1216. tbl - 26. árg.
11. ágúst 2026
s. 588 9191 | www.verks.is | verks@verks.is
Eclipse festival á Hellissandi Almyrkvi á sólu gengur yfir Norðurslóðir, þar með talið Snæfellsnesið, miðvikudaginn 12. ágúst en liðin eru 72 ár síðan síðast sást til almyrkva frá Íslandi. Mikið kapp hefur verið lagt á svo miðvikudagurinn gangi sem best fyrir sig, af hálfu sveitarfélaga, stofnanna, viðbragðsaðila, fyrirtækja og einstaklinga. Ekki nóg með að Snæfellsnesið megi eiga vona á fjölda manns, sem gætu talið á fleiri þúsundum hefur Hellissandur nú umbreyst í stórt hátíðarsvæði þar sem Almyrkvahátíðin eða Iceland Eclipse Festival mun fara fram. Almyrkvahátíðin verður haldin dagana 11.-15. ágúst en það er bandaríska fyrirtækið IMXP sem stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við íslenska teymið sem stóð að Secret Solstice hátíðinni í Reykjavík í júní 2019. IMXP er fyrirtæki sem eltir uppi almyrkva og hefur haldið slíkar hátíðir áður í Texas og Oregon. Þegar mest hefur verið hafa um 300 manns staðið að því að reisa stórt hátíðarsvæðið en það er staðsett á Reynisvelli, grasbalanum þar fyrir framan og í
HÖRÐ Í HORN AÐ TAKA
bótaréttur.is 520 5100 Suðurlandsbraut 24
Tröðinni. Tjaldbúðirnar teygja sig svo langt í allar áttir. Aðstandendur hátíðarinnar fluttu inn stærsta hátíðartjald sem sett hefur verið upp á Íslandi en það er 1000 fermetrar og rúmar 600 manns, þar verða kvöldtónleikarnir haldnir en auk þess eru fleiri minni hátíðartjöld, hvert með sinn tilgang. Tónlistarfólk, vísindamenn, geimfarar og fleiri, erlendir og íslenskir aðilar, munu koma fram á hátíð-
inni með tónleika, fyrirlestra og fræðslur en um 3000 miðar hafa verið seldir. Hátíðargestir dvelja ýmist í tjaldbúðum á hátíðarsvæðinu, húsbílum eða í leigðu húsnæði í bæjarfélaginu. Aðstandendur hátíðarinnar segja að þrif á meðan að hátíðinni stendur og eftir að henni sé lokið séu þaulskipulögð enda vant fólk að verki. Til stendur að hátíðarsvæðið verði tekið niður aftur 21. ágúst. Almyrkvinn er stór viðburður sem mun draga að sér fjölda fólks til viðbótar við hátíðargesti Iceland Eclipse. Þetta mun reyna á innviði samfélagsins en gripið
hefur verið til fjölda ráðstafanna svo að allt gangi sem best fyrir sig. Til að mynda verða lengri opnunartímar í sundlauginni í Ólafsvík í vikunni, miðvikudaginn 12. ágúst verður umferðarstýringu frá Búðum að Öndverðarnesi, lögreglan á Vesturlandi verður með aukið viðbragð og auka mannskap í sveitarfélaginu, aukning á vöktum verður á heilsugæslunni í Ólafsvík og að fleiri sjúkrabílar verði til taks í sveitarfélaginu, Slökkvilið Snæfellsbæjar verður með slökkvibíl og mannafla á Hellissandi. SJ
- Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Sjónarhóll trail run haldið í fyrsta sinn Fjallahlaupið Sjónarhóll trail run var haldið í fyrsta sinn á Hellissandi laugardaginn 8. ágúst síðastliðinn. Þau Ari Bent Ómarsson og Helga Jóhannsdóttir standa að hlaupinu fyrir hönd Hlaupahóps Snæfellsbæjar og hafa þau unnið hörðum höndum í sumar að undirbúningi hlaupsins. 26 hlauparar tóku þátt í hlaupinu í krefjandi veður aðstæðum og miklu roki. Hlaupið hófst við Útgerðina á Hellissandi og lá 21 kílómetra hlaupaleiðin um Prestahraun og Eysteinsdalsleið upp á Sjónarhól en Sjónarhóll er gamall eldgígur innan Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Þaðan er svo hlaupið aftur til baka á Hellissand. Hækkunin á hlaupaleiðinni er um 457 metrar og var gert ráð fyrir að fyrstu keppendur kæmu að markinu eftir um 90 mínútur. Sú spá stóðst en Sindri Georgsson var
fyrsti hlaupari í mark á tímanum 01:32:37. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti í karlaflokki og kvennaflokki. Sindri var því í 1. sæti karla, tæpum 4 mínútum á eftir honum kom heimamaðurinn Dylan Rom-
Kort sem sýnir umfang undirbúnings almyrkva
ain í mark á tímanum 01:36:07 og í 3. sæti var grundfirðingurinn Steinar Már Ragnarsson með tímann 01:38:40. Fyrst kvenna var Fríða Hrund Kristinsdóttir á tímanum 01:57:46, í 2. sæti var Caroline Hoover á 02:13:43 og í 3. sætið átti sandarinn Una Pálsdóttir á 02:23:49. Þá voru dregnir út útdráttarvinningar fyrir þátttakendur og grillað ofan í mannskap-
inn. Hlauparar voru þreyttir eftir krefjandi hlaup en þó sáttir með afrakstur dagsins í stórbrotnu umhverfi. Dagurinn heppnaðist virkilega vel og er það von skipuleggjanda að Sjónarhóll Trail Run verði árlegur viðburður sem muni festa sig í sessi sem hluti af íþróttaog útivistarlífi Snæfellsness. SJ
Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu. Á heimasíðu Snæfellsbæjar, snb.is, má nú sjá kort sem gefur skemmtilega innsýn í umfang þess undirbúnings sem unnið hefur verið að vegna almyrkva í Snæfellsbæ. Kortið er ekki nákvæmniskort og er enn í vinnslu. Það er fyrst og fremst birt til gamans og til að gefa íbúum hugmynd um hversu umfangsmikið verkefnið er og
hversu víða undirbúningur og skipulag vegna atburðarins nær. Það má því líta á kortið sem smá sýnishorn af því mikla verkefni sem hefur verið í undirbúningi undanfarna mánuði. Athugið að það þarf að þysja inn og út til að skoða kortið. Það opnast í 50 metra hæð og þarf því að byrja að þysja út.
Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími:
Blaðið kemur út vikulega.
436 1617
Tímapantanir í síma 436-1111
Aflatölur í júlí Slæmt sjóveður og miklar rigningar er það sem hefur einkennt þennar júlímánuð, ansi margir dagar duttu út hjá strandveiðibátum vegan brælu. Samtals komu á land í höfnunum 313 tonn í 412 löndunum. Allar þessar landanir eru frá skakbátum nema Júlli Páls hefur verið á netum á Arnarstapa og Hafdís SK er í Ólafsvík á dragnót. Við misstum ansi marga báta héðan út Breiðafirði vestur á Bolungarvík í þessum mánuði þar sem menn voru að leita að betri veiði.
Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5): Dragnót:
Hafdís 52 tonn í 5 löndunum. Net:
Júlli Páls 4,5 tonn í 5 löndunum. Handfæri:
Orri 9,9 tonn í 12 löndunum. Kóni 9,5 tonn í 12 löndunum. Jón á Stapa 9,3 tonn í 11 lönd. Oliver 9 tonn í 10 löndunum. Siggi á Bakka 8,3 tonn í 5 lönd.
ÞB
Skólabyrjun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga Hugleiðing skólameistara
Það er farið að halla af sumri og það styttist í skólasetningu. Þann 17. ágúst verður nýnemadagur hjá okkur en þá bjóðum við 32 nýnema velkomna til náms við FSN. Á nýnemadegi kynnum við nýnemum nám og skólastarf FSN. Kennslan, bæði hjá staðnemendum og fjarnemendum, hefst svo samkvæmt stundaskrá 18. ágúst. Skólabílar fara frá Stykkishólmi og Snæfellsbæ og akstur þennan dag er í boði FSN. GH Hópferðabílar ehf. sjá um skólaakstur milli Stykkishólms og Grundarfjarðar og Rútuferðir ehf. sjá um akstur milli Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar. Nýnemum verður líka boðið í hádeg-
ismat þennan nýnemadag. Litlar starfsmannabreytingar verða á komandi skólaári, þann 1. ágúst tók Sigríður Guðbjörg Arnardóttir við starfi aðstoðarskólameistara auk þess sem hún mun kenna kynjafræði og vera deildarstjóri starfsbrautar. Á starfsbrautina fáum við nýjan starfskraft því Snæbjört Sandra Gestsdóttir hefur verið ráðin sem stuðningsfulltrúi. Við skólann starfa 24 starfsmenn og nú eru skráðir 200 nemendur við skólann. Síðastliðið skólaár voru 23 nemendur útskrifaðir frá FSN og hefur skólinn útskrifað samtals 640 nemendur frá fyrstu útskriftinni sem fram fór í desember árið 2005. Í haust verða breytingar varðandi Framhaldsdeild FSN sem hefur verið rekin á Patreksfirði frá árinu 2007. Með bættum samgöngum á Vestfjörðum eiga nemendur auðveldara með að sækja skóla til Ísafjarðar og því mun rekstur deildarinnar leggjast af. Við bjóðum nemendur á Vestfjörðum að sjálfsögðu áfram velkomna hingað í nám, hvort sem það er í fjarnám eða staðnám. Það er rétt að nota þetta tækifæri
Aukið álag í sundlaugum vegna sólmyrkva Starfsemi sundlauga í Snæfellsbæ eru með breyttu sniði þessa dagana. Í Lýsulaugum þarf að bóka í gegnum bókunarkerfi til þess að fá aðgang að lauginni dagana 10.-14. ágúst. Í sundlauginni í Ólafsvík má búast við enn meiri fjölda vegna hátíðargesta á Iceland Eclipse hátíðinni og mun því reyna verulega á innviði og starfsfólk dagana 9.16. ágúst. Í sundlauginni í Ólafsvík þurfa hátíðargestir Iceland Eclipse að bóka tíma í sund. Þetta er gert til þess að anna álagi og koma í veg fyrir að ör-
tröð myndist í laugina. Leyfilegur hámarksfjöldi í laugina hverju sinni er miklu minni en áætlaður fjöldi gesta. Snæfellsbær vill þó koma því á framfæri að sundlaugin er opin öllum, íbúum jafnt sem öðrum gestum en fastagestir í laugina mega hins vegar búast við fjöldatakmörkunum á þessum dagsetningum og að starfsfólk þurfi mögulega að hleypa inn í hollum. Gestir eru hvattir til að sýna þolinmæði og tillitssemi. JJ
til að minnast á ÍSJA-áfangann sem var í vetur kenndur af þeim Áslaugu Sigvaldadóttur og Steinunni Magnúsdóttur. Áfanginn er þverfaglegur og áhersla er lögð á jarðfræði Snæfellsness, Eyrbyggjasögu og þjóðsögur af svæðinu. Við sjáum fyrir okkur að efla þessa átthagafræðikennslu með því að flétta saman kennslu við UNESCO-vistvanginn á Snæfellsnesi og í haust verður stofnaður hópur kennara til að útfæra það samstarf, í samvinnu við Svæðisgarð Snæfellsness og Snæfellsnesþjóðgarð og á það vel við þar sem FSN er UNESCO-skóli. Með því að vera UNESCO-skóli er skólinn kominn í samstarfsnet tíu þúsund skóla í 181 landi. Á komandi skólaári er markmiðið að flétta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í kennslu og verkefnavinnu í kennsluna því eitt af markmiðum UNESCO verkefnisins, að auka þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðunum. Sömuleiðis er takmarkið að koma á samstarfi við erlenda Unesco skóla og auka þar með enn á erlent samstarf. FSN er einnig ERASMUS+ skóli. Með Erasmus+ gefst skólanum tækifæri til að auka alþjóðavæðingu í starfi sínu, miðla eigin reynslu og sækja þekkingu til annarra Evrópulanda. Nú þegar höfum við verið í samskiptum við skóla erlendis ásamt því að kennarar hafa átt kost á því að sækja námskeið erlendis. FSN er með samning við AFS (American Field Service) sem er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem rekin er af sjálfboðaliðum og sérhæfir sig í menningarskiptum fyrir ungmenni. Samtökin eru meðal elstu og stærstu skiptinemasamtaka í heimi og eiga rætur sínar að rekja til sjálfboðaliða sem störfuðu sem sjúkraflutningamenn í fyrri og síðari heimsstyrjöldinni. AFS á Íslandi eru sjálfstætt deildarfélag sem hefur starfað í áratugi og sent fjölda íslenskra ungmenna út í heim sem og tekið á móti fjölmörgum erlendum nemendum. Héðan frá FSN hafa þrír nemendur farið í skiptinám á vegum AFS á Íslandi. Þegar FSN tók til starfa haustið 2004 var skólinn nýr í menntaumhverfinu því að baki skólans var ný hugsun, nýir kennsluhættir og húsnæðið var teiknað sérstaklega og hannað með þessa kennsluhætti í huga. Frá upphafi hefur dreifnám,
þ.e. nám sem er ekki staðnám, verið hluti af kennsluháttunum hér við skólann. Síðustu annir hefur þessi hópur nemenda, þ.e. fjarnema, farið stækkandi sem þýðir að við erum að ná til fleiri nemenda en bara þeirra sem búa á upptökusvæði skólans. Við megum aldrei gleyma því hvað möguleikarnir til framhaldsnáms voru öðruvísi áður en FSN var stofnaður. Nemendur sem luku skyldunámi þurftu að flytja að heiman 16 ára ef áhugi var á framhaldsnámi. Dæmi voru um að fjölskyldur tóku sig upp og fluttu því það var jafnvel auðveldara að flytja með börnunum sínum heldur en að senda þau frá sér. Ég segi oft að framhaldsskóli í heimabyggð sé byggðastefna. Við höfum horft á þá þróun að nemendur sem útskrifast frá FSN, skólanum okkar, og fara síðan til frekara náms eru að koma heim í auknum mæli því það eru meiri líkur á að þeir nemendur komi til baka heldur en þeir sem fara að heiman strax að loknu grunnskólanámi 16 ára. Þess vegna verðum við að standa vörð um þennan skóla sem er fyllilega sambærilegur við aðra framhaldsskóla og er á margan hátt framar öðrum framhaldsskólum því að þó að smæðin hafi oft galla þá hefur hún líka marga kosti. Það er svo auðvelt að prófa alls konar nýjungar og sýna frumkvæði, vera framsækinn, vera með nýsköpun í námi og kennslu, í svona litlum skóla með svona framúrskarandi starfsmenn. Það er óskaplega dýrmætt að eiga möguleika á framhaldsnámi í sinni heimabyggð. Það er dýrmætt að geta verið lengur heima í foreldrahúsum og það er dýrmætt fyrir fjölskyldur að hafa börnin sín lengur heima. Ég minni á að börn eru börn til 18 ára aldurs og samvera foreldra og barna á þessum árum er svo mikilvæg. Við starfsfólkið í FSN horfum bjartsýn og með eftirvæntingu til komandi vetrar og hér í húsi er tilhlökkun í lofti að hitta nemendur aftur sem voru hér síðasta vetur og heilsa nýjum nemendum sem nú hefja skólagönguna í FSN. 10. ágúst 2026 Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Fyrsta skóflustungan tekin á stækkun Kaldalæks Nú í vetur tók Sjómannadagsráð Ólafsvíkur ákvörðun um að því að byggja við Kaldalæk í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Í framhaldi af því tók Sjómannadagsráðið tilboði frá Smiðjunni Fönix í byggingu á nýju húsi og á tengibyggingu á milli nýja hússins og Kaldalækjar. Sunnudaginn 9. ágúst var fyrsta skóflustungan að stækkun á Kaldalæk tekin. Við athöfnina tóku Illugi Jens Jónasson, formaður Sjómannadagsráðs og Magnús Eiríksson, verkefnastjóri af hálfu
Smiðjunnar Fönix, til máls og fóru með nokkur orð um framtíðarplönin í Sjómannagarðinum og stækkun Kaldalæks. Þegar þeir höfðu lokið máli sínu tóku Pétur Steinar Jóhannsson, Björn Erlingur Jónasson og Jónas Gunnarsson fyrstu skóflustunguna að stækkun Kaldalæks.. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um miðjan ágúst og eins og áður kom fram er Smiðjan Fönix aðalverktaki stækkunarinnar. Hefur Smiðjan ráðið T.S. vélaleigu til að sjá um alla
jarðvinnu og J.T. trésmíði til að byggja sjálft húsið, það er alla trésmíði, en viðbyggingin ásamt tengibyggingu eru 77,7 fermetrar að stærð og verður Kaldilækur því um 120 fermetrar að stærð að framkvæmdum loknum. Með þessari viðbyggingu fjölgar salernum og meira rými fæst fyrir til
Boltinn Víkingur Ólafsvík tók á móti liði Selfoss á Ólafsvíkurvelli í æsispennandi viðureign þann 10. ágúst síðastliðinn. Í sumar hefur liðið styrkt sig með endurkomu tveggja leikmanna sem spilað hafa áður með liðinu. Það eru þeir Luis Romero Jorge og Guðmundur Magnússon. Báðir hafa komið sterkir inn og eflt liðið til muna. Ingvar Freyr Þorsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins á 32. mínútu. Víkingar voru mjög sterkir allan leikinn og bætti Guðmundur Magnússon stöðuna enn frekar þegar hann skoraði mark úr vítaspyrnu á 60. mínútu. Leiknum lauk með 2-0 sigri Víkinga en stigin þrjú styrkja stöðu þeirra í deildinni
mikið. Víkingur Ó. og Fjölnir eru bæði með 25 stig en lið Kára er í þriðja sæti með 26 stig. Selfoss er í öðru sæti deildarinnar með 29 stig. Baráttan um að komast upp um deild er því orðin spennandi en sex umferðir eru eftir á þessu tímabili og nóg af stigum í pottinum. Næsti leikur Víkings er gegn Kára í Akraneshöllinni þann 15. ágúst klukkan 14:00. Gengi Reynis Hellissands í utandeildinni hefur verið með ágætum í sumar en úrslitin hafa ekki alltaf fallið með þeim. Reynir er á botni deildarinnar með 3 stig eftir 11 leiki en síðasti leikur þeirra fer fram á Ólafsvíkurvelli þann 22. ágúst klukkan 14:00.
dæmis fundi og minni samkomur. Stefnt er að verklokum í byrjun júní 2027 en Smiðjan Fönix vill koma því á framfæri að vegna öryggisástæðna verður Sjómannagarðurinn í Ólafsvík lokaður að hluta eða öllu leyti á meðan framkvæmdir standa yfir.
INNRITUN FYRIR HAUSTÖNN 2026 Innritun í skólavistun Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fyrir haustönn 2026 hefst 17. ágúst. Umsóknum skal skilað í tölvupósti: tonlistarskoli@snb.is eða í síma 433 9928. Nemendur sem eru að ljúka árið 2026 þurfa að staðfesta áframhaldandi skólavistun fyrir haust 2026, og ef breytingar eru á hljóðfæranámi. Samningur skal gerður við nemendur og forráðamenn um hljóðfæraleigu, þar sem m.a. eru skilmálar um meðferð hljóðfæra. Hálft nám reiknast sem 60% af fullu gjaldi. Í þeim tilvikum sem systkini yngri en 18 ára stunda nám við skólann skal veittur systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur skal nema 25% fyrir annað systkini og 50% fyrir þriðja systkini. Afslátturinn reiknast ávallt af ódýrasta náminu. Systkinaafsláttur á eingöngu við um systkini, ekki frændsystkini, þó svo lögheimili og greiðandi sé sá sami. A.T.H. Við innritun hefur forráðamaður skuldbundið sig til að greiða skólagjöld út önnina. Gjaldskrá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar má finna á vefsíðu Snæfellsbæjar.
Bestu kveðjur Skólastjóri Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
SJ