7. október 2026
1224. tbl - 26. árg.
s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is
Opnunarhátíð Barnó í Klifi Barnamenningarhátíð Vesturlands árið 2026 hófst formlega með opnunarhátíð Barnó í Klifi í síðustu viku. Barnó fer fram á öllu vesturlandi í október og verða fjölbreytt atriði ætluð börnum á öllum aldri á dagskrá. Kynnar kvöldsins komu úr leikhúsi hinnar frábæru Thalíu og voru þau með allskonar skemmtilegt á milli atriða. Carla og Juan frá Búðardal sýndu sirkusatriði sem börnin tóku þátt í og sló það í gegn. Jazzband Tónlistarskóla Stykkishólms var með tónlistaratriði en þeir spiluðu nokkur lög fyrir áhorfendur og börnin dönsuðu með. Menningarfulltrúi SSV, Sigursteinn Sigurðsson setti barnamenningarhátíðina svo formlega áður en dagskrá hátíðarinnar var kynnt fyrir áhorfendum. Kvöldið endaði svo á tónlistaratriði frá Davíð Svans frá Hellissandi sem flutti frumsamið efni sem sló í gegn hjá ungum sem öldnum.
Dagskrá Barnó má finna á Facebook síðu hátíðarinnar “Barnó – Best Mest Vest”. JJ
Fræðsludagur FSS
Fræðsludagur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fór fram í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík miðvikudaginn 29. september. Fræðslan tók yfir alla félags- og skólaþjónustu á Snæfellsnesi og var ætluð starfsmönnum á Snæfellsnesi sem vinna innan þess sviðs. Á dagskrá voru fjölbreytt erindi um mikilvæg málefni sem tengjast starfi með börnum, ungmennum og fjölskyldum. Á fræðsludeginum héldu fyrirles-
arar erindi, meðal annars um erfið mál og ofbeldi, barnavernd, skólahöfnun og skólatengsl, tvíog fjöltyngi og jákvæð samskipti. Erindin voru fróðleg og gagnleg og áttu allir sem saman komi í félagsheimilinu góða samveru og ánægjulegan fræðsludag. Meðfylgjandi mynd er af Tinnu Sigurðardóttur frá MEMM sem hélt fyrirlestur um tví- og fjöltyngi. SJ
Dansað í íþróttahúsinu Fimmtudaginn 1. október lauk danskennslu barna í GSNB norðan heiðar. Líkt og hefð er fyrir var efnt til danssýningar að því tilefni sem Jón Pétur Úlfljótsson danskennari hafði undirbúið og æft með nemendum. Jón Pétur hefur stundað danskennslu í Snæfellsbæ í fjölda ára og kannast flestir við hans vinnubrögð. Að venju tókst vel til og krakkarnir höfðu greinilega lagt mikla vinnu og æfingar í danssporin. Það var gaman að sjá samvinnu nemenda þvert á bekki en þau studdu hvort annað í gegnum sýninguna. JJ
Aflatölur
14. - 30. september
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Samverustund í Röst Síðasta vetur bauð Kvenfélag Hellissands bæjarbúum til vel heppnaðrar samverustundar í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Viðburðinn héldu kvenfélagskonurnar í tilefni af Gulum september og viku einmannaleikans sem haldin er árlega. Framtakið gekk vel, samverustundirnar voru nokkrar og tóku bæjarbúar vel í verkefnið. Nú hefur Kvenfélag Hellissands ákveðið að endurtaka leikinn og bjóða íbúum að nýju að koma í Röst að eiga notalega stund saman. Nú er Gulum september
að ljúka og vika einmannaleikans haldin frá 2. til 9. október og því verður fyrsta samverustund kvenfélagsins í ár haldin miðvikudaginn 7. október klukkan 19:00. Spilað verður Kínaskák, Partners og fleiri spil auk þess sem hægt verður að gera handavinnu eða einfaldlega bara spjalla og njóta í góðum félagsskap. Kaffi, gos og konfekt verður í boði og hlakka kvenfélagskonur til að sjá sem flesta. Næsta samverustund í Röstinni verður svo þann 4. nóvember og sú þriðja verður haldin 2. desember.
Nokkur haustbragur er á fiskveiðum í Breiðafirði þessa dagana, frekar rólegt yfir öllu og ekki mikil fiskgengd, nokkuð eðlilegt haust sem sagt. Kristinn er farinn norður og Særif hefur verið að landa í Sandgerði, báðir að leita að meira fiskeríi. Þann 16. september sl. kom saltskipið Wilson Porto til Ólafsvíkur og skipaði upp 2.500 tonnum af salti, Ragnar & Ásgeir sáu um alla keyrslu og tók þetta um 17 klst. Á þessu tímabili 14. september – 30. september komu á land 713 tonn í 86 löndunum. Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5): Dragnót:
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
Júlli Páls 13 tonn í 3 löndunum. Lína:
Tjaldur 206 tonn í 3 löndunum. Rifsnes 158 tonn í 2 löndun. Stakkhamar 64 tonn í 12 lönd. Brynja 20 tonn í 6 löndunum. Kristinn 17 tonn í 3 löndunum. Handfæri:
Bessa 1,3 tonn í 4 löndunum. Glaður 600 kg. í 2 löndunum. Jóa II 590 kg. í 2 löndunum. Sverrir 452 kg. í 1 löndun. Glaumur 430 kg. í 1 löndun.
HÖRÐ Í HORN AÐ TAKA
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Netfang: steinprent@simnet.is
Net:
Ólafur Bjarnason 117 t. í 6 lönd. Saxhamar 33 tonn í 2 löndunum.
Upplag: 500
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Rifsari 28 tonn í 8 löndunum. Guðm. Jensson 26 tonn í 5 lönd. Sveinbjörn Jakobs. 19 t. í 6 lönd.
bótaréttur.is 520 5100 Suðurlandsbraut 24
ÞB
Heilsuvika Snæfellsbæjar gekk vel
Heilsuviku Snæfellsbæjar er lokið en hún stóð yfir dagana 23. til 30. september. Fjöldi viðburða var í boði til viðbótar við öflugt íþróttastarf og heilsueflandi viðburði sem nú þegar eru í boði í Snæfellsbæ. Í Heilsuviku Snæfellsbæjar var áhersla lögð á heilsu,
íþróttir, hreyfingu auk líkamlegrar og andlegrar velferðar. Markmiðið var að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru þegar í boði í sveitarfélaginu fyrir bæjarbúum, Snæfellsbær bauð íbúum og gestum frítt í sund, boðið var upp
á fræðslufyrirlestra, kynningar og heilsutengda viðburði og fyrirtæki tóku þátt með tilboðum eða viðburðum tengdum heilsu og lífsstíl. Bæjarbúar tóku virkan þátt í vikunni með einum eða öðrum þætti. Meðfylgjandi eru myndir sem gefa innsýn í skemmtilega
dagskrá heilsuvikunnar, þar á meðal fyrirlestri Kristjáns Hafþórssonar “Þú ert frábær!”, sundleikfimi eldri borgara, krakkafit í Cf Snb og Ara Bent og Dylan sem tóku þátt í heilsuviku hlaupi Hlaupahóps Snæfellsbæjar.
taka þátt í gefandi félagsstarfi og láta gott af sér leiða. Nýjum félögum fylgja nýjar hugmyndir, fleiri hendur og aukinn kraftur til að styðja við samfélagið. Öll sem hafa áhuga eru hvött til að hafa samband við félaga í klúbbnum og kynna sér starfið. Það þarf ekki að búa yfir sérstakri reynslu – áhugi, félagsskapur og vilji til að leggja lið eru góður grunnur.
Klúbburinn þakkar bæjarbúum, fyrirtækjum og öllum stuðningsaðilum fyrir góðan stuðning. Árangurinn er sameiginlegur og sýnir hversu miklu við getum áorkað þegar við stöndum saman.
SJ
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Lionsklúbbur Grundarfjarðar veitti 4 millj. króna til samfélagsins Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur á starfsárinu 2025–2026 veitt samtals 4 milljónir króna í styrki til íþróttastarfs, umönnunar og samfélagsverkefna í heimabyggð. Að baki þessum stuðningi liggur öflugt sjálfboðastarf félaga og góður stuðningur bæjarbúa við fjáröflun klúbbsins. Styrkir starfsársins skiptust þannig: Meistaraflokkur blakdeildar UMFG: 200.000 kr. Pílufélag Grundarfjarðar, UMFG: 300.000 kr. Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól: 500.000 kr. Skíðadeild Grundarfjarðar: 1.500.000 kr. Þaksjóður Grundarfjarðarkirkju: 1.500.000 kr.
Þessi verkefni endurspegla fjölbreytt hlutverk klúbbsins: að styðja við íþróttir og félagslíf, hlúa að fólki og leggja sitt af mörkum til þess að byggja upp og varðveita það sem skiptir samfélagið máli. Framlag Lionsfélaga felst einnig í vinnuframlagi. Félagar hafa meðal annars tekið þátt í hreinsun meðfram vegum frá Búlandshöfða að afleggjaranum upp á Vatnaleið og annast sölu fermingarskeyta til fjáröflunar. Með samstilltu átaki verða góðar hugmyndir að verkefnum sem gagnast heimabyggðinni.
Við viljum gera enn betur – og þér er boðið að vera með! Lionsklúbbur Grundarfjarðar óskar eftir fleiri félögum sem vilja
Vertu með – saman gerum við góðan bæ enn betri. Lionsklúbbur Grundarfjarðar
Fjárhagsáætlun 2027 Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana fyrir árið 2027. Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026. Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni. Athugið að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og hljóti samþykki bæjarstjórnar. Bæjarritari
Snæfellsbær
Hrútasýning í reiðhöllinni Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi verður haldin laugardaginn 10. október í Reiðhöllinni í Ólafsvík og hefst kl 14:00. Hrútasýning er viðburður þar sem sauðfjárbændur, dómarar og áhorfendur safnast saman til að sýna, skoða og meta gæði hrúta. Á sýninguna eru allir velkomnir og áhugafólk um sauðfjárrækt er auðvitað hvatt til að mæta með gripina sína til að sýna þá og sjá aðra. Það verður mikið spáð og þukklað. Sýningin í Reiðhöllinni í Ólafsvík verður haldin af Sauðfjárræktarfélgainu Búa. Á staðnum verður gimbrahappdrættið sívinsæla sem hefur vakið mikla lukku á hrútasýningum. Mikil stemning skapast í kringum happdrættið og
margir veglegir vinningar verða í boði. Hægt er að kaupa sér miða á staðnum á 1500 krónur en enginn posi verður á staðnum, hægt verður að greiða með pening eða leggja inn. Þá verða einnig veitingar í boði gegn vægu gjaldi eða 2000 krónur á mann og frítt fyrir börn 14 ára og yngri. Sauðfjárræktarfélögin hafa sett nokkrar reglur á lambhrútasýningar á Snæfellsnesi. Héraðssýning lambhrúta er eingöngu sýning á lambhrútum. Hrútar verða að vera fæddir á Snæfellsnesi og því má ekki koma með aðkeypta hrúta. Allir hrútar sem skráðir eru til keppni skulu vera stigaðir, þeir verða ekki stigaðir aftur heldur verður stuðst við fyrri stigun og nauðsynlegt er að koma með stigun hrútanna með á sýninguna. Ef það er ekki gert, er viðkomandi hrútur ekki með í sýningunni. Hvert býli má koma með 3 hrúta í hverjum flokki en keppt er í kollóttum, hyrndum og mislitum og/eða ferhyrndum. Hrútar sem koma á sýninguna verða að ná 83 stigum, það á þó ekki við um mislita og ferhyrnda hrúta.
Blómaklúbbur í Pakkhúsinu
Fyrsta prufukvöld blómaklúbbsins fór nýlega fram í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Þátttakendur völdu sér fersk blóm, útbjuggu blómvönd að eigin smekk og tóku hann með sér heim. Við þökkum öllum sem komu fyrir skemmtilega og notalega samveru. Við stefnum að því að halda fleiri blómakvöld og hittast oftar í vetur. Næsta dagsetn-
ing verður auglýst síðar. Við erum líka að bæta við nýjum vörum í versluninni með heimafólk í huga. Verið hjartanlega velkomin í Pakkhúsið til að skoða nýjungarnar og fá ykkur kaffisopa! Bestu kveðjur, Yevheniia og Polina Pakkhúsið Saga & Kaffi