Bæjarblaðið Jökull 1087. tbl.

Page 1

2. nóvember 2023

1087. tbl - 23. árg.

Hrekkjavaka í Pakkhúsinu Hrekkjavakan er haldin 31. október ár hvert og þegar dagur­ inn lendir í miðri viku, líkt og í ár, notar heimsbyggðin oft helg­ arnar sitthvoru megin við daginn sjálfan til að halda upp á hann. Grímubúningar, grasker, draugar og leðurblökur eru áberandi á þessum tíma og halda vinnu­ staðir og heimili iðulega skemmti­ lega viðburði með drungalegum skreytingum. Í ár setti menningar­ nefnd Snæfellsbæjar Pakkhúsið í Ólafsvík í drungalega yfirhalningu og bauð bæjarbúum að eiga hrylli­ lega huggulega sam verustund sunnudaginn 29. október. Á staðnum var 10. bekkur Grunn­ skóla Snæfellsbæjar með kaffisölu og Ungmennaráð Snæfellsbæjar bauð upp á andlitsmálningu. Pakkhúsið var skreytt að ut­ an sem innan með drungalegum en fjölskylduvænum skreyting­ um sem bæði börn og fullorðn­ ir höfðu gaman af. Föndursmiðja var á staðnum fyrir áhugasama þar sem hægt var að föndra múmíu kertalukt eða hrekkjavöku skraut­ borða og á annarri hæð hússins var gestum boðið í draugaleit en 13 draugum hafði verið komið fyr­ ir á víð og dreif um safnið og mik­ ið kapp var lagt í að koma auga á þá alla.

Mikill fjöldi barna og unglinga í metnaðarfullum búningum mættu á viðburðinn ásamt for­ eldrum, systkinum, ömmum og öfum. Mikið líf var í Pakkhúsinu þennan dag og hver veit nema komin sé á árleg Hrekkjavöku­ hefð í Snæfellsbæ.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Nýtt ræsi á Hvalsá

SJ

Hleðsla á grjótgarðinum austan megin við félagsheim­ ilið Klif er komin langt á leið en þegar ljósmyndari átti leið hjá á dögunum var unnið við að steypa yfir ræsi á Hvalsá. Ver­ ið er að lengja ræsið sem upp­ runalega var þar. Aðalvinnu við uppsetningu nýs ræsis er lokið en nú á eftir að tengja það nýja við það gamla. Steypan fær svo

þrjár vikur til að þorna og verð­ ur þá gengið frá í kringum ræs­ ið og hlaðið yfir það. Grjótgarð­ urinn verður því heill og sam­ felldur yfir alla lengjuna. Í sam­ tali við Guðjón Björnsson hjá Vegagerðinni segir hann þessa framkvæmd verða til mikilla bóta en Vegagerðin í Ólafsvík er með verkið og Narfeyri ehf hefur séð um uppslátt og steypu. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.