Skip to main content

Embla - Álfheiður Björk Bridde

Page 1

2 Embla


Föndur & fleira Farið yfir fjölbreytt áhugamál og skemmtileg föndur verkefni Hallormsstaðaskóli Merkileg saga Hallormsstaðaskóla og presónuleg reynsla af náminu Foli og snót Fallegt ljóð um fola og snót eftir Írisi Dröfn Kristjánsdóttur Sumarbúðir Sá tækifæri þegar allar dyr virtust lokaðar og opnaði sumarbúðir

Kjötframleiðsla á Íslandi Yfirlit yfir kjötframleiðslu á Íslandi frá árinu 1983 Fullorðins Hnallþóra Sumarleg og skemmtileg uppskrift af Hnallþóru

Leiðari Hönnun og umbrot Þetta blað sem þú hefur í höndunum eða jafnvel á skjánum er lokaverkefni mitt í grafískri miðlun. Nemendur hönnuðu og settu upp sín tímarit þar sem hver og einn skrifaði út frá sínu áhugasviði. Tímaritið var unnið út frá verklýsingu og nokkrum reglum en annars var uppsetning, hönnun og fleira frjálst val hvers og eins. Verkefnið hefur verið mjög skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi. Í þessu tímariti er fjallað um ýmislegt, allt frá föndurverkefnum yfir í sögu Hallormsstaðaskóla og kjötframleiðslu á Íslandi. Vonandi hefur þú bæði gagn og gaman af því að lesa tímaritið. Takk fyrir mig!

Álfheiður Björk Bridde Útgefandi Tækniskólinn Nemamynd Ljósmyndanemar Tækniskólans Pappír Digi finesse silk 130gr Digi finesse silk 170gr Letur Univers Lust Stencil


Álfheiður Björk Álfheiður Björk heiti ég, fædd í Víðinesi á Kjalar­ nesi þann 27. janúar 2001. Þar ólst ég upp til 5 ára aldurs en flutti þá með fjölskyldu minni í Reykholt í Biskupstungum. Frá unga aldri hef ég haft gaman af sköpun og list. Ég uni mér best þegar ég fæ að skapa eitt­hvað og á mjög auð­velt með að gleyma mér tímunum saman. Þrátt fyrir áhuga minn á sköpun og list skráði ég mig á náttúru­fræði­ braut í Menntaskólanum að Laugar­vatni og út­ skrifaðist þaðan vorið 2019. Í menntaskóla sat ég í stjórn nemendafélagsins Mímis sem vef- og markaðsfulltrúi og kviknaði þá áhugi minn á grafík. Það var ekki fyrr en eftir útskrift sem ég fattaði að ég gæti lært það sem mig langaði til. Þá hófst mikill óvissutími í mínu lífi þar sem það var og er enn svo margt sem mig langar til þess að læra. Haustið 2019 ákvað ég á síðustu stundu að skrá mig í grafíska miðlun í Tækniskólanum án þess að vita almennilega hvað það væri. Það eina sem ég vissi var að mig langaði ekkert að

fara í háskóla, bara af því bara, heldur vildi ég læra eitthvað sem ég hafði áhuga á. Námið hefur verið bæði skemmtilegt og krefjandi á sama tíma. Við vitum öll hvað gerðist árið 2020 en eftir vorönnina í Tækniskólanum ákvað ég að taka mér pásu frá náminu. Það gekk ekki betur en svo að áður en ég vissi hafði ég skráð mig í nám í Hall­orms­ staðaskóla haustið 2020. Þaðan útskrifaðist ég vorið 2021 með diplómu í sjálfbærni og sköpun. Haustið 2021 ákvað ég að nú skyldi ég klára það sem ég byrjaði á og skráði mig í sérsvið grafískrar miðlunar. Það má því með sanni segja að Tækniskólaævintýri Álfheiðar hafi tekið örlítið lengri tíma en ég ætlaði í upphafi. Þrátt fyrir það er ég mjög þakklát fyrir allt fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni, bæði samnemendur og alla kennarana og ég get ekki beðið eftir að sjá hvert skyndiákvarðanirnar taka mig næst! Takk fyrir mig!


Sérsaumað eftir pöntun

Föndur & fleira Lífið væri frekar litlaust og leiðinlegt ef maður hefði engin áhugamál. Ef fólk gerði bara það sem þarf að gera og tæki engan tíma til þess að dunda sér við eitthvað myndu flestir ef­laust missa vitið. Það er því mikilvægt að eiga sér áhugamál sem hægt er að gleyma sér í tímunum saman. Flestir hafa allavega eitt áhugamál en ef það er hægt að eiga sér of mörg þá er ég klárlega ein af þeim! Allt sem tengist handavinnu og sköpun finnst mér mjög skemmtilegt. Ég á það þó til að byrja á mörgum verkefnum í einu og svo geyma þau ofan í skúffum og kössum þegar kemur að því að gera eitthvað sem ég kann ekki. Ég veit að ég er ekki ein um að fá gífurlegan áhuga á einhverju sérstöku og eyði öllum peningunum mínum í það en um leið og áhuginn fer annað fær dótið bara að fara ofan í kassa. Ég ákvað því að fara í gegnum þau verkefni sem ég hef byrjað á til þess að sjá

6 Embla

hvað er enn óklárað. Ég tók myndir af því sem ég fann og komst að þeirri niðurstöðu að nánast ekkert væri fullklárað. Þrátt fyrir að verkefnin séu ókláruð ákvað ég samt að mynda þau. Þetta gerði ég bæði til þess að fá betri yfirsýn yfir hvað er eftir en einnig vegna þess að það er eitthvað fallegt við alla litina og mismunandi áferðir. Nokkrar myndirnar má sjá með greininni. Smá verkefni Það er oft auðvelt að byrja á smáu verkefni. Kostnaðurinn er oftar enn ekki lítill og verk­efnið tekur almennt stuttan tíma. Þrátt fyrir að verkefnin séu smá eru þau þó ekki alltaf auðveld. Það þarf að huga að litlum smáatriðum og verkefnin krefjast oft meiri vandvirkni en þau stærri.

Heimagerður rúmgafl úr spítum, svampdýnu og gardínum


Stærri verkefni

Framhaldið

Smá verkefni hljóma kannski auðveldari en stór en það þarf ekki alltaf að vera þannig. Oft gleymir maður sér í smáatriðum og kemst lítið áfram. Þess vegna finnst mér stærri verkefni lang skemmtilegust. Þá skipta smáatriði ekki eins miklu máli í lokaútkomunni. Ég er lítið fyrir það að hafa umhverfið í kringum mig eins í langan tíma. Mér finnst hins vegar mjög gaman að hafa umhverfið mitt fallegt og skemmtilegt. Ég hef alveg misst töluna hversu oft ég hef málað veggina og tala ekki um hversu oft ég hef gjörsamlega snúið öllu rýminu við. Ég verð fljótt leið á hlutum og húsgögnum en eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er einmitt að breyta og laga gömul húsgögn. Mér finnst ekki síður skemmtilegt að smíða mín eigin og gera stórar breytingar á rýmum.

Það er margt sem mig langar að læra og verða betri í. Það eru ótal námskeið í boði þar sem hægt er að læra fjölbreytta og skemmtilega hluti. Ég hef því ákveðið að vera duglegri bæði í að æfa mig í því sem ég hef gaman af en einnig að læra nýja hluti og bæta þannig við mig þekkingu á eins mörgum sviðum og hægt er. Texti og myndir: Álfheiður Björk Bridde

Ungbarnateppi úr bómullargarni í vinnslu

Samtökin Blómstra bjóða alla velkomna á ráðstefnu í Hörpu dagana 1. og 2. maí Ráðstefnan er fyrir alla þá sem vilja hafa áhrif á framtíð skólastarfs hér á landi og vilja koma sínum hugmyndum á framfæri. Frábærir fyrirlesarar varpa ljósi á það sem gott er en einnig það sem betur má fara. Gestum er velkomið að leggja fram nýjar hugmyndir að nýrri stefnu fyrir betri framtíð.

Embla 7 Nánari upplýsingar eru að finna inn á heimasíðunni blomstrum.is


Hallorms­ staðaskóli Merkileg saga Hallorms­ staðaskóla og persónuleg reynsla af náminu

Þau hjónin Sigrún Pálsdóttir og Benedikt Blöndal stofn­uðu og byggðu Húsmæðraskólann á Hall­ orms­stað á árunum 1929 til 1930 og hófst kennsla haustið 1930. Æviágrip Sigrún var fædd og uppalin á Hallormsstað en um aldamótin 1900 flutti hún Suður til Reykja­víkur og stundaði nám við Kvenna­skólann í Reykja­ vík. Að náminu loknu flutti Sigrún til Danmerkur og hóf nám í heimilisiðnaði, tveggja ára nám í lýðháskólanum í Askov og fór á vefnaðarnám­ skeið. Það má því með sanni segja að Sigrún hafi haft mikinn áhuga á íslenskum heimilisiðnaði og hélt hún mörg námskeið hér á landi. Benedikt Blöndal var kennari á Eiðum. Árið 1918 ganga Sigrún og Benedikt í hjóna­band og

8 Embla

voru þau sögð passa vel fyrir hvort annað. Bæði höfðu þau mikinn áhuga á þjóðmálum, menntun og uppeldi. Hjónin kenndu bæði ýmsar greinar í Al­þýðu­skólanum á Eiðum en það leið ekki á löngu þar til þau fóru að kynna sér skólamál á Norðurlöndum. Það var árið 1924 sem hjónin ákváðu að hætta kennslu við skólann á Eiðum. Þá höfðu þau kynnt sér ýmsa lýðskóla og líkað stefnu þeirra betur en stefnu skólans á Eiðum. Hjónin stofnuðu skóla í Mjóanesi og höfðu þá flestir nemendanna á Eiðum elt þau þangað enda voru þau eftirsóknarverðir kennarar. Í skólanum héldu þau fyrirlestra um merka menn og einu sinni í viku var kvöldvaka þar sem Benedikt las fyrir fólkið úr hinum ýmsu bókum. Skólinn var starfræktur í sex ár en það var draumur Sigrúnar að stofna húsmæðraskóla á Austur­landi.


Berjatýnsla í Mjóafirði

Hvannarpasta í vinnslu

Vettvangsferð í Óbyggðastrið

Embla 9


Fysti húsmæðraskóli á Austurlandi

Sjálfbærni og sköpun

Þann 1. nóvember 1930 var Húsmæðra­skólinn á Hallormsstað settur í fyrsta sinn. Sigrún var ráðin forstöðukona skólans og Benedikt ráðinn aukakennari. Hver skóla­dagur hófst og endaði með sálma­söng en Sigrún var mjög trúuð og vildi innleiða trúna í uppeldisstarfinu. Nemendur tóku þátt í ýmsum verklegum námskeiðum svo sem matreiðslu, garðyrkju, saumi, ræstingum og vefnaði. Þá stunduðu nemendur einnig bóklegt nám og á hverjum degi var útivera. Námið var fjöl­breytt og nemendur og kennarar bjuggu í skólanum sem ein stór fjölskylda. Skólinn hefur nú starfað í um 90 ár og hefur námið tekið á sig ýmsar myndir á þeim tíma.

Nú heitir skólinn Hall­orms­staða­skóli þar sem sjálf­bærni og sköpun eru grunnþættir kennslunnar. Námið er bæði verklegt og bóklegt en fyrirkomu­ lag kennslunnar fer mikið eftir áhugasviði hvers nemendahóps. Nemendur taka þátt í hinum ýmsu vinnustofum og námskeiðum, fara í skemmti­ legar vettvangsferðir og þess á milli njóta þeir samverunnar á þessum fallega stað.

Kíkt á Kárahnjúkavirkjun

Skarfur í Mjóafirði

Persónuleg reynsla Haustið 2020 fór ég í Hallormsstaðaskóla. Þar kynntist ég frábærum hópi af flottum konum sem allar höfðu ólíkan bakgrunn. Það myndaðist skemmtilegt andrúmsloft í skólanum og við vörðum nánast öllum stundum saman. Námið var mjög áhugavert en á sama tíma krefjandi. Það var aldrei dauð stund í skóginum og að skóladegi loknum fórum við gjarnan í skoðunar­ ferðir um Austurlandið. Við þræddum alla Aust­ firðina hvort sem það var á okkar vegum eða í vettvangsferðum. Ef veðrið var ekki að leika við okkur sátum við oft saman í saumastofunni og prjónuðum, saumuðum eða horfðum á bíómynd. Um helgar elduðum við oft saman og spiluðum spil, sungum saman og spjölluðum fram á nótt.

10 Embla

Þú tekur ekki bara með þér aukna þekkingu um sjálfbærni og sköpun að námi loknu heldur kynnist þú bæði frábæru fólki og sjálfum þér mun betur. Þetta hljómar kannski allt eitthvað voðalega „cheesy“ eins og maður segir á slæmri íslensku en upplifunin að fara frá öllu sem þú þekkir og inn í þetta umhverfi er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Ef þú veist ekki hvað þú villt í lífinu, líður kannski ekki nógu vel eða langar hreinlega bara í fleiri ævintýri þá er Hallormsstaðaskóli klárlega eitthvað sem þú ættir að skoða! Texti og myndir: Álfheiður Björk


Foli og snót Bar af flestum foli svartur fasmikill og æskubjartur öðru hvoru skapi skeytti skjólið fann hjá ungri snót. Er strauk hún yfir stinnan makka stæltar lendar, feldinn blakka honum sanna vinsemd veitti væntumþykju og blíðuhót. Klárinn ungi frjáls í fasi fagurlega óx úr grasi tígulegur, spakur, sperrtur sporléttur hann hljóp við fót. Í vindi faxið þykka þétta þýtt í takt við sporið létta liðaðist hans stáss, hans stertur stolt á baki honum snót. Í fjarlægð greppur fjáður starði fola girndar augum barði hágengan á harðastökki hestakaup hann hugði skjót. Bunka af seðlum þykkan þreifar þóttafullur honum veifar föngulegur folinn dökki frelsi fær í þokkabót. Fagurleitur folinn góði frjáls mun ganga í merastóði fjárfestir í framtíð sinni fegins hugar hrekklaus snót. Í hinsta sinn nú kveður klárinn keppist við að fela tárin seint þau líða munu úr minni málleysingjans vinahót. Tíminn leið og löngu síðar lágu ferðir stúlku tíðar norður í land er nám hún sótti nauðbeygð hélt á mannamót. Sér hún inn á rásbraut ríða rogginn knapa, folann þýða berlegur í augum ótti óð í söðli kerling ljót.

Lend og bógur böðuð svita bogið höfuð, undir bita næma höku keðja kreppir kerlingin skal vinna mót. Úr munnvikunum báðum blæðir barinn hestur áfram æðir innan stundar hnossið hreppir hnaut þá skyndilega’ um grjót. “Heilög móðir! Hamingjan sanna!” heyrist nú á meðal manna “Sjáið hvernig hrossið lætur” hamast um með særðan fót. Beint af augum blint hann sprettur af baki loksins kerling dettur. Klaufalega kemst á fætur klastrar við að fanga þrjót. Nú skal húðklár geyma í gerði gefa hann á sláturverði. Hví lætur bölvuð bikkjan svona? Brjáluð kerling, tapað mót. Stúlka örlög fola frétti fáeina seðla kerlu rétti lengi sér hafði leyft að vona að lokum sameinist, foli og snót. Í fyrstu vinir kærir kættust er kunnug augun aftur mættust himinglaður kumrar klárinn klökknar síðan hnuggin snót. Særður, illa foli farinn fældur, smáður, hræddur, barinn. Úr fjarska ekki sáust sárin sullur kominn í hans fót. Víst er ekki frá því flúið foli kær þitt líf er búið Sumarlandið löngum bíður líkn mun veita og meinabót. Hann reigði háls og reisti eyra er heyrði röddu stúlku meyra rólega hvísla, rómur blíður “Að eilífu vinur, sofðu rótt”. Ljóð: Íris Dröfn Kristjánsdóttir

Embla 11


Sumar­búðir Þann 16. mars 2020 breyttist allt í einu vettvangi án þess að ég fengi við neitt ráðið. Þann dag var rekstrargrundvellinum algerlega kippt undan litla gistiheimilinu mínu, The White House. Gistihús sem var búið að vera með afbragðsnýtingu og frábæra bókunarstöðu langt fram í tímann lokaði hreinlega. Engir gestir gátu komið til landsins þar sem örsmá ósýnileg veira ógnaði heimsbyggðinni á þann hátt sem fæst okkar hafa upplifað áður. Allt í einu var húsið tómt, ekkert líf, ekkert fram undan nema óvissan. Eftir nokkurra vikna ringulreið og upplýsingaóreiðu ákvað ég að taka málin í mínar hendur. Ég setti auglýsingu á facebook þar sem ég bauð upp á sumarbúðir fyrir stúlkur á aldrinum 10 – 12 ára. Hugmyndina byggði ég á verkefni sem mig langaði að vinna með í M.Ed. námi mínu þar sem ég ætlaði að vera með sumarbúðir fyrir börn í ofþyngd með fræðslu, hreyfingu og hollu mataræði. Það var kannski fullstórt verkefni að ráðast í með svo stuttum fyrirvara svo ég ákvað að vera með sumarbúðir með áherslu á að styrkja sjálfsmynd stúlkna. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Mikill áhugi var á sumarbúðunum og komust færri að en vildu. Margir foreldrar höfðu samband og vildu koma að börnum, stúlkum og drengjum á öllum aldri.

Eftir gríðarmikla skriffinnsku, leyfisumsóknir og samtöl við til þess bæra aðila tók ég á móti fyrsta hópnum mínum laugardaginn 13. júní. Stúlkurnar komu víða að, mest þó af höfuðborgar­svæðinu og Suðurlandi. Sumar þekktust en aðrar ekki en á þessum stutta tíma sem við áttum saman myndaðist fallegur og góður vinskapur og við áttum frábærar stundir saman. Umhverfið okkar býður upp á fjölbreytta afþreyingu, sér í lagi ef hægt er að aka um sveitina okkar fögru. Það var mikil spenna að merkja herbergin, kynnast herbergisfélaganum og skoða nánasta umhverfi. Hænurnar og ungarnir vöktu mikla athygli sem og heimiliskettirnir og hundurinn. Heiti potturinn var notaður alla daga og fimleika­æfingar gerðar í grasinu og á trampólíninu frá morgni til kvölds. Á kvöldin var farið í kubb og badminton úti eða spilað og spjallað inni. Ekki var leyfi­legt að vera með síma eða önnur snjalltæki. Fyrsta kvöldið fór ég með stelpurnar að Reykholtshver þar sem við sóttum okkur rúgbrauð. Við fórum í sund, heimsóttum Haukadalsskóg þar sem við gengum um og fífluðumst og borðuðum nesti. Að sjálfsögðu kíktum við líka á Strokk, Geysi og Brúar­hlöð. Suma daga var dagskráin ansi þétt. Eva Hillström keyrði okkur í Slakka þar sem kett­lingar og önnur dýr fengu dekurmeðferð.

Brenna og grill í garðinum

12 Embla


Kíkt á dýrin í Slakka

Friðheimar buðu okkur í heimsókn þar sem við fengum fræðslu um garðyrkju, smökkuðum góm­sæta piccolo tómata og kynntumst íslenska hestinum. Alexandra Bridde, nemi í LHÍ kom og var með listanámskeið og svo busluðum við í ísköldu Tungufljótinu þar til tennurnar voru farnar að glamra. Froðudiskópartý í heita pottinum var geggjað skemmtilegt og sömuleiðis var virkilega gaman fyrir stelpurnar að geta tekið þátt í 17. júní hátíðarhöldunum í miðju Covid fárinu. Fimm sinnum á dag var kallað „það er kominn matur“ og frábært að sjá hve duglegar stelpurnar voru að borða allskyns mat. Pizzan stóð að sjálfsögðu upp úr eins og við var að búast. Við ræddum um útlit, sjálfsmat, einelti og að koma vel fram við aðra og virða það að við erum ólík. Í raun má segja að stelpurnar hafi fengið fimm daga námskeið í lífsleikni sem var í senn skemmtileg og fræðandi. Þegar kom að kveðjustund vildu þær sko koma aftur að ári liðnu og voru þau orð bestu launin fyrir alla vinnuna, fyrirhöfnina og svefnleysið sem fylgdi því að bera ábyrgð á 10 vöskum stúlkum daga sem nætur. Nú er ég komin í kennsluna aftur sem ég elska og því ekki víst að ég geti verið með sumarbúðir að ári.

Útópía er ný verlsun sem selur einungis umhverfisvænar vörur. Í versluninni finnur þú allt sem þú þarft! Frábært úrval af notuðum fatnaði, endurnýttum húsgögnum og fallegar gjafavörur. Verlsunin styður alla íslenska framleiðendur og býður upp á frábær tilboð af matar- og fatakössum. Hlökkum til að taka á móti þér!

Texti og myndir: Agla Þyri Kristjánsdóttir

Opnunartímar Grillað brauð

Virka daga 10:00 - 18:00 Helgar 11:00 - 17:00

Embla 13


Flokkar

Ár

Kindakjöt

Nautakjöt Hrossakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt

Framleiðsla í tonnum

1983

12.979

2.759

970

1.267

1.033

Framleiðsla í tonnum

1993

8.850

3.401

822

2.861

1.501

Framleiðsla í tonnum

2003

8.792

3.624

906

6.205

5.706

Framleiðsla í tonnum

2013

9.891

4.082

1.293

6.404

7.897

Framleiðsla í tonnum

2021

9.388

4.965

831

6.580

9.294

Upplýsingar frá Hagstofu Íslands

Fullorðins hnallþóra Hnallþórur eru fallegar tertur sem eru alltaf vinsælar í veislum. Það halda eflaust margir að flókið sé að baka þær og skreyta en þvert á móti er það bæði einfalt og skemmtilegt. Hér má finna uppskrift sem er bæði góð og einföld með smá skemmtilegu ívafi.      

Svampbotn: 3 egg 2 dl sykur 1 dl kartöflumjöl 1 dl hveiti 1 tsk lyftiduft

Aðferð Hitið ofninn í 180°C með undir- og yfirhita. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti varlega saman við og hrærið með sleikju. Í vel smurð form hellið deiginu og bakið við 180°C í sirka 35 mínútur. Á meðan botnarnir eru í ofninum er tilvalið

14 Embla

að undir­ búa rjómann, ávextina og aðrar skreytingar. Þegar botnarnir hafa kólnað er hægt að byrja að skreyta. Það er mjög persónubundið hvernig fólk kýs að skreyta kökurnar en hér er sú aðferð sem ég kýs að nota. Byrjið á að koma einum botni fyrir á köku­ disk og hellið örlítið af Malibu yfir. Þetta gefur bæði gott bragð og gerir kökuna mýkri. Næst er þunnu lagi af þeyttum rjóma smurt yfir ásamt ávöxtum. Næsti botn er lagður yfir og sömu skref endurtekin. Þegar búið er að raða botn­ unum saman hefst skemmti­legasta skrefið að mínu mati en það eru skreytingarnar. Þeytið rjóma og setjið þunnt lag yfir kökuna. Restin af rjómanum er sett í poka og sprautað jafnt á hliðar kökunnar. Næst er ávöxtum raðað í miðjuna og nokkurskonar rjóma rósir sprautaðar með fram kantinum. Punkturinn yfir i-ið er svo að raða kirsuberjum á rósirnar. Texti og myndir: Álfheiður Björk Bridde


Við tökum á móti alls kyns verkefnum til uppsetningar. Auk þess tökum við á móti tilbúnum gögnum og undirbúum þau fyrir prentun.

Hafðu samband til þess að nálgast nánari upplýsingar

Embla 15

Skemmuvegi 4, blá gata, 200 Kópavogur Sími: 540 1800 litlaprent@litlaprent.is www.litlaprent.is


Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir miklu máli. Kjaramál eru stórt atriði í lífi hvers launþega og eitt af þeim meginatriðum sem Grafía sér um. Komdu í okkar raðir og leyfðu okkur að vera til staðar fyrir þig. Grafía er orðin hluti af Rafiðnaðarsambandi Íslands og er ávinningur sameiningarinnar gríðalegur fyrir félagsmenn Grafíu.

Rafiðnaðarsamband Íslands er landssamband stéttarfélaga sem nær yfir iðn- og tæknistörf í rafiðnaði, raforkuiðnaði, raftækniðnaði, miðlun, útgáfu, upplýsingatækni og skapandi greinum. RSÍ var stofnað árið 1970 af 400 félagsmönnum. Í dag er heildarfjöldi virkra félagsmanna um 6.550 sem skiptast í 8 aðildarfélög. Starfsemi sambandsins felst í að gæta hagsmuna

Kynntu þér réttindin þín og frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Álfheiður Björk Bridde by Tækniskólinn - Issuu