Skip to main content

BaejarbladidJokull1218

Page 1

26. ágúst 2026

1218. tbl - 26. árg.

s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is

Sigur í síðasta leik Reynis

Síðasti leikur Reynismanna þetta sumarið fór fram á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 22. ágúst gegn Einherja. Úrhellisrigning og heldur vindasamt var þennan dag en það stoppaði ekki Reynismenn í að gefa allt sitt í leikinn sem endaði 6 - 3 þeim í hag. Reynir hefur spilað 12 leiki í

sumar og hefur gengið ekki verið eins og best er á kosið. Það var því fagnaðarerindi að taka sigurinn í síðasta leiknum, á heimavelli, og ekki skemmdi að regnboginn rammaði inn Ólafsvíkurvöll á meðan á leiknum stóð. SJ

- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður


Opin æfing í frjálsum íþróttum Föstudaginn 21. ágúst voru 6-12 ára krökkum í Snæfellsbæ boðið að mæta á opna æfingu í krakkafrjálsum. Þátttakendur fengu að spreyta sig í fjölbreyttum greinum frjálsíþrótta undir handleiðslu Bjargar Gunnarsdóttur. Björg býr í Stykkishólmi og hefur lagt mikinn metnað í uppbyggingu frjálsíþróttastarfs þar en hún starfar í dag við fræðslu- og útbreiðsluverkefni Frjálsíþróttasambands Íslands. Hefur hún því verið með opnar æfingar í krakkafrjálsum á ýmsum stöðum í sumar til þess að kynna íþróttina. Á æfingunni fengu krakkar fræðslu um undirstöðuatriði í spjótkasti, kúluvarpi, hástökki, langstökki og hlaupum og höfðu gaman af. JJ

Tvöfalt afmæli í Landsbankanum Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

Víkingur í fjórða sæti

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var landsmönnum öllum boðið í sameiginlega afmælisveislu í útibúum landsbankans fimmtudaginn 20. ágúst. Boð-

ið var upp á léttar veitingar og góða stemningu í útibúi Landsbankans í Snæfellsbæ við tilefnið og mætti fjöldi fólks til þess að fagna þessum tímamótum með starfsfólki bankans.

Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:

Blaðið kemur út vikulega.

436 1617

Víkingur Ólafsvík spilaði tvo leiki í liðinni viku. Fyrri leikurinn fór fram á Ólafsvíkurvelli miðvikudaginn 19. ágúst þar sem liðið tók á móti Þrótti V. 110 áhorfendur mættu í stúkuna til þess að hvetja liðin áfram. Naim Aaras El Hmaidi átti afmæli þennan dag og skoraði tvö mörk fyrir víkinga á 30. og 57. mínútu. Þróttarar náðu að minnka muninn á 63. mínútu og sóttu hart eftir það. Víkingar gáfu sig ekki og stóðu vörð um mark sitt alveg fram á síðustu mínútu leiksins en þeir spiluðu manni færri eftir að Kristófer Áki Hlinason var rekinn af velli eftir að hafa fengið annað gula spjald sitt í leiknum. 2-1 sigur var raunin í þeim leik. Annar leikur vikunnar fór fram á Grenivíkurvelli á móti Magna sunnudaginn 23. ágúst. Víkingar

áttu ekki sterka byrjun í leiknum en leikmanni Magna tókst að skora fyrsta mark leiksins á 7. mínútu. Guðmundur Magnússon jafnaði fyrir Víkinga þegar hann skoraði 11 mínútum síðar. Leikurinn var nokkuð jafn fram að 74. mínútu þegar leikmönnum Magna tókst að skora tvö mörk á innan við 5 mínútum. Víkingar börðust til leiksloka en náðu ekki að skora. Sá leikur fór því 3-1 fyrir Magna og súrt tap fyrir Víkinga í mikilvægum leik. Víkingur Ó. er í 4. sæti í 2. deild með 28 stig, fimm stigum á eftir Kára þegar þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. Næsti leikur Víkings er á heimavelli þann 29. ágúst klukkan 14:00 þegar liðið tekur á móti Haukum. Allir á völlinn og styðjum strákana til sigurs. JJ


20%

43%

33%

27%

Stutt lambalæri

Nauta entrecote

Kjúklingabringur 100% Ísfugl 4.799 kr.kg.

2 stk, Eat Me 870 kr.pk.

2.498

7.959

3.199

629

Kjötborðið 4.399 kr.kg.

Kjötborðið 9949 kr.kg.

55%

43%

Lárpera

Kíví

Mango

21%

20%

Hydrate

Sofðu rótt

í lausu 1549 kr. kg.

4 stk, Eat Me 999 kr.pk.

60 hylki, Iceherbs 2.699 kr.pk.

3 teg, 330ml 399 kr.stk.

869

449

2.159

315

30%

25%

10%

20% VitaYummy

Bodylab

Änglamark

Oatly

Allar vörur á afslætti

Allar vörur á afslætti

Allar vörur á afslætti

Allar vörur á afslætti

Tilboðin gilda 27. ágúst - 6. september


Golfmót 50 ára og eldri Íslandsmót golfklúbba 50 ára og eldri í 2 deild kvenna fór fram á Grundarfjarðarvelli dagana 20. og 21. ágúst. Níu sveitir kepptu á mótinu og voru aðstæður með besta móti. Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegarar og unnu sér rétt til að spila í 1. deild að ári. Sameiginlegt lið GHD og GFB voru í 2. sæti, heimakonur í Vestarr voru í 3. sæti og Golfklúbbur Borgarness í 4. sæti. Spilaðar voru þrjár 18 holu umferðir í holukeppni og fjögur efstu liðin fóru í umspil um 1. til 4. sætið. Vegna veðurútlits á laugardeginum ákvað mótsstjórn að 4. og 5. umferð yrðu spilaðar 9 holur og voru þær báðar spilaðar eftir hádegi á föstudag svo keppnin kláraðist á föstudeginum. Mikil ánægja var hjá keppendum með framkvæmd mótsins, umgjörð vallar og gómsæt-

ar veitingar. Meðfylgjandi mynd er af liði Vestarr sem hafnaði í 3. sæti á mótinu. SJ

Þakkir frá Hlaupahópi Snæfellsbæjar Við viljum þakka eftirtöldum aðilum ásamt öllum þeim tóku þátt í utanvegahlaupinu Sjónarhóll Trail Run sem fór fram 8. ágúst síðastliðinn. Apótek Ólafsvíkur - Arctic Adventure - Björgunarsveitin Lífsbjörg - CCEP - Elja kaffihús - Gilbakki - Glacier Paradise Gunnar Örn Arnarson - Hlaupár - Hótel Búðir - Hótel Vestmar - Kassinn Ólafsvík - Landsbankinn - Matarlist - Mjólkursamsalan - Sjoppan Ólafsvík - Sjó-

minjasafnið í Sjómannagarðinum Hellissandi - Sker - Sigrún Ólafsdóttir - Smári Jónas Lúðvíksson - Snæfellsbær - Summit Adventure Guides - Sævar Þorleifsson - Unbroken - Útgerðin - Ölgerðin Egill Skallagrímsson og allir hinir. Sjáumst að ári Hlaupahópur Snæfellsbæjar.

Gilbakki lokar Þriðjudagurinn 11. ágúst var síðasti opnunardagur Gilbakka kaffihúss og í tilkynningu segir Anna Þóra Böðvarsdóttir að eftir 20 ár í kaffihúsabransanum ætli hún að láta gott heita og opnar Gilbakki því ekki aftur í hennar rekstri. Anna Þóra lét drauminn rætast fyrir 20 árum þegar hún opnaði Gamla Rif með Sigríði Margréti Vigfúsdóttur, vinkonu sinni, og ráku þær það kaffihús saman til 2016 þegar Anna Þóra keypti reksturinn. Lúðvík Smárason, eiginmaður Önnu Þóru, er byggingafræðingur og teiknaði og byggði fallegt hús í gömlum stíl ásamt Smára Lúðvíkssyni, föður sínum. Þegar húsið var tilbúið

var því komið fyrir á besta stað á Hellissandi, við þjóðveginn, og Anna Þóra færði kaffihúsið sitt þangað og opnaði Gilbakka. Þar hefur Gilbakki unnið sér inn gott orðspor þar sem allt er gert af ást og natni, með heimabakaðar kræsingar, frægu fiskisúpan og hlýlegt andrúmsloft. Anna Þóra er þó ekki alveg hætt en hún hefur gaman af handavinnu og skemmtilegum viðburðum og í lok september hefur hún efnt til broderí helgar með Katrínu Jóhannesdóttur á Gilbakka. Þá má eiga von á fleiri námskeiðum en hægt er að fylgjast með því sem er í vændum á Facebooksíðu Gilbakka. SJ


Framkvæmdir kirkjunnar halda áfram Í 1215. tölublaði Jökuls var fjallað um rekstur kirkjunnar og þær framkvæmdir sem hafði verið farið í við Ólafsvíkurkirkju auk þeirra framkvæmda sem fyrirhugað var að fara í á næstunni. Í sumar var ekki setið auðum höndum og framkvæmdum og endurbótum við Ólafsvíkurkirkju, kirkjugarðinn í Ólafsvik og líkhúsið haldið áfram. Ari Jóhannesson og Grétar Jónsson, hleðslumeistarar, sáu um að endurhlaða grjóthleðsluna sem umlykur hliðið inn í kirkjugarðinn í Ólafsvík. Stefán Lárus Lárusson, málari, frískaði upp á útidyrahurðina á Ólafsvíkurkirkju sem var orðinn heldur líflaus og settur var nýr dúkur á þak líkhússins, en það verkefni eru í höndum Snæfellsbæjar. Í greininni um framkvæmdir kirkjunnar fyrr í sumar kom fram að mark-

mið sóknarnefndar væri að ljúka sem flestum verkefnanna á framkvæmdalistanum fyrir 60 ára afmæli Ólafsvíkurkirkju sem verður haustið 2027 og með þessu áframhaldi ætti það að ganga upp. SJ

Opinn fundur Áfram Ísland

Hreyfingin Áfram Ísland bauð til opins fundar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði sunnudaginn 23. ágúst. Áfram Ísland hefur haldið opna fundi um land allt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst en hreyfingin er mótfallin því að Ísland sæki að ný um aðild að Evrópusambandinu. Fundurinn í Grundarfirði var síðasti fundur hreyfingarinnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Vel var mætt á fundinn og var fólk áhugasamt um að kynna sér málefnið. Bjarni Jónsson, fyrrverandi þingmaður, Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Björn Guðmundsson, vélstjóri, héldu erindi á fundinum og Sigurbjörg Ottesen, bóndi og oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps stýrði fundinum. SJ

Vegagerðin við Kaldármela Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela, frá Brúarhrauni að Hraunsmúla, og nú nýlega var lagt klæðningarlag yfir umræddan kafla. Skömmu eftir útlögn skemmdist nýlagt klæðningarlagið og Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu varðandi málið. Í tilkynningunni segir að verktaki mun fræsa upp klæðingarlagið á kaflanum og leggja það að nýju við fyrsta tækifæri. Verkið felst í endurbyggingu vegarins á um 6 km kafla þar sem lögð eru ný styrktar- og burðarlög auk klæðingar. Samið var við Borgarverk um framkvæmdina og vinna við verkið hófst í byrjun maí með efnisvinnslu. Verkið er nokkuð á eftir upphaflegri áætlun, meðal annars vegna breytinga sem gera þurfti á hönnun eftir að framkvæmdir hófust. Í tilkynningunni segir að á fimmtudaginn 20. ágúst hafi neðra lag klæðningar verið lagt á um eins kílómetra kafla sem liggur um mitt framkvæmdasvæðið. Veðurspár gerðu ráð fyrir þurru veðri sól-

arhring eftir útlögn og stóð til að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Veður breyttist hins vegar fyrr en spár gerðu ráð fyrir og mikil og viðvarandi rigning kom í veg fyrir að hægt væri að sópa kaflann. Ef ekki næst að sópa getur laust steinefni skemmt yfirborð vegar. Samspil þessara aðstæðna og mikillar þungrar umferðar um veginn yfir sumartímann varð til þess að klæðingarlagið skemmdist verulega. Því sé nauðsynlegt að fjarlægja það og leggja nýtt. Vegagerðin og Borgarverk vinna nú að útfærslu næstu skrefa. Skemmda klæðingarlagið verður fræst upp eins fljótt og aðstæður leyfa og kaflinn lagfærður. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á kaflanum staðfesta að skemmdirnar séu bundnar við klæðingarlagið en styrktar- og burðarlög vegarins eru óskemmd. Nánari upplýsingar um tímasetningu munu liggja fyrir þegar framkvæmdaáætlun hefur verið uppfærð.

Leiðrétting Í síðasta tölublaði Jökuls var fjallað um nýjan minnisvarða sem Snæfellsbær lét útbúa og setti upp á Hellissandi í tilefni af almyrkva sólu 12. ágúst síðastliðinn. Í greininni er sagt frá því að verkið sé smíðað af Vélsmiðjunni Fönix í

Rifi, er þar farið með rangt nafn á fyrirtækinu sem um ræðið sem ber nafnið Smiðjan Fönix. Verkið er smíðað af Smiðjunni Fönix og Anton Jónas Illugason sá um hönnun merkinga.


SKRIFUM SÖGUNA SJÁLF Segjum

Nei 29. ágúst


Þjóðaratkvæðagreiðsla í Snæfellsbæ - kjörfundir Kjörfundir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið verða á eftirfarandi stöðum í Snæfellsbæ þann 29. ágúst 2026. Ólafsvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík, Ennisbraut 11. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00. Hellissands- og Rifskjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi, Keflavíkurgötu 2. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00. Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Lýsudeild Grunnskóla Snæfellsbæjar í Staðarsveit. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 20:00.

Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1218 by Steinprent - Issuu