16. september 2026
1221. tbl - 26. árg.
Öflugt starf Ferðafélags Snæfellsness Nýju lífi var blásið í Ferðafélag Snæfellsness á aðalfundi félagsins í maí síðastliðinn og var fyrsta ferð félagsins farin í lok ágúst. Ferðafélag Snæfellsness er sívaxandi og virkt félag en á síðasta stjórnarfundi Ferðafélags Íslands var samþykkt umsókn Ferðafélags Snæfellsness um að verða deild í Ferðafélagi Íslands. Fyrsta ferð vetrarins var farin laugardaginn 29. ágúst. Þá gengu um 30 manns saman á Ljósufjöll í Eyja- og Miklaholtshreppi undir leiðsögn Guðmundar Rúnars Svanssonar, formanni Ferðafélags Snæfellsness. Gengið var upp með Hamar- og Valafossum í Kleifá, upp austari flögubergshrygginn og þaðan inn í dalinn og upp í skarðið milli Grána og Bleiks. Sumir nýttu matarhléið til að ganga upp á Grána og svo fór hópurinn saman upp á Bleik. Gangan tók um 9 og hálfan tíma með pásum og eftir daginn hélt hópurinn á Miðhraun í heitan pott og hlaðborð sem var innifalið í göngunni. Ferðafélag Snæfellsness ætlar að byrja starfsárið að krafti því að sunnudaginn 6. september efndi félagið í samstarfi við Snæfellsjökulsþjóðgarð til dagsgöngu í þjóðgarðinum. Gengið var frá Sandhólum, um gömlu vermannagötuna yfir Bervíkurhraun í Dritvík. Þaðan var gengið áfram á Djúpalónssand, um Einarslón og Þrælavík að gestastofunni á Malarrifi. Mörg fræðslustopp voru á göngunni þar sem talað var um sögu og jarðfræði svæðisins og komu líka fræðsluerindi frá gestunum.
Þann 8. september bauð Ferðafélagið svo til þriðjudagskvöldgöngu á Búrfell. 9 manna hópur safnaðist saman við Þæfusteinsrétt og gekk þaðan réttsælis hring umhverfis fjallið með uppgöngu á miðri leið. Gott útsýni var á göngunni, en jafnframt var nokkuð hvasst. Gangan tók nákvæmlega tvo og hálfan tíma og prísuðu þátttakendur sig sæla að ekki hóf að dropa fyrr en gangan var að klárast. Kristinn Jónasson var fararstjóri og fræddi göngufólk um staðhætti og örnefni á göngunni. Meðfylgjandi mynd er af hópnum sem tók þátt í þriðjudagskvöldgöngunni á Búrfell. SJ
Framkvæmdir á Ólafsbraut Framkvæmdir standa nú yfir við hluta Ólafsbrautar í Ólafsvík þar sem unnið er að endurnýjun ljósleiðaralagna, rafmagns og gangstétta. Mikið rask hefur verið á svæðinu undanfarið þar sem um stórt verkefni er að ræða en framkvæmdaraðilar reyna að halda þeirri röskun í lágmarki. Þolinmæði og skilningur íbúa Ólafsbrautar er ómetanlegur á þessum tímum en áætlað er að verkinu verði lokið fyrir næstu mánaðarmót. Framkvæmdin er fjölþætt en Rarik sér um að endurnýja heimtaugar ljósastaura, Míla kemur að lagningu ljósleiðara, Snæfellsbær endurnýjar gangstéttirnar og Vegagerðin kemur að gatnagerð. SJ
Ráðherra heimsótti Snæfellsnes
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
Í byrjun september heimsótti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Snæfellsnesið. Jóhann Páll sat fund með bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar fimmtudaginn 3. september þar sem rætt var um tækifæri Grundarfjarðar í ferðaþjónustu, á hafnarsvæðinu og uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Þá var rætt um leit að heitu vatni og styrkingu raforkukerfisins á Snæfellsnesi. Ráðherrann fór þá um sveitarfélagið og kíkti meðal annars á Grundarfjarðarhöfn, G.Run og Grunnskóla Grundarfjarðar þar sem rætt var um orku-
þörf þessara staða, hvað hefur verið gert og á hverju sé þörf. Að lokum fékk fékk Jóhann Páll kynningu á blágrænum ofanvatnslausnum frá Nönnu Vilborgu Harðardóttur, verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála. Heimsóknin endaði svo á hádegisverði með bæjarstjórum Snæfellsness. Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðar, Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar ræddu við Jóhann Pál um sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna og var þar flutningskerfi raforku sérstaklega tekið fyrir. SJ
Aflatölur1. - 13. september Þann 1. september hófst nýtt kvótaár og eru allir komnir af stað. Lífið er að færast yfir hafnirnar aftur eftir að strandveiðunum lauk þann 12. ágúst. Veiðin hefur ekki verið neitt sérstök undanfarið, en það er svo sem ekki óvanalegt fyrir haustmánuðina. Af dragnótarbátunum okkar eru Steinunn, Magnús, Esjar og Hildur á veiðum fjarri heimaslóðum. Vonandi fer veiðin að glæðast hérna heimavið. Á þessu tímabili 1. september – 13. september komu á land 670 tonn í 91 löndun.
Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5): Dragnót:
Ólafur Bjarnason 59 tonn í 7 löndunum. Rifsari 51 tonn í 7 löndunum. Guðmundur Jensson 45 tonn í 5 löndunum. Sveinbjörn Jakobsson 38 tonn í 7 löndunum. Egill 34 tonn í 5 löndunum. Net:
Júlli Páls 20 tonn í 6 löndunum.
Lína:
Stakkhamar 90 tonn í 12 löndunum. Rifsnes 72 tonn í 1 löndun. Kristinn 65 tonn í 9 löndunum. Tjaldur 61 tonn í 1 löndun. Særif 46 tonn í 5 löndunum. Handfæri:
Bessa 700 kg. í 3 löndunum. Glaumur 500 kg. í 1 löndun. Kristborg 184 kg. í 1 löndun.
ÞB
Heilsumiðstöðin Lind opnar í Ólafsvík Heilsumiðstöðin Lind hefur opnað að Norðurtanga 3 í Ólafsvík. Um er að ræða hlýlegan og notalegan stað þar sem hægt er að finna fjölbreytta þjónustu á sviði heilsu og vellíðunar undir einu þaki og jafnframt aðstöðu fyrir meðferðaraðila sem vilja koma til Snæfellsness og bjóða upp á þjónustu sína. Í Heilsumiðstöðinni starfa Anna Björk Guðjónsdóttir, eigandi heilsumiðstöðvarinnar og Bowentæknir og Gerða Arndal, snyrtifræðimeistari og eigandi Musku Snyrtistofu. Anna Björk segir Heilsumiðstöðina Lind vera hugmynd sem lengi hefur verið í mótun en er nú loksins að verða að möguleika. Heilsumiðstöðin hlaut Öndvegisstyrk 2026 að upphæð tveggja milljóna króna og hefur sá stuðningur skipt gríðarlega miklu máli við uppbyggingu miðstöðvarinnar og hjálpað til við að gera þennan draum að veruleika, því
vill Anna koma kærum þökkum til Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi og Sóknaráætlun Vesturlands. Anna býður upp á Bowenmeðferð sem er mild og heildræn bandvefslosun sem hefur græðandi áhrif og losar um spennu, bæði líkamlega og andlega. Með
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
léttum hreyfingum og mildum þrýstingi á ákveðin svæði til að koma hreyfingu á vöðva og vefi fer af stað ferli sem kemur líkamanum í rétt jafnvægi. Meðferðin vinnur vel með stoðkerfi, taugakerfi og sogæðakerfi líkamans. Gerða Arndal er snyrtifræðimeistari og rekur Musku Snyrtistofu. Hún býður upp á fjölbreytta snyrtiþjónustu, meðal annars litun og plokkun, lash & brow lift, fótsnyrtingar, vaxmeðferðir, andlitsmeðferðir og götun. Í miðstöðinni er 14 fermetra meðferðarherbergi til leigu fyrir meðferðaraðila sem vilja koma í Snæfellsbæ og bjóða upp á þjónustu sína í einn eða fleiri daga. Vonin er að hægt verði að fá fjölbreytta meðferðaraðila og auka þannig úrval þjónustu í heimabyggð. Í húsinu er jafnframt lítill salur sem hægt er að leigja undir ýmiss konar starfsemi fyrir minni hópa, svo sem jóga, hugleiðslu, námskeið og fyrirlestra, svo eitthvað sé nefnt. Á staðnum er
einnig lítil verslun þar sem finna má ýmsar vörur tengdar heilsu, snyrtivörur og fleira. Heilsumiðstöðin Lind mun taka virkan þátt í Heilsuviku Snæfellsbæjar og verða ýmsir viðburðir, uppákomur og tilboð í tengslum við heilsuvikuna. Nánari upplýsingar verða auglýstar á Facebook-síðunum „Bowen Anna“ og „Muska snyrtistofa“ og á Instagram undir „heilsumidstodinlind“ og „muskasnyrtistofa“. Anna segist hlakka til að halda áfram að byggja upp Heilsumiðstöðina Lind, fá til sín fjölbreytta meðferðaraðila og leggja sitt af mörkum til að auka þjónustu og meðferðarúrræði fyrir litla samfélagið okkar og vonast jafnframt eftir því að bæjarbúar og nærsveitungar verði duglegir að nýta sér það sem í boði verður. Áhugasamir sem vilja leigja meðferðarherbergið eða salinn geta haft samband með tölvupósti á netfangið heilsumidstodinlind@gmail.com.
Síðasti leikur Víkings í sumar
Síðasti leikur Víkings í 2. deild karla á Íslandsmóti KSÍ fór fram á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 12. september. Leikurinn fór fram í veðurblíðu og kláruðu heimamenn sumarið með öruggum sigri á KFA.
Björn Henry Kristjánsson átti fyrsta mark leiksins á 23. mínútu þegar hann kom heimamönnum í 1-0. Á 55. mínútu bætti Ingvar Freyr Þorsteinsson öðru marki við svo að staðan var 2-0. Gabríel Þór Þórðarson átti þriðja markið á 81.
mínútu og Asmer Begic landaði þeim fjórða markinu á 84. mínútu og þar með 4-0 sigri á gestunum. Víkingur klárar því tímabilið í 2. deild í 5. sæti með 31 stig, jafn mörg stig og Dalvík/Reynir sem situr í 4. sæti með hagstæðari
markatölu. Víkingar munu því spila aftur í 2. deild Íslandsmótsins að ári og koma vonandi inn í mótið með sama krafti og þeir kláruðu það í ár. SJ
Dýralæknir í Hundahorninu Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Réttarsúpa í Lambafelli Réttir eru víða fram undan á Snæfellsnesi með tilheyrandi haust stemmingu, jarmi, réttarkaffi og gleði. Laugardaginn 19. september munu réttir fara fram í Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík, eins og víða annars staðar hefur skapast sú hefð að bjóða upp á kjötsúpu og veitingar, réttargestir eru boðnir velkomnir í fjárhúsið Lambfell þar sem boðið verður upp á súpu frá kl 11:30. Réttirnar hefjast svo um klukkan 12:30.
Föstudaginn 2. október verður Steinunn Geirsdóttir, dýralæknir og skurðlæknir, í Hundahorninu á Rifi. Hægt verður að bóka tíma í almennar skoðanir og helstu aðgerðir, þar á meðal ófrjósemisaðgerðir og geldingar, ásamt annarri almennri dýralæknaþjónustu fyrir hunda og ketti. Með Steinunni verður Birgitta Rún Baldursdóttir, dýrahjúkrunarfræðingur, og saman leggja
þær áherslu á faglega og vandaða þjónustu þar sem velferð dýranna er ávallt í fyrirrúmi. Stefnt er að því að bjóða upp á reglulega dýralæknadaga í Hundahorninu, með tíðni eftir eftirspurn. Takmarkaður fjöldi tíma verður í boði en bókanir og nánari upplýsingar er hægt að nálgast með netfanginu hundahornid@hundahornid.is eða í síma 858-7595
Rafiðnaðarsamband Íslands gaf tetra stöðvar Í upphaf sumar fékk björgunarsveitin Lífsbjörg veglegan styrk frá Rafiðnaðarsambandi Íslands. Styrkurinn hljóðaði upp á 500.000 krónur og var ætlaður til kaupa á nýjum tetra talstöðvum. Tetra talstöðvar kerfið er öflugt, miðstýrt hópfjarskiptakerfi, sérsniðið að þörfum viðbragðsaðila. Kerfið er mikilvirkt stjórntæki fyrir hröð og örugg samskipti milli einstaklinga og hópa ásamt flotastjórnun með hjálp ferilvöktunar. Styrkurinn frá Rafiðnaðarsam bandinu var veittur á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Stykkishólmi í júní. Á fundum sem þessum er hefð fyrir því að styrkja góð málefni í nærumhverfi fundanna og að þessu sinni voru veittir styrkir til björgunarsveitanna á Snæfellsnesi 500.000 kr. hver, UMF Snæfells 500.000 kr og Lúðrasveit Stykkishólms 500.000 kr. Á myndinni eru fulltrúar styrkþega ásamt Jakobi Tryggvasyni formanni RSÍ. Kristján Lár, formaður Björgunarsveitarinnar Berserkja í Stykkishólmi tók við styrknum fyrir hönd björgunar-
sveitanna. Í tilkynningu frá Lífsbjörgu þakka þau kærlega fyrir stuðninginn og velvild í þeirra garð með þessari veglegu gjöf. SJ
Réttardagar í Snæfellsbæ
Arnarstapi Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Fellaslóð 3 á Arnarstapa, Snæfellsbæ Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. júní 2025 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á Arnarstapa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Deiliskipulagstillagan nær til Fellaslóðar 3, Arnarstapa sem er innan VÞ-1 á Arnarstapa, Snæfellsbæ. Í breytingartillögu er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit um 3 metra til suður þannig að byggingarreiturinn verði alls 11 metrar á lengd. Breidd helst óbreytt. Heildar byggingarmagn fari ekki yfir 135 fm. Nýbygging skal vera í svipuðu útliti og núverandi hús með mænishæð allt að 3,5 metrum.
Réttarlistar fyrir Snæfellsbæ hafa verið gefnir út. Réttað er í sex réttum í Snæfellsbæ yfir tvær helgar en dregið verður í dilka í norðanverðum Snæfellsbæ laugardaginn 19. september og á sunnanverðu nesinu laugardaginn 26. september. Mikil spenna er í loftinu og halda bændur og aðrir sem hyggjast taka þátt í réttunum í vonina um að fá gott veður. Hér eru réttardagar í Snæfellsbæ:
Bláfeldarrétt í Staðarsveit, laugardagurinn 26. september Grafarrétt í Breiðuvík, laugardagurinn 26. september Klofningsrétt í Beruvík, laugardagurinn 26. september Ölkeldurétt í Staðarsveit, laugardagurinn 26. september Ólafsvíkurrétt í Ólafsvík, laugardagurinn 19. september Þæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi, laugardagurinn 19. september
Gögn eru frá Arkotek arkitektar: Greinargerð, deiliskipulag fyrir breytingu í mælikvarða 1:1000 og tillaga að breyttu deiliskipulagi í mælikvarða 1:1000. Hægt er að skoða tillöguna frá 17. september - 29. október 2026 á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmerinu 1061/2026. Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna í síðasta lagi 29. október 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á skipulagsgatt.is vegna máls númer 1061/2026. Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar
Viðurkenningar fyrir sumarlestur Grunnskóli Snæfellsbæjar stóð fyrir sumarlestri í sumar og er þetta tíunda sumarið sem tekið er þátt í verkefninu. Með sumarlestri eru nemendur hvattir til lesturs
yfir sumartímann til að viðhalda þeirri færni sem þeir hafa náð í lestri eftir skólaárið en markmiðið er að efla lestrargleði barna yfir sumarið og skapa jákvæða upp-
Efni og auglýsingum í Jökul þarf að skila fyrir kl. 16, þriðjudag fyrir útgáfu. Það er í lagi að skila fyrr.
lifun í kringum lestur. Veitt voru verðlaun fyrir sumarlestur í 2. til 7. bekk. Díana Metta Guðmundsdóttir 3. bekk og Piotr Stepinski í 7. bekk
hlutu viðurkenningu fyrir að lesa flestar mínútur í sumarlestrinum. Þá fengu nemendur í 3. bekk og 5. bekk viðurkenningu fyrir bestu þátttökuna í bekkjarkeppninni. SJ
23. - 30. september 2026
Dagskrá íþróttaviku Evrópu og Snæfellsbæjar 2026 Skógræktarskokk - 23. september kl. 17:00 Hlaupahópur Snæfellsbæjar leiðir létt skokk frá íþróttahúsinu í skógræktina í Ólafsvík. Danskvöld með Jóni Pétri - 23. september kl. 20:00 Stórkostlegt kvöld með Jóni Pétri í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Dans, skemmtun og gleði fyrir fullorðna. Hundaganga - 24. september kl. 17:00 Hundaganga frá Hundahorninu á Rifi. Allir í taum og gengið hringinn í kringum Rif. Dívurnar í sundlauginni - 23. og 28. september kl. 17:45 Hress hópur kvenna stundar sundleikfimi tvisvar í viku. Allar konur velkomnar. Kennari er Suad Begic. Kvennablak - 23. og 28. september kl. 18:10 Öflugur hópur stundar blak tvisvar í viku. Vel er tekið á móti öllum konum sem vilja mæta á æfingar. Sundleikfimi eldri borgara - 24. og 29. september kl. 10:50 Líf og fjör í sundlauginni og heimsmálin rædd í heita pottinum. Tímarnir eru undir handleiðslu Suad Begic.
Alla vikuna ætlar Ungmennafélagið Víkingur að bjóða krökkum upp á holla og hressa næringu eftir æfingar.
frítt í
sund alla vikuna
Heilsumiðstöðin Lind Anna Björk hjá Heilsmiðstöðinni Lind í Ólafsvík hefur skipulagt glæsilega viðburði hjá sér og hefur fengið fagaðila til að koma vestur og bjóða upp á sérfræðiþjónustu sína hér í Snæfellsbæ frá 23. 30. september. Meðal annars er hægt að fara í Bowen meðferð, höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð, kviðnudd, stjörnuspekilestur, heilun, tarot lestur og englareiki. Nánari upplýsingar má finna hjá Önnu Björk í síma 865-7786 eða á Facebook-síðunni Bowen Anna.
Eldri borgarar í íþróttahúsinu - 25. og 28. september kl. 10:50 Opinn tími fyrir eldri borgara í Snæfellsbæ. Allir velkomnir. Fyrirlestur í Heilsumiðstöðinni Lind - 27. september kl. 20:00 Kynning í Heilsumiðstöðinni Lind um kviðnudd og hugleiðslu inn á innri líffæri líkamans með Höllu Himintungl. Hámarksfjöldi 22 - skráning hjá Önnu Björk.
Við bendum á glæsilega dagskrá CF SNB. Frítt í stöðina alla vikuna. Sólarsport verður með fría kennslu í tækjasal 23. - 25. september frá kl. 13:00 - 14:00. Ýmis fyrirtæki í Snæfellsbæ verða með afslætti og tilboð á heilsutengdum vörum alla vikuna.
Þú ert frábær! Fyrirlestur 28. september Peppandi fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu með Kristjáni Hafþórssyni sem hefur haldið áhrifaríka fyrirlestra um allt land á síðustu árum auk þess sem hann heldur úti hlaðvarpinu Jákastið. Fyrirlestur fyrir ungmenni frá kl. 17:00 - 18:00 Opinn fyrirlestur fyrir íbúa frá kl. 20:00 - 21:00 Fyrirlestrarnir eru Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík.