14. október 2026
1225. tbl - 26. árg.
Hrútasýning í Reiðhöllinni Laugardaginn 10. október hélt Sauðfjárræktarfélagið Búi héraðssýningu lambhrúta á Snæfellsnesi í Reiðhöllinni í Ólafsvík. Hrútasýning er viðburður þar sem sauðfjárbændur, dómarar og áhorfendur safnast saman til að sýna, skoða og meta gæði hrúta og voru 63 hrútar metnir og stigaðir. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í þremur flokkum, fyrir besta mislita hrútinn, besta kollótta hrútinn og besta hvíta hyrnda hrútinn. Hvíti hyrndi flokkurinn var með lang flesta eða 30 lambhrúta. mislitir voru 20 og kollóttir voru 13. Um 100 manns mættu í Reiðhöllina til að taka þátt og fylgjast með og voru það Árni Bragason og Sigvaldi Jónsson frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem sáu um að dæma hvaða gripir voru bestir. Vegleg verðlaun voru í boði fyrir efstu sætin auk þess sem gimbrahappdrættið var á sínum stað og var hægt að vinna gimbrar auk veglegra vinninga frá fyrirtækjum í Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi sem styrktu sýninguna með allskonar varning, gjafabréfum og afþreyingu. Sýningin fór vel fram með allskonar veitingum sem félagsmenn hjálpuðust að gera og koma með og úr því varð svakalega stórt
og mikið hlaðborð svo það fór engin svangur heim. Guðmundur Ólafsson og Herdís Leifsdóttir, frá Sauðfjárræktarfélaginu Búa sáu um að skipuleggja sýninguna. Þau Guðlaug Sigurðardóttir og Jóhannes Eyberg Ragnarsson frá Hraunhálsi áttu besta kollótta hrútinn auk þess sem þau fengu farandsskjöldinn fyrir besta lambhrút sýningarinnar. Guðmundur Ólafsson frá Ólafsvík átti besta mislita hrútinn og Herdís Leifsdóttir og Emil Freyr Emilsson í Mávahlíð áttu besta hvíta hyrnda hrútinn. SJ
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Stafnafell við vinnu á Norðurgarði Unnið hefur verið að lengingu bryggjunnar við Norðurgarð í Ólafsvík síðasta árið. Meðal annars hafa stálþil við Norðurbakka í Ólafsvíkurhöfn verið lengd um 100 metra, útbúinn hefur verið fyrirstöðugarður og 30 metra grjótvörn við enda þilsins. Um þessar mundir vinnur Stafnafell að síðasta kaflanum í lengingunni á Norðurbakka. Jarðverktakafyrirtækið er að leggja lagnir í nýja hlutann og steypa nýja þekju á höfnina. Meðfylgjandi mynd er af vinnuvélum Stafnafells við vinnu á lengingunni við Norðurbakka. SJ
Breytingar í knattspyrnu yngri flokka á Snæfellsnesi Ungmennafélagið Víkingur hefur tekið þá ákvörðun um að keppa í yngri flokkum undir merki Víkings en ekki Snæfellsnes samstarfsins. Er þetta ákvörðun sem tekið var með hag félagsins að leiðarljósi og að sögn stjórnar með framtíð þess í huga. Í síðustu viku var send út könnun til foreldra iðkenda félagsins þar sem viðhorf þeirra til samstarfsins var kannað en niðurstöður úr þeirri könnun voru hafðar til hliðsjónar við ákvörðunartökuna. Í könnuninni komu meðal annars fram þeir kostir að halda í fjöldann og efla tengslin eins og hefur verið í samstarfinu en einnig skýr vilji um að spila undir merkjum Ungmennafélagsins Víkings. Vonir eru bundnar við að iðkendur úr Grundarfirði og Stykkishólmi muni spila knattspyrnu með félaginu í framtíðinni. Samstarfið hefur gert iðkendum kleift að keppa á fótboltamótum í áratugi vegna þess að félögin eins og sér hafa ekki fjöldann til þess að ná í lið. Ungmennafélagið tekur skýrt fram að Samstarfið hafi
mikið gildi fyrir þau og vonast þau til að halda því áfram og byggja á þeim góða grunni sem hefur verið lagður. Markmiðið er þó að sameina knattspyrnustarfið á Snæfellsnesi undir merkjum Víkings Ólafsvíkur og eru vonir bundnar við að UMFG og Snæfell séu tilbúin í þá vegferð með Víkingi Ó. Í tilkynningu frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar kemur fram að stjórn félagsins harmi þessa ákvörðun Víkings en að ákvörðunin hafi haft langan aðdraganda þar sem þjálfarar og stjórnir allra félaganna hafa farið yfir málin og þetta því miður niðurstaðan. Félagið þakkar fyrir samstarfið sem hefur gert börnum kleift að fara á ótal mót, kynnast þvert á bæjarkjarna og leyft öllum að vaxa á sínu getustigi. UMFG mun fljótlega auglýsa foreldrafund þar sem farið verður yfir næstu skref. Ungmennafélagið Snæfell hefur ekki sent út tilkynningu vegna málsins. JJ
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
Næsta tímabil undirbúið
Stjórn Víkings Ólafsvíkur hefur í nógu að snúast þessa dagana þó að tímabilið sé á enda. Búið er að undirrita þrjá nýja samninga við leikmenn sem koma til með að spila með liðinu næsta sumar og eru fleiri samningar í bígerð. Fyrirliðinn Ingvar Freyr Þorsteinsson hefur framlengt samninginn sinn og undirritaði nýjan tveggja ára samning. Ingvar hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin en hann skoraði 4 mörk í sumar og spilaði 22 leiki í deildinni. Björn Henry Kristjánsson undirritaði einnig tveggja ára áframhaldandi samning en hann stóð sig einnig með
prýði í sumar þegar hann spilaði 25 leiki fyrir liðið í sumar. Harley Willard var þriðji leikmaðurinn sem undirritaði samning við liðið en hann gerði einnig tveggja ára samning. Harley er vel kunnugur staðháttum í Ólafsvík en hann spilaði með Víking Ó. þrjú sumör frá 2019 til 2021. Hann á 68 leiki í deild og bikar með liðinu og skoraði í þeim 36 mörk. Hann er 29 ára gamall framherji og hefur spilað með Ægi Þorlákshöfn í sumar. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig leikmannamál liðsins halda áfram að þróast á næstu vikum. JJ
Akstursstyrkur vegna íþróttaog tómstundaiðkunar barna Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþrótta- og tómstundaiðkun. Árlegur styrkur er nú 43.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti. Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris eða forráðamanns, nafn barns eða barna auk kennitölu og reikningsnúmer þar sem styrkur skal lagður inn. Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiðar. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 eða á netfanginu lilja@snb.is. Snæfellsbær
Hvað býr í fjörunni?
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Fimmtudaginn 8. október opnaði sýning nemenda 4.bekkjar úr Grunnskóla Snæfellsbæjar í þjóðgarðsmiðstöðinni sem ber heitið “Hvað býr í fjörunni?” og er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands. Unnið var með lífríki fjörunnar, en í Gsnb er mikið unnið með nærumhverfi nemenda og það nýtt sem viðfangsefni og uppspretta hugmynda. Nemendur byrjuðu á að skoða lífríki fjörunnar í Krossavík og fengu fræðslu frá landverði Snæfellsjökulsþjóðgarðsins, hvernig hægt væri að greina og þekkja kuðunga og skeljar en í myndmenntastofunni er ágætt safn af kuðungum og skeljum sem nemendur hafa greiðan aðgang að
ásamt ýmsum bókum um lífverur sem búa í fjörunni og sjónum. Við skoðuðum líka efni á netinu tengt verkefninu. Nemendum var skipt í hópa, þrjú í hverjum hóp og vinnan hófst á því að þau gerðu hugarkort um hvað heillaði þau mest við fjöruna. Síðan var gerð vinnuteikning þar sem þau útfærðu hugmyndirnar sínar. Hugmyndirnar voru síðan unnar á léreft með aðferðum textíls og myndlistar og nýttu þau sér, efnisbúta, textílliti og garn til að teikna og sauma út undir leiðsögn Ragnheiðar Guðmundsdóttur textílkennara og Ingu Harðardóttur myndmenntakennara.
Fjárhagsáætlun 2027 Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana fyrir árið 2027. Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026. Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni. Athugið að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og hljóti samþykki bæjarstjórnar. Bæjarritari
Snæfellsbær
Alexandra á lokamót EM í blaki Alexandra Björg Andradóttir hefur verið að gera það gott í blaki undanfarin ár og var orðin fastur liðsmaður í U20 unglingalandsliði Íslands í íþróttinni. Alexandra hefur undanfarin tímabil spilað með heimaliði sínu UMFG en hefur nú flutt sig yfir til liðs Aftureldingar. Í byrjun september kom í ljós að hún hafði aftur verið valin í U20 liðið sem tók þátt í Evrópumóti Smáþjóða í San Marinó dagana 1.-5. október. Mótið var jafnframt undankeppni Evrópumótsins 2027. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki 3-0 á mótinu sem skilaði þeim í úrslit. Þær kepptu svo æsispennandi 5 hrinu úrslitaleik við San Marínó á lokadegi mótsins sem þær sigruðu að lokum
og hrepptu gullið. Lokamót EM fer fram á Ítalíu og Möltu dagana 8.-28. júlí 2027 en þetta er annað árið í röð sem Ísland kemst á lokamót unglinga.
Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617
JJ
Bleikur október Bleikur október er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Í mánuðinum er bleikur litur áberandi, byggingar eru lýstar upp með bleiku ljósi, fólk klæðist bleikum fatnaði, borðar bleikar veitingar og ber bleiku slaufuna. Hönnuðir slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý og Jökull Jónsson, eigendur hönnunarstofunnar Studio Pluto. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð
Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Árlegur Bleiki dagur Krabbameinsfélagsins er svo haldinn 21. október en þá eru lansmenn hvattir til að bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. SJ