
1215. tbl - 26. árg. 8. júlí 2026
![]()

1215. tbl - 26. árg. 8. júlí 2026
Sandara- og rifsaragleðin verður haldin hátíðleg dagana 9. til 11. júlí. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og glæsileg dagskrá hefur verið birt. Helgin mun byrja á opnun á listasýningu í 3 veggir listrými, bjórhlaupinu vinsæla og skemmtikvöldi með Eyþóri Inga í Röstinni á fimmtudeginum. Helgin er svo stútfull af fjölbreyttri dagskrá fyrir unga sem aldna en þar má nefna dorgveiðikeppni, litahlaup, brauðtertukeppni, sápubolta, listasýningar og brekkusöng og fleira svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um helgina. Eins og vanalega er skreytingakeppni á milli hverfa og líkt og áður leggja íbúar Hellissands og Rifs allt sitt í að gera bæina sem skrautlegasta fyrir hátíðina. Nú þegar hafa einhverjar skreytingar ratað upp og mun bætast í fram að helgi.

bótaréttur.is
520 5100
Suðurlandsbraut 24


kvæmdir átt sér stað í Sundlaug Snæfellsbæjar til þess að tryggja betra aðgengi fyrir alla. Háir þröskuldar hafa verið fjarlægðir, rennihurðar settar upp og nú nýverið var komið fyrir rampi sem auðveldar fólki að komast inn í sundlaugina. Þessar úrbætur eru skref í átt að því að gera sundlaugina að stað sem allir geta notið, óháð aldri, hreyfi-
getu eða öðrum aðstæðum og að því að gera Snæfellsbæ að samfélagi þar sem allir fá tækifæri til að taka þátt í íþróttum, heilsueflingu og félagslífi. Með bættu aðgengi er verið að stuðla að aukinni þátttöku og jafnrétti í samfélaginu. Sundlaugin er mikilvægur samkomustaður íbúa og því mikilvægt að sem flestir geti notið hennar á eigin forsendum. SJ
Miðvikudaginn 24. júní fóru öll börnin á Krílakoti og kvöddu hann Blæ, Ingibjörg hjá póstinum hitti Blæ og börnin við Sjoppuna og ætlar að skutla honum til Keflavíkur. Blær er nú kominn í sumarfrí og ætlar að njóta í Ástralíu þangað til hann kemur aftur til okkar í haust.
Eftir góða kveðjustund þá buðu Jói og Júna börnum upp á ís og einnig hittu þau Dönu Sif frá Verkalýðsfélagi Snæfellinga sem gaf börnunum súkkulaði mola.
Starfsfólk og börn á Krílakoti vilja þakka kærlega fyrir aðstoðina við að koma Blæ áleiðist til Ástralíu og einnig fyrir veitingarnar frá Sjoppunni og Verkalýðsfélaginu.

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
Víkingur Ólafsvík mætti liði KFA á Neskaupstað um liðna helgi í 11. umferð 2. deildar karla í fótbolta. Víkingur spilaði án níu leikmanna í leiknum en sex voru meiddir og þrír í banni. Víkingar byrjuðu leikinn vel og spiluðu góðan bolta í fyrri hálfleik. KFA tókst að skora fyrsta mark leiksins á 59. mínútu og
bættu þeir svo við öðru á þeirri 66. Það var á brattann að sækja fyrir Víkinga en KFA skoruðu þriðja mark sitt á 94. mínútu. Víkingar eru í 7. sæti deildarinnar með 14 stig, aðeins einu stigi eftir Fjölni í sjötta sæti. Næsti leikur Víkings fer fram á Blönduósvelli sunnudaginn 12. júlí klukkan 16:00.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Sími: 436 1617
Endurvinnslan opnar aftur í Snæfellsbær eftir að hafa verið lokuð síðan um miðjan júní. Ragnar og Ásgeir, sem hefur séð um móttöku fyrir Endurvinnsluna síðustu ár, hættu móttöku í Grundarfirði og Snæfellsbæ 15. júní síðastliðinn. Endurvinnslan hefur nú gert samning við nýjan umboðsaðila á Snæfellsnesi, Nesleið, og tók flöskumóttakan aftur til starfa laugardaginn 4. júlí.
Móttakan verður til húsa að Norðurgarði 1 í Ólafsvík, gamla frystihúsinu, og mun þjóna íbúum Grundarfjarðarbæjar, Ólafsvíkur, Rifs og Hellissands á laugardögum frá klukkan 11:00 til 15:00.
Ekki hefur tekist að finna hentugt húsnæði í Grundarfirði fyrir starfsemina en Nesleið og Endur-
vinnslan halda þeirri leit áfram. Á meðan geta íbúar Grundarfjarðar skilað flöskum og dósum í Snæfellsbæ. Nesleið ásamt Íslenska Gámafélaginu mun í millitíðinni opna gáma á stöð gámafélagsins í Grundarfirði þar sem allur ágóði af dósum og flöskum rennur beint til björgunarfélagsins í Grundarfirði.
Í tilkynningu sinni um málið færir Endurvinnslan Ragnari og Ásgeiri innilegar þakkir fyrir farsælt samstarf á liðnum áratugum. Þar segir að Ragnar og Ásgeir hafi lagt gríðarlega mikið af mörkum til endurvinnslu og umhverfisverndar á Snæfellsnesi og með metnaðarfullu starfi sínu átt stóran þátt í að efla skil á flöskum og dósum á svæðinu.
SJ

Starfsemi sóknarnefndar Ólafsvíkurkirkju hefur verið með hefðbundnu sniði á liðnu starfsári. Fundir hafa að jafnaði verið haldnir einu sinni í mánuði, þó með rólegra fundahaldi yfir sumarmánuðina. Stjórn hefur jafnframt komið oftar saman en áður til að vinna að ýmsum verkefnum sem tengjast rekstri og viðhaldi kirkjunnar. Gaman er að geta þess að starfsmenn Smiðjunnar, virkni og hæfingarstöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu, hafa ryksugað kirkjuna á miðvikudögum í vetur. Framlag þeirra er mikils metið og gerir gæfumun fyrir daglegan rekstur og umhirðu kirkjunnar. Á árinu hefur verið unnið að ýmsu viðhaldi og lagfæringum. Til að mynda var tekið til í eldhúsi, geymslum og öðrum innri rýmum kirkjunnar auk þess sem hefur verið farið í ýmis smærri viðhaldsverkefni eins og viðgerð-
ir á lofti í safnaðarheimili, spotta í kirkjuklukkum, vatnsleka og annarra smærri atriða. Stærsta framkvæmd vetrarins var svo uppsetning varmadælu í kirkjunni. Verkefnið gekk vel og fékkst styrkur til framkvæmdarinnar. Varmadælan hefur reynst vel og helst góður hiti í kirkjunni núna. Þá hafa nýir og glæsilegir hátalarar verið settir upp í kirkjunni en þeir voru gjöf frá velunnara kirkjunnar og er þakkað fyrir þann mikilvæga stuðning.
Fram undan eru fjölmörg verkefni sem stefnt er að því að vinna á næstunni. Þar má nefna endurbætur á eldhúsi og lofti í eldhúsi kirkjunnar, nýja gólflista í safnaðarheimilinu, ýmislegt tengt rafmagni í kirkjunni og lagfæringar á útidyrahurð kirkjunnar. Þá þarf að laga líkhúsið en Snæfellsbær mun sjá um að laga þakið og drena meðfram húsimnu en nú þegar hefur hafist vinna við að mála húsvelunnarar kirkjugarðsins munu sjá um að setja nýtt rafmagn í garðinn. Markmið sóknarnefndar er að ljúka sem flestum þessarra verkefna fyrir 60 ára afmæli Ólafsvíkurkirkju sem verður haustið 2027.

Rekstur kirkjunnar er krefjandi líkt og hefur verið og segir Olga Guðrún Gunnarsdóttir, formaður sóknarnefndar að sóknarnefnd leggi áherslu á að leita leiða til að draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða þjónustu en í dag telja sóknarbörn kirkjunnar 503. Áform eru um að halda styrktartónleika í september í samstarfi við Veroniku Osterhammer og Valentinu Kay en markmið tónleikanna er að afla fjár til áframhaldandi framkvæmda og viðhalds kirkjunnar.
unnar fyrir samstarfið á liðnu ári og miklu þakklæti til velunnara kirkjunnar fyrir örlæti þeirra því án þeirra væri ekki hægt að ráðast í allar þær framkvæmdir og viðhald sem kirkjan þarf á að halda. Þá vill Olga Guðrún, formaður sóknarnefndar, koma til skila þökkum til vina sinna og félaga í sóknarnefnd, sóknarbarna og velunnara kirkjunnar fyrir samstarfið í vetur og aðstoðina við að komast inn í hlutverk formanns. Þau sem hafa áhuga á að leggja sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju lið í þeim fjölmörgu verkefnum sem nú eru í gangi er bent á reikning Ólafsvíkurkirkju.
Kennitala: 500269-4999
Reikningsnúmer: 0194-26-0076 SJ
opnaði 2. júlí síðastliðinn. Um er að ræða nýtt og spennandi ævintýra fyrirtæki í Snæfellsbæ sem býður upp á kajakleigu og faglega leiðsögn á sjó og vötn um. Halldóra Unnarsdóttir og
Aðalsteinn Pétur Bjarkason eru eigendur fyrirtækisins sem staðsett er á Rifi en fyrirtækið festir sig þó ekki við eina strönd eða eitt vatn, heldur velja þau besta staðinn á hverjum degi og tryggja þannig öryggi, fjölbreytni og einstaka upplifun fyrir alla gesti.
Snæfells Kayak Adventure hlaut atvinnu- og nýsköpunar-
urlands í janúar og hafa fest kaup á 8 kajökum sem eru vel
mannadagshelgina buðu þau áhugasömum að prófa kajak í -

takendur virkilega gaman af. Nú er fyrirtækið formlega komið á fót og fyrstu helgina í rekstri var boðið upp á sérstakt kynningarverð. Bókunarsíða Snæfells Kayak Adventure fer bráðlega í loftið en á meðan er hægt að bóka ævintýralega ferð á kajak í síma 662-0170, á snaefellskayak@gmail.com eða á Facebooksíðu fyrirtækisins.
Svavar Jónatansson vinnur við prufuverkefni á Hrafnistu þar sem hann hefur nýtt sér tækni sýndarveruleika til þess að færa heimilisfólk í aðstæður sem þau ættu annars erfitt með að komast í. Hann hóf að nota sýndarveruleikagleraugu við störf sín á Hrafnistu fyrir tveimur árum en þar hefur hann starfað síðan 2018 samhliða því að sinna leiðsögn í ferðaþjónustu. Viðtökur íbúa á Hrafnistu á allskyns myndefni í sýndarveruleikagleraugunum hafa verið mjög jákvæðar og er þessi tækni nú notuð vikulega á fjórum deildum Hrafnistu í Hafnarfirði og er áhugi fyrir því að nota þessa tækni á fleiri heimilum. Tæknin veitir fólki frelsi til að ferðast um allan heim og endurupplifa þær minningar sem flestir eiga af að ferðast.
Við þetta verkefni varð fljótt ljóst að skortur væri á innlendu efni og fyrir um ári síðan hóf Svavar að taka upp myndbönd á Íslandi. Hann fer um með hjálm með sýndarveruleikamyndavél á með þeim tilgangi að taka upp efni á Íslandi sem á skírskotun til fólks á eldri árum. Myndavélin tekur upp 360°og heimilsfólk setur svo á sig sýndarveruleikagleraugun og getur ferðast um heiminn og upplifað landið eins og það sé í raunveruleikanum. Til að mynda hefur hann tekið upp efni á kóræfingu í Lindakirkju, smalamennsku á Ströndum og af heimsókn í Lystigarðinn á Akureyri. Með góðum stuðningi Lionsklúbbsins Ásbjarnar í Hafnarfirði

fer hann nú um landið til að taka upp sérsniðið efni frá bæjum, þorpum, bryggjum, náttúru og viðburðum til notkunar í sýndarveruleikagleraugum. Markmiðið með upptökunum er að skapa tilfinningu hjá heimilisfólki fyrir ferðalagi með tengingu við sögu og einkenni hvers staðar.
Snæfellsnesið er meðal áfangastaða og hefur Svavar nú þegar varið tveimur dögum í tökur á svæðinu en hann er kunnugur staðháttum þar sem hann bjó um skeið í Ólafsvík. Svavar hlaut góða aðstoð heimamanna á meðan dvöl hans hérna stóð, en við tökur hitti hann Björn Ásgeir Sumarliðason, Ellert Kristinsson og Kristján Lár, skipstjóra og sagnamanni með meiru frá Stykkishólmi, náði upptöku af löndun í Grundarfjarðarhöfn, ljúfri stemningu við Ólafsvíkurhöfn þar sem
börn veiddu á bryggjunni og strandveiði sjómaður gekk frá báti sínum. Að lokum fóru fram tökur í Snæfellsjökulsþjóðgarði í samstarfi við landverðina Guðmund Jensson, sem var þar sögumaður áhorfenda, og Benedikt Hauk Guðmundsson. Sérkenni Snæfellsnes eru óteljandi og var erfitt að gera upp á milli staða og frásagna en afrakstur ferðarinnar verða svo myndbönd sem notuð verða í sýndarveruleikagleraugum sem Svavar sér fram á að
verði algeng viðbót við gott starf sem unnið er á hjúkrunarheimilum landsins.
Eftir að hafa heimsótt Snæfellsnesið er ferðinni nú heitið á Vestfirði. Þaðan heldur Svavar svo áfram á norðurland og loks austurland þar sem hann mun halda áfram að nýta nútímatækni til að færa heimilisfólk í aðstæður sem þau eiga annars erfitt með að komast í.
SJ
Nýlega fékk TS vélaleiga afhenta fjórhjólastýrða hjólagröfu frá Kraftvélum. Vélin er af gerðinni Komatsu PW148-11 og er hún fyrst sinnar tegundar á Íslandi. Grafan afhentist með öllum helstu eiginleikum sem í boði er frá Komatsu, þar á meðal Rototilt RC5, skóflupakka og fleira. Feðgarnir Svanur Tómasson og Stefán Svansson, eigendur TS vélaleigu, sóttu nýju vélina og tóku Kraftvélar þessa mynd af þeim við tilefnið. SJ



