Skip to main content

BaejarbladidJokull1228tbl

Page 1

1228. tbl - 26. árg.

4. nóvember 2026

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Hrekkjavaka í Pakkhúsinu Laugardaginn 31. október, á sjálfri Hrekkjavökunni, buðu eigendur Pakkhúsið saga og kaffi til skemmtilegrar hrekkjavökustundar í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Síðustu ár hefur Menningarnefnd Snæfellsbæjar boðið börnum á öllum aldri til hrekkjavökustundar í Pakkhúsinu og í ár slógu nýir rekstraraðilar í húsnæðinu ekki slöku við. Pakkhúsið var skreytt hátt og lágt og var fyrst boðið yngri börnum í draugaleit á efri hæð hússins og svo var eldri börnum boðið í ratleik. Fengu svo allir sem tóku þátt í leikjunum nammi að launum. Mikill fjöldi fólks á öllum aldri lagði leið sína í Pakkhúsið á Hrekkjavökunni í búningum og naut samverunnar. Kaffihúsið í Pakkhúsinu var á sínum stað og gátu viðstaddir sest niður eftir draugaleit og ratleik og gætt sér á vöfflum, heitu súkkulaði og SJ öðru bakkelsi.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Þorrablót í Klifi

Viðburðarríkt ár að baki, Þorrablótsnefnd ætlar að gera það upp á Þorrablóti á Klifi 30. janúar 2027 Takið daginn frá.


Blakmót U14 og U16

Íslandsmót yngri flokka í blaki fór fram í Fagralundi í Kópavogi um liðna helgi. Var þetta fyrsti hluti Íslandsmótsins sem HK hélt en annar hluti Íslandsmótsins mun fara fram á Akureyri í janúar og síðasti hlutinn fer fram í maí, þá fara U14 á Neskaupsstað og U16 keppa í Mosfellsbæ. Víkingur átti lið á Íslandsmóti yngri flokka í fyrsta sinn í mörg ár og kepptu þar sjö stelp-

ur í U16B stúlkna. Hafa þær æft undir leiðsögn Viðars Gylfasonar í vetur og náð miklum framförum. Liðið lenti í 5. sæti af 8 liðum eftir góða baráttu. UMFG átti fimm lið á mótinu, tvö U14 pilta, eitt U16 pilta, eitt U14 stúlkna og eitt U16 stúlkna. Mladen Svitlica er þjálfari þeirra og stóðu öll liðin sig með mikilli prýði. U14 pilta grænir lentu í 5. sæti í sínum riðli og U14 rauðir

16. - 31. október

Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):

Dragnót:

Lína:

Tjaldur 92 tonn í 1 löndun. Rifsnes 73 tonn í 1 löndun. Stakkhamar 52 tonn í 8 lönd. Brynja 25 tonn í 6 löndunum. Særif 23 tonn í 3 löndunum. Handfæri:

Glaumur 3,9 tonn í 5 löndunum. Glaður 3,8 tonn í 6 löndunum. Bessa 1,5 tonn í 3 löndunum. Stella 900 kg. í 2 löndunum. Jóa II 813 kg. í 3 löndunum.

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

SJ

Rifsari 30 tonn í 5 löndunum. Guðm. Jensson 25 tonn í 5 lönd. Ólafur Bjarnason 24 t. í 3 lönd. Saxhamar 17 tonn í 3 löndunum. Sveinbj. Jakobsson 13 t. í 4 lönd.

ÞB

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

um helgina. U16 stúlkur lentu í 6. sæti af 11 liðum í sínum riðli.

Grunnur kominn að nýjum Kaldalæk

Aflatölur

Enn er haustbragur yfir veiðunum í Breiðafirði eins og aflatölurnar sýna hér að neðan og eru margir bátar úr flota Snæfellsbæjar á veiðum fjarri heimahöfn, handfæra bátar hafa verið að fá ágætis kropp miðað við árstíma en rólegt er yfir dragnótinni og línunni. Það sem bar helst til tíðinda var að nýtt skip kom í flotann okkar, Ingibjörg SH – 112. bjóðum þá velkomna heim og gangi þeim allt í haginn! Afar ánægjulegt þegar ný skip koma í flotann. Á þessu tímabili 16. október – 31. október komu á land 398 tonn í 69 löndunum.

tóku 1. sætið. U14 stúlkna lentu í 1. sæti með aðeins eina tapaða hrinu og U16 piltar lentu líka í 1. sæti en þeir fóru taplausir í gegn-

436 1617

Grunnur er kominn að viðbyggingu Kaldalæks í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Í byrjun ágúst 2026 var fyrsta skóflustungan tekin að byggingu á nýju húsi og á tengibyggingu á milli nýja hússins og Kaldalækjar. Smiðjan Fönix er með verkið og hafa ráðið T.S. vélaleigu til að sjá um alla jarðvinnu og J.T. trésmíði til að byggja sjálft húsið, það er alla trésmíði. Viðbyggingin

ásamt tengibyggingu eru 77,7 fermetrar að stærð og verður Kaldilækur því um 120 fermetrar að stærð að framkvæmdum loknum. Stefnt er að verklokum í byrjun júní 2027 en Smiðjan Fönix vill koma því á framfæri að vegna öryggisástæðna verður Sjómannagarðurinn í Ólafsvík lokaður að hluta eða öllu leyti á meðan framkvæmdir standa yfir. SJ


Beint í æð sýnt í Klifi Leikfélagið Lauga hefur tilkynnt nýjasta verk sitt sem verður frumsýnt í félagsheimilinu Klifi

í Ólafsvík föstudaginn 20. nóvember. Verkið heitir Beint í æð og sér Alexander Stutz um leikstjórn.

Beint í æð er vinsælt breskt gamanleikrit eftir Ray Cooney og á Gísli Rúnar Jónsson íslensku þýðingu verksins. Það er dæmigerður farsi, fullur af skyndilegum uppákomum, misskilningi, leyndarmálum og svipar nokkuð til leikritsins Stelpuhelgi sem leikfélagið setti upp í Röstinni í fyrra og Sex í sama rúmi, en það var fyrsta verk leikfélagsins árið 2022. Leikfélagið býr að góðum hópi

leikara en 11 manns munu koma fram í þessu fimmta verki félagsins. Stífar æfingar hafa staðið yfir í Klifi og verður sýningin sett upp í dagana 20., 21. og 25. nóvember. Miðapantanir fara fram í síma 848-1505 hjá Sóley Jónsdóttir, 865-7491 hjá Nönnu Aðalheiði eða á Facebook síðu Leikfélagsins Laugu í einkaskilaboðum. SJ

Ómar heimsótti GSNB Það er vikulegur viðburður í starfsstöð Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi að nemendur og starfsfólk komi saman á sal skólans og syngi saman nokkur lög á föstudögum. Föstudaginn fékk 1. til 4. bekkur heldur skemmtilega heimsókn

frá leynigest á söngsal þegar Ómar Hall mætti og tók söng fyrir hópinn. Ómar er fyrrverandi nemandi skólans og hefur unun af söng og að koma fram. Hann söng tvö lög eftir Pál Óskar fyrir nemendur og höfðu allir gaman af.

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Eldri borgarar með Jól í skókassa

Í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra 14. nóvember munu lionsklúbbarnir í Snæfellsbæ í samstarfi við Heilsugæslustöðina bjóða íbúum Snæfellsbæjar upp á mælingu á blóðsykri auk þess sem hægt verður að mæla blóðþrýsting.

Nú styttist í móttöku á Jól í skókassa en nú þegar hafa nokkrir pakkað skilað sér til móttökuaðila. Félag eldri borgara í Snæfellsbæ tók sig til og söfnuðu meðlimir í skókassa fyrir verkefnið. Í sameiningu söfnuðu öflugar konur gjöfum í 22 skókassa sem munu verða sendir út til Úkraínu fyrir jólin og gleðja þar börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika. Kössunum er meðal annars dreift á munaðarleys-

ingjaheimilum, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, tengiliður Jól í skókassa í Snæfellsbæ hitti hópinn og tók við gjöfunum föstudaginn 30. október. Formlega móttaka fyrir Jól í skókassa fer svo fram í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju fimmtudaginn 5. nóvember frá kl. 15 til 17 og í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju sama dag frá kl. 16 til 17:30. SJ

Laugardaginn 7. nóvember kl. 10 - 12 í húsnæði Sóley saumar, Ólafsbraut 19. Allir eru hvattir til að mæta!

Umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðar Umhverfisviðurkenningar Grund­ ar fjarðar voru veittar í fyrsta sinn í lok september. Bæjarráð Grundarfjarðarbjæjar samþykkti á 657. fundi sínum þann 23. júní 2026 að veittar yrðu umhverfisviðurkenningar í bæjarfélaginu og var Birki Jóni Jónssyni, bæjarstjóra falið umsjón með verkinu. Óskað var eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í tveimur flokkum, annars vegar Heimili ársins og hins vegar Prýði atvinnulífsins. Skipulags- og umhverfisnefnd fór í gegnum innsendar tilnefningar. Umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Heimili ársins hlýtur Jón Snorrason, Fossahlíð 6. Við valið var hoft til snyrtileika lóðar, umhirðu húsnæðis og þess metnaðar sem einkennir allt umhverfið. Jón og eiginkona hans, Selma Friðfinnsdóttir, lögðu um áratugaskeið mikla rækt við hús og lóð og byggðu upp einstaklega fallegan garð sem ber glöggt vitni um alúð, natni og ómælda vinnu. Garðurinn hefur þróast og dafnað

í gegnum árin og er í dag sannkölluð prýði fyrir hverfið og bæinn allan. Með þrautseigju, umhyggju og ást á staðnum hafa þau skapað heild sem vekur athygli fyrir fegurð, snyrtimennsku og þann metnað sem lagðir hefur verið í hvert smáatriði. Umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Prýði atvinnu-

lífsins 2026 hlýtur Bjargarsteinn. Um árabil var þar rekið eitt þekktasta og virtasta veitingahús landsins sem margir bæjarbúar og gestir minnast með hlýju. Í dag er í húsinu rekin gistiþjónusta, en sá metnaður sem einkennt hefur staðinn frá upphafi er enn til staðar. Húsnæðið og umhverfi þess bera vott um einstaklega

góða umhirðu og natni. Eigendur hafa lagt miikla vinnu í viðhald, fegrun og uppbyggingu staðarins í gegnum árin og skapað umhverfi sem er bæði hlýlegt og aðlaðandi. Birkir Jón, bæjarastjóri og Þuríður Gía Guðjónsdóttir, formaður Skipulags- og umhverfisnefndar, veittu viðurkenninguna.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook