~ betri kaup, betri lífsstíll
Grænt umhverfi og stefnan okkar Starfsemi
Starfsmannastefna
Fyrirtækið okkar heitir Grænt umhverfi og er umhverfisvæn lífsstílsverslun sem selur endurnýtt föt, húsgögn, smámuni, matvæli o.fl. sem betrumbætir líf fólks.
Grænt umhverfi leggur mikla áherslu á jafnrétti meðal starfsfólks síns. Einnig er mikið lagt upp úr samskiptum á milli starfsmanna og yfirmanna til að halda vinnuumhverfinu góðu og þægilegu. Krafa er að starfsmenn búðarinnar séu skilvirkir í vinnunni og mæti tímanlega ásamt því að sýna umhverfisvænum lífsstíl áhuga. Starfsmenn fá 30% afslátt í búðinni og eru hvattir til að koma til vinnu með umhverfisvænum leiðum, en við útvegum strætókort fyrir þá sem óska eftir því.
Markhópur Markhópurinn okkar er í stuttu máli allir þeir sem eltast við umhverfisvænan lífsstíl. Það er ekkert aldurstakmark á náttúruvænni hugsun.
Vistvænt Grænt umhverfi leggur mikið upp úr því að selja einungis notaðar vörur eða vörur sem búnar voru til með vistvænum hætti.
Kolefnisjöfnun Kolefnisjöfnun er ein af stefnum okkar en við miðum að henni með því að selja gæða vörur, notaðar og nýjar, ásamt því að lána út fatnað og selja. Með þessum hætti drögum við úr neyslu og stuðlum þannig að meiri kolefnisjöfnun. Einnig plantar Grænt umhverfi einu tré í hvert skipti sem viðskiptavinur verslar hjá okkur.
Samstarfsaðilar
Jafnlaunavottun Allir starfsmenn fá jöfn laun óháð kyni. Grænt umhverfi metur tímann sem starfsmaður hefur unnið í versluninni, menntun, hæfni og stöðu til launahækkunar.
Kúnnavild Grænvild er vildarklúbbur Græns umhverfis. Ef viðskiptavinir gerast Grænlingar (meðlimir Grænvildar) fá þeir 10% afslátt af öllum vörum og einnig fá þeir sendar tilkynningar varðandi uppkomandi tilboð í búðinni.
Auglýsingaherferð Auglýsingaherferðin okkar fer í gang núna um mánaðarmótin og mun hún kynna Grænt umhverfi fyrir tilvonandi viðskiptavinum. Við höfðum samband við Auglýsingastofuna HJ design en þau hjálpuðu okkur að skipuleggja herferðina og munu alfarið sjá um að hanna útlit auglýsinganna.
A4 bæklingur A4 bæklingurinn inniheldur upplýsingar varðandi vörurnar sem við seljum og segir einning frá opnunarafslættinum og hvenær búðin er opin. Honum verður dreift í hús á höfuðborgarsvæðinu þann 1. desember.
A3 veggspjald Veggspjaldið mun sýna hvað við seljum, hvenær við opnum og benda á opnunarafsáttinn. Veggspjöldunum verður dreif jafnt og þétt um helstu staði höfuðborgarsvæðisins, svo sem í verslunarmiðstöðvar, búðir, kaffihús o.fl.
Heilsíðuauglýsing – Mbl Sett verður heilsíðuauglýsing í Morgunblaðið
Verk
Magn
A4 bæklingur – prentun
þann 3. desember en í henni munu koma fram upplýsingar um búðina, hvenær hún opnar og að það verði opnunarafsláttur frá 8.–12. desember.
Skjáauglýsing – Strætóskýli Buzz auglýsingar munu birtast í 10 mismunandi strætóskýlum og verða auglýsingarnar sýndar í 4 daga frá 6. desember. Á þeim mun koma fram hvar búðin er og hvenær hún mun opna. Einnig verður bent á opnunarafsláttinn.
Vefauglýsing – Instagram og Facebook Þar sem mikið af íslenskum umhverfissinnum eru á samfélagsmiðlum notum við Instagram og Facebook til að ná til þeirra. Einnig er þetta góður staður til að ná til fleira fólks þar sem nánast allir Íslendingar nota þessa tvo samfélagsmiðla. Auglýsingin verður birt 5. desember á hvorum samfélagsmiðli og mun standa í 7 daga. Hún mun þannig auglýsa fyrir opnunina og á meðan opnunartilboðið stendur.
Ein. verð
Verð
10.000 stk.
21 kr.
210.000 kr.
A4 bæklingur – dreifing
9.000 stk.
31 kr
279.000 kr.
A5 bæklingur – prentun
500 stk.
90 kr.
45.000 kr.
A3 veggspjald – prentun
200 stk.
135 kr.
27.000 kr.
Auglýsing – Morgunblaðið
Heilsíða
302.000 kr.
Skjáauglýsing – Buzz
10 skjáir í 4 daga
94.400 kr.
Vefauglýsing – Instagram
7 dagar
3.107 kr.
21.749 kr.
Vefauglýsing – Facebook
7 dagar
3.107 kr.
21.749 kr.
Samtals
1.000.898 kr.
Opnunartímar:
Kennitala: 071012-2349 Vsk. númer: 1350 Faxafen 11, 108 Reykjavík GraentUmhverfi@GU.is Sími: 599 8888 www.graentumhverfi.is
virkir dagar 09:00–21:00 laugardagur 10:00–20:00 sunnudagur 10:00–16:00
Kennimerki Pantone 7473 C C=80 M=20 Y=52 K=4
Pantone 346 C C=60 M=0 Y=54 K=0
C=0 M=0 Y=0 K=70
C=0 M=0 Y=0 K=50
C=0 M=0 Y=0 K=100
C=0 M=0 Y=0 K=0