Skip to main content

BaejarbladidJokull1226tbl

Page 1

21. október 2026

1226. tbl - 26. árg.

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Vonskuveður á Snæfellsnesi

Óveður og hvassviðri hafa sett mark sitt á veðurfar á Snæfellsnesi undanfarið, þar sem ítrekað hef-

ur verið varað við slæmu ferðaveðri, miklum vindhviðum og úrkomu. Veðurstofan hefur fylgst

Dvalargjöld leikskóla lækkuð um 50% Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 13. október síðastliðinn að lækka dvalargjald í leikskóla Snæfellsbæjar um 50% frá og með 1. janúar 2027. Tillagan kom frá forseta bæjarstjórnar og rímar vel við þær áherslur sem D-listinn kynnti á íbúafundi í Klifi fyrir sumar. Með lækkun dvalargjalda vonast Snæfellsbær til að leggja

sitt af mörkum til þess að styðja við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu en einnig að stuðla að samfélagi þar sem gott er að ala upp börn og skapa fjölskyldum meira fjárhagslegt svigrúm í daglegu lífi. Ný gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar næstkomandi og nær yfir dvalargjöld í leikskóla Snæfellsbæjar og við Lýsukot í Lýsuhólsskóla. JJ

með djúpum lægðum sem gengið hafa yfir landið og varað við gulum og appelsínugulum viðvörunum. Laugardaginn 17. október var varað við vindhviðum sem gætu farið yfir 40 metra á sekúndu á Snæfellsnesi og Vegagerðin varaði jafnframt við því að loka gæti þurft vegum með skömmum fyrirvara. Íbúar og vegfarendur í Snæfellsbæ og Grundarfirði þurftu því að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum. Í Snæfells-

bæ mátti sjá ruslatunnur, bekki og aðra lausamuni sem höfðu fokið í óveðrinu en engin stórtjón áttu sér stað. Í Grundarfirði varð heldur hvassara og meðal annars losnuðu þar þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á hliðina. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Nýr bátur Láka tours Láki Tours hefur fest kaup á snekkju sem sigldi til Grundarfjarðar nú í byrjun október. Fyrirtækið Láki Tours er þekkt fyrir sínar margrómuðu hvala- og lundaskoðunarferðir og hefur siglt með þúsundir farþega frá Ólafsvík og Grundarfirði síðustu árin. Láki Tours hefur siglt með farþegar sína í Írisi sem var upphaflega björgunarbátur en var gerður upp sem farþegabátur sem hægt er að nota til að sigla allt í 70 manns um Breiðafjörðinn í leit af hvölum, lundum og öðrum náttúruundrum. Nú hefur snekkjan Lady Marjan bæst við flota Láka Tours og er mætt til heimahafnar í Grundarfirði. Snekkjan var smíðuð í Danmörku árið 1986, er 5,9 metrar að breidd og 27,8 metra löng. Framundan eru breytingar á snekkjunni og verður hún gerð út til hvala- og lundaskoðunarferða með pláss fyrir allt að 100 farþega. Í samtali við Gísla Ólafsson, eiganda Láka Tours, segir hann að

með snekkjunni sé hægt að taka við fleirum í hvalaskoðunarferðirnar auk þess sem betur fari um farþegana. Íris mun þá sigla frá Grundarfjarðarhöfn í lundaskoðunarferðir og nýja snekkjan mun sigla frá Ólafsvíkurhöfn

í hvalaskoðunarferðir. Fyrirtækið fór sína síðustu skoðunarferð árið 2026 í lok september og munu fara aftur af stað í hvalaskoðunarferðir í febrúar 2027.

Bindur Gísli vonir við að snekkjan verði tilbúin til skoðunarferða þá en lundaskoðunarferðirnar hefjast svo að nýju í maí 2027. SJ

Aflatölur

1. - 15. október Vont veður hefur einkennt þetta tímabil núna. Norðanbál og stífar SA, SV áttir og rigning hafa gert sjómönnum erfitt fyrir, sést það vel á aflatölunum. Klassískt haust í raun. Tíminn hjá hafnarstarfsmönnum hefur verið notaður í allskonar viðhald, höfum við verið að skipta um dekkjalengjur, keðjur í flotbryggjum, rafmagn í flotbryggjum og margt fleira. Á þessu tímabili 1. október – 15. október komu á land 538 tonn í 86 löndunum. Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5): Dragnót:

Ólafur Bjarnason 74 t. í 7 lönd. Saxhamar 51 tonn í 7 löndunum. Guðm. Jensson 23 t. í 6 lönd. Sveinbj. Jakobsson 22 t. í 7 lönd. Egill 21 tonn í 6 löndunum.

Net:

Júlli Páls15 tonn í 4 löndunum. Lína:

Tjaldur 127 tonn í 2 löndunum. Rifsnes 100 tonn í 1 löndun. Stakkhamar 53 tonn í 9 lönd. Brynja 25 tonn í 8 löndunum. Særif 5 tonn í 1 löndunum. Handfæri:

Glaður 3,3 tonn í 5 löndunum. Stella 2,8 tonn 3 löndunum. Jóa II 2,4 tonn í 4 löndunum. Glaumur 2,2 tonn í 3 löndunum. Sverrir 1,9 tonn í 2 löndunum. ÞB

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Jól í skókassa Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að kassann minnsta kosti einn hlutur úr hverjum flokki sé settur í kassann en flokkarnir eru skóladót, leikföng, hreinlætisvörur, sælgæti og föt. Þá skal tannbursti, tannkrem og sápustykki fylgja í hverjum kassa. Skókassarnir fullir af gjöfum verða sendir til Úkraínu

og meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimilum, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Tekið verður á móti skókössum í Grundarfirði Í safnaðarheimili Grundarfjarðarkirkju þann 5. nóvember og eru tengiliðir þar Anna Husgaard Andreasen, 6630159 og Salbjörg Sigríður Nóadóttir, 896-6650. Einnig verður tekið á móti skókössum í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju fimmtudaginn 5. nóvember og er Sigurbjörg Jóhannesdóttir tengiliður þar, 843-0992.


Ungmennaráð fær rödd Tilnefningar fyrir Ungmennaráð Snæfellsbæjar hafa nú farið fyrir Bæjarstjórn og voru samþykktar. Til viðbótar voru breytingar gerðar á skyldum nefndarmanna ungmennaráðs. Núna fá nefndarmenn aukin tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri með því að skipa fulltrúa í nokkrar af fastanefndum sveitarfélagsins. Þátttaka ungs fólks í nefndarstarfi er mikilvægt skref sem Snæfellsbær tekur í átt að auknu samráði og virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Með þessum breytingum er verið að skapa þeim vettvang

innan stjórnsýslunnar fá sjónarmið þeirra meira vægi í umræðum og ákvarðanatöku. Auk þess fá fulltrúar ungmennaráðs innsýn í starfsemi sveitarfélagsins. Snæfellsbær vill leggja áherslu á mikilvægi þess að hlustað sé á ungt fólk og veita þeim raunveruleg tækifæri til þátttöku. Í Ungmennaráði sitja Alma Begic, Antoni Parol, Arnar Valur Matthíasson, Daði Þór Ægisson, Elísabeth Halldóra Roloff, Guðjón Kristinn Kristgeirsson, Hanna Líf Kristgeirsdóttir, Hrefna Jónsdóttir og Vigdís Júlía Bláfeld Viðarsdóttir. JJ

240 fm. límtréshús risið á Kálfárvöllum

Þessa dagana er verið að reisa nýtt og glæsilegt hús á Kálfárvöllum. Um er að ræða rúmlega 240 fermetra límtréshús sem ætlað er undir vélageymslu og iðnaðar aðstöðu með 140 fermetra kjallara. Húsið er frá H. Hauksson ehf en Guðmundur Grétar Bjarnason á Kálfárvöllum sá

um uppsetninguna ásamt smiðum, samsveitungum og öðrum iðnaðarmönnum. Uppsetningu á húsinu er lokið, nú er almennur frágangur í gangi sem er langt kominn og styttist í að húsið verði klárt til notkunar. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur Grétar af húsnæðinu. SJ

Lions safnar notuðum gleraugum Árleg gleraugnasöfnun lions er nú hafin en október er sjónverndarmánuður Lionshreyfingarinnar. Lionshreyfingin á Íslandi safnar gleraugum sem kunna að liggja ónotuð en geta komið öðrum að gagni. Við sendum þau frá okkur til Danmerkur þar sem þau verða flokkuð og löguð ef þarf og send áfram til þeirra sem á þurfa að halda. Ránarkonur hafa komið fyrir söfnunar-

kassa í Apótekinu og Þín Verslun Kassinn. Endilega losið ykkur við gömul gleraugu sem fá þá tækifæri á framhaldslífi. JJ


Fjárhagsáætlun 2027 Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana fyrir árið 2027. Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026. Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni. Athugið að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og hljóti samþykki bæjarstjórnar. Bæjarritari

Snæfellsbær

Tvö lið á Íslandsmóti í skák

Fyrri hluti Íslandsmóts skákliða fór fram um liðna helgi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Tvö lið kepptu undir merkjum Taflfélags Snæfellsbæjar að þessu sinni en þetta er í fyrsta skiptið sem félagið nær að senda tvö lið á mótið. Bæði liðin voru í 4. deild og stóðu sig mjög vel. Í A-sveit félagsins voru Róbert Laagerman, Egill Steinar Ágústsson, Sigurður Scheving, Rögnvaldur Jónsson, Viðar

Örn Traustason og Stefán Karven Kjartansson. Í B-sveit félagsins voru Víglundur Orri Heimisson, Sævar Hjalti Þorsteinsson, Kristófer Óskarsson, Stefán Arnar Jóhannesson, Eiríkur Árnason og Hilmar Örn Runólfsson. Eftir fjórðu umferð var A-sveit félagsins í 5. sæti og B-sveitin í 16. sæti. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig málin þróast á síðari hluta Íslandsmótsins sem fer fram 5.-8.

mars 2027. Íslandsmót barna- og unglingasveita 2026 fram sunnudaginn 18. október í Miðgarði í Garðabæ. Leikar hefjast klukkan

13:00 og má búast við efnilegum skákmönnum frá Taflfélagi Snæfellsbæjar á því móti.

Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.

JJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook