1030. tbl - 22. árg.
25. ágúst 2022
Endurhleðsla Ólafsvíkurréttar langt komin Ólafsvíkurrétt hefur tekið á sig nýja mynd en síðan árið 2014 hefur Guðrún Tryggvadóttir staðið að átaksverkefni sem varðar endurhleðslu réttarinnar. Réttin var líklega hlaðin fyrst á árunum 1956 til 1958 en stóð svo óáreitt um tíma og þótti Guðrúnu leitt að sjá réttina hverfa undir gróður svo hún tók málin í sínar hendur. Að verkefninu kemur teymi af öflugum sjálfboðaliðum og Ari Jóhannesson, hleðslumaður, og hafa þau endurhlaðið réttina einn dilk í einu. Verkefnið er fjármagnað með styrkjum og á hverju sumri síðan 2014 hefur teymið unnið í hleðslu réttarinnar en fer það þó eftir fjármagni hverju sinni hve lengi er unnið. Nú níu árum síðar er réttin að nálgast upprunalegt horf og orðin að fallegri perlu við skógræktina í Ólafsvík. sj
Ingólfur Gissurarson
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Löggiltur fasteignasali og ábyrgðaraðili 896-5222 ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala hefur selt fasteignir á Snæfellsnesi sl. 25 ár. Við höfum mikila þekkingu og reynslu sem tryggir viðskiptavinum örugg og ánægjuleg viðskipti. Valhöll er í hópi frammúrskarandi fyrirtækja skv, Credit-info síðastliðin 8 ár (2% fyrirtækja á Íslandi).
Við erum reiðubúin til þjónustu fyrir þig. Pétur Steinar Jóhannsson
aðstoðarmaður Ingólfs í Snæfellsbæ. 893-4718 psj@simnet.is
Tímapantanir í síma 436-1111
Sr. Aðalsteinn tekur við Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli Séra Óskar Ingi Ingason hefur látið af störfum í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli og þann 8. ágúst síðastliðinn tók Séra Aðalsteinn Þorvaldsson við prestakallinu um óráðinn tíma. Séra Aðalsteinn er fyrir sóknarprestur í Setbergsprestakalli og hefur gegnt því starfi síðan 2008 en nú mun hann sinna báðum prestaköllum. Aðspurður segir Séra Aðalsteinn að verið sé að skipuleggja þá þætti starfsins sem hægt er að skipuleggja og koma hlutunum af stað. Guðþjónusta í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli verður með hefðbundnu sniði og verið er að taka eitt skref í einu. Frekara starf þurfi svo að ræða og skoða betur. Þá segir hann að það auðveldi skipulagið til muna að hafa öflugt fólk innan kirkjunnar, kórstjóra, organista og meðhjálpara svo eitt-
hvað sé nefnt. Veturinn byrjar með krafti hjá Séra Aðalsteini en hann mun
leggja land undir fót með tilvonandi fermingarbörnum frá bæði Grundarfirði og Snæfellsbæ þann
4. september í fermingarbúðir í Vatnaskógi. sj
Ráðherra óháð staðsetningu Skrifstofa háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra starfar um þessar mundir óháð staðsetningu. Ráðherrann, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var með aðstöðu í samvinnurýminu í Röstinni á Hellissandi þann 18. ágúst og sinnti þaðan daglegum verkefnum. Um morguninn var opinn viðtalstími þar sem bæjarbúar gátu rætt við hana, komið með athugasemdir og viðrað hugmyndir sem tengjast málefnum ráðuneytisins. Áslaug nýtti daginn vel í að kynna sér ýmiss konar starfsemi í bæjarfé-
laginu í fylgd bæjarstjóra og bæjarfulltrúa D-listans í Snæfellsbæ. Þau heimsóttu meðal annars Saltport á Hellissandi, listarýmið 3 Veggir, þjóðgarðsmiðstöðina, Sjóminjasafnið á Hellissandi og Frystiklefann. Um kvöldið var opinn fundur í Frystiklefanum þar sem hún kynnti starfsemi ráðuneytisins og sína framtíðarsýn. Áslaug hafði orð á því hversu snyrtilegt bæjarfélagið er og kom það henni á óvart hversu fjölbreytt starfsemi á sér stað í Snæfellsbæ. jj
ÁRALÖNG ÞEKKING OG REYNSLA AF FASTEIGNAMARKAÐI Á VESTURLANDI
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
BOGI MOLBY Löggiltur fasteignasali
699 3444 molby@fastlind.is
Póstbox væntanleg í Snæfellsbæ Töluverðar breytingar verða á starfsstöð Póstsins í Snæfellsbæ í haust. Bæði er verið að ráða inn nýja starfsmenn í fyrri stöðugildi auk þess að þjónusta við bæjarbúa mun aukast. Sú þjónusta sem átt er við eru svokölluð póstbox. Með haustinu verða sett upp póstbox á Hellissandi og í Ólafsvík en slík box eru nú þegar aðgengileg í Grundarfirði og í Stykkis-
hólmi. Hægt er að sækja og senda pakka með þessari þjónustuleið. Póstboxin eru opin allan sólarhringinn og verður því aðgengi að slíkri þjónustu ekki lengur takmarkað við opnunartíma pósthússins. Á meðfylgjandi mynd er Guðmundur Gísli Svavarsson nýráðinn afgreiðslustjóri í Ólafsvík. jj
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Getraunir 1x2 Menn voru greinilega ryðgaðir eftir sumarið, í úrslita ágiskunum síðasta laugardag, því aðeins einn tippari var með 9 rétta, aðrir minna. Nokkrir með 4-5 rétta. Eftir á, það er þegar farið er yfir úrslitin, var svo sem engin óvænt úrslit, en þau voru bara ekki í samræmi við það sem okkar fólk var að gera. Við ætlum samt að halda áfram og gera bara betur næst, eins og sagt er. Þess vegna verðum við í Átthagastofunni á laugardaginn á milli klukkan
11.00 og 12.00. Það verður leikur hjá Víking klukkan 16.00 við KF og því tilvalið að koma og tippa á nokkrar raðir og ræða um leikinn. Þess má geta að núna kostar röðin aðeins 13 krónur og því er seðill með 64 röðum, sem er mjög vinsæll, á kr. 832 krónur. Ef einhver hefur áhuga á að taka þátt í hópseðlinum, þá er hægt að bæta við. Við verðum með getraunakaffi á könnunni. Áfram Víkingur óhs
Aflafréttir Forstöðumaður Ásbyrgis í Stykkishólmi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns Ásbyrgis, hæfingar - og vinnustöðvar fólks með skerta starfsgetu. • Leitað er einstaklings með háskólamenntun og eða aðra þá menntun er nýtist í auglýstu starfi • Viðkomandi hafi til að bera hæfileika til forystu, samvinnu og góðra samskipta og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu. • Góð íslenskukunnátta, stundvísi, vilji og metnaður til að leiða markvert starf í góðri sátt og samleið aðila, - eru mikilvæg viðmið starfsins. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skriflegar umsóknir um starfið er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 20. september 2022 Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær; sveinn@fssf.is www.fssf.is
Nú þegar farið er að styttast í nýtt kvótaár fjölgar hægt og rólega þeim bátum sem eru aftur farnir að róa. Dagana 15. til 21. ágúst komu alls á land í höfnum Snæfellsbæjar 261 tonn í 39 löndunum. Í Ólafsvíkurhöfn var landað 159 tonnum í 23 löndunum, í Rifshöfn 99 tonnum í 15 löndunum og á Arnarstapa 3 tonnum í 1 löndun en engir bátar hafa landað þar síðustu vikur. Hjá litlu línu bátunum landaði Rán SH 16 tonnum í 4, Brynja SH 14 tonnum í 3, Indriði BA 12 tonnum í 2, Gullhólmi SH 6 tonnum í 1 oh Þerna SH 3 tonnum í 2 löndunum. Hjá dragnóta bátunum landaði Steinunn SH 94 tonn í 5, Bárður SH 73 tonnum í 2, Ólafur Bjarnason SH 17 tonnum í 1 og
Esjar SH 11 tonnum í 1 löndun. Fáir handfæra bátar hafa landað undanfarið enda strandveiðum lokið þetta árið fyrir nokkru síðan. Í Ólafsvíkurhöfn lönduðu 5 bátar 9 tonnum í 9 löndunum og í Rifshöfn 5 bátar 5 tonnum í 9 löndunum þessa daga. Í Grundarfjarðarhöfn komu á land 234 tonn í 9 löndunum þessa sömu daga og fjölgar bátum þar einnig sem komnir eru aftur af stað. Hjá botnvörpu bátunum landaði Frosti ÞH 119 tonnum í 2, Runólfur SH 55 tonnum í 1 og Hringur SH 54 tonnum í 1 löndun. Fimm handfæra bátar lönduðu í Grundarfjarðarhöfn þessa daga og lönduðu þeir 5 tonnum í 5 löndunum. þa
Vegglistanámskeið í Grundarfirði
Í ágúst fór fram námskeið í skapandi vegglist í Grundarfirði. Námskeiðið var frá 8. til 18. ágúst fyrir börn fædd á árunum 2006 til 2010 og voru 13 börn skráð. Dagný Rut Kjartansdóttir sá um námskeiðið en hún er með meistaragráðu í kennsluréttindum með áherslu á listsköpun frá Háskóla Íslands. Dagný leggur mikla áherslu á að efla börnin í sjálfstæði í vinnu og nota listina til þess að auka andlega vellíðan og sjálfsöryggi. Með námskeiðinu fengu börn tækifæri til
að taka þátt í uppbyggingu listastarfs í bænum ásamt því að vera höfundar að upprennandi listsköpun í bænum. Einnig var farið yfir virðingu á eignarhaldi og muninn á milli listsköpunar og skemmdarverka. Á meðan á námskeiðinu stóð rigndi vel í Grundarfirði svo námskeiðið fór að mestu fram inni í gamla spennistöðvarhúsi RARIK/Landsnets sem er nú í eigu Grundarfjarðarbæjar.
Kynningarfundur um Sjóböðin
sj
Kynningarfundur var haldinn í Röstinni 18. ágúst síðastliðinn þar sem farið var yfir lýsingu á fyrirhuguðum Sjóböðum í Krossavík. Hildigunnur Haraldsdóttir kynnti breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi á Krossavík fyrir gestum fundarins, Kári Viðarsson fór yfir fyrstu drög af hönnun Sjóbaðanna og Páll Kr Pálsson renndi yfir rekstraráætlun. Fundurinn var fyrsti kynningarfundur verkefnisins
en aðstandendur þess vildu gefa íbúum innsýn snemma í ferlinu og sátu fyrir svörum á fundinum. Ýmislegt kom fram, almennar vangaveltur, aðilar sem voru alfarið á móti framkvæmdinni og aðrir sem lofuðu verkefnið. Ennþá er opið fyrir ábendingar og fyrirspurnir en hægt er að koma þeim áleiðis á netfangið byggingarfulltrui@snb.is.
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617
sj