart öllum þeim ungu mönnum – eiginmönnum, sonum og bræðrum – sem heyja lífshættulega baráttu fyrir þeim málstað sem hann
98 | Askur
trúir á og stendur fyrir. Sálarstríð Lincolns snýst því um að hann þarf að axla ábyrgð og leita leiða til að sleppa takinu af minningunni um Willie svo hann geti tekið að sér föðurhlutverk heillar þjóðar sem á um sárt að binda og þarfnast leiðtoga og föðurímyndar. Það er erfitt að útskýra í stuttu máli hvernig skáldsaga Lincoln in the Bardo er. Tilraunakennd er hún vissulega þar sem mörkin milli sagnfræðilegrar túlkunar á sannleikanum og ótakmarkaðs ímyndunarafls skáldskaparins eru stundum óljós. Fyrir utan það er bókin virkilega erfið aflestrar og krefst óskiptar athygli lesandans. Oft er erfitt að henda reiður á hvað er að gerast þar sem form og stíll sögunnar er harla óvenjulegt, sögumennirnir eru margir, tala hver ofan í annan og eru þar að auki misáreiðanlegir. Frásögnin vinnur þó á þegar lesandinn hefur áttað sig á formgerð hennar og leyfir sér að fljóta áfram með textanum. Lincoln in the Bardo spyr líka ótal spurninga sem ná út fyrir hið sögulega viðfangsefni: Hvað er skáldsaga? Og hvert er hlutverk og ábyrgð höfundarins þegar hann þurrkar út mörk skáldskapar og sagnfræði? Lincoln in the Bardo er frumleg og öðruvísi draugasaga sem nær að vera bæði falleg og mannleg þrátt fyrir allan óhugnaðinn og sorgina sem tekist er á við; vel skrifað verk, fágað, fyndið og fullt af sóðalegum húmor. Texti eftir Jens Pétur Kjærnested
Wassily Kandinsky Wassily Kandinsky var rússneskur listamaður (1866–1944) þekktur fyrir að vera einn af frumkvöðlum abstrakt listar. Hann stofnaði samtökin Der Blaue Reiter (The Blue Rider) sem voru samtök listamanna í Þýskalandi og áttuAskur þau | 99 mikinn þátt í þróun abstrakt listar.
Munich Árið 1909 eignaðist Kandinsky, ásamt þýska listamanninum Gabriele Munter, hús í bænum Murnau í suðurhluta Bavaria héraðs. Hann skipti tíma sínum milli Murnau og Munich og byrjaði að þróaði list sína yfir í að vera eingöngu abstrakt verk. Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út árið 1914 flutti Kandinsky aftur til Rússlands og hafði huga á að aðlagast rússnesku lífi aftur og var hvattur til þess af hinni nýju sovésku stjórn sem var mikið í mun að vinna hylli Avant Garde listamanna. Árið 1918 fékk hann stöðu sem prófessor við Moscow Academy of Fine Arts og hjálpaði til við að koma á fót 22 listasöfnum. Árið 1920 var hann gerður að prófessor við háskólann í Moskvu. Á tíma sínum í Sovétríkjunum kom hann að stofnun ýmissa listastofnana og skóla en flutti aftur til Þýskalands árið 1921 eftir að Sovéska stjórnin tók sveigju frá Avant Garde list yfir til social realisma. Bauhaus Árið 1922 var honum boðin kennarastaða við Bauhaus í Weimar sem var nýstofnaður skóli í arkitektúr og hagnýtri list. Í fyrstu var kennsla hans í skólanum fyrirlestrar um form og námskeið
í litafræði, síðar stýrði hann einnig vinnustofu í vegglist. Þrátt fyrir þessi frekar hefðbundnu störf við skólann virðist hann hafa nýtt tíma sinn þar og umhverfi til að þróa hinn „rúmfræðilega abstract“ stíl áfram og árið 1925, þegar skólinn flutti frá Weimar til Dessau, fór hann að kenna „frjálsa“ listsköpun. Með fram því að kenna gat hann málað og verkin frá þessum tíma einkennast af hringjum og beinum línum og voru litir notaðir til að tjá einhverjar tilfinningar, t.d. var gulur notaður til að lýsa hljómi trompets og blár hljómi pípuorgels. Paris Árið 1933, þegar Bauhaus var lokað af nasistum, flutti Kandinsky til Parísar. Listsköpun hans var orðin samblanda frá tímum hans í Munich og Bauhaus og verkin „lífræn og rúmfræðileg“ og mikil ró yfir þeim. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar var mikið um efnisskort og þurfti Kandinsky að mála verk í minni sniðum. Hann lýsti þessum tíma í sinni listsköpun sem eins konar fögru ævintýri og lést hann á heimili sínu í úthverfi Parísar árið 1944. Texti eftir Torfa K. Ólafsson – heimild britanica.com Myndir wassily-kandinsky.org
Yellow-Red-Blue (1925). Verkinu er hægt að skipta í tvo hluta, vinstri hliðin hefur bjartari liti, grunnformin og beinar línur en hægri hliðin hefur dekkri liti og fer meira út í abstrakt form.
100 | Askur
Composition VIII (1923). Verkið e málað 10 árum efir Composition VII og er eðlileg þróun frá óreiðunni sem ríkir þar yfir í rúmfræðilegan takt sem hér er allt um liggjandi. On White II (1923). Kandinsky hlustaði oft á tónlist þegar hann málaði og má segja að þetta verk er hans innri vitund að túlka þá tónlist.
The Blue Rider (1903), jafnvel hans mikilvægasta verk. Hérna sýnir hann tengingu við impressíónista eins og Claude Monet og Vincent van Gogh.
Composition VII (1913). Með tillitit til stærðar, undirbúnings, flókin þemu og ekki síst hlutlæga myndræna einingu er litið á Composition VII sem eitt af hans meistaraverkum.
Askur | 101
Bauhaus Berlin Dessau Weimar 1919–1933
102 | Askur
Árið 1919 stofnaði þýski arkitektinn Walter Gropius skóla sem gekk undir heitinu Bauhaus (Staatliches Bauhaus) og var tilgangur skólans að sameina allar listgreinar undir sama þaki. Skólinn var einnig miðstöð fyrir framsækna listamenn en á meðal kennara við skólann voru Josef Albers, Wassily Kandinsky og Paul Klee. Weimar 1919–1925 Í Weimar lagði Gropius grundvöll fyrir framsæknum hugsjónum þess tíma. Samkvæmt stefnuskrá og áætlun hans átti list að þjóna félagslegu hlutverki og áhersla greina samþætt. Í Weimar var stofnuð vinnustofa í sviðslistum (stage workshop) og var henni ætlað að sameina myndlist og sviðslist með áherslu á faglega nálgun. Vinnustofan var mikilvægur þáttur í menntuninni og var henni stýrt af Lothar Schreyer árin 1921 til 1923 og af Oskar Schlemmer árin 1923 til 1925.
Berlin 1932–1933 Skólinn flutti til Berlínar og var til húsa í yfirgefinni símaverksmiðju. Vegna vaxandi þrýstings frá nasistum og niðurskurðar í fjármögnun var takmörkuð vinna unnin á þessum tíma. Í apríl árið 1933 var byggingunni lokað af lögreglu og sveitum nasista. Starfsemin var svo endanlega leyst upp í júlí árið 1933 en þrátt fyrir varanlega lokun skólans héldu áhrif og fagurfræði stefnunnar áfram og náðu hámarki með Bauhaus hreyfingunni (Bauhaus movment). Texti eftir Torfa K. Ólafsson – heimild mymodernmet.com Myndir google.com
Marina City turnarnir í Chicago hannaðiraf Bertrand Goldberg og og eru undir áhrifum af Bauhaus stefnunni
Dessau 1925–1932 Skólanum var lokað í Weimar af pólitískum ástæðum en það tókst að opna hann aftur í Dessau. Á tíma hans í Dessau var stefnan tekin á að hanna nýjar vörur til fjöldaframleiðslu og eru flestar þekktustu vörur og hönnun, sem komið hafa frá Bauhaus, frá þessum tíma. Það var líka í Dessau sem Gropius teiknaði og byggði hina frægu Bauhaus byggingu sem hýsti starfsemi skólans.
Bauhaus hreyfingin (Bauhaus movment) Stíllinn sem er einkennandi fyrir Bauhaus er samblanda af Arts and crafts og módernisma. Þannig að dæmigerð hönnun, hvort sem um ræðir málverk, arkitektúr eða innan hússhönnun, er með litlu skrauti og er áhersla á jafnvægi í formum og abstrakt lögun. Áhersla var á virkni og að koma listinni inn í hversdagslegt líf. Í dag má víða sjá áhrif Bauhaus í nútíma arkitektúr og húsgagnahönnun.
Wassily stóllinn sem var hannaður af Marcel Breuer.
Askur | 103
Súrdeig Uppskrift 1 brauð
2 brauð
3 brauð
Hveiti
500 g
1000 g
1500 g
Vatn
350 g
700 g
1050 g
Súr
100 g
200 g
300 g
Salt
10 g
20 g
30 g
Byrjum á því að gera súrinn tilbúinn fyrir deigið með því að blanda saman jöfnum hlutföllum af hveiti og volgu vatni saman við súr. Misjafnt er hvað það tekur súrinn langan tíma að vera tilbúinn en gott er að miða við að hann þrefaldi rúmmál sitt í krukkunni. Til að vera viss um að hann sé klár þá er hægt að nota „flotpróf“, þá er tekin um teskeið af súr og sett í volgt vatn. Ef hann flýtur er hann tilbúin, ef ekki þarf hann lengri tíma. Þegar súrinn er tilbúinn þá útbúum við deigið, blöndum saman í skál hveiti, súr og vatni (skiljum eftir um 50 g af vatninu) og hrærum þangað til allt er komið vel saman. Gott er að passa að ekkert þurrt hveiti sé eftir og þá deigið mótað í bolta. Við látum það standa í um 40 mínútur en þetta ferli er kallað autolyse. Næst er salti og 50 g af vatni, sem voru geymd áður, bætt við deigið og blandað vel saman.
svo ef það er heitt í eldhúsinu getur það tekið styttri tíma en maður verður að meta það hverju sinni. Gott er að nota ofninn til að stýra hitanum við hefunina, setja skálina með deiginu inn í ofn en ekki kveikja á ofninum nema kannski ofnljósinu. Með því næst jafn hiti meðan að hefun á sér stað. Næst er svo að „fletta og teygja“ deigið, þ.e. toga í eina hlið deigsins og því flett yfir deigið á sirka þrem til fjórum hliðum þess og móta deigið svo í kúlu og leyfa því að hvíla áfram í skálinni. Deigið getur verið klístrað og er gott að bleita hendina áður en flett og teygt er. Áætla má að fyrsta hefun taki um 4 klukkustundir og á þeim tíma má fletta og teygja deigið á 30 mín. fresti fyrstu 2 tímana en svo á klukkutíma fresti eftir það.
Næst tekur við fyrsta hefun en hún getur tekið mis langan tíma og ræðst af aðstæðum í eldhúsinu hverju sinni. Hitastigið hefur þar stórt hlutverk,
Þegar deigið er orðið mjúkt og loftkennt er næsta skref að móta það og undirbúa fyrir seinni hefun. Við tökum það úr skálinni og setjum á borðið með eins litlu hveiti og mögulegt er og látum það hvíla á borðinu í smá stund. Næst tökum við eina „fletta og teygja“ og látum það hvíla í um 30 mín. á borðinu. Því næst er kúla mótuð og sett í hef-
Allt komið saman og hefun hefst.
Flett og teygt nokkrum sinnum.
104 | Askur
unarkörfu, passa skal hér að leyfa „saumunum“ að snúa upp. Karfan er því næst sett í ísskápinn en seinni hefuninni á sér stað þar og tekur um 12–18 tíma. Gott er að leyfa því að vera yfir nótt og baka brauðið daginn eftir.
Ö rk in ð
hi
m
la
m
ga
kb
bó og
fa
sto
ds
an
iá n d nig á b a in ók ð e um ar í b vi erð kk o r u g ku jóð ið til ok b g v ar ð og i o urn vi d m al æk m fu ku ðh b i æ bó í v lu m rh f u sé i a ust gö líf. ð t n i ag n in ppl þjó me nýt rk Ö a u iða du eim já rr hl m H æ al Ko m þ sm p á m. efu up ku ð g vi
bó
Texti og myndir eftir Torfa K. Ólafsson
itu ve rð Va
Þegar komið er að því að baka brauðið er ofninn hitaður í 250°C. Deiginu hvolft á bökunarplötu eða í pott. Ef notaður er pottur er hann hafður inn í ofni svo að hann sé heitur þegar deiginu er hvolft í hann. Áður en deigið fer í ofninn er skorið í það með beittum hníf til að það springi fallega út við bakstur. Hér er um að gera að leyfa listrænum hæfileikum njóta sín við að mynsturgerð. Ef bakað er í potti er lokið haft á til að raki haldist á brauðinu og gefi því fallega skorpu. Gott er að miða við að baka brauðið í um 40 mín. eða þar til það hefur náð fallegum lit. Ef notaður er pottur þá baka fyrstu 25 mín. með lokinu á og svo síðustu 15 mín. án loksins.
Deigið komið í körfu, tilbúið til seinni hefunar.
Nýkomið úr ofni og bara njóta hér eftir.
| 105 Askur Örkin bókbandsstofa | Stakkholt 2a | 105 Reykjavík orkin.org | orkin@orkin.org | Sími 649 4948
106 | Askur
VILDÍS INGA Ég heiti Vildís Inga og er fædd og uppalin í Keflavík en bý núna í Hafnarfirði. Við erum fjögur á heimilinu en ásamt mér búa mamma, pabbi og kötturinn Pési. Ég á afmæli 4. maí og deili ég honum meðal annars með bresku leikkonunni Audrey Hepburn. Ég hef alltaf haft áhuga á öllu sem tengist list og útskrifaðist ég sem stúdent af myndlistarbraut úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2017. Í því námi komst ég aðeins betur að því hvað ég vildi og vildi ekki gera í tengslum við listnám. Ég fór í einn áfanga af grafískri hönnun og lærði aðeins á Adobe forritin og þar kviknaði áhuginn á því. Eftir nám fór ég að vinna í eitt og hálft ár en fann að ég þurfti að læra eitthvað meira í tengslum við grafík. Þegar ég skoðaði grafíska miðlun í Tækniskólanum tók ég ákvörðun um að þetta væri eitthvað sem ég þyrfti að prufa. Ég hef ekki séð eftir því og hef lært margt á þessum tveimur árum. Í framtíðinni myndi ég vilja fara í áframhaldandi nám eins og t.d. grafíska hönnun.
Askur | 107
Hrund ásamt nýju/gömlu Letterpress prentvélinni
Hrund Guðmundsdóttir Hrund Guðmundsdóttir er sjálfstætt starfandi hönnuður, myndskreytir og listamaður í Hveragerði. Hún útskrifaðist árið 1998 úr MHÍ, Myndlista- og handíðaskóli Íslands, sem varð svo hluti af LHÍ, Listaháskóla Íslands, við stofnun skólans árið 1999. Hrund hefur unnið sem hönnuður og hönnunarstjóri á Íslensku auglýsingastofunni og verið grafískur hönnuður á Brandenburg ásamt því að starfa sjálfstætt fyrir íslensk fyrirtæki og ensk en hún bjó í London á árunum 2001–2008.
Ég heiti Hrund Guðmundsdóttir og ég er sjálfstætt starfandi hönnuður, myndskreytir og listamaður í blómabænum Hveragerði. Ég er eigandi hönnunar- og útgáfufyrirtækisins Klettagjá ehf., ásamt því að reka bæjarfjölmiðilinn Krummann. Áður en ég flutti til Hveragerðis bjó ég í Englandi í u.þ.b. átta ár og var næstum sest þar að til frambúðar en sé í dag ekki eftir því að hafa flutt aftur til baka. Ég á engin tengsl við Hveragerði en eftir að búa í stórborg þá kom ekkert annað til greina en að búa á stað í nálægð við náttúruna. Ég á mann, tvö börn, kött og hænu og gæti ekki verið ánægðari með staðinn sem við búum á, en ég bý í Laufskógum, undir Hamrinum í Hveragerði og með hver í bakgarðinum mínum og þaðan get ég labbað, hjólað eða skíðað út í buskann.
108 | Askur
Ég held ég hafi alltaf haft áhuga á grafískri hönnun og þá sérstaklega auglýsingagerð. Mér fannst auglýsingarnar skemmtilegri en barnatíminn í gamla daga og mamma sagði að ég hefði aldrei misst af auglýsingunum. Ég elskaði að teikna stafi og útbúa letur og skrift og ég var alltaf teiknandi. Ásta frænka mín vann í Odda og skaffaði mér endalausan teiknipappír. Í grunnskóla var teikning og skrift það sem mér þótti skemmtilegast og verkefni þar sem ég var fengin til að gera plaköt, tilkynningar eða annað sem átti að hengja upp. Ég fór í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og var í raun alls ekki viss hvað ég vildi læra eða gera og var á náttúrufræðibraut (þá var engin listabraut þar) og hundleiddist öll stærðRassgat í ba l fræðin og eðlisfræðin og veit í raun ekki hvað ég var að pæla að hafa valið þetta. En ég hrúgaði á mig eins miklu og ég gat og síðustu tvær annirnar átti ég bara eftir stærðfræði og eitthvað smotterí en þá var loksins í boði
a
Myndskreytingar: Hrund Guðmundsdóttir
Segðu mér aðeins frá þér
Hvenær kviknaði áhuginn á grafískri hönnun?
myndlistaáfangi í fyrsta skipti, sem ég skráði mig í og þá hreinlega breyttist allt. Kennarinn Sigríður Sigurðardóttir hvatti mig virkilega til að sækja um í fornámið í MHÍ og hjálpaði mér að útbúa möppu til að senda inn. Fornámið var frábært. Þar fékk maður að kynnast allskonar listformi og valsa um milli allra deildanna og forvitnast. Ég ætlaði mér alltaf í grafíska hönnun en fékk líka mikla hvatningu til að sækja um í málun en ég kaus frekar hagnýta myndlist og komst inn í hönnunarnámið strax næsta vetur. Hversu lengi hefur þú starfað í geiranum? Vá ég þarf alveg að telja. 24 ár, ég er sem sagt orðin ein af þessum „gömlu“ í bransanum. Ég fékk sumarvinnu á Íslensku auglýsingastofunni árið 1997. Ári seinna útskrifaðist ég úr grafískri hönnun í MHÍ og hef starfað við það allar götur síðan. Fyrst á Íslensku auglýsingastofunni, síðan sem freelance í London og svo á Brandenburg og svo í mínu eigin fyrirtæki í Hveragerði.
Mig langar að vita aðeins um prentvélina sem þú varst að kaupa Þegar Covid-19 skall á minnkaði starfshlutfallið mikið hjá mér. Fjölmörg fyrirtæki sem ég vann fyrir drógu saman seglin og sum lokuðu alveg. Þarna fékk ég tíma til að endurskoða aðeins hvað mig langar virkilega að gera en það er að fara aftur að teikna og vinna meira í höndunum. Ég er búin að vinna það sem aðrir vilja og þurfa í yfir 20 ár og nú langar mig að búa til mitt eigið efni. Þegar ég bjó í London sá ég Heidelberg Letterpress prentvél auglýsta til sölu og langaði svo að eignast hana þar sem ég hef alltaf verið skotin í þessari gömlu prenttækni, þ.e.a.s. hæðarprentun. En við vorum í svo litlu húsnæði að ég hefði aldrei komið henni fyrir en sá samt alltaf eftir að hafa sleppt boðinu. Ég vann verðlaun í samkeppni sem stelpurnar í Reykjavík Letterpress stóðu fyrir fyrir nokkrum árum um hönnun á letterpress nafnspjaldi. Ég ákvað að fyrst ég gæti gert hvað sem er, hannaði ég nafnspjald fyrir köttinn minn.
VIÐ MÚRUM MEÐ ÞÉR Við tökum að okkur • • • • • •
Flotun Flísalagnir Múrklæðningar Steining Plötusteypa/vélslípun Mynstursteypa
Komdu í heimsókn til okkar og við hjálpum þér að finna lausnina
SJÁLFBÆRNI Múrverk á Facebook
Múrverk á Instagram
Sími 421 7897
Hafravellir 5, 221 Hafnarfjörður
Askur | 109
Þær hafa alltaf tekið svo vel á móti mér þegar ég hef heimsótt þær og eftir hverja heimsókn sá ég meira og meira eftir að hafa skilið vélina eftir í Englandi. Fyrir algjöra tilviljun sá ég þessa Heidelberg Letterpress vél auglýsta til sölu þar sem þurfti að losa húsnæði og var hún búin að standa lengi ónotuð. Ég stóðst ekki mátið og nú kúrir hún í bílskúrnum mínum, ég sem sagt pakkaði saman „heimagymminu“. Þessi vél er ótrúleg. Hún nýtist ekki bara sem prentvél heldur get ég stansað í henni ýmislegt s.s. pappaöskjur og allskonar form síðar meir. Núna vinn ég aðallega tækifæriskort í vélinni en er líka að útbúa listaverk sem verða seld í römmum í takmörkuðu upplagi. Ég teikna allt sjálf í skissubækur og svo á ipad og vinn filmurnar sjálf alltaf þegar ég get. Ég er svo í samvinnu við prentara sem er að kenna mér á vélina, tækni og viðhald, útbúa klisjur og þar með hjálpa mér að láta drauminn verða að veruleika um eigið mini-prentstúdíó. Hvernig er að vera einyrki? Það að vinna svona einn hefur bæði kosti og galla. Ég sakna mest að vera ekki í sama rými og annað skapandi fólk, velta á milli hugmyndum og fá lánuð augu og rýna verk hvert annars. Vinna
saman lúðra á ÍMARK og taka þátt í svoleiðis húllumhæ. En þegar maður vinnur svona einn verður maður líka dekraður. Það er hægt að skreppa í sund kl. 11 án þess að einhver skipti sér af því eða taka langa helgi eða vinna eldsnemma eða fram á nótt hvað sem hentar manni best. Maður er ekki fastur í sömu rútínu eins og svo margir aðrir og ef ástandið er þannig, valið sjálfur sín verkefni. Helsti ókosturinn er að þurfa að sjá um peningahliðina sem er svo allt annað en það sem skapandi heilabú vill fást við. Skrifa reikninga, skila vsk. skýrslum gera tilboð o.fl.
Ég stofnaði Klettagjá 2014 með vinkonu minni sem útgáfufyrirtæki fyrir bæjarblaðið Krummann í Hveragerði. Í dag á ég fyrirtækið með manninum mínum og hefur Krumminn hætt að koma út í prentformi en flýgur nú stafrænn. Ég vinn ýmiskonar grafíska hönnun og hef alveg síðan 2003, mest unnið fyrir lyfjafyrirtækin Alvogen, Actavis og Florealis. Umbúðir, bæklinga og hvað sem þarf að útbúa. Regluverkið í lyfjaiðnaðinum er mjög strangt og hentar mér vel að vinna svona nákvæmnisvinnu. Auglýsingavinnan er ekkert eins og í gamla daga þegar maður fékk góðan tíma í hugmyndavinnu, og svo í skissuvinnu og svo var farið í að taka myndir og vinna allt efnið og tók þetta dágóðan tíma, oft nokkrar vikur kannski. Í dag er hraðinn orðinn svo mikill að allt umhverfið er breytt. Heimurinn hefur minnkað svo með tilkomu netsins að nú situr maður í smábæ á Íslandi og vinnur fyrir fyrirtæki m.a. í Englandi, Grænlandi og Noregi. Verkefnin eru mjög fjölbreytt frá því að vera ofurnákvæmnis vinna í umbroti og umbúðahönnun yfir í að myndskreyta bjórmiða eða útbúa nýtt útlit á ísbúð. Ég hef ekki útbúið ferilskrá eða auglýst mig, verkefnin koma bara til mín einhvern veginn. Einhver segir einhverjum frá því sem ég hef hannað og er það besta leiðin. Hægt er að skoða þetta helsta sem ég hef verið að útbúa á www.klettagja.is.
110 | Askur
ANDY
Warhol Mynd: Vildís Inga
Uppruni Andy Andy Warhol byrjaði á því að læra auglýsingalist í „School of Fine Arts“ í Pittsburgh. Eftir að hann flutti til New York vann hann sem auglýsinga listamaður. Þessi vinna átti síðar eftir að hafa mikil áhrif á alla listræna vinnu hans. Þegar Warhol var að
byrja var hann tengdur við Nýraunsæisstefnuna, sem var hópur listamanna sem urðu þekktir í kringum 1960. Þeir byggðu listaverkin sín á hugmyndum Dadaista frá 1920, og túlkuðu verkin sín sem kaldhæðnislega andstæðu Abstrakt Expressjónisma og leit að róttækri nýrri byrjun. Eftir að hafa snúið sér að Popp-list voru hversdags efnishyggja og neytendamenningin þess virði að mála. Verk Warhol voru ýmist upphafning eða gagnrýni á amerísku dægurmenninguna, vörumerki hennar og fræga fólkinu. „Það besta við þetta land er að í Ameríku þróaðist sú hefð að þeir ríku kaupa í raun það sama og þeir fátæku. Þú til dæmis getur verið að horfa á sjónvarpið og séð kók, og þú veist að forsetinn drekkur kók, Liz Taylor drekkur kók, og þú getur einnig drukkið kók. Kók er bara kók, og engin upphæð getur gefið þér betra kók en það sem róninn á horninu er að drekka. Allt kókið er eins og allt kókið er gott.“ – Andy Warhol. Silkiþrykk Silkiþrykk er aðferðin sem Warhol er þekktastur fyrir. Hann gerði oftast margar útgáfur af sömu myndinni en engin þeirra varð eins vegna þess að hann vildi hafa þær ófullkomnar. Þegar silkiþrykk hans er skoðað þá sér maður að litirnir eru oft út fyrir „línurnar“ og hann notaði mikið af neon litum í myndirnar. Þegar hann gerði Elizabeth Taylor þá fór varaliturinn út fyrir varirnar, augnskugginn fór
Askur | 111
Texti: Vildís Inga Salbergsdóttir
Á sjöunda áratug voru Bandaríkin orðin mjög iðnaðar- og neytendavædd. Ungir listamenn svöruðu þessu með því að búa til alveg nýja listastefnu sem umturnaði myndlistarlífinu í New York og Los Angeles. 1963, eða þar um bil, varð til orðið „Popp-list“ eða „Pop Art“, fyrir þessa nýju listastefnu sem átti að endurspegla samtíma viðhorfið til lífsins. Orðið „Pop“ er stytting á orðinu , „popular“ eða „vinsæll“. Listamennirnir notuðu hversdagslega hluti og fræga fólkið sem innblástur og breyttu þeim í listaverk. Andy Warhol varð fljótt frægur og nokkurs konar miðpunktur í Popp-lista hreyfingunni. Alveg frá byrjun einkenndust listaverk hans af samsetningu kaldhæðni og hrifningu sem og fjöldaframleiðslu sem hafði verið talin ólistræn fram að þessu. Warhol gerði súpudósir og kók flöskur að stórstjörnum. Slíkt hið sama gerði hann við fræga fólkið úr kvikmyndabransanum, rokk tónlist og pólitík. Silkiþrykkin hans af Elvis Presley, Jacqueline Kennedy, Elizabeth Taylor, Marilyn Monroe og Mao Zedong urðu að ímynd tuttugustu aldar.
„Að þéna peninga er list og að vinna er list og góð viðskipti er besta listin“ Andy Warhol fyrir ofan augabrúnirnar og liturinn á hárinu er ekki alveg þekjandi á nokkrum stöðum. Þetta var hans leið til þess að fjöldaframleiða myndirnar án þess að það væri of tímafrekt. The Factory eða „Verksmiðjan“ byrjaði sem vinnustofa Warhol, sem var staður þar sem allir listamenn komu til þess að gera tilraunir í listum, m.a. tónlistarfólk. Mest bar þar á hljómsveitinni The Velvet Underground. Warhol kynnti hljómsveitina fyrir þýskfæddu söngkonunni Nico. Eftir það gaf hljómsveitin út plötu sem hét The Velvet Underground & Nico. Warhol gerði plötuumslagið sem var gulur banana límmiði sem á stóð „afhýðið rólega“. Undir límmiðanum var bleikleitur banani. Portrett verk Vinsæl portrett Warhol sýna Marilyn Monroe sem fagra ímynd af popp menningunni. Goðsögn kvikmyndastjörnunnar lifir enn þann dag í dag, ekki síst eftir þessa túlkun Warhol á henni. Hann notaði silkiþrykk til þess að útsetja myndina af stjörnunni í mismunandi stærðum, óteljandi litum og gerði jafnvel samsetningar með allt að 150 myndum. Með því að gera þetta á þennan hátt vann hann alltaf með sömu myndina af Monroe, stilla úr myndinni Niagara. Þegar Monroe lést 2. ágúst 1962, sýndi Warhol fram á sorg sína með því að framleiða meira en 20 silkiþrykk myndir af henni út það ár. Eitt mest framúrskarandi verk hans er Marilyn Diptych. Helmingarnir, annar prentaður á bjart neon, hinn í svörtu bleki, eiga að tákna líf og dauða með andstæðum sínum.
máluðum Campbell’s súpudósum, ein dós fyrir hverja bragðtegund. Myndirnar eru málaðar með akrýlmálningu, en mynstrið sem er neðarlega í kringum dósina er stimplað. Hann hefur gert fleiri verk tengd Campbell’s súpudósum, meðal annars með silkiþrykki, en þetta er fyrsta verkið með dósunum frægu. Warhol sagði að Campbell súpudósin hafi verið uppáhalds verkið sitt og að „Ég hefði átt að gera bara Campbell’s súpudósirnar og halda áfram að vinna með þær… vegna þess að allir gera hvort eð er bara eitt málverk.“ Verkin eftir Andy Warhol eru enn þann dag í dag þekkt um allan heim, og ættu flest allir að þekkja a.m.k. eitt verk. Þau eru alveg frá Marilyn Monroe og Elvis Presley að Campbell’s súpudósum og kók flöskum. Hann var og er enn þekktasti Popp listamaðurinn.
Tvöfaldi Elvis Elvis Presley var og er mjög þekkt tákn sjötta áratugarins. En í kringum sjöunda áratuginn var komin ný kynslóð af listafólki og var það farið að skyggja á frægð hans. En vegna silkiþrykkja Warhol hélt Elvis stöðu sinni sem ímynd þessa tíma. Myndina Double Elvis eða „Tvöfaldi Elvis“ gerði Warhol með því að láta sömu myndina skarast á silfurlituðum bakgrunni. Þetta átti að sýna Elvis á hreyfingu á fletinum eins og í kvikmynd. Campbell’s súpudósir Eitt vinsælasta verk Andy Warhol eru Campbell’s súpudósirnar. Verkið samanstendur af 32 handCa
m
112 | Askur
pb e ll
’s s
úpu
d ós
ogle : Go Mynd
Ásthildur (hægra megin) og Kristín (vinstra megin)
Ásthildur og Kristín Hvernig kynntust þið?
Við erum par um þrítugt (30 & 31) og erum búsettar í Reykjavík. Ég (Á) starfa sem stöðvarstjóri hjá N1 í Hafnarfirði. Ég er með BA-gráðu í mannfræði og MA-gráðu í mannauðsstjórnun. Ég er mikil útivistar- og íþróttamanneskja sem hefur áhuga á flestu. Ég (K) er sjálfstætt starfandi þýðandi. Ég er með BA-gráðu í spænsku og MA-gráðu í þýðingafræði. Ég hef áhuga á útivist, jóga og listum almennt. Við eigum það einnig sameiginlegt með mörgum að þykja óskaplega gaman af því að ferðast og höfum síðan við kynntumst ferðast mikið saman, bæði innanlands og utan. Einnig fluttum við saman til Barcelona þegar við höfðum verið saman í um fimm mánuði og bjuggum þar í átta mánuði. Það hitti svo vel á að við vorum báðar á síðustu önninni í okkar BAnámi og vildum báðar taka smá pásu til að leika okkur áður en við færum í áframhaldandi nám. Markmiðið var að finna vinnu þar úti sem gekk því miður ekki þar sem atvinnuleysi í Barcelona er og var á þessum tíma ansi mikið. Við höfðum fyrir vikið ágætan tíma til að túristast og gera skemmtilega hluti auk þess sem Ásthildur spilaði rugby og ég (K) stundaði magadans.
Við kynntumst fyrir rétt rúmum sex árum síðan í partýi hjá sameiginlegri vinkonu. Nokkrum vikum síðar hittumst við aftur fyrir tilviljun á grímuballi í Iðnó og þar byrjaði ástin að blómstra. Í kjölfarið bauð ég (Á) Kristínu á stefnumót og hlutirnir þróuðust út frá því. Hvenær tóku þið ákvörðun um að eignast barn? Við tókum lokaákvörðun á nýársdag 2018 en fyrir það höfðu barneignir verið í umræðunni um nokkurt skeið. Hvernig er ferlið búið að leggjast í ykkur? Ferlið lagðist í upphafi vel í okkur og fórum við inn í það fullar eftirvæntingar. Það hófst með viðtali í febrúar 2018, þar sem við tókum ákvörðun um að reyna glasameðferð og vorum þá settar á biðlista. Haustið 2018 fór Ásthildur í eggheimtu og við fengum í kjölfarið fimm fósturvísa. Einn af þeim var strax settur upp hjá mér (K) og hinir fóru í frysti. Þessi uppsetning leiddi til þungunar og við töldum okkur einar af þeim heppnu að þetta skyldi ganga upp í fyrstu tilraun. Raunin varð þó töluvert
Askur | 113
Myndskreytingar: Ásthildur og Kristín
Segið mér aðeins frá ykkur
önnur því þessi þungun endaði með fósturláti á fyrsta þriðjungi meðgöngu. Í kjölfarið fór Kristín í fjórar uppsetningar í við bót, þrjár þeirra leiddu til neikvæðs óléttuprófs og ein með öðru fósturláti á fyrsta þriðjungi. Síðasta neikvæða prófið kom í janúar 2020 og þá tókum við ákvörðun um að næst færi ég (Á) í tækni sæðingu. Fyrstu tvær tæknisæðingarnar enduðu með fósturláti á fyrsta þriðjungi. Þegar þarna var komið sögu vorum við orðnar ansi bugaðar og stefndum í raun á aðra glasafrjóvgun. Við áttum þó tvo sæðisskammta eftir og ákváðum að láta reyna á eina tæknisæðingu í viðbót, mun svartsýnni en oft áður. Okkur til mikillar ánægju gekk þessi tilraun upp og nú er ég komin átta mánuði á leið. Þetta ferli er því búið að vera ansi lærdómsríkt og strembið. Það er í raun búið að vera algjör rússíbanareið tilfinninga, sem einkennst hefur af endalausri bið. Í svona ferli er alltaf verið að bíða eftir einhverju; viðtali, uppsetningu, að fá að taka óléttupróf, að komast í snemmsónar o.s.frv. Að öll þessi bið endi svo með fósturláti getur verið ansi strembið. Því vorum við orðnar ansi vonlitlar eftir fjórða missinn, en erum ánægðar að hafa ekki gefist upp. Er einhver sérstök fræðsla eða ráðgjöf í boði fyrir verðandi samkynja foreldra? Nei, ekki svo við vitum til. Pör og einstaklingar sem fara í svona tæknifrjóvgunarferli hafa þó kost á því að fá viðtal við félagsráðgjafa, óháð kyn hneigð. Mögulega bjóða Samtökin 78 upp á slíkt, en við höfum ekki kynnt okkur það.
114 | Askur
Hafið þið fundið fyrir fordómum sem verðandi samkynja foreldrar? Nei, ekki beint. Við höfum þó orðið varar við alls konar litla hluti sem beinast ekki að okkur persónulega en minna mann á að okkar fjölskyldu form sé utan normsins. Þar á meðal má nefna foreldraskráningu í Þjóðskrá, en ég (K) þurfti að senda staðfestingu frá Livio til Þjóðskrár um að barnið hafi verið getið með gjafasæði og að við vorum saman í ferlinu. Þetta er eitthvað sem sís kynja karlmenn þurfa ekki að skila inn. Þeir eru sjálfkrafa skráðir foreldri barnsins síns eftir svona ferli, óháð því hvort sæðið hafi verið þeirra eða ekki. Þetta er svona vegna lagagerðar sem ýmsir hafa sett út á og hefur verið tekið upp á Alþingi oftar en einu sinni. Þetta er hrein og klár lagaleg mismunum sem á sér enga aðra skýringu en gamaldags fordómafull viðhorf þeirra sem ráða. Þrátt fyrir að margt heilbrigðisstarfsfólk sé vakandi fyrir ólíkum fjölskylduformum lentum við þó nokkrum sinnum í því að gert væri ráð fyrir því að við værum vinkonur eða systur þegar við komum t.d. í skoðanir þegar við vorum að missa fóstur. Þá var Kristín t.d. spurð hvort „þau“ væru líka að reyna heima þegar Ásthildur stóð við hlið hennar en margir virðast eiga erfitt með að hugsa um pör sem annað er sískynja karl og konu. Þegar við greinum frá því að við séum par verða margir mjög vandræðalegir. Einnig er fræðsluefni tengt meðgöngu oft á tíðum miðað að gagnkynja pörum og hinu gagnkynhneigða normi. Það er líka nánast undantekningarlaust gert ráð fyrir að við séum „samkynhneigt par” þegar við erum í raun „samkynja par”, en Kristín skilgreinir sig sem tvíkynhneigða. Í hugum margra virðist ekki vera annað til en gagnkynhneigð og samkynhneigð. Allt þetta er kannski ekki dæmi um beina eða meðvitaða fordóma en er vissulega dæmi um ákveðinn ósýnileika. Við höfum líka oft rekist á fordómafulla umræðu á netinu varðandi barneignir hinsegin fólks. Þar á meðal eru ýmsir sem telja að tvær konur geti ekki alið upp drengi, því þá vanti föðurímynd. Þótt svona umræða sé vissulega leiðinleg þá eru þetta vonandi viðhorf sem eru smátt og smátt að breytast með aukinni fræðslu og sýnileika. Þetta er eitthvað sem við sjálfar höfum þó engar
TVÖFÖLD MÓÐURÁST
RÁÐSTEFNA
Í HÖRPU 1.–2. maí
áhyggjur af og teljum kyn foreldra skipta engu máli. Mestu máli skiptir að börn eigi í það minnsta eitt foreldri eða umönnunaraðila sem veitir þeim þá skilyrðislausu ást, stuðning og öryggi sem þau þarfnast. Hversu hæfir umönnunaraðilar eru til að veita börnum það sem þau þarfnast kemur kyni ekki á neinn hátt við. Við höfum heyrt ýmislegt um að samkynja for eldrar hafi rekist á alls kyns hluti þegar það kemur að börnum þeirra. Þá er til að mynda algengt að ekki sé gert ráð fyrir öðru á eyðublöðum en að barn eigi einn föður og eina móður og þarf þá fólk sem hefur annars konar fjölskylduform að krassa yfir hálft eyðublaðið og fylla inn í. Einnig höfum við heyrt að í einhverjum tilfellum sé það foreldri sem ekki er líffræðilega skylt barninu eða börnunum álitið á einhvern hátt minna foreldri barnanna sinna en það sem er líffræðilega skylt þeim. Þetta eru þó allt hlutir sem við höfum ekki upplifað sjálfar en erum meðvitaðar um að við gætum lent í eftir að barnið fæðist.
Tvöföld móðurást er ráðstefna sem haldin er af samtökunum Samást og snýr hún að misrétti sem mæður í samkynja samböndum verða fyrir í samfélaginu. Tilgangur ráðstefnunnar er að sýna fram á misréttið sem mæður í samkynja samböndum verða fyrir og hvað væri hægt að gera til þess að koma í veg fyrir það.
Skannaðu kóðann fyrir frekari upplýsingar. Skráning á ráðstefnuna fer fram á samast.is
2 0 2 1 Askur | 115
Á tímamótum sem þessum er vert að líta yfir farinn veg. Við hófum öll nám á mismunandi tímum og af mismunandi ástæðum og er táknrænt að við séum öll í sömu sporum áður en leiðir skilja á ný. Í farteskinu höfum við þekkingu sem mun nýtast okkur á nýjum vettvangi og er það ómetanlegt veganesti. Við hópurinn höfum á að skipa þrettán ólík um einstaklingum með eitt og sama mark miðið. Nú þegar það er í höfn skilja leiðir. Við eigum það sameiginlegt að hafa stigið okkar fyrstu skref inn í hinn grafíska heim hér í Upplýsingatækniskólanum. Þessi hópur samanstendur af duglegu og hæfileikaríku fólki sem kveðjur með þakklæti og trega.
Við viljum byrja á að þakka kennurum okkar, þeim Bjargeyju, Brynhildi, Írisi, Helgu, Hildi, Jóni, Karli, Sófusi og Svanhvíti fyrir þá þraut seigju, þolinmæði, hjálpsemi og skilning sem þau hafa sýnt okkur á síðastliðnum tveimur árum. Undir þeirra handleiðslu náðum við góðum tökum á efninu og erum vel undirbúin fyrir það sem tekur við. Sérstakar þakkir fá Grafía, Litlaprent og Iðan sem fjármögnuðu útgáfu þessa tímarits. Að auki viljum við þakka Heiðu Norðkvist fyrir einstakar ljósmyndir sem hún tók fyrir sýn inguna okkar og Guðmundi Hilmari fyrir af not af rými fyrir myndatöku.
Við þökkum fyrir okkur og óskum öllum gleðilegs sumars! Árgangur vorannar 2021 Agnes Lilja Jóakimsdóttir | Aníta Ýr Þórðardóttir | Guðrún Kristín Vilhjálmsdóttir Heiða Norðkvist Halldórsdóttir | Ísabella Ævarsdóttir | Jana Katrín Magnúsdóttir Krista Einarsdóttir | Kristín Sif Pálsdóttir | Ólöf Rut Gísladóttir | Sara Hanh Hong Bui Sigurður Einar Jónsson | Torfi Kristinn Ólafsson | Vildís Inga Salbergsdóttir
116 | Askur
Þarftu að prenta?
Litlaprent býður upp á alhliða umhverfisvæna prentþjónustu fyrir öll tilefni.
Opið mánudaga til fimmtudaga: 08:00–16.00 Opið föstudaga: 08:00−14:30 Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi litlaprent@litlaprent.is 540 1800
Askur | C
Góð kjör − betri framtíð Kjaramál • Fræðslusjóðir • Námsstyrkir Sjúkrasjóðir • Orlofshús • Tómstundanám Ferðastyrkir • Endurmenntun • Lífeyrismál
Kynntu þér réttindi þín
www.grafia.is
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík − 540 0100 − grafia@grafia.is
D | Askur
GRAFÍA er aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands − rafis.is