Skip to main content

BaejarbladidJokull1229tbl

Page 1

11. nóvember 2026

1229. tbl - 26. árg.

Móttaka Jól í skókassa Móttaka Jól í skókassa fór fram í Snæfellsbæ og Grundarfirði fimmtudaginn 5. nóvember síðastliðinn. Í Snæfellsbæ skiluðu sér 38 skókassar sem munu fara til Úkraínu og gleðja þar börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika. Þar af komu 22 kassar frá Félagi eldri borgara í Snæfellsbæ líkt og kom fram í síðasta tölublaði Jökuls. Þá tóku börnin á elstu deild leikskólans Krílakots þátt í verkefninu og söfnuðu í sameiningu í veglegar jólagjafir fyrir börnin. Starfsmenn og leiðbeinendur í Smiðjunni, virkni og hæfingarstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu í Ólafsvík tóku sig líka til og útbjuggu kassa fyrir verkefnið. Á meðfylgjandi myndum eru hópurinn á Rauðu deildinni á Krílakoti ásamt starfsmönnum leikskólans að afhenda Sigurbjörgu Jóhannesdóttir, tengilið Jól í Skókassa í Snæfellsbæ pakkana og starfsmenn Smiðjunnar með kassana sem þau settu saman en á myndina vantar Ragnar Vilberg sem tók líka þátt í verkefninu. Í Grundarfirði söfnuðust 59 kassar og tóku bekkir í Grunnskóla Grundarfjarðar þátt í verkefninu, hópur fermingarbarna og bæjarbúar tóku þátt ýmist með gjöfum eða tilbúnum kössum. Konur prjónuðu húfur, vettlinga

og sokka og lögðu verkefninu þannig lið en flíkurnar fá að rata í kassa fyrir sunnan. Anna Husgaard Andreasen og Salbjörg Sigríður Nóadóttir, tengilið Jól í skókassa í Grundarfirði tóku á móti fólki í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju og buðu upp á heitt súkkulaði og heimabakaðar smákökur. Ragnar og Ásgeir ehf styrkir verkefnið og fluttu skókassana bæði frá Grundarfirði og Snæfellsbæ þar sem síðusti undirbúningurinn fer fram áður en pakkarnir verða sendir til Úkraínu. SJ

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111


Slysavarnardeildirnar gáfu sjúkrakassa Á dögunum afhentu slysavarnardeildirnar Sumargjöf og Helga Bárðar Grunnskóla Snæfellsbæjar, Leikskólum Snæfellsbæjar og félagsmiðstöðinni Afdrep sjúkrakassa fyrir börn, einn fyrir hverja

starfsstöð. Gjöfinni er ætlað að styðja við öryggi og vellíðan nemenda og mun koma að góðum notum þegar sinna þarf litlum skrámum og óhöppum í skóla- og félagsstarfi. Slysavarnir og umhyggja

Hrekkjavaka í Röst

Félagsmiðstöðin Afdrep, nemendaráð GSNB, ungmennaráð Snæfellsbæjar og menningarnefnd Snæfellsbæjar buðu í hrollvekjandi hrekkjavökupartí í Röstinni á Hellissandi fimmtudaginn 5. nóvember. Þar var í boði draugahús fyrir þau sem lögðu í það, föndur, sköpun og

skemmtilegir leikir. Fyrst var boðið upp á sérstaka opnun fyrir 1. til 4. bekk og síðar var opið fyrir 5. til 7. bekk. Voru öll hvött til að mæta í búning, taka með sér fjölskyldumeðlimi og úr varð draugaleg og skemmtileg samvera sem sló í gegn hjá ungu kynslóðinni.

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

fyrir börnum eru mikilvægur hluti af starfi deildanna. Félagskonur í Sumargjöf og Helgu Bárðar vona að sjúkrakassarnir nýtist vel þegar þörf er á. Á meðfylgjandi myndum eru Irma Dögg Toftum, formaður slysavarnadeildarinnar Sumargjafar, og Rebekka Unnarsdóttir, formaður slysavarnadeildarinnar

Helgu Bárðar að afhenda Vilborgu Lilju Stefánsdóttir, skólastjóra, Hermínu Lárusdóttur leikskólastjóra og Halldóru Unnarsdóttur, starfsmaðunni félagsmiðstöðvarinnar Afdreps sjúkrakassana. SJ


Akstursstyrkur vegna íþróttaog tómstundaiðkunar barna Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþrótta- og tómstundaiðkun. Árlegur styrkur er nú 43.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti. Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris eða forráðamanns, nafn barns eða barna auk kennitölu og reikningsnúmer þar sem styrkur skal lagður inn. Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiðar. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 eða á netfanginu lilja@snb.is. Snæfellsbær

Lions bauð upp á blóðsykursmælingu Laugardaginn 7. nóvember buðu Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán í samstarfi við Heilsugæsluna upp á fría blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu í verslun Sóley saumar í Ólafsvík. Boðið er upp á þetta í tilefni

Alþjóðadegi sykursjúkra sem er haldið árlega upp á þann 14. nóvember og er nóvember mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Markmið með átakinu er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem fylgir því að

ganga með dulda sykursýki og hvetja fólk til að fylgjast með líkamlegri heilsu. Ágætis mæting var í ár til þess að taka stöðuna á blóðsykrinum og blóðþrýstingnum. Eftir mælinguna voru léttar veitingar í boði fyrir gestina.

Lionsklúbbarnir vilja koma fram þökkum til starfsfólks Heilsugæslunnar fyrir sitt framlag við mælingarnar og sömuleiðis Sóleyjar Jónsdóttur og Þrastar Albertssonar fyrir aðstöðuna. SJ


Sala á Neyðarkalli gekk vel Björgunarsveitir landsins standa vaktina við sölu á Neyðarkallinum 2026 en í ár er Neyðarkallinn „fjáraflari”. Stór partur af vinnu björgunarsveitanna eru fjáraflanir svo að mögulegt sé að reka eignir, tæki og búnað sveitanna. Í síðustu viku gengu björgunarsveitarmenn úr Lífsbjörg í Snæfellsbæ í hús í bæjarfélaginu og seldu Neyðarkallinn auk þess að dreifa bæklingnum „Verum viðbúin” fyrir almannavarnir. Björgunarsveitin Klakkur gerði slíkt hið

sama í Grundarfirði og gekk salan vonum framar hjá báðum sveitum. Á myndinni hér að neðan má sjá feðgana Hrein Inga Halldórsson og Halldór Kristinsson þegar þeir gengu í hús á Hellissandi. Til að styrkja Björgunarsveitirnar enn frekar er hægt að kaupa stærri útgáfu af Neyðarkallinum, á myndinni til hliðar er Íris Ösp Hreinsdóttir að afhenta Kristni Jónassyni bæjarstjóra einn slíkann. JJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði

Kristófer skrifar undir

vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.

Stjórn Víkings Ó. í knattspyrnu eru önnum kafin við undirbúning næsta tímabils. Í síðustu viku skrifaði Kristófer Áki Hlinason undir nýjan tveggja ára samning við liðið. Kristófer Áki hefur spilað 17 leiki í deild og bikar fyrir Víking Ólafsvík í sumar og stóð sig mjög vel. Hann skrifaði einnig undir samning

við Ungmennafélagið Víking en hann mun sjá um styrktarþjálfun fyrir iðkendur í 5. flokk og eldri. Á myndinni má sjá Tinnu Ýr Gunnarsdóttur, framkvæmdarstjóra Umf. Víkings og Tomasz Luba, þjálfara Víkings Ó. með Kristófer Áka eftir undirritun samningsins. JJ


Opinn íbúafundur í Klifi vegna fjárhagsáætlunar 2027 Bæjarstjórn Snæfellsbæjar boðar til íbúafundar í Félagsheimilinu Klifi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20:00. Tilgangur fundarins er að eiga samtal við íbúa vegna fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar 2027 og kynna það helsta sem liggur fyrir í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. Er það vilji bæjarstjórnar að gefa íbúum tækifæri til að koma ábendingum og skoðunum á framfæri. Það verður heitt á könnunni og eru eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í uppbyggilegu samtali um fjárhagsáætlun og framkvæmdir næsta árs. Fundurinn er opinn öllum og verður kaffi og konfekt í boði.

Snæfellsbær

Stór blakhelgi framundan Það verður margt um manninn í Snæfellsbæ um næstu helgi þegar fjöldi kvenna leggja leið sína þangað til þess að spila blak. Fyrsta mót af þremur í 8. deild kvenna á Íslandsmóti í blaki verður haldið í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar 14. og 15. nóvember. Spilað verður á tveimur völlum og er gert ráð fyrir um 80 keppendum. UMF Víkingur er með lið í 8. deild kvenna en laugardaginn 14. nóvember spila þær leiki klukkan 10:15, 12:45, 14:00 og 16:30. Laugardaginn 15. nóvember spila þær einn leik klukkan 10:15. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta í stúkuna og hvetja liðið til sigurs á sínu fyrsta Íslandsmóti. UMFG senda þrjú lið á Íslandsmótið í blaki og fara þau mót einnig fram þessa helgi. Lið UMFG í 2. deild kvenna spilar í Laugardalshöll í Reykjavík, lið UMFG í 5. deild kvenna spilar á Neskaupstað og lið UMFG í 3. deild karla spilar á Ísafirði. Nánari upplýsingar um mótstaði og leiktíma má finna á vefsíðu blaksambands Íslands. JJ


Anna María sjálfboðaliði ársins hjá GSÍ Anna María Reynisdóttir frá Golfklúbbnum Vestarr var útnefnd sjálfboðaliði ársins 2026 hjá Golfsambandi Íslands á formannafundi GSÍ á Akureyri þann 7. nóvember. Hlaut hún viðurkenninguna fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf og ómetanlegt framlag sitt til klúbbsins. Anna María hefur verið félagi í Vestarr í um 30 ár, nær allt frá stofnun klúbbsins. Hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum innan félagsins, meðal annars í kvennastarfi, mótanefnd og stjórn. Síðustu sex ár hefur hún gegnt stöðu gjaldkera. Í tilnefningu Golfklúbbsins Vestarr er sérstaklega fjallað um mikilvægt hlutverk Önnu Maríu við kaup og fjármögnun á landi golfvallarins. Kaupin voru stórt og krefjandi verkefni fyrir félagið og mikilvægur áfangi í að tryggja framtíð þess. Að baki árangrinum lágu umfangsmiklar samningaviðræður, náið samstarf við sveitarfé-

lagið og ótal samtöl við styrktaraðila, velunnara og félagsmenn. Með sameiginlegu átaki tókst að ljúka fjármögnun kaupanna og greiða upp skuldir vegna þeirra mun fyrr en upphaflega var áætlað. Framlag Önnu Maríu til verkefnisins er í tilnefningunni sagt

Gusa með Gumma Emil

ómetanlegt. Þar er jafnframt undirstrikað hversu mikilvægt sé fyrir stjórn og formann að hafa öfluga og trausta sjálfboðaliða sér við hlið þegar tekist er á við stór verkefni. Með útnefningunni er Önnu Maríu þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu Golfklúbbs-

ins Vestarr og mikilvægt framlag til að tryggja framtíð golfiðkunar í Grundarfirði. Garðar Svansson, formaður Golfklúbbsins Vestarr tók við verðlaununum fyrir hönd Önnu á Akureyri.

Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617

Styrkir frá Hvatasjóði

Guðmundur Emil, áhrifavaldur og einkaþjálfari mætti í Snæfellsbæ þriðjudaginn 10. nóvember með ferðagusu í samstarfi við crossfit stöðina Cf Snb. Gusa er skipulögð sánabaðsathöfn þar sem hátt hitastig, loftraki, ilmur og tónlist er notað til þess að skapa djúpa slökun og vellíðan. Ferðagusan er tjald sem komið var fyrir aftan við N1 í Ólafsvík. Sú staðsetning var valin þar sem

gusan var þá í nálægð við sjóinn. Gummi Emil leiddi hópinn í gegnum þrjár fimmtán mínútna lotur í ferðagusunni og á milli lota tók fólk kalda dýfu í sjóinn til að auka blóðflæði og fá púlsinn til að hækka og lækka til skiptis. Þrjár tímasetningar voru í boði yfir daginn og var vel sótt í ferðagusuna. SJ

Hvatasjóður er samstarfsverkefni íþrótta- og ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands og voru 26 milljónum úthlutað í 57 verkefni víðs vegar um landið. Markmiðið er að fá fleiri börn og ungmenna til að taka þátt í íþróttastarfi. Á vesturlandi var úthlutað til 8 verkefna fyrir tæpar þrjár milljónir króna. Úthlutun úr sjóðnum fer fram að jafnaði þrisvar á ári. Ungmenna-

félagið Víkingur fékk 250.000 króna styrk til þess að efla stelpur í fótbolta en markmiðið er að hvetja stelpur til fótboltaiðkunar. Stelpum í 5., 6. og 7. flokki er boðið að prófa fótboltaæfingar frítt fram að áramótum og er skráning hafin á Abler. Ungmennafélag Grundarfjarðar fékk einnig úthlutað 250.000 króna styrk fyrir verkefni sitt “íþróttir fyrir alla”. JJ


Vill þitt fyrirtæki taka á móti gjafabréfum frá Snæfellsbæ? Snæfellsbær gefur starfsfólki gjafabréf í jólagjöf sem miðar að því að gleðja starfsfólk í aðdraganda jóla, veita því val um nýtingu og styrkja starfandi fyrirtæki og þjónustuaðila í sveitarfélaginu.

Snæfellsbær auglýsir því eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Snæfellsbæ sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks Snæfellsbæjar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 15. desember 2026 til 30. júní 2027. Skráningarfrestur fyrirtækja er til 30. nóvember 2026. Nánari upplýsingar veitir Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi, í síma 866 6655 eða á netfanginu heimir@snb.is. Skráning fyrirtækja fer fram í sama netfangi.

Summit adventure guides áfram með Vatnshelli Þann 9. nóvember undirrituðu feðgarnir Ægir Þór og Þór Magnússon, eigendur Adventure summit guides, samning við Náttúrustofnun um áframhaldandi hellaferðir í Vatnshelli. Í júní auglýsti Náttúruverndarstofnun eftir rekstraraðilum sem hefðu áhuga á að reka starfsemi Vatnshellis í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Adventure summit guides hefur séð um daglegan rekstur og leiðsögn í hellinum í 15 ár og gildir nýr samningur í allt að 7 ár með möguleika á framlengingum. Vatnshellir er hraunhellir staðsettur í Purkhólahrauni í Snæfells-

jökulsþjóðgarði og var gerður aðgengilegur almenningi haustið 2009. Tilgangurinn með aðgengi almennings að hellinum er að efla fræðslu og auka við þekkingu og verndun á þeim verðmætum sem hellar og aðrar náttúruminjar eru. Adventure summit guides munu halda áfram að bjóða upp á daglegar ferðir í hellinn allt árið og kveðast spennt fyrir komandi tímum við að efla enn frekar gæði, upplifun og ánægju gesta í Vatnshelli. SJ


ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR

FLOTT TILBOÐ Á SVÖRTUM DÖGUM SAMSUNG SJÓNVÖRP Á FRÁBÆRU VERÐI 85” verð 209.990,áður 299.990,75” verð 159.990,áður 219.990,65” verð 119.990,áður 169.990,55” verð 89.990,áður 109.990,50” verð 79.990,áður 99.990,-

EINNIG Á TILBOÐI:

ÖLL TILBOÐ HJÁ ORMSSON GILDA EINNIG Í VERSLUN HAMPIÐJUNNAR Í ÓLAFSVÍK

VERSLUN ÓLAFSVÍK Ólafsbraut 19 - s. 436 1214 - olafsvik@hampidjan.is

▪ Þvottavélar ▪ Þurrkarar ▪ Uppþvottavélar ▪ Kæliskápar ▪ Ofnar ▪ Ryksugur ▪ Helluborð ▪ og margt fleira.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1229tbl by Steinprent - Issuu