Bæjarblaðið Jökull 1003. tbl

Page 1

Ólafsbraut 55, Ólafsvík Sími: 436 1212

1003 tbl - 22. árg.

13. janúar 2022

Skemmdir á vegum vegna sjógangs

Djúpar lægðir hafa verið fyrir­ ferðamiklar á nýja árinu og létu þær finna fyrir sér á mið­viku­ daginn og fimmtudaginn í síðustu viku. Mjög hvasst var þessa daga og sérstaklega á mið­viku­dags­ morguninn, var meðal annars skólahaldi aflýst í Grunnskóla Snæ­ f ellsbæjar norðan heiðar

þann dag. Einnig var búið að gera ýmsar ráðstafanir vegna sjávarstöðu en hún var há báða dagana og höfðu sjómenn unnið að því dagana á undan að ganga frá bátum sínum sem best og öðru sem þeim fylgir. Engir bátar voru í höfninni á Arnarstapa á fimmtudeginum en kassastæða

Jökull á Issuu

Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér að ofan með myndavélinni í símanum.

færðist þar til þegar sjór gekk upp á bryggjuna. Sjór gekk yfir þjóðveginn við Ólafsvík á fimmtudeginum og var þjóðveginum lokað um tíma á meðan sjávarstaða var sem hæst og verið var að hreinsa hann. Umferðaróhapp varð á þjóð­ veginum inn við Bug á fimmtu­

dags­morgninum þegar bíll skrik­ aði í vatni og lenti utan í grjót­ garði. Ökumanninn sakaði ekki en bíllin skemmdist lítilsháttar. Björgunarsveitin Lífsbjörg var að sjálfsögðu í viðbragðsstöðu þessa daga en sem betur fer voru útköllin fá ef nokkur. þa

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.