Skip to main content

BaejarbladidJokull1219tbl

Page 1

2. september 2026

1219. tbl - 26. árg.

Birtuorkukerfið tekið í notkun á Lýsuhóli Unnið er að því að setja upp sólarsellur á þak reiðskemmunn­ ar á Lýsuhóli. Settar voru upp 340 stykki á þakið með 170kw upp­ settu afli þar sem hver sella gef­ ur 510w. 256kw rafhlöður taka við orkunni og 100kw inverter er við kerfið. Samkvæmt heimildum blaðamanns er þetta nýja kerfi á Lýsuhóli það stærsta á Íslandi um þessar mundir. Stærsta sólarorku­ ver landins fyrir uppsetninguna í Staðarsveit var á kúabúinu Garði í Eyjafjarðarsveit en þar eru 66 sól­ arsellur með 28 kw uppsettu afli. Nú er þetta kerfi þó kallað birtuorkukerfi því einungis þurfi tiltekin birtuskilyrði til að fram­ leiða rafmagn, en ekki sól eins og margir halda. Mikil þróun hef­ ur orðið í þessum efnum og því ætti kerfið á Lýsuhóli að duga til rafmagnsframleiðslu 9 mánuði ársins en það kemur betur í ljós þegar reynsla er komin á kerfið. Með því að nýta þennan orkukost er unnt að lækka rafmagnskostn­ að, auka afhendingaröryggi í raf­ magnstruflunum, draga úr olíu­ notkun vegna minni notkunar olíuknúinna rafstöðva og draga úr álagi á raforkukerfið. Agnar Gests­ son á Lýsuhóli segist spenntur fyr­ ir verkefninu en það á að taka það

í notkun á næstu dögum. Þessi nýjung á reiðhöllinni getur skipt sköpum en birtuorkukerfið getur nýst sérstaklega vel á landsbyggð­ inni og á köldum svæðum. SJ

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Treyjudagurinn Treyjudagurinn verður hald­ inn í fyrsta skiptið á Íslandi þann 4. september næstkomandi en þá klæðist fólk uppáhalds íþróttatreyjunni sinni til stuðn­ ings börnum með krabbamein. Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagur­ inn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Börne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þús­ undir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðn­ ingi við börn með krabbamein. Með Treyjudeginum bætist Ís­ land í hópinn þar sem við stönd­

um með börnum með krabba­ mein og fjölskyldum þeirra. Fé­ lagið Börn með krabbamein er styrktarfélag sem var stofnað árið 1991 og heldur félagið utan um daginn og söfnun sem honum tengist. Félagið veitir fjölbreytt­ an stuðning og stendur fyrir úr­ ræðum sem styðja börn og að­ standendur á meðan meðferð stendur og eftir hana. Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabba­ mein. Á vefsíðunni treyjudagur. is má finna viðtöl við börn með krabbamein og hvernig hægt sé að styrkja félagið. JJ


Varnaræfing á Breiðafirði Það fór varla framhjá nokkrum manni þegar fimm skip á vegum NATO sigldu um Breiðafjörðinn í byrjun vikunnar. Um var að ræða tvíhliða varnaræfingu Bandaríkj­ anna og Íslands sem kallast Norð­ ur-Víkingur 2026 sem er haldin á Íslandi annað hver ár. Æfingin er haldin á Íslandi og hafsvæðinu í kringum landið, hún hófst 22. ágúst og stendur yfir til 3. sept­ ember. Í tilkynningu frá Utanríkisráðu­ neytinu segir að meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með taldar varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björg­ un, gistiríkjastuðning og samhæf­ ingu íslenskra stjórnvalda við her­ stjórnir Bandaríkjanna og Atlants­ hafsbandalagsins eða NATO. Á æf­ ingunni er jafnframt æft hvernig mæta skuli hefðbundinni hernað­ arógn á landi, sjó og í lofti ásamt fjölþáttaógnum og skemmdar­ verkum.

Æfingin var tvískipt. Bæði var æft viðbragð Bandaríkjanna við vaxandi ógn á grundvelli varnar­ samningsins og viðbrögð NATO eftir virkjun 5. greinar bandalags­ ins en hún kveður á um að árás á eitt aðildarríki jafngildi árás á þau öll. Áætlað er að um 150 til 200 íslenskir þátttakendur hafi komið að æfingunni ásamt fjölþjóðleg­ um liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finn­ landi, Frakklandi, Noregi, Sví­ þjóð, Þýskalandi og NATO. Ekki

29.170 tonnum úthlutað á Snæfellsnes Fiskistofa hefur úthlutað afla­ marki á fiskveiðiskip fyrir fisk­ veiðiárið 2026/2027 og fengu 308 skip í eigu 260 aðila úthlutað. Heildarúthlutun er rúm 275 þúsund þorskígildistonn. Út­ hlutun í þorski er rúm 158 þús­ und þorskígildistonn en var tæp 160 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 41 þúsund þorskíg­ ildistonn og lækkar um 3 þúsund þorskígildistonn milli ára. Ef skoðuð eru þau fyrir­ tæki sem fá flestum þorskígild­ um úthlutað þá er Samherji Ís­ land ehf. með langflest ígildi eða 23.902.887, það er 8,68% af heildarúthlutun. Efst af fyrir­ tækjum á Snæfellsnesi er Hrað­ frystihús Hellissands hf. með 4.477.557 þorskígildi eða 1,63% heildarúthlutunar, KG fiskverkun

ehf. er með 3.518.746 ígildi sem gerir 1,28% og Guðmundur Run­ ólfsson hf. er með 3.085.241 íg­ ildi og 1,12% af heildarúthlutun, aðrar útgerðir á Snæfellsnesi eru með undir 1% af heildarúthlutun fiskveiðiársins. Þegar úthlutun eftir heimahöfn er skoðuð þá er Reykjavík með flest ígildi eða 38.280 tonn, þar á eftir koma Grindavík og Vest­ mannaeyjar en ef Snæfellsbær væri heimahöfn þá kæmi hann í fjórða sæti með 20.587 íg­ ildistonn, heimahafnir Snæfells­ bæjar eru hinsvegar fjórar og skiptast heimildir á þær þannig; Rif 12.777 tonn, Ólafsvík 5.557 tonn, Hellissandur 1.365 tonn og Arnarstapi tæp 888 tonn. Í Grundarfirði er úthlutunin 5.081 tonn og í Stykkishólmi eru ígildistonnin 3.501. JÓ

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

er vitað nákvæmlega hvers kon­ ar æfing átti sér stað úti á Breiða­ firðinum en sjónarspilið var mikið

þegar fimm skipin sigldu um rétt utan við Snæfellsbæ. SJ

Fyrsti Ryderinn haldinn á Rifsvelli Fyrsti Ryderinn var haldinn á nýjum Rifsvelli sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn. Ræst var út í fjögurra manna hollum á öllum brautum og tóku 36 manns þátt. Um var að ræða liðakeppni þar sem Svíkingar kepptu á móti Vík­ ingum, leiknar voru 18 holur í holukeppni með forgjöf auk þess sem nándarverðlaun voru á fjór­ um holum. Mikil ánægja var með mótið og gerðist sá merki atburð­ ur að Þórður Kristleifsson, sem keppti í liði Svíkinga, fór holu í höggi á elleftu braut og var það í fyrsta sinn sem farið er holu í höggi á Rifsvelli. Að keppninni lokinni var kepp­ endum boðið matarveislu auk þess sem verðlaunaafhendingin fór fram. Heimamenn unnu Svík­ ingana með 13 stigum gegn 5. Í punktakeppninni sigraði Friðrik Kristjánsson með 39 punkta, Rík­ harður Kristjánsson var í 2. sæti með 39 punkta sömuleiðis er Frið­ rik var betri í seinni níu holun­ um og svo átti Kristinn Jónasson 3. sætið með 38 punkta. Nándar­

verðlaun á holu 2 fékk Þórður Kristleifsson með 2,13 metra, á holu 4 var Jón Bjarki Jónatans­ son með 1,26 metra, á holu 11 fór Þórður Kristleifsson holu í höggi og á holu 13 fékk Skúli Skúla­ son nándarverðlaunin með 5,65 metra. Til stendur að halda annan Ryder í september sem verður þá haldinn á höfuðborgarsvæðinu en það verður auglýst síðar. Meðfylgj­ andi mynd er af Þórði Kristleifs­ syni eftir að hann tók holu í höggi. SJ


Lokahóf sjóstangveiði Síðasti hluti Landsmótsins 2026 hjá Landssambandi Sjóstangafé­ laga fór fram á Siglufirði helgina 21. og 22. ágúst. Í ár voru haldin sjö mót samkvæmt reglum SJÓL sem töldu til Íslandsmeistara. Alls tóku þátt í mótunum 44 karlar og 12 konur. Mótin gengu í alla staði vel fyrir sig, keppnin var hörð og fjölmargir veiðimenn náðu fram­ úrskarandi árangri yfir sumarið. Eftir landsmótið á Siglufiði hélt Sjóstangaveiðifélags Siglufjarð­ ar glæsilegt lokahóf var haldið í Kiwanishúsinu á Siglufirði. Á því fór fram krýning Íslandsmeistara 2026 eftir sumarið. Þar krýndi Landssamband sjóstangaveiði­ félaga nýja Íslandsmeistara auk þess sem önnur afreksverðlaun voru veitt fyrir bestan árangur sumarsins. Íslandsmeistarar Sjól 2026 eru Björg Guðlaugsdóttir frá Sjósnæ og Sigurjón Már Birg­ isson frá Sjóskip. Jón Einarsson frá Sjósnæ var í 2. sæti karla og í 3. sæti fyrir heildarafla karla 2026. Björg Guðlaugsdóttir var í 1. sæti fyrir heildarafla kvenna og Beata

Makilla var í 3. sæti. Þá átti Björg líka 1. sætið í Stærstu fiskum 2026 með 26,5 kg fisk. Í sumar voru fimm landsmet sett á mótunum og þrjú af þeim voru slegin af meðlimum Sjónsæ. Jón Einarsson setti landsmet í

stærð á flundru á mótinu í Ólafs­ vík í maí en flundran sem hann veiddi var 0,751 kg. Þá sló hann annað með á Neskaupsstað í júlí þegar hann veiddi 1,410 kg tinda­ skötu. Dariusz Wojciechowski sló svo síðasta met sumarsins þegar

hann veiddi metufsa á Dalvík í ágúst en ufsinn vó 16,580 kg. Fimm landsmet á einu sumri, þar af þrjú frá Snjósnæ eru glæsileg­ ur vitnisburður um þann góða ár­ angur sem náðist á mótum ársins.

og Dalabyggð borið saman við Akraneskaupstað og sveitarfélög­ in þrjú á Snæfellsnesi. Heilt yfir má segja að stærstu sveitarfélög­ in þrjú á Snæfellsnesi hafi verið í stöðugri en sveiflukenndri lang­ tíma sókn frá bankahruni. Á óvart kom hvað þróunin er lík á milli þessara sveitarfélaga en fyrirfram hefði Vífill talið að seljanleiki í Sveitarfélaginu Stykkishólmi væri heldur meiri en hinna.Fasteigna­ verð er einna hæst í Hvalfjarðar­ sveit og á Akranesi. Af 11 sveitarfé­ lögum er verð fyrir einbýli lægst á Vesturlandi á Hellissandi og dreif­ býli Snæfellsbæjar. Fermetraverð í sérbýli á Vesturlandi 2025 og 2026

var lægst í Ólafsvík, Grundarf­ irði og Búðardal en 8 sveitarfé­ lög komust á þann lista og að lokum er fermetraverð í fjölbýli lægst í Ólafsvík af 6 sveitarfélög­ um. Í Glefsunni er notað óleiðrétt fermetraverð, sem þýðir að ekki hefur verið tekið tillit til annarra eiginleika eignanna en stærðar þeirra í fermetrum. Í næstu Glefsu SSV verður leiðrétt verð til um­ fjöllunnar þar sem fleiri þættir verða teknir með í reikninginn. Áhugasamir geta lesið Glefs­ una í heild sinni á vefsíðu SSV, www.ssv.is.

SJ

Fasteignamarkaður á Vesturlandi Í vor kom út Glefsa sem Víf­ ill Karlsson skrifaði fyrir Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi en í Glefsum SSV er að finna brot úr hagvísum og skýrslum auk annars efnis samtakanna. Glefsan heit­ ir Fasteignamarkaður á Vestur­ landi og í henni er sjónum beint að íbúðaverði á Vesturlandi, auk fjölda seldra eigna. Fjallað var um fjölda fasteignaviðskipta og kannað hvort merki væru um breytingar á árinu 2025 miðað við þrjú fyrri ár auk þess að fjallað var um seljanleika í sveitarfélög­ um og meðalfermetraverð íbúða árið 2025 og það sem liðið er af árinu 2026. Skoðað var fjölda seldra íbúða í

einbýli, fjölbýli og sérbýli. Á Vest­ urlandi var fasteignamarkaðurinn vel virkur árið 2025, það var helst að hann hefði gefið lítillega eft­ ir í Snæfellsbæ. Það fjölgaði söl­ um á sérbýli í 350 Grundarfirði og 355 Ólafsvík en fækkaði á ein­ býli og fjölbýli. Sala dróst saman í 360 Hellissandi í öllum flokkum og sala dróst sömuleiðis saman í dreifbýlispóstnúmerinu 356 Snæ­ fellsbæ. Seljanleiki í sveitarfélögum á Vesturlandi var kannaður og var hann minni en Vífill átti von á í Borgarbyggð og Dalabyggð. Stór og hlutfallslega fjölmenn land­ búnaðarhéruð skiluðu töluvert lægri seljanleika í Borgarbyggð

SJ


Leikjum sumarsins fækkar

Laugardaginn 29. ágúst tóku Víkingar á móti Haukum á Ólafs­ víkurvelli í næst síðasta heimaleik tímabilsins. Leikurinn byrjaði ró­ lega en á 42. mínútu skoruðu Haukar og komust 1-0 yfir. Guð­ mundur Magnússon var ekki lengi að jafna en eftir hraðaupphlaup

hjá Naim Aaras El Hmaidi sem gaf stoðsendingu yfir á Guðmund jöfnuðu Víkingar og staðan orðin 1-1. Eftir hálfleik virtust Víkingar missa móðinn og skoruðu Haukar á 67. mínútu úr vítaspyrnu, á 76. mínútu og að lokum komust þeir í þriggja stiga forskot á 87. mín­

útu þegar staðan var orðin 4-1. Haukar voru hungraðir í sigur­ inn þar sem hann tryggði þeim 1. sætið í 2. deild og þar af leið­ andi þátttöku í Lengjudeildinni að ári. Víkingar eru nú í 5. sæti deildarinnar með 28 stig. Næsti leikur liðsins er við KFG á Sam­

sung vellinum 5. september og síðasti leikur sumarsins fer svo fram á Ólafsvíkurvelli þann 12. september þegar þeir eiga leik við KFA, sem sitja nú í 4. sæti deildar­ innar með 29 stig. SJ

Þjónustu- og atvinnusókn á Vesturlandi Í byrjun ágúst kom út ný Glefsa sem Vífill Karlsson skrifaði fyrir Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi en í Glefsum SSV er að finna brot úr hagvísum og skýrslum auk annars efnis samtakanna. Nýjasta Glefsa Vífils heitir Þjónustu- og atvinnu­ sókn á Vesturlandi og í henni er sjónum beint að þéttbýlisstöðum á Vesturlandi. Í bæði hagfræðilegum og félags­ fræðilegum kenningum hefur verið fjallað ítarlega um samspil sterkra þjónustukjarna og nærliggjandi byggðarlaga, þar sem þau síðar­

nefndu eru gjarnan smærri þétt­ býlisstaðir og dreifbýli. Í þessum kenningum er meðal annars lögð áhersla á hlutverk stærstu þétt­ býlisstaðanna sem miðstöðva fyr­ ir víðfeðm landsvæði. Þeir gegna mikilvægu hlutverki sem markaðir fyrir vörur og þjónustu frá minni samfélögum og veita jafnframt fjölbreytta þjónustu sem erfitt eða óhagkvæmt er að bjóða í smærri byggðarlögum, sérstaklega sér­ hæfðari þjónustu. Vinnumarkað­ urinn hefur áþekk einkenni. Fólk velur oft að búa í smærri samfélög­

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

um vegna lífsgæða, svo sem meiri kyrrðar og nálægðar við náttúruna og til að forðast umferðarteppur, svifryksmengun og glæpi. En slíkt val kallar oft á lengri ferðalög til vinnu. Á síðustu árum hafa hins vegar aukin útbreiðsla netversl­ unar og vaxandi möguleikar á ó­ staðbundnum störfum breytt þess­ um forsendum. Þessi þróun hefur auðveldað fólki að velja sér búsetu fjarri stærstu þjónustukjörnum og vinnumörkuðum án þess að skerða eins mikið aðgengi að atvinnu eða þjónustu eins og fyrr hefði verið. Þjónustusókn utan þjónustu­ svæðis í þéttbýli á Vesturlandi ár­ ið 2024 var minnst á Akranesi, um 8%, 9% í Borgarnesi og 11% í Stykkishólmi, þá var hún mest á Hellissandi eða 70%. Næst hæsta hlutfallið var í Búðardal en þó var það heldur lægra en á Hellissandi eða 38%. Þá var þetta hlutfall 30% í Ólafsvík og 24% í Grundarfirði. Hvað atvinnusókn varðar sóttu hlutfallslega flestir atvinnu utan síns búsetusvæðis á sunnanverðu Vesturlandi, 37,4% á Akranesi og 20,2% í Borgarnesi. Þetta er algjör viðsnúningur frá þjónustusókninni. Þessi hlutföll voru svo mun lægri á

norðanverðu Vesturlandi þar sem það var 11,2% í Ólafsvík, 10,5% í Grundarfirði, 5,7% í Stykkishólmi, 5,6% í Búðardal og 0% á Hellissandi. Á Snæfellsnesi sótti 12% vinnu ut­ an síns sveitarfélags, þar af 3% til höfuðborgarsvæðisins. Í Dölunum voru þessar tölur 13% og 5%. Margt bendir til að þrjú nokk­ uð landfræðilega sjálfstæð efnhags­ svæði séu hérlendis og að áhrif­ svæðin séu innan um 50-100 km radíuss frá héraðskjörnunum. Hér­ aðskjarnarnir eru þá Reykjavík, Ak­ ureyri og á austurlandi eru Egils­ staðir héraðskjarni fyrir þjónustu og Reyðarfjörður fyrir atvinnu­ sókn. Við nánari skoðun mátti greina fjórða svæðið og er Ísafjörð­ ur hérðaskjarni Vestfjarða. Vinnu­ markaðurinn er mun háðari þessum héraðskjörnum en vöru- og þjón­ ustumarkaðurinn. Það sést á því að þær byggðir sem eru á milli hérað­ skjarnanna sækja lítið vinnu ann­ að. Ferðakostnaður á trúlega stóran þátt í þessu því atvinnusókn kallar á tíðari ferðalög en þjónustusókn. Áhugasamir geta lesið Glefsuna í heild sinni á vefsíðu SSV, www. ssv.is. SJ


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1219tbl by Steinprent - Issuu