Skip to main content

BaejarbladidJokull1223tbl

Page 1

30. september 2026

1223. tbl - 26. árg.

Flæddi að ferðamönnum

Seinnipart laugardagsins 26. september barst björgunarsveitinni Lífsbjörgu útkall þar sem tveir ferðamenn voru í sjálfheldu á skeri við Ytri Tungu í Staðarsveit. Tekið var að flæða að svo að ferðamennirnir komust ekki aftur að landi. Fimm félagar fóru af stað í verkefnið, þrír félagar óðu út til fólksins í blautbúning-

um með uppblásin kút sem fólkið gat komist út á og félagarnir sem biðu í landi drógu fólkið þurrt á land. Selirnir á Ytri Tungu syntu með sjálfboðaliðunum og fylgdust vel með björgunaraðgerðum. Meðfylgjandi mynd er frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu.

Endurbætur á Norðurþili á Rifi

SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

Starfsmenn hafna Snæfellsbæjar hafa verið duglegir í sumar við tiltekt og fegrun á umhverfi hafnanna. Eitt af þeim verkefnum var að endurnýja fríholtslengjur Norðurþils á Rifi. Dekkjalengjurnar voru undir-

búnar í sumar en í þær fóru 255 stykki af dekkjum, 561 metri af keðju og 510 stykki af lásum. Í heildina voru þetta 51 lengja sem þurfti til þess að þekja Norðurþilið og er það nú eins og nýtt. JJ


Styrktartónleikar í Ólafsvíkurkirkju

Fimmtudaginn 24. september hélt Sóknarnefnd Ólafsvíkur tónleika í Ólafsvíkurkirkju til styrktar kirkjunnar. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni af 60 ára afmæli Ólafsvíkurkirkju árið 2027. Í tilefni afmælisins hefur verið ráðist í ýmiss konar breytingar, uppfærslur og lagfæringar í kirkjunni og er það von Sóknarnefndar Ólafsvíkur að með þessum styrktartónleikum sé hægt að halda áfram viðhaldi á kirkjunni. Því var boðið til notalegra tónleika þar sem fjölbreytt tónlist var í fyrirrúmi. Á efnisskránni voru meðal annars lög eftir Gunnar

Þórðarson, Megas og Halldór G. Pálsson, ásamt öðrum fallegum lögum sem flutt voru af Skólakór Snæfellsbæjar, Kirkjukór Ólafsvíkur og hæfileikaríkum einsöngvurum og hlóðfæraleikurum. Á tónleikunum talaði Olga Guðrún Gunnarsdóttir, formaður Sóknarnefndar, um þær framkvæmdir og viðhald sem hefur verið farið í og hvað sé á döfinni. Hún þakkaði velunnurum kirkjunnar fyrir sitt framlag og kynnti kirkjugesti fyrir nýjustu viðbótinni en það voru nýir hátalarar sem kirkjan fékk að gjöf frá hjónunum Sigurði Þorsteins-

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

syni og Margréti Jónu Gísladóttur. Þá fékk Vilborg Lilja Stefánsdóttir orðið á milli tónlistaratriða og færði kirkjunni 100.000 króna gjöf fyrir hönd fjölskyldu sinnar. Kirkjan skipaði stóran sess í lífi heiðurshjónanna Stefáns Jóhanns Sigurðssonar heitins og Guðrúnar Alexandersdóttur en

Stefán starfaði með einum eða öðrum hætti við kirkjuna í 40 ár. Þau sem sáu sér ekki fært að mæta á tónleikana en vilja styrkja kirkjuna er bent á reikning Ólafsvíkurkirkju 0194-26-76 kt: 500269-4999. SJ

Réttað sunnan Fróðárheiðar

Um liðna helgi var réttum í Snæfellsbæ áframhaldið þegar réttað var í Bláfeldarrétt í Staðarsveit, Grafarrétt í Breiðuvík, Klofningsrétt í Beruvík og Ölkeldurétt í Staðarsveit. Fjöldi fólks tók þátt í að smala og rétta og aðrir fylgdust með. Hvora leiðina sem er farið eru

réttir alltaf góð skemmtun og nær skemmtanagildið jafnt til ungra sem aldna. Mikið líf og fjör ríkti á sunnanverðu Snæfellsnesi í blíðskapaveðri. Nú er þá bara eftir vinna við að finna það fé sem gæti hafa orðið eftir á fjöllum, ef eitthvað er.


Akstursstyrkur vegna íþróttaog tómstundaiðkunar barna Íbúar í dreifbýli Snæfellsbæjar geta sótt árlega um sérstakan akstursstyrk til að koma til móts við kostnað sem fellur til vegna aksturs til Ólafsvíkur eða Hellissands í íþrótta- og tómstundaiðkun. Árlegur styrkur er nú 43.000 krónur og skulu umsóknir berast bæjarritara í tölvupósti. Í umsókn þarf að koma fram nafn foreldris eða forráðamanns, nafn barns eða barna auk kennitölu og reikningsnúmer þar sem styrkur skal lagður inn. Einnig þarf að fylgja staðfesting um að barn sé skráð í tómstundaiðkun norðan heiðar. Nánari upplýsingar veitir Lilja Ólafardóttir, bæjarritari, í síma 433-6900 eða á netfanginu lilja@snb.is. Snæfellsbær

Uppbyggingarsjóður opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áhersl-

um sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Umsóknarfrestur er til 21. október og er sótt um í gegnum umsóknargátt Rannís. Umsækjendur eru hvattir til að leita aðstoðar hjá ráðgjöfum SSV sem eru boðnir og búnir að veita umsækjendum góð ráð við gerð umsókna. Uppbyggingarsjóður Vestur-

lands opnar á mörg tækifæri en árið 2026 hefur verið úthlutað 54.340.000 krónum til ýmissa verkefna. Þar á meðal reksturs Sjóminjasafnsins á Hellissandi, fjármögnun nýs listaverks Lionsklúbbs Ólafsvíkur sem er í býgerð og sýningar um verslunarsögu Ólafsvíkur sem var sett upp í Pakkhúsinu af Hollvinafélagi

Pakkhússins Ólafsvík. Þá fengu bæði Rifsvöllur og Snæfells Kayak Adventure atvinnu og nýsköpunarstyrk frá sjóðnum. Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð er á finna á vef Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is undir Uppbyggingarsjóður Vesturlands.


Gróðurvika í Grundarfirði Nýverið var jaldin Gróðursetningarvika í Grundarfirði og tóku börn, starfsfólk og bæjarbúar Grundarfjarðar þátt í fjölbreyttum fræðslu- og gróðursetningarverkefnum. Í Grunn- og leikskóla bæjarins var þétt dagskrá þar sem nemendur fengu að kynnast leyndardómum plönturíkisins. Börn á leikskólastigi fóru í fræðandi leik um haustlauka áður en þau gróðursettu krókusa, vetrargosa og páskaliljur á leikskólalóðinni. Krakkarnir bíða spenntir eftir blómstrun þegar það fer að vora. Yngri bekki grunnskólans fóru í græðlingatöku af skrautrunnum sem settir voru í gróðurbakka. Græðlingarnir munu svo ræta sig í gróðurhúsi í skólanum í vetur og verða vonandi notaðir

á næsta gróðursetningardegi eftir ár. Efri bekkir grunnskólans fengu fræðslu um fjölgun trjáplantna áður en farið var í gönguferð í skógrækt þar sem börnin söfnuðu fræjum, berjum og könglum. Guðríður Helgadóttir (Gurrý)

Auður í stjórn Samtaka Íslenskra sveitarfélaga Landsþing Sambands Íslenskra sveitarfélaga var haldið í Hofi á Akureyri dagana 23.-25. September síðastliðinn. Ný stjórn var kosin á þinginu og var Auður Kjartansdóttir, forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar kjörin annar af tveimur aðalmönnum í stjórn fyrir norðvestur kjördæmi. Það var af mörgu að taka á þinginu en m.a. var samþykkt ályktun um ábyrgð sveitarfélaga gagnvart verðbólgu sem hljóðar svo: „Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktar um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því

garðyrkjufræðingur var sérstakur gestur vikunnar en hún fræddi bæði skólabörn og almenning. Þann 15. September var hún með fræðsluerindi fyrir náttúruunnendur af Snæfellsnesi í Samkomuhúsinu í Grundarfirði. Þar fór Gurrý yfir uppbyggingu beða, val á fjölæringum og laukplöntum til að lágmarka viðhald og margt fleira. Fundargestir fengu einnig góð ráð um helstu haustverkefnin í garðinum til þess að vinna sér í haginn fyrir næsta vor. Í tilefni að Degi Íslenskrar náttúru var svo haldin gróðursetning á leikskólalóð þar sem tvö glæsi-

leg gróðurbeð voru fyllt af fjölæringum, runnum og haustlaukum. Íbúar, leikskólabörn og önnur börn af öllum skólastigum bæjarins tóku þátt í gleðinni. Bæði íbúar og fyrirtæki höfðu gefið svo mikið af plöntum til verkefnisins að ekki tókst að nýta allt en afgangurinn fær að njóta sín annarsstaðar í þéttbýlinu. Grundarfjarðarbær þakkar Gróðrastöðinni Þöll sérstaklega fyrir sitt framlag en þau gáfu ótrúlegt útval af fallegum plöntum sem nýttust í verkefnið.

Svekkjandi endir á fótboltasumrinu

leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu.“ Með þessu lýsa sveitarfélög landsins yfir vilja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og gera tilraun til að stuðla að auknum stöðugleika í Íslensku efnahagslífi. Þingið telur að núverandi aðstæður kalli á sameiginlega ábyrgð allra helstu aðila samfélagsins og að samstillt viðbrögð séu nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgu og háum vöxtum. JJ

Mikil umræða hefur verið undanfarið um endalok Íslandsmóts KSÍ hjá 3. Flokki karla umf. Víkings. Reglur KSÍ í yngri flokkum Íslandsmóts eru þannig að ef félag er ekki með skráð A-lið í ákveðnum flokki þá getur það lið aldrei komist í úrslitakeppni Íslandsmótsins, þó svo að liðið vinni alla sína leiki. Það má heldur ekki skráð lið neðar en sem B-lið ef aðeins eitt lið er skráð til keppni í flokknum. Þetta setur minni félögum á landsbyggðinni þröngar skorður enda eru ekki öll lið með getu til þess að spila á Íslandsmóti A- og Bliða. Auk þess eru smærri félög úti á landi oft aðeins með eitt lið í hverjum flokki ef þau eru heppin en hér á svæðinu náum við í flestum flokkum einu liði með samvinnu Snæfellsnessamstarfsins. 3. flokkur karla hjá Víking hefði átt að spila úrslitaleik í B-liða en vegna þess að félagið

var ekki með A-lið skráð þá fengu þeir ekki það tækifæri og liðið í öðru sæti tók þeirra stað. Framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Víkings, Tinna Ýr Gunnarsdóttir hefur verið að vekja athygli á þessum málum á hinum ýmsu miðlum með því markmiði að gera keppnina sanngjarnari fyrir smærri félög sem hafa ekki sama iðkendafjölda og félögin á höfuðborgarsvæðinu. Þátttaka, sanngirni og jákvæð upplifun keppenda ætti að vera í forgrunni og hefur hún verið að þrýsta á að Knattspyrnusamband Íslands breyti reglum mótsins svo að allir geti tekið þátt með það að leiðarljósi. Tinna hefur nú komist í samband við hóp smærri félaga sem deila sömu sýn og umf. Víkingur í þessum efnum og vinna þau í sameiningu að því að breyta reglunum svo að iðkendur framtíðarinnar þurfi ekki að lenda í sömu stöðu. JJ


Fjárhagsáætlun 2027 Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana fyrir árið 2027. Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsóknir er varða næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2026. Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2026 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni. Athugið að engir styrkir fást greiddir nema um þá sé sótt og hljóti samþykki bæjarstjórnar. Bæjarritari

Snæfellsbær

Skákin hafin á ný Sumarfríið er búið og skákæfingarnar eru að byrja að nýju. Fyrsta æfing vetrarins var sunnudaginn 27. september í bláa salnum á Klifi. Æfingar í vetur verða á sunnudögum kl 12 og á þriðjudögum kl 16:30 með fyrirvara um að salurinn sé laus og mun skákmaðurinn Stefán Arnar Jóhannesson sjá um kennsluna. Á þessari fyrstu æfingu vetrarins fór minnstur tími í að tefla og meiri tími í að rýna í leikinn og fara yfir hvernig skrifað er skákir. Mikil tilhlökkun er hjá unglingaliðinu sem er samansett af þeim Eiríki, Víglundi, Kristóferi, Hilmari, Sævari og Stefáni. Liðið mun taka þátt í Íslandsmóti ungmenna í Garðabæ 17. október. Allir krakkar eru velkomnir á skákæfingar Taflfélags Snæfellsbæjar en einu skilyrðin fyrir þátttöku er að kunna mannganginn. Á meðfylgjandi mynd er unglingasveit Taflfélagsins en Stefán Arnar vantar á myndina. SJ


Tóku þátt í Ungmennaþingi Vesturlands Sex ungmenni úr Ungmennaráði Snæfellsbæjar tóku þátt í Ungmennaþingi Vesturlands sem haldið var á Hótel Borgarnesi dagana 25.–27. september 2026. Alls komu saman 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki, skiptast á skoðunum og móta sameiginlega sýn á framtíð Vesturlands. Dagskrá helgarinnar einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og góðri samvinnu þátttakenda. Ungmennin fengu tækifæri til að ræða þau málefni sem þau telja mikilvægust og koma eigin sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri. Afrakstur vinnunnar var ályktun Ungmennaþings Vesturlands 2026, þar sem fram koma áherslur og tillögur ungmenna um fjölbreytt málefni sem þau vilja sjá fá aukið vægi í samfélaginu.

Ungmenni í samtali við kjörna fulltrúa

Á þingið mættu einnig alþingismenn og sveitarstjórnarfólk af Vesturlandi og tóku þátt í samtali við ungmennin. Ályktun þingsins var kynnt og rædd og skapaðist í kjölfarið opið og uppbyggilegt samtal milli unga fólksins og kjörinna fulltrúa. Ungmennin fengu þannig tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum beint á framfæri, spyrja spurninga og ræða þau verkefni og þær áskoranir sem þau telja mikilvægt að stjórnvöld og sveitarfélög horfi til á komandi árum. Þátttaka ungmennanna úr Snæfellsbæ var mikilvægur liður í starfi Ungmennaráðs Snæfellsbæjar, en eitt af hlutverkum

ráðsins er að vera rödd ungs fólks í sveitarfélaginu og skapa tækifæri fyrir ungmenni til að hafa áhrif á málefni sem þau varða. Ungmennaþingið tókst afar vel og sýndi mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem rödd ungs fólks fær að heyrast og ungmenni fá raunverulegt tækifæri til áhrifa. Þegar ungt fólk og ákvörðunartökufólk setjast saman við sama borð skapast samtal, nýjar hugmyndir og tækifæri til að byggja upp samfélag þar sem sjónarmið allra kynslóða fá að njóta sín. Ungmennaráð Snæfellsbæjar getur verið stolt af sínum fulltrúum og þátttöku þeirra í þinginu.

Félag eldri borgara í Grundarfirði

Halldóra Kristín Unnarsdóttir Tómstunda- og félagsmálafræðingur

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Aðalfundur Félags eldri borgara í Grundarfirði fór fram Í Samkomuhúsi Grundarfjarðar föstudaginn 25. september. Félag eldri borgara var stofnað 1992. Tilgangur félagsins er að viðhalda andlegri og líkamlegri heilsu. Félagsstarf eldri borgara er blómlegt í Grundarfjarðarbæ og kröftugt öldungaráð gætir hagsmuna eldri borgara í Grundarfirði og er bæjarstjórn til ráðgjafar um þau málefni. Á aðalfundi félagsins færði Sverrir Karlsson Félagi eldri borgara mynd af Guðmundu

Hjartardóttur en hún var einn af stofnfélögum félagsins. Ásgeir Valdimarsson, formaður félagsins, tók við gjöfinni fyrir hönd félagsins. Þá afhenti Sverrir félaginu einnig stofnfélagaskrá félagsins. Súpa og brauð var í boði fyrir fundargesti og að fundarstörfum loknum var spilað bingó og skemmt sér í góðum félagsskap. Meðfylgjandi mynd er af Sverri og Ásgeiri við afhendingu myndarinnar. SJ


Uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu

Uppskeruhátíð Snæfellsnes samstarfsins og Ungmennafélagsins Víkings var haldin með pompi og prakt í síðustu viku. Allir iðkendur félaganna í sumar voru boðaðir í íþróttahúsið til þess að taka við viðurkenningum og verðlaunum fyrir árangurinn. Allir iðkendur fengu gjafabréf frá ísbúðinni Huppu og svo voru tekn-

ar hópmyndir af hverjum flokki fyrir sig. í 3. flokki umf. Víkings og 4. og 5. flokki Snæfellsnessamstarfsins voru einnig veittar viðurkenningar fyrir besta liðsfélagann, mestu framfarir á tímabilinu og efnilegasta leikmanninn. Að verðlaunaafhendingu lokinni fengu allir pulsu og djús.

Umf Víkingur 3.fl kk Besti félaginn - Sindri Snær 3.fl kk Mestu framfarir - Bjarni 3.fl kk Efnilegastur - Matthías 3.fl kvk Besti félaginn - Díana Eik 3.fl kvk Mestu framfarir - Alma 3.fl kvk Efnilegust - Freydís Lilja

Snæfellsnes 4.fl kk Besti félaginn - Gunnar Bent 4.fl kk Mestu framfarir - Kacper 4.fl kk Efnilegastur - Jón Davíð 4.fl kvk Besti félaginn - Embla Eik 4.fl kvk Mestu framfarir - Arna Eir 4.fl kvk Efnilegust - Hekla Mist 5.fl kk Besti félaginn - Oliver Hrafn 5.fl kk Mestu framfarir - Emir 5.fl kk Efnilegastur - Magni Rúnar 5.fl kvk Besti félaginn - Aþena Kristín 5.fl kvk Mestu framfarir - Úlfhildur Ísafold 5.fl kvk Efnilegust - Elma Lísa


52%

14%

26%

13%

33%

23%

35%

16%

25%

32% 23%

Tilboðin gilda 1. - 11. október

38%


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1223tbl by Steinprent - Issuu