Stefnuskrá D-listans og óháðra í Grundarfirði
Sókn á traustum grunni
Frambjóðendur
1. Jósef Ó. Kjartansson
2. Ágústa Einarsdóttir
3. Bjarni Sigurbjörnsson
4. Sigurður Gísli Guðjónsson
5. Davíð Magnússon
6. Marta Magnúsdóttir
7. Patrycja Aleksandra Gawor
8. Unnur Þóra Sigurðardóttir
9. Arnar Kristjánsson
10. Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir
11. Heimir Þór Ásgeirsson
12. Sunneva Gissurardóttir
13. Ásgeir Valdimarsson
14. Rósa Guðmundsdóttir
Sókn á traustum grunni Við sem skipum D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra óskum eftir endurnýjuðu umboði kjósenda til áframhaldandi góðra verka. Við viljum leiða sveitarfélagið okkar áfram á þeim trausta grunni sem við höfum unnið að á yfirstandandi kjörtímabili. Samstarfið í bæjarstjórn hefur gengið vel og kom því upp sú hugmynd að bjóða fram einn sameiginlegan lista fyrir Grundarfjörð. Hugsunin var að þannig myndum við mæta enn öflugri til þess mikilvæga verkefnis að leiða sveitarfélagið okkar í sameiningu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, en það teljum við vera eitt af stærstu verkefnum næstu ára. Af þessari hugmynd varð ekki en vonumst við á D-listanum eftir áframhaldandi góðu samstarfi í þágu okkar allra. Við sem skipum D-listann í komandi kosningum ætlum okkur að styrkja stöðu bæjarins enn frekar. Hér í Grundarfirði er mannlífið gott, náttúran einstök og tækifærin fjölbreytt. Þetta er auður sem gott er að byggja á, ásamt öllu því góða sem Grundfirðingar standa fyrir og við erum stolt af. Við ætlum að vinna áfram að því að efla samfélagið okkar og gera Grundarfjörð enn eftirsóknarverðari stað til að búa á. Því hér er svo sannarlega gott að vera!
Við sem skipum D-listann ætlum að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu. Heimsfaraldur hefur haft áhrif á samfélagið og okkur öll, en það er okkar trú að á næstu árum muni Grundarfjörður stækka og dafna enn frekar og þá vegferð viljum við leiða. Við höfum lagt góðan grunn með ákvörðunum og uppbyggingu síðustu ára. Hann viljum við nýta við að skapa frekari tækifæri til sóknar. Mikilvægt er að styrkja enn frekar innviði samfélagsins og nýta betur þann mannauð, mannvirki og aðstöðu sem til er í sveitarfélaginu. Við höldum áfram að gæta hagsmuna bæjarbúa út á við: standa vörð um nauðsynlega grunnþjónustu og innviði, með velferð bæjarbúa að leiðarljósi. Við ætlum að taka enn fleiri skref sem fjölskylduvænt samfélag með áherslu á lýðheilsu fyrir alla og virka þátttöku íbúa. Það er framtíðarsýn D-listans.
Menntun Á Leikskólanum Sólvöllum, í Grunnskóla og Tónlistarskóla Grundarfjarðar fer fram gróskumikið starf, enda leggja skólarnir grunn að framtíð okkar, með því að mennta og efla unga fólkið. Við styðjum vel við skólana okkar og viljum efla samstarf þeirra enn frekar. Allir hafa þeir yfir öflugu starfsfólki að ráða. Undanfarin ár hafa verið krefjandi fyrir starfsfólk skólanna ekki síst þeirra sem starfa með yngstu nemendum og er okkur ljóst að halda þarf vel um mannauð skólanna í framhaldinu. Við munum halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið í gangi við að auka gæði leikskólastarfsins, skipulag og skilvirkni og styrkja faglega forystu stjórnenda. Ný Menntastefna fyrir Ísland til 2030 kallar á að við rýnum okkar skólastefnu. Við viljum efla gæðastarf skólanna, innra mat og hlutverk skólanefndar við eftirfylgni. Þannig leggjum við grunn að öflugri skólaþróun. Við treystum stjórnendum og starfsfólki til að innleiða hugmyndafræði út frá þeirra forsendum og leggja mikið upp úr faglegri endurmenntun starfsmanna. Við viljum að aðbúnaður í skólunum, innan- og utandyra, taki mið af þörfum nemenda á ólíkum aldri. Á þessu kjörtímabili hefur verið unnið að viðhaldi og endurbótum á skólahúsnæði og umhverfi þess. Við höfum unnið eftir heildstæðum langtímaáætlunum um framkvæmdir og þannig forgangsraðað áföngum. Starfshópur um leikskólalóð skilaði tillögum sem unnið er eftir í áföngum. Sömuleiðis er hafin vinna við að endurbæta og hanna skólalóð grunnskólans.
Mikilvægt er að standa vörð um Fjölbrautaskóla Snæfellinga en rekstur hans og starfsemi er á ábyrgð ríkisins. Skólinn var stofnaður að frumkvæði heimamanna og það er dýrmætt að unga fólkið geti stundað framhaldsnám í heimabyggð og búið í foreldrahúsum. Við leggjum áherslu á að elstu nemendur grunnskólans geti áfram haft þann kost að stunda nám við FSN þannig að bilið á milli skólastiganna minnki enn frekar. Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að styrkja þessi tengsl og renna þannig enn styrkari stoðum undir starfsemi skólans. Mikilvægt er að bæjaryfirvöld beiti sér fyrir því að að íslenskir iðn- og háskólar bjóði upp á fleiri námsleiðir í fjarnámi. Við munum halda áfram að tryggja fjarnemum aðstöðu, eins og gert er á Grundargötu 30.
Íþrótta- og æskulýðsmál Við viljum áfram stefna að því að geta verið stolt í hópi annarra heilsueflandi samfélaga og stuðla þannig að betri lífsgæðum fyrir okkur öll. Með ráðningu íþrótta- og tómstundafulltrúa höfum við stigið stórt skref í þeim efnum. Sú ráðstöfun var ekki síst hugsuð til að auka samstarf og stuðning við íþróttafélög og félagsstarf í Grundarfirði. Góð aðstaða íþrótta- og tómstundastarfs fyrir alla aldurshópa er okkur mikilvæg. Hönnun á viðbyggingu, framan við íþróttahús Grundarfjarðar, er nú á lokametrunum og mun hún bæta til muna aðstöðu og möguleika í húsinu. Á þessu kjörtímabili ætlum við sem skipum D-listann að bæta enn frekar aðstöðu í sundlauginni okkar. Við ætlum að uppfylla langþráðan draum barna (og ekki lengur barna!) í Grundar firði, með því að setja upp rennibraut með lendingarlaug í sundlaugargarðinum.
Liður í því er að hanna sundlaugargarðinn þannig að einnig sé gert ráð fyrir gufubaðsaðstöðu. Við viljum tryggja unglingum í Grundarfirði viðunandi aðstöðu fyrir félagsstarf. Margir barna- og ungmennahópar hafa lagt leið sína til Grundar fjarðar og dvalið hér yfir helgi í skóla- eða tómstundaferðalagi. Oftar en ekki er gist í húsnæði bæjarfélagsins. Við viljum ýta enn frekar undir slíkar heimsóknir í samstarfi við öll þau sem bjóða upp á afþreyingu, veitingar og aðra viðeigandi þjónustu á svæðinu, enda vitum við að samfélagið okkar er einstaklega skemmtilegur staður til að heimsækja og skapar jákvæð hughrif íslenskra ungmenna af Grundarfirði til framtíðar.
Málefni aldraðra Við hjá D-listanum viljum samfélag þar sem eldri íbúar geta notið lífsins á eigin forsendum. Við viljum áfram eiga gott samstarf við Dvalar- og hjúkrunar heimilið Fellaskjól og styðja við það óeigingjarna starf sem þar fer fram. Allir skulu eiga greiðan aðgang að nauðsynlegri þjónustu þegar til þess kemur. Markmiðið er að fólk geti búið heima sem lengst.
Nauðsynlegt er að hlúa vel að öldruðum í Grundarfirði. Hluti af lífsgæðum þeirra er að eiga kost á fjölbreyttri afþreyingu á hentugum samastað. Við viljum áfram sjá heilsueflingu eldri borgara í sveitarfélaginu og hvetja til þess að enn fleiri skref verði stigin til að auka lífsgæði þeirra. Við viljum leggja okkur fram við að standa vörð um málefni þeirra sem byggðu upp samfélagið okkar með miklum sóma og elju.
Atvinnumál Við viljum styðja við nýsköpun og gróskuhugarfar með því að greiða fyrir samtali við nýsköpunarhraðalinn Klak Icelandic Startup með það að leiðarljósi að skapa fjölbreyttari atvinnutækifæri í sveitarfélaginu fyrir frumkvöðla. Við viljum greiða leiðina fyrir ný fyrirtæki til að hefja starfsemi á svæðinu. D-listinn vill taka vel á móti störfum án staðsetningar og hefur hönnun samvinnurýmis á Grundargötu 30 tekið mið af því. D-listinn vill ljúka uppbyggingu rýmisins í samræmi við tillögu sem bæjarstjórn hefur samþykkt.
Aukin atvinnutækifæri koma ekki nema við sækjumst eftir þeim og það er það sem við á D-listanum leggjum áherslu á. Við fögnum því að Míla hafi tekið af skarið með ljósleiðara væðingu fyrir heimilin eftir stöðuga hvatningu bæjarstjórnar allt kjörtímabilið. Um mitt næsta kjörtímabil (2024) mun Míla hafa lokið við lagningu ljósleiðara í Grundarfirði.
Höfnin og sjávarútvegur Hafnaraðstaðan í Grundarfirði er til fyrirmyndar. Höfnin er þekkt fyrir góða aðstöðu, þjónustu, snyrtimennsku og áherslu á öryggismál. Sjávarútvegur hefur verið undirstaða samfélagsins og er það okkar sýn að svo verði áfram.
Kominn er tími á framkvæmdir við svokallaða „Hafnarbraut” sem tengir hafnarsvæðin enn betur saman, auk þess sem hún myndi létta þungaumferð af götum bæjarins. Þessi framkvæmd yrði samvinnuverkefni Grundarfjarðarbæjar og Vegagerðarinnar.
Með lengingu Norðurgarðs er hægt að taka á móti stærri og djúpristari skipum en áður og miklu munar um 5000 m2 athafnasvæði sem við bættist. Bætt aðstaða mun hafa gríðarmikil áhrif á þjónustu og tækifæri fyrir hafnsækna starfsemi, sem og ferðaþjónustu - og hefur framkvæmdin nú þegar skilað sér í auknum umsvifum á höfninni.
Við ætlum áfram að styðja við framsýna uppbyggingu hafnar innar.
Ferðaþjónusta Kirkjufell er orðið eitt helsta tákn Íslands. Kirkjufellsfoss hefur skapað sér sess sem einn af eftirsóttustu áningarstöðum landsins. Höfnin okkar er sömuleiðis hratt vaxandi komustaður fyrir gesti skemmtiferðaskipa. Við höfum markað stefnu í aðalskipulagi um hvernig við getum nýtt þessar auðlindir og heimsathygli Kirkjufells til að byggja upp þjónustu og draga til okkar gesti. Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein í Grundarfirði. Þar eigum við mikið inni og mörg tækifæri til vaxtar eru til staðar. Ferðaþjónustan stuðlar að fjölbreytni í samfélaginu og eykur aðdráttarafl bæjarins. Uppbygging innviða og þjónustu kemur ekki bara ferðamönnum til góða heldur líka íbúum. Samvinna okkar á Snæfellsnesi auðveldar okkur uppbygginguna, til dæmis með sameiginlegri gestastofu og markaðssókn.
Bærinn í samvinnu við landeigendur Kirkjufells hefur unnið að uppbyggingu þessa vinsæla áningarstaðar og í sumar verður unnið að lagningu göngustíga að og við fossinn. Göngu- og hjólastígur sem tengir áningarstaðinn við þéttbýlið er eðlilegur áfangi í framhaldinu, en þarf að vinnast í nánu samstarfi við landeigendur og hagsmunaaðila. Við höfum lagt vinnu í að skilgreina strandstíg fyrir gangandi og hjólandi, frá enda Norðurgarðs, eftir Framnesi og í Torfabót - sannkallaðan upplifunarstíg fyrir heimamenn og gesti, með einstöku útsýni á Kirkjufell, fjöru, fuglalíf og fjörðinn. Við viljum leita fjármagns til að gera hann að veruleika, auk þess að byggja upp frekari aðstöðu á og við hafnarsvæði, í tengslum við ferðaþjónustu.
Landbúnaður Við ætlum að standa vörð um sveitirnar okkar. Það þarf að hlúa að þeim landbúnaði sem fyrir er. Lifandi landbúnaður og matvælaframleiðsla í sveitunum er það sem við öll viljum sjá.
Gæta þarf þess að landbúnaður hér geti þróast í takt við tækni og framfarir. Nauðsynlegt er að vera opin fyrir þeim breytingum sem aukin ferðaþjónusta hefur í för með sér á sama tíma og við varðveitum gæði sveitarinnar.
Umhverfi og útivist Umhverfið okkar er mikil auðlind sem bæði ber að nýta, virða og varðveita. Gæta þarf þess að nýting auðlinda sé sjálfbær og að ekki sé gengið á gæði náttúrunnar. Við viljum eflast enn frekar í umhverfismálum og þannig stuðla að því að stofnanir, einstaklingar og fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð. Náttúra og umhverfi Grundarfjarðar er einstakt útivistarsvæði og hefur uppá fjölmargt að bjóða. Verkefnið í Þríhyrningnum mun færa honum sitt mikilvæga hlut verk aftur, þ.e. að vera skemmtilegt fjölskyldu- og útvistarsvæði, auk þess að vera kjörið útikennslusvæði. Við ætlum að halda áfram að hlúa að opnum svæðum bæjarins, til dæmis með auknum gróðri og leiktækjum. Þá ætlum við að fjölga bekkjum við göngustíga bæjarins. Eftirtektarverður kraftur hefur verið í skíðafólki að undanförnu og eru uppi hugmyndir um bætta aðstöðu með stækkun skíða svæðisins. Við munum greiða fyrir þeirri vinnu eins og kostur er. Í framtíðinni væri gaman að sjá hjólaleiðir í kringum bæinn okkar í samræmi við nýtt aðalskipulag. Samfelld hjólaleið um Snæfellsnesið yrði mikið framfaraskref fyrir svæðið allt. Í svæðis skipulagi fyrir Snæfellsnes er gert ráð fyrir uppbyggingu slíkra ferðaleiða. Þar er á ferðinni spennandi samvinnuverkefni sem er þegar hafið í umsjón Svæðisgarðsins Snæfellsness.
Markaðs- og menningarmál Á undanförnum árum hefur dugmikið fólk, listamenn, félaga samtök og fyrirtæki fært samfélaginu frábæra menningartengda starfsemi. Menning birtist okkur í allskonar myndum, stórum sem smáum, og flest höfum við þörf fyrir menningu af einhverju tagi. Við ætlum í breiðu samstarfi að styðja enn frekar við menningu til að auka lífsgæði íbúa. Fylgja þarf eftir einföldum en áhrifaríkum leiðum til að laða enn frekar að kvikmyndagerðarfólkog verkefni. Áfram megi nýta húsnæði í eigu sveitarfélagsins undir menningarviðburði svo lengi sem Grundarfjarðarbær er ekki í virkri samkeppni við aðra sem geta boðið fram húsnæði á svæðinu. Við erum þakklát fyrir og stolt af óeigingjörnu og mikilvægu starfi félagasamtaka í Grundarfirði og viljum eiga í góðu samstarfi við þau.
Við ætlum að taka vel á móti öllum nýjum íbúum og við viljum stuðla að því að hér verði oftar í boði íslenskunámskeið fyrir alla aldurshópa og móðurmálskennsla fyrir börn og ungmenni af erlendum uppruna. Grundarfjörður er fjölskylduvænt og opið samfélag. Nútímaleg og framsækin markaðssetning á samfélaginu okkar er nauðsynleg til áframhaldandi framþróunar og fólksfjölgunar. Við viljum styðja við framtakssama og hugmyndaríka íbúa. Uppbygging hefur farið fram í Sögumiðstöð sem þegar er farin að sanna sig sem mikilvæg samfélags- og menningarmiðstöð. Fjölbreytt félags- og menningarstarf bæjarbúa á þar sitt athvarf. Vinna við að varðveita myndir Bærings er mikilvæg og hefur vakið verðskuldaða ánægju íbúa og brottfluttra.
Skipulags- og umhverfismál Á liðnu kjörtímabili áttum við frumkvæði að því að stofna og byggja upp nýtt sameiginlegt svið umhverfis- og skipulagsmála með þremur öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi. Ráðinn var skipulagsfulltrúi, sem jafnframt er sviðsstjóri, og byggingarfulltrúi, auk aðstoðarmanna. Verksvið þeirra nær jafnframt yfir rekstur áhaldahúsa og eignaumsjónar sveitarfélaganna allra. Með breytingunni er stigið stórt skref í að styrkja stjórnsýslu skipulags- og byggingarmála, umhverfisstarf sveitarfélaganna, utanumhald eigna og eigin framkvæmda og ekki síst þjónustu við íbúa á viðkomandi sviðum. Á liðnu kjörtímabili lauk vinnu við endurskoðun Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar. Skipulagið er framsækið, með skýra sýn til framtíðar á þróun og uppbyggingu byggðar. Deiliskipulagsvinna fór fram við að koma að nýjum íbúðarhverfum á kjörtímabilinu og mun sú vinna halda áfram. Þá viljum við auglýsa og kynna frístundabyggð í nálægð við Grundarfjörð sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi. Ennfremur er hafin deiliskipulagsvinna á hafnarsvæði og undirbúningsvinna við deiliskipulag á Framnesi. Við ætlum að tryggja að alltaf sé til staðar úrval af lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Jafnframt ætlum við að leita samstarfs og hvetja til þess að íbúðar- og atvinnuhúsnæði verði byggt. Við viljum hefjast handa við að finna hentuga útfærslu fyrir miðbæjarreit Grundarfjarðar. Við upphaf þessa kjörtímabils var mikil áhersla lögð á að bæta ásýnd bæjarins. Það höfum við gert svo eftir er tekið. Við hófum
umfangsmiklar og tímabærar endurbætur á götum, gangstéttum og stígum. Þeirri vinnu munum við halda áfram, ásamt því að auka gróður í bæjarumhverfinu. Gönguvænn Grundarfjörður er samheiti fyrir þessar framkvæmdir, sem stuðla að auknu öryggi íbúa, bættum lífsgæðum og lýðheilsu, ásamt því að stórbæta ásýnd bæjarins.
Grunnþjónusta Grunnþjónusta á vegum ríkisins líkt og heilsugæsla, löggæsla og fleira er okkur öllum mjög mikilvæg og þar má ekkert gefa eftir. Við munum halda áfram baráttu okkar fyrir viðunandi þjónustu heimilislækna við íbúa í Grundarfirði en það samtal hefur staðið yfir allt kjörtímabilið. Löggæsla verður áfram að vera sýnileg. Við lofum að halda áfram öflugri hagsmunagæslu fyrir annarri sjálfsagðri grunnþjónustu,
þar má nefna samgöngur, framhaldsskóla, dvalarheimili og margt fleira. Nýverið samþykkti bæjarstjórn að vera þátttakandi í verkefninu „Römpum upp Ísland“ sem snýr að því að bæta aðgengismál hreyfihamlaðra í og við opinberar byggingar og mannvirki í sveitarfélaginu.
Fjármál og stjórnsýsla Við höfum sýnt ábyrgð og aðhald í fjármálastjórnun sveitar félagsins. Síðastliðið kjörtímabil höfum við gengið í gegnum heimsfaraldur en við stöndum samt á sterkum grunni og hefur reksturinn verið hallalaus í gegnum þetta tímabil.
höfum við lagt grunn að tekjuaukandi verkefnum, sem bæði snúa að uppbyggingu byggðar og eflingu þjónustu við íbúa.
Við eigum tækifæri til að auka tekjur bæjarins enn frekar. Það gerum við m.a. með áframhaldandi uppbyggingu Grundarfjarðarhafnar og að gefa ekki afslátt af gæðum þjónustunnar. Í aðalskipulagi
Til þess að fara í þá uppbyggingu sem nauðsynleg er á næstu árum munum við áfram stunda ábyrga fjármálastjórn, án óskyn samlegrar skuldsetningar.
Við viljum halda áfram að nýta það sem þegar er til staðar og styðja þannig þá þjónustu sem hér er.
Myndir eftir Tómas Frey Kristjánsson og Ágústu Einarsdóttur
Við minnum á kosningakaffi á kjördag frá 10 - 22 í Sögumiðstöðinni og svo kosningavöku á Bjargarsteini