Skip to main content

BaejarbladidJokull1227tbl

Page 1

1227. tbl - 26. árg.

28. október 2026

Breiðavík fær nýjan bát

Ingibjörg SH 112 hefur siglt heim til Ólafsvíkurhafnar eftir breytingar en hann mætti á svæðið laugardaginn 24. október. Báturinn sigldi til Íslands frá Ballstad í Noregi í lok júlí, þaðan sem hann var keyptur af Breiðavík ehf og

mun hann eiga heimahöfn í Ólafsvík. Hann hefur verið í Njarðvík og Hafnarfirði þar sem unnið var að breytingum á bátnum, meðal annars breytt lestinni úr þremur tankalestum í karalest, sett upp blóðgunar- og slægingaraðstaða

og slægingarvél sett um borð. Ingibjörg er smíðuð árið 2014 hjá Skogdøy Båt AS, er 14,96 metrar að lengd, 6, 35 metrar á breidding og vegur 45,58 brúttótonn. Nýjasta skip Breiðavíkur er hannað fyrir snurvoð, línu

og nót en báturinn er viðbót við flota Breiðavíkur ehf sem gerir nú þegar út línubátinn Kristinn HU og netabátinn Júlla Páls SH. Stefnt er á að fara út á nýrri Ingibjörgu SH á næstu dögum á veiðar með dragnót. SJ

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111


Vitundarvakning á bleikum degi Bleiki dagurinn var haldinn miðvikudaginn 21. október. Á Bleika deginum sameinast samfélagið allt í stuðningi og hluttekningu með fólki og aðstandendum þeirra sem glíma við krabbamein eða hefur gert það og minnist þeirra sem hafa tapað baráttunni við krabbamein. Þá eru landsmenn allir hvattir til að bera Bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma. Dagurinn er haldinn árlega til vitundarvakningar og svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni fyrir stuðning og samstöðu. Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í deginum, klæddu sig í bleik föt, báru fram bleikar veitingar og sýndu þannig stuðning í verki. Meðal annars var Bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur í grunnskólum, leikskólum, á æfingum og fleira. SJ

Björgun 26 haldin í Hörpu 15 sjálfboðaliðar björgunarsveitarinnar Lífsbjargar gerðu sér ferð til Reykjavíkur síðastliðna helgi til að taka þátt í ráðstefnunni Björgun 26. Alþjóðleg ráðstefnan hefur verið haldin á tveggja ára fresti frá árinu 1990 og var því haldin í átjánda sinn í Hörpunni dagana 16. til 18. október. Margir góðir og gagnlegir fyrirlestrar stóðu þátttakendum til boða en í ár og voru fyrirlesararnir rúmlega 50 talsins. Á meðal fyrirlesara var Halldór Kristinsson, sjálfboðaliði Lífsbjargar, með erindi sem bar heitið “Reynsla og upplifun okkar á nýju

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

KewaTec skipi”. Björgunarskipið Björg var fjórða skipið í smíðaröðinni af þrettán og erindið því ætlað til að miðla reynslu Lífsbjargar til hinna sem eru nýlega búnir að fá sín skip í hendurnar eða eru enn að bíða, og einnig annarra félaga í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu til að fá innsýn í hvernig þetta verkefni hefur gengið og skipin staðið sig. Meðfylgjandi mynd er í eigu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar og er af Halldóri Kristinssyni að flytja fyrirlestur sinn í Hörpunni. SJ


Akstursstyrkur vegna íþróttaog tómstundaiðkunar barna Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþrótta- og tómstundaiðkun. Árlegur styrkur er nú 43.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti. Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris eða forráðamanns, nafn barns eða barna auk kennitölu og reikningsnúmer þar sem styrkur skal lagður inn. Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiðar. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 eða á netfanginu lilja@snb.is. Snæfellsbær

Lögreglan á leikskólum Föstudaginn 16. október fengu börn fædd árin 2021 og 2022 á leikskólum Snæfellsbæjar skemmtilega og fróðlega heimsókn frá samfélagslögreglunni. Heimsóknin er liður í samfélagsverkefni lögreglunnar sem hefur það meðal annars að markmiði að efla tengsl lögreglu við börn, skapa jákvæða upplifun og auka öryggisvitund þeirra. Með slíkum heimsóknum fá börnin tækifæri til

að kynnast lögreglunni í öruggu og kunnuglegu umhverfi. Lögreglan færði börnunum bókina Lúlli löggubangsi og vinir þeirra að gjöf ásamt endurskinsmerkjum fyrir hvert barn. Lögreglan kynnti efni bókarinnar og ræddi við börnin um umferðaröryggi, meðal annars mikilvægi þess að nota hjálm, fara örugglega yfir gangbrautir og ganga á gangstéttum. Börnin fengu einnig

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

að kynnast ýmsum búnaði lögreglunnar. Þeim var sýnd talstöðin og búkmyndavélin og fengu þau jafnframt að skoða handjárn-

in. Börnin sýndu heimsókninni mikinn áhuga og fengu tækifæri til að spyrja lögregluna ýmissa spurninga.


Haustfundur SSV - Björg fékk viðurkenningu Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fór fram í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi dagana 14. og 15. október. Á þinginu komu saman sveitarstjórnarfulltrúar af Vesturlandi til að fjalla um helstu verkefni og áherslur landshlutans á komandi misserum. Meðal annars var kynnt fjárhagsáætlun og starfsáætlun SSV fyrir árið 2027, farið yfir starfsemi SSV og Markaðsstofu Vesturlands og starfsemi Sorpurðunar Vesturlands. Þá fluttu alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi og fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga ávörp og tóku þátt í umræðum þar sem farið var yfir málefni sem snerta sveitarfélög, byggðaþróun og framtíð landshlutans. Á öðrum degi þingsins var sérstök umfjöllun um velferð á Vesturlandi. Kynnt voru verkefnin Gott að eldast á Vesturlandi og Farsældarráð Vesturlands áður en fram fóru pallborðsumræður um velferðarmál með þátttöku fulltrúa sveitarfélaga, heilbrigðisþjónustu og ríkis. Þinginu lauk svo með afgreiðslu áætlana og ályktana sem munu marka áherslur SSV í sameiginlegri hagsmunagæslu og þróunarstarfi fyrir Vesturland á komandi ári. Á vettvangi sveitarstjórnarmála á Vesturlandi hafa fjölmargir einstaklingar lagt af mörkum ómetanlegt starf í þágu síns samfélags og byggðar. Á Haustþingi SSV í ár voru heiðraðir fjórir einstaklingar fyrir áratugalangt framlag sitt til sveitarstjórnarstarfa, samvinnu sveitarfélaga og þróunar Vesturlands. Einar Brandsson frá Akranesi, Pétur Davíðsson úr Skorradalshrepp, Hrefna B. Jónsdóttir sem hefur starfað hjá SSV og Sorpurðun Vesturlands og Björg Ágústsdóttir. Björg á að baki afar langan og fjölbreyttan feril í sveitarstjórn-

armálum. Hún starfaði sem bæjarstjóri Grundarfjarðar samtals í 19 ár, sat í stjórn og formennsku SSV, leiddi skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga um árabil og tók virkan þátt í undirbúningi Svæðisgarðs Snæfellinga. Þá lagði hún einnig sitt af mörkum sem ráðgjafi við gerð Sóknaráætlunar Vesturlands árið 2015. Heiðursviðurkenningarnar eru þakklætisvottur fyrir áralanga þjónustu, forystu og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélaga og íbúa Vesturlands. Framlag þeirra hefur haft varanleg áhrif á samfélögin sem þau hafa þjónað og styrkt samstarf sveitarfélaga um landshlutann. Fengu þau afhent verk eftir myndlistarkonuna Þóru Sigurðardóttur. Heiðursgjöfin samanstendur af einstakri steinþrykksmynd eftir Þóru úr sérstakri myndröð, auk bókar um myndlistarferil hennar. Gjöfin er bæði þakklætisvottur fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins og um leið viðurkenning á framlagi vestlenskrar listar og menningar.

Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.

Takmörkun á akstri stærri bíla

Sóknarnefnd Ingjaldshólskirkju hefur tekið ákvörðun um að banna akstur hópferðabíla upp á bílastæði kirkjunnar. Ferðaþjónustuaðilar, rútubílstjórar og aðrir sem sinna hópferðum á svæðinu eru beðnir að virða bannið og fylgja merkingum sem hafa verið settar upp á staðnum. Samkvæmt sóknarnefnd hafa íbúar á svæðinu kallað eftir þessum breytingum en oft á tíðum valda þessar ferðir mikilli truflun fyrir gesti

kirkjunnar. Miklir fjármunir hafa farið í að lagfæra hellur, ljóskastara og aðra innviði á svæðinu sem hópferðabílar hafa keyrt niður eða skemmt vegna þunga. Sóknarnefnd Ingjaldshólskirkju þykir leitt að þurfa að takmarka aðgang að kirkjunni en þau bera ábyrgð á að viðhalda eignum og telja sig ekki geta haldið áfram að ráðstafa fjármunum í viðhald vegna skemmda eftir hópferðabíla. JJ


Fjárhagsáætlun 2027 Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana fyrir árið 2027. Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026. Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni. Athugið að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og hljóti samþykki bæjarstjórnar. Bæjarritari

Snæfellsbær

Rannsókn á strandveiðum Þann 23. október var gefin út ný rannsókn um ”byggðaáhrif ” potta íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins eftir Vífil Karlsson og Svein Agnarsson. Rannsóknin var styrkt af Byggðarannsóknasjóði og birtist í ritröð RBS í október 2026, hún byggir á gögnum frá árunum 2008 til 2024. Til að byrja með var lagt upp með að meta hvort aukin umsvif vegna slíkra veiða leiði til aukinna atvinnu- eða útsvarstekna viðkomandi sveitarfélaga. Á meðan á rannsókninni stóð víkkað hún út til fleiri hagvísa, svo sem atvinnuleysis, íbúaþróunar, búferlaflutninga, misskiptingar launa, íbúðaverðs og fjölda seldra íbúða. Þessi nýja rannsókn Rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst sýnir að sértæki byggðakvótinn hefur sterkustu jákvæðu tengslin við efnahagslega þróun sjávarbyggða af fimm byggðaaðgerðum fiskveiðistjórnunarkerfisins. Þar kom fram jákvæð fylgni milli sértæks byggðakvóta og útsvarstekna, atvinnutekna, íbúa-

fjölgunar og viðskipta með íbúðir. Jafnframt mældist neikvæð fylgni við atvinnuleysi. Fimm stærstu kerfin eru almennur byggðakvóti, sértækur byggðakvóti, skel- og rækjubætur, línuívilnun og strandveiðar. Skelog rækjubætur komu næstbest út og almenni byggðakvótinn þar á eftir. Það vakti hins vegar athygli

að strandveiðar og línuívilnun komu lakast út, en þar mældust fleiri neikvæð en jákvæð tengsl við efnahagslega þætti. Dregin var upp mynd af því hvort aflahlutdeildir voru að dragast saman eða aukast eftir sveitarfélögum á landinu og sú þróun gaumgæfð með tilliti til þess hversu nálægt sveitarfélögin væru Reykjavík og

fjölda íbúa. Áhugasamir geta nálgast rannsóknina og ítarlegri niðurstöður á vefsíðu Háskólans á Bifröst í fréttagrein sem ber nafnið Sértæki byggðakvótinn skilar sterkustu vísbendingunum um jákvæð byggðaáhrif. SJ


Framkvæmdir við Saxhól Framkvæmdir hafa staðið yfir við Saxhól síðan í byrjun sumars en unnið hefur verið að lagfæringum á neðra svæði áningastaðarins og bílastæði. Saxhóll er 40 metra hár gígur innan marka Snæfellsjökulsþjóðgarðs sem hefur verið vinsæll til uppgöngu enda staðsettur nálægt veginum og aðgengi að honum gott. Árið 2016 voru tröppur lagðar upp á toppinn þannig að auðvelt er að ganga upp og njóti útsýnisins. Tröppurnar og útsýnispallurinn á toppi gígsins voru smíðuð af Smiðjunni Fönix og hefur fyrirtækið nú í sumar og haust unnið að lagfæringu á aðkomu áningarstaðarins. Fengu þeir Stafnafell ehf og Biggi Tryggva ehf með sér í verkið og nú hefur allri jarðvinnu og hellulagninu verið lokið og járni komið fyrir sem göngustíg. Verkinu var lokið í lok september og er aðkoman að Saxhól orðin enn fallegri og aðgengilegri en áður. SJ

U21 í hestaíþróttum Síðasti vetrardagur í Tröð Skógræktar- og landverndarfélagið undir Jökli fagnaði komu vetrar með skemmtilegum fjölskylduviðburði í Tröð á Hellissandi á fyrsta degi vetrar þann 24. október. Undir jökli gerðu sér

glaðan dag með fólki á öllum aldri en rúmlega 60 manns mættu og áttu dásamlega samveru. Boðið var upp á popp sem var poppað yfir varðeldi og gos með því í góðu veðri. SJ

Sigvaldi Lárus Guðmundsson. landsliðsþjálfari U21 landsliðs Íslands í hestaíþróttum, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir starfsárið 2026 til 2027. Á næsta ári er stóra verkefni landsliðsins HM íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi dagana 27. júlí til 1. ágúst 2027. Einungis fimm sæti eru í boði á HM í ungmennaflokki þannig að baráttan um sæti á HM er hörð. U21-landsliðshópurinn er skipaður knöpum sem verða 17-21 árs á keppnisárinu 2027, yngstu knapar hópsins verða því á síðasta ári í ung-

lingaflokki en aðrir knapar í ungmennaflokki. Að þessu sinni eru valdir 20 knapar sem þykja skara fram úr að mati landsliðsþjálfara og bjóða hesta í verkefnið. Á meðal þessara 20 knapa er Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir frá Grundarfirði en hún er í Hestamannafélaginu Snæfellingi. Harpa hefur gert garðinn frægan í hestaíþróttinni síðustu ár og hlotið fjölda titla, þar á meðal Íþróttamaður Grundarfjarðar og Íþróttamaður HSH og fleira. SJ


Báturinn Hans Summa

Líkanið sem Jón Guðmundsson gerði upp í Höllinni Uppi á stofuskápnum hjá Guðna og Guðríði ömmu minni í Sandholti 17 stóð alltaf helgur gripur, - „báturinn hans Summa”. Þetta er bátslíkan sem Sumarliði Sumarliðason smíðaði. Hann var fæddur 30. júlí 1927 og tók út af m/b Haföldu SH 79, 16. febrúar 1953, 25 ára gamall. Líkanið að draumabátnum smíðaði Summi við fábreyttar aðstæður í Félagshúsi á Snoppunni úr takmörkuðum efnivið og með fáum og óhentugum verkfærum. Líklega einungis vasahníf, sög og kannski hefli. Ég minnist a.m.k. ekki annarra verkfæra frá þessum tíma, nema hamra og einstaka sporjárna sem smiðirnir áttu. Summa var mjög umhugað um vöxt og viðgang Ólafsvíkur, dreymdi um betri höfn og stærri báta. Draumurinn um höfnina lét sér standa, en innan við áratug eftir að hann lést voru komnir bátar til Ólafsvíkur í líkingu við það sem hann dreymdi um. Í stað þeirra 20-25 tonna báta sem voru á hans tíð voru komnir bátar 70-80-90 tonn um 1960. Bátar með bogadregnu stýrishúsi á háum vélakappa og dyrum er snéru aftur og í skjóli, líkt og á Jökli, Valafelli, Sæ-

Sumarliði Sumarliðason.

Bátslíkanið eftir að Jón fór um það höndum.

felli og Dórabátunum, svo dæmi séu tekin. Þegar vel var að gáð var ljóst að Summa hafði ekki endst aldur til að ljúka öllum frágangi á líkaninu og svo hafði tímans tönn nagað það eins og við er að búast. Þórður bróðir minn fór þess á leit við Jón Guðmundsson að hann gerði bátnum til góða á verkstæðinu í Höllinni. Jón tók þessari beiðni af ljúfmennsku, þó honum litist ekki meir en svo á verkefnið. Þetta var mikil vinna hjá Jóni sem hann vann af einstakri elju, alúð og vandvirkni.

Það er ekki ofsögum sagt, að við bræður urðum djúpt snortnir og þakklátir Jóni er við litum líkanið augum í Höllinni nú fyrir skemstu. Við flytjum Jóni Guðmunssyni

Hafalda, bátur Sumarliða og Guðna bróður hans.

Félagshús á Snoppunni.

alúðar þakkir fyrir að endurbyggja drauminn hans Summa á jafn veglegan hátt og raun ber vitni um. Egill Þórðarson.

Snæfellsbær fær viðurkenningu jafnvægisvogarinnar Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA og er það unnið í samstarfi við stjórnvöld og hagsmunaaðila í íslensku atvinnulífi. Markmiðið er að hlutfall hvors kyns verði að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga. Jafnvægisvogin hefur nú veitt 163 fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum viðurkenningu fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnun. Á vesturlandi voru fjögur sveitarfélög sem fengu viðurkenningu og

meðal þeirra var Snæfellsbær. Í tilkynningu frá Snæfellsbæ kemur fram að þetta sé ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem sveitarfélagið hefur verið á sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Auður Kjartansdóttir og Júníana Björg Óttarsdóttir tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Snæfellsbæjar á árlegri hátíð Jafnvægisvogarinnar þann 14. október. JJ


24%

44%

59%

35% 1.539

1.999

34%

44%

33%

33%

199

999

379

429

30% 29%

389

25%

2.599

Tilboðin gilda 28. október - 8. nóvember

899


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook