Skip to main content

BaejarbladidJokull1214tbl

Page 1


Snæfellsjökulsþjóðgarður hélt upp á 25 ára afmælis þjóðgarðsins sunnudaginn 29. júní síðast liðinn. Afmælishátíðin hófst á er indi frá Ragnhildi Sigurðardóttur, þjóðgarðsverði og svo tók Auð ur Kjartansdóttir, forseti bæjar stjórnar, til máls. Hákon Ásgeirs son, fyrrum þjóðgarðsvörður og núverandi sviðsstjóri stjórnunarog verndarsviðs Náttúruverndar stofnunar, flutti svo erindið Auðlind í hrauni. Þá tók Daniel Leeb til máls fyrir hönd Geimvís indastofnunar Íslands og fjallaði um undirbúning fyrir almyrkva á sólu á vegum stofnunarinnar og seinna bauð hann viðstödd um upp á að kynnast Geimvís indastofnun Íslands betur og fyr irhuguðum plönum þeirra með NASA fyrir Almyrkva á sólu 2026.

Hjónin Lovísa Olga Sævarsdótt ir og Pétur Pétursson, síðustu ábú endur á Malarrifi, færðu Snæfells jökulsþjóðgarði minningarbekk um foreldra Péturs, þau Pétur Pétursson og Ellu Huldísi Inga dóttur sem voru vitavarðahjón frá Malarrifi. Þá fóru landverðir með gesti í fræðslugöngu og að lokum fengu börnin að vígja hluta af endurbættu leiksvæði við Malarrif sem Gunnar Óli Guðjónsson, landslagsarkitekt, hefur unnið að

þennan sunnudaginn, fjöldi fólks gerði sér ferð á Malarrif til að fagna 25 árum með Snæfellsjökulsþjóðgarði og voru aðstandendur þjóðgarðsins og gestir sáttir eftir vel lukkaðan afmælisdag.

SJ

SSV úthlutar Öndvegisstyrkjum

Úthlutunarnefnd Sóknaráætlunar Vesturlands úthlutaði fyrir stuttu 45 milljónum krónum í Öndvegisstyrki á Vesturlandi. 56 umsóknir bárust nefndinni og úr fjölmörgum frábærum verkefnum að velja. Bakhjarlar Græna Lónsins fengu 7 milljónir króna styrk vegna tilraunaræktunar grænþörunga við Lýsulaugar. Styrkurinn mun einnig fara í að afla nýrrar þekkingar um auðlindina og

leggja grunn að þróun náttúrulegra húðvara sem byggja á sérstöðu vatnsins og þörunganna. Snæfellsjökulsþjóðgarður fékk 5 milljónir króna styrk til þess að fjárfesta í búnaði til uppbyggingar á sólarnorðurljósa og stjörnuskoðunarstöð ásamt geimvísindalegri fræðslumiðstöð. Svæðisgarðurinn Snæfellsness var úthlutað 3 milljónum krónum til verkefnisins Raddir og rætur Snæ-

Ný sláttuvél

Golfklúbbur Staðarsveitar tók nýlega í notkun sjálfvirka brautarsláttuvél. Með þessum kaupum golfklúbbsins urðu kaflaskil í golfvallaumhirðu á Íslandi þar sem þetta er fyrsta sjálfvirka brautasláttuvél landsins. Brautaslátturvélin er af gerðinni FJDynamics RCM01 og vekur mikla lukku hjá golfurum í Staðarsveit en minni lukku hjá kríunum sem eru ekki búnar að taka nýja vallarstarfsmanninn í

sátt. Í tilkynningu frá Agro ehf, sem seldi golfklúbbnum sjálfvirkju slátturvélina óska þau brauðtryðjendunum hjá Golfklúbbi Staðarsveitar innilega til hamingju með nýju vélina. Á meðfylgjandi mynd eru Guðbjartur Ísak Ásgeirsson frá Agro og Kristján Þórðarsson frá Golfklúbbi Staðarsveitar með nýju slátturvélinni.

SJ

fellsness – Stafrænt Sögusafn. Markmiðið er að byggja upp stafrænt sögusafn UNESCO Vistvangs Snæfellsness með framleiðslu 30 stuttra myndverka sem skrá, varðveita og miðla sögu samfélagsins. Heilsumiðstöðin Lind fékk

úthlutað 2 milljónir króna styrk til uppbyggingar á aðstöðu fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga á sviði heilsu og vellíðanar. Þar yrði einnig fjölnota salur fyrir námskeið, fræðslu og heilsutengda viðburði í Snæfellsbæ. JJ

Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,

Blaðið kemur út vikulega.

Upplag: 500

Áb.maður: Jóhannes Ólafsson

Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ

Netfang: steinprent@simnet.is

Sími: 436 1617

Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, framrúðuskipti, dekkjaskipti og smurþjónustu.

Tímapantanir í síma 436-1111

Aflatölur

15. - 28. júní

Nú er nánast bara strandveiðiflotinn að róa hér hjá okkur en þeim hefur því miður fækkað eitthvað, margir eru farnir á Patreksfjörð og Bolungarvík að leita að betri veiði og stærri fiski. Handfæraveiðin á Arnarstapa hefur dregist töluvert saman. Þegar þetta er skrifað eru allir dragnótabátar hættir veiðum nema Hildur, en hún rær eitthvað áfram og fer svo í slipp á Akureyri. Júlli Páls hefur verið að landa á Arnarstapa en hann er að leita að Ufsa og Löngu. Enginn línubátur er með löndun á þessum lista.

Svona eru aflatölurnar (óslægðar tölur topp 5):

Dragnót: Hildur 127 tonn í 4 löndunum. Ólafur Bjarnason 53 tonn í 4 lönd. Esjar 7 tonn í 1 löndun.

Net: Júlli Páls 26 tonn í 8 löndunum.

Handfæri:

Birta (2689) 9 tonn í 6 löndunum. Sleipnir 7,6 tonn í 3 löndunum. Hilmar Afi 7,1 tonn í 6 löndunum. Glaður 6,1 tonn í 3 löndunum. Naustvík 5,9 tonn í 6 löndunum.

Sýningaropnun í Pakkhúsinu

Fimmtudaginn 25. júní opnuðu tvær sýningar í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Annars vegar var sýning um verslunarsögu Ólafsvíkur og hins vegar var sýning um líf og störf skáldsins Jóhanns Jónassonar. Þær Ragnheiður Víglundsdóttir og Jenný Guðmundsdóttir stóðu að sýningunum fyrir hönd Hollvinasamtök Pakkhússins en þær hlutu menningarstyrk frá Uppbyggingasjóði Vesturlands árið 2024 fyrir samtökin og hafa lagt sitt að mörkum við að koma Pakkhúsinu aftur í notkun eftir að starfsemi í því hefur legið niðri um tíma.

Báðar sýningarnar voru settar upp af Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur og Sveinn Þór Elinbergs-

son tók saman verslunarsöguna í greinagóðum texta þar sem saga verslunar í þorpinu er rakin með myndum og öðrum sögulegum heimildum. Sýningin um Jóhann Jónasson var unnin og sett upp í Pakkhúsinu á síðasta ári og verður nú aðgengileg gestum. Við opnun sýninganna bauð Ragnheiður Víglundsdóttir viðstadda velkomna og sagði frá sýningunum tveimur, að því loknu skoðuðu gestir sýningarnar og svo bauð bæjarstjórn Snæfellsbæjar upp á veglegar veitingar frá Matarlyst. Meðfylgjandi mynd tók Pétur Steinar Jóhannsson af Sveini, Ragnheiði og Jenný við opnun sýninganna.

SJ

Vegna sumarleyfa kemur Bæjarblaðið Jökull ekki út í vikum 29 - 32.

Síðasta blað fyrir sumarfrí kemur út 8. júlí.

Fyrsta tölublað eftir sumarfrí kemur út 12. ágúst.

Sumarhátíð Leikskóla Snæfellsbæjar

Sumarhátíð leikskóla Snæfellsbæjar var haldin á leikskólanum Kríubóli á Hellissandi þann 11. júní síðastliðinn. Að þessu sinni var hátíðin haldin sameiginlega fyrir báðar starfsstöðvar á Hellissandi vegna framkvæmda á leikskólalóðinni í Ólafsvík. Börn, foreldrar og starfsfólk Kríubóls og Krílakots komu saman og nutu samverunnar í gleði og leik. Veðrið var nokkuð gott þó aðeins hafi blásið og var fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir viðstadda. Í boði var að blása sápukúlur, taka þátt í listsköpun, bingó var um útisvæðið, andlitsmálning og leikur í nýju útieldhúsi. Þá kom Lalli töframaður í heimsókn í boði foreldrafélags leikskólans og gestir gátu gætt sér á pylsu og skúffuköku. Leikskólar Snæfellsbæjar vilja þakka öllum sem komu og nutu dagsins. Meðfylgjandi mynd er frá leikskólum Snæfellsbæjar.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
BaejarbladidJokull1214tbl by Steinprent - Issuu