Skip to main content

Bæklingur fyrri önn A5 - Laura Daniela Cano Hurtado

Page 1

LÍFSSTÍLSVERSLUN Trésmiðjan Meiður

Meiður


Upplýsingar um Meið Lífsstílverslun Staðsetning: Faxafen 11, 108 Reykjavík Sími: 599 8888 Vsk. númer: 1350 Kennitala: 071012-2349 Netfang: meidur@meidur.is Veffang: meidur.is Starfsmannafjöldi: 7 Til sölu hönnunarvörur fyrir heimilið Dæmi: gjafavörur, húsgögn og fl. Markhópur Markhópur Meiðs eru allir sem hafa áhuga á vönduðu handverki. Viðskiptavinir Meiðs er víður hópur en þó mætti ætla að hann samanstandi að mestu leyti fólki á aldrinum 30-65. Við leggjum áherslu á að dreifa bæklingum okkar á svæði sem tengjast fyrirtækinu okkar eins og veitingahús, kaffihús, hótel og söfn. Fólk á þessum aldri er mjög virkt að heimsækja svona staði. Framleiðsla / Sérsmiði Framleiðslan fer af stað á verkstæði okkar sem er staðsett á sama stað og búðin okkar. Þar erum við með stórar og mikilvægar vélar til þess að hanna frá grunni allar vörunar okkar. Eining tökum við að okkur sérsmíði, allt frá litlum skálum að stórum borðstofuborðum og aðstoðum við að gera hugmyndir viðskiptavina okkar að veruleika. Hægt er að velja milli nokkurra mismunandi viðartegunda t.d. eik, hnotu, mahóní sem og nokkurra íslenskra viðartegunda eins og gullregns og reyniviðs.

Lógó

Meiður Pantone 7508 C Pantone 4635 C C: 31% M: 59% Y: 78%K: 30% C: 14% M: 30% Y: 56% K: 3% C: 93% M: 76% Y: 56% K: 78%

Meiður

Meiður

Meiður


Auglýsingaherferð Trésmiðjan Meiður hefur verið starfandi í þó nokkur ár og hefur skipað sér sess meðal helstu hönnunarfyrirtækja á Íslandi. Nú erum við að opna verslun og þá er mikilvægt fyrir okkur að ráðast í flotta auglýsingaherferð. Við erum með fjögurra blaðsíðna bækling í fjórum litum í stærðinni A4. Þar koma fram allar helstu upplýsingar um fyrirtækið og starfsemina, hvernig við hönnum, framleiðum og gerum vörurnar frá grunni. Þessi bæklingur mun vera í versluninni þegar við opnum og hvetjum fólk til að taka eintak með sér. Þá verða einnig hugmyndir af gjafavöru í bæklingnum og verðupplýsingar. Jafnframt verðum við með skjáauglýsingu til að sýna á RÚV en þar er um að ræða fimm birtingar í átta sekúndur eftir íþróttir og veður. Þar leggjum við upp

Auglýsing

með að hafa nákvæmar og mikilvægar upplýsingar sem þarf til þess að tekið sé eftir fyrirtækinu og munað verði eftir okkur. Auk þess verðum við með heilsíðu hjá einu flottastu tímariti landsins Gestgjafanum, en hún verður án efa stærsta og flottasta auglýsingin okkar. Þar verða fallegar myndir af vörunum og hugmyndir um notagildi þeirra og margt fleira til þess að gera matseldina skemmtilega og til þess að sýna fram á hvernig má bera fram veitingar með vörum okkar. Þá verður veggspjöldum dreift til helstu veitingahúsa landsins, í söfn og búðir sem selja íslenska hönnun, auk hótela og kaffihúsa. Fyrir þá sem taka strætó í miðbæinn til þess að fá sér kaffi á góðu kaffihúsi erum við líka með Buzz-auglýsingu (strætó auglýsing).

Eintök

Verð

4 blaðsíðna bæklingur A4

1000 stk.

53.000

4 blaðsíðna bæklingur A5

500 stk.

45.000

Skjáauglýsingu fyrir RÚV fimm birtingar í 8 sek

1 stk.

180.000

Gestgjafinn – heilsíða

1 stk.

99.000

1000 stk.

57.700

1 stk.

23.600

A3 veggspjöld Buzz auglýsing 10 skjáir í 4 daga

Samtals 458.300kr.


Opið alla daga vikunnar frá 11:00–18:00

Meiður

Faxafen 11 • 108 Reykjavík • 599 888 • meidur@meidur.is • meidur.is

@meidur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Bæklingur fyrri önn A5 - Laura Daniela Cano Hurtado by Tækniskólinn - Issuu