19. ágúst 2026
1217. tbl - 26. árg.
Almyrkvi á sólu dró að sér fólksfjölda
Almyrkvi sólar 2026 sem var miðvikudaginn 12. ágúst síðastliðinn verður lengi í minnum hafður. Atburðurinnn var stórbrotinn náttúruviðburður sem dró að tugi þúsund manns á Snæfellsnesið þennan dag. Langur aðdragandi og mikill undirbúningur var fyrir viðburðinn með það að markmiði að tryggja ör-
yggi, stuðla að góðri upplifun og nýta tækifærið til að vekja athygli á Vesturlandi sem áhugaverðum áfangastað. Töluverð umferð var um svæðið og álag á innviði en sveitarfélögin, fyrirtæki, viðbragðsaðilar og einstaklingar lögðu sitt að mörkum svo að allt gengi vel og með samstöðu og samvinnnu var lagður
Nýtt umsóknarkerfi hjá Snæfellsbæ Snæfellsbær hefur nú innleitt nýtt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi sem þróað var af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Sveitarfélagið bætist þannig í hóp þeirra sveitarfélaga sem hafa tengst kerfinu en stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði komin inn í kerfið árið 2027. Markmiðið er að einfalda og samræma umsóknarferli og útgáfu byggingarleyfa og bæta yf-
irsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi. Þannig má stuðla að faglegri og betri mannvirkjagerð í framtíðinni. Innleiðingin er einnig liður í áframhaldandi stafrænni þróun hjá Snæfellsbæ en kerfið á að leiðbeina umsækjendum í gegnum ferlið og stuðlar að því að gögn berist samræmd og í betri gæðum. Upplýsingar um kerfið má finna á vefsíðu Snæfellsbæjar www.snb.is. JJ
grunnur að öruggri og góðri upplifun íbúa og gesta. Þegar almyrkvinn gekk yfir kom árangur þessa undirbúnings skýrt í ljós en sömuleiðis gerði þolinmæði, skilningur og jákvætt viðhorf íbúa á svæðinu ferlið auðveldara. Það var mikil örvænting í lofti miðvikudaginn 12. ágúst þar sem ský voru á himni og dagurinn byrjaði í blautari kantinum. Það stytti svo upp en skýin héldust á sínum stað. Á Hellissandi voru um 3000
manns saman komin á tónlistarhátíðinni Iceland Eclipse en með þeim voru hátt í 20.000 mannns í Snæfellsbæ samankomin til að fylgjast með almyrkvanum. Fagnaðaróp heyrðust frá spenntum áhorfendum viðsvegar um sveitarfélagið þegar skyndilega skall á myrkur og magnað sjónarspilið gekk yfir. Meðfylgjandi mynd tók Ægir Þór Þórsson. SJ
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Útkall hjá Lífsbjörgu Mánudaginn 17. ágúst barst björgunarsveitinni Lífsbjörgu útkall vegnna fólks sem hafði komið sér í sjálfheldu á milli Djúpalónssands og Dritvíkur. Sjö sjálfboðaliðar Lífsbjargar svöruðu kallinu, gerðu sig klára í björgunarstöðinni Vonn og fór fyrsti hópurinn af stað 14 mínútum eftir að kallið barst. Þegar á staðinn var komið settu félagar Lífsbjargar upp einfalt fjallabjörgunarkerfi, sigu niður til fólksins sem var í vanda og björguðu þeim upp á brún. Í tilkynningu frá björgunarsveitinni segir að aðstæður hafi verið heilt yfir góðar, þar var krefjandi landslag með lausum skriðum og klettum inn á milli en veðrið með besta móti. Fólkið sem átti ferð þarna á milli Dritvíkur og Djúpalónssands var létt eftir að sjálfboðaliðarnir höfðu aðstoðað
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111
Boltinn Laugardaginn 15. ágúst átti Víkingur Ó. mikilvægan leik á móti Kára í Akraneshöllinni. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Víkinga en leikmönnum Kára tókst að skora þrjú mörk á fyrstu 25 mínútum leiksins. Því fjórða bættu þeir svo við þegar þrjár mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Víkingur Ó. fékk ekki á sig fleiri mörk í leiknum en Luis Romero Jorge tókst að minnka muninn þegar hann skoraði mark á 75. mínútu. Þetta voru ekki úrslitin sem vonast var eft-
ir en víkingar þurfa að rífa sig í gang því það er stutt í næsta leik. Víkingur spilar tvo leiki á næstu viku. Liðið tekur á móti Þrótti V. miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 18:00 á Ólafsvíkurvelli og spilar svo við Magna á Grenivíkurvelli þann 23. ágúst klukkan 14:00. Laugardaginn 22. ágúst klukkan 14:00 mun Reynir H. spila sinn síðasta leik í sumar en þá taka Reynismenn á móti Einherja á Ólafsvíkurvelli. JJ
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
þau úr þessum óþægilegu aðstæðum þar sem þau gátu ekkert hreyft sig. Meðfylgjandi mynd er í eigu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar. SJ
Útiblakvöllur í Grundarfirði Ungmennafélag Grundarfjarðar hefur fjárfest í útiblakbúnaði og hefur félagið komið honum fyrir á túninu gegnt grunnskólanum í samstarfi við Grundarfjarðarbæ. Almenna Umhverfisþjónustan sá um að setja blakvöllinn upp og ekki leið á löngu þar til hann var tekinn í notkun. Blakstarfið í Grundarfirði er öflugt og sívaxandi og með nýjum útiblakvelli geta blakæfingar
átt sér stað undir berum himni þegar veður leyfir og aðrir iðkendur geta stundað blak úti óháð stundatöflu íþróttahússins. Ungmennafélag Grundarfjarðar hvetur öll til að nýta völlinn og njóta hreyfingar og útiveru í góðum félagsskap. Meðfylgjandi mynd er frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar. SJ
Grjótvörn við Enni
Minnisvarði um almyrkvann Þessa dagana vinnur Stafnafell að því að lengja sjóvörnina undir Enni fyrir Vegagerðina. Samkvæmt Vegagerðinni en unnið þar að rofvörnum og fyllingum, 50 metrar af núverandi grjótfláa verða endurbyggðir auk þess sem sjóvarnargarðurinnn verð-
Í tilefni af almyrkvanum sem var þann 12. ágúst hefur Snæfellsbær sett upp minnisvarða við Tröðina á Hellissandi. Minnisvarðinn er táknrænn fyrir þennan merka atburð sem átti sér stað á svæðinun en mun einnig nýtast til fræðslu og upplýsinga um almyrkvann og þær einstöku aðstæður sem skapast þegar hann gengur yfir. Með minnisvarðanum verður til varanleg heimild um atburðinn hér í Snæfellsbæ sem íbúar og gestir geta notið og fræðst af um komandi ár.
Verkið er hannað með þeim hætti að það nýtist sem myndarammi og fólk getur stillt sér upp inni í hringnum og tekið myndir til minningar um þessa einstöku upplifun með Snæfellsjökul í baksýn. Verkið er smíðað af Vélsmiðjunni Fönix í Rifi og heimamaðurinn Anton Jónas Illugason sá um hönnun merkinga. Með uppsetningu minnisvarðans vill Snæfellsbær varðveita minningu um þennan merka dag og tryggja að komandi kynslóðir geti kynnt sér og rifjað upp þennan stórviðburð. SJ
ur lengdur um 330 metra til vesturs. Stafnafell sækir efni í verkið í grjótnámuna við Höfðaskarð en útlögn grjóts og sprengds kjarna er um 12.000 rúmmetrar. Gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið fyrir miðjan september. Meðfylgjandi mynd er frá Stafnafell ehf.
INNRITUN FYRIR HAUSTÖNN 2026 Innritun í skólavistun Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fyrir haustönn 2026 hófst 17. ágúst og er í fullum gangi. Umsóknum skal skilað í tölvupósti: tonlistarskoli@snb.is eða í síma 433 9928.
Vegna framkvæmda við tónlistarskólann hefst kennsla mánudaginn 31. ágúst. Nemendur sem eru að ljúka árið 2026 þurfa að staðfesta áframhaldandi skólavistun fyrir haust 2026, og ef breytingar eru á hljóðfæranámi. Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu, þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra. Hálft nám reiknast sem 60% af fullu gjaldi. Í þeim tilvikum sem systkini yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur skal nema 25% fyrir annað systkini og 50% fyrir þriðja systkini. Afslátturinn reiknast ávallt af ódýrasta náminu. Systkinaafsláttur á eingöngu við um systkini, ekki frændsystkini, þó svo lögheimili og greiðandi sé sá sami. A.T.H. Við innritun hefur forráðamaður skuldbundið sig til að greiða skólagjöld út önnina. Gjaldskrá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar má finna á vefsíðu Snæfellsbæjar.
Til að nálgast Jökul á netinu er hægt að skanna QR merkið hér til hliðar með myndavélinni í símanum.
Bestu kveðjur Skólastjóri Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
SJ
Afmælisveisla Landsbankans og TM
Í tilefni af tvöföldu stórafmæli Landsbankans og TM er landsmönnum boðið í afmælisveislu fimmtudaginn 20. ágúst nk. Hátíðarhöldin fara fram samtímis í útibúum Landsbankans um allt land kl. 14. Kynntu þér afmælisdagskrána nánar á landsbankinn.is