Skip to main content

BaejarbladidJokull1220tbl

Page 1

1220. tbl - 26. árg.

9. september 2026

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Báturinn kominn heim á Krílakot Föstudaginn 4. september fengu börn og starfsmenn á leik­ skólanum Krílakoti góða gesti í heimsókn þegar Jón Guðmunds­ son og Heiðar Elvan Friðriksson, betur þekktur sem Teni, mættu á leikskólann. Félagarnir hafa undanfarið lagt mikla vinnu í að gera upp bátinn Rakel sem stað­ ið hefur á leikskólalóðinni og var kominn til ára sinna. Rakel fékk yfirhalningu, við Höllina í Ólafs­ vík var hann málaður upp á nýtt, smíðað nýtt stýrishús á hann og stefnið stækkað. Mikill metnaður var lagður í vinnuna og báturinn nú kominn í glæsilegt horf. Við af­ hendinguna þökkuðu börnin Jóni og Tena fyrir vel unnin störf með sínum hætti og sungu nokkur vel valin lög í þakklætisskyni, meðal annars lagið Ég negli og saga og smíða mér bát, sem átti vel við. Jón og Teni hafi líka unnið ötult starf við að gera upp og laga alla dúabíla leikskólans og eru börn

og starfsfólk þeim einstaklega þakklát fyrir alla vinnuna sem þeir hafa lagt á sig fyrir starfið. Það er ómetanlegt að eiga góða vini

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

leikskólans og vonast leikskólinn eftir áframhaldandi skemmtilegu

og farsælu samstarfi við félagana í framtíðinni. SJ

Tuddamót í Staðarsveit

Meistaramót Golfklúbbs Staðarsveitar fór fram laugar­ daginn 5. september á Garða­ velli undir Jökli. Um er að ræða opið mót í punktakeppni þar sem keppt er um að fá Tuddan. Í ár var það Viðar Gylfason sem lenti í 1. sæti með 43 stig og hlaut því Tuddan að verðlaunum. Þá var Sigurjón Gylfason í 2. sæti með 39 stig og Einar Haralds­ son í 3. sæti með 38 stig. Veitt voru nándarverðlaun á tveimur brautum, Pétur Þórðarson hlaut þau á þriðju braut og á áttundu

braut var það Arnór Tumi Finns­ son sem sló næst holunni. Að Tuddamótinu loknu var haldið lokahóf Golfklúbbs Staðarsveitar í Athvarfinu. Þar var gert upp sumarið og Þor­ grímur Helgi Guðmundsson valinn Meistari Golfklúbbs Staðarsveitar árið 2026. Þá var Kristján Þórðarson einnig heiðr­ aður sem Meistari með forgjöf. Meðfylgjandi mynd er af Þor­ grími Helga, Meistara Golf­ klúbbs Staðarsveitar 2026. SJ


Vígsluafmæli Grundarfjarðarkirkju Sunnudaginn 6. september var hátíðarmess í Grundarfjarðar­ kirkju þar sem 60 ár eru liðin frá því kirkja var vígð, þann 31. júlí 1966. Séra Karen Hjartardóttir, núverandi sóknarprestur í Set­ bergsprestakalli stýrði hátíðlegri stund og Séra Gísli Gunnars­ son, vígslubiskup á Hólum, flutti predikun. Kirkjukór Grundar­ fjarðarkirkju söng undir stjórn Lindu Maríu Nielsen og Þorkell Máni Þorkelsson var spilaði undir. Við hátíðlega athöfnina heiðraði Aðalsteinn Jósepsson, formaður sóknarnefndar, tvö sóknarbörn fyrir fórnfúst og óeigingjarnt starf við kirkjuna um áratugaskeið. Það voru þau Olga Sædís Einarsdótt­ ir og Gunnar Kristjánsson sem hlutu það heiðursmerki. Fjölmennt var í messunni, sóknarbörn Setbergsprestakalls, fyrrum prestar í sókninni, sóknar­ börn og velunnarar kirkjunnar mættu. Þar á meðal voru tvíbur­ ar sem voru skírð við vígslu kirkj­ unnar og Sigurbjörn Magnússon og fjölskylda hans en hann er son­ ur Séra Magnúsar Guðmundsson­ ar, sóknarprests þegar Grundar­ fjarðarkirkja var vígð fyrir 60 ár­ um. Við athöfnina barst Grundar­ fjarðarkirkju gjafir í tilefni af­ mælisins frá velunnurum kirkj­ unnar en þar á meðal afhentu Séra Jón Þorsteinsson, fyrrum sóknarprestur Grundarfjarðar­

kirkju, Sigríður Anna Þórðardótt­ ir, Þorgerður Sólveig Jónsdóttir og Margrét Arnheiður Jónsdóttir Grundarfjarðarkirkju 1.000.000 krónur. Gjöfina tengja þau við minningu dóttur þeirra og systur, Jófríði Önnu Jónsdóttur sem lést 26. apríl 2022. Sigríður Diljá Guð­ mundsdóttir gaf einnig Grundar­ fjarðarkirkju 200.000 krónur en fjárhæðinni safnaði hún í sumar með ljósmyndasýningu og kaffi­ sölu í Samkomuhúsi Grundar­ fjarðar. Að athöfninni lokinni bauð Kvenfélagið Gleym mér ei til hátíðarkaffis í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. SJ

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Aflatölur í ágúst

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

Í ágústmánuði komu á land 1.197 tonn í 217 löndunum. Tjaldur og Rifsnes eru báð­ ir byrjaðir að róa og hafa verið að fá mjög góðan afla þar sem uppistaða aflans er langa, keila og þorskur. Einnig eru nokkrir dragnótabátar og minni línubát­ ar komnir af stað eftir sumarfrí. Hildur og Esjar eru báðir að róa fyrir norðan og landa á Sauðár­ króki og Skagaströnd. Síðasti dag­ ur strandveiða var 12. ágúst sl. og er þeirri vertíð lokið þetta árið og gekk hún heilt yfir vel þrátt fyrir leiðinlegt verðurfar í júlímánuði. Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):

Dragnót:

Ólafur Bjarnas. 136 tonn í 11 lönd. Steinunn 101 tonn í 6 löndunum. Guðm. Jensson 93 tonn í 9 lönd. Hafdís 76 tonn í 7 löndunum. Egill 43 tonn í 7 löndunum. Net:

Júlli Páls 44 tonn í 11 löndunum. Lína:

Rifsnes 202 tonn í 4 löndunum. Tjaldur 171 tonn í 2 löndunum. Kristinn 89 tonn í 13 löndunum. Gullhólmi 57 tonn í 7 löndunum. Stakkhamar 68 tonn í 10 lönd. Handfæri:

Guðm. Þór 4,2 tonn í 1 lönd. Bogey 3,2 tonn í 4 löndunum. Bessa 3 tonn í 4 löndunum. Orri 2,9 tonn í 4 löndunum. Siggi á Bakka 2,8 tonn í 3 lönd.

ÞB


Blær kominn frá Ástralíu Vináttubangsinn Blær sneri aft­ ur frá Ástralíu og koma heim á leikskólana í Snæfellsbæ síðast­ liðinn miðvikudag, 2. september. Í þessa sinn hlaut hann dygga að­ stoð Björgunarsveitarinnar Lífs­ bjargar sem komu Blæ heilum og höldnum á áfangastað. Heim­ sóknin vakti mikla lukku og fengu börnin meðal annars að skoða björgunarsveitarbílinn og setjast á fjórhjólið. Vinátta er forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti ætlað leikskólum, 1. til 4. bekk grunn­ skóla, frístundaheimilum og dag­ foreldrum. Markmið verkefnisins eru að skapa menningu þar sem öll börn tilheyra hópnum óháð útliti, skoðunum, styrkleikum eða veikleikum þeirra og efla fé­ lagsanda sem byggir á virðingu, fjölbreytileika, hugrekki og um­

hyggju. Barnaheill stefna að því að gildi Vináttu verði hluti af öllu skólastarfi og samfélaginu öllu og ættu starfsfólk skóla og for­

eldrar alltaf að vera góðar fyrir­ myndir barna sinna og hafa já­ kvæð áhrif á félagsanda barnanna. Helsta markmiðið með Vináttu er

að skapa umhverfi þar sem einelti nær ekki að þrífast. SJ

Opið hús í Saltporti Að undandörnu hefur ver­ ið unnið hörðum höndum við listsköpun í Saltportinu á Hell­ issandi. Þar hafa verið að störf­

Gerhard König og Árni Emanúels­ son sem endurbyggði Saltportið á Hellissandi

um tveir listamenn frá Þýska­ landi. Annar þeirra Gerhard Kön­ ig kom fyrst til Íslands fyrir rúm­ um 30 árum og hefur starfað og búið hér með hléum síðan þá. Eft­ ir hann liggja ótal styttur og lista­ verk víða um land. Selárdalur er sá staður sem á honum mest að þakka og fékk Gerhard verðuga viðurkenningu fyrir störf sín þar þegar hann var sæmdur Riddara­ krossi fyrir störf í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu þann 17. júlí 2024. Hinn listamaðurinn er Simo­ ne Litschka listakona og kennari við Waldorfskólan í Schopfheim í Þýskalandi. Hún er fædd 1972 í Hasel í suður Svartaskógi, lærði

við HBK í Saarbrucken og UdK Berlin útskrifaðist með diplóma­ gráðu Meisterschuler. Hún hefur haldið fjölda sýninga í þýskalandi. Þetta er hennar fyrsta heimsókn

til Íslands. Opið hús verður í Saltporti, Hellisgötu 1a á Hellissandi frá kl. 14:00 til 17:00 föstudaginn 11. September næstkomandi.


Víkingar gerðu upp sumarið Víkingur Ólafsvík spilaði næst síðasta leik tímabilsins á móti KFG í Miðgarði í Garðabæ um liðna helgi. KFG skoraði fyrsta mark leiksins á 22. mínútu en fleira gerðist ekki í fyrri hálfleik. KFG mönnum tókst að skora tvo mörk í byrjun seinni hálfleiks sem kom víkingum í erfiða stöðu. Abdel­ hadi Khalok El Bouzarri tókst að klóra í bakkann fyrir Víkinga á 77. mínútu þegar hann skoraði örugglega en KFG menn svör­ uðu fyrir sig og bættu loka mark­ inu við á 86. mínútu. Staðan í lok leiks var 4-1 fyrir KFG en þetta voru mikilvæg þrjú stig fyrir KFG enda í baráttu um að halda sér í 2. deild á næsta tímabili. Víkingur er í 6. sæti deildarinnar en síðasti leikur liðsins verður á Ólafsvíkur­ velli þann 12. september klukk­ an 14:00. Lokahóf Víkings var einnig haldið um liðna helgi þar sem liðið og liðstjórn kom saman, gerði sér glaðan dag og gerðu upp árangur sumarsins. Lokahóf­ ið var haldið á Hótel Leifur Ei­

ríksson og boðið var upp á glæsi­ legt hlaðborð veitinga. Fjórir leik­ menn fengu viðurkenningu fyrir að hafa náð þeim áfanga að spila 50 leiki fyrir Víking en það voru Björn Henry Kristjánsson, Krist­ ófer Áki Hlinason, Ellert Gauti Heiðarsson, Jón Kristinn Elíasson og Gabríel Þór Þórðarson. Ingvar Freyr Þorsteinsson, Luis Romero Jorge, Asmer Begic og Daði Kára­ son hafa allir spilað yfir hundrað leiki fyrir Víking og fengu merkta treyju að því tilefni. Jón Björgvin Jónsson var valinn efnilegasti leik­ maðurinn og Naim Aaras El Hmai­ di var markahæstur í liðinu í sum­ ar en hann var einnig valinn leik­ maður ársins. JJ

Tölum saman um líðan Barnaheill og Geðhjálp hafa tekið höndum saman og ferðast um landið í haust og funda með efstu bekkjum grunnskóla landsins um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað í fundaröðinni Tölum saman um líðan og tengsl. Mánudaginn 7. september voru sam­ tökin í Grundarfirði þar sem þau funduðu með 10. bekkingum á Snæfellsnesi. Fundaröð­ in er einnig hluti af Gulum september í í sept­ ember er lögð áhersla á að auka vitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna

með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Sama kvöld var haldinn fund­ ur í samkomuhúsinu Grundarfjarðar þar sem niðurstöður voru kynntar fyrir for­ ráðamönnum, sveitarstjórnarfólki, starfs­ fólki félags- og velferðarmála, presta og lögreglu. Að því loknu voru niðurstöður ræddar og í lokin tók tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel nokkur lög fyrir ung­ menni og gesti. JJ

OPIÐ HÚS Í SALTPORTI

11. SEPTEMBER 2026 kl. 14:00 til 17:00 Kæru nágrannar og ferðamenn. Ykkur er boðið að vera með okkur föstudaginn 11. sept. frá kl.14:00 til 17:00 á kynningu listamannanna Gerhards König og Simone Litschka frá Þýskalandi Þau hafa dvalið í Saltporti að undanförnu og unnið, bæði úti í porti og inni í sal. Á föstudaginn verður opið hús og afrakstur vinnunnar til sýnis og sölu. Verið hjartanlega velkomin að sjá og hitta listamennina. Við hlökkum til að taka á móti þér á þessum einstaka listviðburði.

Saltport Listhús

Hellisgötu 1a, 360 Hellissandi 354 820 2011 - saltport@saltport.is - saltport.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook