Skip to main content

Íþrótta- og tómstundablað Jökuls 2018

Page 1

ÍÞRÓTTASUMARIÐ 2018 Íþrótta- og tómstundablað Jökuls

• Viðtal við Kristófer Jónasson • Kynning á leikmönnum mfl. • Viðtal við Kristrúnu Guðnadóttur

• Myndir frá endurbótum á Ólafsvíkurvelli • Leikdagar mfl. karla • Smásögur og fleira.


Ný aðstaða bætir umgjörð leikja Miðað við það sem ég hef séð til liðsins nú í vor þá finnst mér það líta vel út og hlakka til að fylgjast með.

Kæru lesendur. Framundan er spennandi fótboltasumar hjá okkur Víkingum. Það verður gaman að fylgjast með árangri okkar fólks í sumar. Við höfum á að skipa mörgu góðu knattspyrnufólki sem hefur náð langt í greininni og m.a. komist í landslið okkar í mörgum aldursflokkum sem segir margt um það góða starf sem hér er unnið. Í sumar mun meistaraflokkur karla keppa í Innkasso-deildinni og verður spennandi að sjá hvernig okkur mun vegna þar.

Í sumar verður í fyrsta sinn spilað á nýjum gervigrasvelli í Ólafsvík. Það verður spennandi að sjá hvað hann gerir fyrir knattspyrnuna hjá okkur. Ég hef þá trú að ný aðstaða muni gera alla umgjörð leikja mun skemmtilegri og að flestir leikir hjá öllum aldursflokkum geti farið fram á nýja vellinum sem og að tímabilið sem hægt verður að stunda knattspyrnu utanhúss verði mun lengra en við höfum áður þekkt. Vandað hefur verið til verka við byggingu vallarins og ekkert til sparað svo hann verði sem glæsilegastur m.a. var tekin ákvörðun um að hafa lýsingu á vellinum, vökvunarkerfi og í byggingu er vallarhús. Það er tilhlökkun í loftinu og vonandi uppskerum við vel í haust. Kristinn Jónasson

HÓTEL ÓLAFSVÍK

ÍÞRÓTTASUMARIÐ Útgefandi: Prentsmiðjan Steinprent Ritstjóri: Ólafur Hlynur Steingrímsson Upplag: 1.500

Sundlaugin í Ólafsvík

Opnunartími Virkir dagar Helgar

7:30 - 21:00 10:00 - 17:00

Börnum yngi en tíu ára er óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er fimmtán ára eða eldri. Ábyrgðarmaður tekur fulla ábyrgð á barni og fylgir því alltaf hvort sem er í lauginni eða í pottunum. ATH.: hætt er að hleypa ofan í laugina 30 mínútum fyrir lokun.


www.n1.is

facebook.com/enneinn

instagram.com/enneinn

Áfram Víkingur! Gangi ykkur vel í sumar

N1 er bakhjarl KSÍ


Landsmótið á Akureyri 1955 eftirminnilegast Það var einn góðviðrisdag núna í byrjun mars, að ég mælti mér mót við Kristófer S. Jónasson, sem flestir þekkja sem Kiddó. Hinn síungi heldri borgari, sem ber aldurinn einstaklega vel, er fæddur á sunnanverðu Nesinu, nánar tiltekið á Arnarstapa, en flutti síðan til Ólafsvíkur í kringum 17 ára aldurinn. Hann lærði vélstjórn og byrjaði til sjós 18 ára. Ástæðan fyrir áhuga mínum á að spjalla við hann, er hans langi og sérstaki ferill í íþróttum, en hann er ennþá að keppa, rúmlega áttræður.

Kviknaði snemma áhugi á íþróttum hjá þér? Já, þetta byrjaði þannig að ég var að æfa með frænda mínum og jafnaldra, Svavari Markússyni, sem varð seinna landsþekktur íþróttamaður, en hann var á sumrin á Arnarstapa og var að æfa sig. Hann smitaði mig. Við vorum þá 13 ára. Hann hafði bara áhuga á frjálsum íþróttum og þess vegna hneigðist hugurinn að þeim greinum. Aðallega spretthlaupum, spjótkasti, langstökki og þrístökki. Ég hafði ekki mikinn áhuga á fótbolta og ég spilað bara nokkra fótboltaleik með strákunum, sá eftirminnanlegasti var suður í Borgarnesi.

Mannstu eftir fyrsta mótinu, sem þú tókst þátt í og í hvaða íþróttagreinum? Ég fór að bera árangur minn saman við héraðsmótin, sem voru ávallt í Skinfaxa, en það blað kom þá út og var til heima. Þá gat ég borið minn árangur saman við listann og æft mig betur í þeim greinum sem ég vildi ná árangri í. Ég fór á héraðsmót í Stykkishólmi, 16 ára og keppti í nokkrum greinum og varð í öðru sæti í þrístökki. Ég var með næstbesta árangur í landinu í einni grein, en var þó ekki beðinn um að

koma í landsliðið, nema sem varamaður. Á þeim tíma var landsliðið skipað tveim mönnum í hverri grein og einn til vara. Á héraðsmótunum mátti keppa í öllum greinum sem maður vildi og maður fékk stig fyrir fjögur fyrstu sætin, en seinna var því breytt og þá mátti bara keppa í fjórum

greinum. Ég keppti einu sinni í öllum greinum, nema kúluvarpi og 1500 m. hlaupi.

Var einhver æfingaaðstæða hér í Ólafsvík? Nei, nei, blessaður vertu, það var bara fjaran og sléttir blettir hingað og þangað. Enda lítið lagt upp úr þessu, þar sem mjög fáir höfðu áhuga. Ég útbjó mér stökkgryfju út á Arnarstapa, en ekki hérna. Það voru fáeinir sem voru að æfa á þessum tíma, ég man þó t.d. eftir Jónatan Sveins, en hann æfði bara kúluvarp, kringlukast og spjótkast. Hann var mjög góður í þeim greinum. Svo var Leifur Halldórsson góður kastari, en þeir voru ári eldri en ég. Seinna bættist svo Gylfi Magg. í hópinn.

Hvert er eftirminnilegasta mótið, eða afrekið? Ætli að eftirminnilegast sé ekki Landsmótið á Akureyri 1955, en þar lenti ég í öðru sæti, bæði í þrístökki og langstökki. Sá sem vann var Vilhjálmur Einarsson! Þetta var mjög skemmtilegt mót. Svo er eftirminnilegt þegar ég varð Íslandsmeistari


Hvenær tókstu þátt í móti síðast?

á drengjamótum fyrir sunnan. Þar var mikil keppni og skemmtileg. Ég sigraði einu sinni í hástökki, stökk 1,73 metra, en þá notaði ég svokallaðann saxstíl þ.e. maður sveiflaði fótunum yfir slánna, og var svona eins og í sitjandi stöðu. Það þótti sérstaklega gott að ná þeirri hæð með þeim stíl. Seinna skipti ég yfir í grúfustíl, en það er vænlegri aðferð til árangurs. Á þeim tíma var bara sandgryfja, svo menn urðu að koma niður á fæturna. Eitt mót í Stykkishólmi er líka mjög eftirminnilegt. Þá kom hópur manna frá Reykjavík til keppni við HSH. Ég tafðist og kom of seint til mótsins, því oft var erfitt að komast á milli, lítið um bíla. Þegar ég mætti, var keppni í langstökki hafin. Ég fékk þó að taka þátt, þó seint kæmi og vann, mjög óvænt.

Það var í fyrra (2017), á Evrópumeistaramóti og þá komst ég í úrslit í tveim greinum, spjótkasti og þrístökki, sem ég er bara ánægður með. Svo er mót framundan, þ.e. kappamótið svokallaða, sem er haldið í Reykjavík núna í maí. Ég ætla að mæta þar, en strákarnir, kunningjar mínir, sem eru í bænum eru alltaf að hvetja mig til að koma og vera með. Á með skrokkurinn leyfir þá reyni ég að taka þátt. Kristófer kastar kringlu árið 1952 á sandinum fyrir neðan gamla kaupfélagið, nú Hótel Ólafsvík.

Varst þú ekki kosin íþróttamaður HSH, og hvenær var það?

Var ekki erfitt að stunda íþróttir með sjómennskunni? Jú það var ekki hægt. Við fórum yfirleitt norður, á síld yfir sumartímann og svo á vetrarvertíð, þannig að það gafst ekki tími til æfinga eða keppni. Það leiddi til þess að ég hætti, eða réttar sagt tók ég mér hlé þegar ég var 21. árs. Síðan byrjaði ég að æfa aftur, aðallega svona að gamni mínu, þegar ég var rúmlega fimmtugur. Ég byrjaði aftur, í og með vegna þess að þá voru öldungamótin komin í gang og ég vildi taka þátt og styðja það að þau héldu áfram. Ég var í nokkuð góðu formi og vildi kanna hvort að ég ætti ekki í fullu tré við jafnaldra mína.

Jú það var 2000, ef ég man rétt. Það er gaman að fá þannig viðurkenningu. Uppi á vegg hjá Kiddó sé ég tugi, ef ekki hundruð verðlaunapeninga. Einnig margir bikarar og verðlaunagripir á hillum. Ég hef verið að fara á Norðurlandamót og hef unnið til verðlauna á þeim, segir Kiddó og sýnir mér í safninu a.m.k. 6 verðlaunapeninga frá Norðurlandamótum. Á öldungamótum er keppendum yfirleitt skipt upp í aldurshópa, en gjaldgengir á öldungamót eru karlar, sem eru 35 ára og eldri og konur, sem eru 30 ára og eldri. Síðan eru keppendur flokkaðir með 5 ára aldursmun, þ.e. 35-40 ára keppa saman og 40-45 ára og svo framvegis. Ég keppti aðallega í stökkum, en núna meira í köstum.

Ertu ennþá að æfa eitthvað? Hér er ennþá engin útiaðstaða, fyrir þessar íþróttir, þ.e. engin kasthringur, stökkgryfja eða annað. Þannig að það er nú lítið sem ég get æft, en er svolítið niður á Sáinu á sumrin. Ég lenti í því á móti á Selfossi að snúa á mér vinstra hnéð, en ég stökk alltaf upp af vinstri fæti. Ég gat samt breytt stílnum og núna beiti ég aðallega hægri fæti allavega á meðan það hné endist og svo sjáum við til hvað verður. Eins og ráða má af síðustu setningunni hjá Kiddó, er hann ekkert á þeim buxunum að leggja íþróttaskóna á hilluna, enda engin ástæða til á meðan hann hefur gaman af því sem hann er að gera. Við óskum þessum mikla íþróttamanni góðs gengis í komandi keppnum.

Hjá okkur getur þú fyllt tankinn og magann bæði fyrir og eftir leik

Pizzu tilboð

Hamborgara tilboð Við Ólafsbraut · Ólafsvík · Sími: 436 1012

SÖLUSKÁLI, GRILL, PIZZUR VERSLUN OG BENSÍNSTÖ‹

óhs


Samstarfssamningar endurnýjaðir

Á fótboltadeginum í Ólafsvík þann 10. maí sl. undirrituðu forsvarsmenn UMF Víkings/Reynis, UMFG Grundarfirði og Snæfellsnessamstarfsins í knattspyrnu áframhaldandi samstarfssamninga við Landsbankann á Snæfellsnesi. Samningarnir eru allir til þriggja ára og gilda út árið 2020.

SUMARVÖRURNAR FÆRÐU Í SKIPAVÍK Málningarvörur frá Slippfélaginu viðarpallaolía, fúavörn og ýmislegt fleira fyrir pallinn.

TREK hjól og ýmsar hjólavörur frá Erninum færðu í Skipavík. Nesvegi 20 340 Stykkishólmur Sími: 430 1400 skipavik@skipavik.is www.skipavik.is


Norðurþing Bolungarvíkurkaupstaður

Tjörneshreppur

Ísafjarðarbær Súðavíkurhreppur

Skagabyggð Sveitarfélagið Skagafjörður Höfðahreppur

Akrahreppur

Fjallabyggð

Grýtubakkahreppur

Skútustaðahreppur

Svalbarðshreppur Langanesbyggð

Dalvíkurbyggð Svalbarðsstrandarhreppur Þingeyjarsveit Hörgársveit

Árneshreppur

Akureyrarkaupstaður

Eyjafjarðarsveit

Strandabyggð Kaldrananeshreppur Vesturbyggð Vopnafjarðarhreppur

Blönduósbær

Tálknafjarðarhreppur

Húnaþing vestra Húnavatnshreppur

Fljótsdalshérað Reykhólahreppur Dalabyggð Borgarfjarðarhreppur

Stykkishólmsbær Helgafellssveit Grundarfjarðarbær

Seyðisfjarðarkaupstaður Fjarðabyggð

Snæfellsbær

Fljótsdalshreppur

Eyja- og Miklaholtshreppur Borgarbyggð Akraneskaupstaður Skorradalshreppur Hvalfjarðarsveit

Breiðdalshreppur

Kjósarhreppur Garðabær Seltjarnarnesbær

Djúpavogshreppur

Hafnarfjarðarkaupstaður Kópavogsbær Mosfellsbær Sveitarfélagið Vogar Reykjavíkurborg Reykjanesbær Sveitarfélagið Garður Sandgerðisbær Sveitarfélagið Hornafjörður

Grindavíkurkaupstaður Skeiða- og Gnúpverjahreppur Sveitarfélagið Ölfus Flóahreppur Hveragerðisbær Grímsnes- og Grafningshreppur Sveitarfélagið Árborg

Skaftárhreppur

Hrunamannahreppur

Bláskógabyggð Vestmannaeyjabær

Rangárþing ytra Rangárþing eystra

Ásahreppur Mýrdalshreppur

Brandenburg

Rafbraut um Ísland Ísland er í lykilstöðu til að leiða rafbílabyltingu heimsins. Því tók Orkusalan af skarið og gaf öllum sveitarfélögum landsins hleðslustöð fyrir rafbíla. Þetta gerðum við með það að leiðarljósi að auka þjónustu við rafbílaeigendur og gera þeim kleift að keyra hringinn í kringum landið, ávallt með fullan rafgeymi. Verkefnið er einstakt á heimsmælikvarða og risastórt skref í átt að rafbílavæddu Íslandi, með minni útblæstri og meiri virðingu fyrir náttúrunni.

422 1000

orkusalan@orkusalan.is

orkusalan.is

Finndu okkur á Facebook


Skíðastelpa frá Ólafsvík heimsækja fjölskylduna, halda námskeið á gönguskíðum og keppa. Þegar Kristrún talar um skíðaíþróttina talar hún af mikilli ástríðu og eru þau hennar aðaláhugamál en þess utan að vera með vinum og horfa á góða þætti. Hingað til hefur hún einnig spilað fótbolta og þá á haustinn og vorinn og er þetta í raun fyrsta árið sem hún gerir það ekki. Kristrún flutti ung til Noregs en á sterkar taugar til Ólafsvíkur og Snæfellsnessins, hefur hún alltaf talið það heima en hún bjó í nokkur ár á Akranesi áður en hún flutti til Ólafsvíkur með foreldrum sínum þeim Friðgerði Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og Guðna Gunnarssyni sjávarútvegsfræðingi sem starfar nú sem leiðsögumaður en áður fiskverkamaður. Kristrún á tvö yngri systkini þau Hauk og Eddu.

Aðstaðan var forréttindi Kristrún Guðnadóttir er tvítug og býr í Noregi. Þar stundar hún nám við Íþróttaháskólann í Osló. Kristrún ólst upp í Ólafsvík en hún flutti ásamt fjölskyldu sinni til Noregs þegar hún var 12 ára gömul. Kristrún æfir gönguskíði af fullum krafti og á sér stór markmið á því sviði. Hún stefnir á að keppa fyrir Ísland á HM á næsta ári og að fara á næstu vetrarólympíuleika og keppa í skíðagöngu fyrir Íslands hönd en þeir verða haldnir í Kína 2022. „Mig langar ekki að fara sem túristi heldur keppandi og vonandi að fá einhverja aðra stelpu með mér frá Íslandi”. Áður en að því kemur ætlar hún þó að ná á Heimsmeistaramótið 2019 sem haldið verður í Austurríki og jafnvel Heimsmeistarmót undir 23ja ára sem haldið er á hverju ári. En ekki er alltaf sendir keppendur á það frá Íslandi og langar hana að vinna í því. Hefur hún fulla trú á að þessi metnaðarfullu markmið hennar náist. En hver er hún þessi unga stúlka með stóru markmiðin. Blaðamaður hitta hana um páskana þegar hún var stödd á Íslandi til að

Þegar talið barst að Ólafsvík og tímanum sem hún bjó hér brosti hún og sagði „Ólafsvík er fallegasti staður á Íslandi og mér finnst ræturnar vera hér því árin sem við fjölskyldan bjuggum í Ólafsvík mótuðu mig

mikið bæði gagnvart íþróttum og öðru”. Mamma hennar er einnig alin upp á Rifi og tengingin því mikil. Aðspurð um hvaðan þessi mikli áhugi fyrir íþróttum væri komin segir hún „íþróttir hafa alltaf verið í kringum mig, mér fannst líka frábært að þegar ég bjó í Ólafsvík gat ég æft allar þær íþróttir sem mig langaði til og bjó ég nánast í íþróttahúsinu og sundlauginni eftir skóla”. Kristrún eyddi miklum tíma í íþróttahúsinu en hún æfði sund, blak, fimleika, frjálsar og fótbolta og var hann henni mikilvægastur á þessum tíma. Sagði hún að þjálfararnir hafi verið mjög góðir með mikinn aga og fannst henni það gott. Voru það mikil viðbrigði þegar hún flutti til Noregs hversu miklu öðruvísi þjálfarar voru þar í fótboltanum en hún æfði hann af miklum krafti fyrst eftir að hún flutti út. „Ég hef samt alltaf hafa þurft að hafa mikið fyrir íþróttunum en það er svo gaman að það skiptir engu”. Fannst henni forréttindi hversu góð aðstaða var í íþróttahúsi Snæfellsbæjar og það að þurfa ekki að láta keyra sig á allar æfingar heldur geta gengið sjálf. Oft tók hún með sér nesti þar sem hún var ekki búin á æfingum fyrr

FISKMARKAÐUR SNÆFELLSBÆJAR

Sími: 431 3600 - fmsnb@simnet.is - Farsímar: 853 1002 & 853 1003


en um kvöldmat enda mikið að gera þegar margar íþróttir eru æfðar. Segir Kristrún að hún ætli sér bara að bjarga sér og ná langt. Hún býr nú ein í Noregi en fjölskylda hennar flutti til Íslands fyrir 5 árum, ákvað hún að koma ekki með heldur fara í skóla í Noregi og æfa skíðaíþróttina. Sér hún sjálf um að koma sér á mót og allt sem fylgir. „Þetta gengur allt vel en er oft erfitt og dýrt því ég hef engann hérna úti þar sem mamma og pabbi búa á Íslandi”.

Ætlaði aldrei á þessa spítuplanka Það er nú ekki hægt að segja að fótbolti og skíði séu líkar íþróttir og aðspurð um hvenær áhuginn á skíðum hafi vaknaði segir Kristrún að þegar hún hafi flutt til Noregs hafi hún sko aldrei ætlað á þessa „spítuplanka” og átti þá við skíðin. Fjölskyldan flutti hins vegar á lítinn stað í Noregi og þar voru allir á skíðum og þá þurfti ég bara að vera með. Fyrstu jól fjölskyldunnar í Noregi fóŕu þau svo öll á skíði saman og þá var ísinn brotinn og féll hún alveg kylliflöt fyrir skíðagöngunni, sagði hún þá þessa setningu „og ég sem ætlaði aldrei að fara á þessa spítuplanka”. Þó svo að fótboltinn hafi alltaf heillað voru það

S í ð a n

1 9 9 5

Allir þurfa þak yfir höfuðið

Ingólfur Geir Gissurarson

Framkvæmdastjóri Lögg.fasteignasali og leigumiðlari

896 5222

Heiðar Friðjónsson

Sölustjóri Löggiltur fasteignasali B.Sc

693 3356

Margrét Úlfar Freyr Sigurgeirsdóttir Jóhansson

Herdís Valb. Hölludóttir

588 4477

694 6166

Skrifstofustjóri margret@valholl.is

588 4477

Lögfræðingur Hdl. Lögg. fasteignasali. Skjalavinnsla

692 6906

gönguskíðin sem höfðu betur á endanum, fannst henni fótboltinn orðinn svo einhæfur og segir hún að ekkert toppi það að æfa á skíðum í sól og góðu veðri. „Mér finnst ekkert betra en að klára mig alveg í keppni og koma í mark algjörlega búin á því”. Fjölbreytnin á æfingum í skíðagöngu er mikil og segir hún að í raun séu engar tvær æfingar eins yfir vikuna en hún æfir 7 til 10 sinnum í viku allt árið með skíðafélagi í Osló ásamt því að stunda nám í íþróttafræðinni en hugurinn stendur til þjálfunnar eða íþróttafræði. „Það er alla vega á hreinu að ég ætla að vinna við eitthvað tengt íþróttum” segir hún aðspurð. Segir hún námið ganga fínt en hún myndi vilja hafa meiri tíma en geti ekki gefið sér hann vegna æfinga. Því aðaláherslan sé núna á skíðin því þar sjái hún framtíð sína. „Núna snýst því allt um að ná markmiðunum mínum” sem eru eins og áður segir að komast á HM á næsta ári og Ólympiuleikana 2022. Kristrún hún keppir á gönguskíðum og þar eru tvær aðferðir „frjáls aðferð” og hefðbundin aðferð ég stunda báðar aðferðir af fullum krafti”. og hefur hún fulla Aðspurð um hvernig hún ætli að ná þessum markmiðum segir hún „Ég setti upp 4 ára plan í sambandi við nám og æfingar. Ætla að æfa áfram með félaginu mínu Lyn ski í Osló.” En tveir keppendur úr þessu félagi tóku þátt í Vetrarólympíuleikunum í Kóreu fyrr á þessu ári og unnu þeir báðir til verðlauna. Segist Kristrún vera svo heppin að æfa með systur annars þeirra.

Stefnir á A-landsliðið Kristrún hefur verið í B-landsliði Íslands í skíðagöngu og stefnir á að komast í A-liðið á þessu ári. Segist hún vera að banka á dyrnar þar en mjög vel hafi gengið með B-landsliðinu í vetur. Hefur hún keppt mikið í Noregi í vetur og gengið vel þar líka. Hún tók þátt í Íslandsmeistaramótinu sem fram fór 5. til 8. apríl og lenti þar í 2. sæti alla dagana í öllum fjórum keppnunum á mótinu en á eftir Elsu Guðrúnu Jónsdóttir Ólympíufara sem tók þátt í Ólympíuleikunum nú í vetur fyrir Íslands hönd. Á mótinu var keppt í sprettgöngu, 5 kílómetragöngu með hefðbundinni aðferð, 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð og boðgöngu. Var

Lögfræðingur og lögg.fasteignasali

Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarm. fasteignasala Snæfellsnesi

893 4718

Sturla Pétursson

Anna F. Gunnarsdóttir

899 9083

892-8778

Löggiltur fasteignasali

Löggiltur fasteignasali

Snorri Snorrason

Löggiltur fasteignasali Útibú Höfn Hornafirði

895-2115

Fagleg þjónusta Vönduð vinnubrögð

Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna! Reykjavík – Snæfellsbæ – Höfn Hornafirði

|

Sími 588 4477

|

w w w. v a l h o l l . i s


Kristrún best af ungu stelpunum í mótinu og hefur aldrei verið svona nálægt Elsu Guðrúnu. Veit þetta á gott fyrir framtíðina og markmiðin um að komast á HM og næstu Ólympíuleika.

Kostar sitt að keppa Að stunda og keppa í skíðagöngu er ekki ódýrt og alls ekki þegar markmiðin eru stór. Keppnis og æfingaáætlun Kristrúnar þetta árið hljóðar upp á 500.000 og eru það bara

æfinga og keppnisferðir. Er þá ekki tekinn með búnaður og fleira sem fylgir svo sem uppihald. Greiðir hún allan kostnað sjálf nema þegar hún er með landsliðinu þá þarf hún ekki að borga ferðirnar sjálfar en allt annað. Telur hún líklegt að heildarupphæðin sé í kringum 1.000.000 yfir árið og hún því alltaf að leita að leiðum til að fjármagna sig enda sé hún líka í námi. Nýtti hún tækifærið nú um páskana þar sem henni bauðst að halda námskeið á gönguskíðum fyrir börn

Smásögur úr boltanum Eitt sumarið í árdaga fótboltans, kom áskorun um leik við strákana í Hrútafirðinum. Illt var í efni, fáir heima enda flestir á síld. Ákveðið var þó að skrapa saman í lið og mæta. Ekki fer miklum sögum af leiknum, þar sem að norðanmenn unnu víst 4-1. Erfitt var að fá menn til að rifja upp þennan leik, utan þess að Jón Arngrímss., sem lék í vörninni, rifjaði alveg óvart upp atvik úr leiknum, sem var þannig að í eitt skipti þegar norðanmenn voru í sókn og há sending kom utan af kannti í átt að marki kallaði markmaðurinn „Hef‘ann, hef‘ann“ svo að Jón vék sér frá, en þegar hann leit við var boltinn í markinu og Gunni Gunn svolítið beygður yfir að hafa ekki náð boltanum, fyrr, en úr markinu.

og unglinga. Einnig var haldið styrktarmót í mars „Kristrúnarmótið” fyrir hana og var það gönguskíðafélagið Ullur sem stóð fyrir því til að styrkja hana, en Ullur er eina gönguskíðafélagið sem ekki er á Akureyri eða Ísafirði. Segist hún stundum hafa velt því fyrir sér hvort þetta sé þess virði og auðvitað er það þess virði þegar svona vel gengur segir hún. Finnst henni áhugi á íþróttinni vera að aukast á Íslandi sérstaklega hjá yngri iðkendum. Á síðasta ári fékk hún styrki frá Sjávariðjunni Rifi HF og Sandbrún ehf sem henni þótti mjög vænt um. Þó hún sé nú búsett í Noregi segist hún örugglega enda á Íslandi þó hún viti ekki hvenær og líklega ekki á meðan hún er á skíðunum en bestu árin þar eru frá 25 til 30 ára svo hún á sín bestu ár eftir. Hún er alla vega ákveðin í að standa sig og er ekki óhrædd við að setja sér stór markmið sem hún ætlar sér að ná. Það verður gaman að fylgjast með keppni kvenna á gönguskíðum á næstu vetrarólympíuleikum og vonandi eiga keppanda þar.

þa

Óskum Víkingum velfarnaðar í sumar

SEAFOOD

JÓNAS KRISTÓFERSSON HÚSASMÍÐAMEISTARI


Þegar Ólafsvíkurvöllur var þökulagður Meðfylgjandi myndir fann útgefandi Jökuls hjá sér en þrátt fyrir nokkra leit hefur ljósmyndarinn ekki fundist. Myndirnar voru teknar þegar verið var að þökuleggja Ólafsvíkurvöll. Völlurinn var vígður í júní árið 1984 en ekki þökulagður fyrr en haustið 1993, fyrsti leikur á þökulögðum vellinum var svo 18. júní 1994 gegn Golfklúbbi Grindavíkur (GG), leikurinn fór 7-0 fyrir Víking. (Heimild: Stílabók nr. 11 frá Helga Bjargar)


CHAR-BROIL GÆÐAGRILL GÓÐUR MATUR OG GLEÐI VIÐ GRILLIÐ

0:00 ENGAR ELDTUNGUR

MINNI GASNOTKUN

Í ALLRI VEÐRÁTTU

STYTTRI ELDUNARTÍMI

BETRI STJÓRN Á HITA

SAFARÍKARI MATUR

100% JAFN HITI

CHAR-BROIL BIG EASY

CHAR-BROIL GASGRILL

CHAR-BROIL GASGRILL

CHAR-BROIL TITAN GASGRILL

Steikarofn, reykofn og grill

Grillflötur 470x470 mm 2 brennarar

Grillflötur 670x470 mm 3 brennarar

Grillflötur 670x485 mm 3 brennarar

54.900

69.900

109.900 KR.

189.000

KR.

Ólafsbraut 55

Ólafsvík

KR.

Sími 436 1212

rekstrarland.is

KR.


Leikmenn Víkings í mfl. karla sumarið 2018

Francisco Mancilla

Konráð Ragnarsson

Alexander Helgi Sigurðarson

Emmanuel Eli Keke

Gonzalo Zamorano Leon

Hilmar Björnsson

Ibrahim Sorie Barrie

Ívar Reynir Antonsson

Bjartur Bjarmi Barkarson

Kristinn Magnús Pétursson

Kristófer James Eggertsson

Leó Örn Þrastarson

Michael Newberry

Sigurjón Kristinsson

Sumarliði Kristmundsson

Nacho Heras

Pape Mamadou Faye

Brynjar Vilhjálmsson

Pétur Steinar Jóhannsson

Vignir Snær Stefánsson

Emir Dokara

Ingibergur Kort Sigurðsson

Kwame Quee

Sasha Litwin Romero


Leikdagar mfl. karla Íslandsmót - Inkasso deild karla 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22

lau. 05. maí lau. 12. maí lau. 19. maí fös. 25. maí sun. 03. jún fös. 08. jún mið. 13. jún lau. 23. jún fös. 29. jún fim. 05. júl fim. 12. júl fös. 20. júl fim. 26. júl mið. 01. ágú fim. 09. ágú þri. 14. ágú lau. 18. ágú fös. 24. ágú sun. 02. sep lau. 08. sep lau. 15. sep lau. 22. sep

14:00 14:00 13:00 18:30 18:00 19:15 19:15 14:00 19:15 19:15 19:15 19:15 19:15 19:15 19:15 18:00 14:00 18:00 16:00 14:00 14:00 14:00

Ejub Purisevic þjálfari

Hertz völlurinn Kórinn Boginn Ásvellir JÁVERRK-völlurinn Eimskipsvöllurinn Ólafsvíkurvöllur Þórsvöllur Ólafsvíkurvöllur Njarðtaksvöllurinn Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Ólafsvíkurvöllur Leiknisvöllur Ólafsvíkurvöllur Norðurálsvöllurinn Ólafsvíkurvöllur Laugardalsvöllur

Antonio Grave sjúkraþjálfari

ÍR - Víkingur Ó. HK - Víkingur Ó. Magni - Víkingur Ó. Haukar - Víkingur Ó. Selfoss - Víkingur Ó. Þróttur R. - Víkingur Ó. Víkingur Ó. - Leiknir R. Þór - Víkingur Ó. Víkingur Ó. - ÍA Njarðvík - Víkingur Ó. Víkingur Ó. - Fram Víkingur Ó. - ÍR Víkingur Ó. - HK Víkingur Ó. - Magni Víkingur Ó. - Haukar Víkingur Ó. - Selfoss Víkingur Ó. - Þróttur R. Leiknir R. - Víkingur Ó. Víkingur Ó. - Þór ÍA - Víkingur Ó. Víkingur Ó. - Njarðvík Fram - Víkingur Ó.

Jóhann Pétursson formaður


VIÐ SETJUM NÝJAN SVIP Á INNHEIMTU SVEITARFÉLÖG Inkasso sérhæfir sig í að þjónusta sveitarfélög með það að markmiði að lækka álögur á íbúa. • • • • • •

Góður innheimtuárangur Lægri álögur á íbúa Sveigjanleiki Ekkert álag á niðurfellingarkostnað greiðenda Öll prentun og póstlagning Ekkert breytingargjald

Borgartún 27

Fjöldi sveitarfélaga nýtir sér þjónustu Inkasso. Góður árangur í innheimtu.

I 105 Reykjavík I Sími 520 4040 I www.inkasso.is I inkasso@inkasso.is


Framkvæmdir við endurbætur Ólafsvíkurvallar Í júní 2017 ákvað bæjarstjórn Snæfellsbæjar að hefja undirbúning að því að Ólafsvíkurvöllur yrði lagðir gervigrasi og var áætlað að verkið hæfist strax að leiktíð lokinni þá um haustið. Framkvæmdir hófust svo í nóvember og hafa staðið yfir með hléum síðan, veður hefur verið mikill áhrifavaldur í framkvæmdunum en áætlanir gerðu ráð fyrir að verkinu yrði lokið í maí, það tókst ekki en nú er verkinu lokið og fyrsti heimaleikur á gervigrasi verður 13. júní gegn Leikni Reykjavík.

11. nóvember 2017

3. apríl 2018

7. mars 2018

12. apríl 2018

19. mars 2018

13. apríl 2018

28. mars 2018

23. apríl 2018

1. apríl 2018

23. apríl 2018


Óskum mfl. karla velfarnaðar í íslandsmótinu.

ÁFRAM VÍKINGUR!

Norðurtanga - 355 Ólafsvík - Sími 430 3700 - fmis@fmis.is


Framkvæmdir við endurbætur Ólafsvíkurvallar

2. maí 2018

21. maí 2018

8. maí 2018

27. maí 2018

13. maí 2018

28. maí 2018

15. maí 2018

31. maí 2018

18. maí 2018

1. júní 2018


№6’DJÚPALÓN/ №7’HELLISSANDUR/ №8’ RIF/ №9’ ÓLAFSVÍK/

N

Æ 7

F

E

L

L

S

B

Æ

R

8

9

5

3

6 4

0

1

2

2

4000 metrar

1: 500 00

NÁTTÚRULAUG.........

TJALDSVÆÐI.............

SIGLING......................

GOLFVÖLLUR...........

LEIKHÚS.....................

NÁTTÚRULAUG.........

KAFFIHÚS...................

GÖNGULEIÐIR..........

VEITINGASTAÐIR.....

TÓNLIST.....................

GISTING......................

MANNLÍF....................

0

2

4

6000 álnir

Þar sem jökulinn ber við loft!

Hér er að finna marga perluna. Taktu hringinn og byrjaðu í heitu ölkeldulauginni á Lýsuhól, gerðu sandkastala á Búðum. Renndu fyrir makríl á Arnarstapa og leitaðu að opnun inní jarðarmiðju að hætti Jules Verne, kannski er inngangurinn í gegnum Vatnshelli? Reyndu þig við aflraunir á Djúpalónssandi, nærðu að lyfta fullsterkum? Rifjaðu upp hver Bárður Snæfellsás var og skelltu þér í leikhús í Rifi eða röltu um bæi og leitaðu uppi besta kaffibollann, en umfram allt njóttu þín í fallegri náttúruparadís sem er Earth Check vottuð og staðfestir að um er að ræða umhverfismeðvitað samfélag. Að vera undir jöklinum hefur verið álitið kyngimagnað, upplifðu það á þinn hátt og njóttu alls þess sem Snæfellsbær hefur uppá að bjóða. Upplýsingamiðstöð (+354)433 6929

info@snb.is snb.is

Kirkjutún 2 355 Ólafsvík, Snæfellsbæ

№1’ LÝSUHÓLL/ №2’ BÚÐIR/ №3’ARNARSTAPI/ №4’HELLNAR/ №5’ SNÆFELLSJÖKULL/

S


Starf UMF Víkings/Reynis 2017-2018 Víkingur/Reynir sér um barna- og unglingastarf á vegum ungmennafélaganna Víkings í Ólafsvík og Reynis á Hellissandi. Síðastliðin ár hafa félögin unnið saman í góðu samstarfi og munu áfram koma til með að gera áfram. Ein stjórn er yfir félögunum og vinna allir saman að heilbrigðri og fjöbreyttri íþróttaiðkun í Snæfellsbæ. Breytingar urðu á stjórn félagsins en þau Laufey Helga Árnadóttir, Hrafnhildur Arna Árnadóttir og Rán Kristinsdóttir hættu í stjórn Víkings/Reynis. Garðar Kristjánsson er nú formaður, Margrét Sif Sævarsdóttir er gjaldkeri og með þeim í stjórn eru Þórhalla Baldursdóttir, Berglind Magnúsdóttir og Ari Bent Ómarsson. Framkvæmdarstjóri félagsins er Þorsteinn Haukur Harðarson. Veturinn 2017-2018 var boðið upp á knattspyrnu og frjálsar íþróttir auk þess sem sundþjálfun var fyrir áramót. Heilt yfir var starf félagsins með afar sambærilegum hætti og verið hefur undanfarin ár.

Knattspyrna: Knattspyrnan var með sambærilegu sniði og verið hefur undanfarin ár. Björn Sólmar Valgeirsson lét af störfum sem þjálfari kvennaflokka í haust og í hans stað tóku

þeir Tomasz Luba og Cristian Martinez við taumunum. Cristian hætti stuttu síðar og þá tók Selma Pétursdóttir við yngstu flokkunum. Karlamegin eru það Ejub Purisevic og Suad Begic sem þjálfa en Ejub er jafnframt yfirþjálfari félagsins. Líkt og undanfarin ár var stór hluti iðkenda okkar sem æfði knattspyrnu en yngri flokkar félagsins keppa á mótum undir merkjum Snæfellsnessambandsins sem er samstarfsverkefni milli Snæfellsbæjar, Grundarfjarðar og Stykkishólms. Sökum

plássleysis hafa flokkar þurft að æfa saman líkt og undanfarin ár. Fyrir yngstu börnin er svo boðið upp á byrjendabolta og íþróttaskóla en þar fá krakkarnir smjörþefinn af því að æfa og stunda íþróttir í Snæfellsbæ Á veturna er æft í íþróttahúsi Snæfellsbæjar en þegar fer að vora er æft á Hellissandsvelli. Þá bindur félagið miklar vonir við að nýi gervigrasvölurinn sem senn opnar muni stórbæta íþróttaaðstöðu iðkenda. Mikið var um að vera í fótboltanum sumarið

FÓTBOLTASUMARIÐ 2018

ÓSKUM KNATTSPYRNUFÓLKI VELGENGNI Í SUMAR STUÐNINGSMENN ERU BOÐNIR VELKOMNIR FYRIR EÐA EFTIR LEIK.

HRAUN Restaurant - Café

Grundarbraut 2 - Ólafsvík - Sími: 431-1030


2017 en Víkingur/Reynir kappkostar að tryggja öllum iðkendum sínum verkefni við hæfi. Allir flokkar úr fimmta flokki og upp úr tóku þátt í Íslandsmóti og voru þau félaginu til mikils sóma. Þá fór 4. flokkur kvenna á mót í Barcelona á Spáni sumarið 2017 og í ár verður það 4. flokkur karla sem fer til Barcelona. Óhætt er að segja að einn af hápunktum tímabilsins sem farið er yfir hér að ofan hafi verið á vormánuðum þegar tveir leikmenn voru valdir til að keppa fyrir unglingalandslið Íslands á alþjóðlegu móti erlendis. Aníta Ólafsdóttir var valin í U-16 ára landslið kvenna og Bjartur Bjarmi Barkarson var valinn í U-16 karla. Bæði stóðu þau sig ákaflega vel og er félagið ákaflega stolt af þessu unga og efnilega fólki.

Sund:

Er það von okkar hjá Víkingi/Reyni að frjálsar íþróttir muni vaxa enn meira í Snæfellsbæ á komandi árum.

Sundið byrjaði vel fram eftir hausti en sundþjálfarinn Cristian Martinez flutti af svæðinu og ekki gekk nógu vel að fá nýjan sundþjálfara. Af þeim sökum var ekki boðið upp á sund eftir áramót en vonumst við til að sundið verði aftur á dagskrá hjá okkur næsta haust.

Fjáröflun:

Frjálsar íþróttir: Frjálsar íþróttir hafa notið vaxandi vinsælda í Snæfellsbæ að undanförnu og uppvöxturinn heldur áfram. Eva Kristín Kristjánsdóttir sá um kennsluna og er krökkunum skipt í tvo hópa eftir aldri. 1-4 bekkur annarsvegar og 5-10 bekkur hinsvegar. Haldin hafa verið mót og hafa krakkarnir sýnt glæsileg tilþrif.

Íþróttastarf kostar töluverða fjármuni og til að standa straum af ýmsum kostnaði höfum við verið með fjáraflanir. Við sjáum um rekstur sjoppu á heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna. Þá erum við einnig með sölu á klósettpappír og jólatrjám auk dósasöfnunar svo eitthvað sé nefnt. Er það okkar mat að vel sé staðið að málum hjá okkur þrátt fyrir að við séum ekki stærsta félag á landinu. Samstarf milli okkar og foreldra iðkenda hefur almennt verið mjög gott, sérstaklega þegar kemur að

skipulagningu keppnisferða. Metnaður okkar liggur í að halda áfram að byggja ofan á öflugt íþróttastarf í Snæfellsbæ. Við viljum þakka bæjarbúum öllum fyrir að taka vel í fjáraflanir félagsins en velgengni okkar litla íþróttafélags myndi aldrei ganga svona vel ef ekki væri fyrir svona marga velviljaða einstaklinga.

Að lokum: Framundan er stórt ár í íþróttalífinu í Snæfellsbæ en Ungmennafélagið Víkingur fagnar 90 ára afmæli sínu árið 2018. Við munum halda upp á það með nokkrum viðburðum yfir árið og vonum við að bæjarbúar muni sjá sér fært að halda upp á árið með okkur.

Smásögur úr boltanum Liðið okkar hafði keppt í íslandsmótinu við Strandamenn hér heima og unnu 9-0. Nú átti að endurgjalda heimsóknina og var haldið norður að Sævangi, þar sem leikir þeirra fóru fram. Þegar okkar menn gengu út á völlinn sátu tveir ungir guttar við gangbrautina og Óli Rögg spurði, minnugur úrslitana heima, „Hvað er markametið á þessum velli strákar?“ Hvorugur drengjanna svaraði. Hófst svo leikurinn og var hart barist. Staðan 0-0 í hálfleik. Eitthvað bættu okkar menn í, í seinni hálfleik, nema hvað, Fíi braut eitthvað illa af sér og dómarinn sýndi gula spjaldið. Engin nöfn voru á búningunum og því spurði dómarinn um nafn. Fíi svaraði „Friðálfur!“. Þá dró dómarinn upp rauða spjaldið. Gylfi hljóp þá inn í búningsklefann og náði í nafnskírteinið hans Fía, en allt kom fyrir ekki, einum færri. Það bjargaði leiknum að okkar menn fengu víti í lok leiks og Gylfi skoraði, 1-0. Lokatölur. Þegar gengið var af velli sagði annar strákurinn við Óla þegar hann gekk fram hjá þeim, „Vallarmetið er ekki 1-0“. Óli var víst svolítíð skömmustulegur.

S í ð a n

1 9 9 5

Allir þurfa þak yfir höfuðið

Ingólfur Geir Gissurarson

Heiðar Friðjónsson

Framkvæmdastjóri Sölustjóri Lögg.fasteignasali og Löggiltur leigumiðlari fasteignasali B.Sc

896 5222

693 3356

Margrét Úlfar Freyr Sigurgeirsdóttir Jóhansson

Herdís Valb. Hölludóttir

588 4477

694 6166

Skrifstofustjóri margret@valholl.is

588 4477

Lögfræðingur Hdl. Lögg. fasteignasali. Skjalavinnsla

692 6906

Lögfræðingur og lögg.fasteignasali

Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarm. fasteignasala Snæfellsnesi

893 4718

Sturla Pétursson

Anna F. Gunnarsdóttir

899 9083

892-8778

Löggiltur fasteignasali

Löggiltur fasteignasali

Snorri Snorrason

Löggiltur fasteignasali Útibú Höfn Hornafirði

895-2115

Fagleg þjónusta Vönduð vinnubrögð

Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna! Reykjavík – Snæfellsbæ – Höfn Hornafirði

|

Sími 588 4477

|

w w w. v a l h o l l . i s


Golfklúbburinn Jökull Undanfarin ár höfum við í stjórn Golfklúbbsins horft uppá dálitla fjölgun hjá okkur í klúbbnum, eftir undangengin mögur ár þar sem fækkun hefur orðið. Sérstaklega er það ánægjulegt að sjá að nýliðar okkar eru konur og unglingar. Við viljum fylgja þessari fjölgun eftir og stefnum að því að vera með nýliðakennslu á vellinum í sumar (nánar auglýst síðar). Þriðjudagsmótin verða á sínum stað í sumar (alla þriðjudaga kl. 20:00). Þessi mót eru þannig að spilaðar eru 9 holur með punktafyrirkomulagi. Eftir sumarið er svo gert upp, mikil spenna skapast oft þegar líður á haustið hver verður með flesta punktana eftir sumarið. Þessi keppni

hefur heppnast vel og verið góð mæting á þau undanfarin ár. Þá verður meistarmót Jökuls haldið í sumar þar sem leiknir verða 3 hringir, mótafyrirkomulagið er punktar og höggleikur. Einnig má nefna að Íslandsmót golfklúbba fer fram í ágúst og eigum við lið í keppni í efstu deild. Stefnt er að því að taka í notkun nýja flöt á 1. brautinni, sem fundinn var staður aðeins vestar en núverandi flöt er, og mun því lengja brautina um nokkra metra. Þá er verið að skoða möguleika á breytingum á öðrum brautum, sem við munum kynna betur síðar. Í fyrra var tekin í notkun ný

vélaskemma sem er bylting fyrir okkur, þar sem við höfðum enga geymslu fyrir vélarnar okkar og aðra hluti sem tilheyra golfrekstrinum. Í lokin þá viljum við hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessari skemmtilegu íþrótt að koma inná Fróðárvöll í sumar og kynna sér völlinn og fá aðstoð við að koma sér af stað, klúbbmeðlimir eru boðnir og búnir að segja áhugasömum til og veita alla aðstoð við að koma fólki af stað. Stjórn GJÓ.

Smásögur úr boltanum Höskuldur hét maður, sem átti hér heima, kallaður Bóbó. Hann var hraustur náungi og með mikið keppnisskap, og vildi vera með og æfa íþróttir. Hann var til í að prófa allt, en hann var mjög tapsár. Ef einhver kastaði lengra, eða stökk lengra, en hann var hann oft eftir þegar hinir fóru og kastaði og kastaði til að reyna að slá hinum við, sem oftar gekk ekki eftir. Einu sinni ætlaði hann að kasta nýkeyptu, forláta aluminium spjóti, sem einn kom með, lengra en þeir sem með honum voru, en ekki tókst betur til en svo að hann kastaði spjótinu hátt í loft upp og lenti spjótið ofan á rafmagnslínum og eyðilagðist, kom í þrem pörtum niður.


Þú getur keypt næstum hvað sem er fyrir Aukakrónur

Matvara

Íþrótta- og útivistarvörur

Gjafavara

Kaffihús og veitingastaðir

Heilsurækt

Allt fyrir bílinn

Raftæki

Fatnaður

Afþreying

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000


ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA Í HVAÐA ÍÞRÓTT BARNIÐ ÞITT BLÓMSTRAR. ÞESS VEGNA STYÐJUM VIÐ ÞÆR ALLAR.

ÍSLENSK GETSPÁ

Engjavegi 6, 104 Reykjavík Sími 580 2500 | www.lotto.is

Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Öryrkjabandalagsins og Ungmennafélags Íslands.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook