Skip to main content

Embla - Aldís Eva Geirharðsdóttir

Page 1

G r a f í s k mið lun

1. tbl. 10. árg. haust 20 2 1


Námskeið og fræðsla Frí vefnámskeið fyrir félagsmenn í tilefni 15 ára afmælis Iðunnar

IÐAN sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prenttækni greinum og matvæla- og veitingagreinum. Fjarnám er í boði á öllum námskeiðum þar sem verklegrar kennslu er ekki krafist og boðið er upp á stöðugt vaxandi úrval vefnámskeiða sem styrkja fólk í starfi.

Sími 590 6400 Vatnagarðar 20 104 Reykjavík Netfang idan@idan.is Veffang www.idan.is

Hér eru nokkur dæmi um skemmtileg námskeið. •

Umbúðir - grunnur

•

Formhönnun umbúða

•

Grafísk hönnun umbúða

•

Klassískir kokteilar

•

Bjór og bjórstílar

•

Hráverkun og pylsugerð

•

Einfaldlega Indesign bæklingur í þríbroti


Leiðari

Núna er komið að endasprettinum í þessu námi og útskrift fram undan. Námið hefur verið krefjandi, fjölbreytt, fræðandi og síðast en ekki síst skemmtilegt og spennandi að sjá hvað tekur við eftir þetta ævintýri. Hluti af verkefnunum okkar á þessari önn er að útbúa eigið tímarit og nefnist ritið Embla. í mínu tímarit verður t.d. tekið fyrir svefn, mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu undanfarið um svefn og mikilvægi hans. Ég sjálf hef glímt við svefnvanda og vekur þessi umræða því mikinn áhuga hjá mér og tel ég marga geta notið góðs af því að fræðast meira um svefn. Einnig var hugmynd mín að hafa Ísland og töfra þess sem þema í tímaritinu. Ein sem nýtir sér þessa töfra er hún Sóley en hún stofnaði fyrirtækið Sóley Organics sem framleiðir íslenskar hágæða húðsnyrtivörur úr villtum íslenskum jurtum. Og að lokum fjalla ég um hann Pétur Thomas ljósmyndara og hans frábæru verk á samspili umhverfis og manns. Að lokum langar mig að þakka öllum þeim sem hjálpuðu mér og studdu við mig í gegnum námið á þessum skrítnu covid tímum sem óneitanlega flæktu málin aðeins. Ég vona að þú hafir jafn gaman að fletta í gegnum Embluna eins og ég hafði að setja hana saman. Njótið.

E fni s y f i r l i t Um mig Sóley Organics Svefn Pétur Thomas

- 4 - 6 - 8 - 12

Umbrot og hönnun

Aldís Eva Geirharðsdóttir Hönnun forsíðu

Aldís Eva Geirharðsdóttir Útgefandi

Upplýsingatækniskólinn Prentun

Upplýsingatækniskólinn Letur

Univers 45 Light 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 75 Black 9/13

Pappír

Innsíður 150 g/m2 Kápa 250 g/m2


Aldís Eva Geirharðsdóttir Ég heiti Aldís Eva Geirharðsdóttir, fædd þann 21. febrúar árið 1999 og uppalin í Kópavogi. Frá unga aldri hef ég haft mikinn áhuga á öllu því sem tengist list og sköpun, allur frítíminn fór í föndur og list sköpun. Eftir grunnskóla lá leiðin mín í Tækniskólann þar sem ég útskrifast af hönnunar- og nýsköpunarbraut sem stúdent. Ég fór í þetta nám með þau áform að verða arkitekt, en þegar náminu lauk var ástríðan fyrir grafískri hönnun búin að taka yfir. Nú er ég stödd á loka önninni minni í grafískri miðlun og er það búið að vera skemmtilegt ævintýri. Eftir nám í grafískri miðlun opnast nýjar dyr sem bjóða upp á endalausa möguleika, hvort sem það er áframhaldandi nám eða atvinna. Námið er vítt og fjölbreytt og er góður undirbúningur fyrir allt það sem þú tekur þér fyrir hendur. Ég ákvað að taka skrefið og prófa þetta nám sem ég sé alls ekki eftir og er spennt að sjá hvað framtíðin hefur að bjóða. Takk fyrir mig


Mynd: Sóley Organics

Sóley organics

Texti: Aldís Eva Geirharðsdóttir

Ísland er lifandi safn sköpunar, staður þar sem fortíð og nútíð vinna saman að varðveislu þess sem var og sköpun þess sem mun verða. Eyja þar sem hverir og eldfjöll gjósa í návígi hrjóstdrugra fjalla og tignarlegra jökla sem afmarka stórbrotið líferni sem hvergi finnast annars staðar. Í lok langra vetra, djúpt í jörðinni safna jurtirnar krafti til að blómstra eftir að hafa staðið af sér veturinn. Undir björtum sumarhimni vakna þær til lífsins og eyjan verður að náttúrulegri paradís. Sóley Organics var stofnað 2007, en saga þeirra nær reyndar mun lengra aftur en það. Konan að baki Sóley húðsnyrtivörum er Sóley Elíasdóttir, en hún starfaði áður sem farsæl leikkona til fjölda ára. Sóley á ekki langt að sækja áhugann og þekkinguna á íslenskum lækninga- jurtum, því að baki henni standa margir ættliðir grasalækna og nokkrir þeirra hafa orðið meðal þekktustu alþýðuhetja á Íslandi. Það kom því engum á óvart að Sóley skyldi taka upp þráðinn frá langalangömmu sinni, Grasaþórunni (Þórunni Gísladóttur) og hefja framleiðslu græðismyrsla eftir aldagamalli uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu Sóleyjar. Grasaþórunn var mikill kvenskörungur og er talin hafa verið ein fyrsta konan á Íslandi til að klæðast buxum.

6 | Embla

„Our ethos is the same today as when my ancestors explored the healing properties of herbs: what you put on your skin is food for your skin“ - Sóley Elíasdóttir Fyrsta vara Sóleyjar var Græðir smyrsl sem var framleitt eftir uppskrift langalangafa hennar Erlings. Erlingur lærði grasalækningar af móður sinni og er talin hafa bjargað 12 börnum sínum frá spænsku veikinni. Sóley vill viðhalda anda Þórunnar og Erlings með því að halda áfram visku þeirra um grasalækningar með því að framleiða snyrtivörur sem eru kraftmiklar en nógu mildar til að skaða hvorki mann né náttúru. Þú gætir jafnvel borðað vörurnar okkar, en við lofum því ekki að þær bragðist vel. Við notum einungis innihaldsefni sem eru samþykkt af Ecocert (stærstu vottunarstofu Evrópu) og hafa öll náttúrulega eða lífræna vottun. Virku efnin eru jurtirnar sem eru handtíndar í íslenskri náttúru af Sóleyju, fjölskyldu hennar og starfsmönnum.


Vinsælar vörur Sóley Organics framleiðir íslenskar hágæða húðsnyrtivörur sem byggja á aldagamalli hefð. Vörurnar eru unnar með aðeins bestu fáanlegum hráefnum, villtum íslenskum jurtum og tæru íslensku vatni. Allar vörurnar þeirra innihalda handtíndar, lífrænt vottaðar íslenskar jurtir sem gerir virkni þeirra einstaka því þau trúa því heilshugar að notkun náttúrulegra snyrtivara stuðli að betri vellíðan fyrir þig og jörðina okkar. Vörurnar þeirra eru allar framleiddar á Íslandi með endurnýtanlegri orku og allar þeirra umbúðir er hægt að endurnýta eða endurvinna. Einnig eru þau farin að bjóða upp á áfyllingar á umbúðirnar þegar varan klárast á lægra verði. Þær vörur sem ekki er hægt að bjóða upp á í áfyllingum fást með 20% afslætti í verslunum þeirra ef umbúðunum er skilað. Markmið Sóley Organics er að allir noti húð- og hárvörur sem eru góðar fyrir þig og umhverfið. Hrein vellíðan, hrein jörð.

Dögg andlitsraki

Fresk hreinsifroða

EF EKKI VIÐ

HVER ÞÁ? RÁÐSTEFNA GEGN NETEINELTI Í HÖRPU 1.—2. DESEMBER

Miðasala er hafin inn á tix.is og í appinu okkar Skannaðu hér fyrir appið

Græðir handáburður

Blær sjampó og hárnæring

Þann 1. desember næstkomandi verður ráðstefnan Ef ekki við, hver þá? sett hér á landi í fyrsta sinn. Ráðstefnan er haldin til þess að fræða tugþúsundir manna um einelti á netinu auk samvinnu við félagsleg fjölmiðlafyrirtæki og önnur yfirvöld um tæknilausnir. Dagskrá ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og koma fram ellefu fyrirlesarar sem allir hafa víðtæka þekkingu á sviði neteineltis.


SVEFN Þegar við sofum förum við í sérstakt ástand milli meðvitundar og meðvitundarleysis þar sem líkaminn hvílist en heilinn er áfram virkur. Þetta ástand er nauðsynlegt fyrir tiltekna ferla sem eiga sér aðeins stað við þessar aðstæður. Um er að ræða ákveðið uppbyggingarstarf þar sem skaðleg eiturefni eru fjarlægð, þekking og minni samþætt, ónæmiskerfið styrkt, jafnvægi komið á tilfinningalegt ástand og gert við frumur líkamans. Þessi endurnýjun er nauðsynleg fyrir fulla virkni okkar og þegar við sofum vel batnar andleg, vitsmunaleg og líkamleg heilsa okkar til muna. Í bókinni The Science of Sleep talar höfundurinn Heather Darwall-Smith um að margt sé enn á huldu um svefninn en sífellt komi betur í ljós hve mikilvægur hann sé fyrir vellíðan okkar, heilsu og hamingju. Til þess að eiga gott líf verðum við að taka svefninn jafn alvarlega eins og mataræði okkar og hreyfingu. Svefnherbergið sem griðastaður Til að ná sem bestum svefni og auka líkur á að fara í rúmið á skynsamlegum tíma er mikilvægt að líta á svefnherbergið sem eftirsóknarvert athvarf og rúmið sem notalegan og öruggan griðastað til hvíldar og endurnæringar. Svefn er skynjunarferli og við vitum að þættir eins og hljóð, lýsing og hitastig hafa sitt að segja. Við getum gert ýmislegt til að gera svefnherbergið

meira aðlaðandi svo við náum að sofna fyrr og sofa að mestu án truflunar. Hvernig gera má svefnherbergið meira aðlaðandi: Taka til. Það er erfitt að slaka á ef óreiða er í herberginu, stöðug áminning um ókláruð verkefni. Velja þægilegan sængurfatnað. Þér má ekki vera of heitt þegar þú ert að reyna að sofna og ekki svo kalt að þú vaknir upp um miðja nótt. Ilmur. Rætt hefur verið um að lavender ilmur gæti virkað róandi. Sumir vilja þó enga lykt í herberginu. Lýsing. Best er að draga úr lýsingu þegar kvölda tekur til að auka svefnhöfgann. Það á einnig við um svefnherbergið. Hlusta frekar en horfa á skjá. Það er meira slakandi að hlusta á sögu, hlaðvarp eða náttúruhljóð en horfa á skjái. Sömuleiðis er betra að lesa prentaða bók en texta af skjá. Vakna með dagsbirtunni. Ef erfitt er að koma sér af stað á morgnana gæti verið reynandi að hafa dregið frá í svefnherberginu svo fólk vakni með dagsbirtunni. Búa um rúmið. Það virðist vera góð venja að taka til í herberginu og búa um rúmið strax eftir að farið er á fætur. Það setur ákveðin skil í daginn og gerir herbergið meira aðlaðandi fyrir næsta svefn. - Ráð úr bókinni The Science of Sleep.

l

l

l

l

Sjón

Snerting

Hljóð

Lykt

Er svefnherbergið aðlaðandi

Það skiptir máli að sængur-

Meiri líkur eru á góðum

Lykt tengist tilfinningum og

og er freistandi að skríða

föt og náttföt séu þægi-

nætursvefni ef þögn er í

getur haft áhrif á svefn. Til

upp í rúmið? Ef ekki er tíma-

leg viðkomu. Húðin er jú

svefnherberginu. Fólk er

dæmis getur óþægileg lykt

bært að gera breytingar. Það

stærsta líffærið.

þó misnæmt fyrir hljóðum

úr þvottakörfu eða matar-

þarf ekki að kosta mikið að

og sumir eiga erfitt með að

lykt haft neikvæð áhrif á

flikka aðeins upp á herberg-

sofna í algjörri þögn. Finndu

svefninn.

ið og rúmið.

hvað hentar þér best og gerðu ráðstafanir.

8 | Embla


Texti: Velvirk

Svefn, nám og hæfni Svefninn er nauðsynlegur til að endurnæra okkur og gefa líkamanum hvíld. Of lítill svefn getur valdið almennri vanlíðan, þreytu og streitu og hefur áhrif á einbeitingu, minni og rökhugsun. Margt hefur verið skrifað um mikilvægi svefnsins í tengslum við streitu og andlega líðan, en svefnleysi getur líka haft neikvæð áhrif á ónæmiskerfi okkar og nær alla aðra líkamsstarfsemi. Af hverju eru svona margir dauðþreyttir á morgnana og eiga erfitt með að vakna? Hvað hefur breyst á síðustu árum og áratugum sem truflar svefnvenjur okkar? Taugalífeðlisfræðingurinn Matthew Walker nefnir nokkur atriði sem hafa breyst í bók sinni „Why we sleep“ (2017). Hann talar um að við höfum flest greiðan aðgang að spennandi afþreyingarefni í ýmsu formi alla nóttina, við erum með raflýsingu og LED ljós, jafnt hitastig allan sólarhringinn og drekkum stundum of mikið af koffíndrykkjum yfir daginn eða áfengi á kvöldin. Góður svefn hefur margvísleg áhrif á virkni

heilans og öll svefnstig hafa sínu hlutverki að gegna. Áhrif svefns á minnið eru sérlega augljós og hafa verið mikið rannsökuð. Svefninn hjálpar okkur að læra og að taka rökréttar ákvarðanir. Andleg heilsa okkar verður almennt betri ef við sofum vel, við erum ferskari, reiðubúnari til að takast á við verkefni dagsins og erum meira skapandi. Við þekkjum flest að það borgar sig oft að „sofa á“ vandamálum til að eiga auðveldara með að leysa þau. Svefninn hjálpar ónæmiskerfinu við að vinna á sýkingum og takast á við ýmis konar veikindi. Hann hefur jákvæð áhrif á efnaskiptin, temprar matarlyst og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru. Hann aðstoðar við að halda blóðþrýstingi í skefjum og stuðlar að heilbrigðara hjarta- og æðakerfi. Í stuttu máli þá bætum við lífsgæði og lengjum lífið með góðum svefni. Þekkt er að hreyfing, svefn og mataræði skipta miklu máli fyrir heilsu okkar en Walker telur að svefninn sé mikilvægastur af þessu þrennu. Að missa svefn eina nótt hefur mun meiri andleg og

CALM Calm: Sleep & meditation er eitt af bestu svefn öppum á markaðnum í dag. Calm vann fyrsta sæti fyrir besta appið árið 2017 og 18. Einnig hefur það fengið titilinn að vera „hamingjusamasta app í heiminum“. Calm er fullkomið app fyrir byrjendur sem vilja stíga sín fyrstu skref í slökun og hugleiðslu en einnig fyrir lengra komna. Appið býður upp á leiðbeinandi hugleiðslu sem spannar allt að 3 til 25 mínútur, svo þú getur valið þinn fullkomna tíma sem kemst fyrir í þinni áætlun. Appið býður einnig upp á kvöldsögur, öndunar og teygjuæfingar og róandi tónlist. Bestu sálfræðingar og geðheilsu sérfræðingar mæla með notkun appsins Calm. Hægt er að nálgast meira um appið á calm.com


líkamleg áhrif á líkamann en að fasta eða hreyfa sig ekkert í einn dag. Því er oft haldið fram að miðaldra og eldra fólk þurfi minni svefn en þeir sem yngri eru en það er ekki á rökum reist segir Walker. Eldra fólk sefur þó oftast minna en það myndi helst vilja og þarf á að halda. Það vaknar oftar á nóttunni, stundum vegna sjúkdóma og lyfja sem tekin eru, eða vegna tíðari salernisferða. Djúpsvefn minnkar með aldrinum en hann er mikilvægur fyrir nám og minni. Hann tengist þeim svæðum heilans sem hrörna einna fyrst þegar við eldumst. Magn svefnhormónsins melatóníns og styrkur dægursveiflunnar minnkar einnig með tímanum.

„Góður svefn bætir heilsu og eykur lífsgæði“ - Heilsuborg Walker heldur því fram að ýmis heilsutengd vandamál sem eldra fólk glímir við geti orsakast af svefnleysi, en það kemur því miður ekki oft til tals í læknisheimsóknum og fæstir tengja versnandi heilsu við lakari svefn þrátt fyrir þekkt orsakatengsl þarna á milli. Nám og hæfni

Svefnherbergið

10 | Embla

Mynd: Unsplash

Við þekkjum flest hve mikilvægt er að ná góðum nætursvefni áður en farið er í próf. Svefninn hjálpar okkur að festa upplýsingar í minni og stundum náum við líka að kalla fram efni sem við héldum að við værum búin að gleyma. Færri vita að góður svefn fyrir próflesturinn sjálfan og annað nám hefur einnig mikið að segja og hressir upp á hæfni okkar til að festa upplýsingar í minni. Svefninn gegnir einnig hlutverki við að gleyma úreltu efni, en með því móti eigum við auðveldara með að kalla fram upplýsingar sem við þurfum á að halda. Walker ræðir áhugaverðar rannsóknir um áhrif svefns á hæfni fólks. Svo virðist sem nægur svefn hjálpi fólki að bæta ýmis konar hæfni á meðan það sefur. Hann fékk áhuga á að rannsaka þetta þegar píanóleikari sagði frá því að hann hafi loks náð valdi á erfiðum kafla í verki eftir góðan nætur­ svefn. Hann náði sem sagt að bæta sig og ná erfiðasta hjallanum með því að sofa.


Góðar svefnvenjur Regla á svefntíma

Regluleg hreyfing á daginn

Mikilvægt er að fara að sofa á svipuðum tíma og vakna á svipuðum tíma. Líka á frídögum og um helgar.

Dagleg hreyfing bætir gæði svefns auk þess að efla heilsuna almennt. Hreyfing vinnur gegn áhrifum streitu á miðtaugakerfið. Mikil átök stuttu fyrir svefn eru þó ekki svefnvæn.

Forðumst síðdegislúra Hjálpum líkamsklukkunni að stilla sig rétt og tökum ekki blund síðdegis. Þeir sem sofa ekki vel um nætur þurfa til dæmis að gæta þess að falla ekki í þá algengu gryfju að dotta yfir sjónvarpinu á kvöldin.

Rólegheit í aðdraganda svefns Mikilvægt er að aðdragandi svefnsins sé rólegur og ávallt með svipuðum hætti. Hver og einn þarf að finna hvaða venjur henta best. Mikið áreiti frá ljósi svo sem tölvu og sjónvarpi er ekki hentugt stuttu fyrir svefninn.

Svefnvænt umhverfi Svefnherbergið þarf að vera hæfilega dimmt, hæfilega svalt og rúmið þægilegt. Stemma þarf stigu við hávaða eða annarri truflun úr umhverfinu. Sjónvarp, tölvur eða handavinna í svefnherbergi er ekki til þess fallið að bæta svefn og gott er að klukkan sé ekki áberandi í svefnherbergi.

Forðumst kaffi og aðra koffíndrykki Koffín er örvandi efni sem er lengi að brotna niður. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir svefntruflun af völdum koffíns verða því að gæta þess að innbyrða það ekki síðla dags og jafnvel ekki eftir kl. 14 á daginn.

Áfengi og reykingar trufla svefn Áfengi er deyfilyf og því finna margir slökunar áhrif þegar þeir nota áfengi og telja það geta hjálpað til við að sofna. Niðurbrotsefni áfengis valda hins vegar streitu áhrifum í líkamanum og trufla svefn. Heildaráhrifin eru því svefntruflandi og forðast ætti notkun þess. Fráhvarf vegna reykinga truflar svefn.

Reglulegar máltíðir Förum hæfilega södd að sofa og forðumst þunga máltíð fyrir svefn. Létt máltíð fyrir svefn getur hjálpað við að sofna. - Ráðin voru tekin af vef Heilsuborgar.

Förum fram úr ef við getum ekki sofið Forðumst mikið ljósáreiti, höldum umhverfi rólegu, leggjum kapal, ráðum krossgátu eða annað sem dreifir huganum og förum aftur upp í rúm þegar okkur syfjar.

Lærum slökun Slökun af ýmsum toga getur bæði hjálpað okkur að sofna á kvöldin og auðveldað okkur að sofna aftur ef við vöknum upp um nætur. Streituhormónin eru fljót að trufla getu okkar til að sofna ef við látum pirringinn yfir svefnleysinu ná tökum á okkur.

Mynd: Unsplash


Mynd: Pétur Thomsen

Pétur Thomsen Pétur Thomsen er íslenskur ljósmyndari, fæddur í Reykjavík árið 1973. Hann býr og starfar á Suðurlandi. Árið 2004 hlaut hann MFA gráðu í ljósmyndun frá École Nationale Supérieur de la Photographie í Arles Frakklandi.

Texti: Aldís Eva Geirharðsdóttir

Pétur er best þekktur fyrir verk sín á samspili umhverfis og manns og hefur unnið mörg verðlaun fyrir þau, meðal annars sýningin hans Imported Landscape (Innflutt landslag) sem var valin sýning ársins 2010 á Íslandi. Hann hlaut alþjóðleg unglistar verðlaun, LVMH-Louis Vuitton Moët Hennessy árið 2004. Ári síðar var hann valinn einn af „50 áhugaverðustu ljósmyndurum framtíðarinnar“ og átti verk á samnefndri sýningu sem sett var upp í Sviss en fór svo víðar um heiminn. Pétur Thomsen einbeitir sér að truflun náttúrunnar, hann beinir sjónum sínum að breytileika landslagsins og hvernig umhverfið breytist fyrir tilstuðlan mannsins. Stíl hans er hægt að sjá á ljósmyndum hans af vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar í seríu sinni Imported Landscape (Innfluttu landslagi), og í verkum hans Umhverfing og Ásfjall

12 | Embla

Helsta einkenni Péturs er náttúran og sýnir sjónarhorn hans samhengi byggingarlistar, skipulags og náttúru. Hann fjallar um það hvernig maðurinn veldur breytingum á umhverfi sínu með ýmsum framkvæmdum; gróðursetningu, skurðgreftri og byggingum. Landið sem tekur breytingum fyrir tilstuðlan mannsins sem sífellt mótar og breytir náttúru í manngert umhverfi. Ljósmyndir hans eru í senn ádeila á þá meðferð á landinu og skrásetning slíkra framkvæmda. FÍSL og Tipf Pétur er einn af stofnendum og fyrrverandi formaður FÍSL — Félag íslenskra samtímaljósmyndara. Félagið var stofnað árið 2007 og er vettvangur fyrir skapandi ljósmyndun. Síðan stofnunar hafa meðlimir þess tekið þátt í fjölmörgum sýningum og viðburðum. Pétur er einnig einn af stofnendum og meðstjórnandi TIPF - Íslensku ljósmynda hátíðarinnar. Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmynda– hátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms.


Hraði, gæði og persónuleg þjónusta er meginmarkmið Stafar prentsmiðju. Stafur prentsmiðja er glæný og um­ hverfsvæn prentsmiðja sem býður upp á persónulega og góða þjónustu, ásamt hröðum og öguðum vinnubrögðum. Starfsmenn Stafa prentsmiðju búa yfr áratuga reynslu í prentiðnaði sem legg­ ja metnað og alúð í vel unnin verk.

PRENTUM FYRIR ÞIG Mikið úrval af prentlausnum í boði • OFFSETPRENTUN • STAFRÆN PRENTUN • UMBÚÐIR • BÆKLIINGAR • NAFNSPJÖLD

Stafur prentsmiðja ­ Sími 599 7000 ­ Hlíðasmári 10 ­ 201 Kópavogur ­ www.stafur.is ­ stafur@stafurprent.is Mynd: Pétur Thomsen


Imported Landscape Árið 2003 hófu Rafmagnsveitur Íslands byggingu Kárahnjúkavirkjunar á Austurlandi. Verkefnið samanstóð af þremur stíflum, þar af ein sú hæsta í Evrópu. Það hafa verið miklar umræður um þetta verkefni. Umhverfisverndarsinnar börðust fyrir varðveislu villtra náttúru, meðan þeir sem studdu verkefnið tala um nauðsyn þess að nota orkuna sem náttúran hefur upp á að bjóða og nýta krafta náttúrunnar. Pétur fann fyrir mikilli þörf á að taka þátt í þessum umræðum. Hann hafði unnið í álveri áður en hann hóf ljósmynda feril sinn. Honum fannst besta leiðin fyrir sig að taka þátt í þessu ferli vera að fylgja landinu í umbreytingu þess og veita því virðingu sína með því að ljósmynda það á fallegan hátt. Frá upphafi verkefnisins árið 2003 hefur hann farið reglulega á framkvæmdasvæðið, tekið landslagsmyndir og sýnt Íslenskt nútíma landslag.

Myndir: Pétur Thomsen

14 | Embla


VIÐ PRENTUM Veldu umhverfisvænar leiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Forvinnslu – prentun – frágangur. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við skoðum málið með þér

FORVINNSLA FORVINNSLA FORVINNSLA PRENTUN PRENTUN PRENTUN FRÁGANGUR FRÁGANGUR FRÁGANGUR

Opið virka daga: 8:00–16.00 - Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogi Netfang litlaprent@litlaprent.is - Veffang www.litlaprent.is Sími 540 1800 | Fax: 540 1801


Framtíð þín er okkar sérsvið

Að vera í rétta stéttarfélagi skiptir máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim atriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig.

- Þjónusta - Kjaramál - Lífeyrismál - Sjúkrasjóður - Orlofssjóður - Fræðslustyrkir

GRAFÍA

Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ávinningur sameingarinnar er gríðarlegur fyrir félagsmenn Grafíu. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is

Stórhöfða 31, 3. hæð - 110 Reykjavík - Sími 552 8755 - Netfang grafia@grafia.is - Veffang www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook