Bæjarblaðið Jökull 1093. tbl.

Page 1

1093. tbl - 23. árg.

14. desember 2023

Helga Möller og Baklandið heimsóttu Snæfellsnes Helga Möller og Baklandið eru um þessar mundir á ferðalagi um Vesturland og Reykjanes og syngja jólin inn í hjörtu landsmanna. Hófu þau söngferðalagið í Samkomuhúsinu í Grundarfirði þann 6. desember síðastliðinn og færðu sig svo yfir í félagsheimilið Klif í Ólafsvík daginn eftir. Um var að ræða notalega kvöldstund og jólastemmingu þar sem Helga Möller og Grétar Lárus Matthíasson sungu fyrir gesti við undirspil Grétars á gítar, Kristins Gallager á bassa, Helga Víkingsson á trommur og Halla Hólms á píanó. Ferðalagi Baklandsins er ekki lokið en eftir að hafa spilað í Grundarfirði og Ólafsvík heldur hljómsveitin á fimm aðra staði, en síðustu tónleikarnir verða í Mosfellsbæ á Þorláksmessu. SJ

Jólatúlipanar Grundarfjörður 20. des - Snæfellsbær 21. des Sveitarf. Stykkishólmur 22. des (heimkeyrsla) opið verður í skúr að Garðaflöt 6 23. des Verð kr. 2.000,Hægt er að panta í síma 859 5710 eða senda skilaboð í Messenger.

Kveðja, Clemens


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Bæjarblaðið Jökull 1093. tbl. by Steinprent - Issuu