Skip to main content

Stefnuskrá D-listans í Snæfellsbæ 2022

Page 1

Snæfellsbær, okkar allra Stefnuskrá D-listans í Snæfellsbæ


Ágæti kjósandi Kosið verður til sveitarstjórna 14. maí nk. Við hvetjum þig, til að kynna þér metnaðarfull og umfangsmikil stefnumál okkar, sem unnin voru með dyggri þátttöku bæjarbúa. Í stefnuskrá D-listans birtist sýn til framtíðar, sem við sem bæjarfélag, ætlum að vinna saman að, með hagsmuni bæjarbúa ávallt að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á velferðarmál, íþrótta- og æskulýðsmál, uppbygg­ ingu atvinnulífs, ásamt því að styðja við öflugt menningarlíf, sem blómstrað hefur í Snæfellsbæ svo eftir er tekið á landsvísu. Við viljum áfram vera eftirsóknarvert sveitarfélag til búsetu, sem gerir öllum kleift að þroska hæfileika sína og frelsi til athafna, bæði í dreifbýli og þéttbýli. D-listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks, sem brennur fyrir málefnum bæjarbúa og ber hag sveitarfélagsins fyrir brjósti. Við lok kjörtímabilsins er Snæfellsbær í hópi best reknu sveitarfélaga landsins, með trausta innviði og sterka stöðu. Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum hjá Snæfellsbæ um síðustu áramót voru í samanteknum ársreikningi 2021, 70.1% (skuldaviðmið 49.2) en mega skv. lögum vera að hámarki 150%.

Þetta verður að teljast afar gott og gerist vart betra hjá sveitarfélögum á Íslandi. Á kjörtímabilinu höfum við náð nær öllum þeim markmiðum sem við stefndum að, og erum stolt af því. Fulltrúum D-listans hefur verið treyst til forystu í Snæfellsbæ um árabil. Sú vegferð hefur verið farsæl og þökkum við það traust sem bæjarbúar hafa sýnt okkur. Það er von okkar að þú kæri kjósandi veitir okkur umboð til þess að vera áfram leiðandi í bæjarstjórn Snæfellsbæjar og vinna að þeim metnaðarfullu verkefnum sem hér koma fram. Verkefni sem munu verða til framfara í þágu allra íbúa sveitarfélagsins Með góðum kveðjum, Frambjóðendur D-listans í Snæfellsbæ

Snæfellsbær okkar allra


Íþróttir, tómstundir og þátttaka barna og ungmenna Með þínu atkvæði viljum við... •

halda áfram stuðningi og efla samráð við öflugt Ungmennaráð og veita þeim frekari tækifæri til að hafa áhrif, m.a. með fundarsetu, málfrelsi og tillögurétti

•

bæta svæði til útivistar og setja upp heilsueflandi æfingaskilti við göngustíga í sveitarfélaginu

auka opnunartíma Lýsulauga

•

hækka akstursstyrk í dreifbýli vegna frístunda upp í 40.000 kr.

•

byggja körfuboltavöll á lóð Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík

•

•

útbúa útibrettasvæði á Hellissandi

styðja við stofnun rafíþróttadeildar og gera þannig börnum og ungmennum kleift að iðka rafíþróttir

•

fjölga leiktækjum á skólalóðinni við Lýsuhólsskóla

•

halda áfram stuðningi við öflugt starf íþróttafélaganna í Snæfellsbæ

styðja við íþróttafélög fatlaðra á Snæfellsnesi

•

endurhanna þriðja og síðasta áfangann við sundlaugina í Ólafsvík

•

hækka frístundastyrkinn í 30.000 kr. og veita börnum og ungmenn­um á aldrinum 0 til 20 ára, án skerðingar á framlögum sveitarfélags­ins til íþróttafélaganna

•

setja stóra vatnsrennibraut á útisvæðið við sundlaugina í Ólafsvík

•

•


Velferð í allra þágu Með þínu atkvæði viljum við... •

efla heilbrigðisþjónustu í Snæfellsbæ

•

auka búsetuúrræði fyrir íbúa 60 ára og eldri

•

setja forvarnarstefnu og efla vitund íbúa um mikilvægi forvarna og hvetja til þátttöku og samstöðu

•

halda áfram góðu samstarfi við félag eldri borgara um málefni þeirra og öflugt félagsstarf

•

tryggja framtíðarhúsnæði fyrir fjölbreytt tómstunda- og frístunda­ starf eldri borgara undir einu þaki í samstarfi við félag eldri borgara

•

halda áfram að efla starfsemi dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars

•

fara í samstarf við Bjarg leigufélag um byggingu leiguíbúða

•

bæta aðgengi fyrir alla - „Rampa upp Snæfellsbæ“,

•

beita okkur fyrir bættri geðheilbrigðisþjónustu í Snæfellsbæ

•

styðja við og standa vörð um starfsemi Smiðjunnar, dagþjónustu fyrir einstaklinga með fötlun og skerta starfsgetu, og tómstundastarf


Góðir skólar með þarfir barna og ungmenna í fyrirrúmi Með þínu atkvæði viljum við... •

lækka leikskólagjöld í áföngum á kjörtímabilinu

•

bæta aðstöðu leikskólasels í Lýsuhólsskóla

•

koma betur til móts við börn af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum Snæfellsbæjar í samstarfi við Fjölmenningarsetur Íslands

•

búa starfsfólki og nemendum góð vinnuskilyrði með því að bæta aðbúnað í grunn- og leikskólum og halda áfram að vinna eftir viðhaldsáætlunum á grunn- og leikskólahúsnæðunum

•

styrkja stoðir Fjölbrautaskóla Snæfellinga og styrkja tengingu skólans við atvinnulífið

•

halda áfram öflugu starfi Tónlistarskóla Snæfellsbæjar

•

tryggja börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og hækka heimgreiðslur til foreldra ef brúa þarf bil milli fæðingarorlofs og leikskóla


Öflugt atvinnulíf og ný atvinnutækifæri Með þínu atkvæði viljum við... •

skapa fyrirtækjum og atvinnulífi í Snæfellsbæ ákjósanlegt og samkeppnishæft umhverfi

•

styðja við framtakssama uppbyggingu og nýsköpun

•

beita okkur fyrir að veiðigjöld séu hófleg og að hluti þeirra renni til sveitarfélaganna

•

halda áfram uppbyggingu fyrir ferðamenn við vinsæla áningarstaði

•

beita okkur fyrir því að nægilegt varaafl raforku sé á svæðinu og að endurbygging flutningslínunnar út á Snæfellsnes verði hafin sem fyrst

•

beita okkur fyrir að ljósleiðaravæðingu verði lokið í þéttbýlinu

•

efla og kynna enn frekar fjarvinnusetrið í Röst og fá þannig ný störf, sem í auknum mæli eru auglýst án staðsetningar

•

kanna möguleika á að koma upp aðstöðu í dreifbýlinu fyrir störf án staðsetningar

•

halda áfram öflugri kynningu og markaðssetningu á sveitarfélaginu

•

styðja við og taka virkan þátt í nýstofnuðu Nýsköpunarneti Vesturlands

•

halda áfram að styðja við og efla starfsemi Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls


Umhverfið okkar Með þínu atkvæði viljum við...

•

halda áfram að vera í fararbroddi í umhverfismálum, m.a. með áframhaldandi vinnu í EarthCheck umhverfisvottun

•

halda áfram með framkvæmdir við reiðvegi, hjólreiðastíga, göngu­ leiðir, gangstéttir og gatnakerfi sveitarfélagsins

•

útbúa hundasvæði við þéttbýlin í sveitarfélaginu

•

fara í fulla flokkun á sorpi í samræmi við nýsamþykkta reglugerð stjórnvalda, m.a. með því að setja upp grenndarstöðvar bæði í dreifbýli og þéttbýli

•

styðja áfram við öflugt starf skógræktarfélaganna

•

halda áfram að beita okkur fyrir jöfnun húshitunarkostnaðar

•

•

fara í fyrirhugaðar framkvæmdir við Höskuldsá

•

efna til hönnunarsamkeppni fyrir arkitekta þar sem þeir vinna úr innsendum hugmyndum fyrir Sáið og nærumhverfi þess

halda áfram árlegu hreinsunarátaki að vori í þéttbýli og dreifbýli Snæfellsbæjar þar sem íbúar og sveitarfélagið taka sig saman og fegra nærumhverfið

•

halda áfram uppbyggingu innviða á Arnarstapa

•

styðja stofnun vistvangs UNESCO, Man and Biosphere, í samvinnu við önnur sveitarfélög á Snæfellsnesi og nýta sér þá miklu reynslu sem UNESCO býr að, við eflingu byggðaþróunar á grunni sjálfbærrar þróunar

•

halda áfram að hvetja til umhverfisvitundar hjá íbúum og fyrir­tækjum með fræðslu og góðu fordæmi

•

tryggja ávallt nægt lóðaframboð til uppbyggingar


Öflug menning og lifandi mannlíf Með þínu atkvæði viljum við... •

halda áfram stuðningi við öfluga og fjölbreytta menningarstarfsemi Frystiklefans í Rifi

•

halda áfram uppbyggingu á félagsheimilinu Röst á Hellissandi, m.a. með endurbótum á eldhúsi

•

styðja við öflugt lista- og menningarstarf í Snæfellsbæ ásamt stuðningi við starfsemi safna og sjómannagarða

•

halda áfram endurbótum á félagsheimilunum á Lýsuhóli og Klifi

•

styðja áfram við félaga- og klúbbastarfsemi í sveitarfélaginu

•

styðja við og efla fjölmenningarhátíð Snæfellsbæjar ásamt öðrum hátíðum í sveitarfélaginu


Örugg fjármálastjórn Með þínu atkvæði viljum við... •

halda áfram að innleiða rafræna stjórnsýslu og nýta rafrænar lausnir og kynna hana fyrir íbúum

•

vinna að enn frekari lækkun skulda sveitarfélagsins með áframhaldandi öruggri fjármálastjórn

•

stuðla að áframhaldandi góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög okkar í þeim tilgangi að efla og styrkja búsetuskilyrði á Snæfellsnesi m.a. í gegnum Svæðisgarðinn

•

halda áfram að viðhalda öllum eignum sveitarfélagsins með skipulögðum hætti


Öryggi fyrir alla Með þínu atkvæði viljum við... •

þrýsta á að þjóð-, tengi- og stofnvegir séu breikkaðir og endurbættir í Staðarsveit

•

koma fyrir hraðalækkandi úrlausnum á þjóðveginum í gegnum Hellissand í samstarfi við Vegagerðina

•

beita okkur fyrir auknum snjómokstri og hálkuvörnum á þjóðvegakerfinu í sveitarfélaginu

•

standa vörð um löggæslu í Snæfellsbæ

•

halda áfram uppbyggingu í brunavarnarmálum

•

halda áfram stuðningi við öflugt starf björgunarsveitanna í Snæfellsbæ


Hafnir Snæfellsbæjar og sjóvarnir Með þínu atkvæði viljum við... •

að áfram verði unnið að uppbyggingu hafnamannvirkja og þjónustu hafna Snæfellsbæjar.

Arnarstapahöfn: • endurbyggja viðlegukant

Ólafsvíkurhöfn: • steypa þekju og ljósamasturshús við Norðurtanga • stækka trébryggju við gafl Norðurtanga • endurbyggja steypt ker á Norðurgarði og lengja viðlegukant • setja upp götulýsingu og steypa gangstéttir • halda áfram endurbótum á hafnarhúsinu • endurnýja polla á Suðurþili • endurnýja löndunarkrana

• • •

vinna nýtt deiliskipulag fyrir öll hafnasvæðin. halda áfram að fegra og snyrta hafnasvæðin. halda áfram endurbótum í öryggismálum hafna Snæfellsbæjar.

•

vinna áfram að byggingu sjóvarnagarða • við Ennisbakka í Ólafsvík • við Ólafsbraut milli Innra og Ytra Klifs Ólafsvík • fyrir ofan bryggjuna á Hellnum • við Keflavíkurgötu á Hellissandi • í Staðarsveit

Rifshöfn: • endurbyggja stálþil við Austurkant • lengja stálþil við Austurkant • dýpka


Frambjóðendur D-listans í Snæfellsbæ

1. sæti Björn Haraldur Hilmarsson

2. sæti Júníana Björg Óttarsdóttir

3. sæti Auður Kjartansdóttir

4. sæti Jón Bjarki Jónatansson

5. sæti Eiríkur Böðvar Rúnarsson

6. sæti Jóhanna Jóhannesdóttir

7. sæti Kristgeir Kristinsson

8. sæti Lilja Hrund Jóhannsdóttir

9. sæti Illugi Jens Jónasson

10. sæti Þorbjörg Erla Halldórsdóttir

11. sæti Gunnar Ólafur Sigmarsson

12. sæti Viktoría Kr. Guðbjartsdóttir

Snæfellsbær, okkar allra 13. sæti Zekira Crnac

14. sæti Bárður Guðmundsson


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook