1 minute read

So bili Latvijec, Čr Slovenec in Islandka

Besedilo: Iva Štefanija Slosar, Védís Helgadóttir, Olivera Draško

Tečaj Wood Badge smo predstavili že v prejšnji številki, prav tako je v tokratni številki na ogled nekaj fotografij. A ker so na tečaju na mednarodnem programu tudi udeleženci iz tujih držav, smo se odločili, da se malce pozabavamo in poleg misli o taborništvu spoznamo tudi druge jezike.

Advertisement

Ég tók þátt í Wood Badge námskeiðinu við hið undurfallega Bohinjvatn í ágúst 2022. Upplifunin var dásamleg og ég naut þess virkilega að taka þátt í námskeiðinu. Í eina viku fengum við að hlúa að persónulegum þroska, finna leiðtogann í okkur og að bæta leiðtogahæfileika okkur. Sólarhringshækið var einn af hápunktunum en þá fengum við tækifæri til að verja miklum tíma með flokknum okkar og að kynnast öllum betur. Á seinni degi hæksins gengum við hvert í sínu lagi en það þótti mér líka áhugavert því þá fékk ég tækifæri til að hugsa um mig sem leiðtoga og hvað ég hef lært í námskeiðiu. Á námskeiðinu lærði ég meira en mig hefði nokkurn tímann getað órað fyrir, bæði um sjálfa mig og leiðtogafærni mína og fyrir það er ég mjög þakklát. Fyrir utan það að læra margt um leiðtogahæfni og persónulegan þroska fannst mér mjög gaman að læra um allar slóvensku skátahefðirnir, eins og t.d. að segja: „mmmm“ í staðinn fyrir að klappa eða hrópa eftir skemmtiatriði. Námskeiðið var ógleymanlegt og ég hlakka mikið til að hitta alla aftur í febrúar 2023!

Védís Helgadóttir, ____________

This article is from: