Skip to main content

ASKUR - Vor 2022

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN

1. TB. 11. ÁRG.

VOR 2022


Svo lengi lærir sem lifir Iðan aðstoðar frá upphafi náms til starfsloka

„Við styðjum við jafnrétti til náms og gætum trúnaðar í okkar störfum. Erum jákvæð og fordómalaus.“

Iðnnám er fyrir alla

Kynntu þér málið og taktu stökkið

Hér starfa sérfræðingar á öllum sviðum iðngreinanna.

Hönnun: Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir

• • • • •

Prent- og miðlunargreina Bílgreina Bygginga- og mannvirkjagreina Matvæla- og framleiðslugreina Málm- og véltæknigreina

www.idan.is

Vatnagarðar 20 | 104 Reykjavík sími 590 6400 | idan@idan.is

Námskeið Námssamningar Endurmenntun Fyrirtækjaþjónusta Sveinspróf Raunfærnimat Starfsráðgjöf Fræðslustyrkir Nýsköpun


LEIÐARI Tímaritið er er samstarfsverkefni allra útskriftar­ TímaritiðAskur Askur samstarfsverkefni allra út­ nemenda í grafískri miðlun. Blaðið endurspeglar skriftarnemenda í grafískri miðlun. Blaðið endur­ ólíka persónuleika með fjölbreytt áhugamál sem speglar ólíka persónuleika með fjölbreytt áhuga­ mynda eina heild.eina Einaheild. stærstu heild sem hefur mál sem mynda Eina stærstu heild sést grafískri Upplýsingatækniskólans sem íhefur séstmiðlun í grafískri miðlun Upplýsinga­ hingað til. Enda sést það á útskriftarbiblíunni sem tækniskólans hingað til. Enda sést það á útskriftar­ við köllum Askvið þetta árið.Ask þetta árið. biblíunni sem köllum Askur er samansafn af flest öllu sem við höfum Askur er samansafn af flest öllu sem við höfum lært í þessu námi, allt frá týpógrafíu, myndvinnslu, lært í þessu námi, allt frá týpógrafíu, myndvinnslu, forvinnslu, umbroti, prentun, bókbandi, eftirminni­ forvinnslu, umbroti, prentun, bókbandi, eftirminni­ legum sögum af skólaferðalagi til Ítalíu og mörgu legum sögum af skólaferðalagi til Ítalíu og mörgu fleira. fleira. Námið hefur verið kröfuhart, hvetjandi og gefandi Námið hefur kröfuhart, hvetjandi og gefandi að því leyti aðverið við höfum fengið ný tól í bakpokann að þvívið leyti að viðnýtt höfum fengið ný tól í bakpokann sem getum okkur í framtíðinni og jafnvel sem við getum nýtt okkur í framtíðinni og jafnvel brýnt á lífsleiðinni. brýnt á lífsleiðinni. Í rauninni má segja að þetta blað sé ekki einungis lokaverkefni okkar í grafískri miðlun, heldur jafn­ Í rauninni má segja að þetta blað sé ekki einungis framt merki um ákveðin tímamót og kaflaskipti í lokaverkefni okkar í grafískri miðlun, heldur jafn­ lífi okkar útskriftanemenda. framt merki um ákveðin tímamót og kaflaskipti í Þaðokkar semútskriftanemenda. stendur þó hvað mest upp úr er fólkið lífi sem við höfum kynnst á þessu litríka ferðalagi, Það stendur þó hvað mest upp úr fólkið þ.e. sem andlitin fyrir aftan covid­grímuna ogerseinna sem við grímunnar. höfum kynnst á þessu litríka ferðalagi, meir án þ.e. fyrir okkar aftan covidgrímuna og seinna Hvertandlitin sem leiðir liggja í framhaldi þessa meir náms,ánþágrímunnar. stendur eftir mikið þakklæti! Þakklæti fyrir reynsluna tækifærið til aðþessa fá að Hvert sem leiðir okkar og liggja í framhaldi kynnastþámögnuðum bæði nem­ náms, stendur eftireinstaklingum, mikið þakklæti! endum og kennurum Þakklæti fyrir fyrir reynsluna Takk innilega okkur og og tækifærið njótiði vel!til að fá að kynnast mögnuðum einstaklingum, bæði nem­ endum og kennurum. Takk innilega fyrir okkur og njótiði vel!

ASKUR Umbrot og og hönnun hönnun Umbrot Nemendur vorannar 2022 Nemendur vorannar 2022 Samsetning tímarits Samsetning timarits Guðrún Krístín Sveinbjörnsdóttir Guðrún Krístín Sveinbjörnsdóttir Gabríella Sif Beck Gabriella Sif Beck Forsíða Sandra ForsiðaÓsk Júníusdóttir Sandra Ósk Júníusdóttir Nemendamyndir Nemendur á ljósmyndasviði Nemendamyndir Auglýsingar Nemendur á ljósmyndasviði Iðan – Guðrún Krístín Sveinbjörnsdóttir Litlaprent Auglýsing–- Sandra Iðan Ósk Júníusdóttir Grafía Anný Tinna Aubertsdóttir Guðrún– Krístín Sveinbjörnsdóttir Útgefandi Auglýsing - Litlaprent Tækniskólinn Sandra Ósk Júníusdóttir Prentun Upplýsingatækniskólinn Auglýsing - Grafia Anný Tinna Aubertsdóttir Letur í meginmáli Univers 45 Light 9/13 Útgefandi Univers 55 Roman 9/13 Tækniskólinn Univers 65 Bold 9/13 Pappír UPM DiGi 130g m2 UPM DiGi 250g m2


4

Anný Tinna Aubertsdóttir Jákvæð sálfræði, andleg heilsa, listin að lifa, matar·list og ostakökuuppskrift

46

Gígja Sif Víðisdóttir Álaborg, kynning á drykkjuleiknum Flonky og vinahópurinn Carmen

12

Álfheiður Björk Bridde Allt frá föndri og öðrum verkefnum yfir í sögu Hallormsstaðaskóla og fleira

54

Guðrún Kristín Sveinsbjörnsdóttir Safnahúsið, besta pastað, prjón og spennandi þróun í miðlunargreinum

64

Helgi Jónsson Ítölsk tíska, Ítölsk merki, Mílanó, Flórens, Bergamó og Andrea Bocelli

20

Ástrós Erla Pálsdóttir Banksy, Róm, anime og manga

26

Bjarki Enok Guðnason Kvikmyndir, listmálun, animation og Óðinn

36

Gabríella Sif Beck Viðtal við gatara, Roller derby og Bergamó

74 84

Kotryna Rukštelytė Vín, pangaia fatnaður og techno

Magnús Bergmann Jónasson Kristin trú og húðflúr


90 96 106 114 120

Margrét Lilja Stefánsdóttir Kúba – eins og að ferðast aftur í tímann og viðtal

Ragna Fríða Sævarsdóttir Indie tölvuleikir og k-pop

Sandra Ósk Júníusdóttir Inniplöntur, máttur náttúrunnar og uppskrift af eplaköku

Sigríður Lára Stefánsdóttir FIDI, viðtal, Indónesía

Sóley Guðmundsdóttir Hönnuðurinn Axel Fannar, Marvel Studios og kaffimenning á Ítalíu

130

Erasmus+ Ísland/Ítalía Myndasyrpa frá ferðalagi okkar til Mílanó, Bergamó og Flórens

133

Erasmus+ Belgía/Ísland We are Sieme, Michiel and Juup and we come from Belgium

140

Þakkir Þakkarsíða útskriftarnema grafískrar miðlunar


4

EMBLA


Ég heiti Anný Tinna Aubertsdóttir, eða eins og margir þekkja mig „gellan með bláa hárið“. Ég er fædd, uppalin og staðsett í Kópavoginum. Síðan ég man eftir mér þá hef ég alltaf leitast í það að skapa, hvort sem það er með blýanti, olíupastel, leir, akrýl, olíumálningu og ég get talið áfram upp. Til að taka það saman, þá var ég handóð með ofureinbeitingu á að föndra og láta hluti líta fallega út í kringum mig. Ég man eftir því að hafa notað gömul blöð, heftað þau saman, skrifað mína eigin sögu og málað myndir með. Alltaf eitthvað föndurbrask. Þannig mér var m.a. hent í myndlistarskóla, þar sem ég lærði myndlist og teikningu. Enda átti það ágætlega við. Seinna meir hríslaðist ég frá þessum „áhugamálum“ í þeim sjálfsagða sannleika að nú ætti ég að velja mér einhverskonar fullorðinsstarf. Eitthvað rökrétt og lógískt. Eitthvað alvöru, og listin gæti verið bara einhverskonar hobbý. Kannski var það líka ég að sannfæra sjálfa mig að ef ég myndi gera þetta að minni atvinnu þá myndi ég algjörlega fá leið á þessu braski. Þannig ég gleymdi „áhugamálinu“. Afvegaleiddist og druslaðist í allt frá tannlækninum, stjórnmálafræði, einkaflugmanninum og loks yfir í sálfræði. Þó að sálfræðin var eina námið á háskólastigi sem ég kláraði af þessum fögum.

Eftir útskrift í sálfræðinni, týndari í lífinu en nokkru sinni fyrr, þá flutti ég ein til Ástralíu. Þar sem ég ferðaðist og ferðaðist lengra yfir til Nýja Sjálands og þaðan til Asíu. Og hér er ég, komin til baka og fundin, með málningaslettur á peysunni, námsefni af grafískri miðlun í tölvunni og hor í nefinu. Flest verk mín eru innblásin af litríkum heim tilfinninganna og mannlegra upplifunar. Þar sem ég legg áherslu á mikla litagleði (eða alls enga – stundum) og áferð. Það er svo margt fallegt sem ég hef séð í þessum heimi og mig langar til að skapa eitthvað í þennan heim sem endurspeglar það. Hvort sem það er í gegnum málverk, skrifuð orð, fangaðar ljósmyndir eða fallega hönnun. Þá vona ég að mín hugsjón og sjónarmið gefi ykkur einhverja upplifun og jafnvel veiti ykkur ánægju.

Takk fyrir mig, Anný Tinna Aubertsdóttir

EMBLA

5


Jákvæð inngrip og áhrif þeirra Jákvæð sálfræði er vísindagrein sem einblínir á styrkleika einstaklinga í stað veikleika þeirra. Þar sem grunnhugmyndin er byggð á þeirri trú að einstaklingar leitast við að lifa hamingjusömu lífi sem hefur tilgang (e. meaningful) og er full­ nægjandi (e. fulfilling). Talað er um að hamingja er 50% genatengd, 10% aðstæður og 40% breytileg (þ.e. hugsun, tilfinningar og hegðun) (Hefferson og Boniwell, 2011). Jákvæð inngrip eru þættir sem hafa áhrif á þessi 40%. Þ.e.a.s. æfingar sem stuðla að því að auka andlega heilsu og rækta jákvæðar tilfinningar, hegðun og hugsanir. Þessi inngrip eru þróuð með því sjónarhorni að auðvelda flæði jákvæðra tilfinninga, auka vellíðan og stuðla að þroska og sköpunargáfu (Moss, 2016). Margar rannsóknir hafa verið gerðar til þess að kanna árangur þessara æfinga og sýna niðurstöður þeirra flestra á aukna hamingju. Jákvæð inngrip byggja því á fræðilegum grunni – þ.e. rannsóknum og kenningum sem styðja skilvirkni þeirra. Til eru mismunandi tegundir af jákvæðum inngripum þ.á m. þ a k k l æ t i s b r é f, núvitundaræfingar, það að vinna út frá persónulegum styrkleikum, sýna velvild, stunda hreyfingu og rækta félagsleg tengsl.

[ 6 ] EMBLA

Seligman, Steen, Park og Peterson (2005) gerðu rannsókn þar sem þeir báðu þáttttakendur um að skrá hjá sér þrjá jákvæða hluti eftir hvern dag og skýra hvernig þeir áttu hlut í þessum jákvæðu hlutum. Sex mánuðum síðar var skoðað vellíðan hjá þessum einstaklingum og hafði hún aukist til munar, þ.e. þátttakendur greindu frá því að þeir upplifðu meiri hamingju og minni depurð. Núvitund byggir á að beina athyglinni með­ vitað að núlíðandi augnabliki án þess að dæma. Æfingarnar eru m.a. að meðvitað njóta einstakra augnablika, hugleiða og upplifa meðvitað þær athafnir sem maður framkvæmir. Fredricksson og fl. (2008) gerðu rannsókn sem átti að kanna „broaden-and-build theory“ þar sem þeir skiptu 139 þátttakendum í tvo hópa þar sem annar hópur­ inn stundaði núvitundaræfingar daglega. Niður­ stöður rannsóknarinnar sýndi fram á að hópurinn sem stundaði núvitundaræfingar daglega fann fyrir auknu flæði af jákvæðum tilfinningum og betri líðan. Þar af leiðandi upplifðu einstaklingarnir meiri tilgang og vellíðan í bæði starfi og leik. Einnig sýndu niðurstöður fram á að fólk sem stundaði núvitundaræfingar var ólíklegra til að fá flensu. Styrkleikar eru jákvæðir eiginleikar eða ein­ kenni sem birtast í hugsunum, tilfinningum og hegðun okkar (Peterson og Seligman, 2004). VIA Styrkleikaprófið mælir 24 styrkleika sem flokkast í 6 yfirflokka þ.e. viska, kjarkur, mannúð, réttsýni, yfirvegun og yfirskilvitleiki. Styrkleikaæfingin felur í sér þá æfingu að nýta sér þá styrkleika sem maður skorar hæst í við flestar aðstæður og verkefni. Seligman (2009) hélt því fram að nýta sér persónulega styrkleika við verkefnavinnu myndi auka líkurnar á að upplifa aukið flæði (e. flow). Wood, Linley, Maltby, Kashdan og Hurling (2010) sýndu fram á það í langsniðinni rannsókn að notkun styrkleika í verkefnavinnu minnkar streitu­ einkenni, eykur sjálfstraust og hækkar orkustig. Þá má einnig nefna rannsókn Littman­Ovadia og Steger (2010) sem sýndi fram á að einstaklingar sem fengu tækifæri á því að nýta sér styrkleika í starfi upplifðu meiri vellíðan og starfsánægju. Á þessum skrýtnu tímum (covid) hef ég fund­ ið fyrir miklu andlegu álagi, hvort sem það er óreiða í hausnum á mér, persónulega lífi eða jafnvel skólanum. Þá ákvað ég að setja sjálfa mig


í félagslegt tilraunaverkefni í þrjár vikur. Það fólst í því að prufa þessar þrjár tegundir af jákvæðum inngripum. Fyrst að halda dagbókar færslur með að skrásetja þrjá góða hluti á dag í viku og lýsa mínum þætti í þeim. Því næst voru núvitundaræfingar með appi sem kallast Bloom, þar sem prufað voru mismunandi núvitundar­ æfingar í 5 daga. Æfingarnar samanstóðu af mis­ munandi hugleiðsluæfingum þ.e. þrepin þrjú, öndunaræfingar, að skanna líkamann og velvild. Síðast var tekið styrkleikapróf þar sem fengust niðurstöður um þá styrkleika sem maður skoraði hæst í. Þar var áherslan lögð á að vinna út frá styrkleikum sínum þ.e. velja einn styrkleika til að einbeita sér að og vinna út frá á nýjan máta. Samantekt Fyrsta æfingin að skrásetja þrjá góða hluti á dag og fjalla um hvernig maður ætti hlut í þeim reyndist vera auðveldara en ég bjóst við. Fyrir þremur árum las ég mér til um hvernig hvernig ég gæti „forritað“ heilann til að einblína á jákvæðar hugsanir. Það hjálpaði mikið á þeim tíma við að byggja upp jákvætt lífsviðhorf þ.e. að vera þakklátur fyrir hversdagslegum augnablikum. Ég taldi mig því vera nokkuð vel undirbúna til að framkvæma þakklætisæfinguna. Það sem kom þó mest á óvart var að eftir að hafa framkvæmt æfingarnar þ.e. skrásett þrjá hluti daglega í viku fann ég merkilegan mun. Sú aðgerð að skrásetja litlu atriðin sem maður var þakklátur fyrir og lesa þau yfir fékk mann ósjálfrátt til að meta minnstu hluti sem áttu sér stað á degi hverjum. Hvort sem það var góður kaffibolli eða hitta vini. Núvitundaræfingarnar fólust í því að gefa sér tíu mínútur á dag til að njóta einstakra augnablika. Stoppa aðeins við og finna fyrir andardrættinum, líkamsstöðu og núverandi líðan. Samfélagið sem við búum við í dag, þar sem er stanslaust áreiti krefst þess að við hugsum alltaf fram í tímann. Tíminn flýtir sér og við sem einstaklingar finnum fyrir mismunandi og mis­ miklum streitueinkennum. Eftir að hafa stundað þessar æfingar í aðeins fimm daga, þá fann ég fyrir minni spennu í líkamanum. Mestmegnið

af deginum er maður að vinna í tölvu og maður fattar ekki hversu mikið maður spennist upp yfir daginn. Þannig partur af þessari æfingu var að taka pásur, standa upp og hafa meiri flæði og hreyfingu yfir daginn. Og ekki að hlekkja sig við skrifborðið. Ásamt því átti ég auðveldara með að vakna á morgnanna. Þannig almennt betri líðan. Það að vinna út frá styrkleikum sínum tók hvað mest á. Þ.e. að finna styrkleika sem maður ætti að einbeita sér að og vinna út frá á nýjan máta. Ég tók persónuleikaprófið á VIA Institute of Characther þar sem ég fékk niðurstöður um þá styrkleika sem ég skora hvað hæst í og hvað lægst í. Ég vinn reglulega með mína efstu fimm styrkleika og eru þeir jafnvel orðnir rótgrónir í minn persónuleika, því ákvað ég að leita á önnur mið. Ákvörðunin var því að vinna með tvo styrkleika sem ég vildi bæta mig í. Ég fann að ef maður einbeitir sér að styrkleikum og hvernig maður getur nýtt þá í mismunandi aðstæðum minnkar streitueinkenni, eykur sjálfstraust og hækkar orkustig. Allar æfingarnar voru krefjandi að því leyti að maður þurfti að venja sig á að gefa sér tíma, en ágóðinn af því er meira virði en maður heldur. Hefði líklega ekki getað valið meira viðeigandi og uppbyggjandi verkefni fyrir sjálfa mig. Finn mun á mér eftir þessar þrjár vikur þá aðallega hvað ég er með meira jafnaðargeð og á auðveldara með að tækla hlutina, hvort sem það er skólaverkefni eða bara eiga samskipti við fólk. Engin öfgakennd jákvæði eða hamingjuflæði heldur ákveðið form af æðruleysi. Held að það sem ég hef lært mest á þessum covid rússíbana er að gefa sér tíma og augnablik fyrir sjálfan sig og njóta. Þar af leiðandi tekur maður meiri ánægju í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur í staðinn fyrir að keyra það áfram og drífa allt af. Málið er að við erum á lífi núna og því er alveg eins gott að nýta það í eitthvað sem manni finnst gaman og það sem veitir manni ánægju. Held áfram að rækta geðheilsuna, hvort sem það verði jafn einbeitt og metnaðarfullt og þessar þrjár vikur, það veit ég ekki. En ég ætla allavega að hafa áfram Bloom appið í símanum.

EMBLA

7


Hvað er list? Er það löngunin til þess að skapa? Þörfin til að tjá sig? Afrakstur þarfarinnar og langanina? Sumum er í rauninni alveg sama, af hverju að skilgreina eitthvað sem kemur náttúrulega og bara er. Margir heimspekingar hafa þó velt listinni fyrir sér. Þar sem þeir brjóta hugtakið niður í vísindalegar öreindir s.s. flokkunarhugtak og matshugtak. Hvort eitthvað má flokka sem list og svo hvort það sé nógu góð sköpun til að vera kölluð list. Lengi vel var haldið í þá hugmyndafræði að list væri einhverskonar eftirlíking; þ.e. eftirlíking af lífinu, hvort sem það sé málverk af landslagi, portrett af útliti og skapgerðar persónu. En l j ó s my n d a t æ k n i n gerði þá kenningu úrelta, þar sem ljósmyndir voru nákvæm eftirmynd og fönguðu augnablik af raun­ veruleikanum. Þannig að ný kenning tók við, þar sem list væri ekki eftirlíking heldur tjáning og þá tjáning tilfinninga.

Bandaríski heim– spekingurinn Arthur C. Danto hélt því djarflega fram að list væri ekki list nema í ljósi einhverrar kenningar s.s. eftirlíking, tjáning, sköpun og form. Þá að þessar kenningar væru gagnlegar um gildi listar og listaverka.

Vandinn við að kryfja hugtakið list er að það gleymist yfirleitt að tilgreina hvaðan hún kemur. Hvar uppsprettan liggur. Hvaðan sköpunargleðin kemur.

A

L

A Ð N I L T I S F I

Sköpunargáfa er rótin, andleg og félagsleg aðferð þar sem nýjar aðferðir og hugtök eru búin til. Sköpun á einhverju nýju, endurbót á einhverju gömlu eða jafnvel endurtekning/eftirherma á einhverju sem virkar. Talað er um að sköpunargáfa sé einmitt mjög mikilvæg í störfum tengdum viðskiptum, hagfræði, byggingarlist, iðnhönnun, grafískri hönnun, auglýsingum, stærðfræði, tónlist, vísindum, verkfræði, kennslu og … bíddu … er hún þá ekki mögulega bara partur af öllu. Er þá sköpunargáfa eitthvað sem er fastskorðað í mannlegu eðli. Það er ekki til ein endanleg og opinber skilgreining á sköpunargáfu og listinni sem fylgir í kjölfarið. En maður sem skapar er talinn vera „skapari“ (Are we god?!) eða öllu heldur listamaður/ listakona! Sköpunargleði er einfaldlega hugsanamynstur sem leiðir af sér nýjar og nytsamlegar hugmyndir. Það að vera úrræðagóður er þannig í rauninni merki um sköpunargleði. Það eru til margar leiðir til þess að nálgast útskýringu á listinni, hvort sem það er að brjóta hugtakið niður í öreindir, gefa henni vitsmunalegt gildi og skapa umræðu út frá ýmsum sjónarmiðum. Hvort sem það er um listina sjálfa, listahugtakið, sköpunargáfu og/eða gleði. En kannski er það einfaldlega svo – eins og ég nefndi áðan – að list er líf og lífið er list.


Ég legg bílnum á iðnaðarsvæði, þar sem blokkir eru að rísa á ógnarhraða. Ég geng inn í eina af blokkunum sem lítur út fyrir að vera að mestulagi tilbúin og hringi bjöllunni, þaðan fer ég upp í nýju íbúð viðmælandans. Viðmælandi minn að þessu sinni er Sebastian Valur, kokkur og í þessu tilfelli IKEA uppsetningarmaður. Hann liggur á hnjánum þegar ég labba inn og á í fullu fangi við að setja saman hillusamstæðu frá IKEA. Hvað var það sem kom þér í þennan iðnað eða á matreiðslubrautina? Ég byrjaði í bílaiðnaðnum, þangað til ég áttaði mig á að þetta væri ekki það sem mig langaði að gera. Síðan tók ég önn í íþróttafræði, en upplifði mig smá týndan. Þá fór ég að pæla hvað mér þótti gaman þegar ég var í grunnskóla þar sem ég rifjaði upp þau fög sem ég var í og mundi hversu gaman ég hafi haft í heimilisfræði. Svo þegar ég fór í Fsu og var í heimilisfræði þar, þá fann ég meiri spurningar vakna varðandi samsetningu á uppskriftum, af hverju er þetta gert svona og af hverju þetta hráefni? o.s.frv. Ég hikaði ekki við að efast og spyrja heimilisfræðikennarann endalaust þangað til heimilisfræðikennarinn sagði einfaldlega við mig „af hverju verður þú ekki bara kokkur?“ og það gerði ég. Ég hætti í Fsu, og sótti um starf í á stóru stöðunum, Hilton og Perlunni og endaði á að fara í Perluna, þar sem mér gekk misvel að læra. „Mér gekk í

rauninni alveg hræðilega, en þeir sögðu mér aldrei upp, þeir voru líklega að bíða þangað til ég myndi segja upp, þar sem það var svo mikið álag, en ég hélt áfram“ sagði hann. Það var ekki fyrr en einn daginn, þar sem ég komst á lagið með álagið og keyrsluna á veitingastaðnum. Það var að sumri til þegar ég var búinn að vera að vinna þarna í mánuð, þá allt í einu klikkaði eitthvað í hausnum á mér og ég náði að vinna í álaginu. Og þá varð þetta eiginlega bara meira gaman. „Það var ekki fyrr en seinna þar sem ég áttaði mig á því að það eru margir sem þykir gaman að elda og hafa áhuga á matargerð en svo kemur keyrslan og streitan og þetta endar á því að vera ekki það starf sem einstaklingarnir gerðu sér í hugarlund. Það eru nefnilega ótrúlega margir nemar sem koma og fara.“ Oftar en ekki er maður að elda fyrir 100 manns á klukkustund, þannig að þetta starf krefst ekki einungis áhuga og ástríðu, heldur kallar á skipulögð vinnubrögð, tækni og hæfni. Þar að auki, að geta unnið undir miklu álagi inn á milli. „Mér hefur alltaf fundist eftirréttir ótrúlega skemmtilegir“ Ég byrjaði upprunalega í bakaríi þegar ég var 15 ára ásamt unglingavinnunni. En ég missti svolítið áhugann á því vegna tímanna sem þeir þurfa að vakna, svo var kannski ekki viturlegast að vera að vinna unglingavinnuna með því seinna um daginn. Það tók svolítið á andlega, þannig að ég hríslaðist af þeirri braut og fór í íþóttafræðina og grunninn af bílaiðnaðinum, eins og ég nefndi áðan sem mér fannst alveg skemmtilegt svo sem, en ekki nægilega skemmtilegt til að eyða restinni af lífi mínu að vinna við. Þannig ég hallaðist aftur að eldamennskunni og matargerðinni. Hvenær byrjaðirðu að vinna við þetta? „Ég byrjaði að vinna við þetta 2014, þannig ég er búinn að vinna við þetta í 7 ár, þó ég útskrifaðist ekki úr kokkinum fyrr en 2018.“ Eftir útskrift tók ég hálfsárs pásu, til að vera hreinskilinn þá hef ég verið að díla við „imposter syndrome“. Þó að umhverfið segi mér annað, þá held ég að partur af því að vera skapandi manneskja fær mann oft til að efast sjálfan sig og getu sína.

EMBLA

9


Ég er búinn að vera að vinna á Finnson bistro í næstum ár núna og eigandinn á Finnson treystir mér 100% með þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Og þar fæ ég meðal annars frelsi til að skapa og prufa mig áfram. Fórstu í einhverskonar starfsnám? Já, heyrðu, ég fór út til Frakklands í starfsnám. Fór þar á Michelin veitingastað þá lærði ég allskonar nýjar tækni og hvernig á að nálgast hlutina. Enda nýtti ég mér námið í tætlur og hikaði ekki við að spyrja af hverju og kafa dýpra í efnið. Það er líklega það sem er mikilvægast þegar kemur að því að kafa dýpra í pælingarnar á bak við það sem maður gerir, að vera ekki hræddur við að forvitnast, grafa í hausinn á lærimeistaranum og spyrja! Mjólka upplýsingar úr þeim sem vita betur og læra. Voru þá frönsku kokkarnir þínir mentorar eða hefurðu einhvern tíma verið með mentor eða er einhver sem þér finnst hafa kennt þér meira en annar? Yfirkokkurinn á Krisp á Selfossi líklegast, hann er maður sem lifir fyrir þetta. Hann ræktar hluti sjálfur, býr til sínar eigin sultur og er algjört séní. Hann dúxaði líka í kokkanáminu og er algjör pælari. Hann var einhvern veginn með svör við öllu. Skipti ekki mála hvaða spurningar mér datt í hug. Hann hvatti mig meira að segja áfram og nefndi það að ég gæti meðal annars verið í kokkalandsliðinu. Ég lærði ekki beint uppskriftir frá honum, heldur grunnatriði hvað varðar matreiðslu, hvort sem það er að elda kjöt, karamelisera allan fjand­ ann og fleira. Þó að ég endaði starfið ekki á góðum nótum, þá er ég samt þakklátur fyrir það sem hann kenndi mér.

10

EMBLA

Hvað drífur þig áfram? Örugglega óendanlegir möguleikar og forvitni til að skoða þá, sérstaklega í íslenskri náttúru. Þá að sækja ferskar íslenskar afurðir, það er svo mikið sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Beint frá bónda, marglitaðar paprikur og allskonar ferskt íslensk hráefni sem gerir matinn að ævintýri. Mig dreymir um að nýta sumarið og farið í íslenska náttúru og matreiða nýjar uppskriftir með t.d. ferskum skelfisk, bláskeljum, birkigreinum og fl. Ég hef brennandi áhuga á þessu, en stundum tekur athyglisbresturinn yfir og þunglyndið þannig maður gleymir sér í hversdagslegri rútínu og gleymir að hlusta á sköpunargleðina.

„ekki vera hræddur við að forvitnast og spyrja“ Hvað langar þér að elda fyrir mig í dag eftir IKEA samsetninguna? Sko, Það eru yfirleitt þrjár stöðvar í eldhúsi, kalda stöðin, heit stöð og frontið. Mest allt af lífinu hef ég verið á köldu stöðinni. Þar sem er lítið eldað, heldur er séð um forrétti og eftirrétti. Enda á það vel við, þar sem upphaflega vildi ég náttúrulega fara í bakarann. Þannig ég var að pæla að deila með þér „my speciality”, Ítölsk ostakaka. Það er svona uppskrift sem allir ættu að prufa allavega einu sinni og hún klikkar aldrei. Yfirleitt nota ég Yuzu púrru í mína köku, en það er líklega ekki hráefni sem allir eiga heima hjá sér. Þannig til að hafa hana þægilegri og meira „home friendly“, þá tek ég púrruna út og bæti við frosnum berjum.


MJÚK OSTAKAKA MEÐ ÍTÖLSKUM MARENZ & KIRSUBERJUM Aðferð

Ostakakan 5,6

stk

Matarlímsblöð

500

gr

Rjómaostur (stofuhita)

60

gr

Sítrónusafi

100

gr

Rjómi (stofuhita)

500

gr

Rjómi

1

gr

Vanilludropar

92

gr

Eggjarauður

240

gr

Sykur

100

gr

Vatn

Setjið allt saman í hrærivélaskál fyrir utan súkku­ laðið og hrærið saman með spaða, síðan setjið á smjörpappír. Setjið hvíta súkkulaðið á smjörpappír (fitu spreyjið gastro svo blaðið haldist fast. Setjið svo allt í ofninn á 160°C og byrjið að hafa hvítsúkkulaðið í u.þ.b. 3 mín. og beint inn í frysti, en „crumblið“ á að vera í u.þ.b. 10–15 mín. Síðan meðan hafrarnir kólna þá setjið hvítsúkkulaðið í matvinnsluvélina þangað til það er orðið að „crumbli“, síðan það sama við hafrana og mixið svo bæði saman.

Aðferð Byrjið að setja matarlímsblöðin í vatn. Mixið svo saman rjóma ost, sítrónu safa, rjóma (100) og vanillu dropa, vinnið allt saman þangað til orðið „smooth“. Setið svo sykur og vatn saman í lítinn sósupott yfir háum hita og fáið að 118°C. Meðan sírópið hitnar, byrjið að þeyta rauðurnar. Þegar rauðurnar eru þeyttar og sírópið heitt þá hellið sírópinu í jöfnu streymi í rauðurnar með vélina í gangi (medium), kreistið svo allt vatn úr matarlímsblöðunum og setjið í litla sósupottinn meðan hann er heitur og látið hann bráðna, hellið svo strax í rauðurnar og hrærið þangað til þær ná stofuhita. Blandið svo rjómaost mixinu í rauðurnar. Létt þeytið rjómann (500) og blandið svo rjómanum við mixið. Geymið svo í kæli þangað til kakan er orðin stíf svo í sprautupoka. Hvítsúkkulaði & Hafra crumble 200

gr

Hafrar

100

gr

Púðursykur

100

gr

Smjör (stofuhita)

2

gr

Salt

50

gr

Hvítt súkkulaði

1/2

tsk

Sítrónuzest

Kirsuberjahúðaður Ítalskur marenz 300

gr

Sykur

120

gr

Vatn

120

gr

Eggjahvítur (stofuhita)

1/3

tsk

Sítrónusafi

Aðferð Byrjið á að fituhreinsa öll áhöld. Setjið svo eggjahvíturnar í hrærivélaskálina með safanum og hrærið á „low“, setjið svo sykurinn og vatnið saman í lítinn sósupott á háan hita og fáið sírópið að 118°C. Þegar hvíturnar eru þeyttar og sírópið heitt er sírópinu hellt með jöfnu streymi yfir hvít­ urnar og þeytt þangað til þær nái stofuhita. Á meðan er smjörpappír settur á þurrkofngrindurnar. Þegar hvíturnar hafa náð stofuhita er notaður kökuspaði til að dreifa því jafnt yfir smjörpappírinn (0,6 cm þykkt). Myljið svo þurrkuðu kirsuberin jafn og þétt yfir marenzið og setjið svo í þurrskáp á 50°C í 8 tíma.

& VOILÀ

EMBLA

11


12

EMBLA


Álfheiður Björk Álfheiður Björk heiti ég, fædd í Víðinesi á Kjalar­ nesi þann 27. janúar 2001. Þar ólst ég upp til 5 ára aldurs en flutti þá með fjölskyldu minni í Reykholt í Biskupstungum. Frá unga aldri hef ég haft gaman af sköpun og list. Ég uni mér best þegar ég fæ að skapa eitthvað og á mjög auðvelt með að gleyma mér tímunum saman. Þrátt fyrir áhuga minn á sköpun og list skráði ég mig á náttúrufræði­ braut í Menntaskólanum að Laugar vatni og út­ skrifaðist þaðan vorið 2019. Í menntaskóla sat ég í stjórn nemendafélagsins Mímis sem vef­ og markaðsfulltrúi og kviknaði þá áhugi minn á grafík. Það var ekki fyrr en eftir útskrift sem ég fattaði að ég gæti lært það sem mig langaði til. Þá hófst mikill óvissutími í mínu lífi þar sem það var og er enn svo margt sem mig langar til þess að læra. Haustið 2019 ákvað ég á síðustu stundu að skrá mig í grafíska miðlun í Tækniskólanum án þess að vita almennilega hvað það væri. Það eina sem ég vissi var að mig langaði ekkert að

fara í háskóla, bara af því bara, heldur vildi ég læra eitthvað sem ég hafði áhuga á. Námið hefur verið bæði skemmtilegt og krefjandi á sama tíma. Við vitum öll hvað gerðist árið 2020 en eftir vorönnina í Tækniskólanum ákvað ég að taka mér pásu frá náminu. Það gekk ekki betur en svo að áður en ég vissi hafði ég skráð mig í nám í Hallorms­ staðaskóla haustið 2020. Þaðan útskrifaðist ég vorið 2021 með diplómu í sjálfbærni og sköpun. Haustið 2021 ákvað ég að nú skyldi ég klára það sem ég byrjaði á og skráði mig í sérsvið grafískrar miðlunar. Það má því með sanni segja að Tækniskólaævintýri Álfheiðar hafi tekið örlítið lengri tíma en ég ætlaði í upphafi. Þrátt fyrir það er ég mjög þakklát fyrir allt fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni, bæði samnemendur og alla kennarana og ég get ekki beðið eftir að sjá hvert skyndiákvarðanirnar taka mig næst! Takk fyrir mig!

EMBLA

13


Sérsaumað eftir pöntun

Föndur & fleira Lífið væri frekar litlaust og leiðinlegt ef maður hefði engin áhugamál. Ef fólk gerði bara það sem þarf að gera og tæki engan tíma til þess að dunda sér við eitthvað myndu flestir eflaust missa vitið. Það er því mikilvægt að eiga sér áhugamál sem hægt er að gleyma sér í tímunum saman. Flestir hafa allavega eitt áhugamál en ef það er hægt að eiga sér of mörg þá er ég klárlega ein af þeim! Allt sem tengist handavinnu og sköpun finnst mér mjög skemmtilegt. Ég á það þó til að byrja á mörgum verkefnum í einu og svo geyma þau ofan í skúffum og kössum þegar kemur að því að gera eitthvað sem ég kann ekki. Ég veit að ég er ekki ein um að fá gífurlegan áhuga á einhverju sérstöku og eyði öllum peningunum mínum í það en um leið og áhuginn fer annað fær dótið bara að fara ofan í kassa. Ég ákvað því að fara í gegnum þau verkefni sem ég hef byrjað á til þess að sjá

14

EMBLA

hvað er enn óklárað. Ég tók myndir af því sem ég fann og komst að þeirri niðurstöðu að nánast ekkert væri fullklárað. Þrátt fyrir að verkefnin séu ókláruð ákvað ég samt að mynda þau. Þetta gerði ég bæði til þess að fá betri yfirsýn yfir hvað er eftir en einnig vegna þess að það er eitthvað fallegt við alla litina og mismunandi áferðir. Nokkrar myndirnar má sjá með greininni. Smá verkefni Það er oft auðvelt að byrja á smáu verkefni. Kostnaðurinn er oftar enn ekki lítill og verkefnið tekur almennt stuttan tíma. Þrátt fyrir að verkefnin séu smá eru þau þó ekki alltaf auðveld. Það þarf að huga að litlum smáatriðum og verkefnin krefjast oft meiri vandvirkni en þau stærri.

Heimagerður rúmgafl úr spítum, svampdýnu og gardínum


Stærri verkefni

Framhaldið

Smá verkefni hljóma kannski auðveldari en stór en það þarf ekki alltaf að vera þannig. Oft gleymir maður sér í smáatriðum og kemst lítið áfram. Þess vegna finnst mér stærri verkefni lang skemmtilegust. Þá skipta smáatriði ekki eins miklu máli í lokaútkomunni. Ég er lítið fyrir það að hafa umhverfið í kringum mig eins í langan tíma. Mér finnst hins vegar mjög gaman að hafa umhverfið mitt fallegt og skemmtilegt. Ég hef alveg misst töluna hversu oft ég hef málað veggina og tala ekki um hversu oft ég hef gjörsamlega snúið öllu rýminu við. Ég verð fljótt leið á hlutum og húsgögnum en eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er einmitt að breyta og laga gömul húsgögn. Mér finnst ekki síður skemmtilegt að smíða mín eigin og gera stórar breytingar á rýmum.

Það er margt sem mig langar að læra og verða betri í. Það eru ótal námskeið í boði þar sem hægt er að læra fjölbreytta og skemmtilega hluti. Ég hef því ákveðið að vera duglegri bæði í að æfa mig í því sem ég hef gaman af en einnig að læra nýja hluti og bæta þannig við mig þekkingu á eins mörgum sviðum og hægt er. Texti og myndir: Álfheiður Björk Bridde

Ungbarnateppi úr bómullargarni í vinnslu

Samtökin Blómstra bjóða alla velkomna á ráðstefnu í Hörpu dagana 1. og 2. maí Ráðstefnan er fyrir alla þá sem vilja hafa áhrif á framtíð skólastarfs hér á landi og vilja koma sínum hugmyndum á framfæri. Frábærir fyrirlesarar varpa ljósi á það sem gott er en einnig það sem betur má fara. Gestum er velkomið að leggja fram nýjar hugmyndir að nýrri stefnu fyrir betri framtíð.

EMBLA Nánari upplýsingar eru að finna inn á heimasíðunni blomstrum.is

15


Hallorms­ staðaskóli Merkileg saga Hallorms­ staðaskóla og persónuleg reynsla af náminu

Þau hjónin Sigrún Pálsdóttir og Benedikt Blöndal stofnuðu og byggðu Húsmæðraskólann á Hall­ ormsstað á árunum 1929 til 1930 og hófst kennsla haustið 1930. Æviágrip Sigrún var fædd og uppalin á Hallormsstað en um aldamótin 1900 flutti hún Suður til Reykjavíkur og stundaði nám við Kvennaskólann í Reykja­ vík. Að náminu loknu flutti Sigrún til Danmerkur og hóf nám í heimilisiðnaði, tveggja ára nám í lýðháskólanum í Askov og fór á vefnaðarnám­ skeið. Það má því með sanni segja að Sigrún hafi haft mikinn áhuga á íslenskum heimilisiðnaði og hélt hún mörg námskeið hér á landi. Benedikt Blöndal var kennari á Eiðum. Árið 1918 ganga Sigrún og Benedikt í hjónaband og

16

EMBLA

voru þau sögð passa vel fyrir hvort annað. Bæði höfðu þau mikinn áhuga á þjóðmálum, menntun og uppeldi. Hjónin kenndu bæði ýmsar greinar í Alþýðuskólanum á Eiðum en það leið ekki á löngu þar til þau fóru að kynna sér skólamál á Norðurlöndum. Það var árið 1924 sem hjónin ákváðu að hætta kennslu við skólann á Eiðum. Þá höfðu þau kynnt sér ýmsa lýðskóla og líkað stefnu þeirra betur en stefnu skólans á Eiðum. Hjónin stofnuðu skóla í Mjóanesi og höfðu þá flestir nemendanna á Eiðum elt þau þangað enda voru þau eftirsóknarverðir kennarar. Í skólanum héldu þau fyrirlestra um merka menn og einu sinni í viku var kvöldvaka þar sem Benedikt las fyrir fólkið úr hinum ýmsu bókum. Skólinn var starfræktur í sex ár en það var draumur Sigrúnar að stofna húsmæðraskóla á Austurlandi.


Berjatýnsla í Mjóafirði

Hvannarpasta í vinnslu

Vettvangsferð í Óbyggðastrið


Fysti húsmæðraskóli á Austurlandi

Sjálfbærni og sköpun

Þann 1. nóvember 1930 var Húsmæðraskólinn á Hallormsstað settur í fyrsta sinn. Sigrún var ráðin forstöðukona skólans og Benedikt ráðinn aukakennari. Hver skóladagur hófst og endaði með sálmasöng en Sigrún var mjög trúuð og vildi innleiða trúna í uppeldisstarfinu. Nemendur tóku þátt í ýmsum verklegum námskeiðum svo sem matreiðslu, garðyrkju, saumi, ræstingum og vefnaði. Þá stunduðu nemendur einnig bóklegt nám og á hverjum degi var útivera. Námið var fjölbreytt og nemendur og kennarar bjuggu í skólanum sem ein stór fjölskylda. Skólinn hefur nú starfað í um 90 ár og hefur námið tekið á sig ýmsar myndir á þeim tíma.

Nú heitir skólinn Hallormsstaðaskóli þar sem sjálfbærni og sköpun eru grunnþættir kennslunnar. Námið er bæði verklegt og bóklegt en fyrirkomu­ lag kennslunnar fer mikið eftir áhugasviði hvers nemendahóps. Nemendur taka þátt í hinum ýmsu vinnustofum og námskeiðum, fara í skemmti­ legar vettvangsferðir og þess á milli njóta þeir samverunnar á þessum fallega stað.

Kíkt á Kárahnjúkavirkjun

Skarfur í Mjóafirði

Persónuleg reynsla Haustið 2020 fór ég í Hallormsstaðaskóla. Þar kynntist ég frábærum hópi af flottum konum sem allar höfðu ólíkan bakgrunn. Það myndaðist skemmtilegt andrúmsloft í skólanum og við vörðum nánast öllum stundum saman. Námið var mjög áhugavert en á sama tíma krefjandi. Það var aldrei dauð stund í skóginum og að skóladegi loknum fórum við gjarnan í skoðunar­ ferðir um Austurlandið. Við þræddum alla Aust­ firðina hvort sem það var á okkar vegum eða í vettvangsferðum. Ef veðrið var ekki að leika við okkur sátum við oft saman í saumastofunni og prjónuðum, saumuðum eða horfðum á bíómynd. Um helgar elduðum við oft saman og spiluðum spil, sungum saman og spjölluðum fram á nótt.

18

EMBLA

Þú tekur ekki bara með þér aukna þekkingu um sjálfbærni og sköpun að námi loknu heldur kynnist þú bæði frábæru fólki og sjálfum þér mun betur. Þetta hljómar kannski allt eitthvað voðalega „cheesy“ eins og maður segir á slæmri íslensku en upplifunin að fara frá öllu sem þú þekkir og inn í þetta umhverfi er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Ef þú veist ekki hvað þú villt í lífinu, líður kannski ekki nógu vel eða langar hreinlega bara í fleiri ævintýri þá er Hallormsstaðaskóli klárlega eitthvað sem þú ættir að skoða! Texti og myndir: Álfheiður Björk


Fullorðins hnallþóra Hnallþórur eru fallegar tertur sem eru alltaf vinsælar í veislum. Það halda eflaust margir að flókið sé að baka þær og skreyta en þvert á móti er það bæði einfalt og skemmtilegt. Hér má finna uppskrift sem er bæði góð og einföld með smá skemmtilegu ívafi.      

Svampbotn: 3 egg 2 dl sykur 1 dl kartöflumjöl 1 dl hveiti 1 tsk lyftiduft

Aðferð Hitið ofninn í 180°C með undir- og yfirhita. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti varlega saman við og hrærið með sleikju. Í vel smurð form hellið deiginu og bakið við 180°C í sirka 35 mínútur.

Á meðan botnarnir eru í ofninum er tilvalið að undirbúa rjómann, ávextina og aðrar skreytingar. Þegar botnarnir hafa kólnað er hægt að byrja að skreyta. Það er mjög persónubundið hvernig fólk kýs að skreyta kökurnar en hér er sú aðferð sem ég kýs að nota. Byrjið á að koma einum botni fyrir á kökudisk og hellið örlítið af Malibu yfir. Þetta gefur bæði gott bragð og gerir kökuna mýkri. Næst er þunnu lagi af þeyttum rjóma smurt yfir ásamt ávöxtum. Næsti botn er lagður yfir og sömu skref endurtekin. Þegar búið er að raða botnunum saman hefst skemmtilegasta skrefið að mínu mati en það eru skreytingarnar. Þeytið rjóma og setjið þunnt lag yfir kökuna. Restin af rjómanum er sett í poka og sprautað jafnt á hliðar kökunnar. Næst er ávöxtum raðað í miðjuna og nokkurskonar rjóma rósir sprautaðar með fram kantinum. Punkturinn yfir i-ið er svo að raða kirsuberjum á rósirnar. Texti og myndir: Álfheiður Björk Bridde

EMBLA

19


20

EMBLA


Ástrós Erla Ég heiti Ástrós Erla og er í námi við Tækniskólann að læra grafíska miðlun. Ég var ekki alltaf í grafískri miðlun; þegar ég byrjaði í skólanum fór ég á tölvubraut að læra forritun, en komst fljótt að því að forritun væri ekki fyrir mig, þannig að ég tók þá ákvörðun að skipta um braut og fór á grunnbraut í fjölmiðlun og grafískri miðlun. Eftir grunnbrautina valdi ég sérsvið í grafískri miðlun. Ég sé mig ekki vinna við þetta í framtíðinni. Mig langar að vinna við animation, eða hreyfimyndagerð. Mig langar líka að vera raddleikari fyrir tölvuleiki og teiknimyndaþætti. Það væri nú draumurinn að vinna við bæði! Hvað ég ætla að gera að námi loknu Að námi loknu ætla ég að fara í Háskóla Íslands að læra japönsku og nota þar tækifærið og fá námsstyrk til þess að fara sem skiptinemi til Japans til þess að læra í þessu frábæra landi. Eftir það langar mig að flytja annað hvort til Japans eða Kóreu og vinna þar við raddleik eða hreyfimyndagerð. Áhugamálin mín Oof, hvar á ég að byrja? Cosplay virkar þannig að maður klæðir sig upp sem einhver persóna úr uppáhalds teiknimynd, bók, mynd eða í rauninni hverju sem er. Það besta við það er samfélagið í kringum þetta allt saman. Það er mjög skemmtilegt að sjá hvernig aðrir sýna sína útgáfu af þeirra uppáhalds persónu eða þegar þau klæða sig upp sem einhver persóna sem þau bjuggu til. Allir eru mjög góðir og hjálpsamir; þeir eru

alltaf til í að gefa þér upplýsingar um hvar eitthvað var keypt eða hvernig þeir gerðu einhvern ákveðinn hlut. Annað sem er frábært við að „cosplaya“ er hversu mikið það dregur fram sköpunargleði, t.d. að búa til sína eigin búninga og leikmuni, mæta svo á einhverja nördahátíð og vera í búningnum sem maður bjó til og vera með sverðið eða hnífinn eða hvað sem er. Að vita að þú hafir búið til það sem þú ert í dregur fram ákveðið stolt og ánægju. Ég hef alltaf haft gaman af teiknimyndum, sérstaklega Disney, en það er eitthvað annað við japanskar teiknimyndir og þætti. Ég veit ekki hvort að það sé hvernig persónurnar líta út eða hvort það sé bara allt. Japanska hefur reyndar verið eitt af mínum uppáhaldstungumálum mjög lengi. Sagan í sumum þáttum eins og Attack on Titan er gjörsamlega frábær og það var engan veginn hægt að segja til um að 4. sería myndi taka risa snúning og breyta sögunni gjörsamlega og samt sem áður tengdist hún við allt sem hafði gerst! Þetta er einn af uppáhaldsþáttunum mínum og Attack on Titan var líka fyrsta mangað sem ég las til enda. Marvel er ein af stóru ástæðunum af hverju mig langar að vera myndasöguhöfundur…það gengur svona ágætlega, en ég er þó byrjuð að skrifa og teikna. Ég hef unnið í þessari sögu síðan ég var 14 ára. Sagan er um fjóra 18 ára krakka—álf, manneskju, hálfdjöful og vampíru—sem leggja af stað í ævintýri til þess að breyta heiminum til hins betra.

EMBLA

21


Hver er Banksy? Banksy er frægur götulistamaður frá Englandi. Hann er þekktur fyrir að blanda saman svörtum húmor og graffiti list. Þó að enginn viti hver hann er í raun og veru virðist samt eins og allir þekki hann. Allt sem hann hefur gert hefur verið gert í pólitískum tilgangi og hefur vakið til mikillar umræðu. Öll verk Banksy eru frábær á sinn hátt og segja frá alvarlegum hlutum sem hafa gerst. Verk hans skila sér algjörlega og segja nákvæmlega það sem þau eiga að segja. Eins og áður hefur komið fram er Banksy ekki bara listamaður, heldur var hann hetja á sínum tíma. Uppáhaldsverkið mitt eftir hann er Nablam; hann gerði það árið 2004 og er það eitt af áhrifamestu verkum hans. Banksy seldi ljósmyndir af verkum sínum á sínum tíma, en gerir það ekki lengur. Nú endurselur fólk myndir af verkum hans. Banksy var ekki bara götulistamaður, heldur einnig kvikmyndastjóri, eða var það. Kvikmynd hans, „Exit Through the Gift Shop“ var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni árið 2010, árið 2011 var hún tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir bestu heimildamyndina og Banksy vann svo til verðlauna sem maður ársins árið 2014.

Góðsagnakennd verk Nablam, 2004 Eitt af áhrifamestu verkum eftir Banksy er Nablam. Verkið sýnir Mikka Mús og McDonalds trúðinn að valhoppa með nakta grátandi stelpu í togi með sér. Ekki allir taka eftir því strax en þetta er stelpa frá mynd sem fannst árið 1972 í Víetnamstríðinu. Stelpan með blöðruna Þetta verk er eitt af langþekktustu verkum eftir Banksy. Hann byrjaði einhverskonar seríur og var þetta hans leið til þess að sýna stuðning sinn við ákveðnar herferðir eins og West Bank Barrier og

22

EMBLA

Syrian refugee crisis. Staðsetning verksins var á Waterloo brúnni. Önnur verk eftir hann voru einnig staðsett þar, en eru það ekki í dag. Bomb Hugger (Sprengjuknúsarinn) Verkið „Bomb Hugger“ var til þess að ýta burtu trúnni um að stríð væru mikilvæg fyrir lýðveldið. Verkið sýnir lítið barn að knúsa sprengju.


Anime og manga Anime og manga er það besta sem til er á jörðinni, Það er svo mikið sem fer í þetta; ekki bara frábær saga eða skemmtilegar persónur, þó að það spili auðvitað að miklu leyti inn í allt saman, en ef maður hugsar aðeins út fyrir það, hvað annað gæti spilað inn í? Ég myndi segja listin. Ef listin er ekki góð er mjög erfitt að horfa á eða lesa; það skiptir ekki máli hvort sagan sé góð eða ekki. Það sama gildir um raddleikarana. Ef þeir eru ekki góðir, get ég alls ekki horft á þáttinn. Það er kannski asnalegt að segja svona en það er nú bara sannleikurinn sagður.

út um allan heim frá árinu 2019, enda er þetta eitt af mest seldu manga í heiminum. Hann hefur líka unnið til verðlauna fyrir aðra manga bók sem hann skrifaði; hann vann Kodansha manga verðlaunin árið 2011 og Harvey verðlaunin árið 2014.

Góðir manga höfundar Hirikoshi er einn af bestu manga höfundum í Japan þessa dagana. Hann varð frægur fyrir Omagadoki Dobutsuen, Barrage og My Hero Academia. Allar þessar manga bækur koma fyrir í frægu japönsku manga blaði, Shonen Jumb. Hirikoshi er fyrrverandi aðstoðarmaður Yasuki Tanga, sem skrifaði Summer Time Rendering seríuna. Hann fékk mikinn innblástur frá Naruto, Akira og Katekyo: Hitman Reborn þegar hann skrifaði My Hero Academia. Hann sagði sjálfur í viðtali að hann væri mikill áhugamaður um bandarískar myndasögur, sérstaklega Marvel og þaðan kom hugmyndin um My Hero Academia. Hirikoshi hefur unnið til margra verðlauna fyrir My Hero, þau nýjustu eru Harvey verðlaunin, sem hann vann árið 2019. Hajime Isuyama er uppáhalds manga höfundurinn minn. Hann skrifaði uppáhalds manga seríuna mína, Attack on Titan, sem varð að besta anime í heimi. Hann byrjaði að skrifa mangað 2009 og kláraði það 2020. 100 milljón eintök hafa verið seld

Attack on Titan gerist í heimi þar sem fólk býr inna veggja sem verndar það gegn títönum. Sagan fjallar um Eren Yeager og vini hans Mikasa Ackerman og Armin Arlert. Þegar risatítani kemur og brýtur vegginn koma aðrir títanar hlaupandi inn og ráðast á allt fólkið. Mamma Erens deyr og með því sver hann að drepa alla títana. Hann ákveður að byrja í „survey corps“, herdeild sem berst gegn títönum. Attack on Titan annálar sögu Erens og ferð hans í gegnum lífið.

2

EMBLA

23


Saga Rómar Sagan segir að gamla Róm hafi verið stofnuð af hálfguðunum Romulusi og Remusi, 21. apríl 753 f.o.t. Þeir rifust harkalega um hvor þeirra ætti að stjórna borginni. Romulus drap bróður sinn og réði yfir borginni sjálfur. Stríð og stækkun borgarinnar Þótt Róm hafi gengið vel í viðskiptum á fyrstu árum var það í raun stríð sem gerði borgina að öflugustu borg fornaldar. Karþagóstríðin, sem eru betur þekkt sem púnversku stríðin, styrktu í raun vald Rómar og hjálpuðu borginni að vaxa og dafna. Eftir að Karþagó var sigruð náði Róm völdum nánast yfir öllu Miðjarðarhafinu, en sjóræningjar gerðu þeim ókleift að ná völdum yfir því öllu. Eftir því sem lýðveldi Rómar óx, þjáðist borgin af ei meiri spillingu, græðgi og of mikilli trú á erlendri þrælavinnu. Þeir sem gátu ekki unnið réðu sig út sem ræningjar til þess að gera samning við hvern þann í öldungaráðinu sem myndi borga þeim. Pat­ ricíar, þ.e. yfirstéttin, urðu ríkari og ríkari á kostnað lágstéttarmanna. Á 2. öld leiddu Gracchusarbræð­ urnir, Tiberius og Gaius, hreyfingu fyrir landbótum og almennum pólitískum umbótum. Þrátt fyrir að bræðurnir væru drepnir á meðan á þessu stóð, takmarkaðist hömlulaus spilling öldungaráðsins.

Lýðveldi Rómar Róm var skipt í tvær stéttir; yfirstéttin kallaði sig „opt­ imates“, eða bestu mennirnir, á meðan lágstéttin var þekkt sem „populares“, eða fólkið. Nöfnin voru úthlutuð þeim sem voru með ákveðna póli­ tíska hugmyndafræði; þetta voru ekki stórir stjórnmála­ flokkar og ekki voru allir yf­ irstéttarmenn optimates, né allir lágstéttarmenn popu­ lares. Marcus Licinius Crassus, Gnaeus Pompeius og Iulius Caesar mynduðu fyrra þrem­ enningasamband Rómar. Þeir voru allir þrír jafn metnaðar­ fullir og þyrstir í völd. Þess vegna náðu þeir að halda utan um hvorn annan og hjálpa Róm að blómstra. Crassus var ríkasti maður Rómar og gjörsamlega spilltur; hann neyddi ríka borgarbúa til þess að borga honum „öryggis“ peninga. Ef þeir borguðu ekki tímanlega brenndi hann húsin þeirra og lét þá borga fyrir að slökkva eldinn. Pompeius og Caesar voru góðir hershöfðingjar sem gerðu Róm að ríkri borg. Crassus vildi sömu virðingu og þeir fengu fyrir árangur sinn og leiddi það til þess að hann sendi her sinn til Parþíu og var sigraður í orrustunni við Carrhae, sem er nú í Tyrklandi. Eftir að Crassus var drepinn vegna samningaviðræða sem fóru úrskeiðis, klofnaði þremenningasambandið í sundur og Pompeius og Caesar lýstu stríði á hendur hvors annars. Pompeius reyndi að útiloka óvin sinn á löglegan hátt með því að láta Caesar standa undir dómi. Í stað þess að mæta fór Caesar yfir Rubicon ána með her sinn árið 49 f.o.t. og þaðan til Rómar. Hann neitaði að svara ákærunum og einblíndi

24

EMBLA


Octavius og Lepidus stofnuðu síðara þremenn­ ingabandalagið, en eins og áður voru þeir alveg eins metnaðargjarnir og þyrstir í völd. Lepidus var hlutlaus þegar Antonius og Octavius ákváðu að hann skyldi stjórna Hispaníu og Afríku, Antonius austurhluta Rómar og Octavius vesturhlutanum. Afskipti Antoniusar af Kleópötru raskaði jafn­ væginu sem Octavius var að vonast til þess að halda, sem leiddi síðar til stríðs og vann Octavius sameinaðan her Antoniusar og Kleópötru í orrust­ unni við Aktíum árið 31 f.o.t. Octavius, þekktur sem Augustus eftir þennan sigur, varð fyrsti keisari Rómar. Sagt er að sögu Rómar ljúki hér, en að saga Rómaveldis byrji.

einungis á að útrýma Pompeiusi. Her Caesars sigraði her Pompeiusar auðveldlega í orrustunni við Farsalos í Grikklandi árið 48 f.ot. Pompeius flúði til Egyptalands í von um að finna frið, en hann var myrtur um leið og hann kom. Fréttir bárust hratt um að Caesar hafi unnið orrustuna við Farsalos og margir vinir Pompeiusar gengu í lið með Caesari, trúandi að hann hefði verið valinn af guðunum sjálfum. Rómarveldið mikla Eftir allt saman varð Caesar valdamesti maður Rómar. Hann batt enda á lýðveldið með því að láta öldungaráðið gera sig að einræðisherra. Hann var mjög vinsæll meðal fólksins og gerði Róm að stórri borg. Árið 44 f.o.t. var hann drepinn af nokkrum mönnum öldungaráðsins bara af því að hann var góður þingmaður. Samsærismennirnir Brutus og Cassius voru hræddir um að Caesar myndi verða of valdamikill og taka yfir öldunga­ ráðið. Marcus Antonius gekk í lið með Gaiusi Octaviusi, frænda Caesars, og Aemiliusi Lepidusi og náðu þeir að sigra her Brutusar og Cassuius­ ar í orrustunni við Filippí árið 42 f.o.t. Antonius,

EMBLA

25


26

EMBLA


BJARKI ENOK GUÐNASON Ég heiti Bjarki Enok Guðnason, fæddur í Reykjavík þann 3. september 1995. Ég ólst upp í Grafarvogi og hef búið þar allt mitt líf. Á mínum yngri árum var ég mikill orkubolti og hafði mikinn áhuga á íþróttum. Þessi hreyfiþörf varð til þess að ég byrjaði að æfa fótbolta hjá Fjölni þegar ég var 5 ára og allt til 12 ára aldurs. Ég stundaði grunnskólanám í Borgaskóla en þar kviknaði áhugi minn fyrir listsköpun og gerði ég ótal mörg listaverk í stílabókina mína í stærðfræðitímum. Eftir grunnskólanám fór ég beint í framhaldsskólanám í Borgarholtsskóla. Þar leyfði ég mér að prófa hinar ýmsu brautir

en á endanum útskrifaðist ég sem stúdent af leiklistarbraut. Eftir nám langaði mig að halda áfram að kanna heim listarinnar og splæsti í eitt stykki teikniborð á Amazon og fór að teikna í gegnum forritið Photoshop. Þannig kviknaði áhugi minn á Adobe forritunum og fór ég pæla meir og meir í grafískri miðlun sem leiddi mig í það nám sem ég er að klára núna í Tækniskólanum. Þetta nám hefur reynst mér vel, virkilega góðir kennarar og skemmtilegir samnemendur og er ég alveg viss um að í framtíðinni mun sú þekking sem ég hef lært hér nýtast mér í framtíðinni.

EMBLA

27


KVIKMYNDIR K

vikmyndir eru hreyfimyndir sem miðla upplifunum, hugmyndum, sögum, tilfinn­ ingum, fegurð eða ákveðnu andrúmslofti, í dag fylgir þessum kvikmyndum yfirleitt hljóð. Kvikmyndalist byggist á nokkrum gömlum að­ ferðum eins og bókmenntum, leikhús og mynd­ list. Kvikmyndun er ótrúlega áhrifaríkur miðill til að miðla leiklist og sérstaklega í því að vekja til­ finningar. Kvikmyndalistin er afar flókin og krefst framlags frá næstum öllum öðrum listgreinum, auk óteljandi tæknikunnáttu (til dæmis hljóð­ upptöku, ljósmyndun og ljósfræði). Þessi nýja listgrein kom fram í lok 19. aldar og varð einn vinsælasti og áhrifamesti miðill 20. aldarinnar. Sem auglýsingaverkfæri var kvikmynd fljótt viðurkennd sem fyrsta fjöldaafþreyingin. Miðillinn þróaðist einnig sem tjáningarmáti listar á sviðum eins og leiklist, leikstjórn, handritsgerð, kvikmyndatöku, búninga­ og leikmyndahönnun og tónlist.

28

EMBLA

Eiginleikar kvikmynda Á sinni stuttu sögu hefur kvikmyndalistin tekið grundvallarbreytingum, eins og þegar innleiðing hljóðs átti sér stað. Í dag eru til margir stílar sem eru mismunand frá löndum til lands. Ýmsir þættir koma strax upp í hugann í tengslum við kvikmyndaupplifunina. Það helsta er að það er eitthvað vægast sagt dáleiðandi við hreyfinguna sem heldur athyglinni. Fyrstu kvikmyndirnar Í lok 1880 var kvikmynda myndavélin fundin upp, það gerði fólki kleift að fanga myndaröð með aðeins einni linsu. Kvikmyndir voru upphaflega sýndar opinberlega fyrir eina manneskju í einu sem kallaðist „peep show“. Ekki löngu seinna var byrjað að varpa kvikmyndum á stóra skjái fyrir marga áhorfendur.


Kvikmyndir voru upphaflega sýndar opinberlega fyrir eina manneskju í einu sem kallaðist „peep show“. Rondhay Garden Scene (1888) er elsta varð­ veitta kvikmyndin sem sýnir raunverulegar hreyfingar. Þetta er stuttmynd leikstýrt af franska uppfinningamanninum Louis Le Prince. Þó hún sé aðeins 2,11 sekúndur að lengd er hún tæknilega séð kvikmynd. Samkvæmt Guinnes book of records er þetta elsta kvikmynd sem til er. Arrival of a Train (1895) er 50 sekúndna löng kvikmynd sem sýnir innkomu lestar inn á lestarstöð í franska bænum La Ciotat. Þetta er ein upptaka sem sýnir hversdagslíf fólks á þessum tíma. Það er saga sem fylgir myndinni sem segir að þegar myndin var fyrst sýnd voru áhorfendur svo hræddir við myndina sem sýndi lest sem keyrði í áttina að þeim að fólk öskraði og hljóp aftast í bíósalinn.

Tegundir afþreyingar fyrir tíma kvikmynda sem notuðust við hreyfingu: • Skuggamyndir, líklega fyrst notuð á forsögulegum tímum • Brúðuleikur, hugsanlega er upprunninn um 200 f.Kr. í Mið­Asíu, • The Magic Lantern, var fyrst notað árið 1650.

Allskonar bragðtegundir!

Hefuru smakkað Bjarka popp?� Hverafold 10 | Instagram: @bjarkapopp | bjarkapopp@gmail.com | sími: 540 2360

EMBLA

29


LISTMÁLUN

B

eiting litarefna á flöt sem skapar mynd er listmálun. Flest öll málverk eru búin til með litarefni í fljótandi formi, borið á með pensli. Undantekningar frá þessu eru í Navajo sandmálun og tíbesk mandala málun, þar sem notuð eru litarefni í duftformi. Listmálun sem miðill hefur lifað af í þúsundir ára og er ásamt teikningu og skúlptur einn elsti miðill sköpunar. Þrjár af þekktustu myndum vestrænnar listasögu er meðal annars: Mona Lisa eftir Leonardo da Vinci, Öskrið eftir Edvard Munch og Stjörnukvöldið eftir Vincent van Gogh. Þessi þrjú listaverk eru gott dæmi um það hvað það getur verið öflugt í listinni að gera eitthvað meira en að fara nákvæmlega eftir því sem við sjáum. Hérna endurspegla listamennirnir það andlega og sálfræðilega í mannlegu eðli. Listmálun getur verið notuð á mörg mismunandi yfirborð eins og til dæmis pappír, tré, striga, gifs og leir. Vegna þess að málning er venjulega í fljótandi eða hálffljótandi formi þá hefur hún þá tilhneigingu að dreifast inn í litlar holur á yfirborðinu sem á endanum skemmir það. Til að koma í veg fyrir þetta er yfirborðið fyrst þakið grunni (blanda af bindiefni og krít) sem síðan þornar og myndar slétt yfirborð. Algengur grunnur sem er notaður er til dæmis gesso grunnur. Helstu aðferðir listmálunar: • • • • •

Encaustic (innbrennd vaxmálun) Tempera Freska Olíu málun Akrýl málun

Allar þessar aðferðir eiga það sameiginlegt að nota litarefni og bindiefni. Litarefnið er kornótt fast

30

EMBLA

efni sem er fellt inn í málninguna til að gefa lit. Bindiefnið er filmumyndandi hluti málningarinnar. Bindiefnið heldur litarefninu þar til því er dreift á yfirborð. Encaustic (innbrennd vaxmálun) Encaustic málning notar blöndu af þurru litarefni og heitu bývax bindinefni, blandan er borin á yfirborð, yfirleitt á léreft, viðarpanel eða aðra miðla. Encaustic á rætur sínar að rekja til fyrstu aldar e.Kr. og var mikið notað í Egyptalandi. Einkenni encaustic málunar eru sterkir litir og einstaklega endingargóð málverk. Þegar encaustic málverkið kólnar myndar það harða húð á yfirborðið út af bývaxinu. Tempera Tempera málning samanstendur af eggjarauðum, sem er bindiefnið, vatni og litarefni. Líkt og encaustic aðferðin hefur tempera verið notuð í þúsundir ára. Tempera þornar fljótt og gefur matta áferð. Í hefðbundnum tempera málverkum


er unnið með málninguna í þunnum lögum. Málverkið er byggt vandlega með nákvæmum krossuðum línum, vegna þessarar tækni eru tempera málverk þekkt fyrir smáatriði sín. Í frumkristni var tempera mikið notuð til að mála myndir af trúarlegum helgimyndum. Þrátt fyrir það að olíu málun hafi hálfpartinn tekið yfir þessa aðferð þá eru enn í dag málarar sem nota tempera, má þar nefna bandaríska málaran Andrew Wyeth sem málaði meistaraverkið Christina‘s World. Freska Fresku málun er eingöngu notuð á veggi og í loftum. Fresku málun hefur verið notuð í þúsundir ára og er þekktust fyrir notkun þess í kristilegum myndum á endurreisnartímanum í Evrópu. Til eru tvær tegundir af fresku: Buon, eða blautur og secco, sem þýðir þurr. Buon freska tæknin felst í því að mála í áföngum á rakan kalkmúr, sem listamaðurinn þarf að mála áður en kalkið þornar. Litirnir sameinast kalkinu og verða hluti af veggnum. Dante and the Divine Comedy eftir Domenico Di MIchelino frá árinu 1465 er gott dæmi um buon freska. Secco freska er tækni þar sem málað er á kalkmúr sem er þurr og verða litarefnin því ekki hluti af veggnum. Þessi aðferð notar sömu bindiefni og Tempera gerir. Algengt var að not secco freska aðferðina yfir buon freska veggmyndir til að gera við skemmdir eða gera smávægilegar breytingar. Málverk Leonardo Da Vinci af síðustu kvöldmáltíðinni var gerð með secco freska. Vegna þess að hún var máluð á þurran kalkmúr þá eru litarefnin aðeins á yfirborðinu og ekki hluti af veggnum, þetta gerir það að verkum að litirnir í verkinu hafa fölnað og málningin flagnað af.

Olíu málun Olíu málun er sú fölhæfasta af öllum málningar aðferðum. Þessi aðferð notar litarefni sem er blanda af hörfræolíu. Talið er að olíu málun hafi þróast í Evrópu á fimmtándu öld, nýlegar rannsóknir á veggmyndum sem fundust í hellum í Afganistan sýna að málning sem byggist á olíu hafi verið notuð þar strax á sjöundu öld. Sumir eiginleikar olíumálningar er meðal annars fjölbreytt úrval af litarefnum, fjölbreytilegar aðferðir til að nota málninguna (þunn málning eða þykk). Hægt er að byggja málninguna upp með lögum sem kallast impasto, þetta sést í mörgum verkum eftir Vincent van Gogh. Einn galli við notkun á impasto er að með tímanum getur málninginn myndað sprungur meðfram þykkustu hlutum málverksins. Vegna þess að olíumálning þornar hægt þá er hægt að vinna lengi með hana og gera nákvæm smáatriði. Akrýl málun Akrýl málun var fundin upp á fimmta áratugunum. Litarefni er blandað með vatni og akrýl fjölliða bindiefni. Akrýlmálning er að mörgu leyti eins og olíumálning en þó er einn stór munur á, hann er sá að akrýl málningin er mun fljótari að þorna. Bandaríski listamaðurinn Robert Colescott notaði akrýl. Hans aðferð var að nota þunn lög af undirmálningu og á yfirborðinu skæra og sterka liti.

Listamaður

Fæddur

Frægasta verk

Leonardo da Vinci

1452

Mona Lisa

Vincent van Gogh

1853

The Starry Night

Jan van Eyck

1390

Arnolfini Portrait

Salvador Dalí

1904

The Persistence of Memory

EMBLA

31


ANIMATION H

reyfimyndir eða animation hefur hjálpað fólki að segja sögur á einstakan hátt í aldaraðir. Töfraheimur teiknimynda getur endurvakið innblástur fyrir hvern sem er, þannig ef þú ert sögumaður, eða vilt vera það, þá er animation frábær staður til að byrja. En hvað er animation? Skilgreinging á animation Animation er aðferð þar sem eru notaðar raðir mynda, módel eða jafnvel brúður til að búa til hreyfingu. Augun okkar geta bara skynjað mynd í 1/10 af sekúndu þannig þegar margar myndir birtast í röð á stuttum tíma þá virðast þessar myndir blandast saman í svokallaða hreyfimynd. Í hefðbundnu animation voru myndir teiknaðar eða málaðar á glæran grunn og svo voru teknar myndir af þessum grunnum og þær settar saman í réttri röð. Fyrstu teiknimyndirnar eru gott dæmi af þessari aðferð, en í dag eru flestar teiknimyndir að notast við tölvugert myndefni eða CGI (computer­ generated imagery). Til að skapa mjúkar hreyfingar út frá þessum teikningum, myndum eða CGI, þá þarf ramma­ tíðnin eða fjöldi mynda sem birtast í röð að vera tekinn til greina. Karakterar sem eru á hreyfingu eru yfirleitt skotnar þannig að ein mynd er sýnd fyrir tvo ramma, sem eru þá samtals 12 teikningar á sekúndu. 12 rammar á sekúndu býr til ágæta hreyfingu en það á til að líta út fyrir að hökta. 24 rammar á sekúndu er oft notað fyrir mun mýkri hreyfingar.

32

EMBLA


Mismunandi gerðir af hreyfimyndum • • • • •

Traditional Animation 2D Animation 3D Animation Motion Graphics Stop Motion

Traditional Þetta er ein af elstu gerðum animation. Í Traditional animation þá eru hlutir teiknaðir ofan á glæran grunn. Til þess að búa til teiknimyndina þarf teiknarinn að teikna hvern ramma. Þetta er á margan hátt sama aðferð og er notuð í svokallaðari flipbook eða flettibók sem margir kannast kannski við nema bara á stærri skala. Traditional er yfirleitt 2D animation. The Lion King, Mulan og fleiri eldri teiknimyndir eru gott dæmi um 2D animation Hér áður fyrr teiknaði teiknarinn á borð sem var með innbyggðu ljósi sem lýsti í gegnum blaðið sem teiknarinn notaði og gat því listamaðurinn séð fyrri teikningar sínar í gegnum blaðið sem hjálpaði honum að teikna rétt í samanburði við fyrri teikningu. Þó að traditional stíllinn sé ekki eins ríkjandi í dag og hann var áður fyrr þá eru enn einhverjir sem nota spjaldtölvur til að gera svipað útlit.

EMBLA

33


2D animation (vector) 2D animation má skilgreina sem traditional animation eins og margar af gömlu myndum Disney eins og Dumbo, Beauty and the Beast og fleiri. En það er til önnur tegund af 2D animation sem notast við vektora og er þá 2D án þess að vera traditional. Þegar hreyfimynd er 2D vektor, þá stjórnast hreyfingarnar með vektorum í stað þess að notast við pixla. En, hvað þýðir það eiginlega?

Í 3D animation þá notar teiknarinn forrit til að hreyfa líkamshluta persónunnar. Þeir setja niður stafræna ramma sína þegar allir hlutar persónunnar eru í réttri stöðu, þetta gera þeir fyrir hvern ramma og tölvan reiknar síðan út hreyfinguna. Meðal fyrstu stórra teiknimynda þar sem þessi aðferð var notuð, má nefna Toy Story sem kom út 1995, frá því að hún kom út hefur þessi stíll verið ríkjandi í hreyfimyndum. Motion graphics (hreyfi grafík)

Myndir sem nota snið eins og JPG, GIF, BMP eru pixla myndir. Ekki er hægt að stækka þessar myndir eða minnka þær án þess að það hafi áhrif á myndgæði og upplausn. Vektorgrafík þarf ekki að hafa áhyggjur af upplausn. Vektorar einkennast af línum með ýmsum upphafs­ og endapunktum, þessar línur tengja saman punkta og byggja form. Þessi form eru síðan notuð til að búa til persónur, munstur og alls konar grafík. Vektor hreyfimynd notar stærðfræðileg gildi til að breyta stærð mynda svo að hreyfing sé mjúk. Þessar vektor myndir er hægt að nota endalaust þannig teiknarinn þarf ekki að teikna myndirnar aftur og aftur, því hægt er að hreyfa þessa vektora hvernig sem er. Þessi aðferð hreyfimynda er mjög gangleg fyrir teiknara sem eru ekkert sérstaklega færir í teikningu. 3D animation

Motion graphics eða hreyfi grafík er stafræn grafík sem hreyfist og er yfirleitt notuð í auglýsingum og kvikmyndum. Hreyfi grafík hefur það markmið að ná að miðla einhverjum upplýsingum til áhorf­ andans, oft er sett hljóð á hreyfi grafíkina. Stop motion Stop motion er tegund hreyfimynda sem notar til dæmis, leir, pixla, hluti og fleira til búa til hreyfimynd. Grunn hreyfimynda ferlið er svipað og traditonal stílinn, eins og flettibók, í stað þess að teikna fyrir hvern ramma, þá eru veraldlegir hlutir settir í einhverja ákveðna stellingu fyrir hvern ramma. Þegar hlutirnir eru hreyfðir í litlum skrefum fyrir hvern ramma, þá myndast hreyfing. Hvort sem það eru brúður, leir eða jafnvel raunverulegt fólk þá getur þetta ferli tekið mjög langan tíma. Chicken Run, Wallace and Gromit og The Nightmare Before Christmas eru öll gott dæmi um stop motion myndir.

Í dag er 3D animation eða tölvuteikning algengasta gerð hreyfimynda. En þó að tölvur hafa stigið inn í staðinn fyrir raunverulegar teikningar þá eru þær ekki endilega auðveldari. Tölvan er bara enn eitt tólið og 3D animation er langt og ákaft ferli.

Þegar hreyfimynd er 2D vektor, þá stjórnast hreyfingarnar með vektorum í stað þess að notast við pixla.

34

EMBLA


ÓÐINN

N

orræn goðafræði eru fræði sem að urðu til í norrræna heiminum. Við lestur goðafræðinnar dettur maður inn í allt annan heim þar sem finna má yfirnátturlegan mátt, furðuskepnur og jötna. Þar er líka að finna talsvert magn goða og ása. Æðstur goða er Óðinn og er hann skapari himins og jarðar. Einnig er Óðinn guð visku, herkænsku, stríðs, galdra, sigurs og skáldskapar. Nokkrar áhugaverðar sögur eru til af Óðni en þær má meðal annars finna í Snorra­Eddu sem er eftir Snorra Sturluson, hinn margfræga mann. Óðinn er sonur Bors Búrasonar og Bestlu Böl­ þornsdóttur sem bæði eru jötnar. Óðinn á tvo bræður, þá Vilja og Vé. Þeir sköpuðu ásamt honum himinn og jörð af jötninum Ými. Óðinn er faðir flestra ása og þess vegna er hann kallaður alfaðir. Hann á son sem að heitir Baldur. Óðinn eignaðist Baldur með konu sinni Frigg. Er Baldur komst á legg gekk hann að eiga Nönnu Nepsdóttur. Þau eignuðust son sem þau gáfu nafnið Forseti. Baldur bjó í Breiðabliki. Baldur var gæfur og var manngæska hans helst einkenni en hann fékk viðurnefnið „Hinn hvíti ás“ sem var tákn sakleysis

og hreinleika. Baldur er drepinn af Höði bróður sínum. Hinn svikuli Loki fékk Höður til að fremja það óhæfuverk. Baldur átti ekki að geta drepist og því var ein aðal skemmtun ása að stilla Baldri upp í færi og skjóta hann. Allt sem fyrirfannst nema einn lítill mistilteinn sóru að drepa hann ekki og því beit ekkert á hann nema mistilteinninn. Loki vissi þetta og bjó til spjót úr mistilteini og fékk Höði og sagði honum að skjóta því að Baldri og þannig fórst Baldur. Óðinn átti líka annan son sem hann nefndi Þór en hann eignaðist Þór með Jörð. Þór er þrumuguð og er sterkastur allra goða. Annan son átti Óðinn sem að hét Váli en hann eignaðist hann með Rindi. Þessi ættartengsl koma fram þegar í dróttkvæðum, en Snorri Sturluson segir auk þess Heimdall, Höður, Tý, Braga og Víðar vera syni Óðins. Óðinn líkist talsvert mörgum goðum annarra trúarbragaða, þeirra wlíkastur er hann Seifi í grísku goðatrúnni, báðir eru þeir æðstir goða og eiga báðir bágt með að haga sér gagnvart kvenfólki.

EMBLA

35


36

EMBLA


GABRÍELLA Ég heiti Gabríella og er 29 ára gömul, fædd á Egilsstöðum og uppalin í Vesturbænum en bý núna í Breiðholtinu með næstum tveggja ára syni mínum og maka. Ég byrjaði að fikta í myndvinnsluforritum þegar ég var 11 ára. Þetta var á tímum bloggsíðnanna folk.is og blog.central þar sem hægt var að hlaða inn eigin banner efst á síðuna. Innan skamms var ég komin í svaka (ólaunaðan) business við að búa til bannera handa öðrum krökkum auk undirskriftarbannera og jólakorta fyrir notendur Gæludýraspjallsins. Á unglingsárunum var ég að sjálfsögðu á samfélagsmiðlinum Myspace þar sem hægt var að forrita útlit síðunnar sjálfur upp að vissu marki

og ég sökkti mér 13 ára í html og css til að gera síðuna eins kúl og mögulegt var – en fór svo að huga að öðru með tíð og tíma. Það var ekki fyrr en á fullorðinsárum þegar ég byrjaði að æfa íþróttina roller derby að kappi og skráði mig í auglýsinganefnd þar, að ég byrjaði aftur að hanna. Ég var með fullt af hugmyndum en fannst ég ekki hafa alla kunnáttuna sem þurfti til að ná að framkvæma þær eins og ég vildi. Einnig komst ég að því að þetta væri mögulega eitthvað sem ég hefði áhuga á að starfa við. Það var þá sem ég fór að skoða nám í grafískri miðlun og er glöð að ég tók þá ákvörðun, enda hef ég lært helling, kynnst frábæru fólki og m.a. farið í æðislega námsferð til Ítalíu á meðan náminu stóð.

EMBLA

37


EKKI BARA

EIN NÁL OG EINN LOKKUR Viðtal við gatara Diljá Sigurðardóttir er 28 ára kona úr Reykjavík sem finnst gaman að hjólaskauta, krosssauma og ganga á fjöll – en einnig er hún ein af þeim örfáu sem teljast sem viðurkenndir gatarar á Íslandi. Diljá er nýbúin að opna sína eigin götunarstofu á Íslenzku Húðflúrsstofunni.

Hvað kom til að þú ákvaðst að læra götun? Ég er félagsfræðingur að mennt en eftir að námi lauk hafði ég ekki hugmynd hvað ég vildi starfa við, hvaða hillu ég tilheyrði. Eftir að hafa prófað nokkur störf rakst ég á auglýsingu þar sem uppáhalds tattústofan mín var að leita að manneskju í móttökuna. Ákvað að slá til og varð þar svona „shop mama“, sá um pantanir, kaffið, birgðastöðu, móttökuna, samfélagsmiðlana etc. Ég tók eftir mikilli eftirspurn eftir götun og fannst leiðinlegt að vera sífellt að vísa fólki frá. Stofan var fyrir minn tíma með góðan gatara og einn daginn vaknaði sú hugmynd að hún myndi kenna mér götun. Hver finnst þér vera mesta áskorunin í starfinu? Mitt starf er ótrúlega fjölþætt, það er auðvitað

38

EMBLA

götunin sjálf og síðan reksturinn í kringum hana og það geta verið áskoranir á báðum sviðum. Ég sé líka ennþá um alla stofuna svo ég þarf að gæta jafnvægis þar á milli. Ein mesta áskorunin hjá mér hefur verið að bera virðingu fyrir tímanum mínum og vinnu. Sem sjálfstætt starfandi einstaklingur sé ég sjálf um verðlagningu og jafnvel þó ég hafi alltaf viljað vera sanngjörn fékk ég oft í upphafi samviskubit á að rukka fólk fullt verð fyrir þjónustuna mína. Ég þurfti að minna mig á það að götun er ekki bara ein nál og einn lokkur heldur allur aðbúnaður, tæki og tól, reynslan mín, viðmót og þekking og allt hitt sem við kemur götuninni. En hvað er það skemmtilegasta við starfið? Úff, það er svo margt! Eitt það skemmtilegasta við starfið sé að sjá fólk spennt og ánægt með


nýja gatið sitt. Eðli starfsins er slíkt að ég er ekki að gera eitthvað sem fólki finnst þægilegt svo ég geri mitt besta til að láta fólki líða vel í gegnum götunarferlið, það er alltaf gaman þegar það skilar sér í minna stressi hjá einstaklingnum og ánægjulegri reynslu. Mætir þú einhverjum fordómum vegna starfsins? Já og nei. Mörgum finnst það töff. En ég hef líka verið spurð hvort ég sé ekki að eyðileggja líkama fólks, hvort ég gati „virkilega“ þessa og hina líkamsparta, ég hef lent í ýmsum hallærislegum BDSM athugasemdum (t.d. hvort ég hljóti ekki að vera sadisti af því ég sé gatari) og ég fengið til mín karlkyns viðskiptavini (sem betur fer örsjaldan!) sem hafa sýnt starfinu mínu mikla vanvirðingu með því að ýja að því að ég sé að gera eitthvað kynferðislegt við þá þó ég sé bara að gata á þeim eyrað.

Kvár – Hagsmunasamtök kynsegin fólks

Ertu með einhver framtíðarplön varðandi starfsemina? Já, heldur betur! Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan ég byrjaði að gata og ég stolt af því hvert ég er komin, en mig langar sífellt að gera betur með því að auka vöruúrvalið, sækja ráðstefnur og fleira. Ég hef byggt starfsemina upp frá grunni og hef aldrei fengið lán fyrir einu eða neinu. Vöxtur fyrirtækisins er því hægur en stöðugur, mig langar til dæmis að geta boðið viðskiptavinum mínum upp á skartgripi úr ekta gulli en aðrir hlutir hafa forgang sem stendur og hitt kemur bara með tíð og tíma. Íslenzka Húðflúrstofan er staðsett á Ingólfsstræti 3. Opið er í götun hjá Diljá alla virka daga frá 12–18 og á laugardögum eftir pöntunum en hægt er að panta tíma hjá henni á www.icelandtattoo.is. Texti: Gabríella Sif Beck Ljósmyndir: Diljá Sigurðardóttur

JÖFN FRAMTÍÐ FYRIR ÖLL KYN

meðal fyrirlesara verða

Kvár – Hagsmunasamtök kynsegin fólks kvar-samtok

Blær Jörgensen Formaður Kvár

Jón Jónsson Félags- og jafnréttisráðherra

Skráning á www.kvar.is

Lára Dagmarsdóttir Sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu

EMBLA

39


ÍÞRÓTTIN MENNINGIN SAGAN

40

EMBLA


Íþróttin roller derby er stunduð út um allan heim og meðal annars á Íslandi. Margir gætu kannast við nafnið úr þáttum eða kvikmyndum, aðrir koma af fjöllum. Er bolti? Kylfa? Línuskautar? Í langflestum deildum er íþróttin spiluð eftir reglum Women’s Flat Track Derby Association (WFTDA) og kunna reglurnar að virðast flóknar í fyrstu, en það þarf ekki nema einn leik til þess að skilja og heillast af þessari spennandi og hörkulegu – en strategísku – íþrótt og öllu samfélaginu í kringum hana. Íþróttin Roller derby er hröð snertiíþrótt sem spiluð er á hjólaskautum og fer fram á flatri sporöskjulaga braut innanhúss. Fimm eru inn á úr hvoru liði í einu, einn jammer (sókn) og fjórir blockerar (vörn).

stýra hvor öðrum. Þá er algengt að nota bak, rass eða brjóstkassa til að blokka andstæðinginn. Blockerar úr báðum liðum þurfa að mynda svokallað pack sem þýðir að þeir mega ekki dreifast of mikið um brautina. Því er ekki hjá því komist að það sé mikil snerting og óreiða, en skipulögð þó. Packið er skilgreint þar sem flestir blockerar eru saman innan 3 metra frá hvorum öðrum. Packið getur þó teygst þannig að blocker má fara 3 metra frá packinu, og sá næsti 3 metra frá honum, og koll af kolli. Ef það verður ekkert pack eftir með þessum hætti eða öðrum kallar dómarinn hins vegar villu á þá sem skemmdu packið.

Jammerinn er með stjörnu á hjálminum og er þannig hægt að greina hann frá öðrum keppendum. Hlutverk hans er að skora stig með því að hringa blockera andstæða liðsins, en fyrir hvern blocker sem hann hringar fæst eitt stig – því fleiri hringir, því fleiri stig. Hlutverk blockeranna er hins vegar að koma í veg fyrir að jammer andstæðingsins nái að hringa sig, en einnig að aðstoða sinn eigin jammer að komast fram úr andstæðingunum. Einn blocker í hvoru liði er með línu á hjálminum sínum og kallast pivot. Hann einn má skipta um hlutverk við jammerinn í miðjum leik.

Packið

Ljósmyndari: Richard Lafortune

Tímastjórnun Snerting Þrátt fyrir að íþróttin hafi orð á sér fyrir mikil hörkulegheit er það þó mýta að það sé leyfilegt að gefa olnbogaskot, fella og jafnvel kýla aðra leikmenn. Hins vegar má gefa svokölluð hits með öxlum, upphandleggjum og lærum – en að gefa hit með fæti fyrir neðan hné eða handlegg fyrir neðan olnboga er ávísun á villu og jafnvel brottrekstur. Algengt er að blockerar úr sama liði myndi nokkurs konar mannlegan vegg á brautinni til þess að koma í veg fyrir að jammer andstæðingsins komist fram úr þeim. Þeir sem eru saman í liði mega nota framhandleggi til að styðja sig við og/eða

Hver leikur er einn klukkutími að lengd og skiptist niður í tvo 30 mínútna hálfleiki. Hver hálfleikur skiptist svo upp í fjöldann allan af jömmum (e. jams) sem geta að hámarki orðið 2 mínútna löng, en sá jammer sem er fyrstur til þess að komast út úr packinu fær rétt til þess að stjórna því. Þá fær hann stöðuna lead jammer og getur endað jammið þegar hann vill (innan tveggja mínútna) með því að slá höndum á mjaðmir. Þetta getur hann gert til þess að takmarka stigafjölda hins jammersins, en líka til þess að stjórna því að nýtt jam byrji á meðan einhver úr andstæða liðinu situr ennþá í villuboxinu – hafi einhver brotið af sér í fyrra jammi.

EMBLA

41


Menningin Það er þekkt innan íþróttarinnar að spilarar og jafnvel dómarar velji sér önnur nöfn til að nota á brautinni. Þetta er gert í þeim tilgangi að búa til svokallað „alter-ego“ þar sem það er í lagi að skauta fast á aðra manneskju eða gefa henni harkalegt hit. Þá eru nöfnin oft hnyttin og/eða með tilvísun í dægurmenningu, t.d. Biceptual, Hermione Danger og Scald Eagle. Oft eru númerin líka tilvísun í menningu, sögu eða almennan nördisma, en það er t.a.m. nánast alltaf einn í hverri deild númer 42. Roller derby samfélagið er þekkt fyrir að vera opið og inklúsíft. Mikið af hinsegin fólki, þ.á.m. trans fólki, finnur sig í íþróttinni auk fólks sem hefur ekki fundið sig í öðrum íþróttum af mörgum mismunandi ástæðum. WFTDA er með sterkar siðareglur þar sem kemur skýrt fram að fordómar eru ekki liðnir innan íþróttarinnar. Einnig hefur hreyfingin frá upphafi verið kennd við DIY (do it yourself) og því geta allir átt hlutverk jafnvel þó það sé ekki á skautum.

BÚNAÐUR Roller derby íþróttin er spiluð í hjóla­ skautum – ekki línuskautum, heldur þessum gömlu góðu með fjórum dekkjum og tástoppara að framan. Þar sem íþróttin er frekar harkaleg er einnig nauðsynlegt að vera með hjálm, olnbogahlífar, hnéhlífar og úlnliðs­ hlífar. Þá er líka skylda að vera með munnvörn, en hún verndar tennur og dempar auk þess höfuðhögg.

Þrátt fyrir að berjast harkalega á brautinni eru allir vinir í eftirpartíinu og til er stórt samfélag roller derby spilara í heiminum þar sem fólk getur kíkt á æfingu hvar sem er, tekið þátt í leikjum erlendis sem dómarar, brautarteymi eða sjálfboðaliði og jafnvel fengið fría gistingu. Saga roller derby á Íslandi Saga roller derby á Íslandi hófst þegar Guðný Jónsdóttir kynntist íþróttinni í Bandaríkjunum árið 2009 þar sem hún byrjaði að æfa með Atlanta Roller Girls og varð þar til derby-sjálf hennar, Ice Sickle. Þegar sá fyrir heimför kviknaði sá draumur að taka íþróttina upp hér á Íslandi svo Ice þyrfti ekki að leggja skautana sem hún hafði tekið ástfóstri við á hilluna, enda íþróttin nánast með öllu óþekkt hér á landi á þeim tíma. Kallaði Ice því saman hóp áhugasamra kvenna sem hóf þá vinnu að koma upp íslenskri roller derby deild

42

EMBLA

og var stofnfundur Hjólaskautafélagsins, sem þá hét Roller Derby Ísland, haldinn í sumarlok árið 2011 en spennan var svo mikil að fyrsta æfing var haldin strax næsta dag. Starfið fór hægt af stað, enda hvergi hægt að nálgast almennilega skauta og hlífar hér á landi. Ekki var heldur hlaupið að því að finna hér góða æfingaaðstöðu þar sem fullkomið reynsluleysi olli áhyggjum innan íþróttafélaga um áhrif búnaðarins á gólfin. Fyrst um sinn æfðu því sumar liðskonur á línuskautum og flakkaði hópurinn á


milli bílakjallara, GoKart hallar og ýmissa misheppilegra sala á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Félagskonur æfðu skautafærni undir leiðsögn félaga sinna erlendis yfir internetið, lásu sér til um reglur og framgang leiksins og sóttu ráðstefnur, æfingabúðir og mót út fyrir landsteinana.

heimsmeistarakeppninni í Englandi árið 2018, þar sem aftur voru spilaðir fjórir leikir en í þetta sinn náðist fyrsti landsliðssigur Íslendinga í roller derby, gegn Kosta Ríka. Viðurkennd íþrótt og eigið húsnæði Árið 2018 varð roller derby loks viðurkennd íþrótt af Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) eftir nokkuð tímafrekt umsóknarferli þar sem íþróttin fékk meðal annars íslenskt nafn, hjólaskautaat. Þar með fékk Hjólaskautafélagið sömuleiðis inngöngu í Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) undir nafninu Hjólaskautafélagið. Síðar sama ár, fékk deildin svokallaða „apprentice“ stöðu innan hinna alþjóðlegu félagasamtaka Women’s Flat Track Derby Association (WFTDA) en fagnaði þeim merka áfanga að vera orðinn fullgildur meðlimur snemma árs 2019.

Ragnarök og Team Iceland Þegar nokkrar reyndar derbykonur sneru aftur að utan árið 2013 má segja að hjólin hafi farið að rúlla af alvöru og þjálfunin orðin töluvert markvissari. Æfingabúðir með þekktum, erlendum gestaþjálfurum urðu fastur liður í vetrarstarfinu og þreytt voru lágmarkshæfnipróf (e. minimum skills) sem gerði skautara keppnisfæra. Árið 2014 var ferðaliðið Ragnarök stofnað og haldið var til Finnlands þar sem fyrstu tveir útileikirnir voru spilaðir og síðar sama ár fyrsti heimaleikurinn gegn gestaliði frá Frakklandi.

Síðla árs 2020 varð svo annar stór draumur að veruleika þegar félagið gerði samning við Reykjavíkurborg um afnot af gömlu verkstæði uppi á Höfða. Þetta var í fyrsta sinn sem félaginu bauðst að vera með sitt eigið húsnæði og hófst þá mikil vinna og fjáröflun til að koma verkstæðinu í stand sem æfinga- og félagshúsnæði. Þetta tókst og úr varð Hjólaskautahöllin á Sævarhöfða 33 þar sem félagið æfir og heldur viðburði, m.a. opið skautagólf fyrir almenning á laugardögum.

Árin sem fylgdu safnaði liðið fleiri heimaleikjum í reynslubankann og haustið 2016 var stofnað landslið Íslands fyrir Evrópumótið í Belgíu. Liðið samanstóð aðallega af liðskonum Ragnaraka, en einnig nokkrum sem æfa með erlendum liðum úti í heimi. Á Evrópumótinu voru spilaðir fjórir leikir á einni helgi og kom liðið heim með ómetanlega reynslu og metnað fyrir komandi tímum. Heimaleikir urðu í kjölfarið tíðari, byrjað var að halda þríhöfðamót og landsliðið tók svo þátt í

NÖFN OG NÚMER ÚR ROLLER DERBY Á ÍSLANDI Nafn

Númer

Staða

Veni Vidi Vicious

47

Jammer

LOUD Mary

194 dB

Blocker

Ice Sickle

32°

Pivot

Peaches n’ Scream

666

Blocker

Binary Demon

1101

Blocker

Grim Creeper

383

Blocker / Varafyrirliði

Texti af www.rollerderby.is eftir Gabríellu Sif Beck og Lenu M. Aradóttur.

Ljósmyndir: Joe Mac, Richard Lafortune og Gabríella Sif Beck

EMBLA

43


Borgin Bergamo er staðsett einungis um 40 kílómetra norður af stórborginni Mílanó og 30 kílómetra frá landamærum Sviss við rætur ítölsku Alpanna. Íbúafjöldi borgarinnar er á par við Reykjavík eða um 120.000 manns, og er hún laus við fjöldaferðamennsku á borð við nágrannaborgirnar Mílanó og Flórens þannig að íbúarnir virðast mun tilbúnari og opnari

Città alta – efri bærinn Bergamo skiptist í neðri bæ og efri bæ sem bygg­ ist á sjö hæðum. Efri bærinn kallast Città alta á ítölsku og er elsti hluti borgarinnar. Í kringum bæinn er varnarveggur frá miðöldum sem nú er á heimsminjaskrá UNESCO. Í efri bænum má m.a. finna dómkirkju, upprunalega verslunargötu þar sem haldið hefur verið í miðaldasjarmann (t.d. með því að leyfa aðeins handgerð útskorin skilti) og fjölda frábærra veitingastaða. Hægt er að komast þangað með því að labba upp langan þröngan steinstiga, með strætó eða með kláf. Skemmti­ legast er að taka kláfinn – Funicolare – sem var byggður 1953 og er þarna enn í sinni upprunalegu mynd. Frábært útsýni er frá endum veggjarins og yfir alla borgina, nálæg fjöll og á góðum degi má sjá alla leiðina til Mílanó. Þar er tilvalið að setjast niður um kvöld og horfa á sólina setjast. Miðbærinn Miðbær Bergamo er í neðri bænum (Città bassa) þar sem flestir íbúar borgarinnar búa. Þar er að finna alla almenna þjónustu en líka

44

EMBLA

fyrir að taka á móti gestum. Þrátt fyrir nálægð borgarinnar við Mílanó er Bergamo lítt þekkt og oft horft framhjá henni þegar ferðalög til Ítalíu eru skipulögð. Beint flug er frá Keflavík til Mílanó og ferðin þaðan tekur einungis tæpan klukkutíma með lest og kostar lítið. Hér eru nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að gera skoða í og í kringum Bergamo yfir eina helgi.

aðal verslunargötu bæjarins. Hún er göngugata og inniheldur allar helstu búðir eins og Zöru, Mango, Sephora og fleira fyrir þá sem vilja versla. Í sömu götu er að finna ráðhús Bergamo og mörg hugguleg kaffihús þar sem hægt er að sitja úti og fá sér cappucchino og croissant, eða espresso og bacio sem er lítil krúttleg kaka og þýðir koss. Söfn Á rigningardegi væri hægt að heim­ sækja myndlistarsafnið Accademia Carrara þar sem finna má ítalska myndlist frá 15. öld og fram á 19. öld. Þar eru t.a.m. verk eftir nöfn eins og Botticelli, Rafael og Bellini. Safnið er ekki of stórt en gefur góða yfirsýn yfir ítalska myndlist frá þessum tíma. Fyrir þá sem hafa fengið sinn málverkaskammt af Maríu Mey og Jesú þá er náttúruvísindasafn í Città alta – Museo di Scienze Naturali „E. Caffi“. Safnið hentar börnum jafnt sem fullorðnum og hægt er að sjá ýmis steingervinga og bein sem fundist hafa á svæðinu eins og mammúta­ og risaeðlubein. Dagsferð til Lago d’Iseo Stöðuvatnið Lago d’Iseo er nefnt eftir bænum


Lago d’Iseo

Víntunnur hjá Ferghettina

Iseo sem það stendur við en bærinn tilheyrir nágrannabæ Bergamo, Brescia. Vatnið er með þeim stærstu á Ítalíu og í því má finna stærstu eyju í stöðuvatni í Evrópu, Monte Isola sem gæti gróflega þýðst sem Fjallaeyja. Hægt er taka litla ferju frá Iseo yfir í eyjuna og labba þar um eða leigja hjól. Litlir bæir með þröngum öngstrætum eru allt umhverfis eyjuna og efst upp á toppi fjallsins er kastali. Andrúmsloftið er rólegt og nánast ekkert pláss fyrir bíla þannig að íbúarnir notast nær einungis við vespur. Í góðu veðri er huggulegt að sitja úti á veitingastað við vatnið, fylgjast með smábátunum, horfa á bæinn og fjöllin hinum megin við vatnið og borða lókal mat með góðu rauðvíni. Þá er lífið svo sannarlega ljúft. Freyðivínsmökkun Rétt fyrir utan Bergamo má finna höfuðstöðvar og vínekrur ítalska fjölskyldufyrirtækisins Ferg­ hettina sem framleiðir ítölsku kampavínstegund­ ina Franciacorta. Franciacorta dregur nafn sitt af landsvæðinu sem vínberin eru ræktuð á í kringum Lago d’Iseo, en þar má finna yfir 200 hektara af vínekrum þar sem aðallega eru ræktaðar tegund­ irnar Chardonnay og Pinot Noir. Ferghettina eru þekkt fyrir kassalaga flöskubotna sem ekki eru einungis gerðir upp á flott útlit heldur hafa líka með framleiðsluferli vínsins að gera. Í vínsmökk­ uninni er farið yfir allt framleiðsluferli og sýnt hvernig það á sér stað. Í lokin er svo sest niður og boðið upp á smökkun mismunandi freyðivína með kexi og ostum.

Pizzur í Città Alta

Fótboltaleikur Heimaliðið í Bergamo er hið fræga Atalanta sem keppir í A­deild Ítalíu, en liðið keppti einnig í Meist­ aradeild Evrópu í fyrra og gekk nokkuð vel. Íbúarnir eru stoltir af liðinu sínu og hanga stuðningsmerki Atalanta inni á hinum ýmsu börum og veitinga­ stöðum bæjarins. Þeir eru með flottan heimavöll og tilvalið væri að skella sér á leik þegar upp á það býðst, klæða sig í blátt og svart og taka þátt í fagnaðarlátunum. Borða þar sem heimamenn borða Langbest og ódýrast er að borða á stöðum þar sem Ítalir borða sjálfir. Það er fullt af veitingastöð­ um í Città alta, en langflestir eru miklir túrista­ staðir. Einn vinsæll staður meðal heimamanna í Città alta heitir Il Circolino og býður m.a. upp á hefðbundinn „Bergamesco“ mat, en það er m.a. polenta og pasta sem kallast casoncelli alla Bergamasca. Pastað er fyllt með osti og beikoni eða salami og með smjör­ og salvíusósu. Einnig er hægt að fá svipaðan pastarétt grænmetisút­ gáfu, þá fylltan með osti, sem heitir scarpinocc. Í neðri bænum er staður sem heitir Da Giuliana og býður einnig upp á hefðbundinn mat frá Bergamo. Staðurinn er það „lókal“ að matseðillinn er hand­ skrifaður á ítölsku og því gott að hafa einhvern sem getur þýtt – eða þá bara taka sénsinn. Í hádeginu kosta tveir réttir á mann og rauðvín 12 evrur. Geri aðrir betur. Texti og ljósmyndir: Gabríella Sif Beck

EMBLA

45


GÍGJA SIF

V Í Ð I S D Ó T T I R Ég heiti Gígja Sif og er Hafnarfirðingur í húð og hár. Fólki finnst það stundum óþolandi hvað ég lofsyng Hafnarfjörðinn mikið, en þar þykir mér bara best að vera. Ég á eina þriggja ára dóttur með kærastanum mínum og er önnur á leiðinni í júlí. Það er mikil tilhlökkun á okkar heimili fyrir því. Eftir að ég kláraði Flensborg, jólin 2013, var planið að fara í háskóla í Danmörku. Við fluttum til Álaborgar og hófum nám í Álaborgarháskóla. Þar kynntist ég áhuga mínum á hönnun. Brautin mín hét „Arkitekt og Design“ og var þetta iðnhönnunar verkfræði. Í skólanum notuðum við mikið Indesign og elskaði ég það. Skólinn einkennist af mikilli

hópavinnu, og var ég þá alltaf í hóp með dönum sem skrifuðu verkefnin okkar en ég setti þau upp í Indesign, því ekki var ég að fara skrifa góðan texta á dönsku. Svo þegar við fluttum aftur heim og ég kláraði fæðingarorlofið mitt fann ég þetta nám í Tækniskólanum og skráði mig. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í og viðurkenni að ég þekki þennan „bransa“ voða lítið. Mér hefur fundist gaman að læra, en það er bara alls ekki sjálfgefið. Ég hlakka til að kynnast iðngreininni betur eftir fæðingarorlofið, en ég stefni ekki neitt ákveðið, heldur leyfi ég hlutunum yfirleitt að koma í ljós.

EMBLA

47


Danmörk er oft þekkt fyrir að vera lífvæn­ leg, en þá hugsar f ó l k

yfirleitt u

m

Kaupmannahöfn í því samhengi. Nýlega hefur fjórða stærsta borg Danmerkur, Álaborg, komið sér á kortið og farið frá samdrætti yfir í að verða vinsæl háskólaborg sem nýlega var kosin hamingjusamasta borgin í Evrópu. Sjávarbakkinn er orðinn táknmynd Álaborgar sem menningarmiðstöð. Margar glæsilegar byggingar hafa sprottið þar upp eftir þekkta arki­ tekta, þar á meðal tónlistarhús hannað af Coop Himmelb(l)au, arkitektarmiðstöð sem var síðasta hönnun Jorn Utzon, sem var arkitekt á bak við óperuhúsið í Sydney. Ný bygging var byggð eftir Henning Larsen fyrir arkitekta­ og verkfræðinema háskólans. Gömlum verksmiðjum víðsvegar um borgina hefur verið breytt í menningarstofnanir. Borgin hefur náð að halda í jarðbundna og iðnaðar yfirbragðið sem íbúar elska við borgina. Frá ryðguðu útliti nýju ljósastauranna til yfir­ borðs bygginganna, er arfleifðin sem iðnaðar­ höfn stöðugt sýnileg og líkir eftir bæði sjónum og steypuframleiðslunni, sem áður var ein stærsta atvinnugrein borgarinnar. Þetta er áberandi í nýbyggingu tónlistarhússins, sem vísar fagurfræðilega í átt að ölduhafi og líkir samtímis eftir lögun nágranna síns, Nordkraft, umbreyttu rafstöðvarinnar sem nú hýsir eitt af menningarmiðstöðvum borgarinnar. Öfugt við flestar borgir hefur Álaborg tekið frá nokkra af bestu stöðum við sjávarsíðuna fyrir vaxandi fjölda ungra íbúa. Nýbyggt stúdenta­ húsnæði er á víð og dreif á milli hinna nýju menningarstofnana. Þar sem borgin er langt í norðri frá Kaupmannahöfn, villborgin að laða ungt fólk og fjölskyldur, að er lykilatriði til að halda lífi í borginni. Einnig hefur verið mikil uppbygging á nýjum kaffi­ og veitingahúsum. Borgin hefur gert tilraunir og verkefni með íbúum borgarinnar, sem hjálpa þeim við að byggja upp borgina eftir þörfum fólksins.


Musikken hus

Nordkraft

Gott dæmi um þetta er gamli skemmti­ garðurinn, Karolinelund, sem var lokað árið 2011 en hefur verið almenningsrými síðan þá. Garðurinn gerir íbúum og hópum kleift að nota garðinn ókeypis fyrir viðburði og starfsemi, svo sem hátíðir, matarkofa, pop­up listviðburðir og fleira. Að leyfa garðinum að vera án strangrar áætlunar í nokkur ár hefur gert hann að vin fyrir fjölda fólks sem gefur þeim tilfinningu fyrir eignar­ haldi á staðnum. Allt þetta mun leiða til deili­ skipulags fyrir garðinn sem ráðið vinnur nú að í samvinnu við notendur. Eins og í mörgum Evrópulöndum hefur útjaður

Utzon center

Danmerkur orðið fyrir afiðnvæðingu og hefur því fækkað á mörgum svæðum. Þetta er sér­ staklega áberandi í norðvesturhluta landsins, þar sem Álaborg er. En með fólksfjölgun um 11,5% á síðustu tíu árum virðist Álaborg hafa fundið leið til að ögra þessu mynstri og festa sig í sessi sem menningarleg háskólaborg og áfangastaður ferðamanna. Þessu hefur verið náð með því að byggja stóran arkitektúr og með því að virkja íbúa í að þróa framtíð borgarinnar. Álaborg hefur sýnt að það er hægt að finna upp iðnaðarbæinn að nýju og gera hann að einum ánægjulegasta stað til að búa í.

NÝ LÍFSTÍLSVERSLUN HEFUR OPNAÐ Í FAXAFENI FULLT AF OPNUNARTILBOÐUM

15‑25% afsláttur

Faxafen 11 | 108 Reykjavík | Sími 599 8888

inni.is EMBLA

49


FLONKY Flonky er leikur fyrir 20 ára og eldri, vegna þess að mikil bjórdrykkja er falin í leiknum. Leikurinn hentar vel fyrir alls konar skemmtanir, og skapar mikla stemningu þegar þörf er á. Flonky fer ört stækkandi og með hverju árinu sem líður líkist þetta íþrótt frekar en leik. En leikurinn á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Til að spila Flonky þarf 10 keppendur, 10 bjórdósir, dómara, bolta og stærri flösku. Í Flonky mætast tvö lið í einu. Liðin stilla sér andspænis hvort öðru með flösku í miðjunni, líkt og þekkist í kubb/víkingaspili. Svo skiptast liðin á að reyna

50

EMBLA

fella flöskuna með boltanum. Ef flaskan er felld, byrjar liðið að drekka bjórinn sinn, á meðan er hitt liðið að sækja boltann, rétta flöskuna við og koma sér í startholur. Þá kallar dómari „stopp“ og þarf þá hitt liðið að hætta að drekka. Ef liðið fellir dós, þarf dósareigandinn að klára bjórinn og opna sér svo nýjan. Þegar allt liðið hefur klárað sinn bjór þannig að hægt sé að hvolfa dósinni yfir höfuð sér án þess að það dropi úr honum í 3 sek. hefur liðið unnið. Ef dropi fellur úr dósinni þarf að opna nýjan bjór og halda áfram með leikinn.


Boltinn Boltinn er í grunninn tennisbolti sem er „teipaður“ með sterku gráu límbandi. Það gerir boltann örlítið óreglulegan og þungann. Heimsmeistaramótið í Flonky Davíð Sigurðsson og Alexander Sindrason hafa haldið Flonkímót seinustu 4 ár. Mikið er lagt í mótið enda hörkuduglegir strákar á ferð. Mikið af vinum þeirra úr Hafnarfirði mæta á mótið en auðvitað er öllum velkomið að taka þátt. Á mótinu keppa 14 lið og dregið er í riðla

kvöldið fyrir mót. Verðlaun eru gefin fyrir heims­ meistarana, bestu búningana og mikilvægasta leikmann mótsins. Seinustu tvö ár hefur mótið verið haldið á Flonkystöðum, rétt hjá Hellu. Mikill undirbúningur felst í mótinu, þar á meðal að gera hlöðu tilbúna fyrir ball og búa til bar fyrir þyrsta keppendur. Þeir hafa líka boðið upp á þjónustu frá RentATent, þar sem þeir tjalda, pumpa í dýnur og allur frágangur innifalinn svo keppendur þurfa ekki að hafa auka áhyggjur af gistingu og geta einbeitt sér að keppninni.

LEIKREGLUR Meðlimir liðsins þurfa að skiptast á að kasta boltanum, ekki má sami aðili kasta oftar en hinir.

Ekki má snerta dósina fyrr en boltinn hefur lent.

Eftir að sagt er „stopp“ þurfa allir meðlimir liðsins að vera hættir að drekka.

Aðili má ekki vera byrjaður að hlaupa á eftir boltanum/ flöskunni fyrr en boltinn er lentur.

Ekki má verja dósina sína frá boltanum með fótunum, að­ eins með höndunum.

Dómarinn dæmir.

Ef svindlað er á reglunum oftar en einu sinni, er liðið úr leik.

EMBLA

51


CARMEN Á HEIMSMEISTARAMÓTINU Í FLONKY

Við erum sex stelpur í vinahópnum Carmen. Ástæða nafnsins er mikill einkahúmor sem ekki þarf að fara betur út í. Við vorum saman í Flensborg, en þar lá leiðin okkar ekki saman strax. Það var ekki fyrr en við fórum saman á Þjóðhátíð eitt sumarið eftir að við útskrifuðumst og enduðum saman í húsi sem við kynntumst almennilega, og höfum tekið allar hátíðir mjög alvarlega síðan. Við erum mjög ýktar í öllu sem við gerum og höfum mjög gaman að því.

Carmen á Heimsmeistaramót Flonky Haldið hefur verið Heimsmeistaramót Flonky á hverju sumri seinustu 4 ár. Á mótinu er gefið verðlaun fyrir besta búninginn, leikmann mótsins og auðvitað heimsmeistarana. Við höfum alltaf tekið verðlaun fyrir besta búninginn með okkur heim og erum stoltar af því. Seinustu tvö sumur hefur mótið verið haldið á Flonkystöðum rétt hjá Hellu, mikil stemning myndast þar, þar er hlöðupartý haldið eftir mótið og fólk gistir í tjaldi eftir á. Svona eins og lítil útihátíð. Við látum okkur að sjálfsögðu ekki vanta á svoleiðis viðburð með öllum vinum okkar. Undibúningur fyrir mótið Árið 2021 ákváðum við hins vegar að setja

52

EMBLA

markmið okkar örlítið hærra og einblína á að vinna mótið, búningarnir áttu svo að vera aukaatriði. Við byrjuðum að æfa fyrir mótið í apríl og tókum æfingar á hverju fimmtudagskvöldi fram að móti. Æfingarnar voru teknar mjög alvar­ lega, þar fóru við yfir hver væri bestur að hlaupa eftir flöskunni og boltanum. Hvaða tækni væri best að kasta boltanum og hvernig væri best að þamba drykkinn. Við fórum yfir veikleika hjá hverriog einni, fórum yfir hvað mætti betur ganga, svona eins og hjá alvöru íþróttaliði. Tíu dögum fyrir mót, drukkum við sódavatn í dós á hverjum degi, oft tvisvar á dag til að verða betri í að þamba. Liðsandinn var frábær og vorum við orðnar spenntar fyrir mótinu enda höfðu miklar bætingar átt sér stað á öllum sviðum.


Carmen á Flonkymóti 2020 Fyrsta og eina hugmyndin okkar af búningavali var að vera pítsasendlar frá Domino’s. Sú hugmynd varð svo óvart mjög góð hjá okkur. Við fengum búninga frá Domino’s, og þá allan vinnugallann þeirra sem gerði þetta mjög skemmtilegt. Mótið er alltaf haldið á laugardegi og höfum við vanið okkur á að fara í bústað daginn áður. Þar fylgjumst við með þegar dregið er í riðla og hitum okkur upp fyrir stóra daginn. Lokaæfingin er svo tekin í búningum rétt áður en leiðinni er haldið á mótið.

komin með einhverjar hjartsláttartruflanir (mjög dramatískt). Þá þurfti ein úr hópnum að hlaupa í skarðið. Þessu höfðum við ekki gert ráð fyrir og varð þetta stressandi fyrir okkar hóp en þarna vorum við komnar með hóp af stuðningsmönnum sem hvatti okkur áfram. Við unnum leikinn og vorum þá komnar í úrslit. Í úrslitum keppum við við Saumaklúbbinn Guðbrand. Þeir hafa alltaf unnið mótið enda með góðar skyttur og hlaupara. Áður en leikurinn byrjaði veit ég að þeir voru ekki hræddir við þennan leik, þeir voru ekki hræddir við þetta kvendrifna lið í Domino’s búningunum. En svo byrjaði leikurinn og við komum þeim svo sannarlega á óvart og varð þetta mjög spennandi leikur. Þarna má segja að allir á mótinu hafi haldið með okkur og var kallað „MEGAVIKA” úr stúkunni. En besta skyttan úr Saumaklúbbnum hittir svo í dós hjá okkur sem varð okkar dauðans dyr. Við vorum samt mjög ánægðar með okkar frammistöðu á mótinu þótt það hefði verið gaman að vinna þennan leik þá gekk bara allt annað svo vel upp hjá okkur að það var ekki hægt að biðja um meira. Á hlöðuballinu unnum við að sjálfsögðu búningana, svo við fórum ekki tómhentar heim og bíðum spenntari en aldrei fyrr eftir næsta móti.

Mótið Við höfðum aftur samband við Domino’s og báðum um brauðstangir, 100 stk. til þess að gefa á mótinu. Það fengum við í gegn og sóttum þær á Selfossi á leiðinni á mótið. Þegar við mætum á mótið vorum við mættar sem pizzasendlar með brauðstangir fyrir alla, mikil stemning hafði myndast. Mótið byrjaði og okkur gekk vel. Komum fólki á óvart, við vorum einbeittar, með góða liðsheild og almennt hvetjandi við hver aðra. Það er mjög mikilvægt því þótt við komum þarna til að vinna var alltaf númer 1, 2 og 3 að hafa gaman. Við komumst í undanúrslit. Boltasækjarinn okkar gengur með púlsúr á sér og sér að hún er

Carmen á Flonkymóti 2021

EMBLA

53


n r ö j b Guðr n ún Kristín Svei

54

EMBLA

tir t ó sd


HÆ! Ég heiti Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir, er Ísfirðingur sem kláraði stúdentspróf frá Menntaskólanum á Ísafirði áður en tölvur komust í almenna notkun. Ég var stöðugt teiknandi sem barn og lærði að prjóna mjög ung. Þegar ég var 12 ára saumaði ég mína fyrstu flík, eftir það var ekki aftur snúið. Ég tók sveinspróf í kjólasaum frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1993 og fór þaðan út til Þýskalands og lærði fatahönnun. Strax að námi loknu fékk ég vinnu hjá 66 Norður en stofnaði ári seinna eigið fyrirtæki og rak verslunina GuSt í miðbæ Reykjavíkur í 15 ár. Ég vann tímabundið hjá Lín design sem hönnuður og komst að því að hönnun í tölvu átti einstaklega vel við mig, flæðið þar var enn betra en við saumavélina. Ég tók alla áfanga í undirbúningsdeild fyrir grafíska miðlun með vinnu og sneri mér að fullu námi síðastliðið haust. Námið hefur verið ótrúlega skemmtilegt svo ég hlakka til að halda áfram á sömu braut og finna vinnu við fagið. Það á best við mig að gera eitthvað skapandi og þó árunum fjölgi er heilinn enn troðfullur af hugmyndum, það er nefnilega endalaust hægt að finna upp ný hjól.

EMBLA

55


SAFNAHÚSIÐ Gersemi sem vert er að skoða

mikilvægt viðfangsefni margra listamanna í gegnum tíðina og á fyrstu hæð hússins getur að líta mannlífsmyndir af íslenskri alþýðu til sjávar og sveita ásamt tjáningarríkum mannamyndum. Einnig má sjá kyrralíf eða uppstillingar þar sem listamaðurinn glímir við hversdagslega hluti í nærumhverfinu, liti, lögun og margbreytilegt yfirborð en síðast en ekki síst úrval abstraktverka en Listasafn Íslands á geysilega gott safn abstrakt­ listar. Texti og myndir eru birtar með leyfi Listasafns Íslands

Þann 1. mars 2021 var Safnahúsið afhent Lista­ safni Íslands. Það er fyrsta safnbyggingin sem var reist hér á landi og var hún vígð árið 1909 og hefur hýst ýmsar merkar menningarstofnanir síðan. Þessi glæsilega bygging gerir nú Listasafni Íslands kleift að sýna að staðaldri lykilverk úr safneigninni og bætir úr bráðri þörf safnsins fyrir húsnæði til sýningahalds. Í ólíkum sölum á efri hæðum safnsins má sjá upphafningu frumherja málaralistar á náttúru landsins þar sem töfrar íslensku sumarnæturinnar láta fáa ósnortna. Landslagið, náttúran og túlkun hennar hefur verið stöðugt viðfangsefni íslenskra listamanna. En fleiri þemu er að finna í húsinu þegar gengið er um. Fólkið í landinu hefur verið


Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 10–17

w Sýningin Fjársjóður þjóðar í Safnahúsinu varpar ljósi á þá dýrmætu safneign sem Listasafn Íslands býr yfir um leið og myndlistin endurspeglar tíðar­ andann hverju sinni enda er listin í stöðugu samtali og endurnýjun, í takt við samfélagið allt Listasafn Íslands er nú staðsett á þremur stöðum. Listasafnið á Fríkirkjuvegi 7, Safnahúsið á Hverfisgötu 15 og Hús Ásgríms Jónssonar, Berg­ staðastræti 74. Aðgangseyrir fyrir nemendur er 1000 kr. Einnig er hægt er að kaupa árskort nema fyrir 3000 kr. Það er svo sannarlega þess virði fyrir alla áhugasama um list.

Skemmtilegri búðin

Full verslun af nýjum vörum, Ný sending af fallegum bast- og bambushúsgögnum sem hvergi fást annars staðar. Vinsælustu inniplönturnar voru að koma aftur og fallegir handgerðir leirvasar í mörgum gerðum. Verið innilega velkomin.

Opið 11–18 virka daga og laugardaga, lokað á sunnudögum EMBLA 57 Faxafen 11 | Laugavegur 27 | sími: 599 8888 | skonsa@skonsa.com


UPPÁHALDS PASTAUPPSKRIFTIN Þessi fljótlegi pastaréttur er í algjöru uppáhaldi, hann er bragðmikill og hægt að leika sér með hlutföllin af chilli og sítrónu þar til fullkomnu bragði er náð. Hægt er að gera vegan útgáfu af réttinum með því að skipta út rækjum fyrir kúrbít, smjöri fyrir olíu og parmesan fyrir næringarger.

HRÁEFNI magn

eining

innihald

230

grömm

fettucine pasta

300

grömm

pillaðar rækjur

8

matskeiðar

smjör

1

stykki

sítróna

4

stykki

hvítlauksgeirar

1

stykki

ferskt chilli

¼

bolli

ferskur parmesan

½

bolli

ferskt basil

¼

bolli

hvítvín

LEIÐBEININGAR Sjóðið pasta í stórum potti með smá salti. Saxið hvítlauk og chilli og steikið örstutt í smjörinu á pönnu. Bætið rækjum á pönnuna, steikið áfram stutt og hellið svo hvítvíni yfir og safa úr hálfri sítrónu. Smakkið til með salti og sítrónupipar. Sameinið pasta og sósu og blandið vel saman. Stráið parmesanosti, söxuðu basil og smá rifnum sítrónuberki yfir. Skreytið með sítrónubátum og berið fram.

58

EMBLA


Leitin að besta

PASTANU ta

s

ta as jup Ræk

Texti og myndir: Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir

a up ón Sítr

Ítölsk matarmenning hefur dreifst um hinn vestræna heim, pizzur og pasta eru alls staðar með vinsælustu réttunum, enda fljótlegt og unaðslega gott ef vel er eldað. Það var því vitað mál að á tveggja vikna ferðalagi um Ítalíu yrði borðað pasta nokkrum sinnum, svo ég ákvað að skrifa grein um athæfið, með því markmiði að finna besta pastað. Þá hafði ég líka fullkomna afsökun til að prófa sem flesta pastarétti og kannski finna uppskrift sem ég gæti endurskapað heima Fyrstu dögunum á Ítalíu var eytt í Mílanó. Borgin er nútímaleg tískuborg, þar sem innkaupaglöðum Íslendingum þætti æðislegt að versla, en þar sem ég er blankur námsmaður var ég ekki mikið að skoða búðir innan frá. Frítíminn var frekar nýttur í að rölta um stræti og torg eða skoða list. Síðasta kvöldmáltíðin er staðsett í Mílanó, og verður þar um ókomin ár því hún er heilir 9 metrar á breidd og máluð á vegg í fyrrum borðsal munkanna í Santa Maria delle Grazie. Ég hef áður komið til Mílanó og skoðað borgina vel, en þetta meistaraverk átti ég eftir að sjá. Miðinn var pantaður með nokkurra vikna fyrirvara til að komast strax daginn eftir að við lentum í Mílanó. Dagurinn var bjartur og eftir febrúarsuddann í Reykjavík var ómótstæðilegt að fara í göngutúr, svo ég labbaði þessa rúmu 5 km sem voru frá hótelinu og að fyrrum klaustrinu. Það var mátulegt að stoppa í hádegismat á leiðinni og fá sér fyrsta pastaréttinn. Ég settist utandyra í sólinni á litlum stað sem mér fannst lofa góðu. Uppáhalds pastað sem ég elda sjálf er sítrónupasta með rækjum og hvítlauk, svo ég valdi pasta með sítrónu þegar ég sá það á seðlinum, fyllt með osti og rósmarín... hljómaði dásamlega en reyndist vera þurrt og bragðlaust. Pastaleitin byrjaði ekki vel en að sjá meistaraverk Da Vinci bætti það fullkomlega upp. Það tók hann 3 ár að mála verkið, frá 1495 til 1498, og þarna stóð ég á sama stað 524

M í L A N ó EMBLA

59


60

EMBLA

Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci

st

a

árum síðar, með gæsahúð af hrifningu. Upplifunin af listinni á fyrsta degi á Ítalíu var stórfengleg, vonum að pasta næsta dags verði það líka. Daginn eftir fór allur hópurinn í ADI hönnunarsafnið í Mílanó, sem var mjög skemmtilegt þó það væri ekki stórt. Pastað sem ég fékk mér þann daginn lofaði líka mjög góðu á matseðlinum, pasta með rækjum og brokkolí, allt uppáhalds hráefni hjá mér svo þetta gat ekki klikkað… hélt ég. Rétturinn var hakkað soðið brokkolí með rækjum og pasta, vonbrigði. Pastað var ekki vont, bara eins og mauksoðið brokkolí á bragðið, ekki eitthvað sem ég myndi vilja endurskapa. Á mánudeginum lá leiðin til Flórens og fyrsti kvöldmaturinn var dásamlegt risotto, ekki pasta í þetta sinn. Flórens hefur allt annan sjarma en Mílanó, hún er meira kósí, eldri, uppfull af list, fallegum byggingum og litlum götum. Uffizi listasafnið var á dagskrá á þriðjudeginum þar sem margar gersemar ítalskrar listasögu eru geymdar, þar á meðal frægustu verk Botticelli. Eftir heimsóknina duttum við Íslendingarnir inn á stað sem heitir Foody Farm. Nafnið hljómaði ekki mjög ítalskt svo ég átti ekki von á einhverju sérstöku, en eitt besta pastað á Ítalíu þessa daga var borið á borð þar. Kastaníuhnetu og sítrónu tortelli með andasósu og beikoni var ljúffengt. Bragðmikil sósa og fullkomið pasta. Staðurinn er við Arno ána, og verður örugglega heimsóttur aftur í næstu ferð til Flórens. Ég er svo heppin að eiga vinkonu sem býr í útjaðri Flórens og við mæltum okkur mót næsta dag. Við fórum þrjár íslenskar og tvær sænskar konur saman út að borða. Einn af vinsælustu veitinga­ stöðunum í Flórens varð fyrir valinu, Zaza. Þær höfðu komið þangað áður og hældu humarpastanu í hástert svo ég var spennt að smakka. Við fengum okkur það allar, spaghetti með heilum humri, al dente og mjög gott, humarinn æðislegur og alveg virkilega góður réttur, og í frábærum félagsskap. Ég verð samt að segja að andapastað deginum áður var bragðbetra.

st a

a ap

ar pa

a

Hu

pa

st

d An

m

f l ó r e n s

T

at óm


o Gn

Daginn eftir ákvað ég að taka leitina föstum tökum og fann besta pastastað Flórens samkvæmt Tripadvisor, Osteria del proconsolo. Allur hópurinn kom með og við fengum okkur allskonar pasta. Hefðbundnari leið var valin þetta kvöld, ég valdi tómatpasta, ferskt handgert pasta með hvítlauk, kirsuberjatómötum, chilli og basil, sem var mjög gott, en frekar sterkt fyrir minn smekk því chillibragðið yfirgnæfði allt annað bragð. Á boðstólum var líka Gnocci með rucolasósu og gorgonsola osti sem var víst sjúklega gott, ferðin var bara ekki nógu löng til að fara aftur og prófa, en kannski næst. Besta pastað í Flórens fann ég síðasta kvöldið, á sætum stað rétt við hótelið, Trattoria la madia. Ég fór ein, með einbeittan vilja til að halda áfram pastaátinu. Mamma mia hvað þetta var gott, þjónarnir snarsnérust í kringum mig og einfalt rjómalagað tómatpasta bráðnaði í munni. Mæli með þessum hi stað, gestirnir voru flestir ítalskir, umgjörðin hlýleg og þjónustan góð. Við héldum til Bergamó næsta dag og gnocchi pastað um kvöldið var ekki mjög eftirminnilegt. Kannski vegna þess að tiramisú eftirrétturinn sem ég fékk á eftir skyggði fullkomlega á aðalréttinn. Næsti pastaréttur var borðaður í fangelsi, eða fyrrum fangelsi sem búið er að breyta í veitingastað í Bergamó, Il Circolino. Staðurinn er mjög stór og mikið að gera enda mjög vinsæll hjá heima­ mönnum en allt gekk mjög hratt fyrir sig. Ég pantaði Linguine með brokkolí, ristuðum kartöflum og möndlum, burrata osti og fennelbrauðteningum, mjög bragðgott, en heillaði mig ekki upp úr skónum. Staðurinn gerði það hins vegar, og matseðilinn var mjög freistandi svo ég hefði örugglega getað lent á betra pasta. Gamli bærinn í Bergamó er einstaklega fallegur, og maturinn ekki síðri en í Flórens. Næsti staður sem við fórum á til að borða er mjög vinsæll meðal heimamanna og yfirleitt uppbókaður. Ég fékk mér heimagert pasta fyllt með kjötsósu sem var sjúklega gott, mjög einfalt en ótrúlega bragðgott. Svo gott að ég held að ég verði að setja það í annað sæti með andapastanu í Flórens. Síðasta pasta ferðarinnar var borðað úti í sólinni, á litlum ódýrum stað í Bergamó, þar sem pasta, vínglas og kaffi kostaði átta evrur. Pastað var frábært, klassískt í tómatsósu með basil, ekki það besta í ferðinni en sló samt dýra humarpastanu við. Það var úr nógu að velja að borða þessa 14 daga á Ítalíu, og þó ég hafi ekki fengið mér pasta á hverjum degi tók ég þetta verkefni föstum tökum og kom heim kílói ríkari, en hver spáir í það þegar maður hefur tvær vikur til að njóta þess besta í ítalskri matargerð. Þrátt fyrir alla þessa góðu pastarétti, þá er uppáhalds heimagerði pastarétturinn minn enn sá besti sem ég fæ. Rækjupasta með sítrónu, hvítlauk og basil... og smá skvettu af hvítvíni. Ef einhver er orðinn svangur við lesturinn þá mæli ég með að prófa pastaréttinn í upphafi greinarinnar, mér tókst ekki að finna neinn betri á Ítalíu…þrátt fyrir mikla leit. Buon appetito

cc p llt Fy

a

st

a

ta as at p Tóm

b e r g a m ó EMBLA

61


Snjótoppur Ermar Fitjið upp 36 lykkjur á sokkaprjóna, prjónið 3 cm svart stroff eins og á bol og skiptið yfir í ljóst isager garn en haldið áfram með svarta þráðinn af Brushed alpaca. Prjónið slétt eina umferð. Aukið jafnt út um 10 lykkjur í næstu umferð, þá eru 46 lykkjur á prjónum. Prjónið áfram slétt prjón og aukið út um eina lykkju í byrjun umferðar og eina í enda, alls 6 sinnum með jöfnu millibili fyrir ykkar ermalengd. (Miðað við 47 cm er það með 6 cm millibili) Þegar ermin mælist í réttri lengd eru 58 lykkjur á ermi. Fellið af 5 fyrstu lykkjur í byrjun umferðar og 5 síðustu lykkjurnar Geymið þessa ermi og prjónið aðra eins.

Hér er hlý og góð skólapeysa fyrir öll kyn. Nafnið Snjótoppur og innblásturinn að þessari peysu kemur frá snævi þöktum toppi Esjunnar eftir að fyrsti snjórinn féll. Þessar leiðbeiningar eru ekki fyrir byrjendur í prjóni, reiknað er með að sá sem prjónar kunni t.d. að sameina bol og ermar svo það er ekki skýrt út, en fyrir vanan prjónara er þessi peysa einföld og fyrirtaks sjónvarpsprjón. Garn: Ég notaði 1 þráð af Brushed alpaca silk frá Drops og 1 þráð Isager Tweed. prjónar nr 5 1/2, bæði í stroff og slétt prjón. Prjónfesta hjá mér er: 10X10 cm = 14 lykkjur á breidd og 27 umferðir. Stærð M. Vídd á bol 104 cm, sídd frá hálsi 69 cm, ermalengd frá handvegi 47 cm, vídd um upphandlegg 36 cm. Þessar ermar eru óvenju langar, það er sniðugt að mæla ermalengdina á uppáhaldspeysunni og miða við það. Bolur Fitjið upp 150 lykkjur í svörtu. Prjónið stroff, 1 l. slétt og 1 l. brugðna til skiptis í 3 cm. Ég fór aftan í sléttu lykkjuna svo hún snúist og lokist betur í stroffinu. Skiptið yfir í ljóst Isager tweed en haldið áfram með svarta þráðinn af Brushed alpaca og prjónið slétt prjón þar til bolurinn mælist 45 cm. Fellið af 5 lykkjur í byrjun næstu umferðar, prjónið 65 lykkjur, fellið af 10 lykkjur prjónið 65 l. og fellið af síðustu 5 lykkjurnar. Geymið bolinn.

62

EMBLA

Sameinið ermar og bol á einn prjón, alls 226 lykkjur. Setjið prjónamerki alls staðar þar sem ermar og bolur mætast. Notið áfram sama garn og prjónið 3 umferðir. Skiptið svo yfir í svart Isager garn. Prjónið 10 umferðir með svörtu. Skiptið yfir í ljóst garn, bæði Isager og Drops alpaca silk, prjónið eina umferð og hefjið svo laskaúrtöku. Úrtaka: Tekið er úr sitt hvoru megin við prjóna­ merkin, alls 8 lykkjur í úrtökuumferðum. Byrjað er á umferð við prjónamerki. Vinstri úrtaka: 1 lykkja prjónuð, næsta lykkja tekin óprjónuð, 1 lykkja prjónuð og óprjónuðu lykkjunni steypt yfir. Prjónað áfram þar til 3 lykkjur eru að næsta prjónamerki, þá er hægri úrtaka: 2 lykkjur prjónaðar saman, ein lykkja prjónuð og svo vinstri úrtaka aftur. Hægri úrtaka h.m. við merki, vinstri úrtaka v.m. við prjónamerki. Takið úr í 3 hverri umferð, alls 19 sinnum, þá eru 74 lykkjur eftir á prjónum, prjónið 2 umferðir slétt og svo stroff í hvítu eins og á bol í 12 cm. Fellið laust af. Lykkið eða saumið saman opið undir höndum og gangið frá endum.

Texti og myndir: Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir

Axlastykki


Hjalti Karlsson er grafískur hönnuður sem hefur notið mikillar velgengni á Manhattan þar sem hann rekur hönnunarfyrirtækið Karlssonwilker ásamt vini sínum. Í augum nýútskrifaðra nema í grafískri miðlun, er ferill hans draumi líkastur. Hjalti ræddi við Grím Kolbeinsson og er viðtalið endurbirt hér að hluta til með leyfi Iðunnar.

Texti og mynd af Hjalta birt með leyfi iðunnar. Listasafn Reykjavíkur, mynd birt með leyfi Listasafnsins.

SPENNANDI ÞRÓUN Í MIÐLUNARGREINUM Hjalti var rétt rúmlega tvítugur þegar hann fór til náms á Manhattan í New York í Parsons School of Design. Hann var staðráðinn í því að verða hönnuður en fann ekki sína fjöl á Íslandi í námi. Það gerði hann heldur betur í Parsons og þótt hann hafði aldrei ætlað sér að flytjast til New York undu ævintýrin upp á sig. „Ég virkaði miklu yngri en ég var þegar ég flutti út, ég bjó þá enn hjá mömmu og pabba, var rosa feiminn. Maður sér krakka í dag, kannski var maður bara seinþroska? En það var hópur Íslendinga í skólanum sem bjó í sama hverfi og það hjálpaði auðvitað. Hægt og rólega kynnist maður svo nýju fólki,“ segir Hjalti um fyrstu skrefin á erlendri grundu. Penthouse í næsta bás Eftir námið fékk Hjalti ársatvinnuleyfi sem hann nýtti vel og fékk framlengingu. Á þessum árum rétt fyrir síðustu aldamót einkenndist bransinn af miklu harki fyrir nýútskrifaðan hönnuð. „Fyrsta vinnan mín var á tímariti, það var gefið út fyrir eldra fólk og hét Langlífi. Útgáfufyrirtækið átti líka tímaritið Penthouse. Ég var þarna í einhverjum bás að gera layout með gömlu fólki en svo var fólkið í næsta bás að vinna í aðeins öðru!” „Þetta var ekki góður tími að fá vinnu. Bransinn kemur alltaf í bylgjum. Það var mjög algengt á meðan þú varst enn í skóla, að þú gast unnið á einhverri stofu en fékkst kannski engin laun, kannski samloku. Það voru margir að misnota þetta og það var kannski einhver aðili að vinna þarna 8–9 tíma um helgar á engum launum. Þetta var allt saman tekið í gegn. Nú fá allir borgað!“

Sækir í Ísland Fyrirtæki sitt Karlssonwilker rekur Hjalti með vini sínum Jan Wilker sem hann kynntist á þessum annasama tíma að námi loknu. Síðan þá hafa þeir unnið fyrir MTV, New York Times, Time Magazine, Bloomberg og MoMA. Hjalti er ófáanlegur til að gera upp á verkefna sinna og segir þau öll hafa verið gefandi enda fjölbreytt. Hann segist einnig sækja í verkefni á Íslandi. „Ég er rosalega tengdur Íslandi. Ég kem að meðaltali fimm, sex sinnum á ári og er alltaf með kúnna hér og flakka því á milli.“ Hægt er að sjá ummerki hönnunar Hjalta víðsvegar. Hjalti og Jan endurhönnuðu til dæmis alla markaðsásýnd Listasafns Reykjavíkur, Loksins barinn í flugstöðinni þekkja margir og þá hafa þeir hannað ýmislegt fyrir GusGus. Sterkt trend og frumkvöðlahugsun Hjalti segir þróun í prent­ og miðlunargreinum hraða og frumkvöðlastarfsemi sé áberandi. „Þegar ég var í skólanum þá var þetta allt saman rosalega aðskilið. Það var sér ljósmyndadeild og mér fannst það skrýtið og engin tengsl á milli deilda. Í dag er þetta svo vítt hvað fólk er að gera. Ég sé trend og það er að stofurnar hafa eigin verkefni. Eru kannski sjálfir að hanna vöru og reyna að selja hana. Mörg hönnunarstúdíó í dag bera einkenni frumkvöðlastarfsemi og þá eru um 20% af tekjunum af þeirra eigin verkum en ekki frá kúnnum. Þau eru sjálf kúnninn. Í nokkrum tilfellum hefur þetta gengið svo vel að það hefur tekið yfir stofuna,“ segir Hjalti sem finnst þróunin augljóslega spennandi.

EMBLA

63


HELGI JÓNSSON

64

EMBLA


Helgi Jónsson Ég heiti Helgi Jónsson og er fæddur mánudaginn 28. júní 1993. Ég flutti til Danmerkur þegar ég var þriggja ára gamall á litla eyju á Suður Jótlandi sem heitir Als, í bæ sem heitir Sønderborg og ólst að mestu leiti upp þar. Ég var í „Sønderskov-Skolen“ fram að 6. bekk og eftir það fluttum við til Íslands til Keflavíkur. Ég fór í Heiðarskóla og útskrifaðist þaðan árið 2009. Eftir grunnskóla ákvað ég að ég vildi verða matreiðslumaður og hóf nám í grunndeild matiðnar. Eftir það fór ég á námssamning í Bláa Lóninu og kláraði samninginn þar. Ég hafði lítinn áhuga á að fara í skólann aftur og flutti til Arendal í Noregi og bjó þar í eitt ár. Stuttu eftir að ég kom heim aftur kynnist ég kærustu minni og eigum við 6 ára stúlku í dag sem heitir Karólína Kristín Helgadóttir. Þegar ég var í fæðingarorlofi pældi ég mikið í hvað ég ætti að gera og ákvað að fara í diplómunám í NTV í net- og kerfisstjórnun þaðan sem ég útskrifast með góða einkunn. Ég fór að vinna og dundaði mér á kvöldin í PhotoShop, Aftereffects, Sony Vegas Studio og fleiri forritum. Ég reyndi að finna nám sem hentaði áhugamálinu mínu. Ég fann grafíska miðlun hjá Tækniskólanum og eftir það var ekki aftur snúið

EMBLA

65


Ítölsk tíska Á 11. til 16. öld þegar listþróun var í hámarki varð ítölsk tíska mjög áberandi. Borgir eins og Mílanó, Flórens, Feneyjar og fleiri byrjuðu að framleiða lúxusvörur eins og t.d. hatta, snyrtivörur, skartgripi og fleiri dýrindis vörutegundir. Á þessum tíma var Frakkland helsti tískusmiður Evrópu. Ítölsk merki á borð við Gucci og Ferragamo fóru að keppa við frönsk merki á borð við Coco Chanel og Dior. Árið 2009 var Mílanó valin höfuðborg tísku í heiminum þar sem mörg af stærstu merkjum heims eru með höfuðstöðvar sínar þar t.d. merki á borð við Giorgio Armani, Dolce & Gabbana, Attico og mörg fleiri.

Nokkur atriði sem einkenna ítalska tísku Æpandi mynstur Æpandi mynstur eru undirstaða ítalskrar tísku. Þá hafa Versace sérstaklega vakið athygli um allan heim fyrir djörf mynstur. Þetta snýst um að hafa gaman og að gera tilraunir sem sýna hver þú ert og hvað þér líkar við. Þú þarft ekki að öskra til þess að láta taka eftir þér. Af hverju ekki að skera sig úr í klæðnaði. Tískan er t.d. innblásin af blómum, list, náttúru og dýrum. Dramatík Dramatík er kjarninn í því að vera ítalskur hvort sem það er handa látbragð, óperan eða tískan. Ítalir vilja alltaf segja sögu. Það sést í mörgum tilfellum vel á klæðaburði þeirra. Stórar yfirhafnir stórar ermar og ýktir litir. Sexy og elegant Ítölsk tíska snýst mikið um að láta þér finnast þú vera kynþokkafull/-ur þannig að það geisli frá þér þér sjálfstraustið. Ítalir sýna smá skinn en fara aldrei yfir strikið og eru mjög stílhreinir. Flíkurnar þurfa þó ekki endilega að vera aðsniðnar.

66

EMBLA

Sólgleraugu Árstími, veður, nótt, dagur, úti eða inni skiptir engu máli, Ítalir eru alltaf með sólgleraugu. Sólgleraugu eru ítalskt „fashion stable“. Þú færð sólgleraugu í öllum litum formum og stærðum og frá öllum helstu merkjunum. Skór Ítalskar konur elska háhælaskó. Það þarf helst að heyrast í þeim áður en þær mæta á svæðið. Það er eitthvað „powerfull“ við að vera í hælum. Þær elska háhæluð stígvél. Hönnunin þarf ekki að vera flókin og þú vilt velja þér tímalausa hönnun.


Fræg Ítölsk merki Prada

Dolce & Gabbana

Prada var stofnað 1913 af bræðrunum Martino og Mario Prada í Mílanó.

Dolce & Gabbana er stofnað 1985 af Domenico Dolce og Stefano Gabbana fatahönnuði.

Gucci

Versace

Gucci var stofnað árið 1921 af Guccio Gucci í Flórens.

Versace var stofnað 1978 af Gianni Versace í Mílanó. Í boði var fatnaður, aukahlutir o.fl.

Fendi

Giorgo Armani

Fendi var stofnað 1926 af Adele og Edoardo fatahönnuði.

Giorgio Armani var stofnað 1934 af Giorgio Armani. Giorgio var fatahönnuður.

Tískuvöruverslun

Fatnaður, skartgripir og aukahlutir í miklu úrvali

Lækjatorg 2 101 Reykjavík www.hjtiska.is 775 6777

EMBLA

67


Mílanó Milanó er höfuðstaður Langbarðalands (Regione Lombardia) sem er hérað á Norður-Ítalíu. Borgin er næst fjölmennasta borg Ítalíu og í henni búa um 1,3 milljónir manna. Mílanó er talin leiðandi borg á heimsvísu og hennar helstu styrkleikar eru hönnun, tíska og menningarlíf.

Daginn eftir var frjáls dagur sem ég nýtti í að skoða miðbæinn og svæðið í kringum Duomo (dómkirkjan í Mílan).

Í gegnum tíðina hefur borgin haft stór áhrif sem pólitísk miðstöð og nær aftur til fornaldar þegar hún þjónaði sem höfuðborg Vest Rómverska heimsveldisins. Þar má einnig finna Ítölsku kauphöllina.

Á safninu var

Arkitektúr

Allt á sýningunni var eftir ítalska hönnuði. Á neðri hæð safnsins sem við gátum því miður ekki skoðað var tískusýning í boði Milan Fashion Week. En við sáum samt sem áður brot þar sem að það var stórt op í miðjum salnum og sást í tísku sýninguna sem var mjög flott.

Stíllinn í Mílanó er mjög evrópskur en með ítölskum blæ. Mikið af styttum er í borginni og talsvert um mynstur á húsum frá dögum Rómaveldisins. Áhugaverðir staðir til að skoða Bosco Verticale Duomo di Milano Galleria Vittorio Emanuele II Pinacoteca di Biera Opera at Teatro alla Scala

Þriðja daginn var farið á ADI Design Museum sem er hönnunarsafn.

Grafísk listasýning með veggspjöldum. Farartæki Fatahönnunarsýning Húsgagnasýning

Eftir þetta var frjáls dagur þar sem restin af deginum fór í að versla, borða og skoða sig um. Um nóttina þurfti Bjarki okkar að fara heim því hann gat hvergi notað græna passann sinn og vildi ekki taka neina sénsa.

Ferðablogg Ferðalagið byrjaði með seinkun á flugi og vorum við komin mjög seint á hótelið í Mílanó en þar var engin til þess að taka á móti okkur. Loksins kom starfsmaður og innritaði okkur og þá gátum við loksins farið að sofa.

68

EMBLA

Síðasta daginn í Mílanó fór allur hópurinn upp á Duomo sem er dómskirkjan í Mílanó. Þar voru teknar myndir og við skoðuðum okkur um. Eftir Duomo var lagt af stað til Florence og tók ferðin hátt í þrjá klukkutíma.


Matarmenning Nútímaleg matarmenning í bland við hið hefðbundna matarmenningu einkennir Mílanó. Borgin laðar að sér marga af bestu matreiðslumönnunum frá Ítalíu og öllum heiminum. Ýmsir réttir frá Mílanó Costoletta alla Milanesse (kálfa kótiletta í raspi) Risotto alla Milanesse (hrísgrjóna réttur með osti, vín og saffron) Panetonne (sætt brauð/kaka) Ossobuco (kálfa skankar) Ég var ekki brjálaðslega hrifinn af matnum þó að ég hafi borðað ótrúlega góðan mat inn á milli og oft fannst mér hann bragðlítill og óspennandi. Pizzan var í mörgum tilfellum of blaut og pastað of hart. Klassísk uppskrift frá Mílanó: Risotto alla Milanesse 1 miðlungs laukur. 8 tsk. af ósöltuðu smjöri. 2 bollar af Ítölskum hrísgrjónum. ½ bolli af þurru hvítvíni. 6 bollar af kjúklingasoði. ½ tsk. af saffron þráðum. 1 bolli af fínrifnum parmesan osti. Salt og ný malaður svartur pipar eftir smekk. Undirbúningur Byrjað er á að steikja laukinn í tveimur teskeiðum af smjöri á meðalhita þangað til að hann er hálf gegnsær og ilmandi (ca. fimm mín.). Hrísgrjónunum er hrært saman við og eldað í u.þ.b. 3 mínútur. Síðan er víninu, tveimur bollum af soðinu og saffroninu bætt út í. Stillt er á háan hita til að sjóða niður megnið af soðinu. Ath. Það þarf hræra á ca. mínútu fresti (engin þörf er fyrir að hræra stöðugt). Næst þarf að bæta við einum bolla af soðinu og halda áfram að hræra og bæta við soði þangað til risottoið er „al dente“. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin þarf að hræra ostinum saman við og bæta við aðeins meira af soði. Síðan er restinni af smjörinu hrært út í og risottoið kryddað til með salt og pipar. Borið fram í skál eða á fallegum disk.

EMBLA

69


F lórens Flórens er stærsta borg Tuscany héraðs á mið Ítalíu. Í borginni búa um tæp 400 þúsund manns. Á miðöldum var borgin miðstöð viðskipta, fjármála og ein ríkasta borg þess tíma. Af mörgum sérfræðingum er hún talin vera fæðingarstaður endurreisnartímans. Það mætti því segja að Florence sé höfuðborg menningar á Ítalíu. Flórens laðar að sér milljónir ferðamanna á hverju ári. Hún er mest þekkt fyrir menningu sína, minnisvarða, endurreisnarlist og byggingarlist. Í borginni er að finna mörg fræg söfn eins og t.d. Uffizi, Palazzo Piti. Arkitektúr Stíllinn á byggingum í Flórens er af endurreisnar arkitektúr. Það er mikil byggingarlist Í Florence frá 14. öld til 16. aldar. Arkítektúrinn sýnir meðvitaða endurvakningu á rómverskum og forngrískum arkitektúr. Áhugaverðir staðir til að skoða Uffizzi Gallery Ponte Vecchio Florence Cathedral Boboli Gardens

70

EMBLA

Ferðablogg Eftir lestarferðina til Flórens var farið á hótelið sem er mjög miðsvæðis í borginni. Þegar við vorum búin að koma okkur vel fyrir fórum við á bar þar sem við pöntuðum okkur drykki og spiluðum jenga. Síðan náðum við í Magga á lestarstöðina. Annar dagurinn fór í að skoða Uffizzi Gallery. Á safninu voru málverk, styttur og margt fleira. Verkin voru eftir ítalska hönnuði eins og t.d. Leonardo Da Vinci, Michael Angelo og Koen Vanmechelen. Það sem eftir lifði dags fór í að skrifa uppkast, borða og skoða. Þriðja daginn var FIDI hönnunarskólinn í Flórens skoðaður og þar var farið yfir hvað skólinn hefur upp á að bjóða. Skólinn er í tveimur byggingum og eru byggingarnar mjög fallegar en þær eru byggðar í ekta ítölskum stíl. Eftir skólaheimsóknina fundum við stað til þess að borða á og eftir snæðinginn skoðuðum Ponte Vechio (elsta steypta brú í Evrópu). Á fjórða degi skoðuðum dómkirkjuna í Flórens og löbbuðum uppá Piazzale Michael Angelo hæðina. Það má síðan taka fram að við fengum bestu steik ferðarinnar á stað sem heitir Oggi, mesta snilldin við það var grana padona osturinn sem var settur ofan á.


Síðasti dagurinn í Flórens var úrvinnslu dagur og hann fór aðallega í að hlaða batterýin, skrifa um ferðina og skoða sig um.

Undirbúningur Grill eða panna er hituð upp á miðlungs hita. Steikin er þurrkuð og krydduð vel með salti og pipar, á báðum hliðum.

Matarmenning Flórensk matargerð er jarðbundin, sveitaleg og oft á tíðum ströng. Einfaldleiki er aðalatriðið og þrátt fyrir að matargerðin sé einföld er hún útbúin með stolti. Ekkert má fara til spillis og endurspegla margir réttir þá siðferðiskennd. Það eru reglur um hvað má borða og hvenær. Ýmsir réttir sem eiga uppruna sinn í Flórens Bistecca alla Fiorentina (þykk nautasteik á beini) Crespelle alla Fiorentina (pasta réttur) Zucotto (kaka) Fagiuoli (bauna réttur) Betri matur er í Florence en í Mílanó. Það var mikið lagt í matinn og mikið af kjöti. Vínið í Florence er sérstaklega gott. Klassísk uppskrift frá Florence: Bistecca alla Fiorentina 1 stór t-bone steik (minnst 7 cm þykk og 1–1,5 kg á þyngd) 1 búnt af fersku rósmarín 1 búnt af ferskri salvíu 2 tsk. af extra virgin ólífu olíu salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Rósmarín- og salvíubúntin eru bundin saman með garni til þess að búa til kryddjurta pensil. Kryddjurta pensillinn er notaður til þess að pensla steikina með ólífuolíunni. Steikin er sett á grillið/pönnuna og steikt ca. 12 mínútur á annarri hliðinni og 9 mínútur á hinni. Kjötið er látið hvíla í að minnsta kosti í 5 mínútur. Steikin er vanalega borin fram ein og sér en við Íslendingar elskum meðlæti þannig að kartöflur og góð sósa myndu eiga vel við.


Bergamó Bergamo er á Langbarðalandi (Regione Lombardia) í norður Ítalíu ca. 40 km norður af Mílanó. Þar búa u.þ.b. 122 þúsund manns. Bergamo er skipt í tvennt þ.e. efri bær (Citta Alta) og neðri bær (Citta Bassa). Hægt er að komast á milli bæjarhlutanna í kláfferju eða með hlykkjóttum göngustíg meðfram varnarmúrnum sem umkringir gamla bæinn og er hringlaga. Varnarmúrinn er frá Feneyjalýðveldinu. Arkitektúr Gamli bærinn er ekta ítalskur bær með þröng stræti, styttur, kirkjur og mikið af sögulegum stöðum. Neðri bærinn er aðeins nútímalegri með t.d. stærri stræti, búðir og veitingastaði frá stórum keðjum. Áhugaverðir staðir að skoða Citta alta Piazza Vecchia Cinta Muraria Maggiore Cathedral of Saint‘Allesandro

áttum við að taka myndir í takt við ljósmyndarann Luigi Ghirri. Ég tók u.þ.b. 500 ljósmyndir. Þegar við komum í skólann á öðrum degi hittum við skólastjórann sem sýndi okkur allan skólann í samvinnu við kennara og nemendur. Eftir að við höfðum skoðað skólann fórum við í hádegismat á frægum veitingastað sem heitir „Da Giuliana“. Eftir matinn fórum við með sporvagni til bæjar sem heitir Albíno og er í fjalli rétt fyrir ofan Bergamo. Planið var að fara lengra upp í fjöllin en kláfferjan sem við áttum að fara með var lokuð akkúrat þennan dag. Á þriðja degi mættum við í skólann til þess að vinna verkefni með ítölsku nemendunum. Við áttum að hanna plaggat í stíl við ítalska hönnuði. Eftir það fórum við út á skíðasvæðið sem er á skólalóðinni og fengum að prófa það. Skíðasvæðið er úr einhvers konar plasti sem ætti að líkjast því að renna á alvöru snjó. Að þessu loknu var frjáls dagur.

Ferðablogg Eftir ferðalagið frá Flórens fórum við beint á hótelið. Fyrsti dagurinn fór í að hitta Alberto, Gianluca, Valentina og nemendur frá Caterina Caniana sem er skólinn sem við vorum að fara að heimsækja. Þann dag fórum við í ferð um Bergamó með leiðsögn. Á meðan við skoðuðum gamla bæinn

72

EMBLA

Fjórði dagurinn byrjaði á því að klára plaggatið. Eftir það fórum við í rútuferð til bæjar sem heitir Iseo og þaðan með ferju út í eyjuna Monte Isola. Þar borðuðum við og skoðuðum okkur um í nokkra klukkutíma. Við komum til baka til Iseo með ferjunni og fórum í vínsmökkun á fallegum vínekrum sem heita Ferghettina.


Síðasti dagurinn í Bergamo fór í að sýna verkefnið okkar og að skoða ráðhúsið. Eftir það var frjáls dagur til klukkan 6. Við tókum síðan lest frá Bergamó til Lapensa flugvallarins þar sem við fórum á flughótelið og sváfum aðeins fyrir heimferð.

Landsins stærsta úrval af ítölskum gæða vespum er hjá okkur

Matarmenning Matargerðin í Bergamo er mjög sveitaleg og heimaleg. Maturinn er í mörgum tilfellum mun þyngri á þessu svæði en annars staðar á Ítalíu. Rótargrænmeti, sveppir, kjöt, maís og mjólkurvörur eru oft aðal hráefnin í réttum frá svæðinu. Ýmsir réttir sem eiga uppruna sinn í Bergamo Polenta Targana Casoncelli Risotto Gelato Klassísk uppskrift frá Bergamo Polenta targana 1 liter af vatni 120g bóghveiti 80g maísmjöl 250g hálf feitur ostur t.d. Fontina ½ tsk. af salti Undirbúningur Vatnið þarf að ná suðu og síðan þarf að bæta öllu mjölinu hægt og rólega út í og hræra á meðan að á því stendur. Síðan þarf að láta blönduna malla í 50–60 mínútur á miðlungs hita og passa vel upp á að hræra af og til í þannig að það festist ekki við pottinn. Þegar rétturinn er alveg að verða tilbúinn er smjörinu bætt við og það látið bráðna og saltið sett í. Þegar smjörið er bráðið er slökkt á hitanum, ostinum bætt út í blönduna og hrært í þangað til hann er hálf bráðnaður. Borið fram sem hliðarréttur t.d. í keramíkskál eða á skurðarbretti.

www.vespa.is Stórhöfði 10 543 1234 EMBLA

73


KOTRYNA RUKŠTELYTĖ

74

EMBLA


ABOUT ME

Hello my name is Kotryna, I am 20 years old born in Lithuania in small town Visaginas where the Chernobyl series were filmed at the Ignalina power plant since it has exactly the same structure as Chernobyl one. Moved here around four years ago and strive to make the future more beautiful. I´ve had a keen eye on art, fashion and any aesthetic design throughout my life and decided to pursue graphics when I was around 17. I´ve greatly enjoyed the experience and strive to push myself to become a better designer by the day. My goals are to be able to intricately design not only graphics for clients, but every detail of a brand that create a whole. Therefore

my next plan is the brand identity / brand design course. The only problem I´ve got thru the graphic design course is that I can´t unsee so many of the bad logos and designs on the products in the stores that it makes me agitated, pay attention and You will see it yourself! I also enjoy photography. Since I was a little kid I always wanted a good camera, my loving uncle decided to fulfill my dream and got me one. Since then photography has been one of my favorite hobbies. Although I only enjoy human/portrait photography.

“ A good tpyeafce mkaes ahnytning eeisar to raed. „

EMBLA

75


WINE Wine is an old-age tradition that has been around for centuries. It is a sophisticated drink that takes years to produce to achieve the perfect taste. Every bottle is fermented with science and history. For those of us who are perpetually hunting for the unusual, the wine world is a mecca of delight. There are thousands of wine varieties, most of which exist in only in specific microclimates. Despite how rare these varietal wines are, they are within reach. Sound like an opportunity for some delicious discoveries? Absolutely! “If you tasted a new wine variety each week, it would take you 40 years to try them all.” Here are six rare red wine grapes that you deserve to know about.

76

EMBLA

Refosco Imagine picking blackberries in the forest while drinking coffee from a thermos. Typical Tasting Notes: Cherry, Dried Blackberry, Resinous-and-Floral Herbs, Espresso, Incense. Why Refosco is Awesome: For one, Refosco (aka Refošk) is actually a family of grapes, so for the sake of this exploration, let’s stick to one Italian variant called “Refosco dal Penduncolo Rosso.” This grape turns out to be the parent of Corvina, which makes one of the top wines of Italy (that’s Amarone della Valpolicella). Refosco manages to be heady and rich and high acid at the same time. Your tongue will tie knots! Frappato Drinking Frappato is like jumping into a giant pool of brightly-colored plastic balls.


Typical Tasting Notes: Pomegranate, Sweet Strawberry, White Pepper, Tobacco, Clove. Why Frappato is Awesome: Frappato is one of the few red wines out there that doesn’t take itself too seriously. Still, its sweet-smelling fruit flavors and pale red color aren’t something to poo poo. Frappato might actually be genetically related to Sangiovese (Italy’s top red wine, mind you). Plus, it’s perfectly at home growing on a live volcano (Mount Etna in Sicily)! So, if you’re looking for something to lighten your load (or for a salmon-friendly red), Frappato is your girl. St. Laurent Your friends will swear this is Pinot Noir. Typical Tasting Notes: Raspberry, Blackberry, Mushroom, Baking Spices, Cocoa Powder. Why St. Laurent is awesome: Everything seems a bit more vibrant (if not slightly off the rails) in Eastern Europe. (If you’ve been there, you know exactly what I’m talking about). St.

Laurent is like a bolder, sexier, more bodacious Pinot Noir (although, it’s technically not related). So, if you’re looking for something that’s “close to home” but pushes your ma’s buttons, pick up a bottle of what we’re calling “The Saint.” (P.S. The Czech spell it “Svätovavrinecké” – how would you pronounce that?). Listán Negro Have you ever had anything from the Canary Islands? Typical Tasting Notes: Red Cherry, Banana, Strawberry, Pepper Spice, Flowery Herbs. Why Listán Negro is Awesome: Have you ever had ANYTHING from the Canary Islands? I didn’t think so. Enter Listán Negro. This is a wine that is sometimes compared to Grenache, but with slightly less smack-you-in-the-face alcohol. It’s pretty common to find this grape made with carbonic maceration (thus, the “banana” flavor in some wines), which helps reduce some of the herbaceous-ness. Still, there’s something

ENJOY A GLASS OR BOTTLE IN OUR COZY ATMOSPHERE. Veghúsastígur 7–9 | 101 Reykjavík | Sími 832 2929 | Open daily from 16–23 EMBLA 77 | info@port9.is | www.port9.is


about this grape (and the island) that’s other-worldly. Flavors seem to balance between overly fruity and seriously earthy. It’s no wonder that this wine pops up in “in the know” NYC wine bars. Baga It’s cheap rosé when done wrong, but it’s Portugal’s Amarone when done right. Typical Tasting Notes: Dried Sour Cherry, Blackberry, Earthy Black Currant, Cocoa, Tar. Why Baga is Awesome: Baga is prolific. This is why Baga is the base grape in one of the world’s most well-distributed, hipster rosés: Matteus. It’s also delicate. This thin-skinned Portuguese variety has recently been taken more seriously by people like Luís Pato and Dirk Niepoort who fight back high yields (and use old vines) to encourage quality. Their work is paying off. In the glass, fine Baga has all the attributes of the other great collectible red wines of the world. Baga has good phenolic structure (high tannin, anthocyanin, etc), age-worthy acidity (with pH levels around 3.5), and the ability to age gracefully (meaning, it as the volatile acidity and aged compounds like sotolon increase, the wine doesn’t fall on its face). Xinomavro (“ksino-mav-roh”) If Rioja and Barolo made a baby – Typical Tasting Notes: Raspberry, Plum Sauce, Anise, Allspice, Tobacco Leaf.

78

EMBLA


EMBLA 9

Why Xinomavro is Awesome: If there’s one thing to learn about collecting wines (to drink), it is that a little effort delving into off-the-beatenpath wine countries like Greece and Portugal will result in truly special finds. Xinomavro is one of these wines. Don’t let the awkward pronunciation scare you (just say “Casino-Mavro” and you’re practically there!) – this grape means serious business. Xinomavro really reminds us of Barolo when done right, but with a slight savory quality that brings up visions of aged Tempranillo. For now, you really need to sit on it for a while to allow those high acids and tannins to calm the heck down!

•

•

• •

Here are some fun, weird, and amusing facts about wines. • •

Apparently, some people have a “fear of wine,” and it’s called oenophobia. During the early Roman times, it was forbidden for women to drink wine. Wives who were caught by their husbands drinking wine could be killed if caught in the act.

•

Women are more susceptible to the effects of wine than men. It’s partly due to biology, as women have fewer enzymes in the stomach lining required to break down alcohol. In ancient Greece, the host of dinner would take the first sip of wine to assure that the wine served to guests wasn’t poisoned. The act of courtesy was where the phrase “drinking to one’s health” originated. There are 10,000 varieties of wine grapes existing worldwide. At a wine-tasting event, it is okay to spit the wine out. When attending such events, it is acceptable to take a sip of wine and hold it in your mouth for a few seconds and then decide to swallow or spit it out. It also allows guests to taste multitudes of wine without getting drunk. There is a right and wrong way to hold a wine glass. The proper way is to hold by the stem so that the hand does not warm the glass and increase the temperature of the wine.

EMBLA

79


PANGAIA C pan | pæn — gaia | ga

Pan — All-inclusive, especially in relation to the whole of a continent, racial group or religion. Gaia — Mother Earth.

Mission & Vision PANGAIA is a direct-to-consumer materials science company bringing breakthrough textile innovations and patents into the world through everyday lifestyle products. Every technology they work with aims to solve an environmental problem of the fashion/apparel & nature industry. They hope to drive these solutions further by making technologies and materials available to companies across different industries. By introducing these innovations, PANGAIA designs materials, products and experiences for everyday and everyone. The future of color is here—and it’s made using bacteria Using bacteria found in organisms so small that the average human eye can’t detect, Colorifix is able to create colors from unique places simply by accessing the DNA blueprint within different pigments and, with the help of microbes, turning them into unique colors. From there, the world of color inspired by nature is limitless. Did you know that our Blue Cocoon color is made with pigments found in silk cocoons, and the Midway Geyser Pink (named after the famous Midway Geyser Basin in Yellowstone National Park) uses pigments around the springs? Color can be a dirty business Did you know that the average dyeing process can take up to 5 washes and require high temperatures for 5+ consecutive hours to create the color? And while synthetic dyes are often made from polluting petrochemicals and toxic chemicals, they’re not the only culprit. Natural dyes can still require some sort of chemical process to fix the dyes in place and keep them from fading.


CLOTHING By using Colorifix’s engineered microbes instead, PANGAIA can replicate nature’s color palette with significantly cleaner inputs—and outputs. With Colorifix they only need 1 wash and 3 hours. Instead the process uses zero harmful chemicals, less energy wasted and less water, too. Not only is Colorifix revolutionizing the dyeing industry, it’s solution is scalable too. Did you know? The annual clothing volume for the UK alone requires over 20 billion liters of water to dye. If you were standing on Tower Bridge looking down at the River Thames, you would have to wait 3.9 days for this amount of water to pass.

lution particles into water-based black ink, used to print our logo and text blocks in their latest capsule. The more we support new carbon capture and recycling technologies like AIR-INK®, the more we support our planet. What is AIR-INK®? AIR-INK® is a carbon-capture technology that captures air pollution particles and diverts harmful substances from the air we breathe. The particles are turned into different grades of inks, dispersions and coatings. For this capsule the captured air particles were turned into safe, water-based inks.

Powered by Colorifix Colorifix is a biotechnology company that’s revolutionizing the dyeing process to help reduce the textile industry’s environmental impact. Their ongoing mission? To engineer natural solutions to solve current problems our planet faces. A trailblazer for innovation, Colorifix has pioneered the first biological process to produce, deposit, and fix pigments onto textiles. This method uses at least 68% less water than conventional dyeing practices, and up to 90% for synthetic fibres. PANGAIA x AIR INK AIR INK® Treatments Water-based black ink made from air pollution, printed on their latest capsule. Discover the PANGAIA x AIR-INK® capsule. Problem-solving science you can wear. Industry Problem Right now, the apparel industry has a large carbon footprint that contributes to an extremely high amount of air pollution worldwide. They want to do their part to move the industry forward with new innovative technologies and responsible solutions—that’s where AIR-INK® comes in. PANGAIA Solution They are revolutionizing how they use ink—one product at a time. This technology turns air pol-

EMBLA

81


82

EMBLA


TECHNO What is techno?

Techno is an electronic music genre that was born in the seventies but developed into an adult EDM genre in the eighties, mostly in Chicago, Detroit, and Frankfurt. Stylistically, techno is generally repetitive instrumental music, often produced for use in a continuous DJ set. The central rhythmic component of techno is most often in common time (4/4). Where time is marked with a bass drum on each quarter note pulse, a backbeat played by snare or clap on the second and fourth pules of the bar, and an open hi-hat sounding every second eighth note. The tempo tends to vary between approximately 120 to 150 beats per minute (bpm), depending on the style of techno. Music journalists and fans of techno are generally selective in their use of the term; so a clear distinction can be made between sometimes related but often qualitatively different styles, such as tech house and trance. Techno spawned many subgenres including minimal techno, ambient techno, hardcore techno, industrial techno, intelligent dance music (IDM), Detroit techno, trance, deep techno, and tech house. From these subgenres came offshoots like acid house, rave, electronica, and EDM. What was the first techno song? No UFO’s was the first techno song. It is credited to Kevin Saunderson and Juan Atkins, who were part of a group called “The Belleville Three.” No UFO’s helped establish an electronic sound that caught on in Europe. Where techno is the most popupar? Techno is the most popular in .Europe and grew in popularity throughout European countries, starting with its success in Italy and then moving to Germany, Belgium, Netherlands, and UK. Over time, different subgenres of techno were developed, including acid house

GENDER INEQUALITY CONFERENCE

HARPA REYKJAVÍK 01.-02.05. 2022 More info www.varnir.is


84

EMBLA


Magnús Bergmann Jónasson Heil og sæl, Magnús Bergmann Jónasson heiti ég og er fæddur 9. október 1998 á Ísafirði. Ég hef alltaf haft gaman að listsköpun sem leiddi mig í þetta nám. Grafísk miðlun hefur kennt mér ótrúlega margt og hef ég kynnst frábæru fólki hérna bæði nemendum og kennurum. Ég flutti frá Ísafirði 1999 til Akureyrar og bjó þar í 5 ár, flutti síðan til Hvolsvallar þar sem ég hef búið og alist upp mest allt mitt líf. Hvolsvöllur var mjög góður staður til að alast upp á og eignaðist ég vini til framtíðar þar, auk þess lærði ég færni til að koma mér áfram í lífinu. Eftir grunnskóla fór ég í Fjölbrautaskóla Suðurlands á listabraut. Ég fann mig ekki þar því mér fannst ég ekki vera að læra neitt nýtt. Ég hef verið að teikna síðan ég var sex ára og lært á því allt á milli himins til jarðar. Eftir tvö ár ákvað ég að hætta í Fsu og fann þá þetta nám hérna í Tækniskólanum. Eftir að ég útskrifast langar mig í nám úti. Þá er ég aðallega að hugsa um að fara til Viborg í Danmörku og læra „Graphic Storytelling“. Það er nám sem felst í að gera teiknimyndir, „Graphic Novels“, myndskreytingu og visual development.

EMBLA

85


Kristin trú Kaþólska kirkjan Í miðri Róm hreiðrar Vatíkanið um sig sem höfuð­ stöðvar hinnar áhrifamiklu kaþólsku kirkju og er þar með inn á ítölsku yfirráðasvæði. Heimsleiðtogi kirkjunnar, páfinn, er biskupinn í Róm og því eru sérstök tengsl á milli Ítalíu og kirkjunnar sem hefur gríðarleg pólitísk ítök (sjá Lateran­sáttmálann og kaflann hér að neðan um trú og stjórnmál). Núverandi páfi er Frans, fæddur Jorge Mario Bergoglio, sem fyrir vígslu hans árið 2013 var frá Argentínu og var erkibiskupinn í Buenos Aires frá 1998 þar til hann var vígður páfi. Frans er þriðji páfinn sem er ekki af ítölskum ættum, á eftir Jóhannesi Páli II (1978–2005) frá Póllandi og Benedikt XVI (2005–2013) frá Þýskalandi. Flestar helstu kaþólsku trúarreglurnar, þar er með talið jesúítar, fransiskanar, kapúsínskir fransiskanar, benediktínumenn, dóminíkanar, trúboðar guðdómlegs orðs, endurlausnarinnar, konvensíufrönskutrúarmenn og vígamenn Maríu hinnar flekklausu hafa höfuðstöðvar sínar í Róm líka. Ítalska yfirráðasvæðið skiptist í 225 kaþólsk biskupsdæmi (sem hafa verið við lýði, síðan 1952, á hinni pólitísku, áhrifamiklu, ítölsku biskup­ aráðstefnu) og samkvæmt tölfræði kirkjunnar (sem telja ekki núverandi virka meðlimi), eru 96% íbúa landsins skírðir kaþólikkar.

86

EMBLA

Kirkjulífið er nokkuð líflegt og þrátt fyrir ver­ aldar væðingu eru sumar af virkustu hreyfing­ unum og félögunum kaþólsk. Þar á meðal samtök eins og kaþólsk aðgerð, Ítölsku kaþólsku sam­ tök leiðsögumanna og skáta, Communion and Liberation. Pólítík og trú Eftir sameiningu Ítalíu, sem aðallega studda af veraldlegum og andveraldlegum­klerkaöflum, og sérstaklega eftir hertöku Rómar árið 1870 sem markaði endanlegan ósigur Páfaríkjanna fyrir konungsríkinu Ítalíu, útilokuðu kaþólikkar sig að mestu sjálfir frá virkum stjórnmálum. Þess vegna voru allir helstu stjórnmálaflokkar og þingflokkar veraldlegir í eðli sínu fram á byrjun 20. aldar. Árið 1905 var ítalska kaþólska kosningasam­ bandið stofnað til að samræma þátttöku kaþólskra kjósenda í ítölskum kosningum. Flokkurinn náði minniháttar en umtalsverðum árangri, samkvæmt Gentiloni­sáttmálanum svokallaða. Árið 1913 gekk hann í bandalag við stofnun Frjálslyndra. Eftir fyrri heimsstyrjöldina skipulögðu kaþ­ ólikkar ítalska þjóðarflokk sem hluti af hreyf­ ingunni kristilegt lýðræðis.


Á tímum fasistastjórnarinnar hans Mussolini var Rómarmálið útkljáð með Lateran­sáttmálanum sem var undirritaður af Páfagarði og konungsríkinu Ítalíu árið 1929. Við þessa undirritun er Vatíkanið stofnað. Fasistar ofsóttu trúarlega minnihluta­ hópa. 9. apríl 1935 bannaði Guido Buffarini Guidi hvítasunnu trúnna og á árunum 1938–1939 voru gyðingar skotmörk hinna alræmdu kynþátta­ laga, síðan urðu þeir fórnarlömb þjóðarmorðs í tengslum við helförina. Ítalska andspyrnuhreyfingin sá þátttöku kaþ­ ólikka, mótmælenda og gyðinga (í gegnum gyð­ ingasveitina). Árið 1943 stofnaði hópur kaþólikka, þar á meðal voru nokkrir fyrrverandi vinsælir meðlimir kaþólskra aðgerða fyrrnefndan Kristilega lýðræðisflokkinn árið 1945 leiddu þeir ítölsku bráðabirgðastjórnina ásamt Alcide De Gasperi Eftir seinni heimsstyrjöldina studdi kaþólska kirkjan, eftir nokkra fyrirvara í upphafi hans Píus páfi XII. sem var hlynntur lausn svipaða þeirri lausn sem kirkjan á Francoist Spáni, á meðan sumir kardínálar vildu fjölda kaþólskra flokka, mögulega hafa einn kommúnista flokk virkan. Frá 1946 til 1992 voru allir forsætisráðherrar nema tveir kristilegir demókratar og kaþólikkar. Hins vegar hafa bæði Waldensar og gyðingar gegnt mikilvægu hlutverki í ítölskum stjórnmálum. Þó nokkrir kaþólskt innblásnir flokkar hafi einnig náð pólitískum frama eftir upplausn kristilegs lýðræðis árið 1994. Frá Ítalska þjóðarflokknum 1994, til Kristilegs demókrata og Sambands miðjunnar, frá Forza Italia 1994 til Forza Italia 2013, hafa Waldensar yfirleitt verið virkir í „veraldlegum“ flokkum, sérstaklega Ítalska sósíalistaflokknum, Ítalska kommúnistaflokknum og nú nýlega Demókrata flokknum, sem er einnig flokkur fyrrverandi kristilegra demókrata. Nýlega stofnaði hópur íhaldsamra hvítasunnumanna. „The Extended Christian Pact“ flokkinn. Einnig hafa gyðingar verið að mestu virkir í „veraldlegum“ flokkum, en þeir hafa undanfarið verið meira klofn­ ir milli demókrata og Forza Italia.

EMBLA

87


Húðflúr hefur verið stundað um víðan heim síðan að minnsta kosti á nýsteinaldartímanum, eins og má sjá af húð á varðveittum múmíum, fornri list og fornleifaskráningu. Bæði forn list og forn­ leifarannsóknir á hugsanlegum húðflúr verkfærum benda til þess að húðflúr hafi verið stunduð á seinni fornaldartímanum í Evrópu. Hins vegar ná beinar vísbendingar um húðflúr á múmíum, aðeins til 4. árþúsund f.Kr. Elsta uppgötvunin á húðflúraðri mannshúð til þessa er að finna á líki ísmannsins Ötzi, sem var uppi á milli 3370 og 3100 f.Kr. Aðrar húðflúraðar múmíur hafa fundist á að minnsta kosti 49 fornleifasvæðum, þar á meðal stöðum á Grænlandi, Alaska, Síberíu, Mongólíu, vesturhluta Kína, Egyptalandi, Súdan, Filippseyjum og Andesfjöllunum. Þar á meðal eru Amunet, Priestess of the Goddess Hathor frá Forn­Egyptalandi (um 2134–1991 f.Kr.), margar múmíur frá Síberíu, þar á meðal Pazyryk menningu Rússlands og frá nokkrum menningarheimum um Forn­Kólumbíu Suður­Ameríku. Forn tattú tól Húðflúr var mest stunduð meðal Austronesian fólk til forna. Það var ein af fyrstu tækninni sem þróuð var af Pre­Austronesians í Taívan og við strendur Suður­Kína fyrir að minnsta kosti 1500 f.Kr., og fyrir „Austronesian“ stækkun til eyjar Indó­Kyrrahafs. Það kann að hafa upphaflega verið tengt höfuðveiðum. Húðflúrhefðir, þar með talið húðflúr í andliti, er að finna meðal allra austrónesískra undirhópa, þar á meðal frumbyggja frá Taívan, eyjarbúa í Suðaustur­ Asíu, Míkrónesíu, Pólýnesíu og Malagasíu. Að mestu leyti notuðu Austronesíumenn einkennandi húðflúrpunkta með hornréttum hálsum sem voru slegnir á handfangið með lengd af viði (kallaður „hamur“) til að reka húðflúrpunktana inn í húðina. Handfangið og hamarinn voru yfir­ leitt úr viði en oddarnir, ýmist stakir, hópaðir eða raðaðir til að mynda greiða, voru úr sítrusþyrn­ um, fiskbeini, beini, tönnum eða skjaldböku­ og ostruskeljum. Fornar húðflúrhefðir hafa einnig verið skráðar meðal Papúa og Melanesíubúa, með notkun þeirra á áberandi húðgötum. Sumar fornleifar með þessum verkfærum eru tengdar austrónesískum fólksflutningum til Papúa Nýju

Gíneu og Melanesíu. En aðrar síður eru eldri en Austrónesíska stækkunin, dagsett til um 1650 til 2000 f.Kr., sem bendir til þess að það hafi verið fyrirliggjandi húðflúrhefð á svæðinu Nútíma húðflúr Húðflúr er form líkamsbreytinga sem gerð er með því að setja blek, eða litarefni, með nálum. ýmist óafmáanlegt eða tímabundið, sem er sett í húðlag húðarinnar til að mynda hönnun. Listin að búa til húðflúr er þekkt sem að húðflúra. Húðflúr samanstendur af þremur víðfeðmum flokkum: eingöngu skreytingar (engan sérstaka merkingu), táknræn (með ákveðna merkingu sem snýr að þeim sem ber), og myndræn (mynd af tiltekinni manneskju eða hlut). Að auki er hægt að nota húðflúr til auðkenningar eins og eyrnaflúr á búfé sem vörumerki.


Það eru til allt að 50 mismunandi stílar af húð­ flúrum í dag en þó er oftast talið um 8 sem eru lang vinsælastir. 1. „American traditional“ er oftast tengdur við þykkar línur og þunga liti. Þannig húðflúr endist oftast lengur en hefðbundið húðflúr. 2. „Realism“ eru mjög vandvirk og mjög flott ef gerð rétt. Þá eru teknar ljósmyndir og þeim breytt í algjöra list. 3. „Watercolor“ er mjög nýleg húðflúrstefna sem krefst mikilla hæfileika þar sem reynt er að ná áhrifum pappírs á húð. 4. „Tribal“ er einn af helstu húðflúrstílum heims í dag og má rekja hann til ættbálka langt aftur í tímann. Hann rinkennist af flóknum munstrum og þungum svörtum lit. 5. „New school“ tekið frá American traditional notar bjarta neon liti og eru notaðar teikni­ myndir og skopmyndir í hann. 6. „Neo traditional“ er ekki ósvipaður og New school þar sem sama notaðar eru litapaletur og sterkar útlínur til að skapa fjölbreytta list. 7. „Japanese“ er japanskur stíll, með mjög sérkennilegt útlit sem má rekja til Edo tíma­ bilsins og litapaletan er mjög appelsínu gul og blá. 8. „Blackwork“ er örugglega vinsælasta gerð húðflúrs í dag, það eina sem notar í raun bara svart og hvít í það.

Lundinn kynnir hágæða greipaldin safa! 100% safi og enginn viðbættur sykur.


90

EMBLA


Margrét Lilja Ég heiti Margrét Lilja og er 24 ára, fædd og uppalin á Sauðárkróki. Ég útskrifaðist með stúdentspróf árið 2016 af félagsfræði- og hagfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Eftir útskrift þaðan ferðaðist ég mikið, fór t.d. í tvær heimsreisur – eina tveggja mánaða reisu og eina átta mánaða reisu. Ég var því búin að hafa nógan tíma til að hugsa hvað mig langaði að læra, en ekkert nám var að heilla mig, þar til ég sá grafíska miðlun hjá Tækniskólanum. Það sem heillaði mig við námið var að ég sá hvað það væri skapandi og fjölbreytt og byði upp á marga möguleika eftir námið. Ég sá einnig að í náminu myndu nokkur af mínum helstu áhugamálum koma saman. Mín helstu áhugamál eru ferðalög, ljósmyndun, hönnun og list, samvera með fjölskyldu og vinum, köfun, hreyfing og útivist.

Takk fyrir og njótið!

EMBLA

91


Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Kúba – eins og að ferðast aftur í tímann Að ferðast til Kúbu er smá eins og að ferðast aftur í tímann. Þar er að finna mikið af gömlum fallegum byggingum og maður sér nánast bara eldgamla fornbíla á götunum. Það er ekki annað hægt en að verða strax ástfangin af landinu, menningin er svo lifandi, litrík og skemmtileg og fólkið er svo hlýlegt og allir vilja hjálpa. Internet er takmarkað í Kúbu og ekki allir sem hafa efni á þeim munaði. Fólk er ekki með internet heima hjá sér og til þess að nota internet þarf að kaupa sérstök inneignarkort með interneti sem dugar aðeins í takmarkaðan tíma og nota þau svo á sér til gerðum „símasvæðum“, en það eru garðar sem eru merktir sem símasvæði og aðeins þar næst netsamband með inneignarkortunum. Vegna þessa þá upplifði maður það að sjá hvað heimamenn lifa meira í núinu. Þau hafa ekki jafn mikið af afþreyingu í símunum og tölvunum eins og tíðkast mikið í vesturlöndunum. Fólk sat í ruggustólum fyrir utan heimili sín og fylgdist með mannlífinu, eldri karlar sátu úti að spila Dominoes, unglingarnir hópuðust saman á götuhornum og spiluðu tónlist úr „boombox“ sem þau héldu upp á öxlinni á sér, krakkarnir höfðu engan leikvöll eða fótboltavöll og voru bara að leika sér með bolta á

92

EMBLA

malarvegunum. Þó að sumir hefðu kannski ekki mikið á milli handanna þá sá maður hvað þau voru hamingjusöm og nægjusöm. Á ferðalögum mínum hef ég alltaf verið svolítið fiðrildi og plana vanalega ekkert mikið fram í tímann, ég kaupi t.d. alltaf bara miðann út og sé svo til hvenær ég kem heim, ég er aldrei búin að plana alla ferðina mína og veit sjaldnast hvaða áfangastaður eða land sé næst. Þessi ferðamáti reyndist mér frekar erfiður í Kúbu þar sem maður þarf að vera frekar undirbúinn þegar maður kemur þangað… sem ég var ekki. En það endaði þó allt vel og gerði góða ferðasögu.

Karlar að spila Dominoes, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja


Það sem ég hefði viljað vita áður en ég fór til Kúbu innifelur aðallega það að vera búin að gera ráð fyrir að vera ekki með neitt internet þegar maður lendir og því vera búin að undirbúa mig í samræmi við það.

mikið planað hvað maður ætlar að skoða heldur bara rölta um og leyfa ferðinni að ráða, maður gæti eytt endalausu dögunum í að rölta um götur borgarinnar án þess að leiðast.

En hérna koma nokkur góð ráð… •

•

•

• •

•

Hlaða niður „offline“ korti af landinu. Það er bæði hægt í Google Maps en það er líka til app sem heitir Maps.me og þar er einnig hægt að hlaða niður „offline“ korti. Vera búinn að vista inn á „offline“ kortið heimilisfangið á stöðunum sem maður er að gista á. Vera með útprentun eða skjáskot af öllum bókunum og gögnum sem maður gæti þurft að hafa. Vera búinn að bóka gistingu fyrstu næturnar (ég var sem betur fer búin að því). Vera búinn að kynna sér hvar og hvernig maður finnur internet inneignarkort og hvernig þau virka. Vera búinn að kynna sér hvað það er sem maður vill skoða á stöðunum sem maður mun fara á og skrifa það niður svo maður þurfi ekki að eyða internetkortinu í það.

Það sem ég gerði, og mæli mikið með að gera er að gista heima hjá heimafólki í svo kölluðu „casa particular“. Það gerir upplifunina svo einstaka og maður kynnist menningu landsins mun betur.

Vinales, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Vinales Lítið sveitaþorp í vesturhluta Kúbu. Þar er lítið um bílaumferð en maður sér mjög mikið af fólki á hestbaki og mikið um að fólk noti kýr með kerrur í eftirdragi til að ferja hluti á milli. Í Kúbu er mikið um tóbaks- og vindlagerð og er sérstaklega mikið um það í Vinales, en ég mæli með að fara á „tobacco farm“ og skoða hvernig ferlið fer fram. Einnig rækta þau mikið kaffi og mér fannst einnig mjög fróðlegt að sjá hvernig það fór fram. Ég mæli einnig með að fara í hestaferð um Vinales Valley, ótrúlega skemmtileg upplifun og falleg náttúra. Trinidad Litríkur og fallegur lítill bær í vesturhluta Kúbu. Ég mæli með að rölta um bæinn og skoða öll litríku húsin, skoða kirkjuna og fara upp í turninn – þar er ótrúlega fallegt 360° útsýni yfir allan bæinn. Í nálægð við bæinn er svo að finna eina af fallegustu ströndunum á suðurströnd Kúbu, en hún heitir Playa Ancon. Einnig er mikið af fallegri náttúru í kringum Trinidad.

Havana, Kúba

Ljósm.: Margrét Lilja

Staðir sem ég mæli með að skoða á Kúbu: Havana Höfuðborg Kúbu, ótrúlega litrík og lifandi borg. Í Havana mæli ég með að hafa ekkert eitthvað of

Ég var í tvær vikur á Kúbu, en ég mæli með að vera a.m.k. í tíu daga. Kúba er magnað land sem hefur upp á svo mikið að bjóða. Texti: Margrét Lilja Stefánsdóttir

EMBLA

93


VIÐTAL

Hvað fannst þér mest krefjandi við námið? Í minningunni er það útskriftarsýningin og þá undirbúningurinn að henni, hún var krefjandi en líka rosalega skemmtileg!

Hvað heitir þú? Hugrún Rúnarsdóttir.

Hugrún Rúnarsdóttir

Hvað ert þú gömul? 27 ára á þessu ári. Hvar og hvaða nám stundaðir þú? Fyrst kláraði ég náttúrufræðibraut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, síðan lá leið mín í grafíska miðlun sem ég kláraði, ég sleppti þó sveinsprófinu og fór beint í Vefskólann þar sem ég útskrifaðist úr vefþróun. Mælir þú með náminu sem þú ert búin að læra? Já, 100%. Ég er mjög ánægð að hafa klárað grafíska miðlun og farið síðan í Vefskólann. Það sem ég lærði í grafískri miðlun kom sér síðan mjög vel í Vefskólanum. Bæði hönnunar grunnurinn, forritin sem við notuðum og að vera búin að læra grunninn í HTML og CSS. Hvernig finnst þér þessi tvö nám spila saman? Mjög vel, grafísk miðlun er frábær grunnur fyrir Vefskólann og sem stafrænn hönnuður hefur það oft komið sér vel að hafa lært prenthönnun líka. Hvað fannst þér skemmtilegast við námið? Hvað það er stór hlutur af því verklegur og síðan samfélagið sem myndast. Það er æðislegt að vera inn í bekk sem verður svona samheldinn.

94

EMBLA

Hvaða möguleika fannst þér námið opna fyrir þér? Grafísk miðlun opnaði fyrir mér möguleikana á að fara t.d. í Listaháskólann sem var upprunalega planið mitt með að fara í grafíska miðlun. En síðan frétti ég af Vefskólanum og lærði smá í forritun í náminu mínu í grafískri miðlun og þá fannst mér það lang mest spennandi. En annars hefði ég auðvitað líka getað farið að vinna sem prentsmiður og ef ég hefði gert það hefði ég að öllum líkindum reynt að fá vinnu við að setja upp tímarit eða komast inn á auglýsingastofu. Hvað varðar Vefskólann þá opnaði það fyrir mér hugbúnaðargeirann og vefstofur. Ásamt því að geta farið í áframhaldandi nám í hönnun, forritun eða verkefnastjórnun svo eitthvað sé nefnt. Hvar starfar þú og við hvað? Í dag starfa ég hjá Aranja sem er hugbúnaðarhús. Þar starfa ég sem Digital Designer, eða stafrænn hönnuður. Hver eru þín helstu verkefni í vinnunni? Að hanna og skipuleggja uppsetningu á öppum, vefsíðum og hugbúnaði. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Að fá að hanna flotta vöru með skemmtilegu „contenti“ í góðu flæði, það er lang skemmtilegasta sem ég geri. Hvað finnst þér mest krefjandi við vinnuna þína? Það getur verið mjög krefjandi að þurfa að vera „creative“ alla daga alltaf. Það getur farið rosalega eftir hvernig dagsformið manns er, hvernig það gengur. Það truflar mig stundum, að geta ekki „búið til“ endalaust.


Hvað er stærsta verkefni sem þú hefur unnið að í starfi þínu? Hjá Aranja væri það Hopp appið! Sem er alltaf í stöðugri þróun. Ertu með einhver ráð fyrir þá sem stefna á sama nám og þú lærðir? Fyrir utan auðvitað að standa sig vel myndi ég segja, tengslanet. Það hefur komið mér rosalega langt og í ótrúlega skemmtilegar vinnur og verkefni. Kynnast fólkinu í geiranum og mæta á viðburði. Það mun koma sér vel í framtíðinni.

Vefskólinn Vefskólinn býður upp á nám í vefþróun með áherslu á viðmótsforritun. Námsleiðin er sérsniðin í þróun, viðmóti, notendaupplifun og forritun. Námsleiðin er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er 2 ára nám á fagháskólastigi. Nám í vefþróun er eina námið hér á landi sem sameinar kennslu í vefhönnun, viðmóti og vefforritun. Sérstaða námsins felst í fámennum nemendahópi, góðu aðgengi að kennurum og námsumhverfi sem stuðlar að samheldni og samvinnu nemenda. Nú er ný búið er að endurskrifa námskrána í vefþróun yfir í verkefnastýrt nám. Við það var námið stytt niður í 3 annir (90 fein) með möguleika á að ljúka því á einu ári. Þannig myndu nemendur í fullu námi taka haustönn, vorönn og svo sumarönn þar sem unnið væri að lokaverkefni í samvinnu við fyrirtæki undir leiðsögn kennara. Það eru verkefnin sem ráða námsframvindunni. Nemandi getur þannig stjórnað á hvaða hraða hann fer í gegnum námið með verkefnunum.

VIÐ OPNUM GLÆSILEGA NÝJA VERSLUN

20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM DAGANA 10.–15. MAÍ

Sótt af www.tskoli.is

OPIÐ FRÁ KL. 10–18 ALLA DAGA Faxafen 11 | 108 Reykjavík | sími 599 8888 | huginn@huginnverslun.is EMBLA 95


96

EMBLA


Um Mig Ég heiti Ragna Fríða en er kölluð Fríða og er fædd 28. janúar árið 2000. Fyrstu átta ár æfi minnar bjó ég á litlum sveitabæ í Mýrdalshrepp. Árið 2008 flutti ég á Eyrabakka sem ég bjó þar til að ég byrjaði í Tækniskólanum. Ég hóf nám við Tækniskólann árið 2020 eftir árs námspásu. Ég útskrifaðist sem stúdent á listalínu úr Fjölbrautaskóla Suðurlands vorið 2019. Þar kynntist ég grafískri miðlun fyrst, ég vann hönnunarkeppni í þeim áfanga þar sem lagt var fyrir okkur að hanna merkingar á rusla tunnur skólans.

gaman af stjörnuspeki og galdrafræði, ég hef safnað allskonar kristölum og er oftast með nokkra í vasanum. Þó ég veit ekki mikið um tísku hef ég mjög gaman af henni! Ég reyni að vera töff klædd flesta daga. Mér finnst gaman að versla notuð föt á nytjamörkuðum og að reyna púsla þeim saman. Eins og áður minnst á finnst mér gaman að föndra, ég hef „föndrað“ mín eigin föt, prjónað, heklað eða saumað.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á list. Mér finnst gaman að teikna, mála og flest föndur sem er lagt fyrir mig. Auk þess finnst mér mjög gaman að horfa á þætti og hlusta á tónlist á tungumálum sem ég kann ekki. Ég hef líka

EMBLA

97


Indie tölvuleikir Indie tölvuleikir eru tölvuleikir sem eru framleiddir af einstaklingum eða litlum hóp af einstaklingum en ekki af stórum fyrirtækjum. Margir svona leikir hafa orðið mjög vinsælir til dæmis Minecraft, Five Nights at Freddy‘s, Undertale, Among Us og margir fleiri.

Minecraft Minecraft er mest seldi töluvleikur allra tíma. Flestir þekkja þennan leik eða hafa spilað hann. Minecraft var búin til af einum manni, Markus Persson, einnig þekktur sem Notch, fyrsta útgáfan af leiknum kom út árið 2009. YouTube stuðlaði að vinsæld Minecraft þar sem margir spiluðu leikinn og hlóðu upp myndböndum sínum á vídeó-veituna. Leikurinn kom út á tímabili þar sem myndbönd á YouTube um tölvuleiki voru mjög vinsæl. Það sem heillar marga við Minecraft er að ekki er ein leið til að spila leikinn. Hver leikmaður getur spilað hann á sína eigin vegu. Vinsælustu leiðir til að spila leikinn eru survival, multi player, creative og hard core. Í survival spilarðu einn og átt að reyna að lifa af. Þú getur

4 98

EMBLA

Embla

byggt hús, barist við skrímsli, siglt um höfin og margt fleira. Ef þú villt ekki spila einn getur þú spilað multiplayer. Margar leiðir eru til að spila multiplayer, þú getur spilað survival, creative eða hardcore en einnig hafa spilendur sett upp ýmis „mini games“. Mini games eru allskonar en fara á móti hefðbundna survival, þú getur spilað allskonar leiki eins og til dæmis lazertag. Í creative færðu aðgengi að öllum hlutum í leiknum og skrímslin ráðast ekki á þig. Flestir nota creative til að byggja. Að lokum er hardcore. Hardcore er í raun alveg eins og survival en ef þú deyrð þá geturu ekki spilað í þeim heimi lengur. Einnig eru skrímslin sterkari og er talsvert erfiðara að spila.


DanTDM EinnYouTuber sem stuðlaði í vinsæld Minecraft var Daniel Robert Middleton, DanTDM. Dan hlóð upp sínu fyrsta Minecraft myndbandi sínu í ágúst 2012. Myndbönd Dans voru einstök þar sem hann bjó til karaktera sem vöru í flest öllum myndböndum hans, þeir voru Dr Tryaurus og Grim. Í dag er Dan með yfir 26 milljón áskrifendur á YouTube rás sinni og með yfir 18 milljarða áhorf samanlagt á ölum myndböndum hans. YouTube rásin hans er með Guinness heimsmetið fyrir flestu áhorf á YouTube rás sem framleiðir Minecraft myndbönd.

DanTDM á Web summit 2014

Ljósm.: Óþekktur

Ráðstefna um kúgun lesbía Dagana 1. og 2. maí verður haldin ráðstefna í Hörpunni af samtökum íslenskra lesbía, Saffó, í samstarfi við samtökin 78 og kvenréttindina félag íslands. Ýmis málefni verða tekin fyrir eins og til dæmis þjófnaður hugtaksins „lesbía“ af klám-

iðnaðinum, „compolsary heterosexuality“ í gangnkynhneigðu samfélagi og margt fleira. Dagrún Jónsdóttir, Guðlaug Björk Pálsdóttir, Margrét Hafsteins og margir fleiri fyrir lesendur koma fram.

Helstu fyrirlesarar

Dagrún Jónsdóttir Hún

Guðlaug Baldursdóttir Hún

Margrét Hafsteins Hán

Nánari upplýsingar á samfélagsmiðlum okkar


Five Nights at Freddy‘s Five Nights at Freddy‘s er sería af horror tölvuleikjum framleitt af Scott Cawthon. Fyrsti leikurinn kom út árið 2014, Scott byrjaði á því að gera leiki fyrir börn en eftir að fá kvartanir um að karakterarnir hans væru hrollvekjandi datt honum í hug að gera horror leik. Fyrsti Five Nights at Freddys, eða FNAF, leikurinn gerist á pizza stað þar sem þú leikur öryggisvörð sem er að fylgjast með búllunni. Það sem gerir leikinn að horror leik er að andsetin vélmenni ganga um pizzastaðinn á nóttunni sem eru að reyna að drepa þig. FNAF leikurinn varð vinsæll upprunalega fyrir „jump scares“. Mikið af youtube og twtich streimerum spiluðu leikina sem gerði þá enn vinsælli.

Hafþór Ingi, langtíma aðdáandi FNAF, spilar FNAF: Secret Location LJÓSM.: R. Fríða Sævars.

Nú hafa komið út tíu FNAF leikir og eru meira en 130 karakterar í öllum leikjunum. Aðal vélmennin í leikjunum eru Freddy, Bonnie, Chika og Foxy.

Karakterarnir

Hve mörgum leikjum

Hvaða leik hann

hann kemur fram

kom fyrst fram í

Freddy

10

FNAF

Bonnie

8

FNAF

Chika

8

FNAF

Foxy

8

FNAF

Golden Freddy

7

FNAF

Circus baby

5

FNAF: Sister Location

Markiplier Mark Edward Fischbach er einn af þeim vinsælustu „gaming“ YouTuberum. Mark varð vinsæll fyrir að spila ýmsa tölvuleiki á YouTube, þar af Five Nights at Freddy‘s. FNAF myndböndin hans eru nokkur af hans vinsælustu, fyrsta myndbandið hans er með meiri en 102 milljón áhorf. Mark er ein stærsta ástæðan fyrir vinsæld FNAF leikjanna þar sem margir áhorfendur hans fundu leikina í gegn um myndbönd hans. Vegna vinsæld hans lék hann í sýnishorni af tíunda FNAF leiknum, Five Nights at Freddy‘s: Special Delivery.

Markiplier

100

EMBLA

Ljósm.: Gage Skidmore


Undertale Undertale er 2D leikur sem kom út fyrir Windows og OS X árið 2015. Leikurinn tekur innblástur af ýmsum leikjum svo sem Brandsih, Super Mario og Mother. Einnig bjó höfundur leiksins, Toby Fox, til „maps“ fyrir Mother áður en hann fór að framleiða sína eigin leiki. Leikurinn fylgir barni sem dettur í heim undir jörðinni þar sem ýmis skrímsli búa. Barnið þarf að reyna að komast aftur heim og leikmaðurinn stýrir því. Það eru margar leiðir til að vinna leiki til dæmis með því að drepa öll skrímslin, oft talað um sem „genoside route“, en einnig getur maður unnið leikinn með því að sleppa þeim, oft talað um sem „passive“ eða „neutral route“.

tónlist fyrir ýmis verk svo sem, vef-teiknimyndasögunni homestuck og tölvuleiknum earthbound. Tónlist á mikinn hlut í leiknum. Allir aðal karakterarnir eru með sitt eigin lag og hver „bardagi“ er einnig með sitt eigið lag. Nöfn margra karakterana í undertale eru gerð sem grín, til dæmis er einn af fyrstu karakerunum sem þú hittir í leiknum Toriel sem kennir þér hvernig á að spila leikinn eða gefur þér „tutoriel“. Þrír karkaterar í leiknum eru nefndir eftir fontum, Sans, Papyrus og W.D. Gaster. Sans og Papyrus eru nefndir eftir comic sans og papyrus og er allt sem þeir segja í leiknum skrifað í þeim fontum. W.D. Gaster er nefndur eftir   (wing dings), þó kemur hann ekki fram í leiknum nema ef þú gramsar í skjölum leiksins. Einnig er karakterinn Alphys talinn af sumum spilurum leiksins vera byggður á fontinum Alpha en þó er það sem hann segir ekki í þeim fonti.

Tónlist og fontar í undertale Áður en Toby Fox bjó til Undertale samdi hann

Karakterar úr Undertale, teiknað af Línu Rós Hjaltested

Ljósm.: R. Fríða Sævars.

EMBLA

101


Among us spilað á farsíma

Among Us

Among us er tölvuleikur sem líkist spilinu varúlfur eða mafía. 4-14 leikmenn spila við hvorn annann, 1-3 leikmenn eru valdir sem „Imposter“ allir aðrir eru „Crewmates“. Crewmates leisa verkefni í geimskipi meðan þeir reyna að forðast imposter-ana. Imposter á að drepa crewmates án þess að neinn sjái. Ef imposter nær öllum crewmates án þess að neinn sjái vinnur hann en ef crewmates ná honum vinna crewmates. Leikurinn kom út árið 2018 en varð ekki mjög vinsæll fyrr en um mitt árið 2020. Leikurinn varð mjög vinsæll bæði vegna þess að lang flestir voru fastir heima vegna covid-19 heimsfaraldursins og margir twitch streimarar spiluðu leikinn. Í nóvember 2020 voru um 500 miljón spilendur samkvæmt SuperData Research. Lang Flestir, um 97% spilarar, spila fríu útgáfuna af leiknum sem færst í google play og Appstore en einnig er til útgáfa sem er seld fyrir PC tölvur.

102

EMBLA

Ljósm.: R. Fríða Sævars.

Leikurinn eitt af mest seldu leikjum á Steam árið 2020, og komst inn á „The Year‘s Top 100“ lista. Í maí 2021 gáfu Innersloth, framleiðendur leiksins, leikinn í eina viku í Epic Games vefversluninni, þá viku voru yfir 15 millíjón eintök sótt. Í vinsældar bylgju leiksins var leikurinn spilaður af fólki á öllum aldri, en ef þú spilar leikinn núna eru spilendur aðarlega börn. Þó leikurinn hafi verið mjög vinsæll árið 2020 entist vinsæld hans ekki mjög lengi, allavegana að meðan fullorðinnna spilenda. Í dag þykir mörgum leikurinn grín. En þó lifir hann áfram í net heimi. Vegna vinsæld leiksins hefur hann verið minnst á hann í ýmis leikjum, bíómyndum og fleiru. Innersloth með k-popp hljómsveitinni BTS og gáfu út styttur af karakterum leiksins í stíl við hvern meðlim sveitarinnar. Einnig í sýnishorni af bíómyndinni Snoopy in Space er karakternum Woodstock hent úr geimskipi í sama stíl og er gert í leiknum.


K-pop K-popp er tónlistartegund sem á bakgrunn sinn í Suður Kóreu. Seinustu ár hefur k-popp orðið mjög vinsælt alþjóðlega. BTS, Blackpink, BIGBANG, Wonder Girls og margir fleiri eru ástæðan fyrir vinsæld k-popp. Seo Taiji and Boys er oft talin vera k-popp hjómsveitin. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið 1992 og hættu saman árið 1996. Meðlimirnir voru Seo Taiji, Yang Hyun-suk og Lee Juno. Stærstu grúbburnar i hverri kynslóð Oft er talað um að k-popp eigi sér kynslóðir. Í fyrstu kynslóðinni, 1992–2002, var k-popp að verða til, með innblæstri frá bandarískri og japanskri tónlist. Vinsælustu tólistarmenn kynslóðarinnar voru Seo Taiji and Boys, H.O.T, god, Sechskies, Shinhwa, og BoA Önnur kynslóðin kom í lok kreppu í Kóreu, 2003– 2010, k-popp var séð sem fullkomin leið til að auglýsa kóreu. BIGBANG, TVXQ, Super Junior,

Girls‘ Generation, Wonder Girls, KARA, 2ne1, SHINee, INFANITE og fleiri voru andlit annara kynslóð k-popp. Þriðja kynslóðin er þegar k-popp varð vinsælla í Ameríku og Evrópu, 2011–2017, með samfélagsmiðlum var mikið auðveldara fyrir k-popp grúppur í þessari kynslóð að fá fylgjendur. Annað sem um þriðju kynslóð k-popp gerðu þau vinsælt að hafa sinn eigin heim í kring um hópinn. Mörg tónlistarmyndbönd fylgja sögulínu og jafnvel eru hljómsveitirnar með krafta, til dæmis EXO. Vinsælustu artistar frá þessari kynslóð eru BTS, BLACKPINK, EXO, Twice, Red Velvet, Got7, iKON og fleiri. Nýjasta kynslóðin í k-popp er sú fjórða, 2018-núverandi. Í dag er k-popp meira en bara tónlistartegund þar sem flestar hljómsveitir eru með sína eigin fagurfræði og heim í kring um tónlistina. Stærstu hljómsveitarinnar eru ITZY, Stray Kids, Æspa, Tomorrow X Together, LOONA og Fleiri.

BoA BoA var aðeins 11 ára þegar hún vann áheyrnarprufu hjá SM Entertainment sem er fyrirtækið hún vinnur enn fyrir í dag. Aðeins 13 ára gaf hún út sína fyrstu plötu, ID; Pease B. Í dag hefur hún gefið út tuttugu plötur, tíu á kóresku, níu á japönsku og eitt á ensku. Hún hefur einnig tekið þátt í allskonar verkefnum með öðrum k-popp listamönnum. Hún hefur sungið á lögum með TVXQ, Shindong, U-Kwon og fleirum. Nýlega var henni bætt við í „supergroup“ með öðrum konum frá SM. Super-hópurinn heitir Got the Beat og er með meðlimir frá Girls Generation, Red Velvet, Aespa og svo auðvitað BoA. BoA er mjög vinsæl í Kóreu og alþjóðlega og hefur oft verið kölluð „The Queen of K-pop“.

BoA singur í San Francisco pride, 2009 Ljósm.: Charlie Nguyen

EMBLA

103


The big three Eitt af því sem gerir k-popp einstakt er að lang flestir k-popp hópar eru myndaðir af fyrirtækjum. Listamennirnir sækja um með því að mæta í áheyrnarprufu og eyða svo nærstu árum í að æfa sig til að komast í k-popp grúbbu. Oft er talað um the big three, sem eru þrjú stærstu k-popp fyrirtæki sem ruddu brautina fyrir k-popp í dag. Þessi fyrirtæki eru SM Entertainment, YG Entertainment og JYP Entertainment.

SM Entertainment SM var stofnað árið 1989 af Lee Soo-man. Margir af stærstu k-popp listamönnum hafa komið frá SM, TVXQ, Super Juinior, SHINee, Girls Generation, EXO, Red Velvet, NCT, Æspa og fleiri. SM var fyrsta stóra k-popp fyrirtækið og gerði æfingar ferlið áður en listarmennirnir taka sínu fyrstu skref sem hljómsveit eða söngvari vinsælt. Seinustu ár hefur SM breytt frá hefðbundnu k-popp, boy- eða girlband lookinu. Listamenn eins og NCT og Æspa eru með sérstök „consept“. NCT er með fjórar undir grúbbur sem þeir vinna aðallega með, NCT Dream eru yngstu meðlimir NCT og gera meira krúttleg lög, NCT 127 gerir aðarlega EDM tónlist, NCT U gerir allskonar og WayV er kínverska útgáfan af NCT. NCT Dream, NCT 127 og WayV eru alltaf með sömu meðlimina en NCT U skiptir um meðlimi með hverju lagi. Einnig hafa þeir gert undir grúbbur sem endast bara á einni plötu, NCT 2018 og NCT 2020. Nýlegat var SM að leita af nýjum meðlimum fyrir NCT Hollywood. Alls eru eru 23 meðlimir í NCT.

10 EMBLA

Red Velvet eru einnig frekar hefðbundin stelpuhljómsveit, allir meðlimirnir eru mennskir og það eru alltaf sömu fimm konurnar og þær gera krúttleg, háklassa, skrítin og girl crush consept. Það sem gerir stelpusveitina einstaka er að allar plötur þeirra falla undir annað hvort „red“ eða „velvet“, hver er munurinn? Red lög eru krúttleg, tónlistar myndbandið er oftast í pastel litum og stelpurnar eru klæddar litum. Lögin Happiness, Ice Cream og Dumb Dumb falla undir red. Velvet lögin eru með meiri fullorðins þemu, myndböndin falla í dökka lita palletu og stelpurnar eru klæddar í dökkum litum oftast. Psycho, Be Natrual og Bad Boy falla undir Velvet. Einnig hafa þær framleit nokkur lög sem falla undir bæði Red og Velvet. Rookie og Russian Rulette eru bæði mjög krúttleg lög og lita palletur tónlistar myndbandanna eru pastel en texti laganna tækla alvarlega málefni.

Embla

Auglýsing af annari japanskri plötu Red Velvet

104

Æspa er að mestu leiti frekar hefðbundin stelpuhljómsveit en hver meðlimur er einnig með teiknaða stelpu sem sitt tákn. Þær teiknuðu eru líka meðlimir sjálfar en þó taka þær ekki ekki þátt í hverju lagi.

Ljósm.: Hiu Yan Chelsia Choi


ÁTTU GAMLA BÓK BLACKPINK á rauða deriglinum fyrir Golden Disk Awards, 2019 Ljósm.: Newsenstar1

YG Entertainment

YG Entertinment var stofnað árið 1996 af Yang Hyun-suk, fyrrum meðlim af Seo Taiji and Boys. Lengi vel voru artistarnir undir YG þekktir fyrir að hafa YG stíl. Tónlistinn þeirra er með mikinn innblástur frá hipp hopp senunni í bandaríkjunnum, rapp og dans eru mikilvægir partar af list þessara söngvara. BIGBANG, iKON, 2NE1, 1TYM og Epik High eru góð dæmi um lista menn sem falla undir YG sílinn.

Átt þú bók sem hefur séð betri daga? Eða bækling sem þarf að endast lengur? Jafnvel kort sem þér langar að varðveita? Hjá bókbandsstofunni Örkin tökum við gömul bréfsefni og bækur og lögum. Við getum lagað bæði harðspjalda bækur og kiljur, jafn sem blöðunga, bréfsefni, vegakort og nánast öll bréfsefni sem þér dettur í hug!

Akdong Musician, AKMU, falla ekki undir þennan stíl þrátt fyrir að vera frá YG Entertainment. Tónlist þeirra fellur oftast undir popp eða EDM. Einnig taka þau sig ekki of alvarlega og gefa út stundum grín tónlist. Winner er önnur grúbba sem fellur ekki inn í hefðbundna YG stílinn. Þó þeir gera stundum hipp hopp tónlist voru þeir auglýstir sem háklassa strákahljómsveit. Þeir hafa einnig prufað ýmsar tónlistartegundir eins og blús, sagnadans, jaðarrokk og diskó. Eins og AKMU skrifa Winner sína eigin tónlist og hafa frelsi yfir hvað þeir gefa út.

Dalvegur 2, 201 Kópavogur bokbandsstofan@orkin.is |441 4141 | orkin.is

@orkin

Embla

11


106

EMBLA


Kynning Heil og sæl. Sandra Ósk heiti ég og er útskriftar nemandi í grafískri miðlun. Ég bý í Skipholtinu með kærastanum mínum og hundinum okkar henni Kleinu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og list. Og þegar ég var í námi út í Danmörku árið 2019 fékk ég mikinn áhuga á að hanna grafík utan um umbúðir og allskyns prentgripi. Og út frá því fann ég þetta nám hérna á Íslandi sem heillaði mig. Þetta nám hefur kennt mér margt sem ég átti eftir ólært og fer ég út í heiminn með fleiri verkfæri í töskunni og sem betri listakona. Eins og þið sjáið kannski þegar þið byrjið að glugga í blaðið þá hef ég mikinn áhuga á plöntum og náttúrunni, og þess vegna er það aðalumfjöllunarefnið í blaðinu mínu. Njótið!


Inniplöntur Það eru margvíslega ástæður fyrir því að fá sér inniplöntu. Inniplöntur geta t.d. bætt andlegan líðan, lýst upp rými og aukið loftgæði.

Við könnumst mörg við það að kaupa plöntu til þess að lífga upp á heimilið og síðan nokkrum vikum seinna er hún dáin. Það geta verið margar ástæður fyrir því að planta deyr skyndilega en lang oftast er ástæðan að plantan fékk ekki réttu umhirðuna. Fólk áttar sig ekki oft á því að ekki þurfa allar plöntur sömu umhirðu. Sumar plöntur eru t.d. harðgerðari en aðrar og þurfa ekki mikla athygli á meðan aðrar þurfa mikla umhugsun og ást. Hvernig á að halda plöntu á lífi? Allar plöntur þurfa dagsbirtu og vatn til þess að lifa af. Ef planta fær of lítið eða of mikið af hvoru tveggja þá deyr hún. Margir eiga það til að gleyma að vökva plönturnar sínar. Þá er mjög gott að velja einn dag í vikunni þar sem hægt er að hafa ,,plöntudag‘‘. Segjum

108

EMBLA

að það sé sunnudagur. Á hverjum sunnudegi ætla ég að athuga með plöntuna mína, hvort að hún þurfi vatn eða annað. Sumir eiga það til að gefa plöntunum sínum of mikla ást og drekkja þeim, án þess að átta sig á því. Þá er mjög sniðugt að kaupa rakamælir. Rakamæli stingur maður í moldina sem mælir þá hvort að plantan þurfi vatn eða ekki. Hversu oft á ég að vökva plöntuna mína? Ekki hafa allar plöntu sömu umhirðuna. Til þess að vita hvernig umhirðu plantan þarf er mikilvægt að fræðast aðeins um plöntuna. Það er hægt með því að lesa um plöntuna í plöntubókum eða horfa á myndbönd um hana á netinu. Oft er gott að skoða frá hvaða landi plantan er upprunalega. Plöntur sem t.d. koma upprunalega frá röku og heitu landsvæði munu þrífast best í röku og heitu umhverfi. Plöntur sem koma frá sólríku og þurru landsvæði munu þrífast best í þurru og sólríku umhverfi (þessar plöntur myndu t.d. þola það að vera á suðurglugga á Íslandi)


Íslandi er með mjög þurrt loft miðað við önnur lönd þar sem plöntur vaxa við hvert götuhorn. Og vegna þess þrífast sumar plöntur alls ekki vel við íslenskar aðstæður.

PLANTA

Ef að planta þarf mikinn raka þá er hægt að beita hinum ýmsum aðferðum til þess að auka rakan í kringum hana.

VÖKVUN

BIRTA

Peningaplanta Rifblaðka Friðarlilja Kaktus Gúmmíplanta Þykkblöðungur Burkni Kólus

AFREK KVENNA Í HÖRPU 1.–2. MAÍ 2022

VILT ÞÚ FRÆÐAST UM MAGNAÐAR KONUR? SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR INN Á AFREKKVENNA.IS

EMBLA

109


Ef þú hefur aldrei átt plöntu og langar í fallega plöntu til þess að lífga upp á heimilið, þá gæti hentað þér að fá plöntu sem er harðgerð og þolir að þorna vel á milli vökvunar eins og t.d. sómakólfur, þykkblöðungur eða kaktus. Þessar plöntur eiga það sameiginlegt að vera upprunalega frá mjög þurru svæði. Plöntur sem þola þessa umhirðu eru oft frá austur Afríku. Það sem skal varast með þessar plöntur er að gefa þeim of mikið vatn. Ef þú hefur áhuga á plöntum en ert algjör byrjandi þá myndi henta þér að fá plöntu sem þarf að vökva sirka einu sinni í viku. Eins og t.d. gúmmíplöntu, mánagull og peningablóm. Ef þú hefur mjög mikinn áhuga á plöntum og þig langar í plöntu sem mun vera áskorun fyrir þig, þá ertu heppinn. Því oft eru það mest spennandi og litameiri plönturnar sem þurfa aðeins meiri ást og athygli en aðrar. Þessar plöntur væru t.d. begóníur, burknar og tígurskrúð. Hvenær á ég að umpotta? Umpottun nefnist það þegar plantan er færð í nýjan pott með nýrri mold. Oft vegna þess að plantan sjálf er orðin of stór fyrir pottinn sem hún er í og rætur eru byrjaðar að vaxa út úr pottinum. Umpottunartímabilið á Íslandi er frá miðjum apríl til byrjun ágúst, þó það megi umpotta allan ársins hring. Þá er mælt gegn því vegna þess að plöntur geta fengið sjokk þegar þeim er umpottað að vetri til vegna þess að margar plöntur taka sér

110

EMBLA

hvíldartímabil á veturna, þar sem þær vaxa lítið sem ekkert. Gæta þarf þó að kynna sér plöntuna áður en er umpottað því sumar plöntur kjósa frekar að hafa svolítið þröngt um sig og líður hreinlega betur í litlum pottum. Mun plantan mín vaxa endalaust? Ef þú ert hrædd/ur um að plönturnar þínar munu vaxa og vaxa og yfirtaka heimilið, þá geturðu andað léttar. Sumar plöntur vaxa hratt en þá er ekkert mál að klippa af þeim. Plönturnar munu ekki deyja við það, ef eitthvað er það gott fyrir plöntur að fá smá klippingu af og til. Þegar klippt er af plöntum er hægt að gefa afklippur til vina og vandamanna sem græðlinga sem einn daginn verða að stórri plöntu. En ef maður nennir ekki að standa í því er bara hægt að fá sér plöntu sem vex hægt. Plöntur eru góðar fyrir heimilið, skemmtilegt áhugamál og tengir okkur við náttúruna. Plöntuáhugi hefur alltaf verið til staðar í íslensku samfélaginu en með aukinni tölvu tækni í gegnum árin hafa skapast skemmtileg samfélög á netinu, eins og t.d. Facebook hópar, þar sem fólk getur talað saman, deilt myndum og fengið ráð. Einnig eru til YouTube rásir sem einblína bara á plöntur. Og síðan er margt skemmtilegt á Instagram sem gaman er að skoða.

Texti: Sandra Ósk Myndir: Freepik

Hvaða plöntu á ég að velja?


Vegan eplakaka 1. Hitið ofninn í 175°c 2. Byrjið á því að hræra saman þurrefnum í stóra skál. 3. Bætið restinni af hráefnunum saman við (fyrir utan sultuna, kanelsykurinn og möndlurnar) og hærið saman í deig án kekkja. Hrærið samt ekki of mikið svo kakan verði ekki þurr. 4. Smyrjið 20 cm form með smjörlíki eða leggið smjörpappír í það. 5. Hellið deiginu í formið og toppið með sultunni.

• • • • • • • • • • • • • • •

2 og ½ dl hveiti 1 dl sykur 1 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi ½ tsk salt 1 tsk malaðar kardimommur 1 tsk vanilludropar 1 dl olía 1 msk eplaedik 2 og ½–3 dl hrein vegan jógúrt ½ dl bourbon viskí ½ krukka epla- og kanilsulta 1–2 epli Kanilsykur Möndluflögur að toppa með

7. Bakið í 25–30 minútur eða þar til pinni kemur hreinn úr kökunni þegar stungið er í hana. 8. Berið fram með vegan vanilluís og njótið. Gott er að láta kökuna kólna en finnst þó gott að bera hana fram örlítið volga.

Uppskrift frá veganistur.is Myndir: Unsplash

6. Skerið eplið í þunnar sneiðar og raðið yfir sultuna. Stráið svo kanilsykri og möndluflögum yfir.

EMBLA

111


Máttur náttúrunnar Rannsóknir hafa sýnt að fá sér göngutúr í náttúrunni dregur verulega úr streitueinkennum. Einnig er hægt að finna margt spennandi í náttúrunni eins og t.d. sveppi, ber og jurtir sem hægt er að nota til matargerðar.

112

Náttúran á andlega líðan

Íslensk náttúra

Þegar við förum út í göngutúr í náttúrunni þá förum við að einbeita okkur frekar að augnablikinu heldur en vandamálum gærdagsins. Líkaminn fer t.d. ósjálfrátt að hlusta frekar á fuglasönginn og finna fyrir kyrrðinni heldur en að hlusta á hugsanir okkar sem eru stundum óstöðvandi að reyna að leysa öll heimsins vandamál. Nú til dags þegar við erum alltaf sitjandi við tölvuna og í símunum er enn þá mikilvægara að draga sig aðeins til hlés, standa upp og fá sér göngutúr. Þó það sé ekki nema stuttur göngutúr, þá náum við aðeins að aftengja okkur við óstöðvandi áreiti frá tölvum og símum. Og oft fáum við góðar hugmyndir þegar við fáum okkur göngutúr því það er eins og hausinn á okkur nær að anda, nær að hugsa skýrar og á auðveldari með að leysa vandamál.

Íslensk náttúra er einstök vegna fegurð sinnar en hún er líka einstök því hér á landi vaxa allskyns jurtir, ber og sveppir. Hjá mörgum Íslendingum er hefð fyrir því að fara á sumrin í tínslu. Margar gera t.d. fjölskyldu ferð úr þessu. Í aldanna rás hafa forfeður okkar nýtt sér jurtir, sveppi og ber sem þrífast í íslenskri náttúru sér til lækninga og heilsubótar. Margar jurtir töldust t.d. hafa lækningaeiginleika og voru notaðar gegn hinu ýmsum kvillum. Líklegt er talið að í fyrstu hafi maðurinn af eðlisávísun tekið að safna jurtunum til átu og smám saman lært að nýta sér þær til lækninga. Þannig hafi fólki lærst hvaða jurtir væru góðar til matar, hverjar nýtanlegar til lækninga og hverjar eitraðar. Í tímans rás hefur svo hver kynslóð á fætur annarri numið og betrumbætt listina að búa til lyf.

EMBLA


Gersemi skógarins Sveppir Á Íslandi er hægt að finna fjölda allan af sveppum. Sumir þeirra eru ætir en aðrir ekki. Sveppir reiða sig á rótarkerfi trjáa í uppvextinum og finnast því gjarnan í skóglendi. Vegna þess að sumir sveppir eru eitraðir er mikilvægt að kynna sér hvaða sveppi má tína áður en lagt er af stað í sveppatínslu. Hægt er að afla sér upplýsinga með því að sækja námskeið eða glugga í sveppabók. Gott er að hafa sveppabók meðferðis þegar lagt er af stað í sveppatínslu til þess að geta auðkennt sveppina. Jurtir Allskyns jurtir er hægt að finna í Íslenskri náttúru. Oft eru þessar jurtir notaðar til heilsubótar og til lækninga. Einnig er vinsælt að nýta jurtirnar til matargerðar og til drykkju. Vinsælar jurtir eru t.d. fjallagrös, hvannir og blágresi. Blóm

Ber Hægt er að finna allskyns ber í skógum landsins. Vinsælustu berin til þess að tína eru bláber, rifsber, krækiber og hrútaber. Margir búa til sultu, saft og hlaup úr berjunum og njóta yfir árið. Einnig er hægt að frysta berin og nota seinna í bakstri eða í drykki.

Texti: Sandra Ósk Myndir: Unsplash

Gaman er að týna blóm á sumrin og setja í vasa fyrir sumarstemninguna. Vinsæl blóm til þess að tína eru t.d. túnfífill, lúpína og baldursbrá. Þó sumir kalla þessi viltu blóm arfa þá munu þau alltaf vera partur af íslensku sumri.

EMBLA

113


114

EMBLA


SIGRÍÐUR LÁRA

Ég heiti Sigríður Lára Stefánsdóttir og er 24 ára gömul, fædd og uppalin á Sauðárkróki. Mín helstu áhugamál eru ferðalög, ljósmyndun, list, hönnun, köfun, útivist og hreyfing. Ég kláraði stúdent í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2016 og vissi ekki hvað mig langaði að læra næst. Ég flutti því til Kosta Ríka eftir sumarið og fór í spænskuskóla og sjálfboðaliðastarf með villtum dýrum. Þaðan fór ég svo í mína fyrstu heimsreisu um Asíu og varð alveg heilluð af ferðalögum. Við tók tímabil þar sem ég til skiptis kom heim til að safna pening og fór í aðra reisu. Á ferðalögum mínum hitti ég stelpu sem starfaði sem grafískur hönnuður og ferðaðist um heiminn á sama tíma. Það veitti mér mikinn innblástur því það hefur alltaf heillað mig að geta starfað hvar sem er í heiminum og að geta sameinað það við áhugamál mín tengd list og hönnun varð til þess að ég ákvað að skrá mig í grafíska miðlun og sé ég alls ekki eftir því.

EMBLA

115


Ljósm.: Ali Nuredini

Florence Institude of Design International Florence Institude of Design International eða FIDI eins og hann er einnig kallaður er alþjóðlegur hönnunarskóli staðsettur í miðborg Flórens í Ítalíu. Þar er hægt að læra grafíska hönnun, innanhúss hönnun, húsgagna hönnun og arkitekt. Í boði er diplómu nám, bachelor nám eða master nám. Einnig er hægt að taka fjögurra vikna sumar­ námskeið í júní ár hvert.

og eru kennslustofurnar settar upp með það í huga að veita innblástur og ýta undir skapandi hugsun. Nemendur finna sér húsnæði sjálfir á meðan náminu stendur en skólinn hjálpar til við það. Mælt er með að vera í miðbæ Flórens upp á að það sé stutt að koma sér í skólann.

Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir

Lögð er mikil áhersla á bæði listræna hönnun sem og tæknilegan frágang. Unnið er á öll helstu forrit sem notuð eru á evrópskum vinnumarkaði.

116

EMBLA

Þar sem skólinn er staðsettur í miðbæ Flórens eru mörg helstu listasöfn borgarinnar ekki langt frá og því er reglulega farið í vettvangsferðir og eru þær hluti af náminu. Kennt er í tveim byggingum stutt frá hvor annarri og er mikill sjarmi yfir þeim. Þær voru byggðar um 1700 og eiga sér sögulegt gildi og var því passað að leyfa húsunum að halda sínu upprunalega útliti þrátt fyrir að vera breytt í skóla. Rýmin eru dæmi um konunglegu Baroque innanhússhönnunina þar sem málverk eru í loftunum og einstaka veggjum

Flórens

Ljósm.: Bence Boros


VIÐTAL Aldís Ósk Unnarsdóttir Hvað heitir þú? Aldís Ósk Unnarsdóttir. Við hvað starfar þú? Ég er að leita mér að hönnunarstarfi á Íslandi. Hvar stundaðir þú nám? Ég fór í árs undirbúnings nám í grafískri hönnun við Florence Design Acedemy á Ítalíu. Síðan fór ég í Florence Institute of Design International (FIDI) og lauk síðan BA gráðu við Univeristy of Chester í hönnun, sem er í samstarfi við FIDI. Mæliru með FIDI? Mér fannst FIDI bjóða upp á fjölbreytta og per­ sónulega kennslu. Þetta er fínt nám fyrir þá sem vilja hefja sinn feril í grafískri hönnun og góður undirbúningur fyrir þá sem ákveða að fara í áframhaldandi háskólanám. Hvað var skemmtilegast við námið? Mér fannst skemmtilegt hvað við fengum að vera sjálfstæð í náminu og að kennararnir voru opnir fyrir mismunandi hugmyndum. Maður fékk að finna sinn eigin stíl en samt með góðri leiðsögn.

Aldís Ósk Unnarsdóttir

Ertu með einhver ráð fyrir þá sem eru að hugsa um að sækja um þar? Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að búa erlendis og þar sem að FIDI er alþjóðlegur skóli og kenndur á ensku er þetta einnig frábært tækifæri til að hitta mismunandi fólk og menningar frá öllum löndum. Það er því mikilvægt að vera opin fyrir og aðlagast nýjum menningarháttum. Var umsóknarferlið erfitt? Umsóknarferlið í FIDI var mjög einfalt. Ef ég man rétt þá þurfti að senda inn einkunnir úr framhalds­ skóla og svara umsóknareyðublaði. Þau eru mjög dugleg að svara tölvupóstum fljótlega og hjálpa manni í gegnum ferlið ef þörf er á. Er erfitt að finna húsnæði í Flórens?

En leiðilegast/mest krefjandi? Þau lögðu áherslu á hugsunarferlið á bakvið hug­ myndirnar á verkefnum. Lögðu mikla áherslu á að vera með frumlegar og nýstárlegar hugmyndir og oft fannst mér það krefjandi. Hvernig fannst þér að búa á Ítalíu? Ég bjó á Ítalíu í rúm 5 ár og samband mitt við landið þróaðist á þeim tíma, bæði á góðan og slæman hátt. Menningin og fólkið er ólíkt því sem maður er vanur á Íslandi en mér fannst fínt að búa á Ítalíu.

Það er mjög auðvelt að finna húsnæði nálægt skólanum í Flórens. Flórens er lítil borg og er þess vegna létt að labba í skólann hvaðan sem er, samgöngur í Flórens eru líka góðar. Leiguverð eru mjög mismunandi og hef ég reynslu á því að oft er svindlað á erlendum nemendum þannig það er gott að hafa hugmynd um ásættanlegt leiguverð áður en maður byrjar leit. Ég hef búið í fimm íbúðum í Flórens sem eru staðsettar nálægt skólanum og fann þær allar á innan við viku.

EMBLA

117


Ljósm.: Sigríður Lára Stefánsdóttir og Ísak Atli Finnbogason

Indónesía Texti: Sigríður Lára Stefánsdóttir

Indónesía er er land í Suðaustur­Asíu sem saman­ stendur af 17.508 eyjum sem eru hver annarri fallegri. Hér verður fjallað um þrjár þeirra en þær eru Balí, Nusa Penida og Komodo. Balí Balí er lang vinsælust og þekktust af eyjum Indónesíu. Hún er virkilega falleg og bíður upp á allt fyrir alla enda er hún mjög fjölbreytt eftir landshlutum þó hún sé lítil á stærð. Í norðri er landið hærra frá sjávarmáli og því örlítið svalara þar en þangað ferðast fólk til að upplifa algjöra fossaparadís og æðislega náttúru.

Í austri eru hrísgrjóna akrar á hverju strái og stórbrotið útsýni yfir eldfjöll á borð við Mt. Agung og Mt. Batur. Vinsælt er að ganga upp á þau við sólarupprás og njóta útsýnisins. Í miðju eyjarinnar er borgin Ubud sem er miðja menningarinnar, þar eru vinsælir markaðir, manngerði apaskógurinn inn í miðri borg, mikil kaffiframleiðsla og stutt í marga fossa sem og hrísgrjónaakra. Í suðri eru vinsælu strandabæirnir á borð við Canggu og Uluwatu. Þar velja flestir „digital nomads” að búa, þar er mikið um surf, góða veitingastaði og kaffihús.

Það sem er gaman að skoða á Balí:

118

Norður Balí

Austur Balí

Miðja Balí

Suður Balí

Leke Leke Waterfall Nungnung Waterfall Handara Gate Hidden Hills Wanagiri Sekumpul Waterfall

Gista á Hideout Bali Titra Gangga Water Palace Bikit Cinta View Point Lempuyang Temple Blue Lagoon Beach

Ubud Market Monkey Forest Tegallalang Rice Terrace Blómabað á Udaya Resort Kanto Lampo Waterfall

Tegal Wangi Beach Surf námskeið Karang Boma Cliff Old Mans Melasti Beach

EMBLA


Nusa Penida Nusa Penida er ein af þremur Nusa eyjum í kring um Balí. Hún fellur örlítið í skuggann á Balí en er þó alls ekki síðri. Hún er algjör ævintýra eyja en er þó þekkt fyrir slæma vegi og flestir enda á að sprengja dekk á vespunni sinni allavega einu sinni á ferð sinni um eyjuna. Það sem er gaman að skoða á Nusa Penida:

Diamond Beach Thousand Island Viewpoint Snorkla á Manta Point Kelingking Beach Angels Billabong Broken Beach Cristal Bay Kelingking

Ljósm.: Paolo Nicolello

Komodo Komodo er eyja í austur Indónesíu, um klukkutíma flug frá Balí. Það eru nokkuð fáir sem ferðast þangað miðað við Balí og eyjarnar þar í kring, þannig ef maður vill fá frí frá fjölmennum túrista­ stöðum þá er þetta rétti staðurinn. Komodo er sérstök eyja vegna þess að þar búa einu drekar heimsins en það eru Komodo drekarnir og hægt er að fara í ferð til að sjá þá. Í kringum Komodo er einnig stórbrotið landslag sem er vert að skoða, einnig er gífurlega vinsælt að kafa þar.

Komodo dreki

Ljósm.: Sergey Uryadnikov

Það sem er gaman að skoða á Komodo:

Padar Island Pink Beach Komodo drekar Kelingking Beach Kafa á Manta Point Pink Beach

Ljósm.: Thrithot

EMBLA

119


120

EMBLA


Um mig Ég heiti Sóley Guðmundsdóttir og er fædd árið 2003 í Reykjavík. Ég er alin upp að mestu leiti í Vesturbænum og er eins og sagt er „algjört borgarbarn“. Ég elska að fara á kaffihús til að læra eða bara slaka á og ég er stór aðdáandi Marvel kvikmyndanna. Ég spila einnig á víólu mér til skemmtunar og finnst gaman að gera hluti með höndunum. Það átti stóran þátt í því að ég endaði í Tækni­ skólanum að læra grafíska miðlun. Ég ákvað eftir 10. bekk að meira bóklegt nám væri ekki fyrir mig. Tilhugsunin um að halda áfram í hefðbundnu skólabókarnámi í þrjú ár í viðbót höfðaði bara ekkert til mín. Ég fór því að skoða nám í Tækniskólanum og leist vel á grafíska miðlun. Ég er mjög ánægð með brautarvalið hjá mér og ég hef lært marga gagnlega hluti. Ég kann til dæmis vel að nota hönnunarforrit í tölvu, ég kann megin reglurnar á bak við kennimerkjagerð og ég kann að setja upp aug­ lýsingaherferðir fyrir búðir og fyrirtæki. Allt í allt hef ég lært mikið af gagnlegum hlutum, sem getur verið góður grunnur fyrir hvaða nám eða starf, sem ég vel mér næst. Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en ég veit að eins og er langar mig að skoða heiminn betur, áður en ég sest niður fyrir framan tölvuskjá að hanna eða brjóta um. En hver veit. Það sem ég hef lært á án efa eftir að gagnast mér í framtíðinni.

EMBLA

121


Viðtal við grafíska miðlarann og hreyfihönnuðinn Axel Fannar Friðriksson Ég hafði samband við fyrrum nemanda úr Upplýsingatækniskólanum. Hann heitir Axel Fannar Friðriksson og er eigandi og framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu Studio Fin. Hann er hreyfihönnuður og sveinn í grafískri miðlun. Það sem náði athygli minni var að hann hefur tekið að sér nokkur verkefni frá Disney og þar af leiðandi Marvel. Ég sendi lista á hann með nokkrum spurningum varðandi þessa vinnu og Axel var meira en til í að hjálpa mér. Hvenær komstu að því að þú hafðir áhuga á grafískri miðlun og hönnun? Þegar ég var í grunnskóla þá eyddi ég miklum tíma í tölvunni, fiktaði mikið í Photoshop og lék mér með allskonar myndir og grafík, allt mjög hrátt og barnalegt auðvitað. Þetta kveikti alltaf mikið í mér en þetta var bara áhugamál og fyrir mér var þetta ekkert starf. Að vera listamaður eða grafískur hönnuður var bara fyrir eitthvað annað fólk, sem var rosalega gott í að teikna. Í 10. bekk fór skólinn í ferð á Verkiðn, Íslands­ mótið í verk­ og iðngreinum, og eftir rölt um alla sýninguna sá ég lítinn bás með nokkrum ungum einstaklingum, drekkandi kaffi með heyrnatól að búa til pasta matseðil. Þá vissi ég að ég gæti drifið mig strax að gera það sem ég vildi gera og það væri auðvelt fyrir mig að byrja.

122

EMBLA

Hvernig byrjaði ferillinn þinn? Eftir að ég fékk fínan nemasamning hjá Mogg­ anum þá hætti ég um leið og ég var kominn með sveininn. Ég prufaði að vinna á lítilli hönnunar­ stofu, sem heitir Jökulá og er töluvert stærri í dag og gerir magnaða viðmótshönnun til dæmis. Eftir það vann ég á kaffihúsi og hafði þá fínan tíma og rými til að taka að mér eins mörg verkefni og bauðst. Þar á meðal nokkur lógó, pósters, tímarit og allskonar litlir illa borgaðir hlutir, sem eru samt svo mikilvægir til að læra á iðnaðinn og sjálfan sig. Það sem hjálpaði mér mest þá og enn í dag, er að halda við áhugamálið sitt og reyna að finna sér afsökun til að búa til nýja hluti, sem enginn borgar þér fyrir. Þá er ástríðan og stoltið sterkast. Ég gerði það með allskonar „fan art“ og það borgaði sig meiriháttar því þannig fékk ég þessa tengingu.


Fórstu í eitthvað frekara nám efti Tækniskólann eða hélstu beint út á vinnumarkaðinn?

Hvernig byrjaðir þú að vinna fyrir Disney og hver voru viðbrögðin þegar þú fékkst að búa til illustrations fyrir þau?

Eftir að ég kláraði yndislegt nám við Upplýsinga­ tækniskólann og fékk lukkulega flottan starfs­ samning hjá Árvak/Morgunblaðinu, þá fékk ég vinnu hjá Jökulá í nokkra mánuði og hélt síðan út fyrir landsteinana. Það kom oft hugsunin að skoða frekara nám en ég fann ekki fyrir þörfinni á því, hvorki í mínum hæfileikum né að mig vantaði meira upp á til að fá atvinnutækifæri. Ég myndi mæla með því fyrir alla að skoða frekara nám. Tækniskólinn er rosalega flottur grunnur og gefur manni tólin til að skilja hvernig þessi heimur virkar, en það er ótal meira hug­ lægt, sem þú gætir grætt á að heyra í listahá­ skóla eða erlendis. Mér finnst rosalega gott að læra á hlaupum og þurfa að fatta hlutina á gólfinu, vinna með fólkinu og komast þannig inn í málin.

Til þess að forðast einhvern misskilning, þá vinn ég ekki í beinum samskiptum við Disney heldur starfa ég hjá/með stofu í London, sem vinnur fyrir stóran skala af kvikmyndastúdíóum, en þá helst með Disney. Þegar ég starfaði hjá Jökulá var ég alltaf að stefna erlendis, en ég vissi bara ekki hvað ég ætlaði að gera þar. London var draumurinn og ég hafði augun opin hvert ég gæti farið að vinna eða í skóla. Vefsíðan PosterSpy var mikill innblástur fyrir mig, fínn vettvangur fyrir kvikmyndaáhugamenn plús hönnuði, sem gerðu sínar útgáfur af vegg­ spjöldum fyrir kvikmyndir og fleira, en einn daginn var lítil stofa í London sem heitir GlassEye, sem auglýsti eftir hönnuðum. Ég sótti um og lukkulega var einn eigandinn akkúrat í fríi á Íslandi um það leyti. Við hittumst og náðum vel saman, svo eftir heimsókn til London og tvo mánuði af prufu­

Bíó lottó! Viltu vinna ótakmarkaðar bíóferðir í heilt ár? Taktu þátt í lottóinu okkar!

Sóleyjargata 17 101 Reykjavík biosol@biosol.is Sími 171 7171 www.biosol.is

Skráðu þig hér

Þátttökugjald 1.000 kr.

EMBLA

123


verkefnum flutti ég út og var fjórði starfsmaðurinn þeirra en töluvert yngstur þá (19 ára). Þetta var rétt áður en Doctor Strange kom út árið 2016 og þau voru að fá sitt fyrsta Marvel verkefni. Ég var því sterk viðbót af því ég hafði brennandi áhuga á myndunum og var lauslega ráðinn sem „Marvel Expert“ innanhúss. Núna hef ég unnið með þeim í tæp sex ár og þetta er eins og fjölskylda. Samböndin eru sterk, verkefnin eru góð og allir dagar eru betri sama þó það sé brjálað að gera. Ég fékk alltaf góð viðbrögð frá þeim og þeim þótti ég efnilegur, en mjög óreyndur þegar ég byrjaði fyrst. Það hentaði stofunni vel þar sem ég gat þá mótast að þeirra vinnuháttum, stíl og flæði en í dag hef ég líka mótað stofuna með því sem ég hef lært með tímanum. Að hafa hönnunar augað hjálpaði, en að hafa opinn hug og góðan vinnuanda hjálpaði mér að haldast inni.

Hvernig fara samskiptin fram við svona stórt fyrirtæki? Samskiptin geta verið flókin og þetta verður smá innanhúss pólitík um leið og þetta fer ofar í stiganum. Það hefur komið fyrir að við vinnum eitthvað flott myndband, sem fer á samfélags­ miðla, sem breska Disney teymið skoðar síðan og líst vel á og sendir því til Bandaríkjanna. Teymið þar skoðar þetta yfir og allir eru sáttir en vel þekkt­ ur leikstjóri kíkti á þetta og leist ekki nógu vel á hvernig karakterarnir voru birtir og því var þetta drepið án frekari breytinga. Þetta var því súrsætt að segja að einn af mínum uppáhalds leikstjórum sá eitthvað sem ég gerði, en honum leist ekkert á það.

Ertu á samning hjá þeim eða tekurðu bara að þér einstaka verkefni? Ef ég væri að starfa fyrir Disney beint væri þetta flóknari samningur og almennt gera þau bara viðskipti við stofur eða vinna hlutina innanhúss. GlassEye vinnur aðallega verkefni fyrir evr­ ópskan markað, en allt sem kemur frá Banda­ ríkjunum er flóknara og flottara, enda fær það oft töluvert betri framleiðslugæði og oft gert í samráði við leikstjóra til dæmis. Núna starfa ég bara undir hattinum Studio Fin, sem er litla nýja stofan mín. Við vinnum beint með fólkinu í London en erum líka að taka að okkur markaðsetningu og framleiðslu á efni fyrir íslenskan kvikmyndamarkað. Þarftu að skrifa undir non-disclosure agreement? Strax og ég fékk eitthvað almennilegt frá þeim, aðallega Marvel til dæmis, þá skrifaði ég undir þykkan samning sem hefur flækt allt heldur mikið. Það gerir portfólíó flóknara þar sem ég get ekki birt hluti sem þau birta ekki. Eins get ég ekki rætt hvaða myndir ég er að vinna í eins og er eða sýnt neitt „work in progress“.

124

EMBLA

Þessi mynd var reyndar önnur reynsla en deilingarnar voru fleiri en við höfðum séð áður og þar á meðal Chris Pratt sem gaf þessu mikla athygli. Hvað finnst þér skemmtilegast við vinnuna þína? Það er svo mikilvægt að finna gleðina í hverjum degi. Einhver snjall sagði „Do what you love and you’ll never work a day in your life“ og ég get tekið undir það. Suma daga geri ég ekkert nema að skipta um letur, taka til í skjölum annara og skrifa tölvupósta. Aðra daga fæ ég að hanna og teikna og hreyfa eitthvað alveg magnað en ég myndi aldrei höndla það á hverjum degi. Vinnan mín er skemmtileg af því að fólkið sem


ég vinn með er skemmtilegt og mér þykir vænt um þau. Bretarnir, sem ég spjalla við á hverjum degi, eru eins og systkini og á næstu misserum kemur Eyvindur Einar (grafískur miðlari) inn í stúdíóið og það er alltaf gaman að vinna með honum. Hvað finnst þér erfiðast við að vinna fyrir Marvel? Það er mjög erfitt að drepa börnin sín, ég afsaka hversu gróflega þetta er orðað, en það er alveg satt. Í byrjun hvers verkefnis eða þegar ný herferð hefst þá fer hugurinn af stað og allskonar fallegar og stórar hugmyndir fljúga af stað. Þegar allt fer að fara niður á blað, en fiðrildin manns kremjast, þá stundum líta hlutir ekki nógu vel út eða henta ekki nógu vel. Þá er vont og mjög erfitt að þurfa að kveðja hugmynd, sem hefði annars getað verið flott og áhugaverð, en væri of flókin í framkvæmd til dæmis. Samþykki frá Bandaríkjunum geta verið ansi flókin.

á að vera tilbúið á morgun en manni vantar allt efni. Þá er gott að hafa gott teymi og leyfa sér ekki að pirrast á þessu. Hversu mikið frelsi hefurðu við hönnunina? Það er svakalega misjafnt. Almennt er mikið frelsi í byrjun á öllum verkefnum. Við finnum góða reference punkta og innblástur, mótum saman hvaða útlit við ætlum að skoða en líka hvaða hug­ myndafræði er á bak við það. Hönnun án hugsunar er bara krot. Með tímanum þá hverfa oft allskonar smáatriði og flækjustig en ég hef líka séð margar flottar pælingar fá að lifa og fara út, maður má ekki gefast upp. Eins er líka mikilvægt að reyna að finna frelsið hverju sinni, kannski er letrið og litir allt niðurneglt en það er samt svo margt sem er hægt að móta með takmörkunum. Oft hentar það mér betur að hafa smá sandkassa með settum línum og fá að móta innan þess. Hvernig er launum háttað?

Hvað finnst þér skemmtilegast við að vinna fyrir Marvel? Skemmtilegast er að sjá hlutina sína fara í loftið (þá aðallega á samfélagsmiðlum) og sjá viðbrögð fólks, kannski ná að deila þessu með vinum og fjölskyldu. Eftir að ég flutti aftur til Íslands þurfti ég líka að kveðja alla viðburði, sem ég hafði áður aðgang að. Rauðir dreglar, einkasýningar hjá Universal eða „fan­events“ þar sem ég náði að tala við Benedict Cumberbatch og Tom Holland til dæmis. Allt þetta gerir erfiðið aðeins léttara. Hverskonar vandamál koma upp sem þú þarft að leysa? Ef þú ert ekki hönnuður, þá efast ég um að þú nennir að lesa þetta. Mínir stærstu hausverkir eru 20gb skjöl sem ég þarf að niðurhala til þess að nota 100mb af og helst minnka skjalið allt þannig að næsta manneskja eigi auðveldara með þetta. Líka skipti ég mikið um letur í heilu möppunum af skjölum eða vista út ótal útgáfur af sömu mynd­ inni af því að kúnninn er ekki viss hvernig orðalag við viljum hafa. Þetta eru allskonar þurr og ómerkileg vanda­ mál, þó mesti hausverkurinn er líklega þegar allt

Það hefur breyst með tímanum en fyrst þá voru verktakalaun, sem ég rukkaði mánaðarlega. Með reikning sendi ég líka tímaskjal svo þau sáu hvaða verkefni fengu hversu marga tíma. Það er al­ mennt frekar svipað í dag nema núna rukka ég hærri taxta, engan VSK (erlend viðskipti) og fyrir verktaka sem ég er með hjá mér. Ef þú gætir farið aftur í tímann, myndirðu breyta einhverju í sambandi við starfsferil þinn? Það eru alltaf einhver verkefni sem maður sér eftir, hvort sem það var að rukka of lítið eða setja léleg mörk við kúnnann. Eitt verkefni gefur mér ennþá gæsahúð, svakaleg myndvinnsla, enginn treysti mér og ég var að fá símtöl um miðnætti að þetta væri ekki nógu svona eða nógu hinsegin. Mikið álag og engin virðing, svo nánast enginn peningur fyrir þetta. Þetta er bara „paying your dues“ eins og það kallast og allt sem ég gerði þar var mikilvæg lexía í bankann. Ég sé ekki eftir neinu og reyni að gera betur á hverjum degi og vonandi hjálpa nýjum ferskum hönnuðum að verða ennþá betri en ég gæti orðið.

EMBLA

125


Marvel verkefni frá Axel

126

EMBLA


Fimm vinsælustu Marvel myndirnar í dag samkvæmt Box Office

Kvikmynd

Ár

Innkoma

Sæti á heimslista

1

Avengers: Endgame

2019

362.007.414.975 kr.

2

2

Avengers: Infinity War

2018

265.037.268.570 kr.

5

3

Spider­Man: No Way Home

2021

244.364.603.685 kr.

6

4

The Avengers

2012

196.519.212.517 kr.

9

5

Avengers: Age of Ultron

2015

181.509.526.380 kr.

12

Lykillinn að velgengni Marvel Studios Marvel Studios hafa algjörlega slegið öll met þegar kemur að velgengni og lengd kvikmynd­ aseríu. Hin svokallaða Marvel Cinematic Uni­ vers (MCU) myndasería er ein sú lengsta, sem gerð hefur verið. Hún samanstendur í augna­ blikinu af 28 kvikmyndum og 6 þáttaröðum, og fullt af fleiri verkefnum í vinnslu. Eins og sjá má á töflunni hér fyrir ofan á Marvel fjórar myndir á topp tíu efstu myndum hjá Box Office Mojo. Ár eftir ár gefur kvikmyndafyrirtækið út nýtt efni og sýnir engin merki um að hægja á sér í bráð. En hver er lykillinn að velgengni þeirra? Marvel Studios sker sig frá öðrum kvikmynda­ framleiðendum, með þeim hætti, að þau eru óhrædd við að prófa nýja hluti, taka áhættu þegar kemur að ráðningu leikara og leikstjóra, fara óhefðbundnar leiðir með karakter þróun persónanna og sveigja burt frá hinni hefð­ bundnu uppbyggingu ofurhetjumynda. Ég gæti talið svona upp endalaust. Taka má sem dæmi fyrstu MCU myndina: Iron Man. Myndin kom út árið 2008 og náði miklum vinsældum. Aðalleikari myndarinnar heitir Robert Downey Jr. en hann var vafa­ samt val á þessum tíma. Eins og kom svo í ljós, var hann fullkominn í hlutverkið. Aðrir hefðu ekki tekið þessa áhættu en hver veit… án RDJ hefði myndin kannski ekki skilað eins miklum árangri og þá hefði MCU heimurinn jafnvel ekki orðið til. Marvel Studios gerir hverja mynd áhuga­ verða af því þau halda sig ekki við eina ákveðna formúlu. Hver mynd hefur sitt eigið

yfirbragð. Sinn eigin tón. Þó að síðasta mynd hafi gengið vel þýðir það ekki að næsta mynd verði alveg eins í uppbyggingu af því það er örugga leiðin. Nei, kvikmyndafyrirtækið passar uppá að hver mynd og þáttasería sé einstök. En þrátt fyrir að prufa sífellt eitthvað nýtt, er passað upp á að halda samræmi á milli kvikmyndanna. Það er alltaf einhver, sem vann að síðustu mynd, sem kemur að þeirri næstu. Þannig er haldið í meginreglurnar á meðan nýliðarnir koma með óhefðbundnar og skapandi hugmyndir. Það er jafnvægi á milli þess gamla og nýja. Mikil vandvirkni fer í hverja einustu mynd og þáttaröð. Hvort sem það er ráðning leikar­ anna, nákvæmni handritsins, tökurnar, bún­ ingarnir, stunt­vinnan eða annað. Það er lagt 100% í alla þessa hluti, sem skilar sér í grípandi og áhugaverðum söguþræði fyrir áhorfendur. Stúdíóið gengur meira að segja skrefinu lengra. Í lok nánast hverrar einustu myndar eru ein eða tvær post/mid­credit senur, sem byggja upp forvitni hjá áhorfandanum um það sem er framundan, og tryggir þannig að hann kaupi sér miða á næstu mynd. Þegar allt kemur til alls, hef ég komist að því, að lykillinn að farsælum kvikmyndaferli Marvel Studios er sífelld eftirvænting. Fyrirtækið hefur sýnt fram á að aldrei skuli búast við því sama frá þeim. Með því að byggja upp þessa spennu og forvitni, auk vandvirkninnar sem fer í hvert einasta verkefni, hefur Marvel Studios tryggt sér víðan og sterkan aðdáendahóp og góðan árangur í kvikmyndabransanum.

EMBLA

127


Kaffimenning á Ítalíu Ég byrjaði að vinna á kaffihúsi fyrir um það bil þremur árum – eða árið 2019 – og frá fyrsta degi, þegar mér var kennt að búa til einfalda kaffidrykki hef ég haft mikinn áhuga á kaffigerð og mismunandi kaffidrykkjum. Ég er alls enginn sérfræðingur þegar kemur að kaffi og finn yfirleitt ekki mikinn mun á mismunandi tegundum nema kaffið sé afskaplega vont eða ódrykkjarhæft. Ég kann þó sitt hvað í faginu og finnst æðislega skemmtilegt að búa til drykki eins og cappuccino, latte, espresso, íslatte og fleira. Þegar kom að því að velja efni til að skrifa um í Embluna, fannst mér tilvalið að tala aðeins um kaffi og kaffimenningu á Ítalíu, kaffilandinu sjálfu, þar sem ég var nú einu sinni á leiðinni þangað í skólaferð. Uppruni kaffimenningar Ítalíu Til að byrja með ætla ég að tala aðeins um sögu kaffis á Ítalíu. Hvenær það kom til landsins og hvernig það þróaðist út í að vera eitt af aðal kenni­ merkjum Ítalíu. Ítalir kynntust fyrst kaffi árið 1670 þegar ítalski læknirinn og grasafræðingurinn Paduan Prospero Alpino kom heim frá ferðum sínum í austri með nokkra sekki af kaffibaunum. Hann var uppruna­ lega frá bæ rétt hjá Feneyjum (Venice), kallaður Marostica. Drykkurinn náði miklum vinsældum í Feneyj­ um en var í fyrstu einungis seldur í apótekum. Það voru aðeins efri stéttirnar sem höfðu efni á kaffinu þar sem það var fremur dýrt til að byrja með. En með hratt rísandi hylli yfir drykknum varð hann aðgengilegri fyrir almúgann og um árið 1763 voru komin 218 kaffihús í Feneyjum. Það var þó ekki fyrr en árið 1901, sem hin fræga kaffiblanda Ítala var uppgötvuð. Espresso. Það var verkfræðingur frá Mílanó að nafni Luigi Bezzera sem fékk þá hugmynd að þrýsta vatni í gegnum þétta síu fulla af möluðum kaffibaunum til þess að fá sterkan kaffidrykk. Eftir þessa uppgötvun fór kaffimenning Ítalíu virkilega af stað og eru þeir í dag þekktir fyrir einstaklega góða espresso drykki.

128

EMBLA

Bara hvað sem þú gerir. Ekki kalla drykkinn expresso. Mokkakannan kemur einnig frá Ítalíu, en hún gerir fólki kleift að útbúa sinn eigin espresso drykk heima í eldhúsi, án þess að eiga allar fínu græjurnar. Þegar Ítalía fór að selja þessa vöru á heimsvísu, varð þjóðin brátt talin vera hin eina sanna kaffiþjóð. Mín vitneskja um kaffi á Ítalíu Ég hafði heyrt sitthvað um kaffimenningu á Ítalíu áður en ég kom þangað, en eitt af því var að eftir hádegi á helst ekki að fá sér öðruvísi kaffidrykk en espresso. Cappuccino er einungis drukkinn á morgnana enda inniheldur hann mjólk og er talin vera meiri morgundrykkur en síðdegisdrykkur. Annað, sem ég komst að, var að latte er ekki til í landinu. Latte þýðir mjólk á ítölsku og því er best að vara sig ef beðið er um latte. Segja þarf caffè latte til að fá ekki mjólkurglas. Þó væri best að biðja um cappuccino með mikið af mjólk. Einnig fannst mér merkilegt að Ítalir kalla espresso einfaldlega caffè. Ef þú vilt fá kaffi blandað með vatni þarftu að biðja um americano. Saga americano Americano var ein af fyrstu kaffiblöndunum, sem ég lærði að gera, enda er þetta eflaust einn einfaldasti kaffidrykkur sem hægt er að gera, en hann samanstendur einfaldlega af espresso skoti og heitu vatni. Ég fór eftir smá tíma að velta því fyrir mér hvaðan nafnið „americano“ kom. Það þarf lítið til að gera sér grein fyrir því að nafnið er dregið af Ameríku og íbúum þeirrar heimsálfu. Mín fyrsta ályktun var að drykkurinn hefði orðið til í seinni heimsstyrjöldinni þegar amerískir hermenn dvöldust á Ítalíu og gátu ekki drukkið sterkan einkennisdrykk heimamanna. Espresso drykkurinn var því þynntur út með vatni. Ég leitaði þetta uppi á netinu og viti menn, ágiskun mín var rétt. Americano er ítalska orðið yfir amerískan mann og þegar hermennirnir vildu fá vatns­ blandaðan kaffidrykk fóru Ítalirnir að kalla kaffið americano.


Mín upplifun af ítalskri kaffimenningu

Algengir kaffidrykkir

Ég kíkti á nokkur kaffihús á ferð minni um Ítalíu og á fyrsta kaffihúsinu, sem ég fór á, var af­ skaplega vinalegur ítalskur maður að afgreiða mig, en hann talaði heldur litla ensku. Ég tók ítölskunámskeið mér til skemmtunar áður en ég fór út en ég verð að viðurkenna að ég guggnaði á því að panta á ítölsku eins og ætlunin var og skildi ekki helminginn af því sem kaffibarþjónninn sagði við mig. Ég pantaði mér kaffi og croissant, sem hann lagði fyrir framan mig á barborð, þar sem aðrir Ítalir stóðu að gæða sér á morgunmat. Ég vissi að margir Ítalir kjósa að borða morgunmatinn sinn svona standandi og klára hann hratt áður en þeir halda leiðar sinnar, en það var ekki ætlunin hjá mér. Ég ætlaði að setjast niður fyrir utan og njóta góða veðursins með kaffibollann minn. Ég leit á afgreiðslumanninn örlítið ráðvillt, þar sem ég átti eftir að borga, og ég vildi ekki labba út með matinn áður en ég hafði gert það eins og venjan er á Íslandi. Eftir stutta stund spurði ég „Should I pay?“ en hann benti einfaldlega á matinn fyrir framan mig og sagði „pronto, pronto“ sem þýðir tilbúið, tilbúið. Hinir gestir kaffihússins hjálpuðu mér svo að spyrja hann hvort ég mætti setjast út með kaffið, sem ég gerði á endanum, alveg gáttuð á því að það ætti að borga eftir á. Eftir þetta fór ég á fleiri kaffihús og skoðaði kaffiseðlana. Drykkirnir, sem voru á flestum stöð­ um, voru espresso, espresso macchiato, capp­ uccino og stundum affogato, en það er espresso borið fram með ís og rjóma. Ekkert var um sætu síróps drykkina, sem þekktir eru á mörgum öðrum stöðum í heiminum, en þó kom nánast alltaf sykur með kaffinu. Eftir ferð mína um Ítalíu hef ég komist að því að Ítalir kjósa að fá sér einfalda en sterka kaffidrykki frekar en stóru mjólkur og sírópsdrykkina.

Mokkakannan Mokkakannan – the Moka Pot – var fundin upp árið 1933 af Ítalanum Luigi di Ponti. Nafn könnunar er innblásið af hafnarbænum Mokha í Yemen þar sem hann er þekktur fyrir útflutning á kaffibaunum. Verkfræðingurinn Alfonso Bialetti setti mokkakönnuna í fram­ leiðslu og varð varan brátt vinsæl meðal fólks. Menningarlega séð er mokkakannan mikil­ vægur punktur í sögu espresso kaffisins. Espresso var ekki lengur einungis drykkur, sem fékkst utan heimilisins, heldur var hann orðin venjulegur drykkur í nánast hverju húsi á Ítalíu. Þó þarf að hafa í huga að espresso drykkir gerðir í stóru fagmannsvélunum eru mikið sterkari en þeir, sem eru heimalagaðir með mokkakönnunni. Sagt er að hönnuður mokkakönnunar hafi fengið hugmyndina frá gömlu þvottavélunum. Þær notuðu hita til að sjóða sápuvatn og þrýsta því í gegnum pípu sem lá beint að þvotti. Mokkakannan virkar á svipaðan hátt. Kannan er lögð á hellu, sem leiðir til þess að vatnið sýður og þrýstist upp á við í gegnum malað kaffi. Það heldur svo áfram í gegnum rör, sem leiðir kaffiblönduna upp í annað hólf. Blandan er þá tilbúin til drykkju.


MÍLANÓ

Erasmus+ námsferð til Ítalíu

Nemendur á leið á ADI Design safnið

Dómkirkjan í Mílanó

Plaggöt á ADI Design safninu

Nemendur í sporvagni

Nemendur að skoða dómkirkjuna

130

EMBLA

Ekta ítalskur Gelato


FLÓRENS

Nemendur á Piazzale Michelangelo hæðinni að skoða útsýnið yfir Flórens

Ekta ítölsk flatbaka

Ponte Vecchio

Dómkirkjan í Flórens

Heimsókn í FIDI skólann

EMBLA

131


BERGAMÓ

Nemendur að prófa plastskíðasvæði hjá samvinnuskólanum í Bergamó

Ítölsk vespa

Nemendur að vinna verkefni með nemendum í Bergamó

Nemendur í skoðunarferð um Bergamó

Nemendur og kennarar úr samvinnuskólanum í Bergamó að borða saman

Ljósmyndir: Samansafn nemenda

132

EMBLA


Hi there! We are Sieme, Michiel & Juup. And we are from Belgium! March 2022 - erasmus+ Iceland

EMBLA

133


SIEME MACQUOY

Hello! My name is Sieme, I study multimedia in Campus Max, a school in Belgium! What subjects do we get? We have Photoshop, photography, 2D animation, web and app design, audio video. Of course, we also have theoretical subjects, such as French, Dutch, Math, History, etc. In my free time I do a lot! I go to the gym 2-3 times a week, work for school (of course), on the weekends I go shopping a lot. When I have some more time, I also go to work, I work in a Ford Dealer, I am responsible of a department there.

134

EMBLA

This is my last year in Campus Max. I am planning for a further study in Mechelen, at the Thomas More. The course is called Interactive Multimedia Design that is Web and App design, it consists of four major classes: Design, Development, Business & communication. This course is three years, after that I can still choose to continue studying or start working. The job I want to do is UI/UX. So that is designing the frond page of a website, but also doing the more technical stuff in the code, like the development.


Campus MAX Our school is called Campus MAX. We have 3 buildings: Campus Max Middenschool Campus Max College Campus Max Stem

In the fifth and sixth year it’s the same as the third and fourth year, but you have a lot more sub-courses to chose from. My course is in the main course STEM and in the sub-course Multimedia.

In the first year you get a basic curriculum, with the choices of more theoretical or with a more practical course.

In the second year you have more choices, you can still choose between theoretical practical, but you can chose a sub-course. For example: In the course theoretical you can chose between: Economy and Organization Classical languages Modern Languages & Sciences STEM Technologies: Graphic communication STEM techniques: Mechanics and electricity In the course practical you can chose between: Society and Wellness & Economy and Organization STEM techniques: Car - mechanics, electricity and wood.

Each student has 32 hours of classes. In our course, we have 15 hours Basic Education AKA theoretical and 17 hours Technical Training AKA practical. Every day, school starts at 8:20, and we end 15:30. On Wednesday, we have school from 8:20 until 11:55, the rest of the day we are free, of course we have also free on Saturday and Sunday. Everybody in our school has a laptop, so when we are home, we can continue working on assignments.

In the third and fourth year you have a lot of choses in courses. There are 4 main courses: Latin Economics & Organization Society & Welfare STEM In those main courses you have a lot of sub-courses you can choose from.

EMBLA

135


MICHIEL MONDELAERS Hello, my name is Michiel. I am 18 years old and I’m from Belgium. My hobby’s are baking, going to the fitness, watching Netflix and shopping. I live in a single house with my mum, dad and sister. My sister is 5 years older than me. I work in the weekend in a kitchen of a restaurant.

The school I attend is campus MAX STEM, where I studied graphic media and communication for the first two years, after that I studied graphic media, and now I am doing multimedia for two years After I graduate from secondary school, I want to study cross-media design in Antwerp. I am going to follow this because this is a good continuation of my current education.

136

EMBLA


BELGIUM In Belgium we speak three different languages Dutch, French and German. Our culture is a mix of French, Dutch and a little bit German.We are known for our chocolates, waffles, fries and beers. Belgium has medieval cities that are very beautiful to visit. We also have the largest justice palace in the world. It took 17 years to complete the building. Belgium is divided into 10 provinces East Flanders, West Flanders, Antwerp, Limburg, Flemish Brabant, Walloon Brabant, Namur, Liege, Hainaut and Luxembourg. The capital of our country is Brussels.

ICELAND The sights on our list were the Harpa, the Golden Circle, two waterfalls, the black beach, the Perlan and of course the Blue Lagoon. At the weekend, we visited the landscape of Iceland. After the school days, we went out and explored the city. After a busy working day, we relaxed in the Blue Lagoon. In these two weeks, we have learned a lot about the people of Iceland. They are very friendly and open towards foreigners. The landscape of Iceland is constantly changing which make it such a good location for photography.

EMBLA

137


JUUP DE BRUYN

About me Hello, my name is Juup. I am 18 years old. I study Multimedia at Campus MAX in Tessenderlo (Belgium). I live with my parents in a village called Leopoldsburg. My hobbies are: gaming, and hanging out with friends. I also like to swim if the weather is good enough. We have a second smaller house in the Netherlands. We go to the house every year for a small vacation. I have 1 brother who is 16 years older than me (34). He lives in Ghent, it is a famous city in Belgium.

138

EMBLA


ERASMUS+ What is it? Erasmus+ is the EU’s program to support education, training, youth and sport in Europe. It has an estimated budget of €26.2 billion. This is nearly double the funding compared to its predecessor program (2014-2020). The 2021-2027 program places a strong focus on social inclusion, the green and digital transitions, and promoting young people’s participation in democratic life. It supports priorities and activities set out in the European Education Area, Digital Education Action Plan and the European Skills Agenda. The program also supports the European Pillar of Social Rights implements the EU Youth Strategy 2019-2027 develops the European dimension in sport Our chances: This year Erasmus+ gave our class the chance to go to: Iceland, Budapest and Berlin. The class is split into 3 groups. 4 students went to Berlin (Ernst-Litfass-schule) 5 students went to Budapest (Kisképzö) and 3 students came here to Iceland (Tækniskólinn) Our first impression with the Tækniskólinn in Reykjavík was very good. The teachers and students are very friendly and helpful. Everything in the school is modern and big. We really like the “chill” rooms and how the school is so open. In Belgium the schools are completely different, they are very boring and there are just small classes. There is nothing more to the schools in Belgium, so this was very impressive.

EMBLA

139


ÞAKKIR ÚTSKRIFTARHÓPUR Anný Tinna Aubertsdóttir Álfheiður Björk Bridde Ástrós Erla Pálsdóttir Bjarki Enok Guðnason Gabríella Sif Beck Gígja Sif Víðisdóttir Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir Helgi Jónsson Kotryna Rukštelytė Magnús Bergmann Jónasson Margrét Lilja Stefánsdóttir Ragna Fríða Sævarsdóttir Sandra Ósk Júníusdóttir Sigríður Lára Stefánsdóttir Sóley Guðmundsdóttir

140

EMBLA

Kæri lesandi. Við viljum byrja á því að þakka þér innilega fyrir að gefa þér tíma í að lesa tímaritið okkar. Töluverð vinna fór í efnisöflun, uppsetningu og hönnun þess. Að baki liggur fínpússað og (vonandi) halalaust tímarit sem markar kaflaskipti í lífi okkar sem við erum stolt af. Að því sögðu viljum við þakka leiðbeinendum og kennurum okkar Helgu, Svanhvíti, Brynhildi, Jóni, Karli, Marinó og Hildi fyrir stöðuga vinnu, þolinmæði og ómetanlegan stuðning í gegnum allt þetta nám. Sérstakar þakkir fá Grafía, Litlaprent og Iðan sem studdu okkur við útgáfu þessa tímarits með keyptum auglýsingum. Auk þess viljum við þakka nemendum í ljósmyndun fyrir samstarfið við myndatöku á útskriftarmyndunum. Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem studdu við bakið á okkur á meðan á þessu námi stóð. Við þökkum kærlega fyrir okkur og óskum ykkur bjartrar framtíðar.


HÖNNUN: SANDRA ÓSK JÚNÍUSDÓTTIR

LÍFIÐ ER Í LIT

HJÁ OKKUR

FORVINNSLA PRENTUN OG FRÁGANGUR

Við sjáum um þetta allt! Hafðu samband við okkur og við reddum málunum!

Skemmuvegi 4

200 Kópavogi

Sími 540 1800

litlaprent@litlaprent.is

www.litlaprent.is


Þín kjör þín réttindi! Það skiptir máli að vera í réttu stéttarfélagi svo að þú fáir þín réttindi uppfyllt. Við hugsum um þín hagsmunamál!

GRAFÍA er aðildarfélag að Rafiðnaðarsambandi Íslands. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar á heimasíðu okkar grafia.is

Stórhöfði 31 | 110 Reykjavík | Sími: 540-0100 | netfang: grafia@grafia.is | veffang: www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
ASKUR - Vor 2022 by Tækniskólinn - Issuu