Skip to main content

ASKUR - Haust 2021

Page 1

G r a f í s k miðlun

2 . t b l. 1 0 . á r g . 2 0 2 1


Símenntun frá fyrsta degi...

IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í: • Bílgreinum • Bygginga- og mannvirkjagreinum • Málm- og véltæknigreinum • Prenttæknigreinum • Matvæla- og veitingagreinum

HÖNNUN: EINAR KARL PÉTURSSON

Fjarnám er í boði á öllum námskeiðum þar sem verklegrar kennslu er ekki krafist og boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval vefnámskeiða sem styrkja fólk í starfi.

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík | Sími 590 6400 | Netfang idan@idan.is | Veffang www.idan.is


Leiðari Velkomnir kæru lesendur á fyrstu síðuna í lokaverk­ efninu okkar. Það mætti segja að þetta sé bæði byrjunin á endanum en einnig endirinn á byrjuninni. Hópurinn í grafískri miðlun er á tímamótum en það styttist í útskrift okkar. Námið hefur verið margþætt, krefjandi og skemmtilegt. Við skiljumst að og hefjum nú nýtt ferðalag.

Umbrot og hönnun Nemendur haustannar 2021 Samsetning tímarits Ívar Daníel Karlsson Laura Daniela Cano Hurtado Forsíða

Tímaritið Askur er samstarfsverkefni allra nem­ enda sem eru að útskrifast úr grafískri miðlun í Upplýsingatækniskólanum en þar mætast ólíkir persónuleikar, áhugamál og hugmyndir sem mynda eina heild. Í blaðinu okkar fáið þið að sjá bæði hver við erum sem einstaklingar og einnig sem hópur. Undir leiðsögn frábæru kennaranna okkar höfum við öðlast þá þekkingu og kunnáttu sem nauðsyn­ leg er til að vaxa og dafna sem grafískir miðlarar. Vonandi skilar það sér í þessu sameiginlega tímariti okkar.

Aldís Eva Geirharðsdóttir Nemendamyndir Þóra Margrét Friðriksdóttir Andrea Símonardóttir Unnur Hrönn Valdimarsdóttir Auglýsing – Iðan Einar Karl Pétursson Auglýsing – Litlaprent Laura Daniela Cano Hurtado

Öll höfum við þurft að laga okkur að óvenjulegum aðstæðum sökum heimsfaraldursins.

Auglýsing – Grafía Laura Daniela Cano Hurtado

Það getur verið erfitt að kveðja, en þessi endir er upphafið að nýrri byrjun.

Útgefandi Tækniskólinn

Kærar þakkir. Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur í meginmáli Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Pappír UPM DiGi 130 g/m2 UPM DiGi 250 g/m2


Efnisyfirlit Aldís

4 Einar Karl

14 Eydís

24


Ívar

34 Kolbrún

44 Daniela

54 Snæbjörn

64


Aldís Eva Geirharðsdóttir Ég heiti Aldís Eva Geirharðsdóttir, fædd þann 21. febrúar árið 1999 og uppalin í Kópavogi. Frá unga aldri hef ég haft mikinn áhuga á öllu því sem tengist list og sköpun, allur frítíminn fór í föndur og list­ sköpun. Eftir grunnskóla lá leiðin mín í Tækniskól­ ann þar sem ég útskrifast af hönnunar­ og nýsköp­ unarbraut sem stúdent. Ég fór í þetta nám með þau áform að verða arkitekt, en þegar náminu lauk var ástríðan fyrir grafískri hönnun búin að taka yfir. Nú er ég stödd á loka önninni minni í grafískri miðlun og er það búið að vera skemmtilegt ævintýri.

Eftir nám í grafískri miðlun opnast nýjar dyr sem bjóða upp á endalausa möguleika, hvort sem það er áframhaldandi nám eða atvinna. Námið er vítt og fjölbreytt og er góður undirbúningur fyrir allt það sem þú tekur þér fyrir hendur. Ég ákvað að taka skrefið og prófa þetta nám sem ég sé alls ekki eftir og er spennt að sjá hvað framtíðin hefur að bjóða. Takk fyrir mig.


Mynd: Sóley Organics

Sóley organics

Texti: Aldís Eva Geirharðsdóttir

Ísland er lifandi safn sköpunar, staður þar sem fortíð og nútíð vinna saman að varðveislu þess sem var og sköpun þess sem mun verða. Eyja þar sem hverir og eldfjöll gjósa í návígi hrjóstdrugra fjalla og tignarlegra jökla sem afmarka stórbrotið líferni sem hvergi finnast annars staðar. Í lok langra vetra, djúpt í jörðinni safna jurtirnar krafti til að blómstra eftir að hafa staðið af sér veturinn. Undir björtum sumarhimni vakna þær til lífsins og eyjan verður að náttúrulegri paradís. Sóley Organics var stofnað 2007, en saga þeirra nær reyndar mun lengra aftur en það. Konan að baki Sóley húðsnyrtivörum er Sóley Elíasdóttir, en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækningajurtum, því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna og nokkrir þeirra hafa orðið meðal þekktustu alþýðuhetja á Íslandi. Það kom því engum á óvart að Sóley skyldi taka upp þráðinn frá langalangömmu sinni, Grasaþórunni og hefja framleiðslu græðismyrsla eftir aldagamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu Sóleyjar. Grasaþórunn var mikill kvenskörungur og er talin hafa verið ein fyrsta konan á Íslandi til að klæðast buxum.

6 | ASKUR

„Our ethos is the same today as when my ancestors explored the healing properties of herbs: what you put on your skin is food for your skin“ - Sóley Elíasdóttir Fyrsta vara Sóleyjar var Græðir smyrsl sem var framleitt eftir uppskrift langalangafa hennar Erlings. Erlingur lærði grasalækningar af móður sinni og er talin hafa bjargað 12 börnum sínum frá spænsku veikinni. Sóley vill viðhalda anda Þórunnar og Erlings með því að halda áfram visku þeirra um grasalækningar með því að framleiða snyrtivörur sem eru kraftmiklar en nógu mildar til að skaða hvorki mann né náttúru. Þú gætir jafnvel borðað vörurnar okkar, en við lofum því ekki að þær bragðist vel. Við notum einungis innihaldsefni sem eru samþykkt af Ecocert (stærstu vottunarstofu Evrópu) og hafa öll náttúrulega eða lífræna vottun. Virku efnin eru jurtirnar sem eru handtíndar í íslenskri náttúru af Sóleyju, fjölskyldu hennar og starfsmönnum.


Vinsælar vörur Sóley Organics framleiðir íslenskar hágæða húðsnyrtivörur sem byggja á aldagamalli hefð. Vörurnar eru unnar með aðeins bestu fáanlegum hráefnum, villtum íslenskum jurtum og tæru íslensku vatni. Allar vörurnar þeirra innihalda handtíndar, lífrænt vottaðar íslenskar jurtir sem gerir virkni þeirra einstaka því þau trúa því heilshugar að notkun náttúrulegra snyrtivara stuðli að betri vellíðan fyrir þig og jörðina okkar. Vörurnar þeirra eru allar framleiddar á Íslandi með endurnýtanlegri orku og allar þeirra umbúðir er hægt að endurnýta eða endurvinna. Einnig eru þau farin að bjóða upp á áfyllingar á umbúðirnar þegar varan klárast á lægra verði. Þær vörur sem ekki er hægt að bjóða upp á í áfyllingum fást með 20% afslætti í verslunum þeirra ef umbúðunum er skilað. Markmið Sóley Organics er að allir noti húð- og hárvörur sem eru góðar fyrir þig og umhverfið. Hrein vellíðan, hrein jörð.

Dögg andlitsraki

Fresk hreinsifroða

EF EKKI VIÐ

HVER ÞÁ? RÁÐSTEFNA GEGN NETEINELTI Í HÖRPU 1.–2. DESEMBER

Miðasala er hafin inn á tix.is og í appinu okkar Skannaðu hér fyrir appið

Græðir handáburður

Blær sjampó og hárnæring

Þann 1. desember næstkomandi verður ráðstefnan Ef ekki við, hver þá? sett hér á landi í fyrsta sinn. Ráðstefnan er haldin til þess að fræða tugþúsundir manna um einelti á netinu auk samvinnu við félagsleg fjölmiðlafyrirtæki og önnur yfirvöld um tæknilausnir. Dagskrá ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og koma fram ellefu fyrirlesarar sem allir hafa víðtæka þekkingu á sviði neteineltis.


SVEFN Þegar við sofum förum við í sérstakt ástand milli meðvitundar og meðvitundarleysis þar sem líkaminn hvílist en heilinn er áfram virkur. Þetta ástand er nauðsynlegt fyrir tiltekna ferla sem eiga sér aðeins stað við þessar aðstæður. Um er að ræða ákveðið uppbyggingarstarf þar sem skaðleg eiturefni eru fjarlægð, þekking og minni samþætt, ónæmiskerfið styrkt, jafnvægi komið á tilfinningalegt ástand og gert við frumur líkamans. Þessi endurnýjun er nauðsynleg fyrir fulla virkni okkar og þegar við sofum vel batnar andleg, vitsmunaleg og líkamleg heilsa okkar til muna. Í bókinni The Science of Sleep talar höfundurinn Heather Darwall-Smith um að margt sé enn á huldu um svefninn en sífellt komi betur í ljós hve mikilvægur hann sé fyrir vellíðan okkar, heilsu og hamingju. Til þess að eiga gott líf verðum við að taka svefninn jafn alvarlega eins og mataræði okkar og hreyfingu. Svefnherbergið sem griðastaður Til að ná sem bestum svefni og auka líkur á að fara í rúmið á skynsamlegum tíma er mikilvægt að líta á svefnherbergið sem eftirsóknarvert athvarf og rúmið sem notalegan og öruggan griðastað til hvíldar og endurnæringar. Svefn er skynjunarferli og við vitum að þættir eins og hljóð, lýsing og hitastig hafa sitt að segja. Við getum gert ýmislegt til að gera svefnherbergið

meira aðlaðandi svo við náum að sofna fyrr og sofa að mestu án truflunar. Hvernig gera má svefnherbergið meira aðlaðandi: Taka til. Það er erfitt að slaka á ef óreiða er í herberginu, stöðug áminning um ókláruð verkefni. Velja þægilegan sængurfatnað. Þér má ekki vera of heitt þegar þú ert að reyna að sofna og ekki svo kalt að þú vaknir upp um miðja nótt. Ilmur. Rætt hefur verið um að lavender ilmur gæti virkað róandi. Sumir vilja þó enga lykt í herberginu. Lýsing. Best er að draga úr lýsingu þegar kvölda tekur til að auka svefnhöfgann. Það á einnig við um svefnherbergið. Hlusta frekar en horfa á skjá. Það er meira slakandi að hlusta á sögu, hlaðvarp eða náttúruhljóð en horfa á skjái. Sömuleiðis er betra að lesa prentaða bók en texta af skjá. Vakna með dagsbirtunni. Ef erfitt er að koma sér af stað á morgnana gæti verið reynandi að hafa dregið frá í svefnherberginu svo fólk vakni með dagsbirtunni. Búa um rúmið. Það virðist vera góð venja að taka til í herberginu og búa um rúmið strax eftir að farið er á fætur. Það setur ákveðin skil í daginn og gerir herbergið meira aðlaðandi fyrir næsta svefn. - Ráð úr bókinni The Science of Sleep.

l

l

l

l

Sjón

Snerting

Hljóð

Lykt

Er svefnherbergið aðlaðandi

Það skiptir máli að sængur-

Meiri líkur eru á góðum

Lykt tengist tilfinningum og

og er freistandi að skríða

föt og náttföt séu þægi-

nætursvefni ef þögn er í

getur haft áhrif á svefn. Til

upp í rúmið? Ef ekki er tíma-

leg viðkomu. Húðin er jú

svefnherberginu. Fólk er

dæmis getur óþægileg lykt

bært að gera breytingar. Það

stærsta líffærið.

þó misnæmt fyrir hljóðum

úr þvottakörfu eða matar-

þarf ekki að kosta mikið að

og sumir eiga erfitt með að

lykt haft neikvæð áhrif á

flikka aðeins upp á herberg-

sofna í algjörri þögn. Finndu

svefninn.

ið og rúmið.

hvað hentar þér best og gerðu ráðstafanir.

8 | ASKUR


Texti: Velvirk

Svefn, nám og hæfni Svefninn er nauðsynlegur til að endurnæra okkur og gefa líkamanum hvíld. Of lítill svefn getur valdið almennri vanlíðan, þreytu og streitu og hefur áhrif á einbeitingu, minni og rökhugsun. Margt hefur verið skrifað um mikilvægi svefnsins í tengslum við streitu og andlega líðan, en svefnleysi getur líka haft neikvæð áhrif á ónæmiskerfi okkar og nær alla aðra líkamsstarfsemi. Af hverju eru svona margir dauðþreyttir á morgnana og eiga erfitt með að vakna? Hvað hefur breyst á síðustu árum og áratugum sem truflar svefnvenjur okkar? Taugalífeðlisfræðingurinn Matthew Walker nefnir nokkur atriði sem hafa breyst í bók sinni „Why we sleep“ (2017). Hann talar um að við höfum flest greiðan aðgang að spennandi afþreyingarefni í ýmsu formi alla nóttina, við erum með raflýsingu og LED ljós, jafnt hitastig allan sólarhringinn og drekkum stundum of mikið af koffíndrykkjum yfir daginn eða áfengi á kvöldin. Góður svefn hefur margvísleg áhrif á virkni

heilans og öll svefnstig hafa sínu hlutverki að gegna. Áhrif svefns á minnið eru sérlega augljós og hafa verið mikið rannsökuð. Svefninn hjálpar okkur að læra og að taka rökréttar ákvarðanir. Andleg heilsa okkar verður almennt betri ef við sofum vel, við erum ferskari, reiðubúnari til að takast á við verkefni dagsins og erum meira skapandi. Við þekkjum flest að það borgar sig oft að „sofa á“ vandamálum til að eiga auðveldara með að leysa þau. Svefninn hjálpar ónæmiskerfinu við að vinna á sýkingum og takast á við ýmis konar veikindi. Hann hefur jákvæð áhrif á efnaskiptin, temprar matarlyst og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru. Hann aðstoðar við að halda blóðþrýstingi í skefjum og stuðlar að heilbrigðara hjarta- og æðakerfi. Í stuttu máli þá bætum við lífsgæði og lengjum lífið með góðum svefni. Þekkt er að hreyfing, svefn og mataræði skipta miklu máli fyrir heilsu okkar en Walker telur að svefninn sé mikilvægastur af þessu þrennu. Að missa svefn eina nótt hefur mun meiri andleg og

CALM Calm: Sleep & meditation er eitt af bestu svefn öppum á markaðnum í dag. Calm vann fyrsta sæti fyrir besta appið árið 2017 og 18. Einnig hefur það fengið titilinn að vera „hamingjusamasta app í heiminum“. Calm er fullkomið app fyrir byrjendur sem vilja stíga sín fyrstu skref í slökun og hugleiðslu en einnig fyrir lengra komna. Appið býður upp á leiðbeinandi hugleiðslu sem spannar allt að 3 til 25 mínútur, svo þú getur valið þinn fullkomna tíma sem kemst fyrir í þinni áætlun. Appið býður einnig upp á kvöldsögur, öndunar og teygjuæfingar og róandi tónlist. Bestu sálfræðingar og geðheilsu sérfræðingar mæla með notkun appsins Calm. Hægt er að nálgast meira um appið á calm.com

ASKUR | 9


líkamleg áhrif á líkamann en að fasta eða hreyfa sig ekkert í einn dag. Því er oft haldið fram að miðaldra og eldra fólk þurfi minni svefn en þeir sem yngri eru en það er ekki á rökum reist segir Walker. Eldra fólk sefur þó oftast minna en það myndi helst vilja og þarf á að halda. Það vaknar oftar á nóttunni, stundum vegna sjúkdóma og lyfja sem tekin eru, eða vegna tíðari salernisferða. Djúpsvefn minnkar með aldrinum en hann er mikilvægur fyrir nám og minni. Hann tengist þeim svæðum heilans sem hrörna einna fyrst þegar við eldumst. Magn svefnhormónsins melatóníns og styrkur dægursveiflunnar minnkar einnig með tímanum.

„Góður svefn bætir heilsu og eykur lífsgæði“ - Heilsuborg Walker heldur því fram að ýmis heilsutengd vandamál sem eldra fólk glímir við geti orsakast af svefnleysi, en það kemur því miður ekki oft til tals í læknisheimsóknum og fæstir tengja versnandi heilsu við lakari svefn þrátt fyrir þekkt orsakatengsl þarna á milli. Nám og hæfni

Svefnherbergið

10 | ASKUR

Mynd: Unsplash

Við þekkjum flest hve mikilvægt er að ná góðum nætursvefni áður en farið er í próf. Svefninn hjálpar okkur að festa upplýsingar í minni og stundum náum við líka að kalla fram efni sem við héldum að við værum búin að gleyma. Færri vita að góður svefn fyrir próflesturinn sjálfan og annað nám hefur einnig mikið að segja og hressir upp á hæfni okkar til að festa upplýsingar í minni. Svefninn gegnir einnig hlutverki við að gleyma úreltu efni, en með því móti eigum við auðveldara með að kalla fram upplýsingar sem við þurfum á að halda. Walker ræðir áhugaverðar rannsóknir um áhrif svefns á hæfni fólks. Svo virðist sem nægur svefn hjálpi fólki að bæta ýmis konar hæfni á meðan það sefur. Hann fékk áhuga á að rannsaka þetta þegar píanóleikari sagði frá því að hann hafi loks náð valdi á erfiðum kafla í verki eftir góðan nætursvefn. Hann náði sem sagt að bæta sig og ná erfiðasta hjallanum með því að sofa.


Góðar svefnvenjur Regla á svefntíma

Regluleg hreyfing á daginn

Mikilvægt er að fara að sofa á svipuðum tíma og vakna á svipuðum tíma. Líka á frídögum og um helgar.

Dagleg hreyfing bætir gæði svefns auk þess að efla heilsuna almennt. Hreyfing vinnur gegn áhrifum streitu á miðtaugakerfið. Mikil átök stuttu fyrir svefn eru þó ekki svefnvæn.

Forðumst síðdegislúra Hjálpum líkamsklukkunni að stilla sig rétt og tökum ekki blund síðdegis. Þeir sem sofa ekki vel um nætur þurfa til dæmis að gæta þess að falla ekki í þá algengu gryfju að dotta yfir sjónvarpinu á kvöldin.

Rólegheit í aðdraganda svefns Mikilvægt er að aðdragandi svefnsins sé rólegur og ávallt með svipuðum hætti. Hver og einn þarf að finna hvaða venjur henta best. Mikið áreiti frá ljósi svo sem tölvu og sjónvarpi er ekki hentugt stuttu fyrir svefninn.

Svefnvænt umhverfi Svefnherbergið þarf að vera hæfilega dimmt, hæfilega svalt og rúmið þægilegt. Stemma þarf stigu við hávaða eða annarri truflun úr umhverfinu. Sjónvarp, tölvur eða handavinna í svefnherbergi er ekki til þess fallið að bæta svefn og gott er að klukkan sé ekki áberandi í svefnherbergi.

Forðumst kaffi og aðra koffíndrykki Koffín er örvandi efni sem er lengi að brotna niður. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir svefntruflun af völdum koffíns verða því að gæta þess að innbyrða það ekki síðla dags og jafnvel ekki eftir kl. 14 á daginn.

Áfengi og reykingar trufla svefn Áfengi er deyfilyf og því finna margir slökunar áhrif þegar þeir nota áfengi og telja það geta hjálpað til við að sofna. Niðurbrotsefni áfengis valda hins vegar streitu áhrifum í líkamanum og trufla svefn. Heildaráhrifin eru því svefntruflandi og forðast ætti notkun þess. Fráhvarf vegna reykinga truflar svefn.

Reglulegar máltíðir Förum hæfilega södd að sofa og forðumst þunga máltíð fyrir svefn. Létt máltíð fyrir svefn getur hjálpað við að sofna. - Ráðin voru tekin af vef Heilsuborgar.

Förum fram úr ef við getum ekki sofið Forðumst mikið ljósáreiti, höldum umhverfi rólegu, leggjum kapal, ráðum krossgátu eða annað sem dreifir huganum og förum aftur upp í rúm þegar okkur syfjar.

Lærum slökun Slökun af ýmsum toga getur bæði hjálpað okkur að sofna á kvöldin og auðveldað okkur að sofna aftur ef við vöknum upp um nætur. Streituhormónin eru fljót að trufla getu okkar til að sofna ef við látum pirringinn yfir svefnleysinu ná tökum á okkur.

Mynd: Unsplash


Mynd: Pétur Thomsen

Pétur Thomsen Pétur Thomsen er íslenskur ljósmyndari, fæddur í Reykjavík árið 1973. Hann býr og starfar á Suðurlandi. Árið 2004 hlaut hann MFA gráðu í ljósmyndun frá École Nationale Supérieur de la Photographie í Arles Frakklandi.

Texti: Aldís Eva Geirharðsdóttir

Pétur er best þekktur fyrir verk sín á samspili umhverfis og manns og hefur unnið mörg verðlaun fyrir þau, meðal annars sýningin hans Imported Landscape (Innflutt landslag) sem var valin sýning ársins 2010 á Íslandi. Hann hlaut alþjóðleg unglistar verðlaun, LVMH-Louis Vuitton Moët Hennessy árið 2004. Ári síðar var hann valinn einn af „50 áhugaverðustu ljósmyndurum framtíðarinnar“ og átti verk á samnefndri sýningu sem sett var upp í Sviss en fór svo víðar um heiminn. Pétur Thomsen einbeitir sér að truflun náttúrunnar, hann beinir sjónum sínum að breytileika landslagsins og hvernig umhverfið breytist fyrir tilstuðlan mannsins. Stíl hans er hægt að sjá á ljósmyndum hans af vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar í seríu sinni Imported Landscape (Innfluttu landslagi), og í verkum hans Umhverfing og Ásfjall

12 | ASKUR

Helsta einkenni Péturs er náttúran og sýnir sjónarhorn hans samhengi byggingarlistar, skipulags og náttúru. Hann fjallar um það hvernig maðurinn veldur breytingum á umhverfi sínu með ýmsum framkvæmdum; gróðursetningu, skurðgreftri og byggingum. Landið sem tekur breytingum fyrir tilstuðlan mannsins sem sífellt mótar og breytir náttúru í manngert umhverfi. Ljósmyndir hans eru í senn ádeila á þá meðferð á landinu og skrásetning slíkra framkvæmda. FÍSL og Tipf Pétur er einn af stofnendum og fyrrverandi formaður FÍSL – Félag íslenskra samtímaljósmyndara. Félagið var stofnað árið 2007 og er vettvangur fyrir skapandi ljósmyndun. Síðan stofnunar hafa meðlimir þess tekið þátt í fjölmörgum sýningum og viðburðum. Pétur er einnig einn af stofnendum og meðstjórnandi TIPF – Íslensku ljósmynda hátíðarinnar. Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms.


Imported Landscape Árið 2003 hófu Rafmagnsveitur Íslands byggingu Kárahnjúkavirkjunar á Austurlandi. Verkefnið samanstóð af þremur stíflum, þar af ein sú hæsta í Evrópu. Það hafa verið miklar umræður um þetta verkefni. Umhverfisverndarsinnar börðust fyrir varðveislu villtra náttúru, meðan þeir sem studdu verkefnið tala um nauðsyn þess að nota orkuna sem náttúran hefur upp á að bjóða og nýta krafta náttúrunnar. Pétur fann fyrir mikilli þörf á að taka þátt í þessum umræðum. Hann hafði unnið í álveri áður en hann hóf ljósmynda feril sinn. Honum fannst besta leiðin fyrir sig að taka þátt í þessu ferli vera að fylgja landinu í umbreytingu þess og veita því virðingu sína með því að ljósmynda það á fallegan hátt. Frá upphafi verkefnisins árið 2003 hefur hann farið reglulega á framkvæmdasvæðið, tekið landslagsmyndir og sýnt Íslenskt nútíma landslag.

Myndir: Pétur Thomsen

ASKUR | 13


Einar Karl Pétursson Ég heiti Einar Karl Pétursson og ég bý í Kópavogi. Ásamt því að vera í grafískri miðlun og allt sem tengist skóla þá hef ég alltaf reynt að eltast við listir hvort sem það er kvikmyndagerð eða tónlist eða eitthvað annað. Ég hef mest nýlega verið að skapa í bæði þessum listgreinum en hef kannski meira sótt í það að hlusta á tónlist. Frá því ég byrjaði í þessu námi í byrjun árs þá hef ég alltaf haft einhverja tónlist í gangi þegar ég er að vinna í einhverju verkefni. Ég hef fengið mikinn möguleika á að finna mér nýja tónlist sem ég gæti haft áhuga á og einnig fylgst með tónlistinni sem er að koma út í kringum mig. Mig langar einmitt mjög mikið að fjalla stutt um allar helstu íslensku plöturnar og lögin sem hafa komið út á árinu í gras­

rótinni, eða allavega þær sem ég hlustaði á. Gras­ rótarsenan í Reykjavík, sem ég fjalla aðeins meir um hér næst, er eitthvað sem ég hef haft mikinn áhuga á undanfarið út af tónleikahaldi og plötuútgáfum sem eru að birtast í mínum sjóndeildarhring ef svo má segja. Mér finnst líka einstaklingar mjög áhugaverðir svo ég laðast að persónulegri sköpun lista sem má kenna við grasrótina. En allt þetta verður fjallað um í þessu tímariti og þótt þetta sé jú í rauninni umbrots og hönnunar braut sem ég er að læra hjá þá setti ég kannski einum of mikinn metnað í textann. En að skrifa er einnig eitthvað sem ég hef tekið eftir að ég farinn að fá mun meiri áhuga fyrir. En engu að síður, njótið.


Hátíðni 2021. Ljósmynd: Brynjar Leó Hreiðarsson

Grasrótarsena Reykjavíkur Tónlistarsenan í Reykjavík er síbreytileg og tekur á sig nýja mynd við hvert tækifæri. Í gegnum árin hafa tónlistarmenn blómstrað í fagi sínu og ganga áhrif þeirra langt út fyrir borgarmörkin. Tónlistarmenn líkt og Bubbi, Björk, Sigur Rós og Mezzoforte, eru allt nöfn sem hafa látið til sín taka á alþjóðlegum vettvangi en spretta upprunalega úr grasrótinni. En hvaða nöfn munu lifa áfram í þeim hópi sem er starfandi í jarðveginum í dag. Hverjir munu falla í algleymi og hverjir munu blómstra? Það eru mikil tækifæri fyrir útrás hljómsveita og tónlistarfólks sem starfa í grasrótinni í dag en ekki endilega víst að þrátt fyrir áhrifin sem þau eru að hafa á senuna í dag að þau muni taka skrefið út. En þó er mikilvægt að draga þau fram í sviðsljósið til þess að minna á áhrifin og hvaðan við komum.

verið að eiga sér stað hér á höfuðborgarsvæðinu. Svona listrænar grasrótarhreyfingar eru oftast að vinna að því markmiði að búa til vettvang fyrir sjálfstætt listafólk til að skapa list án mikils fjármagns. Post-dreifing // DIT hugmyndafræðin

„Post-dreifing“ (óháð blaðadreifingarfyrirtækinu Póstdreifing) er hópur af ólíku listafólki sem starfar eftir DIT hugmyndafræðinni sem myndi útleggjast sem ‘Gerum það saman’. Áherslan á samvinnu hefur ollið því að á ekki nema fjórum árum hafa þau haft mun meiri áhrif á tónlistarsenu Reykjavíkur en þau hefðu annars náð hvert í sínu horni eins og venjan hefur verið. Hópurinn hefur þannig staðið að baki fjölda tónleika og viðburða þar sem hugmyndafræði samvinnunnar hefur látið ljós sitt skína. Stærstu viðburðir sem PostHvað er grasrót? dreifing hefur staðið að eru Hátíðni, tónlistarhátíð í litlu þorpi á norðurlandi sem heitir En hvað er grasrót? Grasrótarhreyfing er eftir skilgreiningu, félagsskapur Borðeyri og Big party post club sem almennra einstaklinga sem vinna tók við af Hátíðni í Iðnó í Reykjavík sjálfstætt saman. Það eru misjafnvegna covid takmarkana sumarið ar grasrótarhreyfingar til og er þetta 2020. Aðsóknin á viðburði þeirra hefhugtak oft kennt við pólitísk samtök en ur verið vonum framar og eru þeir síég er að fjalla um listræna eða tónlistar- Kennimerki Post-dreifingar stækkandi. Samvinnuhugmyndafræðin grasrótarhreyfingu sem má segja að hefur gerir þeim kleift að halda utan um hátíðir

16 | ASKUR


„Drullumall 1“

„Drullumall 2“

eins og þessar á faglegan hátt með gjörningum, varningssölu, matreiðslu og safe space rýmum þar sem fólk getur tekist á við slys og óhöpp með aðstoð sjálfboðaliða. Einnig hafa þau boðið upp á verksmiðjur þar sem listamenn deila reynslu sinni og styðja hvert annað í að taka fyrstu skrefin varðandi skipulag, undirbúning, umsóknarferli og fleira. Big party post club var tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna 2021 sem tónlistarviðburður ársins og hafa báðir viðburðir trekkt að aðdáendur og tónlistarfólk úr fjölda tónlistarstefna úr grasrótinni bæði hérlendis og erlendis. Drullumall Safnplöturnar „Drullumall“ 1, 2 og 3 gefnar út af Post-dreifingu hafa fengið saman óþekkta tón-

„Drullumall 3“

listarmenn til að gefa út lög og demo upptökur. Nafnið „Drullumall“ kemur frá því að þetta samansafn laga vill oft vera hrátt, tilraunakennt og ekki full úthugsað líkt og drullumall er. En þrátt fyrir nafngiftina má finna margt áhugavert í þessum lagasöfnum. Post-sessions Myndbandsverkefnið Post-sessions er án efa með metnaðarfyllri verkefnum sem Post-dreifing hefur tekið að sér. Í vöku heimsfaraldursins gerðu þau röð lifandi tónleika tekna upp og streymt gegnum netið. Inn á milli laga voru svo viðtalsbútar við hljómsveitirnar og var spyrillinn karakter með sjónvarp á hausnum. Þetta voru 16 myndbönd á bilinu júlí 2020 til júní 2021.

VIÐ LÖGUM

PÍPULAGNIR Hringdu í sérfræðing hjá okkur í síma

535 4567 pipulagnir@flaumur.is | flaumur.is


Stuttar umfjallanir um grasrótar hljómsveitir og listamenn sem hafa gefið út tónlist á árinu Í byrjun árs kom út platan „radio vatican ep“ eftir raftónlistargrúppuna sideproject sem samanstendur af Atla Finnssyni, Hjálmari Karlssyni og Örlygi Arnalds. Ég hafði heyrt smá annað eftir þessa hljómsveit en ég hlustaði á þessa í heild sinni með miklum áhuga. Tónlistin sem sveitin gerir hefur verið kennd við electro-punk en minnir mig á eitthvað sem Aphex Twin gæti hafa gert. Sérstaklega miðað við hvernig þeir nefna lögin sín. Hljómsveitin Skoffín (Jóhannes Bjarki Bjarkason, Auðunn Orri Sigurvinsson, Sævar Andri Sigurðarson og Bjarni Daníel) gaf einnig frá sér lag snemma á árinu sem heitir „Rottur“. Með laginu kom tónlistarmyndband á youtube rás hljómsveitarinnar leikstýrt af Snæfríði Sól Gunnarsdóttur. Skoffín hefur átt stóran þátt í tónlistarsenu Reykjavíkur undanfarin ár með pönk rokk tónlist sinni. Þeir hafa gefið frá sér tvær plötur, „Skoffín bjargar heiminum“ og „Skoffín hentar íslenskum aðstæðum“ og virðist vera sem svo að þeir séu að vinna að næstu plötu með þessu lagi á henni.

Dreymandi Hundur gaf út plötuna „af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?“ í apríl. Þar var heilmiklu pakkað saman í þriggja laga smáskífu. Tónlistin kennist sem experimental rhythm driven tónlist en notfærir sér aðallega loopaðar gítar upptökur með hröðum trommuslætti. Án efa ein af uppáhalds plötunum mínum frá því í ár. Hljómsveitin samanstendur af Argentínska tónlistarmanninum Diego Manatrizio betur þekktur sem Flaaryr og íslenska trommaranum Ægir eða R0613 sem hefur starfað með mörgum sveitum í gegnum tíðina eins og Laura Secord, Logn, Bagdad brothers og World Narcosis. Ægir gaf einnig frá sér raftónlistarplötu í júní í ár sem heitir „The Earth Grew Uncertain“.

„af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?“

„radio vatican ep“

sideproject live á Hátíðni 2021 Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.

8

„Rottur“

„The Earth Grew Uncertain“

Flaaryr, annar meðlimur dreymandi hunds, er einnig búinn að vera upptekinn þar sem hann gaf frá sér plötu í júní sem heitir „Warm Light and Entanglement“ og einnig live ambient plötu núna nýlega í september sem heitir „Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops“. Ég hef verið að hlusta Skoffín live á KEX Hostel, Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.


mikið á „Warm Light and Entanglement“ og er hún með svipuð stílbrigði og dreymandi hundur en kennist meira við stílinn sem Flaaryr stefnir í. Þessi plata er full af klikkuðum gítar-lúppum og melódíum og einnig raddupptökum sem innihalda áhugaverðar frásagnir um lífið og mannkynið.

„Warm Light and Entanglement“

draumkennda hljóðgervla. Söngkonan, Silla, sem trommar og syngur á sama tíma kemur sterk inn með eftirminnilega texta með vel beittri rödd. Hljómsveitin hefur einnig verið dugleg að gefa út tónlistarmyndbönd á youtube rásinni þeirra „brussels sprouts intl” og er þar vel að merkja tónlistarmyndbandið „Vesturbæjar Beach” eftir Snæfríði Sól Gunnarsdóttur sem sýnir tvíeykið að skemmta sér um vesturbæinn eins og það sé hásumar þegar í raun er sígildi íslenski veturinn sem við þekkjum öll.

„Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops.“.

Math rock hljómsveitin Trailer Todd (Stirnir Kjartansson, Dagmar Ýr Eyþórsdóttir, Hlynur Sævarsson og Kormákur Logi Laufeyjarson Bergsson) gaf frá sér tónlistarmyndband í apríl leikstýrt af Erni Ómarssyni sem fór á youtube síðuna hjá post-dreifingu. Lagið heitir „Skjálfhent“ og myndbandið sýnir söngvara hljómsveitarinnar, Stirni, ganga í gegnum kómíska lífskrísu þar sem allar persónur myndbandsins eru leiknar af honum sjálfum. Hljómsveitin gaf einnig frá sér live plötu núna í september sem heitir „Live at Hátíðni (July, 2021)“ og inniheldur hún meðal annars lagið sem kom á youtube og önnur lög sem verða sennilega á næstu plötu þeirra. Hljómsveitin BSÍ (Sigurlaug Thorarensen og Julius Rothlaender), nefnd eftir umferðarmiðstöðinni BSÍ, gaf út sína fyrstu plötu í maí og heitir hún „Sometimes Depressed... But Always Antifascist“. Platan inniheldur uppreisnargjarna og/eða þunglynda popp tónlist sem kennist aðallega við bassa og trommur ásamt

Sigursveit Músíktilrauna í ár gáfu frá sér EP plötu þann 1. júní, aðeins meira en einum mánuði frá því að þau unnu Músíktilraunir sem var 29. maí. Hljómsveitin heitir Ólafur Kram (Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, Guðný Margrét Eyjólfs, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Eydís Egilsdóttir Kvaran, Sævar Andri Sigurðarson) og platan þeirra heitir „nefrennsli / kossaflens“. Það er gaman að segja frá nafninu þeirra, sem hljómar mjög sakleysislega, en er í raun „Mark Rufaló“ afturábak sem hljómar líkt leikaranum Mark Ruffalo. Platan sjálf inniheldur einnig frekar „nefrennsli / kossaflens“ uppreisnargjarna tónlist

Flaaryr, Live á Hátíðni 2021, Mynd eftir mig.

BSÍ, Live á Hátíðni 2021, Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson.

„Live at Hátíðni (July, 2021)“

„Sometimes Depressed... But Always Antifascist“

9


með meiri áherslu á rokkið. Sungið er um marga hluti eins og gagnrýni á sambönd og karlmenn sem hrútskýra meðal annars. Platan inniheldur ríka tóna þar sem blandað er hljómborði, gítar, bassa, trommur og trompet fyrir eftirminnilega og mjög svo íslenska plötu. Sigursveit Músíktilrauna árið 2018, Ateria (Ása Önnu Ólafsdóttir, Eir Önnu Ólafs og Fönn Fannarsdóttir) gaf frá sér sína fyrstu plötu núna í október. Áður en þau gáfu út plötuna kom út lagið Afleiðingar sem síngull og tónlistarmyndband eftir Erni Ómarsson á youtube síðu þeirra. Platan heitir „and_vari“ og inniheldur ríka hljóðheima sem minna á eitthvað sem hljómsveitin Sigur Rós gæti hafað gert, nema með meiri áherslu á textaflutning. Fjallað er um margar, mögulega erfiðar tilfinningar sem bassa og selló leikarinn Eir hefur velt fyrir sér. Ásamt ríkum gítartónum og strengjaflutningi sem sett er saman í fólk-gothískt samhengi ungra tónlistarmanna má ekki missa af þessari upplifun. Hljómsveitin Dymbrá (Eir Önnu Ólafs, Nína Sólveig Andersen og Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir) sem Eir er einnig í, gaf frá sér smáskífuna „The Sea Around Us“ í september sem var samin fyrir stuttheimildarmynd sem heitir sama nafni og er um listakonuna Katrínu Þorvaldsdóttur. Þrátt fyrir að vera svokallað soundtrack þá

virkar þessi plata mjög vel ein og sér að mínu mati og gefur frá sér áhugaverða hljóðheima sem ekki allir vinna að. Ásamt yndislegri hljóðhönnun er notast við allskyns hljóðfæri eins og selló, fiðlu og flautu og margt fleira til að skapa ambíent nýklassísk lög. Popp söng-og-lagasmiðirnir K.óla (Katrín Helga Ólafsdóttir) og Salóme Katrín gáfu frá sér lag í september sem heitir „Heyra í þér”. Skemmtilegt lag sem minnir á mikilvægi vináttunnar. Búast má sennilega við plötu frá K.ólu miðað við þessa útgáfu en það er aldrei að vita. Hún hefur allavega gefið út tvær plötur á síðustu tveimur árum sem ég mæli án efa með að kíkja á. Hljómsveitin Milkhouse (Andrés Þór Þorvarðarson, Auðunn Orri Sigurvinsson, Katrín Helga Ólafsdóttir, Sævar Andri Sigurvinsson, Victor Karl Magnússon) sem K.óla er í gaf einnig frá sér lag í júlí sem heitir „Dagdraumar Vol. 7” og tónlistarmyndband á post-dreifingar youtube rásinni eftir Rakel Ýr Stefánsdóttir. Þessi hljómsveit gaf frá sér síðast plötu árið 2017 svo það er gaman að sjá hvort ný plata verður aðgengileg á næstunni.

„Heyra í þér“

„and_vari“

„The Sea Around Us“

Ólafur Kram, Live á Post-hús fundraiser Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson

10

„Dagdraumar Vol. 7“

Pönkhljómsveitin GRÓA (Karólína Einarsdóttir, Fríða Björg Pétursdóttir og Hrafnhildur Einarsdóttir) gáfu frá sér þeirra þriðju plötu í ágúst í STBY, Nigel, Live á Post-hús Fundraiser Mynd: Björn Óttar Oddgeirsson


ár og virðist vera sem svo að þær halda sífellt áfram að bæta sig. Platan heitir „What I like to do“ og einkennist af eftirminnilegum bassalínum, klikkuðum trommuslátti og pönkuðum söng. Fjallað er um að gera hluti í uppreisnargirni og að gera almennt hluti sem er ekki búist við af manni. Án efa mest spennandi pönk hljómsveit landsins einmitt núna á góðri uppleið. Sennilega með nýjustu pönkhljómsveitum landsins aftur á móti, Sucks to be you, Nigel (Silja Rún, Krummi Uggason, Vigfús Þór Eiríksson og Ernir Ómarsson) gefa út sína fyrstu plötu þann 12. nóvember. Þegar ég skrifa þetta er hún í rauninni ekki komin út svo ég get svo sem ekki sagt margt nema út frá þeim skiptum sem ég hef séð þau spila í beinni

„What I like to do“

„Tína Blóm“

Plata

og get ég svo sannarlega sagt að ég er gríðarlega spenntur fyrir þessari útgáfu. Án efa viðburðaríkt ár fyrir grasrótarsenuna sem er bráðum að taka enda. Allar þessar plötur og lög hafa fylgt mér á árinu ásamt annarri tónlist sem hefur verið að koma út víðs vegar. Það má einmitt nefna svokölluðu bresku post-punk bylgjuna sem er að eiga sér stað um þessar mundir með hljómsveitir eins og black midi, Squid og Black Country, New Road meðal annars. Þessar hljómsveitir eru að gefa út bestu rokk tónlistina í mörg ár að mínu mati en það er ein íslensk hljómsveit sem mér finnst vera að setja stóran stimpil á rokkið sem ég er ekki búinn að fjalla um ennþá. Hún kemur allavega hér á næstu síðu. Hér fyrir neðan set ég töflu með allar útgáfurnar sem ég tala um í þessu blaði í röð útgáfu. Ég vona að eitthvað af þessu er áhugavert fyrir ykkur lesendur til að kíkja á því mér finnst alltaf gaman þegar fólk fylgist með tónlistinni sem er í kringum mann. Svo er alveg vel að merkja að það vantar örugglega tónlist úr þessari senu en ég þarf þá bara að finna hana.

Artist

Útgáfudagur

Tónlistarstefna

radio vatican ep

sideproject

31. janúar

Electro-Punk

Rottur (Single)

Skoffín

12. mars

Indie Rock

Af hverju grætur hundurinn minn meðan hann sefur?

Dreymandi hundur

9. apríl

Experimental Rhythm Rock

Sometimes depressed... but always BSÍ antifascist

21. maí

Indie Pop

Warm Light and Entanglement

Flaaryr

18. júní

Experimental Math Rock

The Earth Grew Uncertain

Ægir

18. júní

Electronic

nefrennsli / kossaflens

Ólafur Kram

1. júlí

Indie Rock

Dagdraumar Vol. 7 (single)

Milkhouse

9. júlí

Indie Rock

What I like to do

GRÓA

The Sea Around Us

Dymbrá

3. september

Neo-Classical

Mist, drops, puddles, streams & waves. A selection of live improvised watery loops.

Flaaryr

3. september

Ambient Loops

tveir dagar

Supersport!

11. september

Indie Rock

Heyra í þér (single)

K.óla, Salóme Katrín

24. september

Indie Pop

Live at Hátíðni (July, 2021)

Trailer Todd

27. september

Math Rock

and_vari

Ateria

15. október

Avant Folk

Tína blóm

Sucks to be you, Nigel

12. nóvember

Punk

26. ágúst

Punk


! T R O P S R SUPE Ljósmyndarar óþekktir

Supersport! er bráðlega mest elskaðasta popp hljómsveit Reykjavíkur og samanstendur af þeim Bjarna Daníeli, Þóru Birgits Bernódusdóttur, Huga Kjartanssyni og Degi Reykdal Halldórssyni. Þau hafa starfað í þessari mynd síðan seinni hluta 2019 en hafa einnig unnið saman í öðrum verkefnum. Í raun myndaðist hljómsveitin út frá samvinnu þeirra Bjarna Daníels og Þóru Birgits þar sem þau spiluðu saman í hljómsveitinni Bagdad Brothers sem ekki er lengur starfandi. Supersport! hefur gefið frá sér eina smáskífu og nýlega eina breiðskífu. Smáskífan heitir því skemmtilega nafni Dog Run EP og inniheldur Indí-rokk hljóma með ljúfum falsettu söng. Góð byrjun fyrir hljómsveitina. Sveitin gaf frá sér sína fyrstu breiðskífu í september á árinu undir post-dreifingu ásamt japönsku plötufyrirtæki sem heitir „Gifted Records“. Platan heitir „tveir dagar“ og inniheldur 10 lög. Fyrir útgáfu gaf sveitin frá sér 4 tónlistarmyndbönd. Sem kvikmyndagerðarmaður og tónlistarmaður

„Dog Run EP“

þá finnst mér alltaf spennandi þegar þessir tveir heimar sameinast til að skapa eitthvað, hvort sem það eru tónlistarmyndbönd eða önnur verkefni. En tónlistarmyndbönd þeirra eru í röð útgáfu: Hring eftir Hring eftir Hjalta Nordal, opnunarlagið á plötunni birtist í VHS kenndum heimi þar sem meðlimir hljómsveitarinnar eru eins og einhverskonar djöflalegir stubbar (teletubbies) en söngvarinn, Bjarni Daníel, er þar syngjandi sólin. Þetta myndband sýnir hæfileika skaparanna í súrrealísku viðmóti ásamt skemmtilegu popplagi. Án efa mjög gott dæmi af því sem maður getur gert með grænum skjá og góðu ímyndunarafli. Song for my friend, June eftir Finn Kalda. Stílbrigðin eru einnig mjög einkennileg í þessu myndbandi þar sem við sjáum blöndu af listrænni myndbandsupptöku og animated teikningum sett ofan á hvort annað til að skapa meiri heim heldur en fyrra myndbandið. Lagið er um vin Bjarna Daníels, Junot

„tveir dagar“


og er þetta eina lagið sem hljómsveitin hefur gefið út á ensku en var það einmitt samið fyrir enskumælandi einstakling. Án efa með fallegri lögum um vinasambönd sem ég hef heyrt. Lag í partýi (Reykjavík!) eftir Erni Ómarsson (enn og aftur), skemmtilegt slasher myndband þar sem við sjáum alla meðlimi hljómsveitarinnar hrottalega myrta af dularfullri fígúru. Sennilega mest kvikmyndalegasta myndbandið af öllum sem gefin var út og, jú, það ógeðslegasta. Lagið sjálft inniheldur eftirminnileg gítar riff og texta um að tilheyra ekki borg ef maður á að njóta hennar aleinn. Uppí sófa eftir Vilhjálm Yngva Hjálmarsson eða susan_creamcheese. Þetta myndband er einnig mun meira vídeóverk heldur en hefðbundið myndband. Hér sjáum við hraðklippt safn af símaupptökum og efni sem Villi hefur tekið til sín. Þetta lag er einnig í rólegri kantinum svo myndbandið byggir ansi rólegt umhverfi fyrir mann. Lagið fjallar um það að vilja slappa af, taka það rólega og eyða deginum heima upp í sófa sem er tilfinning sem ég held við könnumst öll við. Restin af lögunum á plötunni eru einnig frábær og ég gæti talað um þau óralengi en ég mæli líka með að þið kæru lesendur hlustið sjálf. Ég myndi nú ekki tala svona mikið um eina plötu ef ég væri ekki gríðarlega hrifinn af henni. En hér á næstu síðu ætla að ég að spjalla aðeins við Bjarna Daníel söngvara Supersport um hljómsveitina og grasrótarsenuna í Reykjavík og margt annað. Það var mjög ánægjulegt að fá að spjalla við hann um þessa hluti og ég þakka honum fyrir tækifærið.

„Hring eftir hring“

ALLTAF Í BOLTANUM? AKTÍFA SELUR ÞÉR HÁGÆÐA SPORTVÖRUR Í ÁRMÚLA 18

„Song for my friend, June“

„Lag í partýi (Reykjavík!)“

Ármúli 18 | 104 Reykjavík 567 8888 | aktifa@aktifa.is |13aktifa.is


Eydís Hjaltalín Ómarsdóttir heiti ég, fædd 8 júní 1991 sem gerir mig þrítuga á þessu ári fyrir þá einstaklinga sem rötuðu hingað inn á mitt fyrsta tímarit, verið kærlega velkomin! Hef alla tíð búið í Hafnarfirði, fyrir utan eitt ár í Ox­ ford, Englandi þegar ég var 16 ára og flutti þangað með foreldrum mínum sem rötuðu þangað í nám og master. Er ættuð frá Keflavík og á þar mjög stóra fjölskyldu. Sem mér finnst ég afar heppin og rík að eiga að. Hvatvísi, létt ringulreið, lítill sem enginn filter en að mestu leyti ljúf eru orð sem ég myndi nota til að lýsa mér sjálfri ásamt að ég er skapstór, hress og listræn. Áhugamál mín eru sem dæmi að teikna, dansa, hugsa um plönturnar mínar og upplifa, læra nýja hluti og vera með kisanum mínum honum Vin. Á það til að safna hlutum og á marga hluti sem hafa tilfinningalegt gildi fyrir mig. Svo sem steina, gömul bréf, trédrumba, plöntur og eitt skiptið á göngu með móður minni fann ég hryggjarlið úr hval og stóðst ekki mátið að skilja gripinn eftir svo ég tók hann með og er hann til sýnis á pallinum fyrir utan bústað foreldra minna.

Þetta lýsir hvatvísinni og ringulreiðinni sem býr innra með mér sem mér er samt búið að takast að beisla niður og nota á listrænan og skapandi hátt. Eftir langt ferðalag fer nú fer nú loks að líða að lokum og útskrift nálgast auðfluga. Spennandi og krefjandi tímar er búið að vera þemað seinustu mánuði. Mín námsleið byrjaði 2012 þar sem ég fór í áhugasviðgreiningu og eina sem kom út úr því var grafísk miðlun, svo eðlilega ákvað ég að gefa því tækifæri. Skráði mig í nám og fann mig vel í þessu námi. En lífið tók yfir og mér var ekki ætlað að útskrifast strax. Fór að vinna, síðan annað nám hjá Mímir og fór svolítið að leita af sjálfri mér. Eftir góða og langa sjálfsskoðun var ég tilbúin að ljúka náminu 2019. Sagði öruggu skrifstofustarfi upp og hóf nám að nýju. Fylltist strax af innblæstri og fann hvað ég hafði saknað þess að vera í skóla. Eftir þetta nám tekur við jafnvel áframhaldandi nám í ljósmyndaranum eða prentsmiðinum, kannski fer ég út fyrir landsteinanna. Við skulum sjá hvað setur.


Sýn inní heim götulistar

Það sem götulist gerir fyrir umhverfið og

t

í sk

a

g ug

menninguna er ómetanlegt, en það virðist gleymast hvað það gefur borginni og íbúum hennar mikið fallegt og örvandi til að upplifa í daglegu lífi. Afhverju geta ekki fleiri tómlegir gráir veggir verið skreyttir með fallegri list. Síðan gefur þetta tækifæri fyrir listamenn að fá að nota svona stóran striga undir verkið sitt. Meistaraverk verða til, nýjar og ímyndunaraflið fær að fara sýnar eigin leiðir og skapa. Graffití og götulist er tiltölulega ungt listform sem spratt upp út frá unglingamenningu í Bandaríkjunum. Tjáningarform þetta hefur ávallt verið litið hornauga. Ekki er langt síðan farið var að flokka það sem listgrein og menningarlegt verðmæti.

j

k

y

Re

Texti eftir Eydísi Hjaltalín

ur

ík

av

26 | ASKUR

Saga götulistar byggist að miklu leyti á persónulegum ljósmyndasöfnum sem listamennirnir hafa tekið af verkunum sínum. Ef ekki væri fyrir þessar myndir hefði þekkingin glatast, enda vara verk af þessu tagi ekki lengi. Þau eru annaðhvort eru þau hreinsuð í burtu eða það er málað yfir þau. Á síðastliðnum árum hafa vinsældir graffití og götulistar aukist gífurlega meðal almennings, en verk margra götulistamanna prýða nú veggi í galleríum og á listsöfnum, þau seljast á mikið fé á uppboðum. Þrátt fyrir þessi góðu viðbrögð má enn heyra neikvæðar raddir sem telja þetta listform frekar flokkast undir skemmdarverk en listaverk. Þó svo að listgrein þessi hafi að mestu leiti falist í því að mála myndi á veggi með úðabrúsum, sem flokkast undir


á Íslandi og USA skemmdarverk, eru þeir til sem beita öðrum, mun umhverfisvænni leiðum við gerð svipaðra verka. Það sem er ólíkt með þessari gerð verka er að þau vara ekki að eilífu en geta haft sömu sjónrænu áhrifin og hefðbundin götulist

Veggjakrotlist er þegar texti og myndir eru teiknaðir eða úðamálaðir á veggi og fleti, venju-

lega í þéttbýli, opinberum stöðum og venjulega án leyfis. Hugmyndin um að teikna orð og myndir á veggi er ekki nútímaleg og má rekja til Forn-Grikklands og Rómaveldis. En graffití listin eins og við þekkjum hana fæddist í New York á áttunda áratugnum, þegar fólk byrjaði að nota úðamálningu til að skilja eftir einstaka merki


Graffití sitt á opinberu rými hvers konar. Veggjakrot hefur margar gerðir, allt frá stílfærðu grafísku myndmáli sem kallast villtur stíll til djarflega fagurfræðilegra dulmáls, almennt þekktur sem merki og einstök fyrir hvern listamann.

Stíll, einkenni og takmarkanir Götulist og graffití eru tvö hugtök sem haldast oft í hendur. Bæði listformin gerast á opinberum vettvangi. Hins vegar er götulist, sem flokkur listrænnar framleiðslu, miklu víðtækara auðkenni með tilliti til skorts á einkennandi takmörkunum á stíl og miðli. Til samanburðar er graffití-list samtímans frekar þröng í auðkenningu sinni, miðast við hugmyndina um að merkja og leggja áherslu á textabyggða fagurfræði. Götulist nær á sama tíma til margs konar miðla, allt frá stensils til myndbandsvörpunar. Þótt það sé nokkuð takmarkað hvað varðar flokkun, er nútímalegt graffití búið til í miklu úrvali stíla og tækni. Aðal graffitíformið er merkið. Merki, í einföldu máli, eru nöfn einstakra listamanna sem úðamálaðir eða stensilaðir á opinbera fleti á mjög stílfærðan hátt. Tengt merkjum og merkingum er Throw-Up, vandað merki sem venjulega er með meira litafbrigði og flókna hönnun. Þar sem merkingar eru oftast framkvæmdar á eignum sem ekki eru í eigu listamannsins er það stundum talið skemmdarverk. Hins vegar er listin að taka upp pláss sem er tæknilega „ótakmörkuð“ leið til að kanna hugtök um stigveldi, eignarhald og skapandi frelsi. Það kemur því ekki á óvart að graffití í samtímanum er oftast tengt réttindalausum svörtum borgarbúum Ameríku.

Veggjakrot í Bandaríkjunum Samtíma graffití hófst, að því er virðist, í Fíladelfíu í dögun sjöunda áratugarins. Sagnfræðingar nefna oft dauða hins virta texti tekinn bandaríska frá http://hdl.handle.net/1946/1179og djasssaxófónleikara myndir ogfrátónskálds safni google.

28 | ASKUR


Charlie Parker sem hvata að útbreiðslu nútíma graffití er bandaríski Parker, kallaður „Yardbird“ eða „Bird“ lést árið 1955. Sama ár byrjaði graffití að birtast í New York. York­borg sem ber orðin „Bird Lives“. Þessi þróun er talin fyrsta endur­ tekningin á skipulögðu afdráttarlausu graffití í New York. Það var hins vegar ekki á annan áratug sem graffití byrjaði að blómstra á götum NYC Um 1970–71 færðist miðstöð graffití­menningar frá Fíladelfíu til New York borgar. Í aðallega svört­ um hverfum eins og Washington Heights, tóku graffití listamenn að skapa sér nafn og byggja upp listamannahóp. Listamenn eins og TAKI 183 og Tracy 168 fóru að öðlast frægð fyrir tíðar ólöglegar merkingar. Með því að nota merkingarsamkomu­ lag þar sem nafnorð þeirra sameinaði götuheiti sitt við gælunafn sitt, „sprengdu“ þessir listamenn neðanjarðarlestir með merki sínu og létu lestina dreifa verkum sínum um borgina. Á áttunda ára­ tugnum var sviðsmynd New York borgar drottnuð af goðsagnakenndri áhöfn með yfir 500 meðlim­ um sem innihéldu nöfn eins og Blade, Cope 2, T Kid 170, Cap, Juice 177 og Dan Plasma.

Götulist eftir bæjarfélögum HFJ / GBR

RVK / KÓP

BRH / GRV

7

26

17

3

10

9

Texti frá https://blog.singulart.com/en/2018/08/09/graffiti/ og myndi frá google

Á Íslandi

HEFURU HEYRT þETTA? frÁ Árunum

1966

til

1987

Var út-

sending sjónVarps bönnuð alla fimmtudaga til að hVetja fólK að fara út og blanda geði Við fólKið.

ASKUR | 29


Viðtal við Krushr

Afhverju valdi ég viðtal við Krushr? Hann er skapandi, listrænn og gull af manni. Vinir, fyrrum sambýlingar Fullkominn morgunn fyrir Krushr? Að vakna með brúsa í hendinni... Hvenær byrjaðiru að graffa? Árið 2003 byrjaði ég að graffa.

Zone Out 2017

Hvað kveikti áhugann að byrja graffa? Það voru Suðurbæjarlaugs undirgöngin í hfj, ég labbaði alltaf í gegnum þau þegar ég var yngri og elskaði veggina þar... Litríkt og geggjað. Mikið graff mikið gaman. Þar voru graffarar sem kölluðu sig Kyte og Crek ..bara svona til að segja eitthvað. En svo var ég líka spurður hvort ég vildi ekki byrja að graffa? Haa hvað er það? Svona sem þú spreyjar à veggi og þá var ekkert aftur snúið. Byrjaði að graffa án þess að vita nákvæmlega hvað það var. Átt þú þitt svæði? Uu nei reyndar ekki en ég er langmest í 220 Hafnarfirði. Ætli ég eigi ekki bara HFJ... Hvað graffaru mest?

Skull Kitty 2021

Kisur, og taggið mitt Krushr en ég graffa líka hauskúpur, teiknimyndafígúrur og krúið mitt NFC (no fukcing clue) og svo bara það sem mér dettur í hug. Telur þú vera lækningamátt í götulist? Já heldur betur ,mér líður allavega alltaf fáránlega vel þegar ég sé flotta götulist, en svo líður mér ennþá betur ef set upp sjálfur einhverja flotta götulist. Mjög góð tilfinning!! Hver er uppáhalds listamaðurinn þinn? Ceser87. Áttu drauma um að graffa byggingu sem er erfitt að nálgast? Nei reyndar ekki en bara einhverja stóra byggingu, stóran vegg. En það væri samt gaman að graffa Perluna... Texti eftir Eydísi h. og myndir eru fengnar úr safni Krushr.

Daði Freyr 2021


Viðtal við Ásu markþjálfa og hljóðheilara

Afhverju valdi ég Ásu í viðtal?

Ég tók viðtal við Ásu því mér fannst hún svo áhugaverð, með rafmagnaða orku og aðdráttar­ afl. Ég hitti hana fyrst þegar ég fór með móður minni á örnámskeiðskvöld hjá Hlín og Sálarlist, en vinkonurnar Ása og Kristín Berta deila rými á 2. hæð í Firði þar sem fyrirtæki þeirra beggja fá að blómstra. Ása með Hlín sem heldur utan um markþjálfun og hljóðheilun og Kristín Berta með Sálarlist (salarlist.is) sem heldur utan um meðferðarvinnu og listsköpun. Þetta kvöld hét Innsæismandala og gongslökun. Ótrúlega falleg stund sem samanstóð af góðmennum konuhóp sem sat í hring og deildi bæði hugsunum og til­ finningum varðandi innsæið. Málað var mandölu í flæði út frá ákveðinni aðferð sem Kristín Berta leiddi og endað síðan í gongslökun sem Ása leiddi. Falleg, gefandi og endurnærandi upplif­ un, en það var út frá þess­ um atburði sem mig langaði að tala við hana, fá viðtal í leiðinni og deila hugsanlega með ykkur smá göldrum. Þetta viðtal er sagt í fyrstu persónu eins og þið séuð að hlusta á Ásu tala við ykkur. Hver er Áshildur Hlín? Síðan ég varð móðir hef ég svolítið skilgreint mig þannig, sem móðir eða mamma, þó svo ég gæti alveg skilgreint mig á annan hátt og geri auðvitað að parti til eftir aðstæðum hverju sinni. Móðurhlut­ verkið hefur bæði verið svo stórt hlutverk í mínu lífi síðustu 16 árin sem og ríkur þáttur í mínu eðli ef svo má segja, að ég tengi einfaldlega mjög sterkt við þetta hlutverk. Ég er fjögurra barna móðir og eiginkona, og segi stundum að ég beri því sjálfkrafa allskyns fleiri titla og verkefni á mínum herðum eins og aðrir foreldrar: Skutla, laga, græja, gera, plástra, hlusta, elda, þrífa osfrv. Þess fyrir utan er ég dóttir, systir og vinkona, menntuð sem

grunnskólakennari, alþjóðlega vottaður markþjálfi, með diplómu á mastersstigi í jákvæðri sálfræði og hef að auki ýmist annað nám héðan og þaðan uppi í erminni. Í grunninn má líka segja að ég sé sál sem bý yfir afar ríkri frelsis­ og sjálfstæðisþörf, komin hingað til að stúdera sjálfsþekkingu og vellíðan ofan í kjölinn og vil miðla af mér áfram í þeim efnum. Hvernig er fullkominn morgunn fyrir Áshildi? Frábær spurning, ég held að ég hafi nefninlega frekar einfaldar þarfir í þessu samhengi. Það sem kom fyrst upp í hugann hljómar kannski pínu óspennandi, en er það samt ekki að mínu mati. Það er bara þetta einfalda í lífinu sem er ekki alltaf svo einfalt samt: Að vakna endur­ nærð eftir 8 tíma svefn, stíga fram múr rúminu niður á nýskúrað gólf, koma fram og það er enginn þvottur í þvottakörfunni, allt er á sínum stað. Ég fæ mér glænýtt, ristað súrdeigsbrauð og á notalega stund með tebollanum mínum yfir blaðalestri. Fer jafnvel út í heitapott og hugleiði í smástund fyrir úti­ morgunsturtuna á brakandi ferskum og heið­ skírum morgni – auðvitað er blár himinn og sól á mínum fullkomna morgni. Þetta væri æðisleg byrjun. Eiga svo kannski 1–2 frábær einkasamtöl í markþjálfun fram að hádegi. Þá væri ég mjög góð! Hvað er Hlín? Það er fyrirtæki sem ég stofnaði fyrst utan um markþjálfunina hjá mér, en ég lærði markþjálfun fyrir 6 árum síðan og langaði að búa til einhvern „front“ á þá starfsemi hjá mér. Ég ákvað að nota millinafnið mitt sem er Hlín. Bæði af því það er lítið notað, ég á þetta langa nafn Áshildur Hlín en er yfirleitt bara kölluð Ása, og líka af því að mér þykir vænt um það og vil leyfa því að vera stærri partur af lífi mínu. Vinkona mín bjó svo til lógóið, Mynd: af Áshildi Hlín

ASKUR | 31


Hefur hljóðheilun lækningarmátt Miðað við allt sem ég hef bæði heyrt og lært í minni vinnu á því sviði, sérstaklega með gongin, þá er vel hægt að fullyrða svo. Til mín hefur komið kona sem var skyndilega laus við 10 ára krónískan verk eftir gongslökun, maður sem þjáðist af Park­ inson veiki kom furðu lostinn og spyr hvað þetta hafi nú verið, réttir fram útrétta kyrra hendi og vill vita meira. Fyrrverandi hermaðurinn sem sagðist alls ekki vera andlega þenkjandi en hvíslaði því að mér í óspurðum fréttum að hann hafi séð engla og fundið dásamlegan frið í hjarta. Konan sem sagðist loksins ná að anda djúpt því eitthvað hafi náð að smella í lungunum á henni, konunni sem leið eins og hún hafi verið skoluð að innan, konan sem horfðist í augu við og tókst á við djúpan og gamlan tilfinn­ ingasársauka sem birtist í gongslökun. Maðurinn sem hefur rannsakað hjartað á al­ þjóðavettvangi í fleiri áratugi og segist enginn nýgræðingur í þessum efnum, en tilkynnti mér að gongið hafi framkallað eitthvað stórfenglegt innra með honum sem hann hafi ekki upplifað áður. Maðurinn sem sagðist hafa upplifað svo sterka vellíðanartilfinningu að hún hlyti að komast nálægt því að nefnast alsæla. Konan sem tengdi við látna dóttur sína og fann dýrmætan frið í hjarta, konan sem öðlaðist hugarfrið um stund sem hún hafði aldrei upplifað áður. Þetta eru bara nokkur dæmi um það sem ég hef sjálf orðið vitni að. Stundum eru áhrifin skammvinn, endast aðeins um ákveðinn tíma en eru með áhrifum sínum búin að gefa dýrmæt fyrirheit um að hægt sé að hafa áhrif á eigin líðan og fá því breytt sem við viljum fá breytt. Ég tek það fram að ég hef líka heyrt frásagnir af erfiðum hlutum og vanlíðan sem mér þótti erfitt að hlusta á til að byrja með, viljandi helst aðeins kalla fram það góða og fallega. En lífinu er nú þannig háttað að stundum þarf að klífa erfið fjöll á leið að göfugum. Ég er orðin mun slakari hvað þetta varðar og bið fólk þess vegna um að mæta með opinn

huga og smá forvitni í farteskinu gagnvart því sem birtist þeim í tímum. Ég er ekki að gefa mig út fyrir lækningar, ég hef hvorki til þess menntun né réttindi. En þegar maður hefur heyrt hundruðir frásagna af allskyns ólikum upplifunum í gegnum slökun og hljóð­ heilun fara efasemdaraddirnar að víkja í huga manns fyrir einhverju öðru, ég held við getum kallað það sem í staðinn kemur von. Og vonin er svo ótrúlega dýrmæt. Eitthvað er augljóslega að gerast og það er bara engin leið að neita því. Mað­ ur getur einfaldlega ekki annað en trúað þessu fólki og auðvitað er þetta ekki heldur neitt nýtt á nálinni. Við erum ein­ faldlega að vinna með tíðni og orku. Hljóðheilun hefur ver­ ið notuð á einn eða annan veg í gegnum aldirnar til að losa um orku sem hefur staðnað á einhverj­ um stað í líkamskerfinu okkar. Svo stutta svarið er: Já, en ég ætla ekki að fara út í lífeðlisfræði­ legar útskýringar á því þó ég eigi þær nokkrar til og fólk getur vel lesið sér til um. Mér finnst að þetta sé eitthvað sem fólk verður að vilja prófa að upplifa sjálft. Síðast en ekki síst er líka eitt lykilatriði í þessu samhengi, en ég myndi segja að hljóðheilun ein og sér hefði kannski ekkert rosalega sterkan lækningamátt ef ekki kæmi til ásetningur eða vilji fólks. Fólk tekur þátt í að skapa áhrifin með því að beita eigin hugsun og tilfinningum í þessu samhengi. Hljóðheilun er þannig samsköpun, hún er samspil viðtakanda, hljóðfæra og þess sem spilar. Ég hef séð mjög sterk áhrif birtast með einbeittri sjálfsvinnu í forgrunn. Hvernig hefur hljóðheilun breytt þínu lífi? Já, það er góð spurning. Þetta er ekki sagan þar sem ég varð sjálf fyrir miklum áhrifum og leiðist þannig inn í þessa vinnu. Stundum á mað­ ur þannig sögur, eitthvað gerist fyrir mann sem breytir lífi manns til batnaðar og maður vill miðla áfram. Markþjálfunin er svolítið þannig fyrir mig, Mynd: Gongin hennar Ásu

32 | ASKUR


hún hefur breytt svo miklu fyrir mig persónulega að ég vil gjarnan miðla henni áfram. Hljóðheilunin togar í mig á annan hátt. Hún er einhvern veginn þannig að gongið hálfpartinn kallaði á mig, það er bara svo ótrúlega fallegt og með sterka og dularfulla nærveru. Mig langaði að eignast gong og ég vildi spila á það, en þurfti alveg að fara í gegnum spurningar eins og: má maður bara kaupa sér gong sí svona? Þarf ég ekki að vera jógi til margra ára og fá eitthvað vottorð frá einhverjum um að mega spila á þetta magnaða hljóðfæri? Þannig er það nú víst ekki þó ég telji mikilvægt að læra ákveðin undirstöðuatriði í tengslum við nálgun á gongið, ætli maður sér að nota það í tengslum við vinnu með fólki. En svo fór að einn daginn var hljóðfærið dularfulla komið í hús og ekkert annað í stöðunni en að hætta að dást að því úr fjarlægð og byrja að læra á það. Það hjálpar mér að hafa bakgrunn úr tónlist og því að hafa lært svæðanudd, en talað er um að líkaminn sé kortlagður á gonginu svo við spilun er maður vissulega að spila á hljóðfæri en einnig líkamann og orkusvið hans. Það sem hljóðheilun hefur kannski gert mest gert fyrir mig er að hljóðfær­ in eru nú ákveðin verkfæri sem ég nota til að vinna með fólki og mér finnst mjög gaman að vinna með þessi fallegu verkfæri. Hef meira að segja ferðast með þau til fimm landa og spilað fyrir fólk þar. Þau eru búin að breyta lífi mínu á þann hátt að ég er farin að vinna við þetta. Eins og áður sagði eru áhrifin sem ég hef heyrt fólk segja frá svo mögnuð og það er í raun vegna frásagna fólks sem ég held áfram, en ég er alveg efarsemdarmanneskja líka að parti til eins og svo margir og hef þurft að heyra margar frásagnir til að sannfærast um ákveðna hluti. Frá fólki finn ég drifkraftinn fyrir þessari vinnu.

lífinu ákveðið gildi en á hinn bóginn er ég líka raungreinakennari í grunninn og veit að allt sem við köllum töfra eða galdra er bara annaðhvort falin eða óútskýrð eðlis­ og efnafræði ef við rýn­ um niður í mólikúl og skammtafræði. Mér finnst bara gaman að hugsa um hlutina svona. Partur af mér hefur þörf fyrir að útskýra eitthvað í þessu samhengi, sem og ég geri, en annar partur af mér vill bara halda mystíkinni því það er svo skemmti­ legt að láta hluti koma sér á óvart. Það viðheldur líka okkar barnslegu trú að eitthvað spennandi geti gerst ef við trúum því nógu heitt, vitandi að það er hægt að útskýra þetta allt saman ef við förum ofan í saumana á því. Ég hvíli því þannig í þessari vinnu með gongin að þetta er flest allt útskýranlegt í heimi raungreinanna ef þörf er á, ekki síst með áframhaldandi rannsóknum á sviði skammtafræðinnar og áhrifa þeirrar tíðni sem við sendum frá hug okkar og hjarta á lífið í kringum okkur. Ég vel þó meðvitað að halda líka í galdrana fyrir þær sakir að mér finnst þeir gefa lífinu gildi.

Meiri upplýsingar á heimasíðu Áshildar: ashildur.is og á FB síðunni Hlín markþjálfun. Þér velkomið að óska eftir aðgangi að lokaða hópnum Hljóðheilun á FB, sem heldur utan um tímana í hljóðheilun.

Geymir gongið galdra? Mér finnst þetta geggjuð spurning! GGG – geym­ ir gongið galdra? Gaman að svara henni vegna þess að þá get ég aðeins talað um galdra og töfra, en fyrir mér er nauðsynlegt að trúa á smá mystík í heiminum. Að hafa vott af göldrum eða töfrum í lífinu, eitthvað sem ekki er alveg búið að útskýra í þaula – ennþá. Mér finnst það gefa

ASKUR | 33


Ívar Daníel Karlsson Ég heiti Ívar og er mannvera, einstaklingur, karl­ maður, sonur, bróðir, frændi, vinur, og nú einnig grafískur miðlari. Ég var fæddur í Reykjavík 1. mars 1988 og síðan þá hef ég verið á lífi. Ég hef átt heima bæði í Kanada og Bandaríkjunum en hef að mestu átt heima á Íslandi. Ég hef stundað fullt af námi en þetta er það fyrsta sem ég klára fyrir utan grunn­ skóla. Það tók mig smá tíma að finna nám sem að átti við mig, en líka bara að þroskast nóg til að hafa aga í að klára það. Fyrst fór ég á tölvubraut, svo listabraut, en að lok­ um endaði ég á upplýsinga­ og fjölmiðlabraut sem

leiddi mig hingað. Það kom í ljós að ég var og er skítsæmilegur í að vinna í Photoshop, InDesign, og Illustrator. Ég stefni á að klára sveinsprófið í grafískri miðlun og fara svo í Stafræna hönnun (gamla Margmiðlunarskólann) þar sem mig langar að læra meira um þrívíddarvinnslu, tæknibrellur og tölvuleikjagerð. Ég hef einmitt mikinn áhuga á tölvuleikjum og kvik­ myndum og hugsa að draumastarfið bíði eftir mér einhvers staðar í návist þeirra.


Hvað er „spunaspil“? Þetta er spurning sem margir hafa spurt sig og þá sérstaklega á áttunda og níunda áratugnum þegar að foreldrar héldu að krakkarnir sínir væru djúpt sokkin í djöfladýrkun og nornagaldur. For­ eldrar komu að krökkunum sínum þar sem þau sátu saman við borð með bækur fyrir framan sig myndskreyttar drekum og galdrakörlum og voru að tala um atgeira, djöfla, galdra, endurlífgun og stærðfræði. Þau voru að spila Dungeons & Dragons, eitt fyrsta spunaspilið til að líta dagsins ljós og er það enn spilað í dag og hefur í rauninni aldrei verið vinsælla. Fólk kemur saman annað hvort í persónu en nú einnig á netinu og saman búa þau til og segja sögur um hetjudáðir, missi, ást, hamingju, sorg og allt þess á milli. Spunaspil eru í rauninni bara aðferð til að búa til og segja sögur þar sem að teningar og leikreglur ákveða hversu vel sögupersónum tekst að gera það sem þau taka sér fyrir hendur.

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Grundvallaratriðin Flest spunaspil eiga það sameiginlegt að einn spilaranna tekur að sér að vera „stjórnandi“ eða „leikjameistari“ (í Dungeons & Dragons kallast hann „dýflissumeistari“ eða „DM“) og er hálf­ gerður leikstjóri þegar kemur að sögunni og dómari þegar kemur að reglum leiksins. Hann stjórnar heiminum sem að sagan á sér stað í og öllum aukapersónum sem að aðalsögupersón­ urnar eiga samskipti við, hvort sem það séu vinir eða óvinir. Hinir í hópnum eru svo það sem kallast „spilarar“

36 | ASKUR

og taka það að sér að leika og stjórna einni af aðalsögupersónum sögunnar. Allar sögupersónur í spunaspilum hvort sem það séu aðalsögupersónurnar sem að spilararnir leika eða aukasögupersónur, skrímsli og vættir sem að leikjameistarinn spilar eru oftast búnar til með því að skilgreina á einhvern hátt líkam­ lega og vitsmunalega getu þeirra, yfirleitt með einhverskonar tölfræði. Ef við tökum spilið Dungeons & Dragons sem dæmi, þá eru allar persónur með þrjá líkamlega og þrjá vitsmunalega eiginleika (e. ability scor­ es). Þeir líkamlegu eru styrkur (e. strength), fimi (e. dexterity) og hreysti (e. constitution) og þeir vitsmunalegu eru greind (e. intelligence), viska (e. wisdom) og þokki (e. charisma). Öllum þessum eiginleikum eru svo gefin ákveðin „stig“ sem segja til um getu viðkomandi persónu á þessum sviðum. Þannig eru líkamlegir og vitsmunalegir eigin­ leikar persóna og vætta túlkuð á tölfræðilegan hátt sem að hefur svo áhrif á hversu vel þeim gengur að framkvæma það sem spilararnir vilja að þau reyni að gera í sögunni. En þegar kemur að því að framkvæma það sem persónurnar vilja gera þá eru það ekki bara þessir eiginleikar sem að segja til um hvort þeim takist verknaðurinn eða ekki, þeir vissulega hjálpa og velta voginni þeim í hag, en það getur alltaf eitthvað farið úrskeiðis og þar koma teningarnir inn í spilið. „Seinasti spilarinn við borðið“ Í spunaspilum eru teningarnir oft kallaðir „sein­


asti spilarinn við borðið“ og beina oft sögunni í skemmtilega og óvænta átt með handahófs­ kenndri dómhörku sinni. Í Dungeons & Dragons er notast við tuttugu hliða tening (d20) þegar kemur að því að rúlla upp á hvort þér takist að gera eitthvað eða ekki. Þessi gjörsamlega hlutlausi leikmaður hefur loka­ orðið þegar kemur að því að ákveða hvort að sögupersónu tekst að framkvæma það sem það sem þau eru að reyna gera, hvort sem það er að stökkva yfir gjá, sannfæra konung um sakleysi sitt eða koma auga á lykilinn að dýflissunni sem er falinn í bókahillu varðstjórans. Eiginleikarnir sem ég nefndi hér á undan gera líkurnar þínar betri þegar þú rúllar teningnum og bæta tölum við það sem kemur upp á teningnum, en það er alltaf hægt að rúlla illa. Á móti kemur að jafnvel þótt þú sért ekki með þá eiginleika sem gera þig betri í því sem þú ert að taka þér fyrir hendur þá er alltaf hægt að rúlla vel og er fátt meira spennandi en að rúlla 20 á tuttugu hliða tening þegar að líf sögupersóna er í húfi.

Dungeons og Dragons bardagi

Ljósm. Rocco Pier Luigi

OPIÐ HÚS

12.–13. febrúar kl. 9 00–16 00 Helgina 12.–13. febrúar mun STRIK vera með opið hús á Laugavegi 59, 101 Reykjavík. Við hvetjum alla til að koma og kynna sér stefnu okkar og hverju mætti breyta og bæta þegar kemur að því hvernig við hugsum um húsnæði. Einnig munum við vera með kynningu á samstarfi okkar við Reykjavíkurborg. Kaffi og kleinur í boði.

@strikarkitektar @strikarkitektar @strikarkitektar 7

Laugavegur 59 | 101 Reykjavík

555 1337

www.strik.is

strik@strik.is


Undirbúningur Þegar byrjað er að spila koma spilarar og stjórn­ andi sér saman um það í hvaða heimi (eða jafn­ vel hvernig heimi) sagan mun eiga sér stað í. Í boði eru heimar sem eru nú þegar til, bæði í sögu Dungeons & Dragons eða jafnvel úr öðrum sögubókum, kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum. Spilarar gætu þess vegna tekið sig saman og ákveðið að segja sögu sem að á sér stað í heimi J.R.R. Tolkien þar sem þau segja sögu fjögurra einstaklinga sem að eru að takast á við sín eigin vandamál á meðan að annars staðar í heiminum eru Frodo og hans vinir að fara með hringinn eina til Mordor. En einnig getur leikjameistarinn tekið það að sér að búa til algjörlega nýjan heim frá grunni fyrir spilarana til að uppgötva, skapa sögu og spila í. Eftir að heimurinn er ákveðinn þá er komið að því fyrir spilarana að búa sér til sögupersónur. Eftir því hvaða reglukerfi, spil, og heim þau eru að fara segja söguna sína í fylgja spilarar ákveðnum leiðbeiningum sem ákveða líkamlegu og vits­ munalegu eiginleika persónunnar sem ég minntist á áðan. Oft er notast við teninga til þess að gera ferlið handahófskenndara og auka líkurnar á því að persónur séu góðar í sumu en ekki öllu. Þetta gefur hverri sögupersónu mismunandi kosti og galla og eykur líkurnar á því að hver sögupersónu fái tækifæri til að skína í mismunandi aðstæðum. Ef við tökum Dungeons & Dragsons aftur sem dæmi, byrjum við á að ákveða hverslags vera persónan er t.d. mannvera, álfur, orki eða hobb­ iti. Allar hafa þessar verur sína kosti, eiginleika, menningu og tungumál. Eftir að þetta hefur verið ákveðið er komið að því að velja sér „stétt“ (e.

8

class) sem að getur þá verið t.d. galdrakarl/kona (e. wizard), bardagamaður/kona (e. fighter) eða klerkur (e. cleric) og mun þetta segja til um hvaða hæfileika persónan þín hefur hvort sem það eru máttugir galdrar, yfirburðar hæfileikar í að slást með sverði, eða að geta kallað fram mátt Guðanna til að lækna sár eða jafnvel reisa upp hina látnu. Persónuleiki sögupersónunnar er svo fullkom­ lega í höndum spilarans en þau geta nýtt sér þær upplýsingar sem þær hafa nú þegar skráð um persónuna til að fá hugmyndir um hvernig sögupersónan muni haga sér. Spilarar eru með fullkomið frelsi til að túlka sínar sögupersónur eins og þau vilja og reyna að gera allt það sem þeim dettur í hug. Það eina sem heldur aftur að því sem þau taka sér fyrir hendur eru eiginleikar persónurnar sem þau hafa skráð hjá sér þegar þau bjuggu persónuna til og teningakastið. Hvernig vinnur maður? Það er í rauninni engin leið til að vinna eða tapa í spunaspili eða allavega ekki á þann hátt sem að flest okkar eru vön þegar kemur að spilum. Sögupersónurnar geta dáið eða mistekist í því sem þau ætla að taka sér fyrir hendur en hægt er að líta svo á að ef dauði persónunnar eða mistökin gera það að verkum að sagan verður betri og allir eru að skemmta sér þá sé það ákveðinn sigur. Á móti kemur að jafnvel þótt að sögupersónurnar takist það sem þær eru að taka sér fyrir hendur og leysa þraut eða sigrast á óvini en fundu aldrei fyrir hættu eða mótspyrnu þá verður það til að sagan verður ekki jafn áhugaverð og spennandi og mætti líta svo á að það sé ákveðinn ósigur.


Varnarkasts kunnátta

Aðal eiginleiki

Lífs teningar

Brynju og vopna kunnátta

Stétt

Lýsing

Barbari

Grimmur stríðsmaður af frumstæðum uppruna sem getur gengið berserksgang

d12

Styrkur

Styrkur & hreysti

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar vopn

Bárði

Hvetjandi töframaður sem endurómar tónlist sköpunar­ innar

d8

Þokki

Fimi & þokki

Létt herklæði, einföld vopn, hand lásbogar, langsverð, skilmingarsverð, stuttsverð

Klerkur

Prestleg kempa sem beitir guðlegum töfrum í þjónustu æðri máttar

d8

Viska

Viska & þokki

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn

Drúíði

Prestur af gömlu trúnni, með krafta náttúrunnar. Tunglsljós og plöntuvöxtur. Eldur og eldingar. Einnig geta þeir breytt sér í dýr

d8

Viska

Greind & viska

Létt og miðlungs herklæði (málmlaus), skyldir (málmlausir), kylfur, rýtingar, pílur, kastspjót, málmkylfur, stafir, scimitar, steinslöngvur, spjót

Bardagamað­ ur/kona

Meistari í bardaga, þjálfaður með margs konar vopn og herklæði

d10

Styrkur & fimi

Styrkur & hreysti

Öll herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar vopn

Munkur

Meistari í bardagalistum, sem beitir krafti líkamans í leit að líkamlegri og andlegri fullkomnun

d8

Fimi & viska

Styrkur & fimi

Einföld vopn, stuttsverð

Trúvörður

Heilagur kappi bundinn heilögum eið

d10

Styrkur & þokki

Viska & þokki

Öll herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar vopn

Rekki

Stríðsmaður sem notar bar­ dagahæfileika og náttúrutöfra til að berjast gegn ógnum á jaðri siðmenningar

d10

Fimi & viska

Styrkur & fimi

Létt og miðlungs herklæði, skyldir, einföld vopn og hernaðar vopn

Þrjótur

Skúrkur sem notar laumuspil og brögð til að yfirstíga hindr­ anir og óvini

d8

Fimi

Fimi & greind

Létt herklæði, einföld vopn, hand lásbogar, langsverð, skilm­ ingarsverð, stuttsverð

Seiðkarl/kona

Töframaður/kona sem notar eðlislæga töfra frá gjöf eða blóðlínu

d6

Þokki

Hreysti & þokki

Rýtingar, pílur, steinslöngvur, stafir, léttir lásbogar

Seiðskratti

Töframaður/kona sem mund­ ar galdra sem eru sprottnir af samkomulagi við dulræna veru

d8

Þokki

Viska & þokki

Létt herklæði, einföld vopn

Vitki

Fræðilegur töfranotandi sem er fær um að stjórna strúktúr raunveruleikans

d6

Greind

Greind & viska

Rýtingar, pílur, steinslöngvur, stafir, léttir lásbogar


RPG tölvuleikir Áhrif spunaspilanna hafa náð víða og kemur það kannski engum á óvart að leið þeirra lá að einhverju leiti að heimi tölvuleikjanna. Bæði spunaspil/hlutverkaspil og tölvuleikir litu fyrst dagsins ljós í byrjun áttunda áratugarins og það tók tölvuleikjahönnuði ekki langan tíma að sækja innblástur í heim spunaspilanna. Fyrsti hlutverkaleikurinn

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Leikurinn „pedit5“ sem einnig var kallaður „The Dungeon“ (Dýflissan) var búinn til 1975, ári eftir að Dungeons and Dragons kom fyrst út. Þetta er af mörgum talinn einn fyrsti leikurinn til að sækja innblástur frá spunaspilum. Þar stjórnuðu spilarar ævintýramanni sem að ráfaði um dýflissu og sankaði að sér fjársjóði og barðist við skrímsli með bæði vopnum og göldrum. Á þessum tíma voru tölvur það frumstæðar að þær höfðu ekki tök á að skapa þær aðstæður og ævintýraheima sem að ímyndunaraflið gat framkallað við spilaborðið, en þetta bauð upp á það að geta spilað án annara spilara og líkir eftir hinu klassíska „dýflissuskriði“ (e. dungeon crawl) sem var algengt á þeim tíma í spunaspilum. Í því var lögð minni áhersla á að segja einhverja flókna sögu og lifa sig inn í ævintýraheiminn og meiri áhersla á að berjast við skrímsli og sanka að sér fjársjóðum. Í kjölfarið af þessu komu út fleiri og fleiri hlut­ verkatölvuleikir. Þessir leikir tóku ekki bara inn­ blástur frá Dungeons & Dragons en einnig skrifum J.R.R. Tolkien, goðafræði, fornum bókmenntum eins og sögunni af Gilgamesh, og jafnvel skák.

Ultima og Wizardry Í byrjun níunda áratugarins komu svo út leikirnir Ultima og Wizardry, sem að byrjuðu að móta grunninn að því sem við í dag köllum RPG tölvuleiki eða hlutverkaleiki. Þar var lögð meiri áhersla á að segja epískar sögur, þú stjórnað­ ir einni aðal persónu og gast fengið til liðs við þig fleiri persónur og myndað föruneyti og öll kerfi sem að voru notuð til að skilgreina getu og styrk persóna urðu flóknari og nákvæmari með hjálp aukinar reiknigetu tölvunnar. Með tímanum jókst einnig geta tölvunnar í að birta heiminn og persónurnar í betri gæðum.

Ultima 1

Skjáskot: Felipe Pepe

Það var einnig í þessum leikjum þar sem leikja­ hönnuðir byrjuðu að þróa meira hvernig mætti nýta þessa leiki í að segja nýjar og áhugaverðar sögur þar sem að spilarinn hefur bein áhrif á söguna og í rauninni „lifir“ í gegnum þær að­ stæður sem að eiga sér stað í sögunni. Sögurnar í leikjunum byrjuðu að tækla samfélagsvandamál eins og bókstafstrú, rasisma og menningarfælni og klæða þau í ævintýrabúning og létu þig, þá sem spilara, þurfa að horfast í augu við og takast á við þessi vandamál. Tilkoma JRPG leikja

Leikurinn pedit5

40 | ASKUR

Skjáskot: Felipe Pepe

Ultima og Wizardry eru taldir hafa verið einn helsti innblástur fyrir tölvuleikjahönnuði í Japan til að búa til leikina Dragon Quest og Final Fantasy og með komu þeirra á sjónarsviðið varð til hálfgerð tví­ skipting á hlutverkatölvuleikjum sem að þróuðust svo í mismunandi áttir. Þetta varð seinna skilgreint


sem vestrænir­ og austrænir hlutverkaleikir eða WRPG og JRPG (e. western role playing game og japanese roleplaying game) Vestrænir hlutverkaleikir lögðu meiri áherslu á að gefa þér meira val í að móta aðalsöguhetjuna þína og láta þig taka ákvarðanir í sögunni sem að móta persónuleikann þeirra og siðferði. Þetta var yfirleitt gert með því að gefa þér tvo eða fleiri valmöguleika í hvað sögupersónan þín segir þegar hún er að tala við aðrar persónur í leiknum. Oft fékkstu einnig tækifæri á að búa til fleiri en eina aðalsögupersónu og gast ákveðið hvaða hæfileika og eiginleika þær voru með og meira að segja ákveðið hvernig þær litu út. Þetta var að sjálfsögðu ekki alheimslögmál og voru að sjálfsögðu leikir inn á milli sem að höfðu tilbúnar sögupersónur sem að þú hafði samskipti við og gast fengið til liðs við þig, en aðalsögupersónan þín var nánast alltaf það sem oft er kallað „autt blað“ (e. blank slate) og fyrir vikið þarf sagan í leiknum oft að vera aðeins opnari og ekki jafn markviss þar sem leikurinn þarf að gera ráð fyrir mörgum mismunandi útgáfum af sömu sögupersónunni. Austrænir hlutverkaleikir aftur á móti lögðu meiri áherslu á að segja markvissari sögu þar sem að aðalsögupersónan sem þú leikur er meira mótuð þegar þú tekur við henni. Hún er yfirleitt með skilgreinda baksögu og þú hefur litla stjórn

um hver persónuleikinn hennar er eða hvernig hún bregst við aðstæðum. Aukasögupersónur sem að slást í för með þér eru einnig töluvert mikilvægari í sögunni og eru oft alveg jafn mikilvægar og aðalsögupersónan sem þú byrjar leikinn með. Þetta gaf hönnuðunum aukna stjórn þegar kom að því hvernig sagan í leiknum er sögð. Það var ekki þar með sagt að þú hafðir engar stórar ákvarðanir til að taka í leikjunum eða val um hvern­ ig persónurnar þínar þróuðust, en þessar ákvarð­ anir höfðu yfirleitt minna að gera með söguna og meira að gera með á hvaða hátt hæfileikar sögupersónunnar þinnar þróuðust og hvernig hún kom til með að vera í spilun.

Final Fantasy 1 á NES

Skjáskot: John Nguyen

Tölvuleikja bæklingar Áður en að tölvuleikir byrjuðu að vera nánast alfarið seldir í rafrænu formi, þá fylgdi nánast undantekningarlaust reglubæklingur með tölvuleiknum. Þar mátti þó finna meira en bara útskýringar á reglum leiksins. Þar vor oft heilmikil baksaga og annar texti sem útskýrði heim og persónur leiksins. Hlutverka tölvuleikir voru mjög gjarnan með mjög þykka og efnismikla bæklinga þar sem mikið var af baksögu, persónum, og flóknum reglum sem þurfti að útskýra. Nú til dags eru leikir orðnir töluvert betri í að flétta útskýringum sínum inn

í leikinn sjálfan og er mjög sjaldgæft að tölvuleikjum fylgi bæklingar.

ASKUR | 41


Raunspilunarþættir (e. actual play shows) Raunspilunarþættir eru hlaðvörp eða þættir á netinu þar sem hópur fólks kemur saman og spilar spunaspil öðrum til skemmtunar. Margir telja að þeir eiga rætur sínar að rekja í tímarit sem fjalla um spunaspil og herkænskuborðspil eins og Warhammer og Warhammer 40K. Þar var reglu­ lega að finna það sem er kallað „leikjaskýrsla“ (e. play report) þar sem var sagt frá skemmtilegum atvikum sem gerðust í annað hvort spuna­ eða herkænskuspilum á skemmtilegan og oft dramat­ ískan hátt. Það er mjög algengt að fólk sem spilar spuna­ spil eða herkænskuspil finnist fátt skemmtilegra en að deila sögum af uppátækjum sínum við spila­ borðið. Hvort sem að það er fyndið atvik, hetju­ legur dauðdagi eða saga af ótrúlegri heppni eða óheppni þá er oft ómögulegt að fá viðkomandi til að hætta að tala eftir að frásögnin er hafin. En það sem kemur oft á óvart er hversu skemmtilegar þessar sögur geta verið (þ.e.a.s. ef að einstak­ lingurinn sem að segir þær er góður að segja frá þeim) og það að skiptast á sögum frá spilaborðinu er líklega hefð sem er jafn gömul og spilin sjálf. Þetta þróaðist svo út í það með tilkomu hlað­ varpa, youtube og streymiþjónustum eins og twitch að milliliðurinn var í rauninni tekinn í burtu og fólk gat upplifað þessar sögur í rauntíma með því að horfa eða hlusta á fólk spila á netinu.

Texti: Ívar Daníel Karlsson

Acquisitions Incorporated Talið að fyrsti raunspilunarþátturinn hafi orðið til árið 2008 þegar að framleiðendur Dungeons & Dragons, Wizards of the Coast hófu í sam­ starfi við internet teiknimyndasögu framleið­ endurna í Penny Arcade, hlaðvarpið Acquisitions Incorporated. Upprunalega áttu þetta bara að vera nokkrir þættir þar sem vefteiknimyndasögu framleiðendurnir þeir Jerry Holkins, Mike Krahulik og Scott Kurtz spiluðu nokkur stutt ævintýri í fjórðu útgáfu Dungeons & Dragons undir leiðsögn Chris Perkins. Fjórða útgáfa Dungeons & Dragons var nýkomin í hillurnar og átti þetta að vera kynning­ arefni fyrir spilið og gátu þá hlustendur fengið að

42 | ASKUR

heyra hvernig nýja útgáfan var í spilun. Hlaðvarpið fékk aftur á móti ótrúlega góðar viðtökur og árið 2010 byrjuðu spilararnir að streyma spilið á árlegu PAX hátíðinni. Acquisitions Incorporated hefur síðan þá fært anga sína yfir á twitch og youtube og eru þættirnir ennþá í gangi meira en 10 árum síðar. Critical Role Í kjölfarið af velgengni Acquisitions Incorporated hófu fleiri að framleiða raunspilunarþætti á netinu og eru þættirnir Critical Role líklega þeir vinsælustu. Í þáttunum koma saman atvinnu raddleikarar og spila Dungeons & Dragons und­ ir leiðsögn raddleikaranns og spunameistarans Matt Mercer. Þó svo að Acquisitions Incorporated væru fyrstir á svið þá má segja að þeir hafi bara verið að hita upp fyrir Critical Role. Þættirnir hafa notið ótrúlegra vinsælda og hefur þeim verið lýst af vefsíðunni VentureBeat sem ábyrgir fyrir því að gera raunspilunarþætti að „nýrri tegund af afþreyingarefni“. Critical Role hafa líka annað slagið verið með sér þætti sem þau kalla „CelebriD&D“ þar sem þau fá til sín fræga leikara til að spila með sér Dungeons & Dragons. Gestir í þáttinn hafa t.d. verið leikararnir Vin Diesel, Terry Crews og John Bradley. Árið 2019 hófu þau svo fjáröflun á síðunni Kickstarter til að reyna fjármagna gerð á teikni­ myndaseríu byggða á Critical Role þáttunum. Þættirnir áttu að heita The Legend of Vox Machina og mundu vera forsaga atburðanna og sögunnar í Critical Role. Fjáröflunin gekk ótrúlega vel og tókst þeim að afla 11,39 milljón Bandaríkjadala og setti met fyrir mestu fjármögnun fyrir kvikmynda­ eða sjónvarpsefni í sögu vefsíðunnar. Dimension 20 Nýleg viðbót við heim raunspilunarþátta eru þættirnir Dimension 20 þar sem að hópur spuna­ grínista koma saman að spila D&D með kómísku ívafi. Þættirnir eru sprottnir út frá grínrásinni Col­ lege Humor á youtube og er flestum þáttunum


stjórnað af meðlimi College Humor, honum Brennan Lee Mulligan. Þættirnir eru gefnir út í 4–18 þátta seríum og segja sögur sem eru yfirleitt einhverskonar flétta á þekktum ævintýra stílbrigð­ um. Ein serían gerist t.d. í heimi sem er hálfgerð blanda af ævintýraheim fullum af göldrum, álfum, djöflum og drekum í bland við bandarískar háskóla táningsbíómyndir frá níunda áratugnum eins og t.d. The Breakfast Club. Þar eru álfar, mannverur, orkar og dvergar saman í ævintýraháskóla þar sem þau læra að verða hetjur en á sama tíma þurfa að hafa áhyggjur af í hverju þau ætla að vera á skólaballinu. Þættirnir hafa fengið góðar viðtökur og hafa fengið mikið lof fyrir að vera með góða túlkun og framsetningu á LGBTQ persónum og spilurum og hafa bætt viðhorf og viðmót til LGBTQ fólks innan spunaspilunar menningarinnar. Spunaspil, líkt og tölvuleikir voru því miður lengi vel séð sem hálf­ gerður „strákaklúbbur“ þar sem fordómar gegn kvenfólki og hinsegin fólki viðgekkst allt of lengi en þættir eins og t.d. Dimension 20 hafa átt stóran þátt í því að breyta þessu viðhorfi til hins betra.

VIÐ „BJÚGUM“ Í SAMFÉLAGI! Ráðstefna um fjárhags– og efnahagslegt jafnrétti Í Hörpu 1.–2. desember

Skannaðu og skráðu þig! Glotthundar (e. gnolls)

Mynd: LadyofHats

13


Kolbrún Kristjánsdóttir Eftir að hafa verið fyrst nemandi hér fyrir löngu er ánægjulegt að mæta hingað aftur og læra nýja iðn. Fyrir aldarfjórðungi lauk ég sveinsprófi í ljós­ myndun og lífið hefur tekið margar og stundum óvæntar stefnur síðan. Ég hef verið búsett erlendis um árabil og það hef­ ur verið sérstakt að koma nú til Íslands, í miðjum heimsfaraldri, og setjast aftur á skólabekk. Það var sérlega ánægjulegt að mæta til leiks‚ í gamla Stýrimannaskólann, byggingu sem ég hef alltaf verið hrifin af. Þetta er tignarlegt og fallegt hús með afar fjölbreyttu og fallegu útsýni. Ég starfaði lengi hjá Stöð 2 í Skaftahlíð og var með barn í Ísaksskóla og að vissu leyti finnst mér ég vera hér á heimaslóðum því héðan úr Hlíðunum á ég margar góðar minningar og þekki svæðið vel. Þegar ég hóf störf í fjölmiðlum þurfti ég að leggja ljósmyndunina til hliðar þangað til ég fór að vinna við útgáfu og myndvinnslu fyrir nokkrum árum. En þegar ég var nemi í ljósmyndun voru enn einhver ár í að stafræna formið liti dagsins ljós. Allt var tekið á filmur og framkallað í myrkrakompu þar sem beðið var með eftirvæntingu eftir að töfrarnir spruttu fram. Eftir því sem hönnunarverkefnin urðu fleiri hjá mér og flóknari, fann ég síðan að þekking mín á helstu Adobe forritum var ekki upp á marga fiska.

Það var því happafengur fyrir mig að lífsins ferðalag leiddi mig á endanum í kennslustundir í grafískri miðlun. Í Tækniskólanum er fagfólk að störfum sem býr yfir mikilli og góðri þekkingu í faginu. Við mannfólkið þurfum nefnilega að uppfæra þekkingu okkar rétt eins og við uppfærum tækjabúnaðinn og forritin sem við notum. Lífið tekur breytingum og við vitum sjaldnast hvert það leiðir okkur. Sjálf er ég þannig úr garði gerð að ég sit sjaldan auðum höndum. Yfirleitt hef ég nokkur járn í eldin­ um og oftar en ekki finn ég mig í listsköpun. Hér á síðunni er hluti af safni abstrakt ljósmynda sem ég tók á skrifstofunni minni þegar útgöngubann stóð yfir. Það var mín leið til að iðka núvitund. Að beina myndavél símans að skuggum og sólarljósi dags­ birtunnar. Eins hef ég vott af söfnunaráráttu en til allrar lukku er þar ekki um veraldlega hluti að ræða, heldur lén og Instagram reikninga. Ég hef fyllt kvót­ ann af Instagram reikningum og þann nýjasta þurfti ég að gera í nafni annars þar sem kvótinn minn var sprengdur: #kamalaquotes hefur því miður legið í dvala þar sem ég hef verið svo upptekin í náminu. Eftir útskrift verður því fyrsta verkefnið á to­do listanum að blása í lífi í instagramið um Kamala Harris, varaforseta Bandaríkjanna.


Skíðamaður á Birnudalstindi 2020

Texti: Tómas Guðbjartsson. Myndir: Ólafur Már Björnsson.

Frábær fjallaskíðatindur Birnudalstindur er með skemmtilegri tindum íslenskum, hvort sem ferðast er á tveimur jafnfljótum eða á fjallaskíðum. Hann telst ekki til hæstu tinda á Íslandi, tæpir 1400 metrar, en einstak útlit og magnað tindaumhverfi bæta upp hæðina. Fáir tindar á Íslandi bjóða upp á annað eins útsýni og Birnudalstindur og brekkurnar ofan af honum eru einhverjar bestu fjallaskíðabrekkur landsins. Ekki er verra að nokkrar miskrefjandi leiðir eru í boði upp og niður af tindinum. Hér segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og fjallageit frá helstu göngu- og fjallaskíðaleiðum á þennan magnaða tind sem hann hefur margsinnis toppað gangandi og á fjallaskíðum. Birnudalstindur er einn fjölmargra tinda í sunnanverðum Vatnajökli, nánar tiltekið í Kálfafellsfjöllum upp af Suðursveit. Tindurinn er 1396 m hár og úr suðri minnir hann á sökkvandi skip, líkt og skuturinn á Titanic stingist í hvítan sæ Vatnajökuls. En það er ekki aðeins tindurinn og klettabeltið neðan hans sem vekja athygli því í næsta nágrenni hans er ógrynni tilkomumikilla tinda, m.a. bræður hans Kaldárnúpur (1406 m) og Þverártindsegg (1544 m). Landslagið minnir óneitanlega á Alpana, enda sundurskornir dalir Kálfafellsfjalla einhverjir þeir hrikalegustu sem fyrirfinnast á Íslandi. Skriðjöklar steypast niður snarbrattar hlíðar og í dalbotnum tekur við net jökulfljóta sem minna á kransæðar í mannshjarta. Þekktastur er Kálfafellsdalur og inn af honum

46 | ASKUR

Þverártindsegg, sem er einhver skemmtilegasta jöklaganga hérlendis og skartar skriðjökli á miðri leið sem heitir því skemmtilega en viðeigandi nafni Skrekkur. Austan við Kálfafellsdal er opnari en ekki síður fallegur dalur, Staðardalur. Inn af honum til vesturs tekur við Birnudalur, sem ekki lætur mikið yfir sér í fyrstu. En þegar komið er inn fyrir mynni Birnudals opnast fjallaleikhús með einhverri mögnuðustu fjallasýningu sem í boði er á Íslandi. Best er að leggja til atlögu við Birnudalstind að vori til eða snemmsumars þegar snjór hylur brekkur sem annars geta verið lausar og erfiðar uppgöngu. Það tekur tæplega 5 klst. að aka úr höfuðborginni í Suðursveit en þar bjóðast margir spennandi gististaðir. Bæirnir Hali og Gerði liggja niður að sjó og bjóða upp á einstakt útsýni til vesturs að Öræfajökli. „Skyndilega blasir Birnudalstindur við í öllu sínu veldi og langar snjóbrekkur suður af honum.“ Ekið er að Kálfafellsstaðarkirkju sem staðsett er milli Kálfafells- og Staðardals. Frá henni er rúmlega 4 km ganga á jafnsléttu inn að mynni Birnudals og er fylgt jeppavegi. Hægt er að semja við landeigendur og keyra þennan jeppaslóða sem styttir gönguna um samtals 8 km. Haldið er upp stöllóttar hlíðar sunnan megin Birnudalsár og eru tilkomumiklir fossar á hægri hönd. Smám saman minnkar brattinn og þá er lag að koma sér yfir Birnudalsánna sem oftast má stikla á


steinum. Haldið er áfram inn eftir Birnudalnum og opnast fjallasalurinn sífellt meir eftir því sem innar er komið. Skyndilega blasir Birnudalstindur við í öllu sínu veldi og langar snjóbrekkur suður af honum. Þessum brekkum er fylgt áleiðis upp að klettabelti neðan tindsins en þá er sveigt til vesturs upp á hrygg sem síðan leiðir upp á tindinn. Síðasta brekkan getur verið varasöm og sérstaklega þarf að gæta að snjóflóðum. Ef gengið er upp á fjallaskíðum er skynsamlegt að ganga síðasta spölinn á mannbroddum með skíðin á bakpokanum. Á hálsinum vestan Birnudalstinds býðst eitt stórkostlegasta útsýni á íslensku fjalli. Þarna er bókstaflega horft ofan í hrikalegan Kálfafellsdalinn sem handan dalsins skartar Þverártindsegg og Skrekk í öllu sínu veldi. Aðeins norðar er torkleift og spísslaga fjall sem heitir Snæfell og er oftast kennt við Vatnajökul. Lengra í vestur sést í Öræfajökul, Sveinstind og Sveinsgnípu en í suðri sést í svarta suðurströndina sem teygir sig alla leið að Vestra Horni og Hornafirði. Af þessum

útsýnispalli er stutt á hátindinn en þar sést betur yfir austanverðan Vatnajökul. Þar er Skálafellsjökull í forgrunni, en í norður sést í Kaldárnúp og alla leið til Kverkfjalla. Á toppnum er tilkomumikið útsýni Af tindi Birnudalstinds bjóðast þrjár leiðir, allar frábrugðnar og miskrefjandi. Oftast er gengin sama leið niður, þ.e. eftir Birnudalnum sem er 15 km ganga í heildina frá mynni dalsins, en 8 km lengri ef bílar eru skildir eftir við Kálfafellsstaðarkirkju. Vant göngufólk í góðri þjálfun ætti að spá í svokallaða tindaleið en aðeins ef veður er gott og ekki hætta á snjóflóðum. Er þá gengið af Birnudalstindi í suðvestur eftir eggjum tindanna sem skilja að Kálfafellsdal og Birnudal. Þarna bætist hratt í tindasafnið enda þótt fæstir þessara glæsilegu tinda séu merktir með nafni á kortum. Í góðu skyggni er þessi gönguleið einstök upplifun en á sama tíma krefjandi. Þegar komið er á síðustu tindana ofan kirkjunnar á Kálfa-

Viltu lækka hitakostnaðinn? Við bjóðum upp á varmadælur fyrir heimili, sumarhús og atvinnuhúsnæði. RAUÐUR

HVÍTUR

SVARTUR

PERLU HVÍTUR

Lambhagavegi 5 | 113 Reykjavík | Sími 516 2600 | www.vorukaup.is


Gengið á skíðum upp Birnudalstind

fellsstað er mikilvægt að velja rétta niðurleið því þarna er auðvelt að villast og gönguleiðin brött. Þriðja leiðin á Birnudalstind er ekki síst spennandi fyrir fjallaskíðafólk. Útsýni á leiðinni til austurs er frábært og tindarnir sem stingast eins og kirkjuturnar upp úr jöklinum vestan megin eru mikið augnayndi. Þegar komið er að skipsskrokk Birnudalstinds opnast lítið skarð sem veit að brattri snjóbrekku sunnan tindsins. Brekkan er skáuð en því aðeins að ekki sé hætta á snjóflóðum. Þegar komið er vestur fyrir klettabeltið er haldið upp á útsýnisöxlina sem áður var lýst fyrir hefðbundnu gönguleiðina. Af hátindinum geta vanir skíðamenn skíðað samfellt niður Birnudal og verður bunan lengri eftir því sem ferðin er farin fyrr að vori.

Gæta verður að giljum og fossum sem geta verið á leiðinni og best að halda sér austan megin Birnudalsár uns komið er að staðnum þar sem áin er stikluð eða vaðin. Neðsta hlutann verður yfirleitt alltaf að bera skíðin á bakpokanum en á góðum degi má oft sjá hjarðir hreindýra ofan í Staðardal. Áður en haldið er heim á leið er tilvalið að koma við á Þorbergssetri á Hala. Þar fæddist og óx úr grasi Þórbergur Þórðarson rithöfundur (1888–1974), en náttúru Suðursveitar gerði hann ódauðlegaa í bókum eins og Steinarnir tala. Á safninu er ævi hans rakin og hægt er að kynna sér verk hans og tilvitnanir sem oft áttu sér kveikju í náttúru Suðursveitar umhverfi sem ekki lætur neinn ósnortinn sem þangað kemur.


Að fara þarna út á og halla sér yfir handriðið er eins og að vera í lausu lofti

Lofthræðsla

Texti: www.kms.is

Mynd: Hafþór Gunnarsson

Lofthræðsla (height phobia) er yfirdrifinn eða órökréttur ótti við að vera í mikilli hæð. Þegar lofthræddir eru í aðstæðum sem þeir óttast finna þeir fyrir skyndilegum og ofsafengnum ótta sem getur tekið á sig form nokkurs konar kvíðakasta. Lofthræðsla leiðir iðulega til forðunar frá stöðum sem eru í einhverri lofthæð og þarf að valda mikilli vanlíðan eða hömlum á daglegu lífi fólks til þess að ná því að vera yfirdrifinn ótti við hæð eða það sem í sálfræði er kallað fælni. Þannig myndum við ekki kalla það fælni ef að manneskja sem óttast það að vera í mikilli hæð hefur sjaldan ástæðu til þess að vera á stöðum í mikilli hæð. Hafi manneskja á hinn bóginn það að atvinnu að keyra en forðast að keyra yfir brýr eða upphækkaða vegi vegna lofthræðslu myndum við greina slíkt sem fælni vegna mögulegrar truflunar sem það myndi valda viðkomandi í starfi. Þær aðstæður sem lofthræddir hræðast gjarnan eru stigar, húsþök, að standa uppi á stól eða borði, að ganga eða keyra yfir brú, að keyra á upphækkuðum vegum, að nota lyftur, að vera í glerlyftu, að fara upp háar byggingar, að horfa á kvikmyndir sem sýna mikla lofthæð, að nota brunastiga, að vera úti á svölum, að

sitja á svölum í bíó eða leikhúsi. Auðvitað er það svo að fólk með lofthræðslu sem fælni forðast ekki allar þessar aðstæður. Um það bil ein af hverjum fimm manneskjum eiga við töluverða lofthræðslu að etja en aðeins um 5% fólks hefur lofthræðslu á stigi þess sem við köllum fælni. Lofthræðsla er næstum því jafn algeng meðal karla og kvenna. Meðalaldur byrjunar á lofthræðslu er um 15 ára en hún getur þó komið fram á hvaða aldri sem er. Orsakir lofthræðslu Yfirdrifin lofthræðsla hefur hingað til verið talin myndast, eins og aðrar tegundir fælni, með lærdómi sem dreginn er af erfiðri reynslu. Nýlegar rannsóknir benda þó til að slíkar skýringar segi ekki alla söguna þegar yfirdrifin lofthræðsla er fyrir hendi. Nú er talið að yfirdrifin lofthræðsla, ásamt óttanum við mikinn og skyndilega n hávaða, sé meðfædd fælni sem þarf ekki að tengjast raunverulegri reynslu. Talið er að lofthræðsla sé arfur frá forfeðrum okkar þar sem fall úr mikilli hæð felur í sér raunverulega hættu.

ASKUR | 49


Frá hugmynd að veruleika Fegurð Bolafjalls er stórkostleg og að er engin tilviljun að staðurinn er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Staðsetning ratsjárstöðvarinnar sem byggð var fyrir tæplega 30 árum árum setur líka allt umhverfi þarna uppi á fjallinu í annað samhengi. Þessi stóru mannvirkir gefa svæðinu dulúðlegan blæ í 638 metra hæð. Ratsjárstöðin var sett sett í gang í byrjun árs 1992 og var rekin í samvinnu varnarliðsins og NATÓ en er nú í umsjá Landhelgisgæslunnar. Það liggur brattur akvegur upp á Bolafjall og hefur vegurinn verið opinn bílum í júlí og ágúst. Ofan á Bolafjalli er rennislétt hrjóstrug háslétta og er þar útsýni til allra átta.

OFAN Á BOLAFJALLI ER RENNISLÉTT HRJÓSTRUG HÁSLÉTTA OG ER ÞAR ÚTSÝNI TIL ALLRA ÁTTA. Hugmyndin að uppbyggingu á Bolafjalli hefur nú orðið að veruleika og búið er að byggja veglegan útsýnispall sem gerir fjallið enn eftirsóknarverðara og dregur fram þá einstöku staðhætti og upplifun sem Bolafjall býður upp á. Hópurinn sem hannaði útsýnispallinn hefur lýst því að gögnin sem þau fengu voru mjög vel undirbúin og það hjálpaði mikið að ein út teyminu hafði nýlega heimsótt Bolafjall. Hönnunarhópinn lýsir því líka að þau hafi fundið fyrir feimni og hafi nálgast verkefnið af mikilli hógværð og fundist þau bera mikla ábyrgð að skila fallegu og góðu verki sem myndu gera fjallinu til hæfis. Hópurinn gætti þess að eiga gott samtal við alla sem komu að verkinu og velta upp hugmyndum sem síðan voru unnar áfram. Samtal sem leiðir til niðurstöðu er alltaf svo skemmtilegt í öllum verkum og leiðir til öðruvísi nálgunar og frjórra hugmynda. Það voru margar áskoranir á svæðinu sem við stóðum frammi fyrir og til að leysa þær áskoranir leituðum við í smiðju erlendra áfangastaða sem við skoðuðum bæði í máli og myndum og sáum fljótt hvað okkur líkaði

50 | ASKUR

Loftmynd af útsýnispalli

Mynd: Sei Studio

og líkaði ekki fyrir Bolafjall. Akvegurinn upp á fjallið var endurskipulagður þar sem hringakstur ofan á fjallinu var frekur í umhverfinu og of áberandi því halda þarf í víddina sem manni verður ljós þegar staðið er ofan á fjallinu, með ratsjárstöðina sér við hlið. Víddinn varð að veruleika með með útsýnispall sem yrði hluti af fjallinu, en ekki mannvirki eða kennileiti í umhverfinu. Útsýnispallurinn er hluti af fjallinu og falinn í hvarfi yfir yfirborðinu og aðgengilegur fyrir alla. Tröppur um miðbik pallsins henta líka vel ef mönnum snýst hugur á miðri leið, og eða bara til að sitja í ef lofhræðslan tekur völdin. Fjallið sjálft er ennþá kennileitið með ratsjárstöðina sér við hlið. Þannig helst gamla upplifunin, þar sem maður stóð á fjallsbrúninni og horfði yfir hengiflugið, nú sem fyrr.


Framkvæmdir við útsýnispallinn á Bolafjalli á lokastigi.

Mynd: Gullibyggir@stod2.is

Bolafjall á Vestfjörðum Segja má að Bolafjall sé á mörkum hins byggilega. Það hefur, eins og flest önnur fjöll á Vestfjörðum lítið breyst frá lokum síðustu ísaldar. Stærsta breytingin á umhverfi Bolafjalls hefur líklega verið uppbygging ratsjárstöðvar á vegum bandaríska hersins sem Íslendingar, nánar tiltekið Bolvíkingar, hafa nýverið erft. Ratsjárstöðin er þó ekki aðal aðdráttarafl staðarins, þó svo að vissulega sé hún kennileiti svæðisins, heldur er það tímalaust og áhrifaríkt útsýni Bolafjalls í allar áttir sem dregur að. Þrátt fyrir stærð stöðvarinnar hefur svæðið yfir sér mjög ósnortið yfirbragð og er það einstök upplifun að vera á Bolafjalli og skynja smæð mannsins. Með réttu inngripi gætu Bolvíkingar staðið upp með einstakan áfangastað í höndunum sem keppt gæti við helstu ferðamannastaði landsins og þó víðar væri leitað.

Frá bílastæði er akfær stígur að ratsjárstöðinni. Ásýnd bíla frá meginstíg og göngupalli er falin með hlöðnum veggjum og fínlegri hæðasetningu. Þessi nýja lega dregur líka úr áhrifum ratsjárstöðvarinnar þar sem aðkomuvegurinn liggur ekki beint að henni. Við bílastæðið er einskonar aðkomutorg afmarkað með grjóthleðslu úr flögugrjóti sem myndar hlið inn á svæðið. Aðkomutorgið er með flóruðu yfirborði, þarna er gert ráð fyrir að koma fyrir upplýsingaskiltum um staðinn og ratsjárstöðina. Bílastæðið er að öllu leyti unnið úr malarefnum líkast því sem fyrirfinnst á svæðinu s.s. möl í vegi og stíga ásamt grjóti til afmörkunar. Allir stígar eru þjappaðir malarstígar sem gerðir eru úr malarefni líkast því sem er á fjallinu, en aðalstígurinn sem liggur frá bílastæðinu að palli, er með aðgengi fyrir alla.

Ný aðkoma og hringleiðir Aðkomuvegur inn á svæðið endar á nýju bílastæði sem staðsett er sunnan við núverandi aðkomu.

Útsýnispallur við fjallsbrún Nýr útsýnisstaður við Bolafjall myndar nýtt þrep í Stigahlíðina og verður hluti af klettabeltinu. Helsta

Svar Íbúakönnun var framkvæmd í október 2019 að beiðni Bolungarvíkurkaupstaðar. Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ert þú gagnvart því að útsýnispallur verði byggður á Bolafjalli?

Fjöldi

Hlutfall

Mjög neikvæð(ur)

9

5,5%

Frekar neikvæð(ur)

18

11,3%

Hvorki jákvæð(ur) né neikvæð(ur)

34

22%

Frekar jákvæð(ur)

21

13,7%

Mjög jákvæð(ur)

74

47,5%

159

100%

Fjöldi þátttakenda


einkenni útsýnispallsins er að hann hallar um 3° niður á við eftir langhliðinni. Við upptök sín er pallurinn í landhæð en eftir hægan aðdraganda, þegar á enda pallsins er komið, er augnhæð komin niður fyrir landhæðina, og á einstöku augnabliki, þegar komið er handan fjallsbrúnarinnar, sér augað ekkert annað en fjallshlíðar Bolafjalls, hafið, Djúpið og firðina í kring. Með nálægðinni og snertinguna við fjallið verður til áður ómöguleg upplifun, sem skapar nánd og tengingu fyrir gesti við fjallið. Breidd pallsins er breytileg og tekur form sitt eftir formi fjallsins en pallurinn er 1,5 m þar sem hann er þrengstur. Í nálægð við norðurenda pallsins er komið fyrir tröppum, sem tengjast inn á hringleiðina, sem liggur meðfram pallinum. Tröppurnar falla inn í náttúrulegt skarð og eru felldar að landslaginu líkt og allur pallurinn. Hringleiðirnar sem liggja frá bílastæði liggja á milli nýrra útsýnisstaða sem gefa fólki tækifæri til þess að ganga fram á ystu brún fjallsins í fullkomnu öryggi. Á vel völdum stöðum við gönguleiðir um fjallið eru varðaðir staðir. Þar er komið fyrir litlum „útsýnisplatta“ fyrir þá sem ekki þora, eða þá sem kljást við lofthræðslu en langar til að upplifa það að komast nær brúninni. Þetta verða litlir útsýnisstaðir sem gefa fólki tækifæri til þess að ganga fram á ystu brún fjallsins í fullkomnu öryggi. Um er að ræða einhvers konar smápalla sem ganga nánast fram að fjallsbrún. Vörður verða hlaðnar við alla útsýnisstaðina,

Ratsjárstöðin á Bolafjalli.

Mynd: Aðalheiður E.

úr flögugrjóti sem finnast á svæðinu og munu hafa skýra tilvísun í eldri vörður á Vestfjörðum. Út frá hringleið til vestur er gert ráð fyrir stikaðri gönguleið eftir fjallinu. Innanlýst ratsjárkúla á Bolafjalli Lagt er til að kúla ratsjárstöðvarinnar verði endurbyggð, þar sem óreglulegt form flákanna, sem mynda kúluna, verður dregið fram. Kúlan verði endurbyggð úr hálfgegnsæju plasti, þannig að hægt verði að lýsa kúluna upp að innan við hátíðleg tilefni eða um einhvern tiltekinn tíma á veturna til þess auka aðdráttarafl staðarins utan háannatíma. Ljósin sem um ræðir verða sparneytnar LED díóður sem hægt verður að knýja með færanlegum aflgjafa, rafhlöðum við ratsjárstöðina. Aðkomuleiðin að ratsjárstöðinni hefur einnig verið aðlöguð að nýju bílastæði.

Höfundaréttur Það skiptir miklu að höfundar að bókmennta- eða listaverki á eignarétt á því frumlega My

verki sem hann skapar. Eignarétturinn er mikilvægur þar sem að baki hugverkinu liggur

n d:

framlag sem er oftast í formi vinnu og því er hugmyndin að tryggja m.a. fjárhagsleg

Ko lbr ún K ristjá ns d ó

réttindi þess sem skapar verkið í allt að 70 ár frá andláti höfundar.

ttir

Allir geta notið þess að sjá verkið á opinberum vettvangi en meginreglan er að það þarf að afla samþykkis frá höfundi til að nota verk hans opinberlega og greiða sanngjarna þóknun fyrir. Stundum má birta verkin opinberlega í þágu almannahagsmuna, t.d. við fréttaflutning og í þágu menntunar en þá verður að geta heimildar og birtingin má ekki vera í fjárhagslegum tilgangi. Sem dæmi má nefna að ef tekin er ljósmynd af listaverki eða byggingu þá er það heimilt en ef ljósmyndin er seld eða notuð í markaðssölu þá á höfundur rétt á greiðslu. Sjálfvirk tækni til að fylgjast með notkun hugverka í stafrænum heimi hefur fleygt fram og í einhverjum tilvikum hafa notendur þurft að greiða þóknun og jafnvel skaðabætur til höfunda hafi þeir ekki gætt að því að afla heimildar.


Örugg leiðsögn Wapp-Walking app hefur að geyma safn fjölbreyttra GPS leiðarlýsinga fyrir snjallsíma um allt Ísland með upplýsingum um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi til þess að njóta ferðarinnar sem best. Leiðarlýsingarnar notast við kortagrunn Samsýnar og þeim hlaðið fyrirfram inn í símann og svo notaðar án gagnasambands (offline). Ljósmyndir og eru í öllum leiðarlýsingum og er þar einnig að finna upplýsingar um árstíðabundinn aðgang, bílastæði, almenningssalerni og ef ástæða er til að benda á hættur eða önnur varúðarsjónarmið á leiðunum. Upplýsingapunktar koma fram á hverri leið sem er merkt sem leiðsögn og vísa í lífríki, jarðfræði, örnefni eða annað sögulegt sem tengist umhverfinu. Leiðarlýsingar sem eru merktar sem hreyfing innihalda ekki upplýsingapunkta. Leiðarlýsingarnar eru ýmist í boði styrktaraðila eða þær seldar notendum á vægu verði.

Leiðarlýsing og kort Notandi þarf að skrá inn notendanafn sitt í Apple eða Google til að geta hlaðið inn leiðum. Viðkomandi eignast leiðarlýsinguna með korti eftir fyrstu kaup og getur ekki keypt sömu leið tvisvar. Hægt er að nýta leiðarlýsinguna á öðrum tækjum sem sami notandi hefur yfir að ráða og hann nýtir notendanafn sitt úr Apple eða Google. Ef leiðarlýsing er fjarlægð úr tæki er hægt að hlaða henni aftur inn síðar án þess að greiða fyrir. Mælt er með því að fjarlægja leiðir úr tækinu öðru hvoru því að stundum eru leiðir uppfærðar ef þörf

Myndin sýnir gönguleið í forritinu.

krefur með auknum upplýsingum eða leiðin færð til á kortinu. Sumar leiðarlýsingar eru ókeypis og merktar þannig á Wapp-Walking app. Vegna reglna hjá Apple og Google þá þurfa sömu skilaboð að koma fram við kaup á leið sem kostar og hleðslu á leið sem er ókeypis. Svo að notendur eru spurðir hvort þeir vilji örugglega kaupa leið hvort sem hún er frí eður ei. Notendur geta verið öruggir um að ef leið er merkt ókeypis þá munu þeir ekki þurfa að greiða neitt. Öryggi Wappið er í samstarfi við Neyðarlínuna þar sem notandi getur sent tilkynningu um staðsetningu sína með textaskilaboðum úr símanum til Neyðarlínunnar þegar hann leggur af stað. Þetta er valkvætt og einungis til öryggis og ekki er farið í að skoða gögnin nema ef viðkomanda sé saknað.

ASKUR | 53

Texti: Einar Skúlason .www.wapp.is

Gps Í snjallsímum er GPS staðsetningartæki (Global Positioning System) sem getur fundið út staðsetningu símtækisins með því að tengjast gervihnöttum. Þjónustan kostar ekkert og er ekki í tengslum við áskrift hjá símafyrirtækjum. Símtækið þarf því ekki að vera í gagnasambandi. til að nýta þessa tækni. Athugið þó að gefa Wappinu leyfi til að tengjast staðsetningarbúnaði símans þegar Wappinu er hlaðið niður.


Laura Daniela Hurtado Ég heiti Laura Daniela Hurtado og ég er stoltur Kólumbíumaður sem fæddist í Calí, höfuðborg salsadansins. Ellefu ára gömul flutti ég til Íslands með fjölskyldu minni, móður minni og bróður. Þökk sé verkefni Rauða kross Íslands sem gaf okkur tækifæri til að flytja til þessarar fallegu eyju. Það eru 14 ár síðan ég steig fyrst á land á Íslandi og síðan þá hef ég áttað mig á því hversu dýr­ mæt menning okkar í Suður­Ameríku er. Maturinn, tónlistin, listin, fólkið, veðrið og síðast en ekki síst tungumálið. Nokkrum dögum eftir komu okkar í Fossvog, þar sem okkar nýja heimilið yrði, fór ég í Fossvogskóla þar sem börnin og kennararnir tóku á móti mér með mikilli ást og væntumþykju. Það var mjög erfitt að geta hvorki skilið þau né tjáð mig en það kom ekki í veg fyrir að ég lærði tungumálið. Það var erfitt en án efa hef ég lært það með mikilli virðingu og

þakklæti í garð íslensku þjóðarinnar. Réttarholtskóli, Menntaskólinn í Kópavogi og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hafa verið mitt skólaferðalag þar sem ég hef lært mikið af dvöl minni í hverjum og einum skóla. Ég var mjög óákveðin í hvað ég vildi læra en vildi þó gera eitthvað þar sem ég gæti nýtt hug­ myndir mínar og sköpunargáfu. Ég hóf því nám við Tækniskólann vorið 2020. Í náminu lærði ég grunninn að grafískri miðlun, m.a. uppsetningu texta, myndvinnslu, týpógrafíu og hönnun. Allt er þetta kunnátta sem ég veit að mun nýtast mér vel í áframhaldandi námi og starfi síðar meir. Nú er náminu mínu að ljúka og nýir tímar taka við og er ég tilbúin fyrir allt sem koma skal.


Gleði í eldhúsinu Guðrún Hrund Sigurðardóttir var fyrrverandi ritstjóri Gestgjafans, Eldhúsið var einn af uppáhaldsstöðum hennar. Hún var mikill kokkur og sælkeri og það var heiður að vera hluti af mörgum stundum okkar saman í eldhúsinu þar sem við ræddum saman um kólumbískan mat og allskonar gúrme. Hér deili ég með ykkur tveimur uppskriftum hennar sem voru mínar uppáhalds.

Grænmetisbaka Hráefni smjördeig, 4 plötur (Findus) olía 1 tsk. oreganó meðalstór sæt kartafla, skræld og skorin í bita 1–2 hvítlauksgeirar, saxaðir 1 askja sveppir, saxaðir 1 askja spínat, saxað 2 dl fetaostur í kryddlegi rifinn parmesanostur 4 egg 2 dl rjómi basilíka, söxuð, má sleppa salt pipar

Leiðbeiningar Fletjið deigið út þar til það er hæfilega þunnt og leggið í smurt bökuform og stráið oreganó yfir. Penslið kantana með olíu. Sjóðið kartöflurnar í 5 mín. Hellið þá vatninu af og setjið kartöflurnar i skál. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppi og hvítlauk í nokkrar mínútur eða þar til sveppirnir eru farnir að brúnast. Takið þá af pönnunni og setjið í skálina ásamt kartöflunum. Steikið spínat á sömu pönnu í nokkrar mínútur og bætið síðan út í sveppablönduna. Saltið og piprið. Hellið blöndunni í bökubotninn og dreifið fetaosti yfir ásamt rifnum parmesan. Þeytið saman egg og rjóma. Kryddið með salti og pipar. Hellið blöndunni yfir bökuna og stráið rifnum parmesanosti yfir ásamt basilíku. Bakið við 180°C í u.þ.b. 30 mínútur. Berið fram með salati 1 tsk. óreganó

Texti og ljósmyndir: Laura Daniela Hurtado

56 | ASKUR


Saltfiskur með sítrónusósu Hráefni 1 kg saltfiskur, hnakkastykki 2 sítrónur, skornar í sneiðar olía 1 laukur 1½–2 dl hvítvín pipar salt steinselja, til skrauts

Leiðbeiningar Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn í nokkrar mín. Eða þar til hann er farinn að brúnast örlítið. Leggið sítrónusneiðarnar á botninn á eldföstu móti. Raðið fiskbitunum ofan á og dreifið síðan lauknum yfir fiskinn. Hellið hvítvíni yfir og saltið og piprið eftir smekk. Bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mín. eða þar til fiskurinn er eldaður. Skreytið með steinselju og berið fram með ofnsteiktum kartöflum.

Hárvörur Húðvörur Förðun Allt á einum stað Opið alla daga kl. 11–18 Strandgata 32 í Hafnafirði 830 3344 | www.glowup.is

@glowupverslun @glowupverslun


Ljósmynd: Georg Kr. Lárusson

Guðrún Hrund Sigurðardóttir Guðrún Hrund Sigurðardóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1981 og kennaraprófi frá textíldeild KHÍ 1985. Þá útskrifaðist hún sem fatahönnuður frá Københavns mode- og design skole 1989. Hún starfaði sem fatahönnuður og kennari árin 1989–1999 en á árunum 1999–2012 var Guðrún Hrund blaðamaður, stílisti og síðar ritstjóri tímaritsins Gestgjafans. Hún þótti einstakur samstarfsmaður og naut vinsælda. Guðrún átti sér alltaf draum um að mennta sig í fatahönnun en tók textílkennaraprófið fyrst til að undirbúa sig vel. Hún fór síðan til Danmerkur þar sem hún lærði fatahönnunina. Hún kom heim úr því námi 1989. Allan tímann var málaralistin hluti af lífi Guðrúnar og seinni ár tók sá þáttur yfir. Hún lék sér alltaf með vatnsliti, krít, akrýl og olíuliti. Guðrún leitaði víða fanga í list sinni en mest í íslenskri náttúru. „Nú mála ég helst minningar um landslag og kalla myndir mínar. ÍMYNDIR því ég er að fást við ímyndað landslag.“ sagði Guðrún.

58 | ASKUR

Myndirnar sem hún málaði sýndu vel hvernig hægt er að ímynda sér íslenskt landslag með fallegum hætti. Hún hafði mjög fallega sýn á allt og í myndunum hennar endurspeglast það mjög vel. Það er friður, ró, en það er líka smá ótti, angist og dulúð en allt endurspeglar það hvernig lífið er. Augnablikin sem við lifum á hverjum degi. Suma daga skin sól og aðra er skýjað. Í hvert skipti sem ég og Guðrún töluðum um list lagði ég vel við hlustir. Hún var alltaf svo elegant að það var ekkert annað hægt en að horfa á hana og hlusta. Mjúka röddin hennar yfirfærði mig einfaldlega inn í málverkin hennar. Ég get sagt það með sanni að oft þegar ég horfði á málverkin hennar náði hún að taka mig aftur heim til Kólumbíu sem var mjög dýrmætt. Þannig gat ég ímyndað mér fallega landið mitt í gegnum fallegu málverkin hennar. Síðustu árin var Guðrún með málverk sín til sölu og sýnis m.a. í Gallerý Grástein og Art67 í miðbæ Reykjavíkur. Þar naut hún hylli og þá sérstaklega hjá ferðamönnum þar sem hún þótti fanga anda íslensks landslags vel. Guðrún var tengdamóðir mín sem ég elskaði heitt. Með henni eyddi ég dýrmætum tíma. Við hana var hægt að ræða um allt sem tengdist hönnun og list, en hún var sannur listamaður. Guðrún lést eftir margra ára baráttu við krabbamein í september síðastliðnum.


ÍMYNDIR

„Íslenskt landslag og íslensk birta heilla mig, hálendið, þokan og dulúin.“

Texti og ljósmyndir: Laura Daniela Hurtado

„Í myndum mínum reyni ég að fanga þetta andrúmsloft þannig að hver og einn áhorfandi geti notið þess og upplifað á persónulegan hátt.


LATIN HEIMURINN Hvernig kviknaði ástríða þín fyrir suður-amerískri tónlist?

Tómas Dan Jónsson er 35 ára gítarleikari frá Íslandi og Belgíu. Hann hefur búið víðs vegar um heiminn og hafa ferðalög hans mótað hann sem hljóðfæraleikara. Síðustu fimmtán ár eða svo hefur svo latin heimurinn á hug hans og hjarta og hefur hann leitast við að kynna Íslendingum tónlist þeirra. Meðal verk efna sem hann hefur tekið þátt í má nefna Mi Gente, sem var latin tríó skipað, Juan Borges (Kúba) og Margréti Rán. Einnig hefur hann tekið þátt í ýmsum tónleikum þar sem Dagur hinna dauðu er heiðraður ásamt annað hvort Margréti Rán eða Svanlaug Jóhannsdóttur. Hver hvatti þig til að búa til tónlist? Foreldrar mínir segja að ég hafi alltaf haft dálæti á tónlist en mig minnir endilega að það hafi verið „Red Hot Chili Peppers“ sem urðu til þess að ég fór að æfa gítar. Síðan þá hef ég ekki horft til baka og það er varla stund sem ég man eftir án gítars.

60 | ASKUR

Þegar ég er 18 ára þá fer ég út sem skiptinemi til Ekvador og þar sem tónlist var lífið mitt þá fór ég út í bókasafn Hafnarfjarðar og leitaði að suður amerískri tónlist en fann svo sem lítið annað en Salsa. Tómas R. Einarsson hafði líka nýverið gefið út Havana diskinn sinn og var hann mjög heillandi. En það var í rauninni ekki fyrr en ég lærði að tala spænsku sem latin tónlistarheimurinn opnaðist fyrir mér. Við það opnaðist Carlos Vives fyrir mér, sem var nýbúinn að gefa út diskinn, El rock de mi pueblo (Bæjarrokkið), og hafði sá diskur mikil áhrif á mig. Einnig var Juanes að gefa út Mi Sangre (blóðið mitt) sem innihélt meðal annars „La camisa negra“ á þessum tíma og kunni ég flest öll lögin á þeim disk utan af. Auðvitað voru fleiri söngvarar og tónlistartegundir eins og salsa, cumbia, merengue og auðvitað má ekki gleyma að reggueton var að ryðja sér til rúms og komu lög eins og Gasolina (Daddy Yankee) út þegar ég var úti sem skiptinemi. Í raun má segja að ég hafi haft heppnina með mér þar sem ég fékk að upplifa suður-ameríska tónlist frá mörgum mismunandi sjónarhornum og ég bý að því í dag. Hver er mesti munurinn á íslenskri og suður-amerískri tónlist að þínu mati? Í fyrsta lagi þá verð ég að segja að íslensk tónlist er mjög bókstafleg og við tökum hlutina stundum of alvarlega. Í tónlist frá latín ameríku þá snýst þetta miklu meira um tilfinningar. Kynorkan í tónlist frá latín ameríku er líka miklu meira til staðar. Ég á erfitt með að útskýra það betur en það er oftast auðveldast að sjá muninn á Íslendingum sem dansa Salsa og síðan einhvern frá latín ameríku að dansa það sama. Íslendingurinn mun sýna þér alla snúningana sem hann/hún kann á 1 mínútu á meðan að innfæddur mun dansa með kynorkunni og ef lagið býður upp á snúning þá fær hann mögulega að læðast með.


„Sumir klífa fjöll, aðrir hlaupa maraþon, ég, ég spila á gítar. Gítarinn er mitt athvarf“ Áttu þér uppáhaldshljóðfæri sem er notað í Kólumbíu? Ljósmynd: Jón Bergþór Kristinsson

Ef það er eitt hljóðfæri sem væri uppáhaldshljóðfærið mitt frá kólumbíu þá hlýtur það að vera harmónikkan sem er notuð í flest öllum tónlistartegundum þar. Það er örlítið frábrugðið venjulegri harmónikku að því leitinu að hún er pentatónísk og alveg hnappa. Þessar harmónikkur geta því aðeins spilað lög í 3 tóntegundum og þurfa því harmónikuleikarar frá Kólumbíu að eiga 4 nikkur til þess að geta spilað öll lög. Þetta þýðir þá líka að erfitt eða leiðinlegt er að hækka um tóntegundir í þessum tónlistartegundum.

Hljóðfæri fólksins Þýskir landnemar báru hljóðfærið, sem samanstendur af belg og tveimur viðarkössum, með sér til Rómönsku Ameríku á miklum ólgutímum í heimsálfunni á 19. öld. Í Kólumbíu er harmonikkan ómissandi hluti af flestri þjóðlagatónlist. Þá var hljóðfærið áberandi þar í landi sem einskonar samskiptamiðill, þar sem farandsöngvarar frá löndum Karíbahafsins ferðuðust með harmonikkuna á bakinu á milli bæja og fluttu fréttir í einskonar söngvastíl með hljóðfærið að vopni.

Texti: Laura Daniela Hurtado

„Fylltu hjartað þitt af salsalífi og hlustaðu á þessi lög - þú munt ekki sjá eftir því“ Útgáfudagur Flytjandi

Lag

Plata

1984

Grupo Niche

Cali Pachanguero

No hay quinto malo

1996

Roberto Roena

Cómo te hago entender

Los Rostros de la Salsa

1975

Fruko

El Preso

Fruko el Grande

1989

Willie Colón

El Gran Varon

Top Secrets

1988

Eddie Santiago

Lluvia

Sigo atrevido


Kólumbíska kaffi - besta kaffi í heimi Kaffi í Kólumbíu á sér um 300 ára sögu eða síðan jesúítar komu með það í farteskinu á 18. öld. Sagan segir að aukin kaffiframleiðsla í Kólumbíu hafi verið að þakka jesúítaprestinum Francisco Romero í bæ í Norte de Santander sem heitir Salazar de las Palmas. Þegar trúmenn hans fóru til játningar, lagði presturinn til við þá sem syndaaflausn að rækta kaffi. Því er haldið fram að þökk sé þessu hafi kaffiframleiðsla farið að breiðast til annarra héraða og um 1850 hafi hún náð til Cundinamarca, Antioquia og Caldas. Tveir mikilvægir atburðir áttu sér stað árið 1959: Juan Valdez fæddist, en hann er einskonar andlit kaffiræktunar í Kólumbíu, og Café de Colombia skrifstofan var opnuð í Tókýó, en það var risastökk fyrir framleiðsluna og er Japan næststærsti neytandi Café de Colombia í heiminum í dag. Árið 1984 var sérstakt innsigli Café de Colombia búið til, sem auðkennir það í öllum heimshornum.

Texti: Laura Daniela Hurtado 12 EMBLA Ljósmyndir: unsplash.com


Þetta tímarit er til minningar um tengdamóður mína sem lést 3. september sl. Hér fjalla ég um margt sem hún dáði og elskaði. Góðan mat, myndlist og tónlist. Það var svo skemmtilegt að elda með þér Guðrún. Þú smakkaðir með mér allskonar suðuramerískan „gúrmemat“ sem ég gerði fyrir þig og ég er svo þakklát fyrir það. Sömuleiðis er ég svo þakklát fyrir allan þann góða mat sem þú eldaðir alltaf og færði hugann minn heim til Kólumbíu, eins og kjúklingarétturinn sem þú gerðir nokkrum vikum áður en þú fórst frá okkur. Þú hafðir mikinn áhuga á að kynnast menningu Suður-Ameríku, bæði tónlist og matargerð og þér fannst þetta svo æðislegt. Með listinni þinni ferðuðumst við saman til Suður-Ameríku . Við dönsuðum og sungum við tónlistina hans Tómasar og með góðu kólumbísku kaffi töluðum við um allt milli himins og jarðar. Ég veit þú hefðir verið svo ánægð með tímaritið og ég tileinka þér það. Ég elska þig svo heitt og sakna þín. Þín Laura Daniela

ASKUR | 63

Texti: Laura Daniela Hurtado

Til þín


Snæbjörn Sigurður Steingrímsson Ég heiti Snæbjörn Sigurður Steingrímsson og er útskriftarnemi í grafískri miðlun Ég hef alltaf haft gaman að hönnun og útliti hluta. Þegar ég var ungur þá teiknaði ég mikið en sú tómstundaiðja minnkaði með árunum. Nú þegar ég skrifa þetta er ég spenntur fyrir því að klára námið og takast á við þeim áskorunum sem koma í kjölfarið. Ég er fæddur á því herrans ári 1990, 25. júlí. Fyrstu árin mín einkenndust af búslóðaflutningum en loks árið 1997 settumst við fjölskyldan að í Engjahverfi við Grafarvog. Í Engjaskóla stundaði ég grunnskóla­ nám og uppáhalds fögin mín þar voru myndmennt og smíði. Mér gekk þó ágætlega líka í bóknáminu en það var eitthvað við að skapa eitthvað frá grunni sem mér líkaði. Eftir grunnskóla gáfust mér fáir kost­ ir í menntaskóla þar sem að ég tók samræmdu próf­ unum ekki mjög alvarlega. Ég fór því á málabraut við Borgarholtsskóla og átti góð ár þar í félagslífi.

En illa gekk að taka á náminu sem ég stundaði þar vegna þess að áhuginn var lítill og tilgangurinn minni. Svo að löng saga sé stutt þá hef ég stundað nám við nokkra mismunandi framhaldsskóla og líklega verið á öllum brautum sem í boði eru, án þess að finna raunverulega hvers vegna. Árið 2015 fór ég í einkaflugmannsnám og kláraði bóklega hlutann með góðri einkunn sem kenndi mér það að ekkert sé útilokað. Loks eftir mikla ígrundun og sjálfsskoðun erlendis, svo eitthvað sé nefnt, fann ég það sem mig langaði alltaf til að læra; grafísk hönnun. Ég skráði mig í Tækniskólann haustið 2019 og hófst handa við grafíska miðlun. Þegar til baka er litið hef ég lært allt sem ég kann og haft gaman að í leiðinni. Eftir útskrift hér liggur leið mín í áframhaldandi nám við háskóla, en það er óákveðið sem stendur hvert báran flytur mig.


Topp 10 mest seldu hip hop plötur allra tíma


Sæti

Plata

Artisti

Seld eintök

1.

Speakerboxx/The Love Below

Outkast

11,4 milljónir

2.

The Marshall Mathers LP

Eminem

10,5 milljónir

3.

The Eminem Show

Eminem

10,3 miljjónir

4.

Life After Death

The Notorious B.I.G.

10,3 milljónir

5.

Please Hammer, Don‘t Hurt ’Em

MC Hammer

10 milljónir

6.

Greatest Hits

Tupac Shakur

10 milljónir

7.

All Eyez on Me

Tupac Shakur

9 milljónir

8.

Licenced to Ill

The Beastie Boys

9 milljónir

9.

Country Grammar

Nelly

8,5 milljónir

Get Rich or Die Tryin‘

50 Cent

8,3 milljónir

10.

Vantar þig múrara? Hjá Múrverki hf. starfa faglærðir múrarameistarar og sveinar. Ekki nokkurt verk er okkur um megn. Við bjóðum fjölbreytta þjónustu:

Flotun a p y e t s r u Mynst nir Flísalag Steining eypa Plötust Múrklæ

ðning

Vér múrum...

www.murverk.is s. 687 8375


Rafíþróttir og félagslegur Ávinningur þeirra Undanfarin ár hefur umfjöllun um rafíþróttir tekið stakkaskiptum og enn fleiri ungmenni eru farin að stunda tölvuleikjaspil á keppnisstigi, ekki einungis í afþreyingarskyni. Þegar litið er á tölvuleikjaspilun sem íþrótt er eðlilegt að fólk undri sig á því hvernig hægt sé að setja það í sama flokk. Þegar ungt fólk fór að hefja þessa iðju var litið á þetta sem félagslega einangrandi tímasóun en með aðkomu íþróttafélaga og einstaklinga sem sérhæfa sig í tómstundafræðum er búið að rétta úr kútnum og nálgast tölvuleikjaspilun á jákvæðan og uppbyggjandi hátt. Hér fyrir neðan eru textabrot úr ansi áhugaverðri BA ritgerð þeirra félaga, Valgeirs Þórs Jakobssonar og Þorkels Más Júlíussonar, í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Titill hennar er „Þetta bjargaði lífi mínu“: félagslegur ávinningur rafíþróttaiðkunar. „Neikvæðar umfjallanir um tómstundir af hverju tagi hafa neikvæð áhrif á iðkendur tómstundarinnar og ýta þær undir neikvætt viðhorf fólks til tómstundarinnar sem á við og er því mikilvægt að upplýsa fólk um þá jákvæðu þætti sem hægt er að ýta undir og rækta til þess að iðkendur og tómstundin sjálf fái tækifæri í að þroskast í jákvæða átt. Tölvuleikjaiðkun hefur einkennst af neikvæðri umfjöllun í fjölda ára þar sem að þessi tómstund getur stuðlað að ýmsum kvillum eins og félagslegri einangrun, þunglyndi og skertrar líkamlegrar og andlegrar heilsu. Þessar staðhæfingar hafa við rök að styðjast eins og rannsóknir og fræðirit hafa sýnt fram á í gegn um tíðina. Tómstundin þessi hefur samt sem áður breyst mikið síðastliðin ár og tíðkast nú til dags að stunda rafíþróttir þar sem spilaðir eru tölvuleikir með öðrum í liði og reynt að vinna bug á andstæðingunum. Keppt hefur verið í tölvuleikjum í áratugi en síðastliðin ár hafa þessar keppnir farið að taka á sig nýja mynd. Með vinsældum rafíþrótta hefur umgjörðin og skipulagið í kring um þessa tómstund tekið breytingum og nú í dag eru rafíþróttir ekki ósvipaðar öðrum íþróttum hvað varðar umgjörðina. Rafíþróttir eru byrjaðar að skipa sér sess á Íslandi og eru íþróttafélögin hver á eftir öðrum byrjuð að setja upp rafíþróttadeildir innan sinna stofnanna og eru einnig sjálfstæð rafíþróttafélög að skjóta kolli sínum upp í auknum mæli víðs vegar á landinu.

68 | ASKUR

Er rafíþrótt alvöru íþrótt? Þegar farið er yfir þá stöðu sem rafíþróttir eru í, hvað varðar viðurkenningu á að vera flokkuð sem íþrótt í akademíska samfélaginu, er það ljóst að þrátt fyrir að ekki enn sé búið að viðurkenna rafíþróttir sem gilda íþrótt hjá alþjóðlegum íþróttasamtökum, þá eiga rafíþróttir og aðrar íþróttir margt sameiginlegt og vert sé að taka fram að algengasta notkunin á orði rafíþrótta gefur að einhverju leiti til kynna að um íþrótt sé að ræða (Wagner, 2006). Þegar 10 rafíþróttir eru bornar saman við lista yfir þau skilyrði sem


íþrótt þarfa að uppfylla til að geta orðið meðlimur í alþjóðlegum samtökum íþróttasamtaka, gefinn út af GAISF (Global Association of International Sports Federations) sem stóð áður undir nafninu Sport Accord, þá uppfylla rafíþróttir skilyrðin í fleiri en einum flokki íþrótta til þess að geta gerst meðlimur þessara samtaka (SportAccord, e. d.). Með nýrri tækni og hjálp alnetsins hefur tölvuleikjaspilun í einrúmi breyst að nokkru leiti til hins betra með bættri samskiptatækni og auknum möguleika á hópiðkun tölvuleikja í gegn um alnetið. Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar á tengingu félagslegrar einangrunar og tækni nútímans og hafa niðurstöðurnar margar sýnt orsakatengsl þarna á milli en fræðimenn hafa tekið fram að tölvuleikir spilaðir í gegn um alnetið geta verið undantekning hvað þetta varðar. Tölvuleikir bjóða upp á raunveruleg sýndarrými þar sem tækifæri býðst á að fá félagsskap og mynda félagstengsl. Talað er um að öll félagstengsl geta haft jákvæð áhrif á þig ef það er hlúað vel að tengslunum og þau veita gildi í formi stuðnings og samskipta. Sýnt hefur verið fram á það, að það að fara á

Þú getur lesið ritgerðina í heild sinni hér:

alnetið gat oft á tíðum dregið úr einmanaleika og aukið gæði samskipta einstaklinga (Perry o.fl., 2018, bls. 203). Til þess að fá sem mest út úr félagstengslum sem myndast á alnetinu í gegn um tölvuleiki þarf að skoða tvo þætti, hvers konar félagstengsl myndast og hvers háttar ástríða er til staðar í garð tölvuleiksins.”


Tiramisu

Eftirréttinn tiramisu er hægt að fá út um allan heim í alls konar útgáfum. Þessi samleikur kaffiblautra dömufingra, mascarpone krems, eggja, sykurs og kakódufts, er ítalskt góðgæti með mikla sögu og sérkennilegt bragð. Á Ítalíu er deilt um það hver á í raun og veru heiðurinn af uppskriftinni en opinberlega hefur verið útkljáð um það mál og Campeol fjölskyldan á veitingastaðnum Le Beccherie í Treviso hlaut heiðurinn. Hér kemur uppskrift frá Salt eldhúsi:

2 pakkar ladyfingers 200 ml sterkt kaffi 50 ml Kahlua eða Amaretto Mascarpone krem: 3 blöð matarlím 150 ml marsala 6 stk. eggjarauður 170 gr sykur 500 ml rjómi 500 gr mascarpone

1. Setjið matarlímið í bleyti í köldu vatni. 2. Hitið vínið og leysið matarlímið upp í því. 3. Eggjarauður, sykur og vín er blandað saman í skál. 4. Setjið yfir „bain-marie” (sjóðandi vatnsbað) og hrærið stöðugt, hrærið blönduna þar til hún hefur þykknað lítillega en passa þarf að hita hana ekki of mikið. 5. Takið af hitanum og setjið á hrærivélina með þeytara. Haltu áfram að þeyta á miðlungs hraða þar til blandan hefur kólnað lítillega. 6. Þeytið rjómann þar til hann er létt þeyttur og setjið til hliðar. 7. Hrærið eggjablöndunni smám saman út í mjúkan mascarpone ostinn og blandið síðan þeyttum rjóma varlega saman við.

nokkrar staðreyndir • Tiramisu þýðir á ítölsku „togaðu mig upp.“ • Tiramisu á sér rætur í ítölskum vændishúsum og var ætlað gestum sem frygðarlyf (e. aphrodisiac). • Faðir uppskriftarinnar sem við þekkjum í dag, Ado Campeol, lést nýverið 93 ára að aldri. • Borgin Treviso á Ítalíu er upphafsstaður tiramisu. • Stærsta tiramisu sem hefur verið lagað er u.þ.b. 3 tonn og var það gert í Gemona del Friuli árið 2015. • Í Kína er tiramisu mest smellta ítalska orðið á veraldarvefnum. • Nýverið var 21. mars skilgreindur sem Tiramisudagurinn. • Það eru til söguleg gögn um tiramisu frá árinu 1800.

Ado Campeol

ASKUR | 71


„Krakkar, ef þið smælið framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í ykkur.“ Dr. Gunna þarf vart að kynna fyrir íslensku þjóðinni. Hann er annálaður tónlistarmaður með meiru sem gaf nýverið út plötu sína Nei, ókei. Dr. Gunni hefur gefið út ógrynni af tónlist og bókum um tónlist auk þess að hafa verið meðlimur í hljómsveitum á borð við Dordingla, F/8, Geðfró, S.H. Draumur, Bless og Unun. Ég fékk að spyrja hann nokkurra spurninga. Hvað heitir þú fullu nafni?

Hvernig er dagsformið?

Gunnar Lárus Hjálmarsson

Ég er reyndar aðeins þunnur núna eftir árshátíð, en annars er dagsformið yfirleitt mjög gott.

Við hvað starfar þú? Ég er opinber starfsmaður og starfa sem þjónustu‑ fulltrúi hjá Þjóðskrá. Hver er besta hljómsveit í heimi?

Hvaða verki þínu ertu stoltastur af? Ætli Goð með S.H.Draumi og Abbababb! sé ekki það besta og svo auðvitað nýjasta platan, Nei, ókei, með hljómsveitinni Dr. Gunni.

Bítlarnir. Í hvaða menntaskóla gekkst þú? Hvað finnst þér best að hlusta á þegar þú ferð í göngutúr?

MK.

Einhver góð hlaðvörp, en ef ég fer í fjallgöngu þá hlusta ég bara á náttúruna. Mynd: Txell Bonet


Hvað eru eftirminnilegustu tónleikar sem þú hefur farið á og hvers vegna? Í apríl 1980 spilaði ég mína fyrstu tónleika með hljómsveitinni sem ég var í þá, Dordinglum. Við hituðum upp fyrir Fræbbblana og Utangarðsmenn, en eftir þessa tónleika varð Bubbi eiginlega stjarna á Íslandi. Sama ár um sumarið fór ég á The Clash í Laugardalshöll og það var líka gríðarlega eftirminnilegt og gott. Hvaða plötuumslag þykir þér vera mest viðeigandi?

ÆVlNTÝRaLEGaR FJÓRHJÓLaFERÐlR Komdu í SaFaRl ferð með okkur

VERÐ FRá 14.990 lSK

Pink Flag með hljómsveitinni The Wire. Frábært umslag um frábæra plötu. Hvaða staður á Íslandi er þér kærastur? Ísland er bara ógeðslega flott eiginlega hvert sem maður fer. Vestfirðir, Þórsmörk, Eyjafjörður – þetta er allt flott og gaman að koma þarna. Kannski ég segi bara að Skagafjörðurinn sé mér kærastur því pabbi ólst þar upp og á gamals aldri fór ég með honum um æskuslóðirnar. Orð að leikslokum? Krakkar, ef þið smælið framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í ykkur.

www.safari.is

821 1311

Lambhagavegur 19

113 Reykjavík


Kæru lesendur

ÞAKKIR

Við viljum þakka ykkur innilega fyrir að lesa tímaritið okkar og vonandi njótið þið þess eins mikið og við gerðum við uppsetningu og hönnun þess. Eftir tveggja ára samveru skiljast leiðir. Við erum sjö ólíkir einstaklingar með eitt og sama markmið. Við eigum það sameiginlegt að hafa stigið saman inn í hinn grafíska heim hér í Upplýsingatækniskólanum og að þeim tíma loknum verður þetta ómetanlegur hluti lífs okkar. Við viljum meina að þessi hópur samanstandi af duglegu og hæfileikaríku fólki, sem lagði sig allt fram við hvert og eitt verkefni. VIð viljum þakka okkar frábæru kennurum sem unnu með okkur og leiddu námið af fagmennsku og þekkingu.

Kennararnir okkar voru Svanhvít, Helga, Brynhildur, Jón, Karl, Marinó, Bjargey, Hildur, Sófus og Íris. Þau hafa sýnt okkur þolinmæði, hjálpsemi og skilning á síðastliðnum tveimur önnum. Án þeirra hefði þetta ekki getað orðið að veruleika. Þökk sé þeirra hjálp og þekkingu þá erum við vel undirbúin fyrir það sem tekur við. Sérstakar þakkir fá Grafía, Litlaprent og Iðan sem studdu okkur við útgáfu þessa tímarits. Auk þess viljum við þakka ljósmyndasviðinu fyrir samstarf og sérstakar þakkir fá nemendurnir Þóra Margrét, Andrea og Unnur sem sáu um myndatökur. Að lokum viljum við þakka Jóni Mýrdal rekstrarstjóra Skuggabaldurs sem bauð okkur aðstöðu fyrir myndatöku.

Við þökkum fyrir okkur og óskum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. Árgangur haustnema 2021 Aldís Eva, Einar Karl, Eydís Hjaltalín, Ívar Daníel, Kolbrún, Laura Daniela og Snæbjörn Sigurður.


Umhverfisvæn og örugg prentun

Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Hafðu samband og við skoðum málið með þér.

Opið mánudaga til fimmtudaga: 8:00– 16:00 Opið föstudaga: 08:00– 14:30 Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi 540 1800 litaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is


Ert þú að nýta réttindin þín? Námsstyrkir ● Kjaramál ● Orlofssjóður ● Sjúkrasjóður

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðar­ sambandi Íslands. Ávinningur sam­ einingar­innar er gríðar­legur fyrir félags­menn Grafíu.

GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

Kynntu þér réttindi þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heima­ síðunni okkar.

www.grafia.is

Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | 5400 100 | grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
ASKUR - Haust 2021 by Tækniskólinn - Issuu